Leita í fréttum mbl.is

Tilvistar-vandamál meginlands Evrópu komin í meðferð 7300 km burtu frá Brussel [u]

UPPFÆRT kl. 22:50

Skjáskot af vef Tass 2025-08-15 at 22.40.31

Mynd af vef Tass: Fyrsta samtali forsetanna lauk laust fyrir kl. 22:30 að íslenskum tíma, föstudaginn 15. ágúst 2025. Það varaði í meira en þrjár klukkustundir. Þrír og þrír ræddu saman á þessum fyrsta fundi: Pútín-Ushakov-Lavrov ræddu við Trump-Rubio-Witkoff. Endað var með blaðamannafundi sem fólst í yfirlýsingum forsetanna beggja. Horfa má á hann hér á rás Hvítahússins á YouTube og skoða má myndir á vef rússneska forsetaembættisins

****

Gúmmíbátafloti fátæklingaveldis Evrópusambandsins náði ekki að sigla til Alaska í tæka tíð svo að skrifstofuveldi Evrópusambandsins kæmist að borðinu, þar sem tilvistarvandamál tapara meginlands Evrópu eru krufin til mergjar af forsetum Bandaríkjanna og Rússlands, einu sinni enn

Stóra-Bretland er því miður ekki með að þessu sinni, því það er enn að sleikja sárin og safna kröftum eftir þjóðlamandi skaðræðisdvölina í dýflissum Evrópusambandsins frá 1973 til 2016

Kakkalakkahugmyndir Kristrúnar Frostadóttur og Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur í stjórnmálum hafa nú þegar náð að skríða upp úr sprungum og rifum eins og þær ávallt gera þegar hellt er Samfylkingarvökva ESB á þær, þegar komist er skyndilega til valda í kosningum fyrir einskonar slysni værukærrar þjóðar, og sem átti sér einskis ills von eftir hryllinginn frá síðustu ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri útgrænudauðra. Þjóðin hafði alls ekki beðið um slík kakkalakkastjórnmál aftur

Þessar kakkalakkahugmyndir þeirra kynsystra í stjórnmálum virka þó alltaf eins og hringur Herrans virkaði á aumingja Sméagol. Hringurinn dregur svo máttinn úr þeim að hið óhjákvæmilega fall úr 20,75 prósentum niður í sex prósentin verður næsta eðlilegur dauðdagi ríkisstjórnar þeirra. Fallið verður þó tortímandi hátt að þessu sinni, því aldrei aftur mun íslensk þjóð taka þátt í að koma þjóðsvikaflokkum á borð við þessa tvo til valda á ný

Blekið er varla þornað á stjórnarskrá þjóðfrelsisins sem vannst 1918 og sigldi loks til íslenskrar hafnar með fullfermi fulls sjálfstæðis Íslands árið 1944. Þessu mun þjóðin ekki gleyma

Þjóðfrelsið er frumforsenda einstaklingsfrelsis. Í ESB getur engin þjóð verið frjáls og þarf því bæði eins konar Gestapó og Stasi til að koma í veg fyrir sjálfsbjörg þeirra þjóða sem þar dúsa í húsum ESB-fjötranna. Hið ótakmarkaða yfirvald ESB-yfirríkisins jarðar hið takmarkaða ríkisvald þjóðríkjanna. Undir síkum forsendum er tómt mál að tala um einstaklingsfrelsi, því það getur aðeins þrifist undir hinu takmarkaða ríkisvaldi frjálsra þjóðríkja er halda sér saman sem ein heild fyrir tilstilli eigin þjóðar

Gulan og fölvinn lýsa nú þegar úr andlitum kynsystranna. Lífið í kakkalakkastjórnmálum virkar óhjákvæmilega þannig. Svona er að standast ekki illvirkni hringsins. Svona fer þegar fallið er fyrir freistingum hans. Þær gátu ekki staðist freistinguna. Gátu það bara ekki. Þær urðu að taka hann upp

Fyrri færsla

Kalda stríðið orðið að leit Evrópu eftir alþjóðlegri vernd [u]


mbl.is Einn mikilvægasti leiðtogafundur síðari tíma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Já Gunnar þetta er stórmerkilegt allt saman. Trump og Pútín eru hötuðustu menn fólksins á Vesturlöndum sem setur sig í hásæti yfir aðra og slaufar listamönnum vinstri og hægri fyrir að fara ekki innum nálarauga nýja stalínismans þeirra.

Óhætt er að rifja það upp að samkvæmt 90% Íslendinga fyrir nokkrum árum töldu þeir útilokað að Donald Trump myndi sigra Joe Biden og komast aftur til valda, en það gerðist nú samt. Þessir sömu sauðir sem höfðu látið RÚV og menningarmafíuna mata sig á bulli töldu að Pútín væri hálfdauður, Rússar að fara að gera uppreisn gegn honum, rússnesk vopn ónýt og úrelt, og að Úkraína myndi sigra innan árs frá innrásinni árið 2022.

Nú eru þessir tveir menn búnir að gefa ESB langt nef, og Frakklandsforseti minnir á vælandi smákrakka eins og aðrir leiðtogar þarna.

Í annað sinn á skömmum tíma er RÚV orðið uppvíst að falsfréttum í stórum stíl.

Í fyrra skiptið var fyrir hrunið 2008. Þá var því haldið fram að útrásin væri fyrir Guðs náð og að Íslendingar hefðu meiri hæfileika en aðrir til að græða peninga. Svo kom hrunið og RÚV rann á afturendann með sinn áróður.

Góða fólkið verður að fara að biðja marga afsökunar. Góða fólkið (sem er ekki gott heldur bara einfalt) verður að fara að skipta um skoðun og vakna til raunveruleikans.

Þínir pistlar eru alltaf góðir.

Ingólfur Sigurðsson, 16.8.2025 kl. 06:10

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Ingólfur

Athugasemd þín segir það sem þarf að segja í þessum efnum sem og óefnum.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 16.8.2025 kl. 16:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband