Leita í fréttum mbl.is

Frá varðstöðu Miðflokksins á Alþingi síðustu nótt

Einn á vakt í þágu þjóðar. Einn góður flokkur og annar

Nokkrir góðir menn Miðflokksins stóðu vaktina gegn orkupakkaveldi ESB á Alþingi síðustu nótt. Orkupakkaveldi ESB er fjarlægt, umboðslaust og skattfrjálst heimsveldi sem borað hefur út að innan þá flokka sem þjösna vilja réttindum þjóðarinnar fyrir borð, í sjóinn og út úr heiminum. Þá flokka skyldi enginn að kjósa án þess að hafa verra af, því lengi getur vont versnað eins og löng saga okkar sannar. Fólk ætti hins vegar að kjósa þá flokka sem standa gegn þeim flokkum sem við minnsta goluþyt hrökkva skelkaðir á sjálfskiptingunni í brauðið, og neita að standa á réttindum íslensku þjóðarinnar. Þannig flokka er ekki á neinn vetur setjandi. Þeim á að refsa hart. Þeir flokkar sem hins vegar standa gegn orkupakkaheimsveldi ESB eru Miðflokkur og Flokkur fólksins. Svona gekk varðstaða Miðflokksins fyrir sig á Alþingi Íslendinga, frá mínu kjördæmi séð, síðustu nótt. Þakka ég forfeðrum mínum fyrir að hafa endurreist Alþingi, fært okkur fullt vald í okkar málum (annars væri um ekkert að ræða) og fyrir 200 sjómílur, hitaveitur og raforkuveldi Íslendinga í þágu þjóðar. Takk

Umræður héldu þó áfram, nú fram á miðvikudag 22. maí 2019 til kl. 08:42. Í meira en 12 stundir. Heilar 19 klukkustundir segir hér

þriðjudagur, 21. maí 2019 kl. 00:06:50

Umræða stendur yfir á Alþingi Íslendinga um ESB-orkupakka3. Reyna á að troða honum með illu niður kok íslensku þjóðarinnar og algerlega gegn aðkomu hennar og þjóðarvilja. Anað er inn í enn eina ESB-helferðina engum til gagns, en öllum til ógagns. Þetta er endurútgáfa bankapakka ESB/EES, sem var misfóstur. Þetta er og verður stærra misfóstur en Icesave. Áföll fyrir þjóðina áratugum saman

Miðflokkurinn stendur vaktina

þriðjudagur, 21. maí 2019 kl. 00:39:08

SDG segir að OP3 sé kynntur sem bein afleiðing OP1+OP2. Og þegar næsta högg frá ESB kemur, að þá verði það kynnt sem bein afleiðing af því að hafa látið berja einu sinni, tvisvar og þrisvar. Þá kemur fjórbarningurinn og svo fimmbarningurinn

Ísland verður því barið þar til það segir stopp. Aftur og aftur. Allir sem láta berja sig verða barðir aftur og aftur þar til þeir segja stopp og taka málin í sínar eigin hendur

Sjálfstæðisflokkurinn er orðinn notbremsenresistent vegna duglausrar forystu. Hann húrrar því áfram stjórnlaus til heljar eins og plokkfiskur löngu kominn fram yfir síðasta örugga neysludag

Forystu xD vantar allan þann fælnimátt sem hún var kosin til að viðhafa þegar um þjóðarhagsmuni okkar er að ræða. Hún á að vera deterrence fyrir hönd Íslands, en er því miður einungis liðleskja og viljalaust verkfæri í höndum annarra

þriðjudagur, 21. maí 2019 kl. 00:59:26

Jón Þór Þorvaldsson segir:

Yfirþjóðlegt vald ACER staðfest

Auðvitað er ACER hluti af yfirríki ESB. Danska orkustofnunin segir það líka

Og NS2 var hrifsað úr höndum Þýskalands með yfirríkislegu valdi sem er með ACER undir sér. Sjá hér: ESB/ACER knésetur Þýskaland og Rússland með orkupakka3

OP3 mikilvægur því þá hætta OP1+2 að vera bara innanríkismál og verða milliríkjamál (cross border mál með ACER sem "resolution mekanisma" eins og að um cross-border banka væri að ræða)

Þrýstingur settur á íslensk stjórnvöld. Íslandi liggur ekkert á í þessu máli. Þetta er mál annarra, en ekki okkar hér á Íslandi. Við erum að missa forræðið. Þess vegna er þrýst á okkur. Við eigum að segja nei

þriðjudagur, 21. maí 2019 kl. 01:34:59

Karl Gauti Hjaltason segir að við séum að neyta íslensk grænmetis vegna raforku okkar og nýtingu jarðvarma, og Jón Þór Þorvaldsson segir að við séum að missa fullveldið í þessum málum okkur til mikils skaða. Mikil þróun á túrbínum í vændum sem við ættum að huga að. Já eins og við þróuðum síldveiðar fyrstir allra

Karl Gauti Hjaltason segir að við eigum að flagga hér rauðu því verið sé að læðast með þjóðarréttindamál fram hjá íslensku þjóðinni. Engir fyrirvara munu halda

Gunnar Bragi Sveinsson segir að sjálft ferli málsins sé það að við verðum aðilar að orkusambandi þar sem lög yfirríkis ESB gilda

Karl Gauti Hjaltason segir fordæmið í þessum málum sjáist í innflutningi á matvælum til skaða fyrir Ísland og landbúnað okkar. Þar sem valtað var yfir allt Ísland og alla fyrirvara þess. Sé þetta innleitt verður ekki snúið til baka. Að sjálfsögðu ekki. Yfir-ríki er jú yfirríki

Gunnar Bragi Sveinsson segir að við séum að innleiða hugmyndafræði sem sé okkur framandi og ógnandi. Já að sjálfsögðu, enda bað enginn Íslendingur um þetta. Enginn Íslendingur hefur beðið um þetta. Þetta eru einkavæðingarpakkar þar sem súrefni þjóðarinnar á að gera að braski í höndum innlendra og erlendra óligarka

Karl Gauti Hjaltason segir að þetta mál allt geti verið tifandi tímasprengja undir orkuhagkerfi Íslands

Jón Þór Þorvaldsson segir segir að við eigum að segja nei, því þá höfum við valkost. Já algerlega óþolandi að láta stilla þjóðinni svona upp við vegg eins og að ESB sé aftökusveit og EES vopn þess

þriðjudagur, 21. maí 2019 kl. 01:51:28

Gunnar Bragi Sveinsson segir að ákvæðið um "frjáls viðskipti" þýði að Íslandi verði gert að tengjast, alveg sama hvað. Það sé þannig

Já. Það missa allir virðingu fyrir þjóð sem afsalar sér valdi sem hún þarf ekki að gera. Það verður að láta reyna á þetta fyrir rétti. Það verður. Það er algjör lágmarkskrafa

Laga mér kaffi og fæ mér snúða sem konan mín bakaði og fer út og tala við hrossagaukinn og rjúpuna. Hún svarði mér um daginn

þriðjudagur, 21. maí 2019 kl. 02:14:12

Þorsteinn Sæmundsson segir að ekkert hafði breyst í hans afstöðu. En það sé hins vegar rannsóknarefni hvað varð um afstöðu þingflokks Framsóknarflokksins um að ekki ætti að afhenda útlendum orkumálefni okkar. Hið sama gildir um þingflokk Sjálfstæðisflokksins. Hlaupið frá öllu

Já vel á minnst. Í svakalega góðri grein Viðars Guðjohnsen í Morgunblaðinu mánudaginn 20. maí 2019 áréttar hann eftirfarandi:

Sjálfstæðisflokkurinn var stofnaður 25. maí 1929 við sameiningu Frjálslynda flokksins og Íhaldsflokksins í kringum tvö ófrávíkjanleg aðalstefnumál sem birtust m.a. í Morgunblaðinu daginn eftir stofnun flokksins. Fyrsta aðalstefnumálið var að "Ísland taki að fullu og öllu sín mál í sínar eigin hendur og gæði landsins til afnota fyrir landsmenn eina" en hitt var "að vinna í innanlandsmálum að víðsýnni og þjóðlegri umbótastefnu á grundvelli einstaklingsfrelsis og atvinnufrelsis með hagsmuni allra stétta fyrir augum." Markmið þessi eru enn þann daginn í dag bundin í lög flokksins. Mikilvægi þeirra má m.a. sjá á staðsetningu þeirra í lögum flokksins en fyrrnefnd aðalstefnumál má finna strax í annarri grein laganna (fyrsta greinin fjallar um nafn flokksins). Það mætti með réttu segja að aðalstefnumálin tvö hafi hitt þjóðina í hjartastað því Sjálfstæðisflokkurinn varð strax frá stofnun að pólitískri burðarstoð sem setti Ísland og fullveldið í fyrsta sætið [..]

En hvað gerðist! Já hvað gerðist. Árið 2019 hittir xD íslensku þjóðina með eiturörvum í hjartastað. Hvar eru greinar Bjarna Ben um hjarta Íslands. Það eina sem frá honum kemur er kúguð þögn, þöggun og einstöku stafur um að Íslandi sé best borgið á altari útsölubrasks

Enn stendur Miðflokkurinn vaktina á Alþingi Íslendinga

Böðla á þessu máli í gegn. En þarna er Miðflokkurinn eina viðspyrna þjóðarinnar

xD liggur í rúst

þriðjudagur, 21. maí 2019 kl. 02:38:16

Birgir Þórarinsson segir hvar værum við stödd ef við hefðum látið stjórnast af þeim ótta sem notaður er til að kúga orkupakka ESB ofan í þjóðina. Þá hefðum við enga landhelgi í dag. Nei, auðvitað hefðum við hana ekki, og heldur engar stórvirkjanir. Við VERÐUM að fá betri niðurstöðu í þetta mál en þá sem ríkisstjórnin með kratatöflu-stapparann að vopni er að troða niður kok þjóðarinnar

Já það er einmitt svona sem ESB kemur inn í þjóðríki þjóðanna; sem tundurspillir sem tekur súrefnið frá þjóðum. Tilgangurinn er að sundra, spilla, etja fólki saman og upp á móti þjóðfélagi sínu og koma þjóðríkinu fyrir á biðlistanum eftir engu nema þeim hægfara dauða sem ég kynntist svo vel á meginlandi Evrópu

þriðjudagur, 21. maí 2019 kl. 03:07:53

Bergþór Ólafsson segir mikið vill meira. Aflands aflátsbréfasala í orkumálum stunduð

Já einmitt, alþjóðlegt pornó af verstu embættismannasort

Þorsteinn Sæmundsson talar um möguleika íslenskrar garðyrkju. En á sama tíma er lögð fram tillaga Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Hreyfingarinnar framboðs (og eftirspurnar) um að slátra garðyrkjubændum. Já þetta er enn verra en svo. Danir þurfa að henda bestu tómötum landsins frá Fjóni vegna innflutnings rusls frá 50 þusund tonna eiturbrasi á ökrunum í Suður-Evrópu þar sem uppskeran er pínd upp með þúsundum tonna af eitri

Birgir Þórarinsson orkupakkar 1+2 hafa ekki orðið Íslandi til góðs. Þvert á móti. Þeir bönnuðu að sérþörfum Íslendinga væri sinnt og hægt að uppfylla. Stjórnmálamenn hafa ekki staðið sig í að verja þjóðarhagsmuni Íslands. Ömurleg þjóðarvakt. Þjóðin beygð

Já og svo brotnar hún. Takmarkað ríkisvald getur aldrei þrifist í kúgunarkerfum. Það verður alltaf ótakmarkað ríkisvald eins og við erum að upplifa hér og nú. Og þá er aðeins hægt að halda löndum saman með sífellt svæsnara ofbeldi. Þetta er leiðin til ánauðar

þriðjudagur, 21. maí 2019 kl. 03:30:30

Wolfgang Munchau ESB-fíkill skrifaði einu sinni um sjálfstortímingarferil Evrópusambandsins, því sannarlega er einmitt um það að ræða þegar takmarkað ríkisvaldi hverfur af sviðinu. Hann sagði að Evrópusambandið væri orðið notbremsenresistent fyrirbæri. Ekkert þýddi að nota neyðarbremsunar því sambandið væri orðið ónæmt fyrir þeim. Staða Sjálfstæðisflokksins er orðin sú sama. Hrun hans er orðið notbremsenresistent

Birgir Þórarinsson talar um uppnámskenningar-þvælu ríkisstjórnar um ESS. Já þetta er sama þvælan og viðhöfð er um allt í öllum löndum sambandsins. Þegar andstaða er við mál og málefni tengd yfirríki ESB. Þá breytast jafnvel lönd á miðju meginlandi Evrópu í að verða að útkjálkalöndum og allsherjar Kúba er alltaf á næsta leyti. Eins og að ESB sé einmitt ekki Kúban sjálf í sjálfu sér, og sem ávallt kallar á að Kúbversk stjórnmál séu viðhöfð. Það er einmitt þannig

þriðjudagur, 21. maí 2019 kl. 03:34:39

Miðflokkurinn stendur enn einn vaktina fyrir íslensku þjóðina á Alþingi Íslendinga

Hattur ofan!

þriðjudagur, 21. maí 2019 kl. 03:50:39

Þorsteinn Sæmundsson biður Steingrím J. Sigfússon þingforseta um að gera grein fyrir pólskiptum sínum í málinu

SJS er sá sem sveik kjósendur flokks síns svo hrikalega að aldrei hefur annað sést í sögu Íslands. Þetta þjóðvikagengi sem þarna ræður för er algjörlega óþolandi fyrir land og þjóð. Þessu verður að linna. Takið ykkur saman vesalingar!

Hvaða undirliggjandi duldir hagsmunir eru hér á ferð spyr Jón Þór Þorvaldsson. Af verju er þetta svona?

Þorsteinn Sæmundsson, það er eitthvað afl hér á ferðinni annað en Íslenska þjóðin. Þjóðin má ekki verða fyrir þessu tjóni sem hér er í uppsiglingu

Jón Þór Þorvaldsson spyr. Ætla stjórnarliðar þá að kalla Jón Sigurðsson forseta lýðskrumara eða popúlista, eins og þeir kalla þann mikla meirihluta þjóðarinnar sem hér er algerlega andvígur?

þriðjudagur, 21. maí 2019 kl. 04:08:21

Athugasemd barst frá Helgu bloggvinkonu minni, þar sem hún sagði frá því að Jón Baldvin Hannibalsson hefði sagt að raforka á Íslandi væri takmörkuð auðlind

Þakka þér Helga. Já hún er takmörkuð. Það eina sem er ótakmarkað er heimska ríkisstjórnarinnar og svik flokka hennar við kjósendur sína

Jón Þór Þorvaldsson spyr. Af hverju lætur utanríkisráðherra eins og málið sem hann lagði fram sé ekki til

Birgir Þórarinsson segir ekkert að marka það sem stendur í stjórnarsáttmála um að efla Alþingi. Enginn úr stjórnarliðinu lætur svo lítið að virða þingið og þjóðina viðlits í þessu máli

Af hverju er það mál sem átti að vera um ekkert og engu máli skipta svona mikilvægt að heimurinn er sagður hrynja sé því ekki kyngt. Auðvitað vegna þess að hér er verið er reyna að svíkja þjóðina

Hvernig getur ríkisstjórnin verið svona algerlega úr takti við þá þjóð hverrar hagsmuna hún er kjörin til að verja. Já þetta er gerræðislegt!

Ríkisstjórnin virðist veða galeiða þræla sem búið er að skera tunguna úr. Engin rök. Bara sjálfstýring. Steypa er hollur matur, segir hún. Étið og kyngið

Þetta er sovéskt!

þriðjudagur, 21. maí 2019 kl. 04:48:32

Enn stendur Miðflokkurinn einn vaktina á Alþingi Íslendinga

Jú raforkan á Íslandi er takmörkuð. Alveg eins og fiskveiðistofnar í landhelgi Íslands eru takmörkuð stærð

Síðan hvenær varð það stefna Sjálfstæðisflokksins að þúsund orkudreifingarfyrirtæki elti sama kílóvattið af rafmagni í orkulandhelgi Íslands? Ég spyr. Var það ekki þetta sem var röksemdin fyrir kvótakerfinu: að þúsund skip eltu ekki sama fiskinn í fiskveiðilandhelgi Íslands? Að allir ynnu ekki við að koma öllum á hausinn og sjálfum sér líka?

Birgir Þórarinsson segir að svokölluð "neytendavernd" (ha ha ha) í þessu máli sé þvæla. Íslendingar missa vernd sinna þjóðkjörnu fulltrúa í orkumálum og standa eftir einir og berskjaldaðir vegna gunguskaps Framsóknar, Sjálfstæðisflokks og Hreyfingarinnar framboðs, við lófaklapp Viðeirsnar, Samfylkingar og Pírata

Já. Þessir flokkar hanga nú eins og myllusteinn um háls þjóðarinnar

þriðjudagur, 21. maí 2019 kl. 04:59:34

Er þá hugmyndafræði kvótakerfisins fallin líka? Fyrst að eitt er ekki látið yfir allar takmarkaðar auðlindir Íslands jafnt ganga

Orkupakkar ESB eru fyrst og fremst einkavæðingarpakkar. Einkavæða á súrefni þjóðarinnar. Taka af henni vopnin í hinu eilífa kalda stríði okkar við kuldann. Láta súrefni þjóðarinnar í hendur óligarkískra braskara sem koma munu öllu á hausinn og láta þjóðina um tapið

þriðjudagur, 21. maí 2019 kl. 05:13:42

Þorsteinn Sæmundsson spyr hvort að þetta geti endað með því að Landsvirkjun þjóðarinnar verði höggvin upp og seld í bútum til vogunarsjóða (eins og í Danmörku, eftir 100 ára eignarhald þeirra þjóðar á sínu)

Já auðvitað verður hún höggvin upp. Þetta er nýr ESB-bankabraskpakki2, þar sem allar útkomur áfalla eru háðar þjóðerni. Þetta eru fyrst og fremst einkavæðingarpakkar enda var eingöngu talað um þetta mál undir þeim formerkjum í Danmörku d. privatisering/liberalisering

Getulausa braskliðinu sem kom Íslandi næstum á hausinn vantar ný leikföng til að tapa á og þurrka tapinu yfir á þjóðina. Vantar að geta borað Ísland út að innan

þriðjudagur, 21. maí 2019 kl. 05:30:14

Enn stendur Miðflokkurinn vaktina á Alþingi

Jón Þór Þorvaldsson talar um skyndilegan áhuga braskliðs Íslands á orkumálum

Já þetta eru fyrst og fremst einkavæðingarpakkar. Það verða menn að hafa efst í huga. Og til að hrifsa þessar eigur úr höndum þjóðarinnar þá ætla íslenskir stjórnmálamenn að sækja sér vald til útlanda (Brussel), til að ná þessum eigum úr höndum þjóðarinnar, með erlendum lögum. Annars væri það nefnilega ekki hægt. Með EES-samninginn að vopni sækja þeir sér erlendan verndara valda sinna

Bjarni Ben er jú ekki beint þekktur fyrir að vera ekki í braskliðinu. Vantraustið á Bjarna vegna þessa liðs fer ekki. Það er límt fast við formennsku hans. Það fer ekki og Sjálfstæðisflokkurinn fer því niður með honum

Ólafur Ísleifsson talar um þokulúðrasveitina sem spilar þokubakkana um svo kallaða "fyrirvara". Þjóðin er leidd inn í þokubakka. Þeir taka á sig alls konar nýjar skuggamyndir hvern einasta dag sem líður

þriðjudagur, 21. maí 2019 kl. 05:40:13

Enn stendur Miðflokkurinn vaktina á Alþingi

Jón Þór Þorvaldsson talar um að norska ríkisstjórnin hafi verið kærð fyrir að brjóta stjórnarskrá landsins vegna orkupakka3

þriðjudagur, 21. maí 2019 kl. 05:43:26

Þingforseti slítur fundi og málinu er frestað

Hattur ofan fyrir þingmönnum Miðflokksins!

099 SIGNOFF

Fyrri færsla

Evrópusambandið er að leysast upp segja kjósendur í ESB - telja styrjöld á næsta leiti


Bloggfærslur 21. maí 2019

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband