Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Járnbrautarsamgöngur í evrulandinu Portúgal að stöðvast vegna fjárskorts? Lokað fyrir aðgang fyrirtækja að fjármálamörkuðum. Leita nú til ríkisins.

Í evru skjaldborgarlendum Samfylkingarinnar í Portúgal, þar sem grjót vex hraðar en hagkerfið, eru samgöngufyrirtækin orðin fjárþrota. Járnbrautarfélögin fá engin lán því þau búa í landi sem tók upp evrur og snæddi svo Iceasave banka bunga tanka hræða pæða í eftirrétt.
 
Portuguese state-owned public transport companies including rail service operator CP-Comboios de Portugal and railway network manager Refer-Rede Ferroviaria Nacional have asked for state intervention as they face problems with financing 

Eins og portúgalski seðlabankinn upplýsti um daginn, þá er atvinnulíf Portúgals í fjársvelti því algerlega hefur verið lokað á allt aðgengi bankakerfis landsins að alþjóðlegum fjármálamörkuðum í meira en heilt ár. Svona er að vera í myntbandalagi Evrópusambandsins. Þar er löndum eins og Írlandi, Portúgal og Grikklandi ekki treyst fyrir peningum yfir eina blánótt. Fjárfestar vita að löndin eru ekki fullvalda, sjálfráða né sjálfstæð ríki lengur og því geta þau ekkert gert sér til sjálfshjálpar. Eins og rónar fyrir framan lokað ríki. 

En nú leita fyrirtækin því til portúgalska ríkisins og grátbiðja það um lán. En portúgalska ríkið er því miður hvorki fullvalda, sjálfráða né aflögufært. Það getur ekkert hjálpað hér. Getur ekki prentað peninga og fær sjálft engin erlend lán nema á óbærilegum okurvöxtum. En þau lán fara í að greiða vextina á eldri lánum. Ríkið er bara ekki aflögufært. Það er á bænum í Evrópusambandinu. Sveitaómagi er svona kallað. 

Portúgal og myntbandalag Evrópusambandsins, einmitt það já.

Nú förum við að nálgast þann punkt í tíma og rúmi þar sem Jóhanna Sigurðardóttir, Össur Skarphéðinsson og Steingrímur J. Sigfússon verða dregin í ríkisréttinn fyrir að tortíma fjármunum Íslendinga í einkaumsókn Samfylkingarinnar að Evrópusambandinu og fyrir viðvarandi lygar um ferlið allt sem fyrir langa löngu átti að hætta því það fer fram í fullkomnu heimildarleysi. Ákærð fyrir big scale nepotism sem er frændsemispot svo og póst & skjalafals.
 
Krækja Financial Times í dag: Things fall apart, Portugal edition 
 
Fyrri færsla
 

ESB = Sovétríki Evrópu, segir hún í Frakklandi. ESB er einveldi segir hún líka. Og dautt.

Borgin Przemysl

Borgin Przemysl á landakorti Austurrísk-ungverska heimsveldisins  

Marine Le Pen er formaður í franska stjórnmálaflokkinum "Front National". Hún segir að ekki sé lengur hægt að segja að flokkur hennar sé "protest-party" þ.e.a.s framboð þvermóðsku eða mótmæla. Nú sé flokkurinn orðinn alvöru flokkur. Það er rétt hjá henni því hún og flokkur hennar uppskar næstum því það sama og flokkur Nicoals Sarkozy - sem er forseti Frakklands eins og er - í fyrstu umferð forsetakosninganna í landinu sem Charles de Gaulle sagði að gæti ekki orðið stórveldi á meðan það þyrfti 430 tegundir osta sér til nauðþurfta. Front National fékk hvorki meira né minna en 18 prósent atkvæða. Herra G1 fékk 20 prósent. 

Marine Le Pen segir að Evrópusambandið sé orðið að Sovétríkjum Evrópu - og sé einveldi. Ég er næstum sammála henni. En þó finnst mér Evrópusambandið verða tönninni líkara Austurrísk-ungverska heimsveldinu, sem entist í 51 ár. Í fyrri heimsstyrjöldinni þegar Rússar réðust inn í borgina Przemysl sem þá tilheyrði þessu Austurrísk-ungverska veldi, þurfti að gefa varnarskipanirnar út á 15 tungumálum því þessi staður var svo kallað "fjölmenningar samfélag". Samfélag úr fjölum. Þær féllu allar í stafi og hver maður gekk auðvitað til síns heima, því kattasmölun er erfið í heimveldum á 15 tungum. Alveg eins og gerðist á evrusvæðinu haustið 2008, þegar innvortis fjármálaleg borgarastyrjöld geisaði á milli landanna. Hvet land reyndi að bjarga sér og einungis sér. 

Mér er líka sagt að flokkurinn "True-Finns" sé að verða næst stærsti stjórnmálaflokkur Finnlands. Þeim er afar illa við Evrópusambandið. Hvað er að gerast í ESB?

Það er eins og þetta nýja Peningaausturs-Brusselska heimsveldi, Evrópusambandið, fari illa með þær þjóðir sem lenda í klónum á því. En hér er viðtal við Marine Le Pen. Hún vill að Frakkland, Spánn, Grikkland og Portúgal hendi evrunni því myntin sú sé að eyðileggja löndin

 

Fyrri færsla

Rannsókn: Danmörk varla fullvalda ríki lengur. Lög og reglur í Danmörku koma að mestu leyti frá embættismönnum í Brussel, sem enginn Dani kaus


Rannsókn: Danmörk varla fullvalda ríki lengur. Lög og reglur í Danmörku koma að mestu leyti frá embættismönnum í Brussel, sem enginn Dani kaus

Þróun þess hlutfalls löggjafar í Danmörku sem á uppruna sinn að rekja til Evrópusambandsins í Brussel
Mynd: Cepos; Þróun þess hlutfalls löggjafar í Danmörku sem á uppruna sinn að rekja til Evrópusambandsins í Brussel frá árinu 1986
 
Rannsókn: aukin áhrif Evrópusambandsins á lýðstjórn í Danmörku
 
Danska hugveitan Cepos hefur farið í gegnum öll lög og allar reglugerðir sem tekið hafa gildi í Danmörku frá árinu 1986. Niðurstaðan er dapurleg. Meirihluti löggjafar Danmörku kemur frá Evrópusambandinu. 

"En stor del af EU lovgivningen vedtages af Kommissionen – EU’s ”udøvende magt” – hvilket forstærker de demokratiske betænkeligheder ved den massive EU-retlige indflydelse på dansk lovgivning"

Stór hluti laga í Evrópusambandinu er viðrekinn af embættismönnum - framkvæmdavaldi Evrópusambandsins - og sú staðreynd magnar upp þær lýðræðislegu áhyggjur sem hafa þarf vegna massífra áhrifa lagagerðar Evrópusambandsins á löggjöf Danmerkur.
 
Þróun fjölda tilskipana Evrópusambandsins sem gilda í Danmörku frá árinu 1958
Mynd: Cepos; Þróun fjölda tilskipana Evrópusambandsins sem gilda í Danmörku frá árinu 1958 

Í inngangi rannsóknar Ceops segir

Frá og með deginum sem Danmörk gekk í Evrópusambandið árið 1973, hefur magnið af þeim lögum sem eiga uppruna sinn að rekja til ESB í Brussel og þeim ESB-reglugerðum sem byggja á ESB-lagabálkum frá Brussel, stigið mikið. Þetta hefur haft í för með sér miklar takmarkanir á þeim möguleikum sem þjóðþing Dana, Folketinget, getur haft á lagasetninguna í landinu - og þar með þá möguleika sem danska þjóðin getur mögulega haft á tilveru sína í eigin landi. 

Árið 1986 áttu fimm prósent af öllum lögum í Danmörku uppruna sinn að rekja til ESB-laga frá Brussel. Árið 2010 (24 árum seinna) var þetta hlutfall komið upp í 25 prósent. Leggi maður hér við þær reglugerðir sem viðteknar hafa verið af ESB í Brussel og sem byggja á ESB-lagabálkum - og sem hafa bein áhrif í Danmörku - þá kemur í ljós að 50-60 prósent af þeim lögum og reglum sem nú gilda bæði beint og óbeint í Danmörku eiga uppruna sinn að rekja beint til Evrópusambandsins í Brussel. 

ESB-lögin og ESB-rétturinn láta sér ekki bara viðkoma tæknileg málefni og landbúnað, heldur einnig málefni sem hingað til hafa verið talin í höndum og undir verndarvæng fullveldis landsins, eins og til dæmis skattamál, innflytjendamál og refsilöggjöf.

Þessi þróun krefst breiðrar opinberrar umræðu um hvernig hægt sé að tryggja það að almenningur og þjóðþing Dana fái slegið því fast að áhrif þess séu ennþá einhvers gildandi gegn Evrópusambandinu, segir yfirlögmaður Cepos, Jacob Mchangama. 
 
Þróun fjölda reglugerða Evrópusambandsins sem gilda í Danmörku frá árinu 1958
Mynd: Cepos; Þróun fjölda reglugerða Evrópusambandsins sem gilda í Danmörku frá árinu 1958 

Cepos segir að núverandi þróun í Evrópusambandinu sýni að það sé bráðnauðsynlegt að lýðstjórn landsins ákveði hvort gefa eigi meira eftir af fullveldi landsins en þegar er orðið.
 
Meira að segja hinni borgaralegu hugveitu Cepos er farið að blöskra. Þá er ástandið orðið slæmt. 

Det må dog også erkendes, at Danmarks indflydelse, som et lille land blandt 27, er stærkt begrænset og at Danmark derfor risikerer at blive nedstemt af kvalificerede flertalsbeslutninger.

Cepos telur að svo langt sé komið að hægt sé að setja spurningamerki við hvort lýðræði sé ennþá gildandi stjórnarform í Danmörku. Hugveitan segir að Danmörk sé lítið land og hafi litla möguleika á að hafa áhrif á eigin örlög í Evrópusambandinu. Cepos vitnar í rannsókn Open Europe sem segir að lagabálkur Evrópusambandsins rúmist ekki lengur á færri en rúmlega 666 þúsund blaðsíðum.

Og svo halda sumir ennþá að Evrópusambandið sé eitthvað annað en nýtt stórríki í smíðum. Halló!

Æðsta markmið ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar er að leggja niður lýðræði á Íslandi með því að ganga í Evrópusambandið. Og þar með verður endanlega lagt niður lýðveldi Íslendinga, sem stofnað var til á Þingvöllum árið 1944. 

Laugardagurinn 17. júní árið 1944 er dagurinn sem ríkisstjórn Íslands þolir ekki.
 
Í ríkisstjórn Íslands sitja á skrifandi stundu stjórnmálaflokkarnir Samfylkingin og hreyfing Vinstri grænna. Saman hafa þau fyrir hönd allra Íslendinga sótt um inngöngu Íslands í þetta nýja stórríki embættismannaveldis Brussels. Þessa umsókn þarf að draga til baka umsvifalaust. Hún á engan rétt á sér og er afar illa og óheiðarlega tilkomin.  
 
Krækjur
Fyrri færsla

Danske dager, geta innihaldið geðveiki

Mér til hryllings sá ég heilsíðu auglýsingu frá Haglkaupum . . nei nei. . . frá Hagkaupum . . já þarna kom það. Auglýsingin birtist . . merkilegt nokk . . í Morgunblaðinu. 

Hryllingur minn varð ekki til við að sjá auglýsingu frá Hagkaupum í blaðinu mínu, þvert á móti. Nei hann varð til við að lesa yfirskrift eða slagorð auglýsingarinnar. Þar stóð að það væru danske sager . . nei nei nei . .  hvað er þetta . . aftur . . að það væru "danske dager" í verslunum Hagkaups. Hvað er að gerast hér?  

Ég spyr; hvað er "danske dager"? Hvað er það? Orðið dager er ekki til í danskri tungu. Ef þetta hefði átt að vera rétt - korrket og með ordnung ja! - þá hefði átt að standa "danske dage". 

Den dag, mange dage, nogle dage, lange dage, sorte dage, modbydelige dage, hvelveds dage, vilde dage, danske dage, islandske dage, svenske dage osv. 

Þeir sem gerðu auglýsinguna vissu ekki hvað þeir voru að gera en tóku sér líklega vel borgað fyrir verkið. 

En þetta er svo sem hægt að fyrirgefa og er ekkert miðað við sumar málfarsvillur stærstu fyrirtækja Íslands í dönskum blöðum og tímaritum.
 
Hollenskur sælgætisframleiðandi hóf markaðsfærslu á nammi sínu í Danmörku. Á umbúðunum varð innihaldslýsingin auðvitað að vera á dönsku. Þar varð að koma fram hvaða efnum maðurinn hafði blandað út í nammið. Og eins gott var að lesa vörulýsingu mannsins vandlega áður en dottið yrði í það. Nammið innihélt nefnilega geðveiki. Já, ekta geðveiki - "kan indeholde sindsyge" - sem þýðir - "getur innihaldið geðveiki".
 
Eftir smá stund skildi maður hvað gerst hafði. Framleiðandinn hafði tekið enska textann og þýtt hann yfir á dönsku með annað hvort Google Translate eða orðabók. Textinn "could/can contain nuts" varð allt í einu að "kan indeholde sindsyge". Allir sem þekkja ensku vita að fólk sem er nuts er annaðhvort geðveikt eða hnetur. Rétt hefði því verið að skrifa "kan indeholde nødder", "getur innihaldið hnetur",  sem er alls ekki geðveikt. Men så be'r de fandme også selv om det!
 
Og kæru Hagkaup. Ekki reyna að telja Íslendingum trú um að Jakabov sé næstum því matur. Það er hann svo sannarlega ekki. Að minnsta kosti ekki í augum Dana.

Ofurmáni - ofurvél - ofurmenn

Kraftaverk árið 1969, þykir mér   

Í kvöld er Máninn okkar um það bil 55.000 kílómetrum nær Jörðu en hann er þegar hann er sem lengst frá okkur. Ég var úti að horfa á tunglið rétt í þessu og fannst það aðeins stærra en venjulega. Að minnsta kosti all nokkuð bjartara. 

Fyrir tæplega 42 árum sendu Bandaríkjamenn þessi þrjú þúsund fjörutíu og fimm tonn, sem sjást hér á myndskeiðinu fyrir ofan, þráðbeint upp í loftið. Förinni var heitið alla leið til Mánans. Líklega er þetta öflugasta vél sem hefur verið byggð hér á Jörðinni. Ég efast stórlega um að til séu menn í umferð í dag sem kunna að byggja svona gígantískar græjur. Og við skulum ekki minnast á fjárveitinguna til svona verkfæra. Allt þetta fyrir 42 árum síðan. Merkilegt. Hljóðið í endanum á myndskeiðinu er engu líkt. 

Hér er mynd af þeim sem fóru með tækinu til Mánans og komu svo svífandi all léttari heim aftur

Áhöfn Apollo 11

Apollo 11 Official Crew Portrait

 


Það sem Írar vilja skilja að, vill ríkisstjórn Íslands sameina á ný.

Rætt um væntanlegt ríkisgjaldþrot Írlands og skuldir banka & ríkis hins vegar
 
Horfið vinsamlegast á þátt úr írsku sjónvarpi; sönn hrollvekja um banka og ríkisskuldir. Portes, Martin Wolf, Simon Johnson, David McWilliams og fleiri koma við sögu. Hefst ca. 10 mínútur inni í fréttaþættinum á RTÉ ONE.
 
Skuldaklafi Írlands árið 2014
Mynd RTÉ ONE: Áætluð skuldastaða Írlands árið 2014 

Það sem hugsanlega getur ennþá bjargað írska ríkinu frá ríkisgjaldþroti er að skilja á milli skulda ríkis og bankakerfis Írlands. Þetta er það sem ríkisstjórn Íslands vill sameina á ný með Icesave. Ríkisstjórn okkar er ekki bara geðvillt, hún er vanvita. Hún ætlar að leysa næstum nú þegar óviðráðanlega skuldastöðu Íslands með enn meiri skuldum. Enn meiri skuldum. Gera Ísland að alvöru fábjánalandi. 

En Írinn Davíð McWillimans segir; "við ætlum ekki að borga skuldir óreiðumanna". 

Evru-bankakerfi Írlands er ekki einu sinni treyst fyrir peningum yfir nóttina lengur. Allt bankakerfi Írlands er lokað úti frá umheiminum. Þetta er enn ein skjaldborg Samfylkingarinnar, evrusvæðið. Overnight lending CLOSED !  

Skuldaklafar nokkura landa
Það er alveg sama hvað Írum mætti finnast um allt sitt - það verður Evrópusambandið sem ræður því hvað verður um Írland. Svona er að missa fullveldið og svona er að vera í myntbandalagi Evrópusambandsins. Þá er maður sem smáþjóð neydd til aðgerða eins og þeirra sem komu Írlandi í öll vandræðin í byrjun; a) að búa við neikvæða raunstýrivexti seðlabanka Evrópusambandsins í 8 ár sem sprengdu efnahag landsins í tætlur og b) með ríkisábyrgðum að reyna að forða sér frá því að allar bankainnistæður atvinnulífsins og almennings hyrfu ekki úr landi þegar fárviðri alþjóðlegra fjármála geisaði á evrusvæðinu haustið 2008 og sem fékk lönd myntbandalagsins til að heyja nokkurs konar innri fjármálalega borgarastyrjöld, svo allt fjármagn þeirra sem minna mega sín í EMU hyrfi nú ekki úr landi og hrynjandi verð hlutabréfa í fjármálastofnunum landa þeirra myndi ekki gera banka þeirra eignalausa og þar með knýja fram instant þjóðnýtingu.

Bara ef DDRÚV gæti gert svona þátt. En það getur sú stofnun ekki gert því hún er ríkisstjórnarfjölmiðill að hætti DDR sáluga. Og svo er bara Baugs-Samfylkingar-sjónvarpið eftir.
 
Hér á Íslandi féll enginn múr. Hér féll bara allt frá austri til vesturs og ríkisstjórn aumingjaháttar úr 15 ára útlegð flæddi yfir okkur öll í formi nýrrar ríkisútrásar þar sem skipa á út skattatekjum þjóðríkis okkar næstu áratugina. Þetta er eins og að reyna að halda hita á ríkissjóð með því að kveikja í skattatekjum ríkisins. Að dáleitt forystulík Sjálfstæðisflokksins skuli taka undir þessi getum-ekki-stjórnmál er svo heimskulegt að verra getur það ekki orðið. Asnar!
 
Krækjan; Horfa á þáttinn 
 
Tengt
Fyrri færsla

Ný vekjaraklukka ríkisstjórnarinnar

Þetta vekur hana að morgni. Spilað hraðar en hún getur hlustað. Nægir til að rugla ríkisstjórnina allan daginn. Dag eftir dag.

 

Og þetta heldur henni áfram vakandi um miðnættið. Þessi klukka gengur endalaust og öruggt. Mick Cadillac Fleetwood eftir 800 þúsund kílómetrana er eins og ónotaður.

 

Svo fer hún að ganga í svefni - en þá byrjum við bara aftur á lagi númer eitt. Klukkan hringir aftur og aftur

 

_____________________________ 

Fyrir okkur sem enn dreymir, skulum við hlusta á leikmann spila stykkið "The Dreamer" eftir Keith Emerson sem spilaði of hratt hér í lagi númer eitt. Okkur dreymir um betri, heiðarlegri og sannari ríkisstjórn. 

 

Fyrri færsla

Fjármála paradís evrusvæðis 


Fjármála paradís evrusvæðis

ESB vísar okkur veginn 
Mynd: Fundur í miðstjórn ráðstjórnar ESB. Seðlabankastjóra ECB vantar á myndina. Hann var of upptekinn við þið vitið hvað. 
 
 
Þjóðfáni Grikklands
Hjálenda ESB
 
Grikkland fær engin lán hjá alþjóðlegum fjárfestum. Það er nefnilega í myntbandalagi Evrópusambandsins. Sama gildir um bankakerfi Grikklands. Um helgina hófst fyrsti hluti ríkisgjaldþrots Grikklands.

Liggjandi forsætisráðherfi landsins hefur með dráttarvél Angelu Merkel verið sendur ESB-listi (útfylltur) yfir það sem hann á að gera, ekki gera, selja og ekki selja í landi sínu sem varð gjaldþrota eftir 29 ár í faðmi ESB, fékk 60 miljarða í bæjarhjálp frá ESB og asnaðist einni evrunni of langt inn í Evrópusamband Brussels. Grikkland var einu sinni land. Atvinnuleysi 14 prósent. 
 
Þjóðfáni Írlands
Hjálenda ESB
 
Ríkissjóður Írlands fær engin lán hjá alþjóðlegum fjárfestum. Það er nefnilega í myntbandalagi Evrópusambandsins. Sama gildir um bankakerfi Írlands. Um helgina hófst fyrsti hluti ríkisuppboðs Írlands. Ríkið fær engin lán, getur ekki prentað peninga, á enga peninga og getur ekki rekið haglabyssuna upp í kokið á tröllvöxnu bankakerfi landsins og hleypt af, því þá drepst allt lifandi dautt bankakerfi ESB í leiðinni. Getur ekki ráðið sköttum. Getur ekkert og er ekkert. Írland er nefnilega í ESB. Atvinnuleysi 14 prósent.
 
Þjóðfáni Portúgals
Hjálenda ESB
 
Portúgal fær engin lán hjá alþjóðlegum fjárfestum nema á okurvöxtum. Það er í myntbandalagi Evrópusambandsins. Bankakerfi Portúgals hefur verið afskorið frá umheiminum í heilt ár. Engin lán, engin fyrirgreiðsla. Landið bíður nú með húfuna í hendinni eftir komu dráttarvélar kanslara Þýskalands sem í 12 ár hefur múgrakað til sín peningum jaðarlanda evrusvæðis með því að misnota aðstöðu sína í læstu gengisfyrirkomulagi við þau fábjánaríki Evrópu sem hentu mynt sinni fyrir róða - og létu evruna rífa sig á hol aftanfrá. Atvinnuleysi 12 prósent.
 
 
Þjóðfáni Lettlands
ESB-Lettland er í meðferð hjá Alþjóða Gjaldeyrissjóðnum
Er skyldugt til að taka upp evru og afsala sér öllu fullveldi í peningamálum 
 
 
Þjóðfáni_Rúmeníu
 
ESB-Rúmenía er í meðferð hjá Alþjóða Gjaldeyrissjóðnum
Er skyldugt til að taka upp evru og afsala sér öllu fullveldi í peningamálum 
 
 
Þjóðfáni Ungverjalands
ESB-Ungverjaland er í meðferð hjá Alþjóða Gjaldeyrissjóðnum
Er skyldugt til að taka upp evru og afsala sér öllu fullveldi í peningamálum
 
 
Þjóðfáni Belgíu?
ESB-Belgía er að leysast upp. Er í myntbandalagi Evrópusambandsins

 
Suckers! 
 
 
Fyrri færsla
 
   

Írskt efnahagslegt evru-sjálfsmorð í vændum? Örvænting grípur um sig á Írlandi

Aðild Írlands að myntbandalagi Evrópusambandsins hefur komið landinu fram á hengibrún ríkis- og fullveldisgjaldþrots. 20 ára efnahagskreppa bíður Írlands ef þeir afhenda ekki restina af fullveldi landsins til Berlín og Brussel. Strax.

Fyrir helgina reyndi ráðstjórn ESB-sovétríkjanna að þvinga Írland til að hækka skatta á írsk fyrirtæki svo loksins megi takast að miðstýra viðskiptum og atvinnulífi frá Írlandi og inn að kjarna ESB-sovétríkjanna sem vantar meiri atvinnu og meiri völd. Írar segjast vera útkjálkaland á hjara ESB-sovétríkjanna og að fullveldi í skattamálum sé eina fullveldið sem landið á eftir. Allt hitt hefur verið gefið eftir til miðstjórnar sovéts ESB. Gegn restinni af fullveldi Írlands lofa ESB-sovétríkin að lækka vextina á lánum þeim sem þau þvinguðu upp á Írland til að bjarga m.a. gjaldþrota bankakerfum Þýskalands. Þetta eru sólrúnir brenndar á Írland, eins og reynt var við Ísland. 
 
International aviation tycoon Ulick McEvaddy said it was crucial for Ireland to retain one of the few competitive advantages it had.

"We are a small island on the edge of Europe, we need some advantage in order to attract companies here," he said. 

Fari þessi afgangur af fullveldi landsins mun þetta útkjálkaland þurfa að horfa á eftir atvinnu og viðskiptum hverfa úr landi og hagnaði verður þá öllum útskipað til kjarna ESB-sovétríkjanna, eins og gerðist hjá Nýfundnalandi eftir að það afsalaði sér fullveldi landsins til sambandsríkisstjórnar Kanada árið 1949, aðeins fimm árum eftir að Ísland fagnaði stofnun lýðveldis okkar hér heima. 
 
"The corporation tax rate was one of the main reasons I opposed the Lisbon Treaty the first time around. We then got the guarantee on it. [..] It is also one of the few things the Government "has full control over", having already ceded functions such as setting interest rates to the EU.

Írar velta því nú fyrir sér hvernig þeir geti sloppið út úr ESB-sovétríkjunum og undan sovét-evrunni. Þeir segja, sem rétt er, að helsti bandamaður þeirra í atvinnu og viðskiptum sé Stóra Bretland og vonast til að Bretland hjálpi þeim til að losna undan ofurvaldi hinnar sovésku myntar Evrópu, evrunni, og hleypi þeim inn í breska Sterlings-pundið. Fyrir þetta verða Írar örugglega ásakaðir um að vera andevrópskir og að stunda andevrópskan áróður. 

Við höfum séð þetta allt áður. Sovét er flutt til Berlín og Brussel og heitir nú bara Evrópusambandið.
 
 
Fyrri færsla
 
 

Gagn og Gaman myntbandalags Evrópusambandsins. Fræðslupistill.

Myntin Evra var byggð á setti af reglum, þ.e. regluverki, því hún er ekki eins og alvöru mynt sem byggð er á þegnum sem saman mynda einn bakhjarl myntarinnar, sem er ríkisjóður eins þjóðríkis. Samanber þeirri staðreynd að ef ég fjarlægði sambandsríkisstjórn Bandaríkjanna og fjárlög hennar úr bandaríska þjóðríkinu þá myndi Bandaríkjadalur samstundis breytast í evrusvæði (myntsvað), þar sem 50 fylki og jafn margar fylkisríkisstjórnir þeirra þyrftu að koma sér saman í hvert skipti sem sameiginlegur seðlabanki þeirra prentaði einn dal í viðbót við þá sem nú þegar eru í umferð. Hver fær nýja peninga seðlabankans og aðgang að peningahirslum hans?  
 
Regluverk evrusvæðisins var þannig að löndin sem nota myntina evru máttu ekki koma ríkisfjármálum sínum í uppnám með því að reka ríkissjóði sína með meira en max 3 prósent tapi og svo urðu skuldir ríkissjóðs landanna að vera það lágar að ríkisskuldabréfin sem bankakerfi ríkjanna nota sem veð til að sækja sér peninga í umferð hjá prentsmiðju seðlabankans, myndu ekki enda sem veðsafnarusl í kistum seðlabanka Evrópusambandsins og þannig grafa undan mynt allra 16 landa myntsvæðisins samtímis. 

En allt var þetta brotið og áhættutöku einkageirans var þar að auki smyglað yfir á ríkisjóði landanna þegar bankakerfum þeirra var bjargað frá hruni. Þetta voru þvílík regin mistök að núna hangir líf myntarinnar á bláþræði. Seðlabanki Evrópusambandsins er nú þegar að verða gjaldþrota, bæði álitslega, peningalega og pólitískt séð, því hann er kominn út í horn og allar aðgerðir hans til úrbóta munu bara kála enn frekar ríkisfjármálum þeirra landa sem standa að myntinni. Hættan við sameiginlegu mynt ESB var ávalt sú nágranni þinn gat eyðilagt mynt þína, eins og er að gerast núna, og án þess að þú hefðir gert neitt rangt sjálfur. Þú og þjóð þín áttu heima á peningalegri eldavélarhellu sem 16 lönd stýrðu. Nú eru nokkur landanna orðin ristuð rauðspretta. Brunarústir myntbandalagsins.     

Fyrst þverbrutu Þjóðverjar og Frakkar allar reglur myntbandalagsins á árunum 2002-2005. Svo brutu Grikkir þær. Svo brutu 11 lönd reglurnar. Það gerðist vegna þess að einn peningur, einir og sömu vextir og ein peningapólitík getur aldrei gengið í 16 ólíkum löndum án þess að um "transfer union" sé að ræða, þ.e.a.s án þess að eitt þjóðríki með einum ríkissjóði standi á bak við myntina og færi peninga á milli landanna eins og þeir eru fluttir á milli landshluta Íslands. Sjúkratryggingar, atvinnuleysisbætur og svo vinnuafl til Kárahnjúka og Austfjarða. Gamli heimabær minn var byggður svona, Siglufjörður, og hann lifir enn vegna þess að hann er hluti af þjóðríki Íslendinga. Hann gaf stórt og örlátlega til þjóðríkisins á meðan hann gat og nú fær hann kannski smá stuðning til baka. Hann fór ekki á hausinn þó svo að síldin hyrfi því hann er í þjóðríki Íslendinga.       
 
Í þessu læsta myntsamstarfi, sem er eins og læst gengisfyrirkomulag, hefur Þýskaland stundað massífa innvortis gengisfellingu í 12 ár og rakað til sín viðskiptahagnaði sem nemur 1000 miljörðum dala. Til þess að hægt sé að laga þennan ójöfnuð og drepa öxulvald þessa miðflóttaafls í miðju myntbandalagsins, þarf að flá þessa kínverja Evrópu inn að skinninu, þannig að þeir skilji hvað fór fram undir nefinu á milljón embættismönnum tröllabandalags Evrópusambandsins og undir stjórn seðlabankans ECB sem hefur massíft skrúfað peningapólitík sína saman eftir þörfum Þýskalands, only. Nú er payday. Þýskaland; borgið 800 miljarða evrur strax. Greiðist við kassa eitt, takk.
 
Þetta var Gagn & Gaman um myntbandalag Evrópusambandsins (EMU). Ef þú ert álíka fróður um EMU eins og 99,99 prósent af þeim sem tóku upp evru; þ.e.a.s 100 prósent clueless um allt nema um útlit peninganna, þá skil ég þig afar vel, en það hjápar bara ekkert í þessu máli. Skilningur þeirra landa og þess fólks sem býr í þeim löndum Evrópusambandsins sem tóku upp evru var ekki meiri en 0,01 prósent. Þau gerðu bara eins og stóð í auglýsingabæklingunum frá Brussel. Því eru þau að verða ríkisgjaldþrota í dag og verið er að ræna þjóðríkinu frá þeim, innan frá.  

Þetta áttu íslenskir stjórnmálamenn og þeir sem berjast fyrir inngöngu Íslands í Evrópusambandið að vita. Fyrir rúmlega tveimur árum sagði ég ykkur frá því að hinum efnahagslega samruna landa Evrópusambandsins væri lokið. Sá lagarammi væri kominn og það sem fram færi í Evrópusambandinu núna væri hinn pólitíski samruni landa sambandsins - að þau væru að renna saman í eitt ríki; Bandaríki Evrópu. Þetta verður að gerast ef myntin á að lifa af. En þá hlógu menn að mér. 

Grundvallar gallinn við þetta allt er sá að ekkert land sem gekk í ESB hafði hugsað sér að leggja niður þjóðríki sitt og verða bara fylki í embættismanna heimsveldi Bandaríkja Evrópu í Brussel.

Evrópusambandið hefur drepið friðinn í Evrópu. Read my lips: friðurinn sem lýðræðið í þjóðríkjunum skaffaði Evrópu frá lokum seinni heimsstyrjaldar er úti, því Evrópusambandið er að drepa þetta lýðræði í öllum löndum sambandsins samtímis. Og velmegun og hagsæld Evrópu er á sömu leið; á leiðinni til fjandans.
 
Núna þurfa íslenskir stjórnmálamenn að láta renna af sér og verða allsgáðir. Börn Íslands þola ekki drykkjuskap ykkar lengur. Framtíð Íslands næstu þúsund árin er hér í húfi. Draga þarf illa tilkomna umsókn Samfylkingarinnar fyrir hönd Íslands inn í Evrópusambandið til baka. Strax!
 
 
Fyrri færsla
 
 
 

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband