Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2024

Bjarni Ben sá þetta auðvitað strax, enda mestur og bestur

Glöggt er bjarnarauga. Það tók Bjarna Benediksson formann Sjálfstæðisflokksins –minn flokkur og minn formaður– ekki nema nokkrar sekúndur að koma auga á að þetta getur ekki gengið upp

Já en Bjarni, segi ég, þú skilur þetta ekki því komandi embættismanns-fjármálaráðherrann var samþykktur á ráðgjafafundi! - og svo hefur dagurinn þess utan verið "tilfinningaríkur og líka kærleiksríkur". Þetta eru nefnilega "upphafsskref okkar stelpnanna í því hvernig við ætlum að vinna saman"

Þetta síðasta breytir öllu Bjarni. Algjörlega öllu!

Þú manst Bjarni þegar þær voru að heimta miklu meiri ríkisútgjöld af þér í Kínaveiru-faraldrinum. Nú hafa þær því komið ókjörnum sjálfsala fyrir í fjármálaráðuneytinu. Kjötkrók hefur þar með verið breytt í skammarkrók. Dagarnir verða því "tilfinningaríkir og líka kærleiksríkir". Þarna fer ríkt fólk

Lánshæfnismat, hvað er það?

Fyrri færsla

Lánshæfnismat Frakklands lækkað. Heil 25-35 ár af hergagnaframleiðslu horfin


mbl.is Bjarni: „Útilokað að þetta geti gengið upp“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lánshæfnismat Frakklands lækkað. Heil 25-35 ár af hergagnaframleiðslu horfin

RÍKISSJÓÐUR FRAKKLANDS

Eftir lokun markaða síðastliðinn föstudag lækkaði Moodys lánshæfniseinkunn franska ríkisins. Einkunnin sem Frakkland hafði var Aa2. Hið nýja lánstrausts- og endurgreiðslugetumat Moodys hvað ríkissjóð Frakklands varðar er því frá og með nú Aa3 - með stöðugum horfum. Í október hafði Moodys gefið út neikvæðar horfur fyrir lánshæfniseinkunn Frakklands og raungerðust þær á föstudaginn

Í septembermánuði síðastliðnum hækkaði Moodys lánshæfniseinkunn ríkissjóðs Íslands og er hún nú A1 - með stöðugum horfum. Það er þá einu þrepi fyrir neðan sjálfan stofnanda evrunnar: Frakkland

RÍKISSTJÓRN FRAKKLANDS

Rætt er nú um hvort að Francois Bayrou hinn nýi forsætisráðherra Frakklands muni geta lifað lengur af í því embætti en forveri hans Michel Barnier, sem sat í því í rétt rúma þrjá mánuði. Er Bayrou nú þriðji forsætisráðherra Frakklands á þessu ári

Í STJÓRNARHERBERGJUM FRAKKLANDS

Þar ræða menn í stærstu fyrirtækjum landsins um hvort að fyrirtækið eða hlutar þess skuli yfirgefa Frakkland eða ekki. Ofan í ýmsar aðrar ástæður er nú vísað til hins pólitíska óstöðugleika sem lagst hefur yfir landið. Og af evrulöndunum öllum eru frönsk fyrirtæki ekki þau einu sem íhuga slíkt, því hið sama er að gerast í Þýskalandi og víðar á evrusvæðinu

Stjórnleysi í löndum Evrópusambandsins fer hratt vaxandi í takt við fjölda þeirra nýrra flokka sem eldri flokkar útiloka frá ríkisstjórnarþátttöku. Á endanum leiðir slík stefna til pólitískra gjaldþrota eldri flokka því nýir flokkar fá að lokum hreinan meiri hluta eða þá að byltingar verða gerðar

BÚNIR AÐ STÚTA 25-35 ÁRA HERGAGNAFRAMLEIÐSLU

Samkvæmt skýrslu Center for Strategic and International Studies í Bandaríkjunum var Rússneski herinn búinn að stúta 18 ára hergagnaframleiðslu Bandaríkjanna á mörgum sviðum um þar síðustu áramót. Það er að segja þeirri hergagnaframleiðslu sem Bandaríkin hafa sent til Úkraínustjórnarinnar og sem Rússar hafa tortímt

Skýrsla CSIS um þetta mál kom út um þar síðustu áramót. Má því hið minnsta gera ráð fyrir því að Rússneski herinn hafi í dag, tæpum tveimur árum síðar, komið 25-35 ára hergagnaframleiðslu Bandaríkjanna fyrir kattarnef. Hér má sjá daglegt uppgjör rússneska varnarmálaráðuneytisins. Eftirfarandi er niðurlag uppgjörsins yfir gærdaginn og sem kom út í dag - (PDF)

"In total, since the beginning of the special military operation, 650 aircraft, 283 helicopters, 38,064 unmanned aerial vehicles, 590 anti-aircraft missile systems, 19,844 tanks and other armoured fighting vehicles, 1,502 MLRS combat vehicles, 19,822 field artillery guns and mortars, and 29,326 units of support military vehicles have been neutralised."

Markmið Rússlands með hinni Sérstöku hernaðaraðgerð í Úkraínu er meðal annars að afvopna landið og koma þar á hlutleysi. Að Rússneski herinn sé í leiðinni einnig að afvopna allt NATO var sennilega ekki séð fyrir þegar vestrið hló sig stórt, undir slagorðum um að Rússland væri næstum því ekki neitt

Vona má að Rússland haldi sig við Sérstaka hernaðaraðgerð svo ekki þurfi að koma til þess sem Rússar kalla stríð, því þar yrði tappinn líklega algjörlega tekinn úr NATO-ríkjunum öllum

PS: Nýlega heyrði ég vitnað í Otto von Bismarck, sem á að hafa sagt: "að gera fyrirbyggjandi árás á Rússland er eins og að reyna að komast hjá dauða með því að fremja sjálfsmorð"

Fyrri færsla

Frakkland gæti gengið í Evrópusambandið og tekið upp evru

 


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Frakkland gæti gengið í Evrópusambandið og tekið upp evru

 VEGNA FRÉTTAR MBL:

Macron leitar að nýjum forsætisráðherra

****

Það þýðir að minnsta kosti ekkert fyrir Macron Frakklandsforseta að leita að nýjum forsætisráðherra í Þýskalandi, því Olaf Scholz kanslari þar í landi varð svo hræddur þegar Donald J. Trump var kjörinn forseti Bandaríkjanna á ný þann 5. nóvember síðastliðinn, að hann kom ríkisstjórn Þýskalands strax fyrir kattarnef daginn eftir. Það gerði hann með því að reka sjálfan fjármálaráðherra Þýskalands úr ríkisstjórninni, en sá maður var úr öðrum samstarfsflokknum af tveimur

Gerði Scholz þetta í þeirri von að breiða mætti stjórnleysisábreiðu yfir Þýskaland svo að Trump gæti ekki gert neinar kröfur til landsins, því það væri nefnilega "ríkisstjórnarlaust með öllu" - og á leið til Weimar á ný. Enginn væri heima

Leikflétta Olafs Scholz kanslara Þýskalands var sú að með því að reka fjármálaráðherrann hélt Scholz að hann gæti frestað kosningum vegna hvellsprunginnar ríkisstjórnar sinnar fram í apríl á næsta ári - og að "stjórnarmyndunarviðræður" tækju síðan að þeim loknum að minnsta kosti þrjá mánuði. Þannig að Þýskaland hefði öngva ríkisstjórn og því yrði enginn til að svara í símann fyrr en í fyrsta lagi eftir sumarfrí 2025

Það myndi því ekkert þýða fyrir Trump að hringja því það yrði enginn heima fyrr en í fyrsta lagi þá. Og að þá væri nýkjörnum Trump vonandi runnið æðið - og allar kröfur hans um að Þýskaland standi við skuldbindingar sínar í NATÓ (plató) yrðu gleymdar og grafnar samkvæmt 30-ára venju Þýskalands síðastliðna áratugi. Því fyrir Þýskalandi er NATÓ félagsmálastofnun

Og síðan er það náttúrlega sjálfur Pétur Navarro sem núna verður aðalefnahagsráðunautur Trumps í nýrri ríkisstjórn, en hann var viðskiptaráðsforstjóri Hvíta hússins í fyrri stjórn Trumps - og var þá á góðri leið með að fá Þýskaland skilgreint sem gengisfalsara

En nú er búið að þvinga Scholz -að minnsta kosti á pappír- til að flýta komandi kosningum um tvo mánuði, þannig að hugsanlegt er að þær verði sei sei haldnar í febrúar! Ný ríkisstjórn í Þýskalandi gæti því einnig heppilega átt á hættu að þurfa að svara í símann í miðju stóriðnaðarsumarfríi, sem gengur auðvitað ekki. Þannig - það verður enginn heima í Þýskalandi fyrr en í ágúst 2025

SPURNINGAR

Jæja, hvað um það. Ingólfur minn ágæti Sigurðsson spurði mig eftirfarandi spurninga í athugasemd við síðustu bloggfærslu:

"Fyrirgefðu að ég skuli vera að trufla þig aftur með athugasemd Gunnar, en ég met þig svo mikils, eins og þú sért gömul völva og mér finnst meira mark á þér takandi en mörgum sem tala um að norræna, evrópska módelið sé eilíft og ódauðlegt.
En nú er franska ríkisstjórnin fallin, í fyrsta sinn í 60 ár sem vantraust er samþykkt á þinginu á sitjandi stjórn.
Það sama er að gerast í flestum löndum, að þessi ESB stefna Angelu Merkel um að allir lifi í friði og sætti sig við aukna glæpatíðni og fátækt, þetta er ekki að njóta vinsælda almennings.
Hvað heldur þú? Kemst Le Pen til valda? Síðan eru þarna öflugir vinstrimenn í Frakklandi. En þetta er á suðupunkti eins og sagt er, og ekki bara í Frakklandi?
Fara ekki að verða breytingar á og þjóðernissinnar komist til valda brátt? Eða komast öfgavinstrimenn til valda?
Mun Evrópusambandið enn herða tökin á þegnum með reglugerðum?
Spennandi tímar sem við lifum.
Það eru átök framundan, sýnist manni. Það eru fáir sem hafa skrifað eins vel um þetta og þú.
Það er svo oft sem menn hunza ýmis atriði af óskhyggju og segja að svona ólga jafni sig, og sama valdaelítan haldi áfram."

SVAR MITT VARÐ ÞETTA

Það er ekki auðvelt að svara spurningum þínum svo vel sé Ingólfur, því ekkert eitt svar er til við þeim

En svo við byrjum á Þýskalandi, þá er það á sinni annarri tilraun til lýðræðis og eins konar þjóðríkis. Sú fyrsta mistókst; því Hitler kom og bakkaði Þýskalandi út úr Weimar-þjóðríkislýðveldinu og inn í keisaralegt einræði eða "heimsveldi" aftur (e. imperial-state). Sú getur vel orðið raunin á ný, því eins og við sjáum á valdaránstilrauninni í Suður-Kóreu núna þá er ekkert öruggt í svona "hönnunar"-ríkjum. En bæði ríkisfyrirbærin eru skilgetin afkvæmi Bandaríkjanna

Það er víst óhætt að segja að þarna hafi Wisconsin-steypumótið látið undan hinum erfðafræðilega víbrator og hin útópísku bandarísku steypumót gefið eftir; að minnsta kosti í Suður-Kóreu. Ætli eitthvað svipað verði ekki uppi í Þýskalandi, sem á pappír stendur enn uppi en þá fyrst og fremst sem Wisconsin-freðið lík

Í Austurríki hefur gamla erfðamengið klekkt sér betur út í seiðaeldisstöðvum hábjánanna í ESB. Þar óskar einn þriðji hluti þjóðarinnar sér að nýr "sterkur maður" komist til valda og sem ekkert tillit þarf að taka til þingsins. Meðal yrti-kantamanna á vinstri- og hægrivæng er hlutfallið 90 prósent

Gyðingandúðin grasserar enn í austurhlutum Evrópu-álfunnar, og að minnsta kosti jafn vel og Rússaandúðin grasserar í vestri

Frakkland ætti að grípa til þess ráðs núna að ganga í Evrópusambandið og taka upp evru til að komast hjá ríkisskuldakreppu. Þeir gætu til dæmis tekið upp evruna sem Þýskaland hefur verið með frá byrjun: þ.e. þýsku stálfátæktarevruna, og gefið börnum sínum kúlulegukökur að bíta í

Ef þetta heldur svona áfram, og sem næstum því er víst, þ.e. að verið sé viðstöðulaust að taka löndin af borgrunum með spægipylsuaðferðum og leysa þjóðir þeirra upp í upplausnarkerfi ESB-glóbalistanna, þá verður ekki mjög svo langt í að nýir gasofnar verða teknir í gagnið í Evrópu á ný: til "gagngerra landhreinsanna". Því er nefnilega engin takmörk sett til hvaða örþrifaráða þjóðir grípa þegar rífa á af þeim þjóðríkið í þeirra í eigin landi

Þetta eru hin margumtöluðu friðar-frækorn Evrópusambandsins. Þau spíra og spíra

Það er nú það......

Fyrri færsla

Samfylkingin fékk 3,4 prósentum meira en Vinstri grænir


mbl.is Macron leitar að nýjum forsætisráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samfylkingin fékk 3,4 prósentum meira en Vinstri grænir

Ný engan-pólitískan-rétttrúnað-auglýsing: Græn vók- og vælumenning er að detta úr tísku. Hinn pólitíski rétttrúnaður geggjunarflokka er að hjaðna. Kaninn er að komast aftur í gamla gírinn á vesturhveli jarðar og nýjar herstöðvar verða byggðar. Evrópa er á leið alveg út - og jafnvel enn lengra. Ísland er á vesturhveli jarðar, en Evrópa ekki

****

Það er að segja. Í kosningunum 2016 fékk Samfylkingin 5,7 prósentur. En í gær fengu Vinstri grænir 2,3 prósentur. Við svo búið verður varla unað - nema um stundarsakir

Nýja Alþýðubandalagið hlýtur því nú þegar að vera komið í rennibekk vinstrimanna og mun það því bráðlega verða kynnt til sögunnar sem nýtt alvöru stjórnmálaafl á vinstri væng stjórnmála - er nú stendur auður

Helsti pólitíski tilvistar- og málefnagrunnur hins nýja Alþýðubandalags verður fullveldi og sjálfstæði Íslands ásamt úrsögn úr NATÓ. Annað kemur varla til greina

Um alla Evrópu eru svo kallaðir grænir flokkar komnir í útrýmingarhættu og rafeindasmásjá þarf til að koma auga á fylgi við málefni slíkra flokka; þ.e. þeir eru orðnir Weimar-flokkar

Hinn pólitíski tilvistar- og málefnagrunnur Ragnars Arnalds heitins, Sjálfstæðið er sívirk auðlind, er klassískur. Hann er ekki hægt að þurrka út. Hvorki fyrr, nú, né síðar

Aftur í vinnufötin Svandís. Þú ert með þann kyndil núna. Út með ruglið, inn með harðlínuna

Fyrri færsla

"Stórgögn" og "gervigreind" hafa lítið fært okkur


Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband