Leita í fréttum mbl.is

Kalda stríðið orðið að leit Evrópu eftir alþjóðlegri vernd [u]

Hnignun

Mynd: Þessi mynd frá mánudeginum 17. febrúar 2025, mun líklega fara inn í sögubækurnar sem fimmfalt Súezafhroð ESB-Evrópu. Frekari skýringar fáum við á næstu árum. Óttinn í andlitunum leynir sér ekki

****

Kalda stríðið snérist um samkeppni milli tveggja hugmyndafræðilegra tilvistarmáta: kommúnisma og kapítalisma

Í dag er öldin önnur. Í dag snúast málin um örvæntingarfulla leit Evrópuskagans eftir vernd gegn því sem skaginn veit að hann getur aldrei ráðið við

Málin hafa snúist á haus: frá því að Evrópa var málsmetandi þátttakandi í samkeppnisstríði milli tveggja hugmyndafræðilegra ofurvelda, Bandaríkjanna og Sovétríkjanna, yfir í númerslausa neyðarsímalínu skrifstofubáknsins ESB út í bláinn

"Getum við ekki notað Ísland sem stuðpúða gegn Bandaríkjunum og Rússlandi í norðri", er því spurt í dag

Hengilmænuríkisstjórn Kristrúnar þrasgerðar kveður svo vera. "Við skulum endilega flytja inn stríð því stríðið hefur áhuga á okkur!"

Er þetta ekki dásamlegt: ESB og þar með Evrópuskaginn er kominn á bráðavakt sleipiefnanefndar Evrópusambandsins í leit að plástrum sem stoppað geta útblæðingu Evrópuskagans - sem óneitanlega gengur út úr meginlandinu Rússlandi

Í Kalda stríðinu snérust málin um hugmyndafræðina, en í dag snúast málin um að skaffa sér vernd því hælisleitandanum ESB hefur verið neitað um alþjóðlega vernd í Bandaríkjunum, sökum skorts á tilvistarfræðilegum ágreiningsefnum

Hefðbundnir styrjaldarbardagar geisa nefnilega í Evrópu, hafa alltaf gert og munu alltaf gera, en ekki í Bandaríkjunum og ekki á yfirráðasvæði íslenska lýðveldisins

En því hyggst hengilmænuríkisstjórn Kristrúnar þrasgerðar breyta með því að panta þetta hælisleitarstríð Evrópusambandsins hingað

Í leit að alþjóðlegri vernd ráfar Evrópuálfan um norðurhvel jarðar. Ég veit hvar hún að lokum mun fá hæli, - og það er ekki hér

Uppfært kl. 16:25

Í millitíðinni hafa Bandaríkin breytt NATO í sölunefnd varnarliðseigna í Evrópu. Kalda stríðinu er jú lokið og innheimta arðs er hafin. Er því NATO í dag vopnasala aðeins, og því fyrst og fremst viðskiptalegs eðlis, því Evrópa mun aldrei geta varið Bandaríkin

Fyrri færsla

Gunnar Bragi hefur rétt fyrir sér


mbl.is Hafa rætt um mögulegan fund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Mikið rétt hjá þér Gunnar. Hælisleitendabransinn er orðinn einhvers konar babuska, þ.s. hver hælisleitandinn hýsir annan. Og allir vilja enda inn í BNA skelinni.  En BNA er búið að fá nóg af afætunum og segir stop.

Ragnhildur Kolka, 25.7.2025 kl. 22:02

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Ragnhildur.

Í vikunni núna tilkynnti hið bandaríska Intel að fyrirtækið sé hætt við fyrirhugaða framleiðslu örgjörva í Magdeburg í austurhlutum Þýskalands. Öllum áætlunum fyrirtækisins í Póllandi og Þýskalandi hefur verið aflýst. Fyrsta skóflustunga hafði þegar verið tekin Magdeburg og þýska ríkisstjórnin hafði þegar lofað Intel 10 milljörðum evra í ríkisstuðning, fyrir að flytja framleiðsluna þangað. En svo verður þó ekki, þrátt fyrir lofaðar niðurgreiðslur.

Nettó eiginfjárstaða heimila miðað við tekjur í löndum Evrópusambandsins hefur batnað um aðeins 30 prósentur frá árinu 2000 (muna hér eftir Lissabon-2000 galdramarkmiðum ESB). Á sama tíma hefur nettó eiginfjárstaða bandarískra heimila miðað við tekjur aukist um 110 prósentur.

ESB-musteri fátæktarinnar í Evrópusambandinu stækkar bara og stækkar. Engin furða að sambandið þurfi "stækkunarstjóra" því samkvæmt Lissabon-2000 markmiðum Evrópusambandsins átti ESB að vera orðið ríkara en Bandaríkin árið 2010. En það ár og þau 7 næstu var evran einmitt alveg við það að hrynja og er sá vandi í fjármála- og peningakerfum sambandsins óleystur enn. Þar tifar vandamálið bara og tifar og bíður eftir rétta hnjaskinu á réttan stað beinagrindasafns evrulíkhússins.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 26.7.2025 kl. 01:26

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Mig minnir að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hafi veifað Lissabon-2000 markmiða-fána ESB hátt á himnum hér heima þegar þau voru gefin út. Trúði flestu því þvaðri eins og sumir trúðu á 5 ára áætlanir Sovétríkjanna á sínum tíma. Get ekki séð mikinn mun á henni og kommunum í Austur-Berlín Reykjavíkurborgar á sovétárunum.

Gunnar Rögnvaldsson, 26.7.2025 kl. 01:39

4 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Ekki er komin kreppa út af tollastefnu Trumps. Hann virtist hafa Ursulu von der Leyen í vasanum þegar þau sömdu. Gasið sem ESB ætlar að kaupa frá USA mun vera 300% dýrara en frá Rússum, og kosnaðurinn við að breyta gasinu úr LNG í nýtanlegt gas bætist við. Katar hótar að hætta að selja ESB gas vegna askipta af innanríkismálum þeirra. Já það er fjölmargt sem minnir á Sovétríkin í ESB sem áttu að vera siðferðislega fullkomin en voru auðvitað langt frá því. 

Það hefur sýnt sig að tollahótanir Trumps eru til að ná samningum.

Ursula skuldbindur ESB til að kaupa vopn og gas frá Bandaríkjunum fyrir 1 trilljón dollara á næstunni. Þó vill DV láta líta svo út sem hún hafi sigrað en ekki Trump í þessum samningum þeirra. Skrýtið.

Þýzkir stjórnmálamenn eru mjög reiðir við Ursulu út af þessum samningum les maður um líka.

Það vekur athygli í þessu öllu að Rússland heldur áfram með sértækar hernaðaraðgerðir og vill ná allri Úkraínu. BRICS þjóðirnar eru sterkari bakhjarl en Vesturlönd samkvæmt því.

Held að ýmsir þurfi að hugsa sinn gang um styrkleika landanna og þjóðanna í heiminum.

Ingólfur Sigurðsson, 30.7.2025 kl. 05:21

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Ingólfur.

Já nú er eftirstríðstímabilið eftir Síðari heimsstyrjöldina og Kalda stríðið að renna sitt lokaskeið og ný og heit stríð komin í gang.

Tímarnir þar sem nýir Mercedes-Benzbílar runnu af nýju færiböndunum út úr splunkunýjum og bandarískt studdum bílaverksmiðjum Þýskalalands og út á bandarískt-sérverndaða markaði undir bandarískri samkeppnisvernd á meðan Stóra-Bretland barðist með að þrotum komið og niðurnítt framleiðsluapparat sitt við þjóðargjaldþrot vegna einmitt Síðari heimsstyrjaldarinnar og þeirrar Fyrri líka -báðar gangsettar af Þýskalandi- eru að líða undir lok og meginland taparanna að hverfa inn í hina gömlu frumskóga sína á ný, þar sem mikill meirihluti íbúanna hefur snúist gegn því eftirstríðs-fyrirbæri sem kallast lýðræði, sökum misþyrminga Evrópusambandsins á því. Fer nú að hitna í kolunum og allt að geta gerst aftur á meginlandi taparanna.

Í viðskiptadeilum er það yfirleitt þolandinn (viðskiptahallalandið) sem vinnur viðskiptastríð. Í þessu tilfelli eru það Bandaríkin sem eru þolandinn á sviði vöruviðskipta, en þó ekki á sviði þjónustuviðskipta. Bandaríkin hafa einokunarstöðu á sviði tækni og tækniþjónustu sökum fullkomins getuleysis meginlands Evrópu á því sviði og sem tilkomið er vegna tilvistar Evrópusambandsins (Dauðu-handa-sambandið), og sem er eins konar allsherjar Vúdúdýrkunarfélag um gervidúkku Hitlers von Adolfínu af der Spiegel ja.

Ekki veit ég hvort þessir samningar úrsölunnar í súlnasölum undralands verða samþykktir í löndum sambandsins - sem afsalað hafa sér sjálfstæði og fullveldinu í öllum helstu tilvistarmikilvægum málum; þar á meðal í viðskiptamálum og samningum við önnur ríki. En eins og ókunnugt virðist flestum hér á landi, er Úrsúlu-konan sú einn versti stjórnmálamaður sem Þýskaland hefur alið á síðari tímum.

Ég held að Úkraína munu í öllu falli og að mestu halda áfram að tilheyra hinum rússneskumælandi heimi sama hvað ESB-elítunni í því landi kann að finnst um það eða ekki. Og einkum nú þegar ljóst er að Evrópusambandinu er ætlað að verða hernaðarlegs eðlis. Þá vita óbreyttir íbúar Úkraínu að staðan er gjörtöpuð og landið þeirra mun aldrei ganga í slíkt misfóstur og tilvistarvernd mun því áfram verða sótt í Moskvu, til frambúðar séð.

Góðar kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 30.7.2025 kl. 12:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband