Leita í fréttum mbl.is

Bardagahlé Trumps [u]

Uppfært kl 23: Trump sendi skilaboð til stuðningsmanna sinna frá sjúkrahúsinu áðan - stökk síðan út í bíl og keyrði út til þeirra. Eins og er lítur því út fyrir að um örstutt bardagahlé sé bara að ræða. Froðufellir líklega fjölmiðlaveldi Demókrataflokksins heldur betur núna. Og mun CNN-blaðran örugglega ganga hraðast á munnvatnshafi þess

****

Nú gefst kjósendum Bandaríkjanna tækifæri á að lifa án Trumps í nokkra daga. Þetta er stórkostlegt áfall fyrir samsteypu fjölmiðla og gáfumanna vinstrisins, sem lifað og dregið hefur andann á persónu Donalds J. Trump í bráðum fjögur ár

Kjósendur geta allt í einu skoðað hug sinn og velt fyrir sér hvort að flytja eigi til dæmis sendiráð Bandaríkjanna í Ísrael frá Jerúsalem til baka til Tel Aviv. Þar átti nefnilega allt að rjúka í bál og brand. En ekkert gerðist og ekkert haggaðist - nema til hins betra

Og ættum við kannski að fella tollana á Kína niður og halda áfram að fossa bandarískum auðæfum og störfum yfir til kínverska kommúnistaflokksins?

Ættum við kannski að byrja að strjúka kínversku kommúnistunum um bakið á ný, með yfirsérfróðum sérhræðum vestrænna friðþægingaraumingja, þ.e. líberalista í ánauð glóbalkirkju hnattrænna framleiðslu-keðju-fræða? (háskólaþvaðrið)

Ættum við kannski á ný að taka upp Obama-stuðninginn við kjarnorkuvopnasmiði klerkaveldis Írans? Stakkels þeir, lítið sem ekkert nema óseld olía til drykkjar þar núna

Og ættum við á ný að hefja peningasendingar til Palestínumanna og vinda ofan af friðarsamkomulagi Arabaríkja og Ísraels? Er það ekki?

Hvað með Úkraínu? Ættum við að hætta Trump-stuðningi við þá og kannski að draga úr vörnum gegn Pútín-genginu í Austur-Evrópu?

Og ættum við kannski að skila því aukna NATO-framlagi sem Trump tókst að pína upp úr þýsk-evrópska öreigafélaginu í útópíuklóm evru og elíta esb?

Síðan er það Norður-Kórea sem nú bítur gras og þegir sem steinn á síðustu metrunum. Ættum við að halda áfram að láta það félag brjálæðinga pína út úr okkur fjármuni bandarískra skattgreiðenda og aðstoða þá þar með við að koma sér upp kjarnorkuvopnaeldflaugum sem miðað yrði á Oregonríki Demókrata?

Nú hafa bandarískir kjósendur nokkra daga til að íhuga þetta. Nú geta þeir loksins horft til himins og skoðað möguleikana sem felast í Demókrataflokki- dauða og eyðileggingar, þar sem kveikt er í bandaríska fánanum og forseta landsins óskað skilvirkum dauða

Efast ég stórlega um að bandarískur almenningur sé jafn heimskur og samsteypa fjölmiðlahóruhúsa- og gáfumanna vinstrisins. Hann var það að minnsta kosti ekki síðast þegar kosið var

"Kosningar hafa afleiðingar" voru inngangsorð Trumps í kappræðum síðustu viku. Standa þau orð væntanlega meitluð í vitund bandarískra kjósenda næstu vikurnar

Fyrri færsla

Tek undir með Sigmundi Davíð


Bloggfærslur 4. október 2020

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband