Þriðjudagur, 13. október 2009
Joe Stiglitz og bananalýðveldi Evrópusambandsins
Úr glugganum í viku 42
Þriðjudagur 13. október 2009
Joe Stiglitz, eins og írski hagfræðingurinn David McWilliams kallar hann, var í heimsókn á Írlandi til þess að segja vinum okkar Írum að þeir eigi heima í bananalýðveldi núna. Næstum hvergi annarsstaðar en í bananalýðveldum hefur það viðgengist sem liðið er í evrulandinu Írlandi núna. Þar er látið viðgangast að heilu bankakerfi og skuldbindingum þess við aðra banka og alla viðskiptavini sé hent yfir á herðar skattgreiðenda í landinu. Þetta sást, að sögn Stiglitz, áður fyrr eingöngu í bananalýðveldum. Ég hef orðið fyrir miklum vonbrigðum að sjá að þetta er ekki aðeins að gerast í bananalýðveldum, heldur einnig í þróuðum ríkjum, sagði Stiglitz. Hann segir ennfremur að um 100 bankar séu fanir á hausinn í Bandaríkjunum og það hafi bara gengið ágætlega því reglum kapítalismans hafi verið fylgt. David McWilliams á erfitt með að kyngja því að Stiglitz skuli líkja aðferðunum á Írlandi við verklag í bananalýðveldum. En þó grunar mig að þetta komi David alls ekki á óvart, því sjálfur hefur hann lýst frati á þessa ríkisvæðingu tapsins og einkavæðingu gróðans. Hann vill fara "íslensku leiðina", henda evrunni, koma bönkunum á hausinn, taka upp gamla írska pundið og fella það massíft.
"He is comparing Nama and what is happening in Ireland a country with which he is very familiar to a smash and grab banana republic exercise."
N.A.M.A er skammstöfun fyrir ríkiseignaumsýslustofnun Írlands e. National Asset Management Agency. Þessi stofnun á að halda utanum þær eitruðu eignafærslur sem mygluðu og eiga eftir að mygla í bókum evru-bankakerfis Írlands. Eignafærslur sem ríkisstjórn Írlands ákvað að taka yfir á herðar írska ríkisins. Þetta gerðist eftir að ríkisstjórn Írlands sá sig nauðbeygða til að gangast í ábyrgð fyrir innistæðum og skuldbindingum nær alls evru-bankakerfis landsins, svo innistæður hinna evruvæddra banka Írlands myndu ekki flýja landið í leit að betri ríkisábyrgðum í öðrum evrulöndum. Síðasta haust kallaði ég þessa yfirboðsstarfsemi ríkisstjórna á evrusvæðinu fyrir "efnahagslega borgarastyrjöld innan evrusvæðisins". Peningarnir leituðu auðvitað þangað sem best var ríkisábyrgðin. Ríkisstjórnirnar yfirbuðu hverja aðra. Hlutabréfaverð í bönkum og fjármálastofnunum hækkaði og lækkaði í takt við hvað boðið var af ríkisábyrgð í hverju landi.
David McWilliams minnist einnig á verðhjöðnunina á Írlandi og fær út svipaða raunvexti eins og ég skrifaði um í gær. Hann segir raunvexti vera 11,972% á Írlandi sem eru kjálkagapandi háir raunvextir. Hvað varð um hið margrómaða stöðuga verðlag og innri stöðugleika seðlabanka myntbandalags Evrópusambandsins á Írlandi? Sýnist bankanum verðlag vera stöðugt þegar það er hrunið um 6,5% á 12 mánuðum? Hvað ætlar seðlabankinn að gera í þessum galhoppandi óstöðugleika á Írlandi núna? Ekki neitt. Hann getur nefnilega ekkert gert og Írar sjálfir geta heldur ekkert gert, því þeir hafa enga stjórn á sínum eigin peningamálum. Sú stjórn er alfarið í höndum hjónana herra Þýskalands og frú Frakklands. Er því ekki vel við hæfi að segja hér að seðlabanki myntbandalagsins sé ónýtur - og að myntin hans sé ónýt líka? Jú það passar ágætlega við á Írlandi. Ónýtur seðlabanki og ónýt mynt fyrir fjóra og hálfa milljón Íra. Írland kemst aldrei út úr myntbandalagi evrópusambandsins, hversu heitt sem þeir kunna að óska sér þess í framtíðinni. Það er engin leið til baka út úr evru. Engin leið; David McWilliams | tengt; Förum íslensku leiðina, hendum evrunni
Fleiri stuttar fréttir í glugganum
Fyrri færsla
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Evrópumál | Breytt 16.10.2009 kl. 21:36 | Facebook
Nýjustu færslur
- "Stórgögn" og "gervigreind" hafa lítið fært okkur
- Ísrael er búið að vinna stríðið í Líbanon
- Natópóleon beinapartur
- Rússland nú fjórða stærsta hagkerfi veraldar. Lánshæfnismat F...
- Ég óska Bjarna Ben til hamingju og velfarnaðar
- Víkingar unnu ekki. Þeir "þáðu ekki störf"
- Engir rafbílar segir Apple
- Grafa upp gamlar sprengjur og senda áleiðis til Úkraínu
- Geðsýki ræður NATÓ-för
- "Að sögn" háttsettra í loftbelg
- Skuldir Bandaríkjanna smámunir miðað við allt hitt
- Forsetinn og meiri-hluta-þvættingurinn
- Gervigreindar-fellibyl í vatnsglösum lokið
- Sjálfstæð "Palestína" sýnir morðgetu sína á tvo kanta
- Benjamín Netanyahu hringdi strax í Zelensky. Hvers vegna?
Bloggvinir
- Heimssýn
- Samtök Fullveldissinna
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Ragnhildur Kolka
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Haraldur Hansson
- Haraldur Baldursson
- Páll Vilhjálmsson
- Halldór Jónsson
- Valan
- Samstaða þjóðar
- Frjálshyggjufélagið
- Sigríður Laufey Einarsdóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Jón Valur Jensson
- Samtök um rannsóknir á ESB ...
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
- Jón Baldur Lorange
- Guðjón E. Hreinberg
- Jón Ríkharðsson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Valdimar Samúelsson
- Fannar frá Rifi
- Bjarni Jónsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Haraldur Haraldsson
- Örvar Már Marteinsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Gestur Guðjónsson
- Ingvar Valgeirsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Guðmundur Helgi Þorsteinsson
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Harðarson
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Sveinn Atli Gunnarsson
- gudni.is
- Gústaf Adolf Skúlason
- Tryggvi Hjaltason
- ESB
- Marinó G. Njálsson
- Baldvin Jónsson
- Elle_
- Sigurbjörn Svavarsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Johnny Bravo
- Jón Finnbogason
- Rýnir
- Þórarinn Baldursson
- P.Valdimar Guðjónsson
- Már Wolfgang Mixa
- Ívar Pálsson
- Júlíus Björnsson
- Guðjón Baldursson
- Baldur Fjölnisson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Einar Ólafsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Vilhjálmur Árnason
- gummih
- Sveinn Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jóhann Elíasson
- Baldur Hermannsson
- Kristinn D Gissurarson
- Magnús Jónsson
- Ketill Sigurjónsson
- Birgitta Jónsdóttir
- Axel Jóhann Axelsson
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Aðalsteinn Bjarnason
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Haraldur Pálsson
- Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
- Bjarni Benedikt Gunnarsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ægir Óskar Hallgrímsson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Óskar Sigurðsson
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Hörður Valdimarsson
- Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Ásta Hafberg S.
- Erla J. Steingrímsdóttir
- Helena Leifsdóttir
- Agný
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Árni Bragason
- Jón Lárusson
- Högni Snær Hauksson
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristinn Snævar Jónsson
- Sigurður Ingólfsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Sigurður Þórðarson
- S. Einar Sigurðsson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Vaktin
- Sigurjón Sveinsson
- Dóra litla
- Arnar Guðmundsson
- Jörundur Þórðarson
- Rafn Gíslason
- Hjalti Sigurðarson
- Kalikles
- Vésteinn Valgarðsson
- Bjarni Kristjánsson
- Egill Helgi Lárusson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jón Pétur Líndal
- Guðmundur Ásgeirsson
- Reputo
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Als
- Friðrik Már
- Gísli Sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Rauða Ljónið
- Sumarliði Einar Daðason
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Kári Harðarson
- Sigurður Antonsson
- Valdimar H Jóhannesson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Dagný
- Guðmundur Pálsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Birgir Viðar Halldórsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Tíkin
- Jón Þórhallsson
- Íslenska þjóðfylkingin
- Erla Magna Alexandersdóttir
- Óskar Kristinsson
- Dominus Sanctus.
- Ingólfur Sigurðsson
- Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (13.11.): 1
- Sl. sólarhring: 13
- Sl. viku: 160
- Frá upphafi: 1387247
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 84
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
Athugasemdir
Það er merkilegt að nú þegar Stiglitz segir að íslendngar eigi að snúa baki við AGS, þá storma menn eins og Jónas Haralz og vega að mannorði þessa heimsfræga hagfræðings. Þannig á að draga úr áhrifum orða hans, því án AGS verður etv. ekkert um Icesave skuldaklafanna, og án Icesave verður ekkert ESB. Þetta er mikið hugðarefni Jónasar... ég spyr því : hver á meiri hagsmuna að gæta í þessu máli Jónas, eða Stiglitz....
Haraldur Baldursson, 16.10.2009 kl. 16:45
Ég gleymdi hlekknum á grein Jónasar
http://eyjan.is/blog/2009/10/16/jonas-haralz-stiglitz-ekki-hlutlaus-illur-leikur-ad-hafa-ahrif-a-samvinnu-islands-og-ags/
Haraldur Baldursson, 16.10.2009 kl. 16:46
Þakka þér fyrir Haraldur
Já ég hafði séð þetta og undrast mikið að Jónas skyldi gera sér sérstaka ferð á torg með þetta. Það er mjög algengt að hagfræðingar séu ósammála um flest. Það er í raun alveg bráðnauðsynlegt, því það er alltaf ósamkomulagið sjálft sem skapar framfarir. Samkomulag leggur yfirleitt lok á framfarir. Opinber sannleikur drepur framfarir alveg. En að setja þetta svona fram að það sé eitthvað óeðlilegt við það að vera ósammála AGS er ekki gott hjá Jónasi.
Það er svona sem allt er að verða hér innan vébanda Evrópusambandsins. Ef maður er ósammála ESB-veldinu þá er maður dæmdur í einskonar intellectual Gúlag hér í Evrópusambandinu.
Ef maður er svo ósvífinn að vera ósammála sjálfri tilvist Evrópusambandsins hér í ESB þá er maður gerður að nokkurs konar fyrrverandi manneskju eins og gert var á tímum Stalín í Sovétríkjunum. Þá segja jafnvel kjörnir þingmenn að þeir vilji frekar ræða saman við nasista en við ESB-andstæðinga.
Fróðleikur
En fyrrverandi manneskja í Sovétríkjunum var yfirleitt manneskja sem hugsaði eða sagði eitthvað sem féll stjórnvöldum ekki í geð. Svona manneskjum var gert að afhenda Sovétstjórninni öll skilríki sín og fjölskyldu sinnar. Kennitala var afmáð, læknisþjónusta var þér bönnuð. atvinna var þér bönnuð, börnin þín gátu ekki gengið í skóla, þú og fjölskylda þín fengu opinberan status sem "fyrrverandi manneskjur" í Sovétkerfinu => þið voruð ekki til lengur.
Þú varðst eins og geimvera í þínu eigin samfélagi. Samneyti við landa þína var þér gert ómögulegt og tilvist þín í samfélaginu var gerð þér, og öllum sem átti samneyti við þig, óbærileg. Þetta fólk var til í miljónum í Sovét. Það veslaðist flest upp og dó úr hungri og vosbúð.
Ég er alls ekki að segja að ESB sé orðið svona, en það er örugglega á leiðinni þangað. Ein útópía enn er í smíðum í Evrópu.
Ég ráðlegg sem flestum sem vilja kynna sér þessi mál Evrópu að lesa bókina Gúlag og gleymska, harmleikur Rússlands og sameiginlegt minnistap Vesturlanda; eftir prófessor Bent Jensen við háskólamiðstöðina á Suður Jótlandi:
Gunnar Rögnvaldsson, 16.10.2009 kl. 19:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.