Þriðjudagur, 17. ágúst 2010
Átakanleg blinda eða forheimska Evrópusambandssinna?
Því er oft haldið fram af ESB-sinnum að Evrópusambandið snúist um samvinnu þjóða hinnar styrjaldarhrjáðu og þreyttu Evrópu. Já þreytt er þessi heimsálfa sem nú hnignar hraðar en hagstofustáss Brussels nær að tilkynna almenningi í löndum sambandsins. Að allt þetta bákn sem rakið er hér að neðan snúist bara um samvinnu. Eins konar samvinnu, samyrkju, samskotum eða sameiginlegu hinu og þessu. En sem á endanum, ef ESB fær að ráða, mun auðvitað enda með samruna og þögulli eyðni þjóðareinkenna Evrópu í faðmi nýrra kynslóða. Nýrra kynslóða sem aldnar hafa verið upp í vöggu áróðursherdeila Evrópusambandsins. Fjármagnið til áróðurs er þar óendanlegt.
Veikastir fyrir áróðri Evrópusambandsins eru nýjar kynslóðir sem þekkja ekki neitt annað en þann massífa ESB-áróður sem þeim er kenndur frá blautu barnsbeini. Skyldumyndin af góðgerð ESB sem límd er í formi búmerkis ESB föst upp á veggi við allar mjólkurkistur og eplakassa á öllum þeim barnaheimilum Evrópusambandsins sem náðarsamlegast hafa fengið leyfi hjá Brussel til að deila út ókeypis ESB-eplum eða niðurgreidda ESB-mjólk (innflutt bannað) handa börnum. ESB er nefnilega svo gott. Ætlast er til að unga kynslóðin muni þetta þegar hún vex úr grasi þjóðríkisins og inn í ESB-baunagras Evrópusamrunans. Munið mín kæru börn eftir ESB-merkinu á vegginum við eplamjólkina sem varð að koma alla leið frá Brussel því landið þitt var orðið svo ofur-sjálfstætt á veru sinni í ESB.
Þessu sama var þó - og alveg fram í rauðan dauðann - haldið fram um flest þau ríki sem á sínum tíma tilheyrðu Sovétríkjum Evrópu. Þar - samkvæmt öllum Fylkingarmönnum, flestum Samfylkingarmönnum og undantekningarlaust öllum kommúnistum í ytra byrði þáverandi lygavefstóls stjórnmála- og menningarelítu Evrópu - átti allt að vera svo gott í þessu sambandi ríkja kommúnista í Austur-Evrópu. Þegar valdinu nakta var beitt með kúgun, aftökum, pyntingum og útrýmingu, þá kallaðist það á vesturlandi menningarelítu Evrópu að verið væri, alveg rétt í þessu, að tryggja friðinn í Evrópu - og reyndar heiminum öllum. Tryggja friðinn! Þetta fékk maður að heyra þegar nánar var spurt til tíðinda. Alltaf var þetta alveg að koma, árangurinn var bara rétt handan við hornið hvassa.
Aðferðirnar í Evrópu hafa verið mýktar í dag. En að öðru leyti eru hvatirnar og áróðursaðferðirnar ennþá svipaðar. Lýðræðinu skal ennþá drekkt í Evrópu. Og alltaf er útópían við það að ganga upp og árangurinn er ávalt rétt handan við hornið endalausa, sem smá saman breytist í grátmúr. Nú seinast hafa menn skyndilega uppgötvað að myntbandalag Evrópusambandsins getur því miður ekki gengið upp nema að ríkisfjárlög hinna svo kölluðu ofur-sjálfstæðu ríkja sambandsins verði sameinuð og sett undir vald ókjörinna Evrópusambandsmanna Brussels, eða í það minnsta, að aðalstöðvar sambandsins verði settar sem æðsti dómari yfir því hvernig skattatekjum ríkjanna skuli varið hvað varðar mikilvægustu útgjaldaliði ríkissjóðs. Þið vitið kæru lesendur; skattatekjurnar eru þeir fjármunir þegnana sem í flestum löndum sambandsins nema allt að helmingi þjóðartekna í ríkjum sambandsins.
Þegar betur er að gáð, munu allir sem hafa viljann til að sjá og skilja, að þarna er bara um að ræða sára einfalt innvortis valdarán ESB í dulargerfi samvinnunnar. Fullveldinu og sjálfstæðinu er stolið og það skorið undan þjóðunum í smá skömmtum. Það fer svo í farveg niðurfalls og eyðist. Hornsteinninn er holaður með reglugerðum og skrefum sem þjóðfélagslega er ógerningur að vinda ofan af aftur.
Hefur þú einhvern tíma séð svo kallaða "samvinnu" þjóða sem krefst eftirfarandi atriða?:
- Hertra og hærri tollamúra gegn umheiminum
- Eigin myntar
- Afnám réttar þjóðríkja til að gefa út sína eigin mynt
- Skilyrðislausrar þvingunar til að hætta útgáfu eigin myntar og skyldu til að taka upp mynt sem þú hefur ekkert um að segja
- Eigin seðlabanka
- Undirgangast vaxta- og peningapólitík erlends seðlabanka sem leggur efnahag lands þíns í rúst, þ.e. ef þú heitir ekki Þýskaland eða Frakkland.
- Eigin dómstóla og löggjafar sem er æðri löggjöf svo kallaðra "fullvalda ríkja ESB" á æ fleiri sviðum
- Óteljandi áróðursherdeilda sem einnig ráða yfir fjölmiðlum
- Þings og þingmanna
- Forseta og utanríkisráðherra
- Eigin stjórnarskrár
- Eigin lögreglu
- Eigin komandi hervalds
- Rétt til að nýta auðlindir annarra þjóða
- Réttar annarra þjóða til að kjósa sig til auðæfa annarra landa
- Fána
- Þjóðsöng
Hér er ekki um samvinnu að ræða. Hér er verið að stofna nýtt ríki: sambandsríki Evrópu, USE.
Eftir 25 ára búsetu og atvinnurekstur í Evrópusambandinu hef ég þetta að segja kjánum Íslands, sem nú eru að reyna að notfæra sér hræðslukastið sem kom þeim svo afar heppilega þegar illa reknar fjármálastofnanir hrundu á Íslandi:
Það er núna sem ferlið á að stöðva. Það er of seint að stoppa öll ferli sama hvaða nafni þau nefnast þegar inn í Evrópusambandið er komið. Þá væri, hægt en bítandi, Ísland okkur glatað. Þetta er ekki pakkaleikur. Landið okkar er í húfi.
Tengt
Fyrri færsla
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Evrópumál | Breytt s.d. kl. 20:06 | Facebook
Nýjustu færslur
- Lánshæfnismat Frakklands lækkað. Heil 25-35 ár af hergagnafra...
- Frakkland gæti gengið í Evrópusambandið og tekið upp evru
- Samfylkingin fékk 3,4 prósentum meira en Vinstri grænir
- "Stórgögn" og "gervigreind" hafa lítið fært okkur
- Ísrael er búið að vinna stríðið í Líbanon
- Natópóleon beinapartur
- Rússland nú fjórða stærsta hagkerfi veraldar. Lánshæfnismat F...
- Ég óska Bjarna Ben til hamingju og velfarnaðar
- Víkingar unnu ekki. Þeir "þáðu ekki störf"
- Engir rafbílar segir Apple
- Grafa upp gamlar sprengjur og senda áleiðis til Úkraínu
- Geðsýki ræður NATÓ-för
- "Að sögn" háttsettra í loftbelg
- Skuldir Bandaríkjanna smámunir miðað við allt hitt
- Forsetinn og meiri-hluta-þvættingurinn
Bloggvinir
- Heimssýn
- Samtök Fullveldissinna
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Ragnhildur Kolka
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Haraldur Hansson
- Haraldur Baldursson
- Páll Vilhjálmsson
- Halldór Jónsson
- Valan
- Samstaða þjóðar
- Frjálshyggjufélagið
- Sigríður Laufey Einarsdóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Jón Valur Jensson
- Samtök um rannsóknir á ESB ...
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
- Jón Baldur Lorange
- Guðjón E. Hreinberg
- Jón Ríkharðsson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Valdimar Samúelsson
- Fannar frá Rifi
- Bjarni Jónsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Haraldur Haraldsson
- Örvar Már Marteinsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Gestur Guðjónsson
- Ingvar Valgeirsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Guðmundur Helgi Þorsteinsson
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Harðarson
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Sveinn Atli Gunnarsson
- gudni.is
- Gústaf Adolf Skúlason
- Tryggvi Hjaltason
- ESB
- Marinó G. Njálsson
- Baldvin Jónsson
- Elle_
- Sigurbjörn Svavarsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Johnny Bravo
- Jón Finnbogason
- Rýnir
- Þórarinn Baldursson
- P.Valdimar Guðjónsson
- Már Wolfgang Mixa
- Ívar Pálsson
- Júlíus Björnsson
- Guðjón Baldursson
- Baldur Fjölnisson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Einar Ólafsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Vilhjálmur Árnason
- gummih
- Sveinn Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jóhann Elíasson
- Baldur Hermannsson
- Kristinn D Gissurarson
- Magnús Jónsson
- Ketill Sigurjónsson
- Birgitta Jónsdóttir
- Axel Jóhann Axelsson
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Aðalsteinn Bjarnason
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Haraldur Pálsson
- Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
- Bjarni Benedikt Gunnarsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ægir Óskar Hallgrímsson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Óskar Sigurðsson
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Hörður Valdimarsson
- Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Ásta Hafberg S.
- Erla J. Steingrímsdóttir
- Helena Leifsdóttir
- Agný
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Árni Bragason
- Jón Lárusson
- Högni Snær Hauksson
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristinn Snævar Jónsson
- Sigurður Ingólfsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Sigurður Þórðarson
- S. Einar Sigurðsson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Vaktin
- Sigurjón Sveinsson
- Dóra litla
- Arnar Guðmundsson
- Jörundur Þórðarson
- Rafn Gíslason
- Hjalti Sigurðarson
- Kalikles
- Vésteinn Valgarðsson
- Bjarni Kristjánsson
- Egill Helgi Lárusson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jón Pétur Líndal
- Guðmundur Ásgeirsson
- Reputo
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Als
- Friðrik Már
- Gísli Sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Rauða Ljónið
- Sumarliði Einar Daðason
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Kári Harðarson
- Sigurður Antonsson
- Valdimar H Jóhannesson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Dagný
- Guðmundur Pálsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Birgir Viðar Halldórsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Tíkin
- Jón Þórhallsson
- Íslenska þjóðfylkingin
- Erla Magna Alexandersdóttir
- Óskar Kristinsson
- Dominus Sanctus.
- Ingólfur Sigurðsson
- Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.12.): 26
- Sl. sólarhring: 58
- Sl. viku: 442
- Frá upphafi: 1389062
Annað
- Innlit í dag: 13
- Innlit sl. viku: 251
- Gestir í dag: 12
- IP-tölur í dag: 10
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
Athugasemdir
Og til að tryggja framhald þjónustulundar skrifstofublókanna og diplómatanna eru skattborgarar ESB-landa látnir greiða fyrir skólagöngu barnanna þeirra. Í skólum þar sem árgjaldið er 2.5 milljón kr. fyrir utanaðkomandi. Sér skólum með áherslu á tungumál og akademískt prógramm sem skilar afkvæmunum beint inn í nefndirnar og ráðin svo börn elítunnar þurfi aldrei að óhreinka sig á samkeppnismarkaði.
Árið 2013 verður áætlaður kostnaðurinn við skólagöngu ESB-elítubarna kominn í 30 milljarða króna og munar um minna fyrir aðildarlöndin sem flest eru með svelt skólakerfi.
Ragnhildur Kolka, 17.8.2010 kl. 21:58
Þetta er alveg frábært. Frábært bara. ..Eða ekki.
Ég vildi óska að þú værir klikkaður. Stíllinn gæti kanski gefið það í skyn. Þess vegna er hann líka alveg óvenjulega skemmtilegur aflestrar :)
Takk fyrir góða pistla sem segja allt sem segja þarf um ESB skelfinguna.
Það er það sem ESB er. Skelfing.
Það sem Ragnheiður segir hér að ofan er ekta dæmi pólitísku elítunnar sem vex upp í svona umhverfi. ...Viðbjóður. Hreint og beint. Segir sá skólaflinki! :)
Jón Ásgeir Bjarnason, 17.8.2010 kl. 22:16
Með dulbúnu stjórnarskránni, sem kölluð er "Lissabon sáttmáli", var ESB breytt úr sambandi 27 sjálfstæðra ríkja í eitt sjálfstætt sambandsríki. Í sameiginlegri bókun þurfa öll "aðildarríki" að sverja fána Evrópuríkisins hollustueið!
Breskir fjölmiðlar fjölluðu um nýlega um skólana sem Ragnhildur Kolka nefnir, en ESB rekur 14 skóla fyrir börn möppudýranna í Brussel. Þeir kosta breska skattgreiðendur 22 milljónir punda á ári.
Haraldur Hansson, 18.8.2010 kl. 00:03
Ný heimsmynd er í sköpum. Þjóðverjar eru loks að ná takmarkinu, þe að leggja undir sig Evrópu. Peningarnir duga betur en byssurnar. USE á sér frekari takmörk. Alger yfirráð á Norðurhveli jarðar. Island í þeirra augum spilar stórt hlutverk þar. Afkomendur Hansa kaupmanna ráða málum í Suður Noregi, semsé þjóðverjar. Grænland hafa þeir nú þegar gegnum Danmörk. Rússarnir verða þeim sennilega erfiður ljár í þúfu, en mun takast. Vesturheimur er þegar undirlagður af þjóðverjum. Þeir stjórna hermennskunni. Gyðingar stjórna fjármagninu. Spáð er að Austurströnd USA verði yfirtekin af USE. Vesturströndin aftur á móti, fellur undir Kína.
Björn Emilsson, 18.8.2010 kl. 00:50
Þakka gott innlegg í á móti ESB við verðum að berjast með kjaft og klóm en í sannleika sagt þá þar löggjafavaldið að kæra Landráð sjá blogg mitt.
Valdimar Samúelsson, 18.8.2010 kl. 13:06
Rosaleg eruð þið biluð :)
Áhugavert samt að ESB-sinnar eru hættir að nenna að rífast í þessu bulli sem Gunnar lætur upp úr sér. Sama gildir um mig :)
Endilega njótið nú síðustu áranna án veru í ESB, því þar verðum við
áður en þið getið sagt "öfgafullir þjóðernissinnar".
Það er ljóst á ykkar öfgamálflutningi að ykkur verður ekki boðleg veran á fórsturjörðinni þegar við verðum gengin í ESB, þannig að ég mæli með að þið leggið eftirfarandi slóð í minnið:
http://en.wikipedia.org/wiki/Suicide_methods
...ó mæ god.
Einar Solheim, 18.8.2010 kl. 15:22
ps: Hvað heitir það aftur þegar maður hatar eitthvað ástand en kýs að lifa við það í 25 ár? Heimska? Kvalarfíkn? Líklega hægt að kalla það hinum ýmsu nöfnum, en að eyða bróðurpartinum af lífi sínu í þessu djöfullega ESB - ótilneyddur - lýsir því e.t.v. best hversu mikið mark er takandi á Gunnari.
Einar Solheim, 18.8.2010 kl. 15:25
Ætli Einar búi á Sólheimum?
-Svona fer þegar rökin eru engin gagnvart einkar skemmtilegum og fróðlegum texta Gunnars Rögnvaldssonar. :)
Jón Ásgeir Bjarnason, 18.8.2010 kl. 16:18
Jón Ásgeri,
ég hef skrifað víða um áhuga minn á því að Ísland gangi í ESB og er yfirleitt sæmilega málefnalegur. En maður gengur ekki inn í kirkju og fer að rökræða á vitrænan hátt hvort guð sé til eða ekki. Hér inni hjá Gunnari mæta þeir allra hörðustu, hlusta á predíkarann, segja hallelúja og ef þau detta í lukkupottinn fær þetta lið að hnýta í trúleysingja eins og mig. Hef oft bloggast við Gunnar um ESB, en honum verður ekki snúið. Enda hefur hann töluverða fjárhagslega hagsmuni af því að halda íslensku krónunni í kreppu (eins og flestir þeirra sem eyða tíma í áróður gegn ESB).
Einar Solheim, 18.8.2010 kl. 16:27
...ps: ótrúlega fyndin þessi tenging við Sólheima! Hef aldrei fattað þetta áður... Solheim.... Sólheimar ! HAHAHAHAHAHA
Einar Solheim, 18.8.2010 kl. 16:29
Ég vil nú ekki skemma síðuna með þrasi Einar. Það er ekki sniðugt.
Ég hef bæði búið á Sólborg og Sólheimum og stoltur af því. Sérstaklega þar sem ég gat flutt burtu. Er þess vegna reynslunni ríkari.
Alveg eins eða svipað og Rögnvaldur sem tókst að flytja út úr ESB geri ég ráð fyrir.
Öll höfum við hagsmuna okkar að gæta trúi ég líka, en að hagsmunum einhverra Íslendinga sé þjónað með því að ganga í ESB gildir kanski fyrir þá sem fá vinnu í Brussel. Að þeir séu mikið fleiri eru kjánaleg trúarbrögð. ..Því rökin bara hreinlega vantar.
Jón Ásgeir Bjarnason, 18.8.2010 kl. 19:07
Þakka ykkur kærlega fyrir innlitið
Ég leyfi mér að minna Einar Solheim á þá staðreynd að þegar ég flutti til Danmerkur árið 1985 var Evrópusambandið ekki til. Ári seinna lofaði forsætisráðherra Danmerkur dönsku þjóðinni að Evrópusambandið yrði heldur aldrei til. Það gerði hann þegar kosið var um EF-pakkann árið 1986. Hann sagði: Evrópusambandið er steindautt
25 árum seinna er Danmörk búið að missa stóran hluta af fullveldi sínu og þjóðin situr eftir vonsvikin með sárt ennið og getur sig hvergi hreyft. Þessi síðustu 25 ár í ESB hafa boðið upp á massíft 8-12% atvinnuleysi allan tímann nema í 4 ár. Húsnæðismarkaður hefur fallið um allt að 40% tvisvar sinnum á þessu tímabili og hagvöxtur í Danmörku hefur verið sá þriðji lélegasti í OECD síðastliðin 10 ár og landið hrapar hratt á skalanum yfir ríkustu þjóðir heimsins. Á næstu 10 árum mun Danmörk fá næst lélegasta hagvöxt allra ríkja OECD.
Í stuttu máli er Danmörk tapað land og mun deyja hægfara dauða velmegunarríkis í kolanámufaðmlagi Evrópusambandsins. Nú er engin leið út aftur og stór hluti þjóðarinnar óskar sér sitt gamla land aftur. En það er ekki hægt.
Eftir 25 ár í viðbót verður Danmörk að líkindum horfið sem ríki og orðið hérað í Bandaríkjum Evrópu
Kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 18.8.2010 kl. 20:07
Íslensk stjórnvöld hafa svo sannarlega sýnt það á síðustu áratugum að við höfum ekkert að gera í ESB.
Íslenskar fjölskyldur hafa aldrei haft það betur en í dag.
Kvótakerfið í sjávarútvegi hefur svo sannarlega sannað sig að það er verið að yfirfæra það á landbúnað. Líklega með frábærum árangri fyrir neytendur.
Á meðan að árangur íslenskra stjórnvalda er svona góður, þá höfum við ekkert með að ganga í ESB.
Stefán Júlíusson (IP-tala skráð) 18.8.2010 kl. 22:46
Það er rétt Stefán. Loksins rök gegn ESB sem ég kaupi. Vill líka nota tækifærið að samhryggjast Gunnari sem flutti til DK á fölskum forsendum. Greyið ungur strákurinn hélt að hann væri að flytja til lands framtíðarinnar, en var svo settur í fangabúðir og haldið þar nauðugum af ESB, Því eins og allir vita þá leyfir ESB íbúm ekki að flytja af herteknum svæðum sínum. Honum tókst þó að koma sér til Spánar og fær nú loks að fara til Íslands þar sem fyrirsjáanlegt er að Ísland muni ganga í ESB.
Ég sé það líka núna hversu slæm áhrif ESB hefur haft á Danmörku. Greinilega allt í klessu þar. Reyndar ekki verra en svo að íslendingar (sem eru ekki í ESB) flykkjast þangað í hundruðatali þessa mánuðina. Það er líka skandall að Danmörk sé aðeins í 10. sæti yfir þau lönd í heiminum sem best er að búa í (http://www.newsweek.com/2010/08/15/interactive-infographic-of-the-worlds-best-countries.html). Ef Danmörk hefði ekki verið í ESB hefðu þeir pottþétt verið í 1. sæti! Eins gott fyrir Finnland (sem er í fyrsta sæti) að þeir ganga ekki í ESB. Þá myndu lífsgæði í Finnlandi pottþétt hrapa. Sama sem Svíþjóð sem er í þriðja sæti - þeir munu pottþétt hafa vit á að ganga aldrei í ESB! ESB þjóðirnar Yemen og Pakistan eru hins vegar nálægt botninum og sést þar vel hversu eyðileggjandi ESB er.
Þó svo að ég sjái nú þvílíkar hörmungar ESB (og föðurlandssvikararnir sem vilja ganga í ESB) muni færa okkur, þá er ég samt enn ekki viss varðandi krónuna. Ég hallast þó að því að halda henni til að tryggja að Gunnar fái tvöfalt fleiri krónur fyrir hvern ruslakassa seldan fyrir Evrur. Það hljómar e.t.v. asnalega en mér finnst hagsmunir Gunnars vega þyngra en almennir hagsmunir þjóðarinnar.
Gott að við erum öll sammála! :)
Einar Solheim, 19.8.2010 kl. 07:02
Einar: Alveg sammála þér.
Vil bæta einu við. Það er alveg ljóst að verðtryggingin hefur gefið okkur þann stöðugleika sem við höfum þurft til að halda hér sjálfstæði. Sjálfstæði og verðtrygging haldast þétt saman í hendur.
Íslenskar sérlausnir eru af hinu góða og eiga að vera kenndar erlendis í háskólum en ekki rakkaðar niður af besserwisserum eins og þessum ESB-sinnum.
Ísland er eins og birkið okkar. Ef við göngum í ESB, þá verður það líklega bannað því það er svo kræklótt og passar ekki í neinn staðal. Maður fær hroll við tilhugsunina um að verið sé að gróðursetja útlenskar tegundir í landinu okkar. Það eru svo sannarlega svikarar sem gera það.
Nei, við ESB.
Stefán Júlíusson (IP-tala skráð) 19.8.2010 kl. 07:35
Ég frétti að ef við göngum í ESB þá verði vestfjarðarkjálkanum sökkt. Mönnum þykir hann ekki nægilega straumlínulagaður og formið hentar illa evrópskum framleiðendum landakorta. Þetta bara má ekki gerast! NEI, við ESB!
Á Íslandi býr besta fólk í heimi. Við eigum flesta stórmeistara í skák pr. íbúa og höfum oftast unnið Ungfrú heimur pr. íbúa. Það er reyndar farið að kalla okkur pólverja norðursins í Noregi, en hvað vita Norðmenn! Norskar konur eru lítið skárri en ESB-konur - langt frá því að ná íslenskum gæðum. Og ekki viljum við að þær íslensku fari að líta út eins og þær bresku - sem augljóslega mun gerast þegar Tony Blair verður kóngur yfir Íslandi.
Nei - ESB spurningin er spurning um líf og dauða. Líf innan ESB er augljóslega ekki þess virði að lifa. Fyrr Deyi Ek Fyrir Födrlandid.
Einar Solheim, 19.8.2010 kl. 10:20
Einar: og flesta nóbelsverðlaunahafa per haus.
Stefán Júlíusson (IP-tala skráð) 19.8.2010 kl. 11:43
Urðum við ekki líka heimsmeistarar í handbolta? Það hefði okkur aldrei tekist hefðum við búið í ESB landi, því ESBlendingar kunna ekkert í handbolta. Ég man t.d. ekki eftir að hafa séð ESB spila á móti þessum bestu þjóðum heims - líkt og frökkum, pólverjum, spánverjum og þjóðverjum. ESB hlýtur að vera í einhverri annari deild... aular.... NEI VIÐ ESB!!!!
Einar Solheim, 19.8.2010 kl. 12:06
ESB kommst ekki einusinni með innlimunarstælunum sínum á HM í fótbolta í Suður-Afríku.
Stefán Júlíusson (IP-tala skráð) 19.8.2010 kl. 12:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.