Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Föstudagur, 20. júní 2025
Eitthvað sem ekki passar hér [u]
Fyrir þremur dögum var okkur sagt að Íran gæti verið klárt með kjarnorkusprengju á næstu tveimur vikum
En í gær sagði talsmaður Hvítahússins að Trump ætlaði að ákveða á næstu tveimur vikum hvað hann hyggst gera í málinu, ef eitthvað
Ergo: samkvæmt þessu ætlar Trump að bíða þar til bomban er komin
Halló! Er allt í lagi?
Þetta er svona svipað og röksemdafærslan um að Rússland geti ekkert, sé ekkert og verði áfram ekkert. En svo er Pentagón-skrúfjárninu í heilabúi vestrænna fjölmiðla snúið 180 gráður og Rússland er allt í einu alveg við það að hertaka alla Evrópu. Hvort skyldi það nú vera?
Hver nennir að hlusta masið í þessum fjölmiðla-ruslakistum vesturlanda lengur? Ekki ég
Staðreyndin er sú, að allt frá árinu 1985 hefur okkur með reglulegu millibili verið sagt að Íran sé alveg við það að koma sér upp kjarnorkuvopnum
Af öllu því sem er að gerast eða ekki gerast núna er greinilegt að það eina sem dugar í málinu er það að Íran komi sér einmitt upp kjarnorkuvopnum til að fá að lifa í þeim friði eða ófriði sem einkennir heimshlutann. Það er alveg greinilegt. Annar kostur er varla til
Íran er ein og hálf milljón ferkílómetrar að stærð og þjóðin er tæpar hundrað milljónir manna. Ísrael getur engan veginn haft þá strategísku dýpt sem til þarf til að gala svona hátt í þessu máli. Ekki einu sinni Bandaríkin geta bjargað Ísrael frá óvitahætti þeim sem nú gengur því miður þar á. Ég vona Ísraels vegna að menn hugsi sig betur um
Það eru bara þrjú lönd í miðausturlöndum: Íran, Ísrael og Tyrkland. Restin er óstjórnhæfur massi gervilanda
Bandaríkin geta ekki reddað neinu þarna lengur. Sá tími er liðinn. Þau verða fyrst og fremst að passa sig og sitt nágrenni - heimavöllinn! Eins póls heimurinn er liðin tíð.
Uppfært kl. 21:40: Nokkur málsatriði:
Tvö kínversk njósna- og ratsjárstöðvarskip eru komin og sest að á Persaflóa í alþjóðlegri siglingarleið. Þeim má líkja við fljúgandi AWACS-augu NATÓ yfir vesturhlutum Svartahafs, vegna hinnar sérstöku hernaðaraðgerðar Rússlands í Úkraínu
Ný járnbraut beint frá Kína til Írans gæti verið komin í gagnið. Um hana geta streymt hergögn frá Kína til Írans - eins frá Rússlandi - endalaust
Aðeins ein orrustuþota Ísraels hefur sannarlega verið greind innan lofthelgi Írans, og fór hún ekki nema rétt um 100 km inn fyrir vesturhluta hennar. Restin er dróna- og skotaflaugaárásir sem virka jafn áhrifaríkt og tannstönglar virka í þessu samhengi: fjölmiðlaaðgerð
Allt að hundrað neðanjarðarstöðvar Írans til úraníumvinnslu geta verið starfandi - eða ekki starfandi
Skotfæri Ísraels eru að verða uppurinn og ekkert gengur með að ná markmiðum þess
Skotfæri Bandaríkjanna eru einnig af skornum skammti
Súez-skurðurinn gæti lokast og þá yrði flotaveldisafl Bandaríkjanna stórskert
Líklegt er að loftvarnarkerfi Írans séu ósködduð og bíði átekta
Ólíklegt er að þjóðarleiðtogi Írans og hans menn mæti á fundi með fólki sem mafíósalega hefur lýst því yfir að hann og hans menn séu réttdræpir. Hvað varð upp diplómatahefð vesturlanda?
Íran gæti lokað Persaflóa og hækkað alþjóðlegt olíuverð og þar með kollvarpað innanríkispólitík Bandaríkjaforseta
Persónulega held ég að um Saddam-2 þvælu sé hér að ræða. Hún endaði ekki vel fyrir Bandaríkin
Fyrri færsla
Kristrún stígur ekki í vitið, svo mikið er nú víst
![]() |
Gætu framleitt kjarnorkuvopn innan nokkurra vikna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Miðvikudagur, 18. júní 2025
Kristrún stígur ekki í vitið, svo mikið er nú víst
Fullveldi og sjálfstæði íslensku þjóðarinnar eru bæði hápólitískir sigrar. Fullveldi er hápólitískt vald. Sjálfstæði er hápólitískt vald líka
Bæði þessi valdapólitísku fyrirbæri eru pólitískir sigrar íslenskrar þjóðar og sem fært hafa íslenskri þjóð allt það sem hún á og hefur á Íslandi í dag
Samt er núverandi forsætisráðherra Íslands, Kristrún Frostadóttir, svo mikill heigull, eða þá einfeldningur, að hún treysti sér ekki sem æðsta pólitíska höfuð landsins til að verja hvorki fullveldi né sjálfstæði Íslands á hátíðisdegi þess lýðveldis sem þessir tveir hápólitísku sigrar þjóðarinnar færðu okkur
Hún þorir ekki að verja hvorki Ísland né það embætti sem hún situr tímabundið í. Nema þá að hún sé of heimsk til að skilja hvað það var sem skilaði henni í þann stól sem hún nú situr í
Þessum sigrum þorði hún ekki að ljá rödd sína á þjóðhátíðardeginum. Hún þorði því ekki, - og lét því pólitískt valdalausan eftir-að-allt-var-um-garð-gengið-forseta landsins gera það fyrir sig. Forsetinn er afleiða en ekki orsök. Hann er puntið. Hann átti engan þátt í pólitískum sigrum þjóðarinnar
Hvað segir þetta okkur um ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur? Jú þið þekkið svarið. Hún er uppgjöfin. Hún er vesalingurinn. Hún er eitt af því slæma sem íslensk þjóð vildi losa sig við þann 17. júní 1944
Fyrri færsla
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 22. apríl 2025
Þorgerður mín
Þegar Varsjárbandalagið var leyst upp og Rússland fór heim árið 1991, þá var Rússum af hálfu NATO-ríkjanna lofað að Úkraína myndi ALDREI ganga í NATÓ. Rússlandi var líka lofað að lönd Austur-Evrópu myndu aldrei ganga í NATÓ. Því var nefnilega lofað að NATÓ myndi ekki fara "eina tommu" austar en það náði árið 1991
Þorgerður mín:
Ekkert ríki getur aukið þjóðaröryggi sitt á kostnað þjóðaröryggis annars ríkis. Og er þá alveg sérstaklega átt við nágrannaríki. Það má þó hins vegar reyna slíkt, en þó varla nema með því að stofna til styrjaldar. Og það er einmitt það sem Úkraína með aðstoð ESB og NATÓ hefur gert
Krónískir Rússahatarar ESB og NATÓ-ríkjanna ætluðu sér að nota Úkraínu til að berja á Rússlandi og búta það niður - eins og Kæja Kallas ESB-blaðra orðaði það í fyrra. Ári síðar er hún hins vegar sigin saman í ekki neitt. Loftið alveg farið úr henni. Hvernig skyldi standa á því?
Þú fékkst með öðrum orðum stríðið sem þú baðst um Þorgerður mín. Taktu því. Svona er að standa ekki við gefin loforð
Kanada getur t.d. ekki gengið í Kínverskt "varnarbandalag" og veitt kínverska kommúnistaflokknum hernaðaraðstöðu í Kanada. Mexíkó ei heldur. Gerðu þau ríki slík, myndu Bandaríkin ráðast inn í þau og hernema þau eins lengi og þeim sýndist. Slíkt kallast raunstjórnmál. Já, stríð eru stjórnmál Þorgerður
Hvað með að prófa raunveruleikann svona inn á milli, Þorgerður, áður en þú springur alveg í kratatætlur
Fyrri færsla
Kína komið til "ósubbulegs" sálfræðings
![]() |
Eigi alls ekki að slá NATO-aðild Úkraínu af borðinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 10. apríl 2025
Kína komið til "ósubbulegs" sálfræðings
EKKERT "DISORDERLY" HÉR, TAKK
Mynd: Línurit og texti, Trading Economics
****
Þarna er nú munur á Gylfi minn. Þarna er sko engin subbuleg kapítalistísk "óreiða" á ferðinni væni minn. Þarna er sko stjórn á hlutunum
Í nótt fór mig að undra af hverju stærsta hlutabréfavísitala Kína væri ekki kominn á afturendann eftir rússíbanareiðina í Bandaríkjunum í gær. En þar vestra öslaði Nasdaq hlutabréfavísitalan svo mikinn að hún sýndi mestu uppsveiflu á einum degi síðan 2001
En ekki nóg með það, þá óð Dow Jones vísitalan upp um 2963 stig, sem er stærsta eins dags hækkun í sögu hennar, sem nær aftur til 1885. Hefur þó gengið á ýmsu þar vestra á síðustu 140 árum
Mynd: RSS-straumur Financial Times í nótt. Wall Street Journal sem hatar Trump þagði hins vegar þungri þögn
****
Já það er nú munur að þurfa ekki að subbast svona til og frá, Gylfi minn. Kína er með stjórn á þessu öllu. Svo mikla stjórn að ríkisvaldið þar kom í veg fyrir subbulegan vestrænan kapítalisma og byggði steypt gólf undir froðumiðstöðvar pólitískra hlutabréfamarkaða og henti seðlabankanum svo á bálið líka. Enga subbu félagar! Og gott ef við stöðvum ekki bara viðskiptin til að fá út þessa ósubbulegu glansmynd af ástandinu; frá kl. 03:30 til kl. 05 í nótt að íslenskum staðartíma
En þá var ég lagstur subbulega til hvílu og svaf subbulegum óreiðusvefni hinna óttalausu, því ég veit að Trump er við stjórnvölinn þar vestra og fer mikinn
Mig dreymdi innleiðingu Evrópusambandsins á kínverskum kapítalisma því það þolir heldur ekki svona subbulegheit - og bannar þau með því að þjóðnýta sjálf stjórnmálin í 27 löndum sambandsins, svo að þau megi ekki snúist um neitt nema það sama og þau snúast um í Kína kommúnistaflokksins; samrunastefnu ESB, sem enginn kaus. Upp SKAL sovét-ESB rísa, niður með þjóðfánana!
Fyrri færsla
ESB og Kína þekkja ekki bandaríska miðvestrið
![]() |
Ótrúlegt að fylgjast með þessari óreiðu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 8. apríl 2025
ESB og Kína þekkja ekki bandaríska miðvestrið
Mynd frá fyrsta kjörtímabili Donalds J. Trump, forseta Bandaríkjanna 2017-2021
****
En í gær rann hins vegar upp flottur 7. apríl 2025
"Therefore, if China does not withdraw its 34% increase above their already long term trading abuses by tomorrow, April 8th, 2025, the United States will impose ADDITIONAL Tariffs on China of 50%, effective April 9th. Additionally, all talks with China concerning their requested meetings with us will be terminated! Negotiations with other countries, which have also requested meetings, will begin taking place immediately. Thank you for your attention to this matter!"
****
Hanga nú kínverku kollarnir ding-dong-steyptir í duftið á morgunverðarborðum kommúnistaflokksins þar í landi; tollflokknum þeim eina
Trump segir að Kína og Þýskaland séu einn og sami tollflokkurinn. Fróðlegt verður nú að fylgjast með samhæfðri sjálfstortímingu beggja, saman í tollflokki
Fara nú Bandaríkin í skammvinna skyldu-kreppu sem endar með öskrandi uppsveiflu á næsta ári
Kína og Evrópusambandið munu hins vegar seint eða aldrei komast út úr því sem nú tekur við þar í tollflokki
****
Fyrri færsla
Bóndinn og prófessorinn í Selma um tolla Trumps. Grænland
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Sunnudagur, 6. apríl 2025
Bóndinn og prófessorinn í Selma um tolla Trumps. Grænland
VICTOR DAVIS HANSON
Victor Davis Hanson bóndi og prófessor í hernaðarsögu við Stanfordháskólann í Kaliforníu segir að tollar hljóti að vera mjög svo rosalega góðir og eftirsóttir fyrst að öll ríki heimsins séu með þá og hafi meira að segja byggt lönd sín upp með þeim
Victor Davis Hanson man þá tíma þegar rúsínuverð hrundi í Kaliforníu er tollabandalag Evrópusambandsins hóf niðurgreiðslur á rúsínuframleiðslu í tollatruntuháborg Evrópusambandsins. Hefðu mótvægisaðgerðir á borð við þær sem Trump innleiðir núna verið innleiddar þá, hefðu sumir bændur í Kaliforníu ekki þurft að fyrirfara sér og fjölskyldu-landbúnaður í stað stóriðnaðar-landbúnaðar væri meiri en hann er í dag
Danskir neytendur hugðust um daginn sniðganga bandaískar vörur í Danmörku þegar Grænlandsmálið hófst. En þeir gátu bara ekki fundið neinar bandarískar vörur að ráði í verslunum í einokunarveldi ESB í Danmörku. Þær sem fundust voru flestar framleiddar í Danmörku
En einhverra hluta vegna þá reiðast tollalöndin Trump fyrir að svara þeim loksins í sömu mynt. Öll lönd heimsins mega hafa tolla, nema Bandaríkin segja þau
En þá hringdi formaður Kommúnistaflokks Víetnam og sagði við Trump á föstudaginn að flokkurinn myndi fella niður alla tolla á Bandaríkin ef þau gerðu hið sama. En það var einmitt það sem Trump forseti sagði frá byrjun að Bandaríkin myndu gera, þ.e. ef mótaðilinn gerði það líka
****
Með því að fylgja krækjunni hér fyrir neðan má horfa á Donald J. Trump forseta kynna hið nýja tollafyrirkomulag Bandaríkjanna í síðustu viku. Þeir sem áhuga hafa ættu að hlusta gaumgæfilega á hvert orð forsetans: Taka vel eftir
Horfa: Trump kynnir nýja tollastefnu Bandaríkjanna þann 3. apríl 2025
GRÆNLAND
Já á meðan ég man; þá segir nýr ráðherra í ríkisstjórn Grænlands að Grænland muni halla sér að Kína, því þangað fari rækjur og skelfiskur landsins, og að hún eigi góðar minningar frá síðustu ferð hennar til Kína. Henni finnst einnig að heimsókn Mette Frederiksen forsætisráherra Danmerkur í síðustu viku til Grænlands hafi verið mjög "óviðeigandi"
Fyrri færsla
Evrópa er á leiðinni á nauðungaruppboð: Kaninn unir ekki að Grænland fylgi með
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Þriðjudagur, 1. apríl 2025
Evrópa er á leiðinni á nauðungaruppboð: Kaninn unir ekki að Grænland fylgi með
Lönd eiga ekki vini, þau eiga hagsmuni
Charles de Gaulle
Ég efast ekki um að grænlenska hagkerfið myndi leysast úr nýlendulæðingi ef Bandaríkin koma að málum þar. Líklega yrði framkvæmdur uppskurður á því, sem skera myndi á nýlendukýlinu, þ.e. hinum vonlausa opinbera geira
En frumástæðan fyrir geopólitískum áhuga Bandaríkjanna á Grænlandi er sá að ESB-Evrópa er á leiðinni á nauðungaruppboð. ESB-Evrópa getur ekki varið sig sjálf, eins og sést svo vel í dag. Vonlaust er að halda svona ósjálfbjarga fyrirbæri eins og Evrópu uppi og þess vegna eru Bandaríkin endanlega að gefast upp á því. Kaninn hefur önnur glóandi járn í eldinum og sem eru honum mikilvægari
Þessi staða kallar á að Evrópa leiti ásjár hjá Rússum og Kínverjum. Danmörk mun því selja Grænland til hæstbjóðanda í þeim félagsskap eins og gefur að skilja. Og við þá geopólitísku stöðu geta Bandaríkin ekki unað. Þess vegna verða þau að koma Grænlandi í skjól, burtu út þrotabúi Evrópu, þar sem nauðungaruppboðin nálgast
Í dag er 10-ára ríkisskulda lántökukostnaður Frakklands orðin meiri en Grikklands og Spánar. Landið er að verða óstjórntækt rekald og Þýskaland er að verða það líka. Nauðungaruppboðin nálgast
Evrópa hefur ekki sameiginlega hagsmuni. Hún er norður-suður og austur-vestur. Ekkert skrifstofuveldi getur breytt því
Fyrri færsla
![]() |
Bandaríkjamenn segja útilokun Le Pen áhyggjuefni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Mánudagur, 31. mars 2025
Svo lengi sem Grænland er viðriðið Danmörku mun heimurinn ekki líta á það sem frátekið land. Svo einfalt er það
Þetta skilur Helle Thorning-Schmidt fyrrverandi en misheppnaður forsætisráðherra Danmerkur ekki, enda oftast kölluð Gucci-Helle í daglegu dönsku tali
****
GRÆNLENDINGAR EKKI SPURÐIR
Þetta skilur hún sem fyrrum danskur forsætisráðherra úr danska sósíaldemókrataflokknum auðvitað ekki þegar hún í CNN sunnudaginn 30. mars 2025 sagði að ekkert hindri Bandaríkin í að opna enn fleiri herstöðvar á Grænlandi. Þar með er hún að segja að Grænland á höndum Dana geti þess vegna orðið hernaðarnýlenda annarra landa, og þá fyrst og fremst sökum þess að Danir eru Grænlendingum algjörlega getulausir í varnarmálum eins og í flestum öðrum málum: þó einkum í tilvistarlegum, efnahagslegum, félagslegum, og þjóðaröryggislegum efnum
Og ekki er hún að spyrja Grænlendinga um leyfi fyrir neinu þegar hún opnaði fyrir snilli sína í bandarískum fjölmiðlum í gær. Þar úthlutaði hún í beinni útsendingu herstöðvaaðstöðu til Bandaríkjanna án þess að spyrja neinn Grænlending að neinu, frekar en nokkru sinni hefur verið gert af hálfu hins gamla nýlenduveldis Dana. Þarna sést einmitt danski nýlendupraxísinn í praxís á Grænlandi. Og þarna sannast orð JD Vance varaforseta Bandaríkjanna, Þorgerði Katrínu til mikillar gremju
Síðastliðin 50 ár hefur Danski herinn verið látinn koðna niður í ekki neitt og Danmörk nær aldrei staðið við NATO-skuldbindingar sínar, fyrst og fremst vegna þess að Danmörk er bóla á rassi Þýskalands og fylgir ávallt fordæmi þess (við borgum ekki), enda gervihnöttur á sporbraut um fyrst og fremst þýska ríkið, en ekki um Bandaríkin
Það sást sérlega vel í Síðari heimsstyrjöldinni þegar flokkur Sósíaldemókrata við völd píndi danskt efnahagslíf til að snúa sér burt frá Engilsöxum og að Þýskalandi til að hámarka afköstin í þágu nasista, þannig að Danmörk varð næst stærsta viðskiptaland þýska Nasistaflokksins á eftir Ítalíu, hernámsárin öll
Eftir stríðið þvinguðu danskir sósíaldemókratar svo danskt atvinnulíf til að taka þátt í "refsiaðgerðum" gegn til dæmis Suður-Afríku, Síle, Írak og Burma, en aldrei gegn Sovétríkjunum né Kína, Íran eða Sádi-Arabíu. En nú þola danskir sósíaldemókratar ekki Rússland lengur, því Rússland sveik sósíalisma Evrópusambandsins, sem sækir fyrirmynd sína til pólitísks skipulagsveldis Sovétríkjanna
EINFALT
En ef Grænland væri hins vegar Bandarískt, þá þyrfti enga aukalega herstöð þar, því allir vissu að landið væri Bandarískt og þar með algjörlega frátekið. Svipað gildir einnig ef sjálfstætt Grænland gerði varnarsamning við Bandaríkin, eða færi í svipað ríkjasamband við þau og t.d. Puerto Rico
RÖKIN
Rök Bandaríkjanna í þessi máli eru þau; að losni Grænland undan Dönum og verði sjálfstætt og fullvalda ríki; að þá geti Grænland sjálft gert þá samninga við Bandaríkin sem þau kunna að vilja og þurfa. Í dag mega Grænlendingar varla sjálfir tala við erindreka annarra ríkja. Hringja verður niður í danska utanríkisráðuneytið í Kaupmannahöfn þegar sauðnautin á staðnum komast að því að þau eru á leið til Kína frá kínverskum flugvöllum á Grænlandi
NOKKRAR STAÐREYNDIR MÁLSINS
Ratsjárstöð á Grænlandi er fínt fyrir þarfir Bandaríkjanna þar. En öll alvöru hernaðaruppbygging á norðurslóðum yrði hins vegar að vera á Íslandi. Og einungis frá Íslandi geta Bandaríkin sinnt Grænlandi eins og þarf
Engin djúpsjávarhöfn getur orðið til á Grænlandi, hvorki vestan-, sunnan-, né austanmegin. Erlend heimahöfn bandarísks flugmóðurskips gæti því aldrei orðið á Grænlandi. Fordæmi fyrir slíku fyrirkomulagi er Yokosuka, Japan. En hún gæti orðið á Íslandi
Rúmir 1500 km eru frá bandarísku Pituffik herstöðinni til Nuuk. Flugleiðin frá Nuuk til Keflavíkur er þó 100 km. styttri.
Og ekki batnar staðan þar nyrðra við það að Kanada hefur vanrækt NATO-skuldbindingar sínar að sama marki og Danmörk. Hefur Danmörk því engan vegin verið sá "góði bandamaður" sem hún allt í einu segist vera núna. Því fer fjarri
AÐ LOKUM
Annars er það harkan sex, eins og Ísland lenti í 1940 og 1941. Og þá vorum við glöð að Bretar og Bandaríkjamenn urðu fyrstir, en ekki meginland tapara ESB-Evrópu
Fyrri færsla
Landsölupakkhús Þorgerðar fúlt út í JD Vance
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sunnudagur, 30. mars 2025
Landsölupakkhús Þorgerðar fúlt út í JD Vance
Þorgerður ESB-kommi er fúl út í JD Vance varaforseta Bendaríkjanna fyrir að sýna heiminum fram á hversu glatað fyrirbæri Evrópusambandið er. En það gerði varaforsetinn á öryggisráðstefnu sem haldin var suður af Þusluþorpi við Munkaþverá syðri. Hér má lesa ræðuna - og hér má horfa á JD Vance flytja hana
Þorgerður veit sem er að þorri Íslendinga samsamar sér um það bil þúsund sinnum meira með Bandaríkjunum en sovétríki Evrópusambandsins í smíðum. Við þekkjum kanann og vitum að hann mun aldrei verða eins og ESB, sem betur fer, enda hefur hann reynst okkur bjargvættur og gerir enn
Tíðarandanum í Þorgerði finnst "óviðeigandi" að JD Vance sé hvorki upptekinn við að sleikja skósólana á Grétu2 Úkraínuforseta né hangandi um fótlegginn á einfóta hopp-hananum Emmanuel Macron forseta Frakklands. Á morgun finnst henni jafnvel eitthvað annað. Þannig virkar innihald tíðarandaglasa oft á menn
En bæði Donald J. Trump og J.D. Vance eru andbyltingarsinnar eins og nú heyrist og sést á gargandi ískrinu og neistafluginu er þeir flytja Bandaríkin aftur að miðjunni, burt úr hinu gargandi villta vinstri Klikkton-Obamaklíkunnar
Fyrir Donald J. Trump forseta og JD Vance varaforseta Bandaríkjanna er Evrópusambandið nýtt sovétlíki í smíðum. Og þeir, eins og ég, vita vel hvað kemur næst úr Evrópufabrikkunni, sem Bandaríkjamenn flúðu burt frá á sínum tíma. Ekkert gott er í vændum þaðan, - eins og Vance benti svo réttilega á í ræðu sinni í München
"I was struck that a former European commissioner went on television recently and sounded delighted that the Romanian government had just annulled an entire election. He warned that if things dont go to plan, the very same thing could happen in Germany too." JD Vance varaforseti Bandaríkjanna
Nú þegar er byrjað kjósa aftur, komi ekki "rétt" út úr kosningum í ESB. Ógilding kosninga er einnig hafin í ESB. Og byrjað er að banna vissa frambjóðendur með "rangar" skoðanir í ESB. Og til umræðu á þýsku þingi núna er að banna næst stærsta stjórnmálaflokk landsins í ESB
Hvað nú Þorgerður mín vonsvikna
Fyrri færsla
Kannski hægt að byrja á farsímavef Veðurstofunnar - strax í dag? [u]
![]() |
Allt við þessa heimsókn var óviðeigandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 27. mars 2025
Kannski hægt að byrja á farsímavef Veðurstofunnar - strax í dag? [u]
Skjáskot: Óvirkur farsímavefur Veðurstofu Íslands, fimmtudagur, 27. mars 2025 kl. 21:39:35. Vefurinn er búinn að vera í þessu ásigkomulagi í rúman sólarhring. Hann er oft það eina sem hægt er að notast við þegar merkjasamband til gagnasendinga er lélegt eða þegar rafmagnið fer og einungis 2G eða EDGE hanga uppi
****
Já. Farsímavefur Veðurstofu Íslands hefur verið niðri, óaðgengilegur og óvirkur í rúman sólarhring. Og enga tilkynningu um eitt né neitt er að finna á aðalvef Veðurstofunnar - þar sem slóðina inn á farsímavefinn er að finna efst á forsíðu vefsetursins. Ég og mínir nota farsímavefinn mög mikið, bæði fyrir landsveðurspár, staðarspár, veðurathuganir og jarðskjálfta, því hann er einfaldur, léttur og handhægur: þ.e. góður vefur, skilvirkur og laus við glingur og þvætting
Skjáskot: Og skilríkin að renna út. Ég ákvað að treysta þeim samt (þess vegna "custom")
Og engar tilkynningar til notenda eru birtar um hvenær Veðurstofunni þóknist nú að koma sér út úr stofuveðrinu sem greinilega ríkir þar um allan aldur og stafræna eilífð
Það er mjög slæmt þegar farsímavefur Veðurstofunnar er óvikur. Og það er mjög slæmt að stofnunin skuli ekki fylgjast betur með þeim lágmarks grunnöryggiskerfum landsins sem á hennar ábyrgð eru
Hvernig væri nú að kippa þessu í lag?
=====
Uppfært föstudagur, 28. mars 2025 kl. 22:07:16
Veðurstofan hefur um miðjan dag í dag fjarlægt krækjuna inn á farsímavefinn, sem höfð var efst á forsíðu hennar, vedur.is. Enga skýringu eða tilkynningu til notenda er finna neins staðar um þetta mál. Stofuæði ræður ríkjum. Þetta mál mun sennilega seinka verulega mánaðaruppgjöri Veðurstofunnar yfir áhuga- og getuleysi hennar í stafrænum efnum
RIDDARAR VEGANNA
Hjá Vegagerð ríkisins horfa veftæknimál hins opinbera hins vegar öðruvísi við, því þar minnka menn bara allar myndir af vegakerfinu úr vefmyndavélum Vegagerðarinnar um helming, svo að holurnar í vegakerfinu, færðin og ástand veganna sjáist helst ekki á hinum nýja vef fyrirtækisins, þ.e. ef "fyrirtæki" skyldi kalla. Þar á bæ kallast slíkt framfarir. Grautarhausar á opinberri framfærslu ráða för
Fyrri færsla
Hamast við moksturinn í Reykjavík
![]() |
Almannavarnir bregðist við hernaðarástandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 28.3.2025 kl. 22:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Nýjustu færslur
- Eitthvað sem ekki passar hér [u]
- Kristrún stígur ekki í vitið, svo mikið er nú víst
- Þorgerður mín
- Kína komið til "ósubbulegs" sálfræðings
- ESB og Kína þekkja ekki bandaríska miðvestrið
- Bóndinn og prófessorinn í Selma um tolla Trumps. Grænland
- Evrópa er á leiðinni á nauðungaruppboð: Kaninn unir ekki að G...
- Svo lengi sem Grænland er viðriðið Danmörku mun heimurinn ekk...
- Landsölupakkhús Þorgerðar fúlt út í JD Vance
- Kannski hægt að byrja á farsímavef Veðurstofunnar - strax í d...
- Hamast við moksturinn í Reykjavík
- Grunnvextir hækka á evrusvæðinu - varanlega
- Fallbyssur Trumps í tollamálum
- Bandaríkin eru tilbúin að fjárfesta milljörðum dala í Grænlan...
- Já, Pólverjar verða að vakta landamærin upp að Þýskalandi. Þa...
Bloggvinir
-
Heimssýn
-
Samtök Fullveldissinna
-
ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
-
Guðmundur Jónas Kristjánsson
-
Ragnhildur Kolka
-
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
-
Haraldur Hansson
-
Haraldur Baldursson
-
Páll Vilhjálmsson
-
Halldór Jónsson
-
Valan
-
Samstaða þjóðar
-
Frjálshyggjufélagið
-
Sigríður Laufey Einarsdóttir
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Jón Valur Jensson
-
Samtök um rannsóknir á ESB ...
-
Kolbrún Stefánsdóttir
-
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
-
Jón Baldur Lorange
-
Guðjón E. Hreinberg
-
Jón Ríkharðsson
-
Anna Björg Hjartardóttir
-
Loftur Altice Þorsteinsson
-
Valdimar Samúelsson
-
Fannar frá Rifi
-
Bjarni Jónsson
-
Sigurður Þorsteinsson
-
Gunnar Ásgeir Gunnarsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Örvar Már Marteinsson
-
Kristin stjórnmálasamtök
-
Gestur Guðjónsson
-
Ingvar Valgeirsson
-
Predikarinn - Cacoethes scribendi
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Guðmundur Helgi Þorsteinsson
-
Lísa Björk Ingólfsdóttir
-
Bjarni Kjartansson
-
Bjarni Harðarson
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
gudni.is
-
Gústaf Adolf Skúlason
-
Tryggvi Hjaltason
-
ESB
-
Marinó G. Njálsson
-
Baldvin Jónsson
-
Elle_
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Emil Örn Kristjánsson
-
Johnny Bravo
-
Jón Finnbogason
-
Rýnir
-
Þórarinn Baldursson
-
P.Valdimar Guðjónsson
-
Már Wolfgang Mixa
-
Ívar Pálsson
-
Júlíus Björnsson
-
Guðjón Baldursson
-
Baldur Fjölnisson
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Einar Ólafsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Vilhjálmur Árnason
-
gummih
-
Sveinn Tryggvason
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Jóhann Elíasson
-
Baldur Hermannsson
-
Kristinn D Gissurarson
-
Magnús Jónsson
-
Ketill Sigurjónsson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Axel Jóhann Axelsson
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Aðalsteinn Bjarnason
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Erla Margrét Gunnarsdóttir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Þorsteinn H. Gunnarsson
-
Haraldur Pálsson
-
Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
-
Bjarni Benedikt Gunnarsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Ægir Óskar Hallgrímsson
-
Helgi Kr. Sigmundsson
-
Óskar Sigurðsson
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Axel Þór Kolbeinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Hörður Valdimarsson
-
Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Margrét Elín Arnarsdóttir
-
Ásta Hafberg S.
-
Erla J. Steingrímsdóttir
-
Helena Leifsdóttir
-
Agný
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Árni Bragason
-
Jón Lárusson
-
Högni Snær Hauksson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Kristinn Snævar Jónsson
-
Sigurður Ingólfsson
-
Rakel Sigurgeirsdóttir
-
Sigurður Þórðarson
-
S. Einar Sigurðsson
-
Pétur Steinn Sigurðsson
-
Vaktin
-
Sigurjón Sveinsson
-
Dóra litla
-
Arnar Guðmundsson
-
Jörundur Þórðarson
-
Rafn Gíslason
-
Hjalti Sigurðarson
-
Kalikles
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Egill Helgi Lárusson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Halldóra Hjaltadóttir
-
Jón Pétur Líndal
-
Guðmundur Ásgeirsson
-
Reputo
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Ólafur Als
-
Friðrik Már
-
Gísli Sigurðsson
-
Sigurður Einarsson
-
Rauða Ljónið
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Gísli Kristbjörn Björnsson
-
Kári Harðarson
-
Sigurður Antonsson
-
Valdimar H Jóhannesson
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Dagný
-
Guðmundur Pálsson
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Birgir Viðar Halldórsson
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
-
Tíkin
-
Jón Þórhallsson
-
Íslenska þjóðfylkingin
-
Erla Magna Alexandersdóttir
-
Óskar Kristinsson
-
Dominus Sanctus.
-
Ingólfur Sigurðsson
-
Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.6.): 4
- Sl. sólarhring: 39
- Sl. viku: 484
- Frá upphafi: 1404692
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 310
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júní 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008