Leita í fréttum mbl.is

Lögin og bandarísku forsetakosningarnar

Donald Trump að snæðingi 500 px

BANDARÍSKU FORSETAKOSNINGARNAR 2020

Nú er komið í ljós að svo kallaðir leiðtogar Demókrata (maður getur varla borið það heiti fram lengur) gerðu í fyrra miklar og stórkostlegar athugasemdir við kosningavélarnar og hugbúnaðinn sem notaður er við talningu atkvæða. Það má sjá hér

Og í september leiddi rannsókn í ljós að 1,8 milljón fleiri skráðir kjósendur voru í 353 sýslum í 29 ríkjum Bandaríkjanna en fjöldi manna á kosningaaldri var þar í september: fréttatilkynning 16. október 2020

NYTSAMIR EN EINNOTA KJÁNAR

Demókrataflokkurinn lét Jill Stein staðgengil sinn í örverpi Græna flokksins keyra málshöfðanir vegna forsetakosninganna í Michigan, Wisconsin og Pennsylvaníu eftir kosningarnar 2016. Málshöfðanirnar voru keyrðar með tilvísun í kosningasvindl með þessum svo kölluðu kosningavélum sem notaðar eru við atkvæðagreiðslu og talningu. En þegar ekkert hafðist upp úr því létu Demókratar fjölmiðla sína fá það viðfangsefni að þeir yrðu að sannfæra bandarísku þjóðina um að kosningarnar væru svindl og að farið yrði fram á að kjörmenn Bandaríkjanna myndu sýna "þjóðskyldu" sína og "hollustu" og hafna því umboði sem þjóðin trúði þeim fyrir og þar með hafna kjöri Trumps 2016. Þannig að þeir sem enn eru með bara vott af vitglóru í kollinum sjá að þetta er bara að byrja hjá Trump núna, því í þetta sinn er það einnig hinn ótrúlegi, einstaki og tröllslegi fjöldi póstgreiddra atkvæða sem hrúgast hefur á bálið sem Demókratar bjuggu til

REYKUR OG SPEGLAR

Taka ber ei mark á því sem íslenskir langlegu-kratar segja um þetta mál og fjölmiðlar. Þeir vita ekkert nema það sem þeir lesa í speglasalnum hjá kollegum sínum og á esb-fyrirbærum á borð við lygaveitu Der Spiegel. Það tekur sig ekki að hlusta á þá menn. Það sjá menn ákaflega vel í ljósi hinnar afar erfiðu reynslu þjóðanna af langlegu-krötum allar götur frá 2007 - og jafnvel alla leið frá 1989, er þeir hugðust opna Harward í Moskvu og kratfletja plánetuna út

Vel getur hugsast að Trump hafi þegar verið kominn með nægan atkvæðafjölda til að vinna kosningarnar er kjörstaðir áttu að loka að kvöldi kosningadags. Það er hugsun sem leitar á marga. En eftir lokun héldu atkvæði bara berast og enginn veit enn hvernig fara á með þann fjölda kvæða sem bætt var þannig í bunkann. Kannski fer málið á þann veg að það lendi á borði þingsins að skera úr um lögmæti umboðs kjörmanna. Nokkur ríki þurfa að gera upp hug sinn núna og taka ákvörðun um að standa við það sem gerst hefur með fjölda atkvæða eftir að kosningum lauk, eða útnefna nýja kjörmenn til að endurkjósa Trump sem forseta

GAAR DEN SAA GAAR DEN

Mörg ríki Bandaríkjanna og dómstólar þeirra eru þekkt fyrir tilraunir til að reyna að sér-stjórna Bandaríkjunum öllum á ýmsa vegu, bæði með löggjafanum á heimavelli eða með dómstólum ríkjanna. Nýlegt dæmi um það var þegar ríkisdómstóll reyndi að taka sér það vald að stjórna því hver fengi að koma inn í öll 50 ríki Bandaríkjanna eða ekki. Um var að ræða ferðabann sem Trump forseti hafði sett á íslamista inn í Bandaríkin. Eitt ríki reyndi þá taka sér vald yfir öllum aðkomuleiðum inn í öll Bandaríkin með því að setja forsetann til hliðar, en þeirri tilraun var auðvitað kollvarpað. Ekkert eitt ríki stjórnar öllum forstofum og dyrum inn í öll Bandaríkin. Eins er það með ríkin og kosningar núna. Þau reyna. Málin munu að sjálfsögðu enda á þeim stöðum sem stofnendur Bandaríkjanna ætluðust til og verða afgreidd þar, fyrst að löggjafinn í sumum ríkjum Bandaríkjanna getur ekki komið að borðinu með lögleg kosningaúrslit

2016 og 2020 EÐA 2024+2028 - TÓLF EN EKKI ÁTTA?

Þar sem framtíð Bandaríkjanna er talin liggja, þ.e. í ríkjum eins og Flórída og Texas og á hinu risavaxna upptakasvæði Mississippifljóts –en það er stærsta samhangandi landbúnaðarsvæði veraldar og gæti hæglega brauðfætt heiminn allan– féll boðskapur Trumps mjög svo vel í geð kjósenda hjá öllum hópum manna af öllum kynþáttum af báðum kynjum. Þykir það ágætis vegvísir um hvert stefni í Bandaríkjunum. Langlegu-kratismi hins barnlausa útrásar-stórborgarvinstris í háhýsakompum með veirulyftum og garð í potti, er að úrkynjast og deyja út. Útdáningarkvöl þess hluta atvinnulífsins hófst með miðflótta hins góða fólks til Kína. Og hin stafræna "hátækni" Kísilsdalsins er ekki lengur hátækni heldur aðeins vara á borð við sæmilegan en tóman ísskáp. Og fjármálageirinn? - já hann fór með sjálfan sig í skammarkrókinn í byrjun aldar og er ekki lengur svipur hjá sjón. Bankavísitalan virðist orðin varanlega marflöt. En þar eins og núna snéru fagmenn sig og fag sitt úr hálsliðnum í trúarpólitískum tilgangi einum. Núna eru það svo fjölmiðlarnir og akademían sem standa hálsbrotin á brókinni sem hífð verður til aðhláturs við hún í Hvítu húsi - skyldu kosningarnar að lokum skila nöktum og barnlausum borgarkompu-Demókrötum í varanlegri útrýmingarhættu þangað inn núna

DING-DONG (OG SVO HIÐ NÍUNDA KÍNVERSKA TÓNVERK?)

Og nú er komið í ljós að þingmenn Demókrata og fjölskyldur þeirra eru stóreigendur í því fyrirtæki sem býr til hugbúnaðinn sem notaður er við atkvæðatalninguna. Það er ekki að því að spyrja. Langlegu-kratar eru alls staðar eins. Og sannið til: ef dómstólar og þingið komast að þeirri niðurstöðu að Trump sé réttkjörinn forseti núna, eins og síðast, þá mun Evrópusambandið samstundis hringja öllum kjósum-aftur bjöllum og hvítan reyk leggja út um eyru langlegudeildarmanna kratismans. Hressilegir tímar eru því framundan og okkar maður er ekki krati, eins og sést. Bara alls ekki!

Og nú fæ ég mér heimagerðar og heitar fiskibollur úr fiski frá Rifi í morgunmat, restar frá því í gær, og franskar með því

Fyrri færsla

Minna en helmingur Bandaríkjamanna telur Biden hafa sigrað


Bloggfærslur 14. nóvember 2020

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband