Leita í fréttum mbl.is

Grunnvextir hækka á evrusvæðinu - varanlega

Sell-off þýsk 10 ára ríkisskuldabréf 5 mars 2025 - vextir hækka

Mynd: Grunnvextir eru að snarhækka í Þýskalandi og þar með á öllu evrusvæðinu

****

Skuldaþakið eða "skuldabremsan" sem innleidd var í Þýskalandi sem vörn gegn því að Þýskaland er eitt stærsta óðaöldrunarhagkerfi veraldar, því svo fá fæðast þar börnin sökum geldingar þýsku þjóðarinnar og sem því er reyna að spara sig í hel, já það er hún sem haldið hefur niðri ávöxtunarkröfum þeirra sem hafa keypt skuldir af þýska ríkinu og öðrum evrulöndum. En nú á að slaka á þessari skuldabremsu svo hægt sé að verja elliheimilið, ekki gegn sjálfu sér, heldur gegn Rússunum sem Þýskaland reyndi að þurrka út en varð hins vegar sjálft þurrkað út eins og bæði sést og heyrist núna

Þessi svo kallaða skuldabremsa er að gefa sig vegna álags og þýska elliheimilið mun því verða skuldum vafið við andlátið, og þar með gera út af við þau fáu börn sem þrátt fyrir allt fæðast þar enn, þó svo að einu varnir Þjóðverja gegn öllu og öllum sé sparnaður. Þýski herinn notast því við kústsköft við æfingar

Bíddu aðeins: var ég búinn að nefna það að Úkraína skilaði víst til baka skriðdrekunum sem Danir "gáfu" henni – sökum úreldingar

Jæja, en hvað um það. Vextir eru því að hækka á öllu evrusvæðinu til frambúðar því skuldabréfakaupendur segja að ríkisfjármálaakkeri evrusvæðisins sé þar með farið. Ríkisskuldasúpa verður því framtíð evrulanda, sem nær öll eru skuldsett upp fyrir skorsteinana nú þegar, eða sem svarar til um og yfir 90 prósentum af landsframleiðslu þeirra – yfir alla línuna

Nú ber hins vegar svo við að á sama tíma og Bandaríki Norður-Ameríku hyggjast hætta vanþróunaraðstoðinni við svokölluð "varnarmál ESB-landa", að þá eru ríkisskuldir evrulanda í hæstu hæðum vegna einmitt evrunnar og þar af leiddri innvortis geldingu alls hagvaxtar; sem aftur bitnar á heilbrigðskerfunum sem eru að kafna vegna óðaöldurnar íbúanna; og afleiddra hárra skatta; og svo vegna svokallaðra "velferðarkerfa" sem eru að kikna undan óðaöldrun skattgreiðenda; og massífum innflutningi á ósjálfbjarga og þurftafrekum geimverum frá öðrum sólkerfum

Það er allt þetta sem er svo eftirsóknarvert fyrir það setulið sem nú mannar ríkisstjórn Íslands: að komast alla leið til helvítis á sem skemmstum tíma

Sem sagt: Akkerisfestingarnar á skuldabréfamörkuðum evrulanda hafa slitnað, því Þýskaland er byrjað að reka. Vextir hækka yfir alla línuna því áhættan fer hratt vaxandi, en ekki minnkandi. Horfunar fyrir lánshæfnismat evrulanda versna og lánshæfnismatið mun lækka - og svo koll af kolli, aftur og aftur

ESB og Evran
Hefur drepið hagvöxt evrulanda
Ríkisskuldasúpa evrulanda sýður því og kraumar
Afleiðingin er hækkandi vextir evrulanda
Útdauði skattgreiðenda evrulanda
Komandi innri borgarastyrjöld evrulanda
Rigor mortis þ.e. dauðastirðnun evrulanda
Allt þetta kallar á enn hærri vexti því áhættan bara vex og vex

Fyrri færsla

Fallbyssur Trumps í tollamálum


mbl.is Ræðir við Pútín á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Hver er summan af sex og þrettán?
Nota HTML-ham

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband