Leita í fréttum mbl.is

Rúllað yfir ESB-hrúguna

TRUMP HRINGDI Í PÚTÍN

Donald J. Trump forseti Bandaríkjanna hringdi í Vladímír Vladímírovich Pútin forseta Rússlands og þeir komust að samkomulagi um að tími sé kominn til að reyna nú að binda enda á stríðið í Úkraínu. Eftir rúmlega 90 mínútna samtal forsetanna tveggja sló Trump svo stund síðar á þráðinn til Kænugarðs til að tilkynna Zelensky forseta Úkraínu um samtalið

Þann 30. janúar sagði Marco Rubio nýr Trump-utanríkisráðherra Bandaríkjanna í viðtali við Megyn Kelly, að sú staða í heimsmálum sem komst á eftir lyktir Kalda stríðsins hafi verið undantekningarástand og að sá eins-póls heimur sem þá varð, sé nú liðinn undir lok. Fleiri valdapólar eru nú aftur virkir á veraldarsviðinu, þar á meðal Rússland, Kína og Indland

"So it is not normal for the world to simply have a unipolar power. That was not – that was an anomaly. It was a product of the end of the Cold War, but eventually you were going to reach back to a point where you had a multipolar world, multi-great powers in different parts of the planet." - (feitletrun mín)

Rubio sagði einnig að það hefði verið óheiðarleiki að reyna telja mönnum trú um að Úkraína gæti unnið stríð við Rússland og jafnvel lagt Rússland að velli. En þá sögu hafa t.d. stórfjölmiðlar vesturlanda apað upp eftir Biden-stjórninni, Pentagon og NATO og reynt að troða henni ofan í lesendur sína í bráðum þrjú ár. Fjölmiðlar þeir eru sannarlega verri en rusl og klárir í tunnurnar. Engir björgunarbátar geta bjargað þeim

"But what – the dishonesty that has existed is that we somehow led people to believe that Ukraine would be able not just to defeat Russia but destroy them, push them all the way back to what the world looked like in 2012 or 2014, before the Russians took Crimea and the like.” - (feitletrun mín)

En nú er Trump sem sagt búinn að tala við Pútín og ef ESB-hrúgunni líkar ekki það sem þessir tveir semja um sín á milli, þá hendir Trump öllu Úkraínumálinu í hausinn á ESB-Evrópu eins og það leggur sig, og lætur hrúguna þá alfarið um það mál

Dansinn við Rússa verður þungur fyrir Trump og hann mun ekki hafa mikla þolinmæði í margþjóðakjaftæði. Úkraína mun aldrei ganga í NATO (enda hafa íbúar Úkraínu aldrei viljað það) og Rússar munu lögga restina af landinu og sjá til að svona geggjun eins komst á laggirnar þar 2014 endurtaki sig aldrei aftur

Svona mun þetta verða, eða í þessum stíl - og svo mun til dæmis John Bolton Rússahatari ásamt ýmsum öðrum heimsþekktum Rússahöturum sennilega kafna í eigin frekju

Bíður nú símanúmeralaus ESB-hrúgan eftir nánari málavöxtum úti í horni - því vaxa munu málin þau. Vaxa munu þau... og vaxa

Svo er það Grænland.... tralla la la

Fyrri færsla

Guðrún Hafsteinsdóttir næsti formaður Sjálfstæðisflokksins


mbl.is Trump hringdi í Pútín: Hefja viðræður án tafar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guðrún Hafsteinsdóttir næsti formaður Sjálfstæðisflokksins

GUÐRÚN HAFSTEINSDÓTTIR

Guðrúnu Hafsteins - fundur Salurinn 8 feb 2025

Horfa hér á vef mbl (nýr gluggi)

****

Ég mæli með Guðrúnu Hafsteinsdóttur sem næsta formanni Sjálfstæðisflokksins. Í henni er allt að finna sem öflugur formaður þarf að hafa. Hvorki meira né minna. Og það er ótrúleg heppni fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Þarna er því um algjört fullfermi að ræða fyrir flokkinn okkar

Það var einmitt á sama stað æviskeiðsins að Margrét Thatcher varð leiðtogi Breska íhaldsflokksins og sem þar með varð leiðtogi stjórnarandstöðunnar - og sigurvegari komandi kosninga

Screen Shot 2024-12-12

Aldrei gerst áður

****

Bjarni Benediktsson varð formaður of ungur, en hættir núna, óverðskuldað og of snemma, loksins þegar hann hafði náð þroska og fullu afli. Þannig ótímabær draugagangur gekk auðvitað ekki upp fyrir Sjálfstæðisflokkinn og allra síst í kjörklefunum. Bjarni var óheppinn því árið 2024 var einstakt í kosningasögu þróaðra ríkja, því allir ríkisstjórnarflokkar í öllum þróuðum löndum töpuðu í öllum kosningum sem haldnar voru á einmitt árinu 2024. Slíkt hefur aldrei áður gerst

Íslenska þjóðin er öðruvísi samsett nú en áður. Aldrei áður hefur verið hlutfallslega eins lítið af ungu fólki með kosningarétt í landi okkar. Kjósendur yngri en 30 ára eru aðeins 18 prósentur á meðan kjósendur eldri en 40 ára eru 65 prósentur af öllum kjósendum. Það væri því absúrd fyrir xD að burðast með of ungan formann. Flokkurinn yrði einfaldlega ekki kosinn

Of ungur formaður Sjálfstæðisflokks vegur ekki nógu þungt meðal þroskaðra kjósenda - og ungt fólk er þess utan ekki kjarnakjósendur Sjálfstæðisflokksins og verður það aldrei, til þess er það einfaldlega ekki nógu þroskað, því það er enn á gelgjuskeiðinu. Þetta þekki ég af eigin reynslu

Guðrún er allt það sem Sjálfstæðisflokkinn okkar vantar: fullfermi

Fyrri færsla

Bandaríkin eru nettó-innflytjandi


Bandaríkin eru nettó-innflytjandi

Af hverju skyldu Bandaríkin ekki vinna "tollastríð" þegar þau flytja aðeins út 13 prósentur landsframleiðslunnar

Og vel að merkja þýða nýir tollar ekki endilega "tollastríð" því land eins og Þýskaland sem flytur út 47 prósentur landsframleiðslunnar getur ekki svarað í sömu mynt án þess að verða dæmt sem gengisfalsari og hrægammasjóður dulbúið sem ríki, sem það er: þ.e. cartel

Bandaríkin eru ekki útflutningsland. Þau flytja fyrst og fremst inn og þeim innflutningi og fyrirkomulagi hans vill Trump breyta. Og það getur hann vel gert - með mjög góðum árangri

Glóbaliseringin var dæmd til að leiða fram einmitt þessi viðbrögð nettóinnflytjandaríkis á borð við Bandaríkin, þegar því fer að leiðast hlutverkið sem neytandi alls heimsins til þrautarvarna

Það fer ekki ESB-alka á borð við Þorgerði Katrínu að koma með svona fávitalegar yfirlýsingar. Hún veit ekkert því ESB-alkar vita aldrei neitt. Heilinn í þeim er sennilega lyga- og klisjuskaddaður sbr. raðlygar þeirra um "aðildarviðræður" þegar þær eru ekki til, heldur bara acquis

PS:

Ég bíð með spenningi eftir þingkosningunum í Þýskalandi þann 25. þessa mánaðar, því ekki er með öllu útilokað að spá Beatrix von Storch í AfD-flokknum í þýska ARD sjónvarpinu 2016, um að Angela Merkel kanslari, öryggis síns vegna, neyðist til að flýja Þýskaland eftir gömlum flóttaleiðum til Suður-Ameríku, þegar hún fer frá völdum, muni rætast í jafnvel þessum febrúarmánuði anno 2025. Angela Merkel, sagði hún, "hefur eyðilagt Þýskaland það mikið að leita þarf aftur til ársins 1945 til að finna álíka eyðileggingarafl í Þýskalandi og Evrópu". Þetta er sú flóttaleið sem Erich Honecker flokksfélagi Angelu Merkel úr DDR fór - og fleiri á undan honum

Hollt er að minnast þess að Rúmenía var skuldlaust ríki þegar íbúarnir tóku Nicolae Ceausescu forseta þess af lífi

Fyrri færsla

Kristrún að kafna undir Ingu. Kvika blasir við


mbl.is Þorgerður Katrín: Tollastríð gagnast engum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kristrún að kafna undir Ingu. Kvika blasir við

Kristrún og Inga jóla

Mynd: Inga og Kristrún glíma... við hvað?

****

Maður sér líkhvíta litinn færast yfir Kristrúnu á meðan það hlakkar í Ingu sem heldur þéttingsfast um pólitíska slagæð ríkisstjórnarinnar. Og situr reyndar á henni, því hún er utanáliggjandi

Togað er af öllum krata-kröftum, því þetta er "upphafsskref okkar stelpnanna í því hvernig við ætlum að vinna saman"

Saman með Samfylkingu og saman við köfnum. Samköfnun fjölbreytileikans

Dagurinn í gær var því "tilfinningaríkur og líka kærleiksríkur"

Já já og svo verðum við gjaldþrota, saman. ESB-gjaldþrota

Þetta þurfti ekki að fara svona, en löngunin í ESB-spillinguna varð og verður áfram ríkisstjórninni að falli

En gervigreindin lifir. Engin ný tækni þar. Bara nýr kóði

Hvað skyldi kóðaorð ríkisstjórnarinnar vera? Er það nokkuð INGA. Eða er það kannski ESB...

Screen Shot 2025-01-28 at 10.27.34

Lengi lifi gervigreindin. Gervi gervi og gervi...

Fyrri færsla

Kanslaraefni CDU segist ætla að loka landamærum Þýskalands og Schengen á fyrsta degi sínum í embætti; varanlega


Kanslaraefni CDU segist ætla að loka landamærum Þýskalands og Schengen á fyrsta degi sínum í embætti; varanlega

Taugaveikis-svæðið, myntbandalag ESB

Taugaveikisvæði Evrópu: myntbandalag ESB

****

Það nýjasta frá hinu sökkvandi Evrópusambandi meginlands Evrópu er það að Friedrich Merz kanslaraefni Kristilega demókrataflokksins (CDU) hefur dregið rauða línu umhverfis Þýskaland. Verði hann kanslari eftir þingkosningarnar í febrúar næstkomandi, þá segist hann á fyrsta degi sínum í því embætti ætla að loka opnum landamærum Þýskalands varanlega og loka Schengen-fyrirkomulaginu niður fyrir fullt og allt hvað Þýskaland varðar

Ekki er seinna vænna fyrir Þjóðverja að huga að slíku, því allt logar þar stafnanna á milli vegna pólitískrar helstefnu Angelu Merkels flokkssystur Merz frá DDR í útlendingamálum, sem og í nær öllum öðrum málum. Þess utan hefur þriðjungur þýskra iðnaðarfyrirtækja nú flutt rannsóknar- og þróunarvinnu sína burt frá Þýskalandi. Þar virðist sviðin jörð vera helsti árangurinn af ESB-þátttökunni

Þýsku rassaköstin koma yfirleitt á 80-100 ára fresti. Það vita Rússar manna best. Allur er því varinn góður

Fyrri færsla

Mætti í vinnuna strax í gærkvöldi og hóf störf


Mætti í vinnuna strax í gærkvöldi og hóf störf

Fréttamenn í áfalli yfir að fá að spyrja forseta landsins spurninga. Og vita varla hvaðan á þá standa fréttirnar

Fjölmiðlar vesturlanda, verndarenglar Biden-skólpfötunnar, í áfalli yfir að Bandaríkin skuli aftur vera komin með forseta

Fyrri færsla

Ísland og Grænlandsmálið


Ísland og Grænlandsmálið

Myntbandalagið sekkur

Hvað sem mönnum kann að finnast um milliríkjamál, þá sést hér svart á hvítu til hvaða aðgerða ríki eru tilbúin að grípa til að vernda þjóðaröryggi sitt

Í tilfelli Grænlands óttast Bandaríkin að Grænland lendi undir röngum hæl þ.e.a.s lendi undir áhrifavaldi öflugs ríkis eða stórríkis sem leitt geti til þess að það fái með tíð og tíma hernaðar- eða jafnvel herstöðvaraðstöðu á Grænlandi, undir sívaxandi áhrifavaldi "erlendra fjárfestinga" og sem í tilfelli t.d. Kína eru ríkisfjárfestingar kommúnistaflokksins

Í tilfelli Rússlands og Úkraínu eru rökin þau sömu. NATO verður ekki heimilað að fá herstöðvaraðstöðu í gerspilltri Úkraínu, vegna ótta Rússa við villta vestrið sem í tvígang tröllreið þar húsum undir Napóleon og Hitler á síðustu 213 árum

Ef menn skilja afstöðu Bandaríkjanna varðandi Grænland, þá ættu þeir einnig að geta skilið afstöðu Rússlands varðandi Úkraínu og NATO

Reglan um að ríki geti ekki aukið þjóðaröryggi sitt á kostnað þjóðaröryggis annarra ríkja, einkum nágrannaríkja, gildir líka hér. Sé hún virt að vettugi, eins og NATO hefur gert mtt. Rússlands, þá getur komið til stríðs, eins og háð er núna þar eystra

Ég skil afstöðu Bandaríkjanna mjög vel. Og ég skil afstöðu Rússlands mjög vel

Þetta var hins vegar óhugsandi fyrir aðeins nokkrum áratugum síðan. Þá var heimsáhrifavald Bandaríkjanna svo mikið að þeim varð vart skákað. Það tímabil mannkynssögunnar var hins vegar undantekningarástand, sem nú er lokið. Eins-póls heimur sá er nú horfinn og fleiri valdapólar eru aftur virkir á veraldarsviðinu. Heimurinn er genginn í samt lag eftir að þetta undantekningarástand eftirstríðsáranna leið undir lok. Heimurinn er ekki lengur ein samfelld rjúkandi rúst þar sem aðeins ein valdaþjóð var uppistandandi

Á þessu tímabili stunduðu Bandaríkin utanríkispólitík í gegnum NATO. En það er ekki lengur mögulegt því enginn hefur efni á NATO, ekki einu sinni Bandaríkin, og geta bandalagsins er einnig horfin. Það utanríkispólitíska valdatæki Bandaríkjanna er því hér með orðið bitlaust

Og þá þurfa Bandaríkin að endurskilgreina utanríkispólitíska stefnugetu sína í heiminum og þau valdatæki sem mögulegt er að notast við, því NATO er farið. Það er alveg farið - eins og allar félagsmálastofnanir í tilvistarmikilvægum málum enda

Lendingin fyrir Bandaríkin er auðvitað sú að þétta Monroe-regluna (e. Monroe Doctrine) og endurskipuleggja sig sem fyrst og fremst heimshlutaveldi í stað hins gamla heimsáhrifaveldis sem nú er að líða undir lok á hernaðargetusviðinu

Það er hollast fyrir okkur Íslendinga að styðja Kanann í þessu máli því eins og Björn Bjarnason bendir réttilega á: Grænlandi verður ekki sinnt eins og þarf, nema frá Íslandi

Kaninn ætti því að biðja okkur um að aðstoða Grænlendinga til einhverskonar sjálfstæðis því Kaninn er allt of stór í svona verk. Hann myndi bara trampa og ráfa þarna hjálparlaus um eins og fíll í kristalbúð. Enginn Kani myndi vilja búa á Grænlandi nema samkvæmt tilskipun. Við gætum hins vegar gert þetta fyrir þá. Kaninn myndi reka öryggis- og varnarmálin. Við getum þetta vel og reyndar betur en allir aðrir, því við erum nógu smá og því ekki ógn í augum Grænlendinga

Mér sýnist Trump ætla að láta verða af því að koma í veg fyrir að Grænland lendi á "vitlausum höndum", eða undir "vitlausum hæl". Danmörk sjálf ræður ekki við þetta, hún er allt of langt í burtu og þess utan að drukkna í Evrópusambandinu, enda er Danmörk fyrst og fremst bóla á afturenda Þýskalands. Hún er af raunpólitískum ástæðum bundin þar við þýskan girðingarstaur eins og til dæmis mynt Dana hefur nær ávallt verið. Danir raun-ráða þar litlu sem engu

Við gætum t.d. virkjað meira hér heima og hugsanlega selt rafmagn til Grænlands, haldið uppi flugsamgöngum og skipaferðum og séð Grænlendingum, plús Kananum, fyrir sjúkrahúss- og heilbrigðisþjónustu, ástamt herstöðvaraðstöðu hér heima. Íslenskur landbúnaður hefur þarna þarft verka að vinna

Heimurinn er breyttur

Fyrri færsla

"Alþjóðsamskipti" - ha ha ha ha ha ha ha


mbl.is Hvetur Evrópu til að „halda kúlinu“ gagnvart Trump
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Alþjóðsamskipti" - ha ha ha ha ha ha ha

Af hverju er verið að flagga hvaða erlenda fífli sem er sem spámanni í fréttum hérlendis

Þessi maður ætti kannski að fá sér vinnu í sirkus. Þar gæti hann stillt sér út sem háskólamenntuðum fuglahræðusérfræðingi í utanjarðarveruleika plánetu Pé, þar sem ekkert praktískt líf er að finna

Hefði þessi maður verið uppi þegar Bretar sendu herskipaflota á okkur Íslendinga þá hefðum við örugglega kallað hann klappþorsk. Hið sama gildir þegar Bretar hernámu land okkar - án þess að spyrja hvorki kóng né svona kommaprest með loftslag

Illa er komið fyrir Kanada að hafa verpt svona fúleggjum

"Alþjóðsamskipti" - ha ha ha ha ha ha ha

Það heitir þjóðasamskipti. Engin "alþjóð" er til - og verður það aldrei

======

PS: Mér finnst slæmt að missa Bjarna Ben sem formann flokks míns, en sætti mig þó –nauðbeygður– við það. Finnst hann loksins hafa náð réttum aldri og þroska í stjórnmálum. Gangi þér vel Bjarni

Fyrri færsla

Bjarni Ben sá þetta auðvitað strax, enda mestur og bestur


mbl.is Ríkisstjórn Trumps virðist ekki átta sig á málinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjarni Ben sá þetta auðvitað strax, enda mestur og bestur

Glöggt er bjarnarauga. Það tók Bjarna Benediksson formann Sjálfstæðisflokksins –minn flokkur og minn formaður– ekki nema nokkrar sekúndur að koma auga á að þetta getur ekki gengið upp

Já en Bjarni, segi ég, þú skilur þetta ekki því komandi embættismanns-fjármálaráðherrann var samþykktur á ráðgjafafundi! - og svo hefur dagurinn þess utan verið "tilfinningaríkur og líka kærleiksríkur". Þetta eru nefnilega "upphafsskref okkar stelpnanna í því hvernig við ætlum að vinna saman"

Þetta síðasta breytir öllu Bjarni. Algjörlega öllu!

Þú manst Bjarni þegar þær voru að heimta miklu meiri ríkisútgjöld af þér í Kínaveiru-faraldrinum. Nú hafa þær því komið ókjörnum sjálfsala fyrir í fjármálaráðuneytinu. Kjötkrók hefur þar með verið breytt í skammarkrók. Dagarnir verða því "tilfinningaríkir og líka kærleiksríkir". Þarna fer ríkt fólk

Lánshæfnismat, hvað er það?

Fyrri færsla

Lánshæfnismat Frakklands lækkað. Heil 25-35 ár af hergagnaframleiðslu horfin


mbl.is Bjarni: „Útilokað að þetta geti gengið upp“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lánshæfnismat Frakklands lækkað. Heil 25-35 ár af hergagnaframleiðslu horfin

RÍKISSJÓÐUR FRAKKLANDS

Eftir lokun markaða síðastliðinn föstudag lækkaði Moodys lánshæfniseinkunn franska ríkisins. Einkunnin sem Frakkland hafði var Aa2. Hið nýja lánstrausts- og endurgreiðslugetumat Moodys hvað ríkissjóð Frakklands varðar er því frá og með nú Aa3 - með stöðugum horfum. Í október hafði Moodys gefið út neikvæðar horfur fyrir lánshæfniseinkunn Frakklands og raungerðust þær á föstudaginn

Í septembermánuði síðastliðnum hækkaði Moodys lánshæfniseinkunn ríkissjóðs Íslands og er hún nú A1 - með stöðugum horfum. Það er þá einu þrepi fyrir neðan sjálfan stofnanda evrunnar: Frakkland

RÍKISSTJÓRN FRAKKLANDS

Rætt er nú um hvort að Francois Bayrou hinn nýi forsætisráðherra Frakklands muni geta lifað lengur af í því embætti en forveri hans Michel Barnier, sem sat í því í rétt rúma þrjá mánuði. Er Bayrou nú þriðji forsætisráðherra Frakklands á þessu ári

Í STJÓRNARHERBERGJUM FRAKKLANDS

Þar ræða menn í stærstu fyrirtækjum landsins um hvort að fyrirtækið eða hlutar þess skuli yfirgefa Frakkland eða ekki. Ofan í ýmsar aðrar ástæður er nú vísað til hins pólitíska óstöðugleika sem lagst hefur yfir landið. Og af evrulöndunum öllum eru frönsk fyrirtæki ekki þau einu sem íhuga slíkt, því hið sama er að gerast í Þýskalandi og víðar á evrusvæðinu

Stjórnleysi í löndum Evrópusambandsins fer hratt vaxandi í takt við fjölda þeirra nýrra flokka sem eldri flokkar útiloka frá ríkisstjórnarþátttöku. Á endanum leiðir slík stefna til pólitískra gjaldþrota eldri flokka því nýir flokkar fá að lokum hreinan meiri hluta eða þá að byltingar verða gerðar

BÚNIR AÐ STÚTA 25-35 ÁRA HERGAGNAFRAMLEIÐSLU

Samkvæmt skýrslu Center for Strategic and International Studies í Bandaríkjunum var Rússneski herinn búinn að stúta 18 ára hergagnaframleiðslu Bandaríkjanna á mörgum sviðum um þar síðustu áramót. Það er að segja þeirri hergagnaframleiðslu sem Bandaríkin hafa sent til Úkraínustjórnarinnar og sem Rússar hafa tortímt

Skýrsla CSIS um þetta mál kom út um þar síðustu áramót. Má því hið minnsta gera ráð fyrir því að Rússneski herinn hafi í dag, tæpum tveimur árum síðar, komið 25-35 ára hergagnaframleiðslu Bandaríkjanna fyrir kattarnef. Hér má sjá daglegt uppgjör rússneska varnarmálaráðuneytisins. Eftirfarandi er niðurlag uppgjörsins yfir gærdaginn og sem kom út í dag - (PDF)

"In total, since the beginning of the special military operation, 650 aircraft, 283 helicopters, 38,064 unmanned aerial vehicles, 590 anti-aircraft missile systems, 19,844 tanks and other armoured fighting vehicles, 1,502 MLRS combat vehicles, 19,822 field artillery guns and mortars, and 29,326 units of support military vehicles have been neutralised."

Markmið Rússlands með hinni Sérstöku hernaðaraðgerð í Úkraínu er meðal annars að afvopna landið og koma þar á hlutleysi. Að Rússneski herinn sé í leiðinni einnig að afvopna allt NATO var sennilega ekki séð fyrir þegar vestrið hló sig stórt, undir slagorðum um að Rússland væri næstum því ekki neitt

Vona má að Rússland haldi sig við Sérstaka hernaðaraðgerð svo ekki þurfi að koma til þess sem Rússar kalla stríð, því þar yrði tappinn líklega algjörlega tekinn úr NATO-ríkjunum öllum

PS: Nýlega heyrði ég vitnað í Otto von Bismarck, sem á að hafa sagt: "að gera fyrirbyggjandi árás á Rússland er eins og að reyna að komast hjá dauða með því að fremja sjálfsmorð"

Fyrri færsla

Frakkland gæti gengið í Evrópusambandið og tekið upp evru

 


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband