Leita í fréttum mbl.is

Já, Pólverjar verða að vakta landamærin upp að Þýskalandi. Það er gefið

Ég skil vel hugrenningar pólsku ríkisstjórnarinnar. Það er nefnilega aldrei of seint í rassinn gripið með að koma á fót alvarlegum fælingarmætti á landamærum Póllands upp að Þýskalandi. Og til að vakta þau þarf mikinn herafla, einkum þegar enn er ekki vitað hvaða lönd Evrópusambandsins Þýskaland ætlar að ræna að innan til handa hinum nýja og "ótakmarkaða" vopnaiðnaði sem landið ætlar að koma á fót samkvæmt fjárfestingarmanninum Friedrich Merz, - nú þegar honum hefur tekist að endurlífga það sambandsríkisþing Þýskalands sem kosið var burt í kosningunum um daginn, til að afnema einmitt "skuldabremsuna". Þá andaglasalist hefur Merz örugglega lært þegar hann sat í stjórn fjárfestingarfyrirtækisins BlackRock í Þýskalandi

En Pólverjar verða samt að athuga eitt áður en þeir hefjast handa: loka verður Schengen fyrst, þ.e. áður en allir sem enn eru eftir í landinu taka til fóta frá Póllandi

Skyldi það nokkuð vera Pólland sem Friedrich Merz ætlar að hráefna-ræna náttúruauðlindunum frá? Því varla getur Þýskaland rænt Grikkland tvisvar að innan, að minnsta kosti varla enn sem komið er. Hvaða önnur ESB-lönd koma til greina sem hráefnafóðurstöð Þýskalans núna? Handjárnuð við Þýskaland í gegnum evruna

Svona er að gera sig að samlokufyllingu með aðstoð vestursins einu sinni enn. Intermarium er miklu betri hugmynd fyrir Pólland og þar að auki vel framkvæmanleg hvað úr hverju.

En þetta er kannski eins og Mette Frederiksen sagði um daginn þegar hún var spurð að því hvort að allt þetta græna og lofslagsmálin væri þá bara komið út á öskuhaugana núna; já já, það er þannig sagði hún, "vi må gvie afkald på vælfærd fordi nu er det kampkraften men ikke købekraften der gælder"

Maður hlær sig máttlausan, því svo stutt er síðan að til greina kom að reka Danmörku úr NATO fyrir að heimila ekki bandarískum herskipum að koma þar í höfn, nema að því tilskyldu að Bandaríkin gæfu upp hvort að þau væru vopnuð kjarnorkuvopnum eða ekki. Og það gerðist einmitt á ríkisstjórnarvakt danska sósíaldemókrataflokksins, sem Mette Frederiksen stendur fyrir í dag. Sturlun flokksforystunnar hefur því greinilega ekki minnkað neitt að ráði síðan þá

Tralla la la, hefst nú fjörið... því þýsku rassaköstin koma á 80-100 ára fresti... tralla la la

Fyrri færsla

Á Ísraelsríki þá líka að leggja kosningar af?


mbl.is Undirbúa herþjálfun allra pólskra karlmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Hallgrímur Hrafn Gíslason

Gunnar.

Trumpinn er ekki búinn að fá jarðefni Úkraníu enn. Þau eru á lausu fyrir þýska stálið

Hallgrímur Hrafn Gíslason, 8.3.2025 kl. 21:22

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Hallgrímur.

Þú segir nokkuð.

Ég á dálítið erfitt með að skilja allt þetta tal um sjaldgæf jarðefni eða sjaldgæfa mála í jörðu í Úkraínu, því landið kemst ekki einu sinni á 2025-lista bandarísku jarðfræðistofnunarinnar yfir slík efni eða málma í jörðu í löndum veraldar.

Þessi hugmynd Trumps um að koma á fót eins konar Hong Kong-viðskiptasvæði eða herlausu svæði (DMZ) í hlutum af restinni af suðausturhlutum Úkraínu, til að virka þar sem eins konar bandarísk dyrabjalla eða bjölluvír gagnvart Rússum, held ég að þegar upp er staðið snúist alls ekki um sjaldgæf jarðefni eða málma í jörðu eða neitt slíkt, því Kænugarðsjuntan er að ég held búin að selja allt slíkt til óligarka landsins, fyrir löngu síðan. Og vita Rússar það líklega vel. 

En það yrði þó að minnsta kosti Þjóðverjafrítt svæði, komi til þessa. En það er bara alls ekki víst að Kænugarðsjuntunni líki einmitt það.

Þannig að þetta sem þú segir gæti þrátt fyrir allt og alla og að lokum gengið einhvern veginn upp.

Og einmitt þess vegna þurfa Pólverjar að gæta sérstaklega að landamærum Póllands upp að Þýskalandi og standa varðstöðuna fyrst og fremst þar.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 8.3.2025 kl. 22:16

3 Smámynd: Grímur Kjartansson

Ég sá í dönskum miðlum að nú er sönunarherferð í gangi fyrir sveltandi heim. Leitað er til almennings því ríkisstjórn Danmörkur og ESB eru ekki alögufær vegna hernaðarútgjalda en auðvitað er Trump kennt um þetta allt fyrir að vilja draga úr umsvifum USAID 

Grímur Kjartansson, 9.3.2025 kl. 09:39

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Grímur.

Tja já, það munu vonandi verða einhver áhrif af uppskurði Trumps á USAID. Til dæmis má vona að áróðursstarfsemi fjögur þúsund og þrjú hundruð fjölmiðla (4300 stk.) sem USAID fjármagnaði og sem náðu til 800 milljón manna, muni lækna eitthvað af þeirri hrikalegu áróðursstöðu sem einkennt hefur alla Úkraínudeiluna frá upphafi. Sovétríkin undir Stalín voru bara amatörar og dvergar miðað við þetta.

Hugsaðu þér:

==========

472 milljón dalir á ári í áróðursstarfsemi fjölmiðla.

13 milljón dollarar á dag (1,7 milljarðar ISK á dag)

fóru til 4300 fjölmiðla.

Og sem fjármögnuðu amk. 5000 tíma af útsendingum á ári

til 800 milljón fórnarlamba áróðursins.

Mikið af þessu var á skriflegu pilluformi, þ.e. Vonarfeni frá Pentagónurum. Og sumt af fjármununum fór í að eyðileggja tungumál sumra landa.

Þarna er Demókrataflokknum rétt lýst. Þetta er háborg þeirra. En ESB er eins konar alþjóðleg útgáfa af honum.

Fróðlegt væri að fá að vita upphæðirnar sem Evrópusambandið ver í sínar áróðursmaskínur á hverju ári. En þær eru hrikalegar. BIS hefur til dæmis lengi ásakað framkvæmdastjórn ESB um að birta hluta áróðurs sinn í formi "greininga". "One Market, One Money" frá framkvæmdastjórn ESB var til dæmis áróður sem selja átti evruna sem "nauðsynlegan" fylgihlut hins svo kallaða innri markaðar. Allt saman bráðdrepandi hlutir fyrir fullveldi allra ríkja. Algjör þvættingur frá upphafi til enda.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 9.3.2025 kl. 10:20

5 Smámynd: Daníel Sigurðsson

Það skyldi þó aldrei vera að Þjóðverjar hugsi sér til hreyfings að enduheimta stolnu landsvæðin (Prússland) sem tekin voru af þeim á síðustu vikum seinni heimsstyrjaldar. Þar var um að ræða stærstu brotthrakninga á fólki (Volksvertreibung) sögunnar.  Um 2 milljónir óbreittra þýskra borgara týndu lífi í þessum villimannlega harmleik. Þess má geta að lítill hluti af þessu þýska fólki sem lifði flóttann af fann sér nýja bólfestu á Íslandi.  Þökk sé íslenskum stjórnvöldum.

Daníel Sigurðsson, 9.3.2025 kl. 10:35

6 Smámynd: Daníel Sigurðsson

óreyttra en ekki óbreittra, átti þetta að vera

Daníel Sigurðsson, 9.3.2025 kl. 10:38

7 Smámynd: Daníel Sigurðsson

Fjandans stafsetningar villu-púkinn!  ÓBREYTTRA vitaskuld!

Daníel Sigurðsson, 9.3.2025 kl. 10:41

8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Daníel.

Það er hárrétt hjá þér að landamæri ríkja Evrópu hafa í gegnum söguna verið flutt fram og til baka, allt eftir valdapólitísku ástandi mála þar um slóðir. Þetta er auðvitað ekkert smá mál fyrir mörg lönd álfunnar og íbúa þeirra.

Málefni austurlandamæra Þýskalands hafa á síðustu 20 árum mjakað sér á ný inn í þjóðfélagsumræðuna þar í landi - og gleður það skiljanlega engan í Póllandi, sem um tíma var þurrkað út af landakortinu.

En fyrr á tímum var til dæmis stór hluti Úkraínu pólskt landsvæði og sem um tíma náði langt niður í áttina að  Svartahafi. Þarna eru því hin ýmsu járn í eldinum sem aldrei verður slökktur til fulls. Þannig er mannkynssagan.

Við erum því óendanlega heppin að eiga eyju sem þjóðarheimili Íslendinga og ættum því ekki að rugla reitum okkar saman við meginland Evrópu að neinu leyti, því slíkt mun ekki enda vel fyrir Ísland.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 9.3.2025 kl. 11:26

Bæta við athugasemd

Hver er summan af fjórum og nítján?
Nota HTML-ham

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband