Föstudagur, 10. mars 2017
48 til 73 milljarðar þurfa að fara til varnarmála okkar á ári
Mynd: Varnarmálaútgjöld Bandaríkja Norður-Ameríku á tuttugustu öld, hlutfall af landsframleiðslu
Í gær birti Hagstofan enn eitt heimsmet Íslands í hagvexti. Landsframleiðslan á fjórða ársfjórðungi í fyrra jókst um 11,3 prósent á milli ára. Og þar með var hægt að gera hagvöxtinn fyrir allt síðasta ár upp og var hann í heild 7,2 prósent, sem einnig er nálægt heimsmeti
Verg landsframleiðsla fyrir árið í heild var 2.421.959.000,00 krónur, sem er einn besti gjaldmiðill veraldar. Í milljörðum eru þetta 2422 stykki af svoleiðis
Til varnarmála hins dýrmæta lands okkar og þjóðar ættum við sem lágmark að eyða 48 milljörðum króna, sem eru aðeins tvö prósent af landsframleiðslunni. En vegna þess hve seint við förum af stað í uppbygginu varna landsins, þá þyrftum við að eyða um það bil 6 prósent af landsframleiðslu í uppstartið, eða eins og Bandaríkjamenn gerðu í enda Kalda stríðsins, þegar varnarmálaútgjöld bandaríska þjóðríkisins voru, í fyrsta lagi, komin niður úr 42 prósent af landsframleiðslu í Síðari heimsstyrjöldinni og, í öðru lagi, niður í 12-10 prósent af landsframleiðslu á fyrri helming Kalda stríðsins, er þeir gættu lífs, lima og eigna íslenskra barna og fjölskyldna þeirra
Í dag nota Bandaríkjamenn 3,61 prósent af landsframleiðslu til varnarmála og þeir borga einnig 74 prósent af varnargetu kostnaði 27 annarra NATO ríkja, sem annars væru varla til. Þessum skollaleik 27 NATO-landa frá og með 1991 -og þar á meðal erum við- er frá og með nú lokið
Við þurfum því einnig að geta lagt okkar að mörkum til varnar Bandaríkjunum því þau hafa svo lengi lagt ofboðslega mikið af mörkum okkur til varnar og aðstoðar. Nú gengur ekki lengur að haga sér eins og aumingi. Við erum ekki aumingjar og ættum því ekki að koma fram sem aumingjar
Þegar Ísraelsríki lýsti yfir sjálfstæði sínu 1948, þá var sú þjóð ekki nema rétt rúmlega tvöfalt fjölmennari en við erum núna, í sínu landi. Sú þjóð varðist þá samstundis-innrásum allra aðliggjandi nágrannaríkja. Hún varðist og hún varðist og hún sigraði. Við, hins vegar, þurfum einungis að sigrast hér á okkur sjálfum
Flugfloti Norðmanna telur meðal annars 60 stykki orrustuþotur, 6 stykki Orion kafbátaleitarvélar og í pöntun eru 5 stykki nýjar P-8 Boeing slíkar vélar. Alls er flugfloti Norðmanna yfir hundrað vélar. Okkar flugfloti er hins vegar enginn á þessu varnarsviði
Þetta gengur ekki lengur. Við ættum sem lágmark að geta sjálf staðið fyrir loftrýmisgæslu okkar með okkar eigin herþotum og með okkar eigin flugmönnum, áhöfnum, viðhaldsliði, vopnum, flugvöllum og að minnsta kosti tveimur birgðavélum. Kafbátaleit ættum við með tímanum líka að geta tekið yfir. En númer eitt er að geta stuggað óvinum út úr lofhelginni og skotið vont niður ef með þarf
Við megum þakka fyrir að vera staðsett á Vesturhveli jarðar því þar mun eina pólitíska stöðugleikann í veröldinni vera að finna næstu 100 árin. Allur hinn pólitíski stöðugleiki Austurhvels jarðar -gamla heimsins- er að brotna upp og þar er Evrópu-Asíu landmassinn að tvístrast upp í pólitískar frumeindir sem enginn veit hvenær og hvernig munu lenda. Evrópa, Asía og Mið-Austurlönd eru komin í upplausnarferli. Enginn veit hver útkoman verður
Svo kæru Íslendingar, það er bara að setja í gang og koma landvörnum Íslands fyrir í öllum landsfjórðungum, þar sem hver flugvarnarstöð muna verða lyftistöng fyrir alla landshluta. Þetta yrði ein flott lyftistöng fyrir allt okkar fullvalda og sjálfstæða þjóðríki. Við getum þetta og verðum að gera þetta, því engin sanngjörn afsökun fyrir að bregðast skyldum okkar dugar lengur
Fyrri færsla
Vandamálahælið Evrópa - fundur í Antalya
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Fimmtudagur, 9. mars 2017
Vandamálahælið Evrópa - fundur í Antalya
Eins og þeir sem vilja vita vita, þá gengur lítið sem ekkert með neitt í Evrópusambandinu. Sambandið þolir engin áföll og það sópar til sín vandamálum sem, meðal annarra, en einkum, af tilvist þess hafa skapast. Í stað þess að leysa vandamál, þá safnar sambandið vandamálum. Það er orðið eitt stórt vandamálaveldi. Og löndin sem í sambandinu eru, veslast upp á færibandi. Myntsvæði þess er versta efnahagssvæði veraldar. Myntin á því svæði er gagnslausasta mynt veraldar. Hún hefur ekkert með efnahagsmál að gera, heldur er hún einn pólitískur peningur með gati út i gegn
Í miðju gati peningsins býr þeytivinda. Hún heitir Þýskaland. Og í miðju Þýskalands býr banki. Hann heitir Deutsche Bank. Hann er eldri en Þýskaland. Og hann er á hausnum. Í vikunni gerði bankinn tilraun til að skaffa sér ferska peninga. Hann bauð þeim sem eiga peninga að kaupa hlut í bankanum á 39 prósent afslætti. Bréfin í bankanum hrundu umsvifalaust um 6 prósent. Bankinn á í lausafjárvandræðum. Hann er óformlegur hluti af ríkisstjórn Þýskalands og formlegur hluti af öllum stærstu fyrirtækjum þess. Hann er á hægfara leið í þrot
Enginn hefur trú á bankanum. Hann er á evrusvæðinu og kominn með eyðniberkla Evrópusambandsins. Og þetta evrusvæði er myntsvæði Evrópusambandsins. Bæði eru þau ónýt. Ganglaust ónýt og gagnslaust getulaus skápur þar sem hrúgað er inn vandamálum sem aldrei verða leyst. Bankakerfi evrusvæðis halda því áfram að hristast og skjálfa sem sá geislavirki Royalbúðingur sem þau eru
Evrópa endaði 1991. Þar endaði heimsálfan, því þá féll síðasta veldi hennar í rúst: Sovétríkin. Síðan þá hefur Evrópa ekki haft hin minnstu áhrif á neitt í þessum heimi og hún mun ekki hafa það nokkru sinni á ný. Á þrjátíu árum tókst Evrópu að koma sér úr stöðu heimsveldis með veraldaráhrif og yfir í hernumda rúst. Þetta hefur aldrei áður gerst í sögu mannkyns. Að heil heimsálfa stútaði sér á aðeins 30 árum. Evrópa mun ekki leysa nein vandamál í framtíðinni því hún er vandamálið sjálft. Hana þyrfti helst að hernema á ný áður en hún og fólk þess kemst að því að Evrópusambandið er berklahæli, þar sem eina lyfið sem til er í skápnum heitir Meiri berklar
**
Æðstu yfirmenn herafla Bandaríkjanna, Rússlands og Tyrklands héldu fund í tyrknesku borginni Antalya. Það er athyglisvert. Það er virkilega athyglisvert. Láið er líta út sem svo að þessir æðstu menn þriggja hefafla ræði saman um ýmis dagleg vandamál. En það gera þeir ekki. Það gera þeir ekki. Ekkert hefur lekið út um raunverulegt efni fundarins og ekkert mun leka út um það
Fyrri færsla
Ísland: heimsmethafi í hagvexti
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudagur, 8. mars 2017
Ísland: heimsmethafi í hagvexti
Mynd: skjáskot af vef Trading Economics. Nánar: Hagstofa Íslands
Maður getur nú ekki annað en brosað út í annað að þessum græna bletti þarna efst til vinstri á myndinni. Já, ég hef oft sagt að Ísland sé að mörgu leyti nýmarkaðsland (e. emerging economy). En að þetta sé svona eins og þarna á myndinni fær mig til að brosa ansi breitt út í bæði. Af 196 löndum sem þeir hjá Trading Economics fylgjast með, þá erum við ansi nýmarkaðsleg þegar að hagvexti á milli þriðju ársfjórðunga 2015 og 2016 kemur, eins og er. Þetta er ein birtingamynd fullveldis Íslands í peningamálum sem og öðrum málum okkar. Þetta er ekki finnska leiðið í fjöldagrafreit evrunnar þar sem ESB-aðild er að gera Finnland að Grikklandi norðursins - þið munið, "Kúba norðursins"
A chronically depressed economy, rising unemployment and an aversion to free-market reforms. Sound like a familiar European tale? But its not Greece, Spain or Portugal. Its Finland,- Lars Christensen
Þetta er hvorki meira né minna en heimsmeti í hagvexti hjá Íslandi. Mín spá fyrir síðasta ár í heild er 7 prósent hagvöxtur. Og samt er verðbólgan ekki nema eins og svona um það bil tvö prósent. Margt spilar þar inn, innlent og erlent, en samt grenja hagsmunasamtök. Og samt grenja menn á lækkun stýrivaxta! Flestir með tvö prósent af heilafrumu verðbólguþekkingar vita hvað það myndi þýða. En samt er grenjað. Og samt grenjar stjórnarandstaðan (hún er andstæð stjórn) og hagar sér eins og apaflokkur í furðutré
Það er heldur ekkert við því að segja að vegamál á Íslandi séu eins og þau eru. Það er bara ofur eðlilegt. Við erum með eitt stærsta vegakerfi í heimi á hvern skattgreiðanda, og vegakerfið okkar er, þrátt fyrir allt, fallegt og snoturt kraftaverk fullvalda þjóðar. Það þarf að nálgast vegamálin á annan hátt en með heimtufrekju og sífellt nýrri og meiri skattlagningu. Þetta er mál sem öll þjóðin og digrir sjóðir hennar eiga að líta á með þeim augum sem gert var þegar þjóðin lokaði hringnum. Ég myndi kaupa skuldabréf í þannig fjárfestingu. Hafa ber í huga að þjóðvegakerfi Bandaríkjanna milli fylkja er stærsta einstaka opinbera framkvæmd mannkynssögunnar
Við erum ennþá nýmarkaðsland og það á eftir að gera margt og mikið hér heima hjá okkur. Þetta er svona vegna þess að við urðum svo seint frjáls þjóð í eigin landi. Við fengum sjálfstæði fyrir aðeins 73 árum síðan. En þessu vilja þeir sem hæst öskra sem apar í trjám, henda í ruslið og gerast aumingjar í Húsi fjötra Evrópusambandsins. Gerast þrælar á ný. Og samt kom hin brosandi bóla á rassi Þýskalans hingað í heimsókn í formi Uffe Ellemans-Jensen og sagði örvita íslenskum ESB-sinnum að eina leiðin út úr sambandinu, án kjarnorkuvopna, væri ekki til, nema sem liðið lík. Hann veit þetta, en þorir ekki að segja það. Hann er búinn að selja sambandinu sál sína og getur ekki bakkað nema með harakiri
Eins og margir vita þá hef ég lengi sagt að við eigum að taka upp alvöru byggðastefnu á Íslandi, þar sem launatengd gjöld lækka því fjær sem dregur höfuðborgarsvæðinu. En nú er ég kominn í efa um þetta mál, því varla getur Ísland fengið sterkari byggðastefnu en hina vinstrisinnuðu borgarstjórn Reykjavíkur. Borgríki vinstrimanna er svo öflugt að ég er kominn í efa
Svo þarf að reka yfirstjórn Landsvirkjunar og Orkuveitu Reykjavíkur (sjá hér, takk Styrmir!) og halda áfram að borga niður skuldir ríkissjóðs og þá lækka skatta, og svo útvega fleiri tré fyrir apabörn vinstisins til að brjálast í vegna framfara. Og já, lyga- og blekkingaherferðar- þingmaður Viðreisnar í formi formanns utanríkismálanefndar Alþingis Íslendinga, þarf líka að reka úr þeirri stöðu. Hún er undir eið og er ekki almennur borgari. Hún á að vita það. Þetta má hún ekki gera í þeirri trúnaðarstöðu sem henni er trúað fyrir. Svona moldvörpustarf má ekki líða
Áfram Bjarni Benediktsson! Rektu hana ásamt yfirstjórn Landsvirkjunar!
Fyrri færsla
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Sunnudagur, 5. mars 2017
Evrópa þolir ekki Þýskaland
Mynd: Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn, febrúar 2017. Hörmungar Grikklands settar í samhengi
Grikkland: Skýrsla AGS, febrúar 2017. Tæplega 1/3 hluti gríska hagkerfisins er horfinn. Heimsmet Evrópusambandsins í misþyrmingu sést vel. Þessu tók AGS þátt í, en Þýskaland ræður för. En samt neitar Þýskaland að ræða sín eigin efnahagsmál við aðra á meðan það er á kafi með alla sína fingur í málum annarra. Þýskaland segir að þau komi þeim bara ekkert við. En í þetta skiptið mun Þýskaland ekki sleppa. Donald J. Trump mun sjá um það
Sálufélagar Þýskalands á Íslandi eru ótrúlega margir og virðast stundum vera misráðnir einfeldningar og fórnarlömb dellu. Samt hefur Þýskaland lítið nema hörmungar fært mannkyninu frá stofnun þess 1871. Innanborðs í Þýskalandi eru sterk þeytivinduöfl að verki og afar líklegt er að landið geti aldrei verið til friðs á meginlandinu í þeim strúktúr sem Bismarck laug héraðsöflum landsins saman í. Það mun aldrei verða þjóðareining í Þýskalandi og skorturinn á henni mun færa Evrópu endalausar hörmungar. Eins og þær sem sjást að verki með misþyrmingu Þýskalands á meginlandinu undir imperíal fána Evrópusambandsins
Þýskaland eins og Rússland hefur lítil sem engin náttúruleg landamæri. Óttinn vegna þessa, ræður að stórum hluta til um hegðun Þýskalands. Hingað til hefur landið leyst þennan vanda með því að ráðast stanslaust í útrás á önnur lönd. Nýjasta útrás Þýskalands, sem er innrás, hefur farið fram undir fána Evrópusambandsins. Þetta var frá upphafi ekki ásetningur Þýskalands, en þegar landinu er veittur útrásar/innrásar-kosturinn, með vilja eða ekki, þá endar það umsvifafrelsi alltaf með ósköpum, eða sem allsherjar misnotkun. Þetta þarf að koma í veg fyrir með því að splitta Austur- og Vestur Þýskalandi upp á ný
Evrópa getur ekki lifað með sameinað Þýskaland. Og það getur heimurinn ekki heldur. Staðreyndin er sú að hinn svo kallaði "innri markaður" ESB er kominn í sama hlutverk og Úkraína og Hvíta Rússland eru sett í fyrir Rússland. Evrópusambandið og evrusvæðið eru orðin stuðari og sérstakt verndarsvæði fyrir Þýskaland (e. buffer zones). Þessum stuðara reynir Þýskaland að halda saman með her af ókjörnum embættismönnum sem herja á næstum öll löndin umhverfis Þýskaland. Pólland sem glímir við Rússland, þarf á sama tíma að glíma við Brussel. Sótt er að Póllandi úr bæði austri og vestri. Missi Þýskaland þennan stuðara þá lyppast landið saman. Þetta er staða sem átti ekki að geta orðið. En sem samt er orðin að veruleika, eins og frú Margaret Thatcher varaði svo ítrekað við
Það er þó einn afgerandi munur á Rússlandi og Þýskalandi: Rússland sendir peninga út til stuðara sinna. Kerml sendir peninga út í stuðarana og jaðrana og fjármagnar innviði þeirra. Það gerir Þýskalandi ekki. Það nærist á stuðurunum og jöðrunum, sem senda peningana heim til Þýskalands. Án þeirra væri Þýskaland ekkert. En rétt núna á Rússland frekar bágt því olíu- og hráefnaverð er svo lágt. Það er illa aflögufært og það mun þýða óstöðugleika úti í jöðrum og stuðurum þess. Í Evrópusambandi Þýskalands virkar þessi óstöðugleika-þrýstingur þveröfugt. Þar er það miðjan sem er að sprengja allt í tætlur. Þar er það miðjan, Þýskaland, sem er veiki hlekkurinn: miðflóttaaflið
Eina ástæðan fyrir því að Fyrsta ríkið lifði svona lengi, var sú að keisari þess hafi lítil sem engin áhrif á þýsk lönd þess. Þessar einingar voru óstjórnanlegt (e. ungovernable) drit af þýskum svæðum sem réðu sér að mestu sjálf. Aðeins þannig tókst Fyrsta ríkinu að hökta í þúsund ár. Og það var undir þeim strúktúr (þ. Heimat) að góð framlög þýskra landa til mannkynsins urðu til. Það sem við sjáum hins vegar í dag er því miður orðið þýskt Hús fjötra og ofsókna. Þetta átti ekki að enda svona, en gerði það samt. Evrópusambandið er nýtt farartæki alræðis og það hlaut ávallt að enda þannig. Það sjá allir þegar sambandið er skoðað nánar, þ.e. grunnstólpar þess
Og nú er fölsk fortíð Bismarcks mætt í heimsókn á meginlandinu einu sinni enn. Kaffiboðið er rétt að byrja, og það mun ekki enda vel. Það er ekki hægt að byggja sólkerfi í kringum svarthol. Þýskaland er svarthol. Uppbygging Evrópusambandsins á Evrópu er niðurbygging. Og síðasta sameining Þýskalands eru stærstu geópólitísku mistök sem gerst hafa í álfunnu síðan 1871
Ef ég væri frú franska Le Pen í kosningabaráttu núna, þá myndi ég segja -til dæmis með tilliti til Grikklands, og ef til vill allrar Suður-Evrópu líka- að Evrópusambandið sé sá "glæpur gegn mannkyninu" sem Macron leitar að í fortíð Frakklands í kosningabaráttu hans. Glæpurinn, ef hann þá er til, er orðinn sú framtíð sem Emmanuel Macron sjálfur boðar
Sjálfur er ég hins vegar Íhaldsmaður með stórum staf og þjóðernissinni, og það er ég vegna þess að í gamla daga voru hinir raunverulega frjálslyndu alltaf þjóðernissinnar (e. nationalists). Það þótti merki um góðan og göfugan málstað að vera þjóðernissinni: þ.e. að aðhyllast þjóðfrelsið og sjálfsákvörðunarrétt þjóða og að fyrirlíta heimsveldi og þrælaríki. Ég fyrirlít Evrópusambandið. Það er orðið þrælabúðir þjóðanna og Hús fjötranna
Fyrri færsla
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Laugardagur, 4. mars 2017
Velheppnaður kvöldverður
Mynd: Mamma vaknar
Ísilagt stöðuvatnið ýlfraði í kyrrðinni í mínus tíu, Júpíter og tunglin hans mörgu stirndu bjart, en tunglið okkar var tæplega hálft. Norðurljósin geisuðu og maður beið bara eftir því að USCSS Nostromo lenti hvað úr hverju. Já á Íslandi
Í kvöldmatinn var steiktur Fillon með grilluðum Trump. Þessu var skolað niður með Le Pen, en kokkurinn hafði líka gert Wilders. Fórum við svo inn í setustofuna og tókum Pútín dæsandi í nefið, bruddum Brexit og spiluðum Bannon fram á nótt
Allir skemmtu sér konunglega og allt var yndislega pólitískt kolrangt. Við hlógum að þeim sem heimta stýrivaxtalækkun! í 7 prósent hagvexti og sögðum Amen við bréfi úr bæjarfélagi Reykjavíkur, þar sem borgarstjórinn sjálfur er nagladekk
Í alla staði vel heppnað kvöld
Fyrri færsla
CNN gerir í buxurnar - og pilsin
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 26. febrúar 2017
CNN gerir í buxurnar - og pilsin
Mattis, - okkar hlutverk er að halda vígstöðunni, með símtólið frá fólkinu í hendinni. Hlusta og hlýða
James Mattis varnarmálamálaráðherra Bandaríkjanna sat fyrir svörum. Frá CNN kom nátúrlega sjálfselskuleg sjálfsupptekningar spurning um eigið ágæti frá blaðamanni CNN. Hún spurði varnarmálaráðherrann að því hvort hann væri samþykkur því sem þjóðkjörinn Trump sagði um fjölmiðla; að þeir væru óvinur fólksins
Mattis svarar eins og hans er von og vísa; þ.e. á fullkominn hátt. Hann sagðist hafa átt í vandamálum með fjölmiða, en að fjölmiðlarnir væru hópur með sameiginlega hagsmuni (e. constituency) sem hann kljáðist við (eins og annað. GR)
Svo kom önnur sjálfselskuleg sjálfsupptekningar spurning CNN um áhrif "óreiðu" í Hvíta húsinu á herinn. Því svaraði Mattis svona: velkomin í lýðræðið. Það er subbulegt og allir myndu óska að allt keyrði smurt. En svona er það. Það er hið besta stjórnarfyrirkomulag sem við höfum. "Hlutverk hersins er að halda vígstöðunni, að halda vígstöðunni og að halda vígstöðunni, þar til ríkisstjórn fólksins hefur merkt leiðina áfram og fólkið talað" - sagði hann
James Mattis er ekki þjóðkjörinn og það gerir hann sér fullkomlega grein fyrir. En hann er hins vegar skipaður beint af hinum þjóðkjörna, svo lengi sem sá óskar eftir þjónustu hans. Hann er þjónn
Enginn hefur kosið hinn sjálfselskulega sjálfsupptekningar blaðamann CNN til neins. Og enginn hefði kosið hana hefði hún boðið sig fram. Fólkið kaus Donald J. Trump. En þarna býður hún sig fram sem sjálfselskulegan sjálfsupptekningar blaðamann CNN, sem engan áhuga hefur neinu nema sjálfri sér, kompaní sínu og stöðu hennar innan þess. Hún hefur engan áhuga á lýðræði, því í hennar kokkabókum virðist það þýða lýðbræði
Mattis er með sitt hlutverk á tandurhreinu. En hvert skyldi hlutverk CNN vera; jú að koma ríkisstjórninni frá með lýðbræði ókjörins CNN, greinilega
Fyrri færsla
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Laugardagur, 25. febrúar 2017
Fjölmiðlar ógn við lýðræðið?
Já það eru þeir, svo sannarlega, eins og sést á viðbrögðum flestra þeirra við niðurstöðum bæði Brexit-kosninganna og kjöri Donalds J. Trump. Og í aðdraganda kosninganna voru þessir fjölmiðlar svo svæsnir að sovéska Pravda hefði ekki komist með tærnar þar sem þeir höfðu hælana
Yfirmaður bandarísku alríkislögreglunnar kom við á skrifstofu ríkisstjórnarstjóra Bandaríkjanna í Hvíta húsinu og upplýsti Reince Priebus um að frétt New York Times um "Rússamálið" væri það sem á amerísku er kallað "bullshit". Að FBI vissi að fréttir blaðsins um málið væru "bullshit". Aðför blaðsins, í skjóli ónafngreindra heimilda sem blaðið getur hafa skáldað eða blaðrað upp, að forsetanum og ríkisstjórn hans vegna þessa, væri algjör þvæla frá upphafi til enda. Það sagði FBI
Ríkisstjórnarstjórinn Priebus spurði þá yfirmann FBI að því hvort að FBI gæti ekki sent frá sér fréttatilkynningu um málið. Það sagði FBI að væri ekki hlutverk sitt
Priebus og blaðafulltrúi Hvíta hússins snéru sér þá beint til fjölmiðla með málið. Að bjóða ekki New York Bad Times í það blaðamannaboð er skiljanlegt. Það er varla hægt að snúa sér til þess sem er að reyna að drepa mann
Embætti Barak Ombama var víst þekkt fyrir að bjóða ekki nema útvöldum vinstrifjölmiðlum í sum þau blaðamannaboð sem haldin voru. Bæði formleg og óformelg
Í Bretlandi sturtuðu flestir fjölmiðlar sjálfum sér í það salerni sem þeir höfðu sturtað lýðræðinu í og er nú svo komið að óbragðið í munni manns er svo svæsið og krónískt að ég fæ mig varla til að opna þá sem ég er áskrifandi að. Mest langar mig til að segja áskriftum mínum upp
Eftir forsetakjörið í Bandaríkjunum hafa blöð eins og New York Times og Time beðið áskrifendur á flótta frá blaðinu afsökunar á kamri sínum í þeirri von að halda mætti í þá. En aðeins nokkrum vikum síðar er blaðið fallið ofan hina í krónísku rússnesku tunnu á kamri þess og eygir þar smá áhrifa-, athyglis,- og hagnaðarvon frá skríl hinna vinstri afla sem já, það er leiðinlegt að segja það, hafa bara engan áhuga á lýðræði og virðast ekki einu sinni vera lýðræðissinnar. Sjálft blaðið hefur ekki áhuga á lýðræði, þvert á móti. Það hefur áhuga á lygum og fölskum fréttum, en ekki á niðurstöðum kjósenda
Ég vona að hernaðaráætlun Trumps og Steve Bannon um að tæta í sundur skriffinnskuríkið í Bandaríkjunum takist vel. Hér heima þyrfti að rífa og tæta það apparat í tætlur og koma Íslandi út úr EES, sem er banvæn snerting Íslands við Evrópusambandið, sem þróast hefur í krabbamein
Í Frakklandi hafa dómsdagsspár Sameinaða Seðlabankaveldisins nú hafið göngur sínar í torfum. Af hverju? Jú þar er í forsetaframboði kona sem villa rústa 100 þúsund starfsmannaveldi þess
Fyrri færsla
Fjármálaráðherra Trumps hjólar í Alþjóða gjaldeyrissjóðinn
![]() |
Ógn við lýðræðið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 21. febrúar 2017
Fjármálaráðherra Trumps hjólar í Alþjóða gjaldeyrissjóðinn
B52-Stratofortressa Bandaríkjamanna á flugi yfir Berlínarborg - teppasprengingar Þýskalands á evrusvæðinu eru nú til athugunar hjá Donald J. Trump
Steven Mnuchin nýskipaður fjármálaráðherra Bandaríkjanna hefur krafist þess að Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn rannsaki gengisstefnur aðildarlanda sjóðsins og skili af sér niðurstöðum um það mál. Þetta gerði hann á fundi með Christine Lagarde forstjóra sjóðsins í dag
Fjármálaráðherrann skírskotar með þessu til kengriðins viðskiptajöfnuðar Þýskalands og einnig Kína og Japans. Líta ber á teppakall hans sem fyrsta aðvörunarskotið frá Donald J. Trump í þessum málum
Þýskalandi og Kína er hér með gert að leggja raunsætt mat á hvort löndin meti meira; a) tengsl sín við Bandaríkin, eða b) sín eign efnahagslíkön
Í stuttu máli má segja að efnahagslíkan Þýskalands sé banvænt fyrir evrusvæðið og heimsbyggðina alla, og að efnahagslíkan Kína sé banvænt fyrir heiminn og Kína sjálft
Í tilfelli Þýskalans má líklega tala um efnahagslega nauðgun sem fór fram með því að setja í stjórnarskrá bann við hallarekstri á sama tíma og landið misþyrmdi og kveikti í Húsi fjötranna (evrusvæðinu) til að koma gengi þess neðar og til að fylla þannig á tanka eigin hagkerfis á kostnað annarra
Í austri hefur Bandaríkjaher undir stjórn James Mattis nú lokað Þýskaland af með því að brynverja Austur-Evrópulönd Intermarium svæðisins gegn Rússlandi. Þjónar sú brynvörn einnig sem útgöngubann á Þýskaland til Rússlands
Franski forsetaframbjóðandinn Marine Le Pen fór í gær í heimsókn til kristinna manna í Líbanon. Á dagskrá hennar í dag var svo fundur með æðsta yfirvaldi múslíma í landinu. En ekki gat orðið af þeim fundi, því við komuna til fundarstaðarins var Marine Le Pen gert að hylja sig með slæðu. Því neitaði franski forsetaframbjóðandinn, snéri við í anddyrinu og ók á brott í svörtum átta strokka bandarískum Chevrolet Suburban
Sænska vefblaðið Fria Tider hefur skyndilega tekið upp á því að birta á ensku fréttir um gang mála Svíþjóð. Þar má horfa á myndskeið og lesa grein blaðsins: English: Riots and looting in Stockholm - sést þar sænska lögreglan berjast á götum úti í borgarhluta þar sem 75 prósent íbúanna eru af erlendu bergi brotnir. Kannski er það fjölmenningar-þakklæti sem lýsir borgarhlutann svona upp. Svíþjóð gekk í efnahagslegu hræðslukasti í Evrópusambandið árið 1995
Fyrri færsla
Horfið á það, í gærkvöldi, sem er að gerast í Svíþjóð, sagði Donald Trump
Stjórnmál og samfélag | Breytt 22.2.2017 kl. 02:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 19. febrúar 2017
Horfið á það, í gærkvöldi, sem er að gerast í Svíþjóð, sagði Donald Trump
Á ritmáli hefði þetta verið skrifað svona. "Sáuð þið í gærkvöldi það sem er að gerast í Svíþjóð. Þeir tóku á móti stórum fjölda fólks og eru að upplifa vandamál sem enginn hélt að gætu orðið svona slæm. Hver hefði trúað því að þetta væri að gerast þar. Í Svíþjóð, af öllum löndum."
"you look at what is happening, last night, in Sweden. Sweden, who would believe this? Sweden. They took in large numbers. They are having problems like they never thought possible," Trump said.
Þarna er forsetinn að vísa í það sem sýnt var kvöldið áður í Fox sjónvarpsfréttum um þau hörmulegu vandamál sem geisa í Svíþjóð, vegna þess fólks sem Angela Merkel, keisari Evrópusambandsins, hefur skolað af sér upp á skattakerfi Svíþjóðar. Drekkja átti sænsku þjóðinni með fullum vilja, að því er virðist. Sjá Fox-útsendinguna hér hjá Gústafi
Takk Jón Valur fyrir að útskýra það sem fjölmiðlarar létu hjá líða að útskýra, og að segja þar með rétt og satt frá um þetta mál. Héðan í frá mun ég varla nenna að lesa né hlusta á það sem þeir hafa að segja um flest, og sérstaklega ekki um Donald Trump. Ég mun jafnvel taka veðurfréttum þeirra með auknum fyrirvara. En þetta er ég náttúrlega fyrir löngu byrjaður að gera. En maður fellur stundum fyrir freistingunni að trúa þeim - vegna eigin leti. Og sjaldan trúi ég neinu sem kemur í DDRÚV, en samt er ég látinn borga fyrir það
Ég er orðinn þreyttur á að þurfa að láta mér bregða að óþörfu. Barnablaðsmaður Morgunblaðsins á barnavaktinni hefði betur látið ógert að trúa því sem hann les í öðrum fjölmiðlum en sínum eigin. Þeim er ekki treystandi. Hann hefði átt að lesa sjálfan sig fyrst, þ.e. að rannsaka málið. Það er hlutverk blaðamanna: að vera "trúir blaðamennskunni" en ekki pólitískum málstað - og sem þar fyrir utan, í þessu tilfelli, er gersamlega vonlaus - því allir sjá hvað er að gerast
Stormi dagsins í tómu vatnsglasi er hér með lokið. Sumir vita kannski enn að stormur á dönsku er stormende kuling og strong gale á ensku. Miklu miklu minna en rok, sem er storm á ensku og dönsku
Fyrri færsla
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Sunnudagur, 19. febrúar 2017
A mess, a mess
Hver annar getur sagt þetta eins og það er. Enginn nema Donald J. Trump, greinilega. Fund hans með stjórnarandstöðuhreyfingu ókjörinna fjölmiðla má sjá hér
Fjölmiðlar hafa eyðilagt sig sjálfir. Fólk er hætt að trúa því sem kemur fram í flestum fjölmiðlum. Þetta er slæm staða. En hún er ekki fólkinu að kenna og hún er ekki Donald Trump að kenna
Trump sagði frá því í gær að Lincoln, Jackson og Jefferson hefðu haft horn í síðu fjölmiðla. Og á Jefferson að hafa sagt að loksins þegar sannleikurinn kemur réttur fram í fjölmiðlum, þá er honum ekki trúað vegna þess hversu illa þefjandi sendiboðinn er, þ.e. fjölmiðlarnir sem loksins flytja hann
Um það bil átta af hverjum tíu blaðamönnum eru vinstrisinnaðir. Á DDRÚV er hlutallið sennilega fullkomið vinstrisinnað skoðanaalræði og einhliða heilaþvottur.
Írinn David McWilliams segir að Donald Trump sé að taka Uber á "Washington Insider" veldið og sé það liður hans í efna kosningaloforðið um að ræsta þar út (e. drain the swamp). Hann snýr sér beint til fólksins og fer framhjá veldi þeirra sem ef til vill má kalla "vér einir vitum"
Styrmir Gunnarsson sagði frá því í vikunni að framkoma Evrópusambandsins við Bretland sé farin að minna á nýlendukúgun, eða jafnvel fjárkúgun. Þetta er alveg rétt hjá honum og það er einnig hárrétt hjá honum að sérhver snerting við veldi Evrópusambandsmanna er skaðleg
Þetta minnir mig á að Emmanuel Macron er að lenda í vandræðum í Frakklandi vegna einmitt þess sem Styrmir minnist á, þ.e. nýlendustefnu (e. colonialism). Í kosningabaráttunni hefur Macron tekið upp á því að reyna að fjölga atkvæðum sínum með því að segja, "nýlendustefna er glæpur gegn mannkyninu". Frakkar taka því eðlilega illa að svo einhliða sé fjallað um fortíð landsins
Þetta fékk mig til að hugsa sem svo að frú Marine Le Pen, sem er ekki heimsk og sem kann líka að lesa, muni því koma með það að "Evrópusambandið er glæpur gegn mannkyninu". En Macron styður sambandið. Lítið annað er hægt að lesa út úr nýjustu skýrslu Alþjóða gjaldeyrissjóðsins um Grikkland. Þar er Evrópusambandið að setja heimsmet í efnahagslegri misþyrmingu á nokkurri þjóð í manns minnum og fer Þýskaland þar fremst í aðfararbroddi
Þetta voru mínir fimm aurar
Fyrri færsla
Stjórnmál og samfélag | Breytt 20.2.2017 kl. 19:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Nýjustu færslur
- Tilvistar-vandamál meginlands Evrópu komin í meðferð 7300 km ...
- Kalda stríðið orðið að leit Evrópu eftir alþjóðlegri vernd [u]
- Gunnar Bragi hefur rétt fyrir sér
- Eitthvað sem ekki passar hér [u]
- Kristrún stígur ekki í vitið, svo mikið er nú víst
- Þorgerður mín
- Kína komið til "ósubbulegs" sálfræðings
- ESB og Kína þekkja ekki bandaríska miðvestrið
- Bóndinn og prófessorinn í Selma um tolla Trumps. Grænland
- Evrópa er á leiðinni á nauðungaruppboð: Kaninn unir ekki að G...
- Svo lengi sem Grænland er viðriðið Danmörku mun heimurinn ekk...
- Landsölupakkhús Þorgerðar fúlt út í JD Vance
- Kannski hægt að byrja á farsímavef Veðurstofunnar - strax í d...
- Hamast við moksturinn í Reykjavík
- Grunnvextir hækka á evrusvæðinu - varanlega
Bloggvinir
-
Heimssýn
-
Samtök Fullveldissinna
-
ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
-
Guðmundur Jónas Kristjánsson
-
Ragnhildur Kolka
-
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
-
Haraldur Hansson
-
Haraldur Baldursson
-
Páll Vilhjálmsson
-
Halldór Jónsson
-
Valan
-
Samstaða þjóðar
-
Frjálshyggjufélagið
-
Sigríður Laufey Einarsdóttir
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Jón Valur Jensson
-
Samtök um rannsóknir á ESB ...
-
Kolbrún Stefánsdóttir
-
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
-
Jón Baldur Lorange
-
Guðjón E. Hreinberg
-
Jón Ríkharðsson
-
Anna Björg Hjartardóttir
-
Loftur Altice Þorsteinsson
-
Valdimar Samúelsson
-
Fannar frá Rifi
-
Bjarni Jónsson
-
Sigurður Þorsteinsson
-
Gunnar Ásgeir Gunnarsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Örvar Már Marteinsson
-
Kristin stjórnmálasamtök
-
Gestur Guðjónsson
-
Ingvar Valgeirsson
-
Predikarinn - Cacoethes scribendi
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Guðmundur Helgi Þorsteinsson
-
Lísa Björk Ingólfsdóttir
-
Bjarni Kjartansson
-
Bjarni Harðarson
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
gudni.is
-
Gústaf Adolf Skúlason
-
Tryggvi Hjaltason
-
ESB
-
Marinó G. Njálsson
-
Baldvin Jónsson
-
Elle_
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Emil Örn Kristjánsson
-
Johnny Bravo
-
Jón Finnbogason
-
Rýnir
-
Þórarinn Baldursson
-
P.Valdimar Guðjónsson
-
Már Wolfgang Mixa
-
Ívar Pálsson
-
Júlíus Björnsson
-
Guðjón Baldursson
-
Baldur Fjölnisson
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Einar Ólafsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Vilhjálmur Árnason
-
gummih
-
Sveinn Tryggvason
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Jóhann Elíasson
-
Baldur Hermannsson
-
Kristinn D Gissurarson
-
Magnús Jónsson
-
Ketill Sigurjónsson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Axel Jóhann Axelsson
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Aðalsteinn Bjarnason
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Erla Margrét Gunnarsdóttir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Þorsteinn H. Gunnarsson
-
Haraldur Pálsson
-
Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
-
Bjarni Benedikt Gunnarsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Ægir Óskar Hallgrímsson
-
Helgi Kr. Sigmundsson
-
Óskar Sigurðsson
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Axel Þór Kolbeinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Hörður Valdimarsson
-
Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Margrét Elín Arnarsdóttir
-
Ásta Hafberg S.
-
Erla J. Steingrímsdóttir
-
Helena Leifsdóttir
-
Agný
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Árni Bragason
-
Jón Lárusson
-
Högni Snær Hauksson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Kristinn Snævar Jónsson
-
Sigurður Ingólfsson
-
Rakel Sigurgeirsdóttir
-
Sigurður Þórðarson
-
S. Einar Sigurðsson
-
Pétur Steinn Sigurðsson
-
Vaktin
-
Sigurjón Sveinsson
-
Dóra litla
-
Arnar Guðmundsson
-
Jörundur Þórðarson
-
Rafn Gíslason
-
Hjalti Sigurðarson
-
Kalikles
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Egill Helgi Lárusson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Halldóra Hjaltadóttir
-
Jón Pétur Líndal
-
Guðmundur Ásgeirsson
-
Reputo
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Ólafur Als
-
Friðrik Már
-
Gísli Sigurðsson
-
Sigurður Einarsson
-
Rauða Ljónið
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Gísli Kristbjörn Björnsson
-
Kári Harðarson
-
Sigurður Antonsson
-
Valdimar H Jóhannesson
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Dagný
-
Guðmundur Pálsson
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Birgir Viðar Halldórsson
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
-
Tíkin
-
Jón Þórhallsson
-
Íslenska þjóðfylkingin
-
Erla Magna Alexandersdóttir
-
Óskar Kristinsson
-
Dominus Sanctus.
-
Ingólfur Sigurðsson
-
Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.9.): 7
- Sl. sólarhring: 17
- Sl. viku: 106
- Frá upphafi: 1407529
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 65
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Ágúst 2025
- Júlí 2025
- Júní 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008