Bloggfærslur mánaðarins, desember 2015
Miðvikudagur, 23. desember 2015
Sovétríkin áttu í vandræðum - það er eðli lögmætislegra krypplinga
Borodin: einn af hinum Fimm
Í dag er tungutrixið það að segja að Evrópusambandið eigi í "vandræðum". Að þess vegna sé ekki "rétti tíminn" til að ganga í það á meðan svo er. Í þessu liggur að úti við endimörk einhvers sem einhvern tíma lýkur, finnist rétti staðurinn til að ganga í vandræðalaust Evrópusamband. Að einhvern tíma opnist allt í einu gluggi sem kallaður sé "rétti tíminn" til að hoppa út um hann og inn í Evrópusambandið. Þetta er tær klikkun
Sovétríkin áttu í vandræðum. Þau áttu reyndar alltaf í vandræðum. Þau voru ekkert nema vandræði. Það vita allir núna. Ein samfelld vandræði fyrir alla
Evrópusambandið hefur alltaf átt í vandræðum. Alltaf og stanslaust, enda er lögmæti þess ekkert. Átt í vandræðum með þau ríki sem eru í því. Kallað er sífellt eftir auknum völdum til þess að ráða við ríkin sem eru í því. Til að má þau smám saman út svo að European Union eins og Soviet Union, geti virkað sem það misfóstur sem það er. Hér er beiðið eftir algerlega engu, nema ef væri endalokunum
Halda menn virkilega að það sé bara einhver einn smá snefill af viti í því að vera bara smávegis nátengdur svona fyrirbæri eða hvað þá að ganga í það. Hvers vegna ganga menn ekki strax í það að má Schengen af Lýðveldinu Íslandi. Og síðan að henda öllu EES út eins og það leggur sig. EES er eins og vírus fyrir Ísland. Það veikir Lýðveldið
Fyrri færsla
Reiðmenn ESB: Nú er bara að bíða eftir komandi bankaáhlaupi á Ítalíu
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 03:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 15. desember 2015
Reiðmenn ESB: Nú er bara að bíða eftir komandi bankaáhlaupi á Ítalíu
Rauður hestur: Þegar lambið lauk upp öðru innsiglinu -
Með því að ljúga ítalskan almenning fullan með hinu innsiglaða fjármálalega reglugerða-þvæluverki fjögurra-reiðmanna Evrópusambandsins, sem ríða nú á hvítum til bleiks með fólkið inn í endalok álfunnar, að já, þá hefur þeim tekist að sannfæra saklausan ítalskan almenning um að koma sparifé sínu þannig fyrir í þessu esb-hverfi-evrubanka-kerfi Ítalíu, að sparnaður hans hefur af bankakerfinu verið notaður til að halda uppi vonlausum rekstri ríkissjóðs í hinu vonlausa Evrópusambandi sem er auðvitað að kála honum
Frá 2008 til í dag hefur bankakerfið þannig keypt og gleypt ítölsk ríkisskuldabréf fyrir 300 miljarða evra fyrir sparnað fólksins. En ekki nóg með það. Sölumenn bankanna undir reglugerða-þvæluverki fjögurra-reiðmanna Evrópusambandsins, frá hvítum til bleiks, tókst að koma stórum hluta þessa sparifjárs almennings þannig fyrir, að nú þegar bankakerfið að niðurlotum er komið, sökum rotnandi lánasafna vegna esb-aðildar og evruupptöku, að já, þá vill svo heppilega til að nýjar "bankabjörgunarreglur" taka stóran hluta þessa sparifjár almennings eignarnámi og þurrka þar með almenning alveg út sem forgangslánadrottna í bönkunum. Skiljanlegt er því að fólk fyrirfari sér á Ítalíu eins og ég skrifaði um í gær. Fólkið er bara þurrkað út og farið er með það eins og rusl
Þetta er svona því að ítalska bankakerfið býr við ónýtan ítalskan seðlabanka sem býr við ónýtan ECB-aukaseðlabanka Þýskalands. Sökkvandi ítalska bankakerfinu sem býr við tvo ónýta seðlabanka vantaði ríkisskuldabréfin til að henda þeim sem veðtryggingum upp í kjaftinn á ECB-sogrörsseðlabanka Þýskalands, til að geta svo hlaupið heim með þá evrupeninga sem fengust út á þau, til að stinga þeim svo upp í kjaftinn á seðlabanka Ítalíu, sem stakk þeim svo upp í kjaftinn á glötuðum ríkissjóði ESB-stjórnmálamanna Ítalíu. Þar sat fyrirmennið ECB-seðlabankastjórnandi sem forsætisráðherfan sjálf. Ókjörinn! Svona er að missa allt fullveldi í peningamálum
"The difference is that World War I was a tragedy, not a crime. "Monetary union is a tragedy and a crime."" - Bernard Connolly
Við hverja umferð af ponzi-ferðum Ítala og annarra brennandi evrulanda upp í súrheysturna ECB, þá lækkar evran ögn í gengishafinu, og út skipast ögn fleiri þýskir gámar til Kína frá Hamborgarhöfn. Og svo koll af kolli. Því fleiri eldar sem kvikna í Evrópu, því fleiri þýskir gámar hendast út frá Hamborg og því fleiri nágranna-keppinautum er kálað. Svo lengi sem Þýskaland á öxli Lotharinga græðir, og öll önnur Evrópa tapar, mun þetta halda áfram. Þetta er hinn fullkomni og ávallt tilætlaði stealth örvunarpakki hins deyjandi Þýskalands á valdaöxli Lotharinga. EMU, þ.e. hið peningapólitíska myntbandalag ESB, er algerlega skrúfað saman eins og það er í þessum eina eina tilgangi. Að Þýskaland á valdaöxli Lotharinga geti riðið Evrópu út í gegn, fyrir ekki neitt
Nú er bara að bíða eftir því að Suður-Ítalía sameinist Norður-Afríku aftur í leit að auknu vogarstangarafli gegn því sem koma skal. Því ekki hefur sameining norður-afrísku Suður-Ítalíu og Norður-Ítalíu gengið upp enn. Ekki frekar en sameining Austur- og Vestur Þýskalands hefur gert. Þó eru liðin meira en 100 ár
Riðið er því hratt á hestum fjórum svo að reiðmenn Evrópusambandsins, frá hvítum til bleiks, geti athafnað sig á álfunni áfram. Heimsstyrjöldin er svo brátt handan við hornið eina, til handa reiðmönnum þeim. Þar verður kannski loksins hægt að á og þurrka af sér, þegar allra síst viðrar. Skeina sig þar á friðarverðlaunum Nóbels
Evrópusambandið hlýtur að vera öflugasta eyðileggingarvopn mannkyns á eftir kommúnismanum. Fimm hundruð milljón manns sambandsins búa nú í púðurtunnum þar sem peningar allra liggja á kistubotni Þýskalands. Þýskaland hefur eyðilagt Evrópu einu sinni enn. En þeir verða sóttir. Þeir verða sóttir
ÚT MEÐ SCHENGEN OG EES STRAX! - LENGI LIFI FRJÁLST ÍSLAND
Fyrri færsla
Ítalía: ellisparnaður í evrum gerður upptækur
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Mánudagur, 14. desember 2015
Ítalía: ellisparnaður í evrum gerður upptækur
Ítalskur karlmaður á eftirlaunaaldri framdi sjálfsmorð er hann komst að því að bankinn hans hafði gert allan ellisparnað hans upptækan. Í fyrstu lotu er hér um að ræða að minnsta kosti 130 þúsund manns í svipaðri stöðu í fjórum "litlum" bönkum á Ítalíu, sem eru í hópi smærri fjármálastofnana í hinu gangandi gjaldþrota bankakerfi Ítalíu í evrum, sem verið er að reyna að "bjarga" með því að gera peninga fólksins upptæka
Málið hefur ekki farið hátt undir innrásarhvatningu Angelu Merkel til innanfrá eyðileggingar hennar á Evrópu undanfarið, en fjallað er þó um það í blöðum á Ítalíu og í Financial Times um helgina. Í Evrópusambandinu undir evru ríkir nú fjárkúgun, peningaskömmtun og eignaupptaka
Í tilfelli þessa ákveðna fórnarlambs evruaðildar Ítalíu, þá hafði maðurinn keypt spariskírteini og geymt sparnað sinn í þeim. Eftir 50 ár sem viðskiptavinur í bankanum tók bankinn peninga mannsins til að troða þeim ofan í seðlabanka Ítalíu sem tróð þeim svo upp í ECB-sogrörsseðlabanka Þýskalands í Frankfurt, ásamt fjármunum þessara 130 þúsund sparifjáreigenda í fjórum af endalaust mörgum gjaldþrota bönkum landsins. Bönkum sem allir eru að drepast vegna evruupptöku. Enginn hagvöxtur hefur verið á Ítalíu frá því að landið tók upp evru. Enginn!
Bankakerfi Ítalíu er því orðið þannig að ein erlend trilljón evra er úti að synda og sökkva í vanskilum. Opinberlega uppgefin vanskilatala er 200-300 miljarðar evra, en enginn hefur neina góða né sanngjarna ástæðu til að trúa henni
Ríkissjóður landsins er þurrausinn sökum algerrar fjarveru hagvaxtar vegna evruupptöku. Og hann hefur litla aðra möguleika til umráða í handjárnum myntbandalags Evrópusambandsins, en með stigmagnandi illráðum og Brusselsku þvaðurblaðri að gera peninga fólksins á einn eða annan hátt upptæka til að reyna að bjarga sér frá handjárnuðu ríkisgjaldþroti í evrum Þýskalands. Massíft og stáltryggt esb-atvinnuleysið áratugum saman hefur aðstoðað dyggilega við súgþurrkun skattatekna hins tóma ríkissjóðs Ítalíu. Allar tekjur ríkissjóða koma frá atvinnustarfsemi. Engar aðrar tekjur eru til
Fjármálahrunið árið 2007 hófst með því að þrír fjárfestingasjóðir franska stórbankans BNP-Paribas í evrum gátu ekki greitt út þá peninga sem fólk átti inni í þeim. Þeir lokuðu á úttektir. Fólk og fyrirtæki gátu ekki nálgast peningana sína. Þetta breiddi fljótlega úr sér sem vantrausts-hringar í leðjupolli á millibankamarkaði, sem fraus smám saman alveg gersamlega til og kom af stað lausafjárþurrð á heimsmarkaði. Þannig hófst fjármálakreppan um næstum alla veröld - og sem við hér á Íslandi kynntumst svo sem bankahruni
Það verður fróðlegt að fylgjast með evru Evrópusambandsins starta formlega styrjöldinni sem hún hefur verið að úða fulla af start-vökva síðastliðin 15 ár. Evru-púðrið er nú að verða endalaust að umfangi og sprengigetu. Og prentað er og prentað til að reyna að láta start-vökvann í sprengihólfinu gufa upp ásamt öllum eignum allra í evru-fjármálakerfinu, sem er gjaldþrota. Tómatrauð eru augu ESB-seðlabankastjórans því orðin og slettast flóttalega til í tóftum súrkáls
Kaupið aldrei neinar fjárskuldbindingar í evrum. Og allra síst spariskírteini. Það er alveg sama á hvern veg þetta fer þarna í Evrópu. Heimsálfan er algerlega ónýt til frambúðar, þökk sé Evrópusambandi Þýskalands og Frakklands. Þetta reddast ekki. Út með EES-samninginn áður en hann dregur okkur lengra niður í svaðið. Út út út STRAX!
Fyrri færsla
1980: Jimmy Carter bannar öllum Írönum að koma til Bandaríkjanna
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Laugardagur, 12. desember 2015
1980: Jimmy Carter bannar öllum Írönum að koma til Bandaríkjanna
Forseti Bandaríkjanna 1980
Í dag: Í Bretlandi er sögð vera í gangi söfnun eiginhandaráritana (undirskriftasöfnun) á glansmyndapappír góða-fólksins, svo að hægt verði með þeim veifandi áritunum að banna Bandaríkjamanni einum, er Donald Trump heitir, að koma til Bretlands. Þessi söfnun er í gangi vegna þess að Trump þessi embættislausi maður á að hafa sagt að banna ætti öllum múslímum að koma til Bandaríkjanna þar til vitað er með vissu hvað sé að gerast í furðuheimi þeirra, sem nú um daga er að stofna kalífat hér og þar og sem George W. Bush forseti varaði við árið 2007
Líklega er voða-góða-fólk Bretlands hrætt við að hugsanleg koma Trumps til Bretlands geti stöðvað stofnun katífats múslíma þar í landi, því ekki hafa Bretar neinn kosningarétt í Bandaríkjunum eftir að þau urðu fullvalda og sjálfstætt ríki. Svo varla getur verið um neitt annað að ræða
Enn fremur gerir köngulóarfyrirtækið Google vafranotendum þess fyrirtækis nú kleift að má út og útiloka nafnið "Trump" frá því að birtast rétt á vefsíðum sem skoðaðar eru í vafra þess. Fyrirmyndin er líklega sótt til Microsoft, sem útilokaði liti, nafn, krækju og búmerki Netscape-vafrans frá því að birtast rétt á þeim vefsíðum sem Internet Explorer vafri fyrirtækisins sýndi á meðan hann var að leggja undir sig markaðinn. Google fjarlægði fyrr á þessu ári slagorðið "dont be evil" af stefnuyfirlýsingarskilti fyrirtækisins
Sagt er að þetta sé algerlega glæpsamlegt af manninum Trump að segja. Þar með virðist voða-góða-fólkið vera að stimpla Jimmy Carter fyrrverandi forseta Bandaríkjanna sem einhvers konar glæpamann, vegna þess að hann bannaði öllum Írönum að koma til Bandaríkjanna er ríkisstjórn Írans neitaði að bjarga lífi og láta lausa þá Bandaríkjamenn sem teknir voru í gíslingu í sjálfu sendiráði þeirra í sjálfu landi klerka-múslíma-ríkisstjórnar Írans. Gíslarnir voru þar í haldi í meira en 400 daga
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20
En svo gerðist það 20 mínútum eftir að Ronald Reagan sór embættiseið sinn sem 40. forseti Bandaríkjanna, að gíslarnir voru látnir lausir. Tuttugu mínútur Reagans í embætti enduðu 440 daga martröð 52 starfsmanna Bandaríkja Norður-Ameríku í Íran
Herferðin gegn Trump á þessum síðustu og verstu tímum voða-góða-fólksins, er farin að minna dálítið á þá Evrópu-herferð sem varð til á móti Ronald Reagan þegar hann sóttist eftir að komast í framboð sem forsetaefni í sínu eigin landi. Og meira að segja varaði Evrópu-herferðin alla þá tíð sem hann sat sem þjóðkjörinn forseti Bandaríkja Norður-Ameríku - og meira að segja gott betur en það
Fyrri færsla
Kanslarína Þýskalands, Angela Merkel, komin á listann
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 10. desember 2015
Kanslarína Þýskalands, Angela Merkel, komin á listann
Time Magazine hefur krýnt Angelu Merkel til "manns ársins" sem er að líða og sem skrifast og segist vera 2015 e.Kr
Tímaritið telur að kanslaraínan hafi komið í veg fyrir hrun evrunnar og þar með komið í veg fyrir hrun Evrópu. Ekki er enn vitað hvort að þetta hrunfyrirkomulag Evrópu slái til á ný með því að láta Schengen falla. En við það fall á evran að falla og sem svo mun láta Evrópu falla ofan á þið vitið ekki hvað
Það skemmtilega við það að vera kosinn maður ársins er það að árið 1938 krýndi sama tímarit herr Adolf Hitler til manns ársins það ár og þá væntanlega fyrir að viðhalda stöðugleika í álfunni með því að vera einræðisherra hennar frá 1934-1945. Og árið eftir, þ.e. 1939, var sjálfur Jósef Stalín fjöldamorðingi Sovétríkjanna af tímaritinu kosinn maður ársins það árið. Það með varð allt gott, eins og allir vita
Þetta er kannski tímanna tákn. En Hamsun mundi þó tímana tvenna í skógi einum þar sem eitt sinn stóð kofinn alveg einn
Fyrri færsla
Hefði sennilega aldrei verið sviptur fálkaorðu ef hann væri af erlendu bergi brotinn
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 9. desember 2015
Hefði sennilega aldrei verið sviptur fálkaorðu ef hann væri af erlendu bergi brotinn
Hugverk frá bannaða landinu eilífa, Rússlandi - 1978 upptaka
Sigurður bankamaður hefði aldrei verið sviptur rétti til að bera fálkaorðuna ef hann hefði verið af erlendu bergi brotinn. Það tel ég víst. Því hefðu menn ekki þorað eins og pólitíski rétttrúnaðurinn er nú. En hann er bara ekki sá sami og ríkti undir banka- og fjármálabólunni. Hefur kannski einhver, já bara einhver, tekið eftir því? Munið að þetta voru hetjurnar ykkar og það er ekki alfarið þeim að kenna að þeir urðu það
Það er alveg sama hvernig þessu er snúið og velt, þetta er frekar ósæmilegt og þetta er frekar ódrengilegt. Þetta er refsing sem á ekki rétt á sér og þetta er of langt gengið miðað við það sem á undan er gengið
Sigurður bankamaður hefur án efa margt gott látið af sér leiða og það verður aldrei frá hinum föllnu íslensku bönkum tekið, að hreint starfslega séð (operational) gerðu þeir miklu betur en flestir aðrir bankar annarra landa gerðu og sýndu mikinn dugnað og djörfung. Hugsmíðin (koncept) um hina "alþjóðlegu fjármálamiðstöð" var hins vegar alveg gerónýt frá upphafi. Það var sá sementlausi sökkull geirans sem byggt var á. Og hann var að mörgu leyti pólitísk hugsmíði sem engu vatni hélt frá byrjun. Sökkulinn var vanhugsaður af öllum aðilum
Hér hefði sá stjórnsýslulegi líkami er veitti Sigurði orðuna átt að axla smávegis ábyrgð á sínum eigin gjörðum og taka út sína refsingu sem menn. Taka þetta lítilræði á sig og horfa svo fram á veginn. Mistök er einungis hægt að forðast algerlega með því að aðhafast aldrei neitt. Bara aldrei gera neitt. Hefði hann neitað að taka við orðunni á sínum tíma, tja hvað þá? Hefði bankinn þá hrunið ofan á orðunefnd, eða hefði orðunefnd þá stefnt Sigurði fyrir hroka? Allir eiga að vinna heimavinnuna sína, líka orðunefnd
Dómstólar eru að fjalla um mál Sigurðar. Þeir munu komast af niðurstöðu. Hér er vegið lágt að löskuðum manni fyrir neðan mittisstað í miðjum málaferlum. Og það finnst mér ei réttlátt
Orðunefnd útstillir hér smáu stássi og það er ekki sérlega fögur sjón, finnst mér. Ekki miðað við þá sjálfmúgsefjun sem kom veitingunni til leiðar
Uppskeruhátíð Evrópusambandsins
Sviptur rétti til að bera orðuna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Föstudagur, 4. desember 2015
Uppskeruhátíð Evrópusambandsins
Tilvistarkreppa evru. Þetta er myntin sem átti að "bjarga Evrópu" en sem nú er að sprengja hana í tætlur. Ekki lengur forsíðupláss fyrir þær fyrirsagnir á kreppukorti ESB. Það er frátekið fyrir annað hotstuff - tikk takk
Grikkland að deyja vegna evru og esb. Ekki er lengur forsíðupláss á esb-kreppukortinu fyrir fréttirnar af dauða Grikklands vegna plássleysis. Peningaskömmtun ríkir þar eins og í full blómstrandi sovétríki, - í evrum, væni minn - tikk takk
Portúgal við það að springa stjórnmálalega í loft upp vegna evruknúins niðurskurðar og esb-aðildar. 1930 atvinnuleysi ríkir þar. Kemst á blaðsíðu fimm, neðst - tikk takk
Finnland að hefja sólarlag sitt vegna evruupptöku. Framtíðin kolsvört. Fær forsíðupláss á kreppukorti ESB einu sinni í mánuði næstu tvo mánuði. Útförin mun svo þaðan í frá fara fram í kyrrþey sökum plássleysis - tikk takk
Stjórnlaust esb-skapað innflæði af ósamrýmanlegu geimverufólki við tilvist heilbrigðs þjóðríkis, er í einkaboði kanslaraínu Þýskalands - konunni sem eyðilagði Evrópu - að leggja esb-fúna og esb-laskaða innviði esb-landa í rúst og borgararnir eru að brjálast af reiði. Þeir muna vel hvernig landið þeirra var áður en esb kom og eyðilagði það. Þessi kreppustappa fær um þessar mundir forsíðupláss á kreppukorti esb vegna þess að rétt núna nær esb-skapaða púðurtunnan Úkraína ekki að kveikja í alveg allri forsíðu kortsins - tikk takk
Pólitískur esb-skapaður dirty-dísill Volkswagen sem er að kæfa borgarana í ESB, mallar hægt og rólega gjaldþrotagraut sinn handa VW, og sem mun kosta pólitískt rotið Þýskaland meira en Grikkland áður en dauði þess fyrirtækis opnar forsíðurnar handa því á ný - tikk takk
Árás esb-innfluttra fjöldamorðingja á borgara á götum úti í París er komin á blaðsíðu 3 því kreppuforsíða ESB er fullbókuð af örvæntingafullum impótent kústskafta hernaðarviðbrögðum esb-velda er kyssa afa sinn sem rjómaekta strákústar - tikk takk
Rússland bankar á dyrnar og næsta högg mun henda hurðinni af hjörum sem ekki eru lengur til - tikk takk
Bankakerfi Ítalíu er gjaldþrota og 40-50 prósent útlána þess rotna bara burt. Tómatrauð augu ítalska ECB-seðlabankastjórans víkja því ekki af Print á meðan peningakálið súrnar svart í Þýskalandi - tikk takk
Katalónía vill ganga úr Spáni - tikk takk
Bretland vill út og Danir segja nei nei nei - tikk takk
Plastkarlar- og kerlingar sambandsins koma því saman til að stappa á stálinu í kengruglaðri samkomu í ofaní bunker í París, tottandi þumla af skelfingu við sjálfa sig
Ef evran fellur þá fellur Evrópa - ha ha ha, þvílík vitfirring!
Ef Schengen fellur þá fellur evran - ha ha ha, þvílík vitfirring!
Ef þetta andskotans Evrópusamband hefði aldrei verið stofnað þá væru borgarar Evrópulanda ekki í þann mund að hefja allsherjar flótta frá heimahögum sínum áður en allt þeirra springur þar í loft upp. Þá væri Sámur frændi þar enn til að passa þetta meginland taparanna. Og þá væru brunarústir hagkerfanna ekki að verða svona í laginu eins og þær eru í dag - tikk takk.
Uppskera Evrópuófriðarbandalagsins er loksins að komast í hús
Fyrri færsla
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 04:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 3. desember 2015
Rannveig ristaði DDRÚV
Að hugsa sér. Að DDRÚV ríkisútvarpið "með alla þessa veltu" skuli ekki getað lokað álverinu í Straumsvík með kastljósi. Þeir reyndu að loka Samherja, en tókst það heldur ekki
Ef það er eitthvað sem þetta Ríkisútvarp AusturBerlínar Reykjavíkurborgar getur gert þá virðist það ekki vera rekstur. Nei, DDRÚV getur bara velt. Velt og velt og velt byrðinni yfir á þig og mig. Ekkert markaðsverð er þar á neinu. Tekjurnar eru bara óendanlegar. Þær koma bara, alveg sama hvað
Þarna var landsmönnum sem borga undir þetta geimveru apparat boðið upp á kennslustund í einkarekstri að hætti DDRÚV; veltu-rekstrinum. Þið vitið, veltan skapar allt
Mér finnst loksins orðið því sem næst alveg örugglega og farvegslega því sem næst hárrétt að láta "óháðan og utanaðkomandi fagaðila" eins og til dæmis, tja, segjum bara Davíð Oddsson rannsaka velturekstur Ríkisútvarpsins því að marxistinn Joly er upptekin. Bara svona til að ganga úr skugga um að þessi veltustofnun sé ekki alveg örugglega að beita þjóðina nægu andlegu ofbeldi fyrir að borga veltu þess og gott betur en það. Þetta andlega ofbeldi hlýtur að vera kynbundið, annað getur ekki verið, því bæði konur og karlar eru að loka á það sem veltur út úr DDRÚV. Það er að minnsta kosti ekki staðbundið, því þetta er að gerast út um allt án afláts
Það getur varla verið rétt að þetta samkommahús þjóðarinnar eigi að fá að halda þessari kommaveltuveitu sinni áfram eins og hún er
Fyrri færsla
Sósíalistar elska atvinnuleysi
Þriðjudagur, 1. desember 2015
Sósíalistar elska atvinnuleysi
Fullveldisdaginn 1. desember 2015
****
Hvers vegna? Vegna þess að þá geta þeir haldið dópsölum embættis- og stjórnmálamanna opnum og stækkað framboð sitt af sósíalisma í fleiri útibúum hans
Dópsölur stjórnmálamanna hafa sumstaðar náð þeim merka áfanga að þrír af hverjum fjórum kjósendum eru á framfærslu hins opinbera á einn eða annan hátt. Þetta veitir sósíalistum langþráð völd fyrir öllu lífi fólksins
Og ekki nóg með það heldur spýta dópsölur stjórnmálamanna út reglum og reglugerðafargani eins og að úr vélbyssum væri, með þeim árangri að svo gott sem alla einkaneyslu þarf nú orðið að blástimpla fyrst inni í sósíalista höfðum dópsalanna áður en almenningur þorir orðið að neyta hennar
Einkaneysla frjálsra einstaklinga er þar með gerð ofsa-ljót en dópsala embættis- og stjórnmálamanna er hins vegar talin merkilegri, betri og göfugri en þær ákvarðanir sem fólkið tekur sjálft fyrir sig og sína
Og hver kýs svo undan sér dópsölu embættis og stjórnmálamanna? Það gerist ekki fyrr en við fullt og helfrosið sovét. Þegar og þar sem allir eru að drepast úr fátækt á ný, nema auðvitað dópsalaelítan sjálf
Þannig virka fátæktarskjaldborgir sósíalista. Og þess vegna vilja þeir neyða Ísland inn í Evrópusambandið hvað sem það kostar, þar sem atvinnuleysi er massíft og krónískt áratugum saman. Og er Straumsvík þar með talin siguráfangi á þeirri leið. Að eyðileggja sem mest hér heima er eina stefnan þeirra
Sósíalistar eru þeir sem eru: 1) sósíaldemókratar 2) kommúnistar og 3) nasistar þ.e nationalsozialismus. Þeir sækjast eftir að þjóðnýta; 1) sjálf stjórnmálin 2) atvinnutækin og 3) fólkið sjálft. Þessa skulið þið ávallt varast
Fyrri færsla
Tengt
Paul Krugman valtar yfir ESB-sósíalistann Þorvald Gylfason
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Nýjustu færslur
- Lánshæfnismat Frakklands lækkað. Heil 25-35 ár af hergagnafra...
- Frakkland gæti gengið í Evrópusambandið og tekið upp evru
- Samfylkingin fékk 3,4 prósentum meira en Vinstri grænir
- "Stórgögn" og "gervigreind" hafa lítið fært okkur
- Ísrael er búið að vinna stríðið í Líbanon
- Natópóleon beinapartur
- Rússland nú fjórða stærsta hagkerfi veraldar. Lánshæfnismat F...
- Ég óska Bjarna Ben til hamingju og velfarnaðar
- Víkingar unnu ekki. Þeir "þáðu ekki störf"
- Engir rafbílar segir Apple
- Grafa upp gamlar sprengjur og senda áleiðis til Úkraínu
- Geðsýki ræður NATÓ-för
- "Að sögn" háttsettra í loftbelg
- Skuldir Bandaríkjanna smámunir miðað við allt hitt
- Forsetinn og meiri-hluta-þvættingurinn
Bloggvinir
- Heimssýn
- Samtök Fullveldissinna
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Ragnhildur Kolka
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Haraldur Hansson
- Haraldur Baldursson
- Páll Vilhjálmsson
- Halldór Jónsson
- Valan
- Samstaða þjóðar
- Frjálshyggjufélagið
- Sigríður Laufey Einarsdóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Jón Valur Jensson
- Samtök um rannsóknir á ESB ...
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
- Jón Baldur Lorange
- Guðjón E. Hreinberg
- Jón Ríkharðsson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Valdimar Samúelsson
- Fannar frá Rifi
- Bjarni Jónsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Haraldur Haraldsson
- Örvar Már Marteinsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Gestur Guðjónsson
- Ingvar Valgeirsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Guðmundur Helgi Þorsteinsson
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Harðarson
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Sveinn Atli Gunnarsson
- gudni.is
- Gústaf Adolf Skúlason
- Tryggvi Hjaltason
- ESB
- Marinó G. Njálsson
- Baldvin Jónsson
- Elle_
- Sigurbjörn Svavarsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Johnny Bravo
- Jón Finnbogason
- Rýnir
- Þórarinn Baldursson
- P.Valdimar Guðjónsson
- Már Wolfgang Mixa
- Ívar Pálsson
- Júlíus Björnsson
- Guðjón Baldursson
- Baldur Fjölnisson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Einar Ólafsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Vilhjálmur Árnason
- gummih
- Sveinn Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jóhann Elíasson
- Baldur Hermannsson
- Kristinn D Gissurarson
- Magnús Jónsson
- Ketill Sigurjónsson
- Birgitta Jónsdóttir
- Axel Jóhann Axelsson
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Aðalsteinn Bjarnason
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Haraldur Pálsson
- Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
- Bjarni Benedikt Gunnarsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ægir Óskar Hallgrímsson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Óskar Sigurðsson
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Hörður Valdimarsson
- Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Ásta Hafberg S.
- Erla J. Steingrímsdóttir
- Helena Leifsdóttir
- Agný
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Árni Bragason
- Jón Lárusson
- Högni Snær Hauksson
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristinn Snævar Jónsson
- Sigurður Ingólfsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Sigurður Þórðarson
- S. Einar Sigurðsson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Vaktin
- Sigurjón Sveinsson
- Dóra litla
- Arnar Guðmundsson
- Jörundur Þórðarson
- Rafn Gíslason
- Hjalti Sigurðarson
- Kalikles
- Vésteinn Valgarðsson
- Bjarni Kristjánsson
- Egill Helgi Lárusson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jón Pétur Líndal
- Guðmundur Ásgeirsson
- Reputo
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Als
- Friðrik Már
- Gísli Sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Rauða Ljónið
- Sumarliði Einar Daðason
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Kári Harðarson
- Sigurður Antonsson
- Valdimar H Jóhannesson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Dagný
- Guðmundur Pálsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Birgir Viðar Halldórsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Tíkin
- Jón Þórhallsson
- Íslenska þjóðfylkingin
- Erla Magna Alexandersdóttir
- Óskar Kristinsson
- Dominus Sanctus.
- Ingólfur Sigurðsson
- Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.12.): 13
- Sl. sólarhring: 68
- Sl. viku: 429
- Frá upphafi: 1389049
Annað
- Innlit í dag: 7
- Innlit sl. viku: 245
- Gestir í dag: 7
- IP-tölur í dag: 7
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008