Föstudagur, 25. júní 2010
ESB: Spánn, þjóð meðal ESB-þjóða í örvæntingu
Spánn sem gekk í Evrópusambandið árið 1986 er nú á barmi örvæntingar og hugsanlegs þjóðargjaldþrots. Aldarfjórðungur í Evrópusambandinu hefur skilað Spáni á endastöð þjóðanna; á kaf í evrusvaðið.
Á árunum frá 2002-2008 eyðilagði seðlabanki Evrópusambandsins efnahag Spánar með því að stilla raunstýrivexti landsins á neikvætt gildi. Slík efnahags- og peningastefna leggur þjóðarhag ríkja í rústir. Börn vita það.
Á Spáni var atvinnuleysi 19,7 prósent í apríl. Atvinnuleysi hjá ungu fólki undir 25 ára aldri var á sama tímabili heil 40,3 prósent. Ungt fólk á því afar svarta framtíð fyrir sér í þessu Evrópusambandslandi. Flest þessara ungmenna myndu eflaust kjósa að flytja til Íslands ef þau mættu það og ættu peninga fyrir farmiðanum.
Konur á Spáni vilja ekki fæða börn inn í það sem eftir er af þjóðríki Spánar í Evrópusambandinu. Frjósemishlutfall innfæddra kvenna er aðeins 1,33 fætt barn á æfi hverrar konu. Þetta er stórslys fyrir Spán og mun leggja landið að velli á næstu 50-150 árum. Svona hefur þetta verið allar götur frá því að landið gekk í Evrópusambandið árið 1986.
Eftir 24 ár í Evrópusambandinu vill enginn fæða börn á Spáni. En það vill heldur enginn lána Spánverjum peninga. Fjármálakerfi landsins hefur nú verið sparkað út úr samfélagi alþjóðabanka og útaf millibankamarkaði þeirra. Mynt Spánar er evra og er hún líklega um 50-70% of hátt metin fyrir spænskt atvinnulíf. Þess vegna eru allir atvinnulausir á Spáni. Of fáir vilja kaupa af þeim of dýrar vörur í of dýrum evrum. Spánn er full stopp. Börn vita að svona fer þegar gjaldmiðillinn er þjóðinni ónytjungur.
Spánn getur ekki losnað úr þessu fangelsi þjóðarinnar. Engin leið er til önnur fyrir Spán en sú að drepast sem þjóð meðal þjóða í kirkjugarði ríkisstjórna í Evrópu þ.e. í evrukirkjugarðinum.
Spánn var einu sinni land og þjóð. Nú er landið bara hluti af evrusvaðinu.
Fyrri færsla
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Evrópumál | Breytt s.d. kl. 17:58 | Facebook
Nýjustu færslur
- "Stórgögn" og "gervigreind" hafa lítið fært okkur
- Ísrael er búið að vinna stríðið í Líbanon
- Natópóleon beinapartur
- Rússland nú fjórða stærsta hagkerfi veraldar. Lánshæfnismat F...
- Ég óska Bjarna Ben til hamingju og velfarnaðar
- Víkingar unnu ekki. Þeir "þáðu ekki störf"
- Engir rafbílar segir Apple
- Grafa upp gamlar sprengjur og senda áleiðis til Úkraínu
- Geðsýki ræður NATÓ-för
- "Að sögn" háttsettra í loftbelg
- Skuldir Bandaríkjanna smámunir miðað við allt hitt
- Forsetinn og meiri-hluta-þvættingurinn
- Gervigreindar-fellibyl í vatnsglösum lokið
- Sjálfstæð "Palestína" sýnir morðgetu sína á tvo kanta
- Benjamín Netanyahu hringdi strax í Zelensky. Hvers vegna?
Bloggvinir
- Heimssýn
- Samtök Fullveldissinna
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Ragnhildur Kolka
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Haraldur Hansson
- Haraldur Baldursson
- Páll Vilhjálmsson
- Halldór Jónsson
- Valan
- Samstaða þjóðar
- Frjálshyggjufélagið
- Sigríður Laufey Einarsdóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Jón Valur Jensson
- Samtök um rannsóknir á ESB ...
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
- Jón Baldur Lorange
- Guðjón E. Hreinberg
- Jón Ríkharðsson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Valdimar Samúelsson
- Fannar frá Rifi
- Bjarni Jónsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Haraldur Haraldsson
- Örvar Már Marteinsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Gestur Guðjónsson
- Ingvar Valgeirsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Guðmundur Helgi Þorsteinsson
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Harðarson
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Sveinn Atli Gunnarsson
- gudni.is
- Gústaf Adolf Skúlason
- Tryggvi Hjaltason
- ESB
- Marinó G. Njálsson
- Baldvin Jónsson
- Elle_
- Sigurbjörn Svavarsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Johnny Bravo
- Jón Finnbogason
- Rýnir
- Þórarinn Baldursson
- P.Valdimar Guðjónsson
- Már Wolfgang Mixa
- Ívar Pálsson
- Júlíus Björnsson
- Guðjón Baldursson
- Baldur Fjölnisson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Einar Ólafsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Vilhjálmur Árnason
- gummih
- Sveinn Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jóhann Elíasson
- Baldur Hermannsson
- Kristinn D Gissurarson
- Magnús Jónsson
- Ketill Sigurjónsson
- Birgitta Jónsdóttir
- Axel Jóhann Axelsson
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Aðalsteinn Bjarnason
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Haraldur Pálsson
- Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
- Bjarni Benedikt Gunnarsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ægir Óskar Hallgrímsson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Óskar Sigurðsson
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Hörður Valdimarsson
- Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Ásta Hafberg S.
- Erla J. Steingrímsdóttir
- Helena Leifsdóttir
- Agný
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Árni Bragason
- Jón Lárusson
- Högni Snær Hauksson
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristinn Snævar Jónsson
- Sigurður Ingólfsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Sigurður Þórðarson
- S. Einar Sigurðsson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Vaktin
- Sigurjón Sveinsson
- Dóra litla
- Arnar Guðmundsson
- Jörundur Þórðarson
- Rafn Gíslason
- Hjalti Sigurðarson
- Kalikles
- Vésteinn Valgarðsson
- Bjarni Kristjánsson
- Egill Helgi Lárusson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jón Pétur Líndal
- Guðmundur Ásgeirsson
- Reputo
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Als
- Friðrik Már
- Gísli Sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Rauða Ljónið
- Sumarliði Einar Daðason
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Kári Harðarson
- Sigurður Antonsson
- Valdimar H Jóhannesson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Dagný
- Guðmundur Pálsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Birgir Viðar Halldórsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Tíkin
- Jón Þórhallsson
- Íslenska þjóðfylkingin
- Erla Magna Alexandersdóttir
- Óskar Kristinsson
- Dominus Sanctus.
- Ingólfur Sigurðsson
- Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.11.): 8
- Sl. sólarhring: 9
- Sl. viku: 134
- Frá upphafi: 1387352
Annað
- Innlit í dag: 8
- Innlit sl. viku: 93
- Gestir í dag: 7
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
Athugasemdir
Of satt, of satt...
Annars dettur mér í hug að ef fæðingartíðni væri stríð, þá væri ESB búið að tapa. Vegna skorts á ræðurum í velferðarbátinn eftir svo örfá ár, en enginn leið framhjá því að leyfa stórfelldan innflutning á menntuðum starfskröftum erlendis frá. Þjóðernissinnar munu bíða lægri hlut.
Og sigurvegarinn er.... Kína og Indland.
Þessi tvö lönd munu senda fólk til ESB til að fylla á tankinn. ESB mun því breytast í Asíuland. Ég er með því ekki að tala niður til Asíulanda, alls ekki. Þróun er þróun,.... það mun ekkert stöðva hana.
Haraldur Baldursson, 25.6.2010 kl. 08:17
ESB er búið að vera eftir örfá ár. Þá eru raunverulegir Þjóðverjar nær útddauðir og innfluttir múslímar óþjóða hafa tekið völdin. Þýskaland sekkur niður á grískt plan og getur engann vagn dregið lengur. Sama gerist í Frakklandi og Bretlandi. Hálfmáninn bíður þeirra.
Það versta er að þessar þjóðir hafa allar framið sjálfsmorð undir forystu krata hvert í sinni heimabyggð. Hver hefur kjaftað upp í annan um slagorð sem þeir skilja ekki að getur bara gilt innanlands; Frelsi jafnrétti og bræðralag.
Halldór Jónsson, 25.6.2010 kl. 12:34
Það er örvita ríkisstjórn sem tekur skref fyrir hönd Íslands inn í þetta samfélag upplausnar og örþrifaráða.
Með hæfilegri blöndu af framsækni og íhaldsemi næstu 3-5 ár getur Ísland orðið hið fyrirheitna land með vaxandi hagvöxt og stöðugleika.
Árni Gunnarsson, 25.6.2010 kl. 21:25
Jamm. Þarna hittir þú naglann á höfuðið, Halldór.
fp (IP-tala skráð) 25.6.2010 kl. 22:23
Stundum held ég að besta leiðin til að afla Evrópusambandsaðild fylgis sé að láta andstæðinga þess kjafta nóg. Að konur á Spáni vilji ekki eignast börn vegna aðildar að Evrópusambandinu!!! Dásamlegt!
Kjartan Jónsson, 25.6.2010 kl. 22:48
Svona lán munu bjóðast Íslendingum ef þeir ganga í ESB. Þeir gætu valið á milli
1. Lán með 4 prósenta föstum vöxtum til 30 ára.
2. Lán með breytilegum vöxtum til 30 ára. Vextirnir á því láni eru nú 1,9 prósent og geta aldrei farið upp fyrir 5 prósent.
Sumir Íslendingar vilja borga sín lán með verðtryggingu og vöxtum 17 falt til baka, þ.e. þeir sem eru á móti því að ganga í ESB. Þessi kjör hér að ofan standa dönskum almenningi - og öllum Evrópubúum ef út í það er farið - til boða. Og þau eru öll óverðtryggð enda slíkt fyrirbæri óþarft í heilbrigðum hagkerfum. Þau sem sagt lækka í hvert skipti sem borgað er af þeim. Ef við tökum lán til 40 ára hér á landi og miðum við 5% vexti og 5% verðbólgu, sem sagt allt í fína lagi, þá þurfum við að borga hátt í 200 miljónir til baka á þessum 40 árum. Ef við tökum lán á evrusvæðinu 20 miljónir til 40 ára, þá þurfum við að borga 24 miljónir til baka. Hvort vilt þú?
Gott fólk, út af hverju takið þið ekki afstöðu til ESB út frá því hvort það komi ykkur persónulega vel eða ekki? Kvótagreifinn tekur afstöðu til ESB út frá því sem er best fyrir hann, óðalsbóndinn tekur afstöðu út frá því sem er best fyrir hann. Hvað með þig, langar þig að borga húsnæðislánið þitt 10 falt til baka, eða rúmlega einu sinni til baka? Hættum þessu bulli að láta einhverja sérhagsmunasambönd teyma okkur út í stuðning við örfáa aðila, tökum bara afstöðu til ESB út frá því sem kemur okkur sjálfum og fjölskyldum okkar best. Hvort viltu borga til baka af 20 miljóna króna íbúðarláni, 200 miljónir eða 24? Ertu flón eða maður sem stendur með sjálfum þér?Valsól (IP-tala skráð) 26.6.2010 kl. 02:01
Þakka ykkur kærlega fyrir innlitið
Kjartan; eftir að hafa nýlokið 25 ára samfleyttri búsetu og ástundun atvinnurekstrar í ESB - og einnig eftir að hafa alið þar upp tvö börn - þá get ég fullyrt að ESB er félagsskapur 27 þjóða sem allar eru að fækka sér hratt.
Til dæmis mun Þjóðverjum, Ítölum, Spánverjum, Portúgölum, allri Austur-Evrópu og öllum í Eystrasaltsríkjunum fækka um 33 prósent og enn meira á bara næstu 40 árum. Hver vill fjárfesta í deyjandi samfélögum? Hver vill fjárfesta í elliheimilum án nýrra skattgreiðenda? Hver á að stunda uppfinningar og nýsköpun í ellisamfélögum?
Frjósemishlutfall kvenna í ESB er það lágt að mannfjöldi þar mun minnka um helming á næstu 200 árum. Þetta mun ekki lagast því vandamálið er þess eðlis að það getur ekki lagast á minna en mögum mörgum kynslóðum.
Þegar mannfjölda-pýramídinn fer að snúast á hvolf og bora sig ofaní hausinn á þeirri ungu kynslóð sem þá er til staðar sem skattgreiðendur - eins og hann gerir núna í næstum öllum 27 löndum ESB - þá munu konur ávalt velja að fæða enn færri börn en áður. Þetta er að gerast í ESB og hefur verið að gerast þar síðustu marga áratugina.
Enginn nema fátæklingar vilja flytja í svona samfélög. Því mun innflutningur á ungu og hæfileikaríku fólki stöðvast alveg af sjálfu sér og það er hann einmitt að gera núna. Enginn vill flytja í deyjandi samfélög þar sem skattaskrúfan mun halda áfram að herpast um háls skattgreiðenda um allan aldur þeirra og æfi.
Atvinnuleysi í Evrópusambandinu hefur verið massíft og krónískt ömurlega hátt síðastliðin 30 ár. Engin samfélög þola svona lagað án þess að það komi einhvers staðar fram í þjóðfélaginu. Ef þú ert ungmenni á Spáni þá muntu ekki eingast börn því þú vilt ekki eiga á hættu að enda með börnin þín á götunni.
Tilkoma Evrópusambandsins hefur get alla atvinnusköpun helmingi erfiðari en ella, því ESB er að verða eins og Kreml var í Sovét. Ekkert getur gerst nema með samþykki Brussel. Engu má eyða nema með samþykki Brussel. ESB og sérstaklega Evrusvæðið er nú þegar orðið DDR-light og á eftir að verða ennþá verra.
Þegar vandamálið fer að verða líkamlegt þá munu konur sjálfkrafa hætta barnseignum. Að finna eina konu á frjósemisaldri í framskriðnum ellihagkerfum er ekkert grín. Ef Ísland missti alla Reykjavík á næstu 50 árum þá myndi þér ekki finnast að þjóðfélagið þitt myndi ýta undir væntingar þínar til framtíðarinnar. Þú munt þá setja allt þitt í lok og læs og ekki velja að eingast fjölskyldu. Eða - þú munt kjósa með fótunum og flýja ef þú getur flúið í annað og betra land með betri framtíðarhorfum.
Þú skalt ekki ímynda þér að niðurskurður og sú spennitreyja sem ESB aðild hefur í för með sér muni ekki bitna á barnsfæðingum og vilja kvenna til að fæða nýja einstaklinga / skattgreiðendur inn í þjóðfélögin. Sá niðurskurður sem er í gangi núna í ESB mun verða varanlegur og mun aðeins versna ennþá meira frá og með nú - því í raun hafa ESB löndin ekki lengur efni á samfélagi sínu lengur. Þau eru að verða uppiskroppa með skattgreiðendur. Unga fólkið finnur þetta og vill ekki eingast börn í svona þjóðfélögum sem eru að breytast í elliheimili. Enginn vill heldur fjárfesta í svona hagkerfum því þau eiga sér enga von. Framtíðin fyrir ESB er kolbiksvört eins og kolanáma.
Vöðvar sjálfstæðis og fullveldis virka á Íslandi. Ísland á bjarta framtíð fyrir sér, þökk sé fullveldi og sjálfstæði okkar. Nýfundnaland hefði getað orðið eins og Ísland. En það kastaði frá sér fullveldinu í kjölfar skuldakreppu eftir fyrri heimsstyrjöldina - eða árið 1949. Nú er Nýfundnaland land tapara. Það missti fullveldið. ESB er hins vegar heilt meginland tapara - a continent of loosers.
Það væri æskilegra að hlusta á þá sem sem hafa prófað ESB í langan tíma en þá sem hafa ekki prófað það. Annars er hættan sú að hér mun hefjast nýtt útrápsæði ekki ósvipað því sem lagði banka og fjármálakerfi landsins að velli - einungis sökum fávisku, því menn héldu þá að þetta væri allt svona einfalt. Að þetta væri ekkert mál. En ESB er ennþá verra því það er ekki hægt að komast þaðan út aftur nema með því að fremja efnahaglegt og samfélagslegt sjálfmorð í leiðinni. ESB er endastöð embættismanna. Endastöð landa.
Kjartan, þú skalt ekki umgangast þetta málefni eins og trúarbrögð útrásaráranna. Flest á Íslandi getur aðeins versnað við það að ganga í ESB.
Ef þú hefur eitthvað af viti fram að færa um málið þá væri gaman að heyra það.
Bestu kveðjur
Sjá einnig: Mynd af svartri framtíð: lífið eftir japönsku. Hugskot um fjölskyldu- og ættarsamfélagið
Gunnar Rögnvaldsson, 26.6.2010 kl. 02:44
Fjármálamarkaðir eru einkamál meðlimaríkjann, hinsvegar gildir að allir sem keppa á þjóðmörkuðum fara eftir heim reglum.
Negamlána höfuðstóll Íslands getur haldið áfram inna EU ef hann einskorðast við Íslenskar kennitölur og íslenska neysluvísitölu til að miða verðbólgu leiðréttingar á grunnvöxtum við til að tryggja núvirði greiðslu haldist óbreytt á Íslandi óháð tíma.
EU vegbréfið bætist við meðmilma vegabréfið en kemur ekki í staðinn fyrir það. Stjórnarskrár lög. Þjóðverji er ekki Íslendingur.
Júlíus Björnsson, 26.6.2010 kl. 03:13
Fjármálamarkaðir eru einkamál meðlimaríkjann, hinsvegar gildir að allir sem keppa á þjóðmörkuðum fara eftir þeim reglum sem gilda í viðkomandi Ríki.
Júlíus Björnsson, 26.6.2010 kl. 03:15
Lið sem hefur engar tekjur fær ekkert lánað í EU.
Júlíus Björnsson, 26.6.2010 kl. 03:16
Það er ekki eins og að eina fólkið sem sjái yfirvofandi skort á fólki skrifi blogg á Íslandi. Það er annar enn marktækari hópur sem sér þetta og bregst við.
Forstjórar stórra evrópskra fyrirtækja virðast hafa áttað sig á þessu og eru að færa starfsemina þaðan. Nokia er dæmi um eitt slíkt fyrirtæki sem hratt og örugglega er að færa sig frá Evrópu. Það er útbreiddur misskilningur að Nokia sé finnst fyrirtæki. Nokia er alþjóðlegt fyrirtæki sem sér og skilur að framtíð þess liggur ekki í ESB.
Haraldur Baldursson, 26.6.2010 kl. 12:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.