Leita í fréttum mbl.is

Sig­ríður: "Tals­vert eft­ir­lit í gangi" [u]

Kosningasamkoma Trumps í Norður-Karólínu í gær 19 sept 2020

Mynd: Kosningasamkoma (mótmæli hah!) Trumps í Norður-Karólínu í gær. Alltaf eins: Svartur síður frakki, tveggja fermetra hálsbindi og sami Queens-hreimurinn hvar sem hann fer. Breytist ekki. Þeir sem teknókratía sérfræðinga dæmdi úr leik sem "hina fyrirlitlegu", fagna hugrökkum leiðtoga sínum ákaft, enda ekki um teknókrata að ræða. Samkvæmt trúarsetningum sérfræðinga eru "hinir fyrirlitlegu" hin risastóra hvíta iðnaðar-millistétt í hjarta Bandaríkjanna og afkomendur hennar. Fellibylur hennar sækir nú í sig veðrið og rífa mun hún margt upp með rótum og storma annað um koll. Hún var skilin ein eftir á fjóshaug sérfræði-glóbalismans, allt frá því að Rögnvaldur Reagan fór frá völdum

****

Nú jæja? Í hvaða gangi skyldi það eftirlit vera. Frígangi? Stofugangi?

Jú, ekkert eftirlit er með ríkisstjórninni -sem annað hvort er í felum eða vísað úr landi- nema það, að sjá til þess að hún haldi áfram að troða veirum inn í landið okkar. Hún er auli og án einkaframtaksins væri hún örverpi

Ekkert eftirlit er með þeim geimverum sem vísa á úr landi, nema það, að strangt eftirlit er haft með því að ríkisstjórn Íslands -sjálft framkvæmdavaldið- ráði engu hér í okkar eigin landi. Æðislegt. Gersamlega sprenghlægilegt. Þetta er eina "eftirlitið" sýnist mér

Rosalegt "eftirlit" er hins vegar haft með því að útlendingar stjórni óáreittir Íslandi. ESB, EES, Schengen, Orkupakkar og E-sáttmálar bla bla bla. Þetta er orðinn einn allsherjar samsærispakki gegn þjóðinni. Enginn kjósandi trúir lengur öðru en því að íslenska ríkisstjórnin, ambáttar-embættismenn Brussels, stjórnkerfið og flokkarnir séu samsæri gegn þjóðinni. Og ekki mun takast að sannfæra kjósendur um neitt annað svo lengi sem þessi E-fíflagangur keyrir sem sjálfskiptur gæsagangur

Ekkert eftirlit er haft með að Víðir-lögga sé áfram lögga. Nú er hann kannski veira, og það er ekki gott. Við þurfum á Víði að halda sem löggu

Það eina sem við höfum er Kári. Þökk sé Guði fyrir hann. Gott væri nú ef mögulegt væri að klóna Kára. Ég fyrirgef honum alla gallana, því eins og herra Andrew Jackson, þá er það hugrekki hans eitt og sér sem jarðar alla hugsanlega galla hans og gerir hann að leiðtoga sem um munar. Kári, Jackson og Trump. Þetta eru mínir menn. Hugrakkir menn. Um þá munar

Húmbúkkið Hmpf! og Vesalingarnir virðast hins vegar vera af óendanlegri stærð

Getum við ekki bara fengið hugrakkan Davíð aftur? Þetta gengur ekki upp lengur

Uppfært

Horfið vestur um haf, því þar býr nú stórþjóð sem sannfærst hefur um að þingið og framkvæmda- og embættismannavald lýðveldisins sé orðið einn heilsteyptur samsærispakki gegn henni. Bandaríkin eru FIFO. Fyrst inn og fyrst út; sem þýðir að boltinn sá hefur nú þegar rúllað hingað, og héðan mun hann rúlla yfir á Meginland taparanna

Pólitískar ástríður- og áhugi eiga rætur sínar að rekja til þess að kjósendur og stjórnmálamenn trúi því að þeir skipti máli. Kjósendur hafa misst þá trú, og stjórnmálamenn trúa ekki lengur á að þeir sjálfir skipti máli. Þannig virkar stjórnarfyrirkomulagið technocracy

Sérfræðiteknókratía eftirstríðsáranna -arfleið Síðari heimsstyrjaldarinnar- var í fyrstu gerð að pólitískri hugmyndagloríu um næstum öll Vesturlönd. En síðan varð hún að pólitískum trúarbrögðum. Allt þetta er að byrja að enda núna, því sérfræðingar þessarar trúarhreyfingar hafa næstum því náð að eyðileggja Vesturlönd. Þeir reyndust nefnilega ekki vera sérfræðingar. Sannaðist það rækilega 1991, 2008 og 2020 - plús loftslagstrúarþvælan úr sömu skúffu

It is not the Economy, stupid! Ekki lengur

Fyrri færsla

Háskólabólutímabilið er að enda, ekki byrja


mbl.is Sigríður: „Talsvert eftirlit í gangi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 20. september 2020

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband