Færsluflokkur: Evrópumál
Sunnudagur, 22. mars 2009
Engin leið út úr evru aftur án þjóðfélags- og efnahagslegs sjálfsmorðs
Yrði afleiðingin evruúrsagnar þjóðfélagslegt og efnahagslegt sjálfsmorð?

Fyrrverandi seðlabankastjóri belgíska seðlabankans, Alfons Verplaetse, segir að við hönnun myntbandalags Evrópusambandsins hafi því alls ekki verið veitt nein athygli að lönd gætu sagt sig úr myntbandalaginu aftur - þ.e. að ríkin sem einusinni ganga í myntbandalagið gætu skilað evrunni sem gjaldmiðli ef þeim líkaði hún illa sem gjaldmiðill þjóðar sinnar. "Þetta var einfaldlega ekki rætt því allir vissu að það eitt að segja sig úr myntbandalaginu myndi þýða "þjóðfélagslegt og efnahagslegt sjálfsmorð" fyrir viðkomandi ríki (socio- economic suicide). Þetta var samhljóða skoðun allra þeirra sem stóðu að stofnun og hönnun myntbandalagsins, segir Verplaetse
<><><><> SÍMASKEYTI <><><><>
Bloomberg: would be socio- economic suicide
When the euro was on the drawing board, nobody expected a bust like the current one, said Verplaetse, now an honorary governor, with an office at the central banks headquarters. Even a year ago, I personally -- and I have a lot of experience -- I didnt think what happened was possible. And I think we are not alone.
When asked to grade the ECBs handling of the slump, Verplaetse simply applauded. Speaking a day before the bank cut its main rateto a record low of 1.5 percent, he said the ECB will stop before getting to zero.
While that forecast reflects the market consensus, Verplaetses reasoning is different. The dominant force in the euro region, he said, continues to be the German postwar obsession with stability andlow inflation.
An interest rate of much lower than 2 percent for a long period of time is not possible, Verplaetse said. The Germans will not accept that.
<><><><> FULLT STOPP <><><><>
Ekki ný ályktun
Í grein minni sem birtist í Þjóðmálum síðastliðið haust (Þrífst frelsið í faðmi ESB og evru?) kom ég einmitt inná þessa hluti því sumir óskhyggju- og draumóramenn á Íslandi hafa einmitt verið að halda því fram að það sé ekkert vandamál að taka upp evru því líki manni hún ekki þá sé ekkert mál að skila henni aftur. Þetta er því miður það vitsmunastig sem ESB og evruumræðan hefur að stórum hluta til verið á - á sjálfu Íslandi. Fæstir á Íslandi virðast gera sér grein fyrir að gjaldmiðlamál þjóða er næstum óendanlega miklu dýpra og flóknara mál en það virðist við fyrstu sýn. Það er einfaldlega ein af forendum sjálfstæðis og sjálfstæðrar tilveru fullvalda þjóða. Einn af hornsteinum fullveldis.
Einnig kemur það fram í viðtalinu við Verplaetse að seðlabaki Evrópusambandsins (ECB) mun ekki lækka vextina niður í núll eins og rétt væri að gera þegar verðhjöðnunarþrýstingur verður of mikill. "Þetta verður aldrei" segir Verplaetse því "Þjóðverjar munu aldrei leyfa það". Þá vitum við hver ræður í bankaráði ECB: Þjóðverjar, auðvitað, enda vissu það allir, en gleyma því þó oftast þegar þeir eru að störfum við að selja sjálfstæði Íslands í skiptum fyrir efnahagsleg handjárn á íslensku þjóðina - að eilífu.
En markaðurinn hugsar sitt
En engu að síður þá eru markaðsöflin farin að huga að skipbroti nokkurra þjóða í myntbandalaginu. Af þeirri ástæðu varar fyrrverandi seðlabankastjóri þýska seðlabankans, Karl Otto Pöhl (sat frá 19801991), við hættunni á að segja sig úr myntbandalaginu. Hann segir að gengi landa sem segja sig úr myntbandalaginu myndi falla um 50-60%.
En þá segir markaðurinn: þetta þýðir aðeins að fyrir þessar þjóðir þá er gengi evrunnar 50-60% of hátt metið, - og markaðurinn heldur því áfram að gera ráð fyrir því að sum lönd verði svo illa farin efnahagslega að þau kjósi að taka þeim hörmungum sem því mun fylgja heldur en að deyja þjóðfélagslegum og efnahagslegum dauða innan myntbandalagsins.
Roger Helmer þingmaður á 10 ára afmæli myntbandalagsins
Móðir allra fjármálakreppna
Þær raddir hafa heyrst á Íslandi að ef gangi illa að bindast og taka upp evru sé alltaf hægt að hætta við hana aftur! Að segja sig úr myntbandalagi Evrópusambandsins er vissulega hægt í orði en nánast útilokað á borði. Úrsögn myndi krefjast langs undirbúnings. Heimili og fyrirtæki myndu gera ráð fyrir gengisfellingu þeirrar myntar sem myndi koma í stað evru. Þau myndu því einnig undirbúa sig vel og flytja bankainnistæður sínar yfir í banka í öðrum evrulöndum eða skipta innstæðum yfir í aðrar myntir. Fjárfestar skuldabréfa myndu skapa kreppu á skuldabréfamörkuðum og hin óskilvirka vél skuldatryggingaálaga myndi einnig fara í gang á ný. Allar alvarlegar umræður um úrsögn úr evru myndu alveg sjálfkrafa vekja ótta, og það ekki að ástæðulausu, um yfirvofandi gengisfellingu þjóðarmyntarinnar því með úrsögninni er verið að segja umheiminum að efnahagsstjórn undir evru hafi skaðað efnahag og efnahagsstjórnunarmöguleika landsins.
Það er ekki kostnaður, eins og stundum heyrist, sem væri vandamálið við úrsögn úr evru-myntbandalaginu heldur sú staðreynd að allir mundu gera ráð fyrir að úrsögnin hefði gengisfellingu í för með sér. Þetta blasir við. Þeir sem hyggjast segja sig úr myntbandalaginu vilja fá aftur fullan umráðarétt yfir eigin mynt, stýrivöxtum og stjórn peningamála. Svo hvað annað en gengisfelling kæmi til greina?

Eitt land hefði þó möguleika á úrsögn undir öðrum formerkjum, en það er Þýskaland. Þá myndu viðbrögð allra verða örðuvísi, því það myndi þýða að rykið yrði dustað af altari hins gamla Deutsche Mark. Allir aðilar markaða myndu samstundis skilja að sú ákvörðun yrði flestum Þjóðverjum og þýsku efnahagslífi gleðifréttir, því það var með miklum efasemdum sem Þjóðverjar gengust undir evru á sínum tíma. Úrsögn Þjóðverja yrði á hinn bóginn miklar sorgarfréttir fyrir þau lönd sem eftir sætu með evru sem gjaldmiðil.
Kæru evruáhugamenn, úrsögn allra leppríkja úr evru-myntbandalaginu, þ.e. allra evrulanda sem heita ekki Þýskaland, myndi einungis þýða að móðir allra fjármálakreppna yrði gangsett í viðkomandi löndum. Úrsögnin myndi skapa stærsta áhlaup allra tíma á fjármálastofnanir, skuldabréfamarkaður yrði lagður í rúst, vextir á erlend lán ríkisins myndu líklega hækka, og kjarasamningum yrði sagt upp. Allir myndu gera sér ljóst að það eitt að yfirgefa evru og taka upp gömlu mynt landsins aftur myndi aðeins leysa hluta af þeim vanda sem kom úrsögninni af stað. Allir myndu jafnframt gera ráð fyrir meiriháttar stefnubreytingum og víðtækum umbótum flestra þátta efnahagsstjórnar og beinlínis krefjast þess. Ef halli á ríkisfjárlögum væri vandamál, þá yrði þess krafist að tekið yrði á þeim vanda strax í sjálfu úrsagnarferlinu. Um leið og úrsagnarferlið hæfist yrði landið gengisfellt um alla eilífð niður í neðstu kjallaradeild Evrópusambandsins og dæmt sem skaðvaldur samstarfsins. Aðeins fáar ríkisstjórnir myndu lifa af þá streitu sem úrsögnin hefði á alla þá sem hafa eitthvað með peninga, skuldabréf, fjármál, kjarasamninga og bankamál að gera.
Það er því fullkomlega glórulaus bjartsýni að tala sem svo að ef Íslendingum líki ekki hið takmarkandi og hið frelsisskerta athafnasvigrúm sem er í löndum sem enga peningastjórn hafa, þá sé hægt að yfirgefa félagsskapinn og fara í gömlu vinnufötin aftur. Þetta eru einungis villtir draumórar sölumanna Evrópusambandsins á Íslandi, veruleikinn yrði allur annar . . .
Lesið alla greinina hér:
Þrífst frelsið í faðmi ESB og evru?
Slóð: Þrífst frelsið í faðmi ESB og evru?
Fyrri færsla
Sögulegur atburður: viðtal við seðlabankastjóra Bandaríkjanna, Ben Bernanke
Forsíða þessa bloggs
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 20:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Þriðjudagur, 17. mars 2009
Bara ef Finnar hefðu evru: þá væri iðnaðarframleiðsla þeirra ekki að hrynja um 40%
Ef Finnar hefðu evru þá væri iðnaðarframleiðsla þeirra ekki hrunin um 40%. Iðnaðarframleiðsla Finnlands er hrunin - með evrum
Finnish Jan manufacturing orders down 38 pct yr/yr
13.3.2009 at 15:53
The value of new orders won by Finnish manufacturers in January fell by about 38 per cent from the year-ago period, Statistics Finland (SF) said in a statement Friday.
"The exceptionally strong decline in new orders in manufacturing that started in September 2008 continued through January 2009," the agency added.
"The value of new orders fell in all the examined main industries." Finnish Jan manufacturing orders down 38 pct yr/yr
Athugið að þetta eru tölur fyrir janúar síðastliðinn. Þetta á því miður eftir að versna mjög mikið í viðbót. Það er því alveg greinilegt að vandamál efnahags Finnlands væru mun auðveldari viðfangs ef þeir myndu lýsa því yfir núna að þeir ætluðu að taka upp evru og nota hana sem vörn geng illum öndum heimsins. Þetta segja sérfræðingar á Íslandi. Samt er allt bankakerfi Finnlands ekki á hliðinni - ennþá.
Illir andar? - samsæriskenning? Með evrum.
Hvað gæti komið í veg fyrir kínverska gengisfellingu núna? Jú, kæru lesendur; útflutningur Kína til ESB er mjög mikill. En hann er einnig stór og mikill til Bandaríkjanna. Málið er þó það að Kínverjar eru hræddir við Bandaríkin, því Bandaríkin hafa tennur. En hvað með ESB? Eru Kínverjar hræddir við ESB? Hefur ESB tennur? Nei ESB hefur engar tennur. Evrópusambandið er alveg tannlaust því á síðustu 20 árum hafa tennurnar verðir dregnar úr ESB og bræddar niður í eina evru handa öllum. Það þarf því enginn að vera hræddur við ESB. Svo já, ef ég væri einráð kommúnista ríkisstjórn Kína, þá myndi ég halda uppi gengi evrunnar, því þannig þarf ég ekki að fella mitt eigið gengi og því mun ég ekki þurfa að móðga vígtennta Bandaríkjamennina. Svona gerum við þetta. Málið er nefnilega það að evran er leiksoppur spákaupmanna gjaldeyrismarkaða. Það sagði m.a einn af þekktustu hagfræðingum Evrópu:
Since 2001, the euro has more than doubled in value against the dollar. This appreciation can be interpreted only as a bubble driven by speculation gone wild. By Paul De Grauwe - Financial Times Published: September 4 2008
Hér er slóðin á grein Paul De Grauwe á mynd númer 6: Flökt íslensku krónunnar : : Evra gegn bandaríkjadal - japanska yeni - breska pundi - svissneska franka

Afstaða ASÍ til hagsmuna íslenskra launþega
Það er einnig staðreynd að evran hindrar atvinnusköpun og drepur hagvöxt. Ég leyfi mér að benda á pistil minn frá 12. ágúst á síðasta ári: Hindrar evra atvinnusköpun? Það er því undarlegt að hagsmunasamtök íslenskra launþega (ASÍ) skuli vilja innleiða Evrópusambandslegt atvinnuleysi á Íslandi um alla eilífð. Sjá: Atvinnuleysi á evrusvæði síðastliðin 28 ár Er ASÍ steinrunnið?
Fyrri pistill
| Bara ef Þýskaland hefði haft evru. Þá væri iðnaðarframleiðsla þeirra ekki að falla um 50% | Forsíða þessa bloggs |
Tengt efni
Ísland lærir hratt: það fór finnsku og sænsku leiðina strax. En getur Samfylkingin lært?
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 08:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Laugardagur, 14. mars 2009
Bara ef Þýskaland hefði haft evru. Þá væri iðnaðarframleiðsla þeirra ekki að falla um 50%
Horfur á að iðnaðarframleiðsla Þýskalands muni falla um 51% á þessu ári
Iðnaðarframleiðsla Þýskalands er hrunin - beðið eftir Bandaríkjunum - með evrum
Ótti hinna allra svartsýnustu manna um galla efnahagslíkans þýska hagkerfisins er því miður að rætast. Samdrátturinn í þýska hagkerfinu er nú orðinn svo mikill að iðnaðarframleiðsla í þýska hagkerfinu mun dragast saman um 51% á þessu ári (á ársgrundvelli)
Keyrt í gegnum Google Translation:
<><><> SÍMASKEYTI <><><>
We have been among the biggest pessimists about the German economy, but it appears that our own forecast for a 4-6% fall in German economic growth this year is looking a tad optimistic after yesterdays horrendous data for industrial orders in January. The orders were down 8% with respect to the previous month, and 37.9% lower than a year before (foreign orders were down 42%), reports the FT. Apart from Japan, Germanys economy is among the worst-affected by the slump in global demand.
Fæðingatíðni |
|
|
Ár | 1995 | 2005 |
Poland | 1,62 | 1,24 |
Slovakia | 1,52 | 1,25 |
Slovenia | 1,29 | 1,26 |
Lithuania | 1,55 | 1,27 |
Czech Republic | 1,28 | 1,28 |
Bulgaria | 1,23 | 1,31 |
Latvia | 1,27 | 1,31 |
Hungary | 1,57 | 1,31 |
Italy | 1,19 | 1,32 |
Romania | 1,41 | 1,32 |
Greece | 1,31 | 1,33 |
Germany | 1,25 | 1,34 |
Spain | 1,17 | 1,35 |
Malta | : | 1,38 |
Portugal | 1,41 | 1,4 |
Austria | 1,42 | 1,41 |
Croatia | : | 1,41 |
Cyprus | 2,03 | 1,42 |
Switzerland | 1,48 | 1,42 |
Macedonia, the former Yugoslav Republic of | 2,12 | 1,46 |
Liechtenstein | : | 1,49 |
Estonia | 1,38 | 1,5 |
Luxembourg | 1,7 | 1,66 |
Netherlands | 1,53 | 1,71 |
Sweden | 1,73 | 1,77 |
United Kingdom | 1,71 | 1,78 |
Denmark | 1,8 | 1,8 |
Finland | 1,81 | 1,8 |
Norway | 1,87 | 1,84 |
Ireland | 1,84 | 1,86 |
France | : | 1,94 |
Iceland | 2,08 | 2,05 |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 19:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Fimmtudagur, 5. mars 2009
Lifandi land - Ísland
Jæja kæru lesendur
Þá tók þessi Ísalandsferð mín enda. Ég var sem sagt á Íslandi í 10 daga og kom aftur heim í kotið í fyrra gær.
Lifandi land - Ísland
Þetta var ákaflega ánægjuleg ferð. Það sem sló mig mest var hið virka, öfluga, ríka og fjölbreytta mannlíf á Íslandi ásamt almennum áhuga Íslendinga á sveita- lands- og alþjóðamálum. Á Íslandi er ennþá "allt hægt" í hugum fólksins, sem betur fer segi ég. Mikil og virk umræða er meðal nánast allra Íslendinga um lýðræðið, stjórnarfar, þjóðarhag og stöðu Íslands í hinu stóra alþjóðlega samfélagi. Hér eiga Íslendingar að mínu mati "heimsmet", eins og í svo mörgu öðru. Lýðræðið er virkt á Íslandi því það er lítil sem engin fjarlægð á milli þjóðarinnar og hinna kjörnu fulltrúa hennar. Sama gildir um embættismannakerfið. Nánast allir sem ég talaði við höfðu mikinn og jafnvel brennandi áhuga á atvinnu- og samfélagsmálum og ekki skorti fjölbreytt viðhorf. Einnig er vídd umræðunnar það mikil á Íslandi að fyrir venjulegan ESB-búa - sem er vanur því að geta aðeins kosið um, eða haft áhrif á, þau fáu málefni sem ennþá eru á valdi þjóðþinga þeirra - er víddin svo mikil að hann myndi ekki skilja nema hluta af þeim málefnum sem fullvalda Íslendingar takast á um.
Menningarlíf Íslendinga virðist einnig vera afskaplega virkt og fjölbreytt. Flestir Íslendingar eru virkir í menningarstarfi á einn eða annan hátt og framboð menningar er stórt og fjölskrúðugt. Söngur og tónlist, leiklist, bókmenntir, raun- og félagsvísindi blómstra. Ísland á sennilega "heimsmet" í kaffihúsamenningu og það er sláandi hversu hugmyndaflug Íslendinga er frjálst og óheft ennþá. Allir eru "í einhverju".
Útför í kjölfar útrásar
Maður tók einnig eftir að 5 ára leiðtogi þjóðarinnar hafði látið lífið í stórkostlegu hjartastoppi. Það voru víst of margar útlenskar makkarónur fljótandi í blóðinu hjá honum. Útför hans fór ennþá fram þegar ég fór frá Íslandi. Sem afleiðing virðist ákveðið tómarúm ríkja á vettvangi leiðtogamála á Íslandi. Hérna á ég að sjálfsögðu við herra fjármálageira sem dó á haustmánuðum og sem verið er að jarðsyngja að hætti Corleone. Þið vitið, þessi geiri sem hreif svo mörg okkar á ákveðnu tímabili og sem við héldum að væri "kominn til að vera". Mennirnir og leiðtogarnir sem gátu gengið á vatninu og breytt því í vín og góðar vísitölur. Allt átti að vera komið til að vera: hlutabréfaverð, olíuverð, hráefnaverð, fasteignaverð, glóbal warming, Kína, ESB, og hvað eina. Rykið féll því óhindrað á okkar gömlu hefðbundnu leiðtoga og landsfeður. Núna hiksta því og hósta okkar rykföllnu fyrrverandi leiðtogar upp gömlu ryki og eru að reyna ná áttum á ný. Þeir gera sér alls ekki ennþá grein fyrir því að sviðið er tómt ennþá og að það er beðið eftir þeim. Kaktusar feykjast þar um í andblæstri frá almúganum - heyballs. Hvar eruð þið? Eruð þið hræddir? Eftir að eini núlifandi virki leiðtogi þjóðarinnar, Davíð Oddsson, var lögsettur út úr Seðlabankanum af sjálfu Alþinginu með aðstoð barnaverndar, þá er enginn við lengur. Það er á tali hjá næstum öllum - píbb bíbb bíbb bíbb. Þeir eru núna að hringja í leiktjaldadeildina, föðrunarmeistarana og kunna sig ekki lengur sem þeir menn sem þeir voru. Þeir eru hræddir við að hafa skoðanir því þeir hafa þær engar og eru oftast jafn allsberir og þeir sem liggja í kistunum, - eru hræddir við að vera menn með skoðanir. En þér að segja, er varla von á öðru? Ég spyr.
Ég fór á tvo fundi hjá Heimssýn og vil ég nota þetta tækifæri til að þakka innilega fyrir þessa skemmtilegu fundi. Fólk kom oft langar leiðir að - einnig úr sveitinni.
Borðaði vel
Það var mikil lukka að fá saltkjöt og baunir á sprengjudag og ekki voru nú rjómabollurnar neitt slor á bolludeginum heldur. Einnig skaust ég tvisvar í mat niður á BSÍ (Umferðarmiðstöð) í Reykjavík og fékk mér svið með rófu- og kartöflustöppu (stranglega bannað í ESB) og svo í seinna skiptið fékk ég uppáhaldsmatinn minn, lambakótilettur í raspi með feiti, rabbabarasultu og Ora baunum. Konan fékk sér fisk enda miklu hollari manneskja en ég. Maðurinn við hliðina á okkur var að borða kjöt í karrí. Ég játa hér með að ég er ekki mikill makkarónumaður. Þarna ræddu menn einnig pólitík og efnahagsmál beint fyrir framan gamla Farmall traktorinn. Þarna liggja leiðir til allra átta á Íslandi
Jæja
Það verður skortur á verðbólgu í mörgum löndum á næstunni. Mikill skortur. Enginn vill fjárfesta í neinu sem stöðugt er að falla í verði. Enginn vill kaupa neitt núna sem fæst ódýrara seinna. Enginn vill eiga neitt sem sífellt tapar verðgildi => sell now! Það er því hætta á að við sjáum miklar og stórar gengissveiflur víða á næstunni.
Næsti póstur mun fjalla um e-málin, að venju
Takk fyrir kæru Íslendingar og takk fyrir kæra Ísland. Þú ert lifandi land. Sama hvað á gengur!
Fyrri færsla:
Hörðustu evrusinnar í Evrópusambandinu missa móðinn, en bara ekki á Íslandi
Forsíða þessa bloggs
Evrópumál | Breytt 6.3.2009 kl. 14:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Mánudagur, 23. febrúar 2009
Hörðustu evrusinnar í Evrópusambandinu missa móðinn, en bara ekki á Íslandi
Skafrenningur á síðustu vikum, spáð er fárviðri í bönkum ESB
Nú er svo komið að það er jafnvel fokið í öll evru-skjól í sjálfri Evrópu. Einn helsti aðdáunarmaður evrunnar, herr Wolfgang Münchau, sem er einn af ritstjórum FT Deutschland, lýsir því nú opinberlega yfir að jafnvel hann sé að missa trúna á myntbandalagið. (Why you should complain about lack of coordination, not protectionism). Sama dag notar hann svo tækifærið til að kalla seðlabankastjóra Póllands fyrir hálfvita (hefur maður heyrt þetta einhvers staðar áður?) vegna þess að þessi seðlabankastjóri vill ekki mæla með því að Pólland hefji ERM þrautargönguna.
Írskir stjórnmálamenn eru einnig farnir að kalla seðlabankastjórn Írlands illum nöfnum og krefjast afsagnar. En áberandi er þó hvítan í handabakabeinagrind írskra stjórnmálamanna því þeir eru búnir að borða ketrið af báðum handabökum vegna eigin mistaka, - þeir fluttu nefnilega fjármálaeftirlit Írlands frá seðlabanka Írlands (sem er símsvari) og yfir í einhverja aðra stofnum sem er hálfgerð hola niður í jörðina. Því blasir beinhvítan við öllum núna. Þessu hafa írskir skattgreiðendur tekið eftir fóru því í tonnatali út á götur og stræti til að mótmæla.
Hvað varðar ERM Póllands: Wolfgangur ætti þó að muna að ekkert af stóru löndunum hafa sjálf prófað alvöru ERM II ferli - því allar hinar þjóðirnar nálguðust þær og ekki öfugt. Þær eru því clueless um hvað ERM í raun þýðir miklar hörmungar og takmarkanir á alla hagi þjóðar og lands. ERM þýðir einfaldlega varanlega örkumlun sjálfstæðs og heilbrigðs efnahags þjóða. Eins og að fá varanlega lömunarveiki. Þú verður aldrei frískur aftur.
The European Debt Union - EDU
Eitt stykki pólitísk hrossakaup a la 1989, sem nú gætu farið að breytast í Evrópska Skulda Sambandið, The European Debt Union. "Kæri Helmut kanslari, ef þú vilt fá leyfi til að sameina Þýskalandið þitt aftur, austur og vestur, þá verður þú að samþykkja að við fáum að vera með sömu mynt og þú. Við krefjumst því myntbandalags". Þetta voru hrossakaup herra Mitterrand & herra Kohl þegar Múrinn féll. Svona varð myntbandalagið til. Nú er það að niðurlotum komið. Búið er að handjárna flestar þjóðir þess í armæðu sem þær komast ekki út úr aftur. Þetta eru mjög sterk handjárn og virka afskaplega vel. Útflutningur er því full stopp, ekki hægt að fella gengið til að gera hann samkeppnishæfan aftur, ekki hægt að prenta peninga til að koma þenslu í gang. Ekkert hægt nema að bíða, - bíða eftir mömmu. Vöðvar frelsisins eru vanmáttugir og visnaðir í spennitreyju Evrópusambandsins.
Innan næstu tveggja ára munu flestar evruríkisstjórnir skulda allt að eða meira en 100% af þjóðarframleiðslu sinni vegna galla í hönnun myntbandalagsins. Það tókst nefnilega að smygla skuldum bankana yfir á ríkissjóðina í reglugerðarfrumskógi ESB, Skógurinn virkaði ekki, þegar á reyndi.

En Brussel mun farnast vel
En það er engin hætta á að kreppan komi til Brussel. Starfsmönum verður ekki fækkað í Brussel. Þeim mun örugglega fjölga. Þeir skrifa og skrifa, setja fleiri reglur fyrir okkur, fleiri reglur, klippa og klístra fyrir okkur, prenta og prenta fyrir okkur. Pappírsmennirnir vinna og vinna, sigra og sigra, allt fyrir okkur.
Evrópusambandið fær ekki inngöngu í Evrópusambandið
Evrópusambandið fengi ekki inngöngu í Evrópusambandið, enga inngöngu, einmitt. Það er nefnilega ekkert lýðræði í þessu Evrópusambandi. Sambandið uppfyllir ekki eigin skilyrði
Meanwhile, in an interview with German daily Handelsblatt, the President of the German liberal party FDP in the European Parliament, Silvana Koch-Mehrin, said: "if the EU itself applied for membership of the EU, it would be refused. The reason would be: no democracy". She added: "Meanwhile more and more competences have been transferred to the EU level, without the EU structures having become more democratic".
Allir mótmæla nema Bandaríkjamenn
Er þetta ekki undarlegt. Undanfarið höfum við séð skipulögð mótmæli á Íslandi, Írlandi, Lettlandi, Eistlandi, Litháen, Ungverjalandi, Þýskalandi, Frakklandi og í fleiri löndum. En það eru engin mótmæli í Bandaríkjunum! Þó voru það Bandaríkjamenn sem fóru fyrst inn í kreppuna. Þeir hafa þurft að horfa uppá húsnæði sitt falla hrikalega í verði, þurft að flýja hús og heimili í massavís, misst vinnuna svo miljónum skiptir og verið sviptir hefðbundnum lánsfjármöguleikum sínum að verulegu leyti. En þeir mótmæla ekki.
Hvernig stendur á því að það eru einungis Bandaríkjamenn sem virðast geta tekið neikvæðu hliðum kapitalismans eins og uppréttir menn? Er það vegna þess að þeir svo innilega vissir um að það er ekkert betra til en frjáls kapitalistísk þjóðfélög að þeir eru tilbúnir að leggja mikið á sig til að varðveita þetta þjóðfélagslega kerfi sem hefur gert Bandaríkin að ríkasta landi heimsins á allan máta? Þeir virðast gera sér grein fyrir að það er enginn valkostur.
En þessu virðist ekki svona farið með okkar blessuðu Evrópubúa. Þeir mótmæla, krefjast og krefjast - og reyna svo eina ferðina enn að finna hina auðveldu leið út úr eign ógöngum. Þetta er heimsálfan sem fann upp og innleiddi kommúnismann, sem er það versta sem nokkurntíma hefur gengið yfir mannkynið. Evrópumenn fundu einnig upp og innleiddu fasisma og svo nazisma. Þar á eftir kom svo "þriðja sænska leiðin", en sem einnig hrundi. Seinasta uppfinningin er svo Evrópusambandið. Er Evrópa ennþá hið stóra meginland vesalinganna? (LARS HEDEGAARD: "Interview: A Continent of Losers")
Evrópumál | Breytt 24.2.2009 kl. 11:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
Föstudagur, 13. febrúar 2009
Sagt í trúnaði: það er að kvikna í banka- og hagkerfi Evrópusambandsins
Versta ár fyrir danskan útflutning síðan í seinni heimsstyrjöldinni
Nýjar danskar tölur hér í morgun. Versta tímabil fyrir danskan útflutning síðan í seinni heimsstyrjöldinni er framundan segir DI. "Við höfum aldrei séð svona tölur áður", segir aðalhagfræðingur hjá Dansk Industri, Klaus Rasmussen. Útflutningur mun dragast saman um 10% á þessu ári. Þetta eru 100 miljarðar danskra króna. Atvinnuleysi mun tvöfaldast til 120.000 manns áður en árið er á enda. Seðlabanki Danmerkur spáði fyrir stuttu fjórföldun atvinnuleysis á næstu 24 mánuðum. Þessi spá er væntanlega úrelt núna. (Historisk nedtur for dansk eksport)
Þetta lýsir ástandinu í ESB og evrusvæði vel. En af hverju? Jú aðal útflutningsmarkaðirnir eru einmitt í ESB, þar af 50% innan evrusvæðis. ESB er að fara ofan í djúpan djúpan og langan dal.
Þýskaland í frjálsu falli. Frakkar mótmæla
Sömu sögu er að segja um Þýskaland. Þar er útflutningur í frjálsu falli og mikill samdráttur var í þjóðarframleiðslu á síðasta ársfjórðungi 2008 eða -2,1%. Mun verra en menn áttu vona á. Sama saga er í Frakklandi þar sem starfsmenn frönsku hagstofunnar voru svo uggandi að þeir láku tölum um þjóðarframleiðslu Frakklands fyrir tímann núna í morgun - í mótmælaskyni, auðvitað. Í Finnlandi dróst þjóðarframleiðslan saman um 4,1% á síðasta ársfjórðungi 2008. Í Lettlandi er var samdrátturinn meira en 10%.
Danir ekki með í evru - ekki hægt lengur
Danmörk mun ekki komast með í evru því halli ríkisfjármála mun verða meiri en leyflegt. Þökk sé fjármálageiranum. Þetta segir Politiken í dag: (Danmark er ikke god nok til euroen). Dönum er nokkuð sama. Danska krónan hefur það fram yfir evru að hún er þaulreyndur ekta gjaldmiðill og ekki eingöngu pólitísk mynt eins og evran er.
Sagt í trúnaði: það er að kvikna í banka- og hagkerfi Evrópusambandsins. ESB mun ver sett en Bandaríkin
Samkvæmt trúnaðarpappírum ESB, sem var lekið í gær, þá stendur bankakerfi magra landa ESB frammi fyrir geigvænlegum vandamálum. Vandamálum sem eru jafnvel of stór til að hægt sé að leysa þau. Skuldastaða bankakerfa sumra landa ESB miðað við þjóðarframleiðslu þeirra er svo slæm og hættuleg að það er óvíst hvort hægt sé að leysa málið með bankahjálparpökkum og jafnvel ekki með þjóðnýtingu. Miklu meira um þetta hér: Sagt í trúnaði: það er að kvikna í banka- og hagkerfi okkar

Neista af jarðsambandi sló loks niður í ECB
Neista af jarðsambandi sló loks niður í aðalstöðvar seðlabanka Evrópusambandsins - en bara of seint. Væntingar ECB skyndilega gengisfelldar um 667%. Þangað til í gærdag hélt seðlabanki Evrópusambandsins (ECB) því fram að kreppan sem við þekkjum öll svo of vel - kreppan sem hófst með bankakreppu og sem núna er orðin að raunverulegri efnahagskreppu - myndi verða mild og blíð við okkur öll. Þessvegna hefur ECB ekki fengist til að lækka vexti nógu mikið á evrusvæðinu. Þeir eru ennþá óþarflega háir. Miklu meira um þetta mál hér: Neista af jarðsambandi sló loks niður í ECB
Viðskiptaráðherra Íslands og margir stjórnmálamenn Íslands á lyfjum?
Hvað myndir þú gera núna ef þú hefðir ekki íslensku krónuna? Hvað myndir þú gera þegar þú getur ekki prentað pengina lengur? Ef þú efast um svarið, já þá ættir þú ekki að vera hrifinn af myntbandalögum eða myntráðum því núna keyra prentvélarnar dag og nótt í löndum sem ráða peningamálum sínum sjálf.
Bandaríkjamenn munu t.d. gera "what ever it takes" til að koma hjólunum í gang og komast hjá verðhjöðnun og þurrð. Ef þú missir sjálfsákvörðunarrétt peningmála þá gætir þú náttúrlega kanski reynt að prenta ríkisskuldabréf í staðinn. Prenta ríkisskuldabréf til að fjármagna ríkissjóð og til að geta greitt laun opinberra starfsmanna og sent peninga inn í gegnum velferðarkerfið t.d. til lífeyrisþega, barnafólks, til landbúnaðar og til húsbréfasjóðs, ef þá einhver vill kaupa þau með X% ávöxtun til X ára í mynt sem þú ræður engu um hvaða stýrivexti ber.
En ég er hræddur um að kaupendur verði mjög fáir og langt á milli þeirra þegar ástand ríkisfjármála er eins og það er núna (geigvænleg skuldasöfnun m.a. vegna bankahrunsins). Spánn er að reyna núna, einnig Grikkland og Írland og Belgía og Holland. En lítið gengur.
Þess má geta hér að núna er seðlabanki Bandaríkjanna eini bankinn í Bandaríkjunum sem virkar sem banki núna og sem veitir peningum út í samfélagið. Það sama gildir á Íslandi. Enda hefur efnahagsreikningur seðlabanka Bandaríkjanna margfaldast á örskömmum tíma því viðskiptabankarnir eru einungis liðin lík. Það sama er að gerast annarsstaðar - og það sama gildir á íslandi.
Landráð í ógáti og kjánaskap
Þeir sem eru að biðja um að við losum okkur við svona lífsnauðsynlega stofnun með lífsnauðsynlegt valdsvið eins og Seðlabanki Íslands hefur og sem alvöru seðlabankar hafa, ættu að reyna að giska á hvernig ástandið væri ef það væri enginn seðlabanki í þjóðfélaginu hjá þér núna - bæði á Íslandi og í Bandaríkjunum. Þá held ég að svitinn á andlitum ykkar væri frekar súr, all Lettneskur og Írskur. Þessi myntumræða ykkar stjórnmálamanna á Íslandi er hættuleg öryggi þjóðarinnar og hún er einnig hættuleg sjálfstæði þjóðarinnar. Vaknið, í Guðs bænum!
Fyrri færsla:
Vantar einn sjúss enn. Hef land og auðæfi þess í skiptum
Forsíða þessa blogs
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 12:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (34)
Miðvikudagur, 11. febrúar 2009
Vantar einn sjúss enn. Hef land og auðæfi þess í skiptum
Utan eða innan girðingar?
Utangarðsmaðurinn Jón Baldvin Hannibalsson sem er fyrrverandi og einnig fjarverandi stjórnmálamaður einhversstaðar inni í Íslandi segir að allt muni lagast ef hann fái leyfi til að rétta upp höndina einu sinni enn. Jón Baldvin og ennþá Hannibalsson segir að hann sé utangarðsmaður því Ísland sé utangarðsland af því að það er ekki með í hinu efnahagslega öryrkjabandalagi Evrópu. Þetta kom fram í grein hans í Morgunblaðinu. En bara ef Ísland væri utangarðsland segi ég. Þá væri Ísland nefnilega ekki svona miklu verr statt í dag. En Ísland er ekki utangarðsland því núna er Íslandið okkar frekar illa statt vegna of mikils efnahagslegs trúverðugleika undanfarinna ára. Trúverðugleika sem gerði að verkum að byggðar voru risastórar bankafallbyssur á erlendri kredit á Íslandi en sem allar snéru hlaupum sínum inná við. Svo skutu þær landið í kaf. Litla Gunna og litli Jón munu borga eins og venjulega. Bankafallbyssurnar gengu allar fyrir erlendum skotfærum sem komu til Íslands í gegnum tölvu- og póstkerfi bankanna. Skotfærin fóru því næst inn í gírkassa ofur snjallra bankamanna sem því næst komu þeim upp í 25. gír með veði í framtíðar tekjum skattgreiðenda. Núna er komið að gjalddaga. Borgið vinsamlegast við búðarkassa 1 til 100.
Ekki bara á Íslandi

Þetta gerðist þó ekki einungis á Íslandi. Danski Bankinn hér náði að tapa 15 miljörðum danskra króna á síðustu þrem mánuðum síðasta árs. Hann hefði líklega endað á hausnum ef hann hefði ekki fengið risahjálp frá dönskum skattgreiðendum. Enginn mun þó nokkrusinni fá að vita hversu nálægt bankinn var við að fara í þrot á þessum haustmánuðum. En það var mjög tæpt, segja fjölmiðlar. En gamanið er ekki búið. Það er einungis að byrja hér í ESB. Það er nefnilega alls ekki sopið kálið þó svo að Danir hafi á sínum tíma rétt upp eina Jón Baldvinshönd niðri í Brussel ásamt hinum 26.
Núna erum við komin upp í bankapakka_2. Svo er bankapakki 3 eftir. En það mun ekki stoppa þar heldur. Þar á eftir mun nefnilega koma bankapakki_4 og svo kemur einnig bankapakki_5 á vetrarmánuðum 2009/10. Þetta er næstum öruggt því gírkassar bankanna hér í bandalaginu hafa einnig verið keyrðir á sama hátt og utan bandalagsins hjá utangarðsmönnum. Það var því gott að Jóni Baldvini Samfylkingarsyni tókst ekki að koma Íslandi með í bankapakka 1 og 2 og 3 og 4 og 5. Bankaballið er búið á Íslandi, en dansinn mun duna áfram næstu árin hér í Der Untergang vrópu.
Voodoo (ósmekklegt!) seðlabankastjórn Evrópusambandsins mun ekki hjálpa frekar en fyrri daginn. Það segir herra Willem Buiter: YES WE CAN!! have a global depression if we really continue to work at it
<><><>
Símskeyti að handan:Þýðing
Father, Son and Jean-Claude Trichet
Here is an assessment of the recent performance of the European Central Bank, made by Willem Buiter and now on his Maverecon blog at ft.com.
Buiter is professor of European Political Economy at the London School of Economics, former chief economist of the European Bank for Reconstruction and Development, former extrernal member of the Monetary Policy Committee, and on and on.
The European Central Bank is the pack of all-sorts central bankers trying to be Germans, run by the former French bureaucrat (virkilega?), Jean Claude Trichet. It is in charge of interest rates in the eurozone, to which Britain has the benefit of not belonging.
Though of course Peter Mandelson and others intend to change that, and put Britain under the control of a central bank which acts like this:
'The Eurozone is now getting so far behind the curve that, if the ECB were on an Olympic race-track, it would be looking itself in the back.'
'At the ECB, a special branch of voodoo monetary policy has been developed that sees insurmountable problems and dangers associated with getting the official policy rate below some value that is well above the zero floor set by the zero nominal interest on currency.' That is the policy being pursued by the Fed, the American central bank.
' The exact location of this mysterious liquidity trap lower bound has never been revealed, but on the basis of the stammering, incoherent and incomprehensible statements in this regard from Jean-Claude Trichet, [and other members of the governing council of the ECB] Jurgen Stark, Gertrude Tumpel-Gugerell, Lorenzo Bini-Smaghi and Ives Mersch (to name but a few), it apears to be migrating south slowly from around 2.00 percent.'
'The ECB's blabbering about a possible liquidity trap above a zero percent nominal interest rate is complete and utter nonsense....' And so on.
All of which could boil down, I'd say, to an assessment that the ECB is screwing up the Eurozone. Yet the criticism of it has been muted in the EU. Reason? Support for the key insitutions of the 'European project' is based on a kind of religious faith, not reason. Anyone who attacks the (clearly confused) reaction of the ECB to the financial crisis is treated as a heretic, not as a critic.
Ask what use the ECB is now, as being trapped in the single currency tears apart the economies of Portugal, Spain, Italy, Greece and Ireland, and one is told to have faith. We are supposed to believe the ECB is like the Holy Spirit: it is the mortar that holds the dry-stone wall together.
Trúverðugleikarnir
Trúverðugleikar sumra landa evrusvæðis eru svo miklir að hagfróðir menn telja að Spánn sé að verða uppiskroppa með peninga því það er lokað á allan spænska fjármálageirann á peningaheildsölumarkaði evrusvæðis. Það eina sem trítlar út úr peningarörinu til Spánar eru smáaurar frá Vodo Seðlabanka Evrópu. Því segja sumir menn að það sé stutt í að spænska ríkið hætti að geta greitt laun til opinberra starfsmanna og að það sama muni gilda um lífeyrisgreiðslur til bótaþega. Þetta er ekki gott ef rétt er. Spánn getur ekki prentað peninga lengur og heldur ekki fellt gengið til að koma ósamkeppnishæfum útflutningi á réttan kjöl. Því er það fjárþurrð sem mun svera að.
Svipað gerðist einnig þegar Argentína var undir myntráði sem var tengt bandaríkjadal í nokkur ár. Þá gat ríkisstjórn Argentínu ekki prentað Pseo lengur því það er ekki hægt undir myntráði, svipað og í myntbandalögum. En kaldhæðnar tungur segja að þegar við munum sjá svona miða í umferð á Spáni (og í fleiri evrulöndum) þá munum við vita að ríkið er komið í algert peningalegt þrot. Þetta eru miðar sem segja "ég skulda þér". (Patacón - bond) og til dæmis notaðir til að greiða aðföng ríkisins og laun til opinberra starfsmanna: "ég er með miða, ég ætla að fá tvö kíló af kartöflum".
Athyglisvert viðtal við Roubini aftur
Það var annað viðtal við hagfræðinginn Nouriel Roubini á Bloomberg. En Roubini var einn þeirra sem sá fyrir kreppuna. Niðurstaða: verðin eru ennþá of há, skuldsetning er ennþá of mikil, bankar eru eignalausir (insolvent) og örvun hagkerfa mun hafa takmörkuð áhrif, nema í formi skattalækkana. Það er eiginlega átakanlegt að horfa á þetta viðtal því fréttamaðurinn virðist alls ekki geta skilið að það þarf að vinda ofan af of gíraðri stöðu áður en hægt er að vænta þess að hjólin fari fyrir alvöru í gang aftur. Þess er hægt að geta hér að iðnaðarframleiðsla sumra ríkja hefur núna fallið meira á síðustu 12 mánuðum en hún náði að falla á þrem árunum 1930-1932. Menn standa og gapa af undrun.
Skattamálanefnd Danmerkur hefur lokið störfum
Skipuð var rannsóknarnefnd skattamála og áframhaldandi velferðar í Danmörku á síðasta ári. Þetta var gert vegna þess að Danmörk stendur frammi fyrir því að minnkandi vinuafl, sökum fækkunar barnsfæðinga og því öldrunar þjóðarinnar, mun í náinni framtíð þýða að erfiðara verður að fjármagna velferðarkerfið. Þó er Danmörk stödd í himnaríki hvað varðar barnsfæðingar miðað við stærsta hlutann af ESB löndunum sem standa frammi fyrir þjóðargjaldþrotum innan ársins 2055, ef standa á við loforð og skuldbindingar ríkisins við þegnana og lánadrottna landanna.
Nefndin hefur komist að þeirri niðurstöðu að ef aðeins eitt prósent af best launuðu skattgreiðendum Danmerkur myndu ákveða að yfirgefa landið vegna hárra skatta (eða vegna annarra ástæðna) þá myndu heildar þjóðartekjur Danmerkur falla um 8,1 prósentustig. Þeir sem eftir sætu þyrftu að bogra mun hærri skatta og það þyrfti að skera niður velferð sem nemur tæpri hálfri milljón íslenskra króna á hvert mannsbarn á hverju ári. Ríkið myndi missa 27,4 miljarða DKK í beinar tekjur. Ofaní það kæmi svo missir á tekjum vegna virðisaukaskatts og annarra gjalda til ríkisins. (Skattekommissionen)
Hættulegar skattahækkanir
Skattahækkanir eru hættulegar og bitna mest á þeim sem minnst meiga sín. Það mun verða mikill skortur á góðum skattgreiðendum í framtíðinni og því er um að gera að halda fast í þá. Mig langar aftur að minnast orða hagstofustjóra Færeyja, Hermanns Oskarssonar, þegar hann fjallaði um banka og efnahagskreppu Færeyja sem hófst í byrjun 10. áratugs síðustu aldar og varaði í næstum 20 ár: "það versta var fólksflóttinn - og ykkar styrkur er íslenska krónan" (Krónan er ykkar styrkur" | Kungerð um fund á Grand Hotel, Reykjavík.)
Fyrri færsla: Samfylkingin og Jóhanna Sigurðardóttir krefst brottreksturs bankastjórnar seðlabanka Evrópusambandsins
Forsíða þessa bloggs
PS: ó já - ég gleymdi að segja frá því að áhugi Dana á evru fer hratt fallandi og hefur ekki verið minni síðan árið 2001. Áhuginn á evru er að þorna upp: Støtten til euroen er i frit fald
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 19:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Föstudagur, 30. janúar 2009
Ísland lærir hratt: það fór finnsku og sænsku leiðina strax. En getur Samfylkingin lært?
Ísland lærir hratt: það fór finnsku og sænsku leiðina strax
Samkvæmt skrifum írska hagfræðingsins og fyrrverandi seðlabankamanns David McWilliams þá er hin svokallaða "finnska & sænska leið" - sem Morgunblaðið hefur meðal annarra verið duglegt við að auglýsa upp á Íslandi - nú þegar ekin á fullum hraða af Íslandi. Ísland brunar nú á þessari hraðbraut sem einungis er fær þjóðum sem eiga sína eigin mynt og sem Samfylkingin vill útiloka að Ísland geti keyrt á í framtíðinni. Það er þessi leið sem til dæmis um það bil 19 til 32 Sammála Hagfræðingar (1932SH) vilja loka á fyrir Ísland. Bakhjarl þessara aðila til varanlegrar efnahagslegrar þrautargöngu Íslands og til varnar því að velmegun geti haldið áfram að myndast á Íslandi, er sjálfur stjórnmálaflokkurinn Samfylkingin og einnig ASÍ. En fyrir þá sem vita það ekki þá er Samfylkingin stjórnmálaflokkur á Íslandi sem í stuttu máli er hægt að kalla Alþýðubandalagsfylkingarflokkinn með konu eina í fararbroddi sem blaktir nú sem gulblá dula með blóðrauðum borðum og kögri við fölnaðan hún gömlu flaggstangar Alþýðuflokksins.
1932SH er alls ekki óalgengt fyrirbæri
En það merkilega við þessa leið sem 1932SH hafa þó ekki komið kláru auga á ennþá - hvorki á Íslandi né á Írlandi, nema kanski einn - er að það var einmitt þessi leið sem var farin strax á fyrsta degi kreppunnar á Íslandi. En hvernig má vera að allir þessir hagfræðingar hafa ekki tekið eftir þessu? Hvorki á Íslandi né á Írlandi? Jú, það er vegna þess að þessir 1932SH voru svo uppteknir í stanslaust 5 ár við að vera alveg sammála um að það sem fram fór á einmitt þessum síðastliðnum 5 árum væri al gott fyrir Ísland. Ein megin orsök þess að Ísland á í miklum erfiðleikum núna er einmitt sú að þessir 1932SH voru bundnir einskonar þagnarskyldu við hvorn annan. Þagnarskyldu á oft mjög háum launum hjá til dæmis launaveitu Sigga Samfó. Þeir nenntu einfaldlega ekki að rjúfa þagnarskylduna af ótta við að tapa andlitinu og að falla þar með í ónáð hjá hinu "almenna áliti" hjá upplýsingaveitu Sigga Samfó. Þessvegna er heldur ekkert að marka 1932SH núna því þeir eru aftur uppteknir við að verja sinn slæma málstað fram í rauðann dauðann. Andlitunum skal bjargað, sama hvað það mun kosta Ísland.
Þetta hefur einnig gerst á Írlandi segir David McWilliams. "Það er til of mikils ætlast að hægt sé að biðja um "no bullshit" álit þessara manna þó svo að Írland standi frammi fyrir 10% samdrætti í þjóðarframleiðslu á þessu ári og jafnvel þjóðargjaldþroti". Þetta eru þær aðstæður sem hinir 1932SH á Íslandi vilja einnig koma Íslandi í.

Rangt 1 og 2
En hvað var rangt við ályktanir Moggans, 1932SH og Sigga Samfó um sænsku og finnsku leiðina út úr eigin banka- og efnahagskreppu á tíunda áratug síðustu aldar? Jú ályktunin sem þeir draga er nefnilega sú efnahagsbati þessara tveggja þjóða hafi haft eitthvað að gera með inngöngu landanna í Evrópusambandið nokkrum árum seinna. En þetta er eins al rangt og það getur orðið. Alveg kol rangt.

Það sem læknaði og kom þessum tveim löndum út úr kreppunni var hinsvegar massíf gengisfelling sænsku krónunnar og finnska marksins. Massíf gengisfelling! Þetta bjargaði þessum löndum frá því að falla um koll. Sjálfspynting Svía og Finna hætti skyndilega því það var ýtt á "sleppa" takkann. Bindingin var rofin við bryggjupollann og skipin sigldu aftur. Með gengisfellingu gátu þessi lönd unnið sig út úr vandamálunum á sama hátt og Ísland er að vinna sig út úr vandamálunum núna. Pappírsframleiðsla Finna var seld í dollurum og Volvóar, Scaníur og vélar Svía fóru mikið til útlanda.
Samverslun Finna og Svía var einnig sterk. Einnig hefði Nokia varla átt séns án gengisfellingar. Þetta tryggði það að þegar mestu örþrifakreppunni linnti þá voru útflutningsfyrirtækin ennþá til staðar í þessum löndum til að leiða samfélagið aftur á braut velmegunar. En þó hefur Finnland aldrei alveg komist úr úr kreppunni því það fór út í það að taka upp evru. Þetta má lesa út úr atvinnuleysistölum Finnlands og út úr hagvaxtartölum þeirra. Finnar fengu því sjúkdóminn eurosclerosis. Núna eru því neyðarpakkar aftur á dagskrá í Finnlandi.
Mynd: rof fastgengisstefnu við EMS og gengisfelling finnska marksins
Mynd: rof fastgengisstefnu við EMS og gengisfelling sænsku krónunnar
Lesefni: Down from the heavens, Up from the ashes
Hvað geta Írar með evrur gert núna, drepist?
Ef hvað með Íra? Hvað geta þeir gert sjalfum sér til hjálpar? Ekkert, minn kæri lesandi, ekkert nema að drepast evrudauðanum. Nei, þetta er víst ekki alveg satt og rétt hjá mér. Írar geta nefnilega reynt að gera eitt. Takið vinsamlegast eftir orðinu "reynt". Þeir geta nefnilega reynt að fara þá leið sem Alþýðusamband Íslands er svo hrifið af. En hvað heitir þá þessi leið Gunnar? Jú hún heitir launaleiðin. Lækka launin væni minn, lækka laun og lækka laun. Þetta er ekki finnska leiðin og ekki sænska leiðin. Þetta er evruleiðin. Lækka laun og skera niður velferðarkerfið næstu 10 árin samfleytt. Eymd í boði Samfó og ASÍ í 10 ár.
Þrautargangan
Opinberir starfsmenn í Lettlandi hafa til dæmis nú þegar samið um 25% launalækkun og enn meira er í vændum. Einkageirinn mun fylgja á eftir og allt verður skorið massíft niður.
Vandamál Letta er bara það að hagstofa Lettlands mun ekki ná að uppgötvað nógu fljótt að þjóðin er farin burt úr þessu landi sem gékk í Evrópusambandið eftir að kommúnistar níddu það niður. Þetta er Lettlandið sem vill fá evru sama hvað það kostar því þá er hægt að andast inni í evrulandi í lokin og láta evrulandið borga. Lettneska þjóðin mun nefnilega fara mikið til Norðurlandanna og þeir sem komast ekki með, gamlingjarnir, verða einir eftir. Því mun IMF og ríkisstjórn Lettlands sitja í sameiningu yfir hálf tómum efnahagsreikningum um alla næstu eilífð eftir aðeins örfá ár.
Þetta veit ríkisstjórn Lettlands, nema náttúrlega að hún sé jafn vitlaus og Samfylkingin og ASÍ. Getur það hugsast? Nei, varla. Þess vegna hugsa ég að ríkisstjórn Lettlands viti að Lettland er búið að vera sem samfélag. Að það sé ekki hægt að snúa þróuninni við því hvar ættu þeir að sækja vinnuafl í framtíðinni? Engin börnin fæðast þar og þjóðinni fækkar svona mikið. Hver ætti að borga fyrir velferðina? Ég held því að ríkisstjórn Lettlands sé ekki eins vitlaus og Samfylkingin og ASÍ og að hún hugsi sem svo að "það er óhjákvæmilegt að Lettland muni hverfa af vettvangi heimsins sem þjóð og það er einnig óhjákvæmilegt að Evrópusambandið muni verða eitt ríki í framtíðinni". Tveir óhjákvæmilegir atburðir. Því sé best fyrir þjóðina að koma sér sem fyrst á miklu stærra elliheimili. Þessvegna er ríkisstjórnin viljug til að fórna öllu því litla sem hún hefur í höndunum núna til þess eins að taka upp myntina sem á að leiða þá algerlega og óafturkvæmt inn í Evrulandið. Svona munu Lettar komast í sameiginlegt efnahagslegt sjálfsmorð Evrópusambandsins og því sitja við sama borð þegar þrotabúið kemur til skiptana.
Launafrysting er annað er launalækkun
Launalækkun er allt annað og þúsund sinnum erfiðari en t.d. sú launafrysting sem Þýskaland setti sér sjálft í Þýskalandi í samfleytt 10 ár (halló ASÍ), eða frá 1995-2005. Þjóðverjar fengu nefnilega ekki launahækkun í heil 10 ár og þetta bitnaði einnig á okkur hér í Danmörku ásamt fleiri nágrannaríkjum. Að frysta laun er allt annað en að lækka laun. En af hverju Gunnar? Jú vegna þess að þá fer fólkið bara. Það fer jafnhratt og það kom til dæmis til Írlands þegar Írar voru að byggja sér hurðarása um báðar axlir. Það er orðið jafn auðvelt að fara eins og að koma svo sjálft útstreymið og flóttinn mun einnig eiga sér stað það hratt að hagstofurnar munu ekki ná að festa tölur á minnkun vinnufals fyrir næsta fund í fjárlaganefnd þingsins.
Meira lesefni: Why Latvia Needs To Devalue Soon - A Reply To Christoph Rosenberg
Rauðgula hættan á Íslandi
Það hættulega sem er að gerast á Íslandi núna er það að til stóraukinna valda er kominn flokkur sem er svo innilega heimskur að það nálgast landráð í óvitaskap. Þarna á ég við Alþýðubandalagsflokkinn Samfylkinguna, sem núna er laus við það litla jarðsamband sem Sjálfstæðisflokkurinn reyndi að veita henni.
Ein af ástæðunum fyrir því að fólk á Íslandi eignast jafn mikið af börnum eins og Ameríkanar gera, samanborið við restina ef Evrópu, er sú staðreynd að Íslendingum finnst þeir vera öruggir á Íslandi. Öruggir í eigin fullvalda ríki. Þeir trúa á framtíð landsins. Ef þessi trú hverfur þá hverfur einnig þjóðin. Maður gæti því freistast til þess að álykta að Alþýðubandalagsflokksfylkingunni sé mjög annt um að koma Íslandi á hausinn því þá væri hægt að koma skríðandi til ESB og biðja þá um ímyndaða hjálp og innlimun og telja svo kjósendum á Íslandi trú um að Ísland þarfnist þessa. Allar gjörðir og ályktanir Samfylkingarinnar benda einmitt í þessa átt.
- Skýr skilaboð frá ESB segir formaður og hleður því gagnrýnislaust tvöfaldri Versalaánauð upp á þjóðina til þess eins að tjónkast ESB krötunum
- Forsætisráðherranum hótað öllu illu ef hann samþykkir ekki
- Alþýðubandalagsflokksfylkingin var mesti stuðningsaðili glapræðisstefnu bankanna
- Allir sem gagnrýndu voru gerðir að athlægi í upplýsingaveitu Sigga Samfó
- Hundrað ára mission impossible Samfylkingarinnar við að koma Íslandsvini númer eitt fyrir kattarnef, Davíð Oddssyni. Sama hvað það kostar
- Vildu alveg endilega fá IMF til að setja Íslandi afarkosti svo hægt sé að hefja þrautargönguna strax
- Vilja halda vöxtum háum til að venja fólkið við þrautargönguna svo Ísland megi í náinni framtíð fremja efnahagslegt sjálfsmorð með hinum krötunum inni í Evrópusambandinu
Getur þetta orðið verra?
Fyrri færsla
SA: Heimilin þola ekki skattahækkanir
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 02:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (42)
Mánudagur, 26. janúar 2009
Fjármagnsþurrð á evrusvæði. Ekki hjálpar evran Slóveníu
Slóvenía tók upp evru þann 1. janúar 2007.
Núna á þetta land í miklum erfiðleikum sökum fjármagnsþurrðar því enginn vill kaupa skuldir af ríkisstjórn Slóveníu. Þetta segja m.a. FT Deutschland og Forbes í dag. Ríkisstjórn Slóveníu hefur verið að reyna að afla fármagns til þess að geta fjármagnað björgunarpakka til handa efnahags landsins. Ætlunin var að afla eins miljarða evra sem átti að nota til þess að búa til efnahagslegan björgunarpakka. En engir kaupendur af skuldabréfum ríkisins hafa sýnt áhuga. Fjármálaráðherra Slóveníu varar nú við fjámagnsþurrð.
Svipað ástand er að myndast í mörgum smærri og stærri löndum myntbandalagsins.
Samkvæmt evruáhugamönnum er þetta það sem átti ekki að geta gerst ef maður væri í þessu myntbandalagi Evrópusambandsins.
Ef þú værir fjárfestir, myndir þú vilja fjárfesta í landi þar sem:
- ríkið ræður engu um gjaldmiðil landsins
- ríkið ræður engu um peningastjórn landsins
- ríkið getur ekki fellt gengið og ræður engu um gengið
- útflutningur bíður afhroð vegna þess að gengið er alltof hátt fyrir þig
- lækka þarf laun almennings með handafli yfir mörg ár
- ríkið er algerlega háð því hvernig gengur í Þýskalandi & Frakklandi og þar gengur næstum alltaf allt illa
- ríkið er meðlimur í hnignandi efnahagskerfi sem vantar 194 milljón nýja utanaðkomandi þegna fyrir árið 2035 til þess eins að viðhalda núverandi velferð og vinnuafli hinna 15 eldri landa Evrópusambandsins
Við erum með mjög samhenta ríkisstjórn sem er algjörlega einhuga í því að það þurfi að takast á við þessa stóru erfiðleika sem við stöndum frammi fyrir, sem eru náttúrlega gengi krónunnar og efnahagsmálin í heild. Það eru raunverulegu vandamálin, ekki það hvað seðlabankastjóri segir eða einhverjir forstjórar fyrirtækja. Við þurfum að tala saman, en ekki svara fyrir einhverjar svona hugmyndir sem koma innan úr embættismannakerfinu.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 14:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (37)
Föstudagur, 23. janúar 2009
Allt ykkur sjálfum að kenna
Þýskalandi hrakar hratt
Fyrir tveim mánuðum spáði Alþjóða Gjaldeyrisjóðurinn (AGS) 0,8% samdrætti í þýska hagkerfinu fyrir árið 2009. Í gær gaf AGS hinsvegar úr nýja hagspá fyrir þýska hagkerfið. Í þessari nýju hagspá hafa væntingar AGS til Þýskalands fallið svo mikið að spáin hljóðar uppá 2,5% samdrátt fyrir 2009, með verulegri hættu á að samdrátturinn geti orðið enn verri og meiri. AGS spáir einnig í raun 0,0% hagvexti í Þýskalandi árið 2010. Á aðeins tveim mánuðum hafa væntingar AGS til þýska hagkerfisins fallið þrefalt. Í raun segir AGS með þessu að hagspár þýsku ríkisstjórnarinnar séu óraunhæfar og að kreppan verði dýpri og lengri en ríkisstjórnin gerir ráð fyrir. Þetta mun veðra mesti samdráttur í þjóðarframleiðslu Þýskalands frá lokum seinni heimsstyrjaldar.
AGS segir einnig að hinar miklu áherslur þýska hagkerfisins á útflutning auki enn frekar hættuna á að þýska hagkerfið festi sig í hagvaxtargildru um langan tíma. Samkæmt tölum frá efnahagsmálaráðuneyti Þýsklands féll útflutningur um heil 10,6% frá október til nóvember og aftur um 10-11% frá nóvember til desember. Þetta er geigvænlegur samdráttur og margir bíða því með kvíða eftir næstu hagvaxtartölum frá Þýskalandi.
Danmörku batnar ekki
Þessa dagana fara fram umræður í þingheimi Danmerkur um hugsanlega upptöku evru. Í því sambandi eru sjónarmið stjórnmálaflokka og atvinnulífs rædd. Í gær lét aðalbankastjóri eins stærsta banka Danmerkur í ljós álit sitt á þessu hugðarmálefni forsætisráðherrans, Anders Fogh Rassmusen. Það var bankastjóri Jyske Bank, Anders Dam. En Jyske Bank er einn stærsti banki Danmerkur og er greiningadeild hans á sviði gjaldeyrisviðskipta talin ein sú besta hér í landi. Það lá við að Anders Dam froðufelldi af bræði þegar honum var boðið að tjá sig um málið. Samkvæmt dagblaðinu Jyllands Posten sagði Anders Dam eftirfarandi um evrumál forsætisráðherrans:
"Ríkisstjórnin hefur sjálf bruggað þá súpu sem hefur ýtt dönskum bönkum út í þá krísu sem þeir eru í núna. Fjármálaráðherrann (Lene Espersen) kom svo og gerði ástandið ennþá verra en orðið var með því að lýsa því fyrirfram yfir að danskir bankar skyldu ekki eiga von á neinni aðstoð frá danska ríkinu. Þar með býr hún sjálf til blöðruna sem svo springur þegar kreppan skellur á fyrir alvöru. Svo segir ráðherrann eftir á að þetta sé allt bönkunum að kenna. Það er mjög þægilegt að geta komið með svona predikun", hvæsti Anders Dam á eftir ríkisstjórninni".

Hann heldur áfram og segir: "skattastoppið og afborgunarlaus húsnæðislán sem ríkisstjórnin ber ábyrgð á leiddi til útlánabólu sem er hið eitraða hanastél ríkisstjórnarinnar sjálfrar. Þetta er beinlínis hægt að rekja til ríkisstjórnarinnar sjálfar. Svo komið þið með þennan fáránlega hjálparpakka til bankanna. Af einhverjum óskiljanlegum ástæðum kallar ríkisstjórnin þetta fyrir hjálparpakka. Ég hef aldrei heyrt um hjálparpakka þar sem maður byrjar á því að innheimta 35 milljarða danskar krónur af bönkunum fyrst og segir síðan við þá, nú skulum við koma og hjálpa þér. Hvernær hefði stærsti flokkur ríkisstjórnarinnar sem alltaf hefur verið landbúnaðarflokkur komið svona fram við sjálfan landbúnaðinn?"
Allt ykkur sjálfum að kenna
Anders Dam heldur enn áfram og segir: "Ég hélt satt að segja að ég væri statisti í bíómynd þegar ég í gegnum fjölmiðla sé forsætisráðherrann koma í þessa fjölmiðla og segja við þjóðina "þarna getið þið séð hvað það kostar að vera ekki með í evru". En svona er hið pólitíska spil. Þar er tekið mið af hér og nú aðstæðum án þess að gera sér það ómak að rannsaka ástæðurnar fyrir því hvernig stendur á því að málin eru komin í þessar ógöngur. Það er eingöngu vegna stefnu ríkisstjórnarinnar sjálfrar að seðlabankinn neyddist til að hækka vexina. Þetta er ykkur að kenna frá upphafi til enda".
Söludeild verkefnastjórnarinnar
Núna á sem sagt að reyna, eina ferðina enn, að selja Dönum evrur með því að höfða til ótta augnabliksins. Já kjósa aftur og aftur. Ef það kemur ekki rétt út úr þá kýs maður auðvitað aftur. Svo koma fjölmiðlar oft og "hjálpa" til við verkefnið. Þannig fór einnig hér í Danmörku. En danska ríkisútvarpið þurfti þó að éta ofaní sig villandi útreikninga um að húsnæðislán væru ódýrari ef Danmörk væri með evru. Útreikningar sjónvarpsins náðu aðeins til eins árs. Enginn tekur húsnæðislán til eins árs. En í mörg ár hafa vextir verið lægri í Danmörku en á evrusvæði. Bara akkúrat ekki á meðan útreikningar sjónvarpsmanna fóru fram.
Kæri lesandi. Ert þú borgaralega þenkjandi?
Skyldir þú vera í vafa um hvort þú ert borgaralega sinnaður eða ekki, hugsaðu þá bara smástund um Evrópusambandið. Ef það streyma um þig heitir straumar við tilhugsunina um hið yfirríkislega bákn sem á heima í heimsins ljótasta bæ, þá ertu sennilega ekki borgaralegur, heldur ertu líklega sósíalisti eða sósíaldemókrati. Þetta er náttúrlega ekki sjúkdómur og heldur ekki ólöglegt, en gengur þó sem betur fer oftast yfir með aldrinum, nema í fáum undantekningartilfellum. Þetta er því miður ekki al slæmt fyrir þig því margir sósíalistar hafa mikil og afgerandi áhrif á samfélagið, samfélaginu sjálfu til mikils skaða. Sem dæmi má nefna suma stjórnmálamenn, blaðamenn, háskólamenntaða menn, kennara, uppeldisfræðinga, listamenn o.s.f.v. sem vilja ala Evrópu upp á ný í eitt skipti fyrir öll. En fáir þú hinsvegar höfuðverk, ógleðitilfinningu, fyllist efasemdum og haldir fyrir nefið og augun við tilhugsunina um fýluna frá endlausum nýjum lögum og reglugerðum sem eru framleiddar á sjálfvirku erlendu færibandi í aðalstöðvum Evrópusambandsins - og sem eiga eftir að verða lögin og reglurnar fyrir þig - eða við tilhugsunina um þá beturvitandi massamargmiðlun sem fossar út úr 170.000 manna her embættismanna heimsveldis ESB, já þá ertu sennilega borgaralega innstilltur eða jafnvel með snert af frjáls- og frelsishyggju innbyggða í þinn persónuleika. En bíddu aðeins með að rústa einhverju í þínu nánasta umhverfi þegar þú lest þessi orð mín kæri lesandi, þetta eru ekki allt saman mín orð. Mörg þeirra eru sótt hingað hjá sagnfræðingnum Mikael Jalving hér: EU på kvalmegrænsen. Þetta er ekkert nýtt.
Hausinn í sandinum á Íslandi
Að vera að ræða um Evrópusambandið í þeim aðstæðum sem eru ráðandi núna á Íslandi er sú ömurlegasta skemmdarverkastjórnmálastarfsemi sem hægt er að hugsa sér, enda er það einkennandi fyrir þetta fyrirbæri sem nefnist Evrópusambandið að það hagnast alltaf á óförum annarra því það er alltaf notað sem verkfæri óttans þegar eldur brennur undir þjóðum og þegar þegnarnir missa trú sína á lýðræðislega kjörinni forystu landanna og stofnana lýðræðis þeirra. Að hafa svona óttaverkfæri til umráða til að grafa undan undirstöðum þjóðfélaganna er því mikil óskastaða fyrir verkefnastjórana í Evrópusambandinu. Já verkefna-stjórana. Það er því dapurlegt að Sjálfstæðisflokkurinn skuli hafa látið hálfpartinn þvinga sig til yfirhöfuð að ræða þessi mál núna. Þetta er svipað og að stinga hausnum í sandinn og vona að veðrið verði bara gott þegar hann verður dreginn upp úr svaðinu aftur. Evrópusambandið mun ekkert geta gert fyrir Ísland. Það myndi einungis gera öll mál ennþá erfiðari fyrir alla þegna Íslands og krefjast þess að altlaga yrði gerð að velferð allra Íslendinga. Þetta er eins öruggt og að sólin kemur aftur upp á morgun.
Þessvegna er það einnig ákaflega dapurlegt að Morgunblaðið sé að missa sitt gamla góða jarðsamband við Ísland. Sambandið við jörðina sem er ættjörðin okkar. Morgunblaðið er nefnilega rekið eins og verkefni og því stýrt af verkefnastjóra eins og er.
En hið ótrúlega virðist samt ennþá vera að gerast á Íslandi því nú hafa landsmenn bráðum horft í heil 5 ár uppá aðfarir 32_sammála_hagfræðinga um hve mikið þeir glöddust yfir því í heil 5 ár að ofurölvaður fjármálageiri Ísland hoppaði stanslaust á og nýddi niður gjaldmiðilinn okkar, íslensku krónuna. Hefur einhver séð 32 sammála hagfræðinga áður? Nei það hefur enginn. En gróft sagt þá eru hagfræðingar aldrei sammála um neitt enda eiga þeir ekki að vera það því það er ekki hægt. Alltaf þegar maður heyrir um að svona menn séu sammála eða að það ríki svokallaður "vísindalegur consensus" innan fræðigreinar sem er samfélagsfræðigrein, og ekki eðlis- jarð- eða veðurfræði, þá veit maður að það er um verkefni að ræða.
Verkefnið & verkefnastjórarnir

En ESB verkefnið stoppar aldrei og því er aldrei hægt að njóta neinna ávaxta þess því um leið og verkefnið stoppar þá þarf að fara út í það að vinda ofan af skuldabréfavafningum verkefnastjóra Evrópusambandsins, því öll þau skref sem Evrópusambandið hefur tekið byggja alltaf á þeirri forsendu að þau séu háð því að næstu skref séu einnig tekin. Á Þann hátt er þegnunum haldið í verkefninu. Verkefnastjórarnir sjá alltaf til þess að verkefnið endi aldrei því þá þorna fjárveitingarnar upp og þeir eiga á hættu að missa vinnuna við verkefnið.
Maður skyldi þó ætla að þetta verkefni hefði skilað þeim árangri að þeir þegnar sem Evrópusambandið langar svo mikið til að stjórna og ala upp á ný - og undir nýjum formmerkjum um nýtt og einhlýtt þjóðareinkenni, sem auðvitað er ekki til ennþá - hefðu orðið varir við þann framgang sem Evrópusambandið er alltaf að skála fyrir niðri í Ljótabæ. Að þegnarnir hefðu því brugðist við öllum framförunum og farið út í það að njóta nú loksins ávaxtanna með því að leggja grunninn að eigin hamingju með því að stofna til heimilis og eignast börn og buru sjálfum sér og samfélaginu til heilla og ávinnings. En nei svo er aldeilis ekki. Í staðinn - og alveg í takt við aukna stærð verkefnisins - þá gera þegnarnir lítið annað en að vinna hörðum höndum að því að útrýma því samfélagi sem Evrópusambandið er að búa til fyrir þá. Þeir fjölga sér nefnilega ekki. Þeir megna ekki einu sinni að standa stað, samfélagslega séð. Nei. En hvað gera þeir þá? Jú þeir fara út í það að útrýma því samfélagi sem evrópusambandið bjó til fyrir þá! En hvurnig má þetta vera? Er þetta svar þegnana við verkefnastjórn Evrópusambandsins? Að útrýma þjóðfélögunum með því að neita að eignast þau afkvæmi sem ættu að bera uppi framtíð þessa sambands? Á að henda þessari grús í grjótmulningsvél sambandsins? Já kanski er þetta svar þegnana. Það vantar nefnilega um 200 milljón nýja einstaklinga í Evrópusambandinu til þess að viðhalda núverandi vinnuafli og velmegun. Vantar þá fyrir árið 2035 og þeir þurfa að koma utanfrá.
En þetta gildir bara alls ekki um okkar kæra Ísland. Þetta er ekki staðan á Íslandi meðal annars vegna þess að sjálfstæði og fullveldi er einnig hugarástand sem leiðir af sér sjálfsbjargarhvöt og sjálfsbjargarviðleitni sem mun tryggja áframhald þjóðfélags okkar.
Evrópusambandið er ekki neitt annað en verkefni og því stýra hinir svokölluðu verkefnastjórar verkefnanna.
Mikið er í steik í Evrópusambandinu núna og fer versnandi með hverjum deginum sem líður. Ef einhverntíma hefur verið dregin röng ályktun um jafn örlagaríkt mál og um stöðu Íslands á meðal þjóðanna, þá er það þessi vitsmunalega ESB villa sem mun alltaf standa efst á blaði allrar sögu Íslands um mistök þjóðarinnar, ef af verður.
Ömurleg tíðindi berast frá Íslandi

Þær fréttir hafa borist í dag að forsætisráðherra Íslands, Geir H. Haarde, sé veikur. Þetta þykir mér ákaflega miður að heyra. Ég sendi hér með Geir og fjölskyldu hans mínar bestu og hlýjustu kveðjur með óskum um að hann nái fullum bata. Það er búið að vera mikið og þungt álag á forsætisráðherranum undanfarna marga mánuði. Oft var sárt að horfa uppá það ömurlega hlutverk sem að honum var rétt við það að þrífa upp stubbana eftir svall fjármálageirans. Þetta var sérstaklega erfitt fyrir hinn fyrrverandi fjármálaráðherra Geir H. Haarde, sem hafði staðið fyrir því að Ísland var orðið skuldlaust sem sjálfstætt ríki
Fyrri færsla
Evrópumál | Breytt 24.1.2009 kl. 16:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Nýjustu færslur
- Eitthvað sem ekki passar hér [u]
- Kristrún stígur ekki í vitið, svo mikið er nú víst
- Þorgerður mín
- Kína komið til "ósubbulegs" sálfræðings
- ESB og Kína þekkja ekki bandaríska miðvestrið
- Bóndinn og prófessorinn í Selma um tolla Trumps. Grænland
- Evrópa er á leiðinni á nauðungaruppboð: Kaninn unir ekki að G...
- Svo lengi sem Grænland er viðriðið Danmörku mun heimurinn ekk...
- Landsölupakkhús Þorgerðar fúlt út í JD Vance
- Kannski hægt að byrja á farsímavef Veðurstofunnar - strax í d...
- Hamast við moksturinn í Reykjavík
- Grunnvextir hækka á evrusvæðinu - varanlega
- Fallbyssur Trumps í tollamálum
- Bandaríkin eru tilbúin að fjárfesta milljörðum dala í Grænlan...
- Já, Pólverjar verða að vakta landamærin upp að Þýskalandi. Þa...
Bloggvinir
-
Heimssýn
-
Samtök Fullveldissinna
-
ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
-
Guðmundur Jónas Kristjánsson
-
Ragnhildur Kolka
-
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
-
Haraldur Hansson
-
Haraldur Baldursson
-
Páll Vilhjálmsson
-
Halldór Jónsson
-
Valan
-
Samstaða þjóðar
-
Frjálshyggjufélagið
-
Sigríður Laufey Einarsdóttir
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Jón Valur Jensson
-
Samtök um rannsóknir á ESB ...
-
Kolbrún Stefánsdóttir
-
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
-
Jón Baldur Lorange
-
Guðjón E. Hreinberg
-
Jón Ríkharðsson
-
Anna Björg Hjartardóttir
-
Loftur Altice Þorsteinsson
-
Valdimar Samúelsson
-
Fannar frá Rifi
-
Bjarni Jónsson
-
Sigurður Þorsteinsson
-
Gunnar Ásgeir Gunnarsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Örvar Már Marteinsson
-
Kristin stjórnmálasamtök
-
Gestur Guðjónsson
-
Ingvar Valgeirsson
-
Predikarinn - Cacoethes scribendi
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Guðmundur Helgi Þorsteinsson
-
Lísa Björk Ingólfsdóttir
-
Bjarni Kjartansson
-
Bjarni Harðarson
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
gudni.is
-
Gústaf Adolf Skúlason
-
Tryggvi Hjaltason
-
ESB
-
Marinó G. Njálsson
-
Baldvin Jónsson
-
Elle_
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Emil Örn Kristjánsson
-
Johnny Bravo
-
Jón Finnbogason
-
Rýnir
-
Þórarinn Baldursson
-
P.Valdimar Guðjónsson
-
Már Wolfgang Mixa
-
Ívar Pálsson
-
Júlíus Björnsson
-
Guðjón Baldursson
-
Baldur Fjölnisson
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Einar Ólafsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Vilhjálmur Árnason
-
gummih
-
Sveinn Tryggvason
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Jóhann Elíasson
-
Baldur Hermannsson
-
Kristinn D Gissurarson
-
Magnús Jónsson
-
Ketill Sigurjónsson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Axel Jóhann Axelsson
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Aðalsteinn Bjarnason
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Erla Margrét Gunnarsdóttir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Þorsteinn H. Gunnarsson
-
Haraldur Pálsson
-
Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
-
Bjarni Benedikt Gunnarsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Ægir Óskar Hallgrímsson
-
Helgi Kr. Sigmundsson
-
Óskar Sigurðsson
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Axel Þór Kolbeinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Hörður Valdimarsson
-
Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Margrét Elín Arnarsdóttir
-
Ásta Hafberg S.
-
Erla J. Steingrímsdóttir
-
Helena Leifsdóttir
-
Agný
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Árni Bragason
-
Jón Lárusson
-
Högni Snær Hauksson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Kristinn Snævar Jónsson
-
Sigurður Ingólfsson
-
Rakel Sigurgeirsdóttir
-
Sigurður Þórðarson
-
S. Einar Sigurðsson
-
Pétur Steinn Sigurðsson
-
Vaktin
-
Sigurjón Sveinsson
-
Dóra litla
-
Arnar Guðmundsson
-
Jörundur Þórðarson
-
Rafn Gíslason
-
Hjalti Sigurðarson
-
Kalikles
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Egill Helgi Lárusson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Halldóra Hjaltadóttir
-
Jón Pétur Líndal
-
Guðmundur Ásgeirsson
-
Reputo
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Ólafur Als
-
Friðrik Már
-
Gísli Sigurðsson
-
Sigurður Einarsson
-
Rauða Ljónið
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Gísli Kristbjörn Björnsson
-
Kári Harðarson
-
Sigurður Antonsson
-
Valdimar H Jóhannesson
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Dagný
-
Guðmundur Pálsson
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Birgir Viðar Halldórsson
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
-
Tíkin
-
Jón Þórhallsson
-
Íslenska þjóðfylkingin
-
Erla Magna Alexandersdóttir
-
Óskar Kristinsson
-
Dominus Sanctus.
-
Ingólfur Sigurðsson
-
Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.7.): 19
- Sl. sólarhring: 22
- Sl. viku: 121
- Frá upphafi: 1404920
Annað
- Innlit í dag: 14
- Innlit sl. viku: 87
- Gestir í dag: 11
- IP-tölur í dag: 9
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júní 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008