Leita í fréttum mbl.is

Á landmassa Gamla heimsins gilda ekki úthafslögmál

Kanínu-önd Kuhn-stökkbreytinga í hugsun manna

Því miður virðist gilda það sama um skoðanir manna í geopólitískum efnum og gildir oft í heimi vísinda. Andstaðan við nýjar staðreyndir minnkar aðeins í takt við líkamlegan dauða (jafnvel útdauða) þeirra sem neita að horfast í augu við þær

Að mæta Rússneska hernum á landmassa Gamla heimsins var og er enn eins og að vera á skellinöðru þegar þú mætir jarðgangaborvél í jarðgöngum, þ.e.a.s. ef þú ert flotaveldi. Slíkar staðreyndir eru afar þrjóskar. Allt önnur lögmál gilda á úthöfum veraldar. En jafnvel þar er forskot Bandaríkjanna að gufa upp fyrir nýrri kafbáta- og eldflaugatækni Rússa

Vladímír Pútín og Valery Gerasimov stilltu borvélina á þann hraða og það afl að hin Sérstaka hernaðaraðgerð Rússlands í Úkraínu virkaði eins og suðupottur sem sýður frosk við svo lágan hita að hann tekur ekki eftir því fyrr en um seinan - og þá er hann orðinn lamaður: vöðvaaflið er farið

Um tvo froska var að ræða; einn í Kænugarði og svo Joe Biden-gengið í Washington. Þessi í Washington var þess utan geðbilaður og urðu Rússar því að umgangast hann eins og barn sem er að leika sér með kjarnorkusprengjur foreldranna. Hann urðu Rússar að umgangast með sérstökum suðupotti og með því að þykjast ekki kunna á hann og með því að þykjast ekki geta neitt - nema í smásjá

Bakgrunns-súgþurrkun Gerasimov á NATO-ríkjunum er einnig aðdáunarverð strategía sem jaðrar við snilld. Þrýstiaflið (intensitetið) var alltaf haft þannig og það lágt að það kæmi aldrei til greina að kalla neitt þjóðþing Natóríkjanna saman til að forgangsraða þjóðarframleiðslunni á ný með nýrri stríðsfótarlöggjöf, eða hálf-stríðsfótarlöggjöf

Pútín og Gerasimov pössuðu sig á að hafa intensitet hinnar Sérstöku hernaðaraðgerðar aldrei meira en sem svaraði til fyrirfram tryggðu aðgerðaleysi á öllum þjóðþingum hinna ofdekruðu vesalinga NATO-ríkjanna. Aldrei mátti aflið vera það mikið að til greina kæmi að hinn vestræni þingheimur þyrfti að gangast í það ofurmannlega pólitíska stórvirki að lækka til dæmis örorkubætur flokksformanna - til að geta framleitt meira af vopnum og skotfærum

Nú er allt svo tómt í vopnabúrum Vestursins að það glymur í NATO eins og í tómri tunnu. Það mun taka sum ríkjanna minnst 30 ár að byrgja sig upp á ný

NATO er búið að vera: það er komið á örorkubætur

En Rússar munu ekki linna fyrr en nýr þjóðaröryggis-arkitektúr hefur verið saminn fyrir meginland Evrópu. Rússar munu diktera þá samninga og jafnvel tyggja þá ofan í hin nú fyrrverandi og druslugangandi Vesturveldi

Svona fer þegar óvitar pota prikum nógu lengi í sofandi björn

Fyrri færsla

Trump kom til dyra þegar sjálfstæður og fullvalda Starmer kom í heimsókn. Þokulúðrasveitin


mbl.is Bretar og Frakkar munu vinna að friði með Úkraínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Grímur Kjartansson

Maður fer að trúa að þetta hai allt verið með ráðum gert hjá Trump á fundinum með Selenky í Hvíta húsinu

Trump er ekki lengur eins bundin af loforðum sem forveri hans gaf um stuðning við Úraínu og Evrópa fer loks vinsanlega framá við Selensky að hann hunskist til að setjast að samningaborði

Grímur Kjartansson, 2.3.2025 kl. 12:45

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Grímur.

Nei uppákoman í Hvíta húsinu var ekki skipulögð af Trump heldur af (Grétu) Zelensky. Sá maður vissi sem var að það eru engir sjaldgæfir málamar að neinu ráði í jörðu Úkraínu og að jarðfræðistofnun Bandaríkjanna vissi það líka - og að Trump myndi því vita það bráðlega líka.

Þessi (Gréta) Zelensky reyndi þarna í tvígang að múta Bandaríkjunum til áframhaldandi fjármögnunar stríðsreksturs í Úkraínu með þessu falsplaggi um málma: -  að undirlagi Emmanuels Macrons og Keirs Starmers og ESB.

Fyrsta tilraun þeirra var gerð þegar Zelensky heimsótti Trump í Trump-bygginguna síðasta haust. Hún var árangurslaus enda Trump ekki heilabilaður eins og Joe Biden og hyski hans.

Trump sest svo í embættið í janúarmánuði og finnur fljótlega út úr því að það eru engar tryggingar fyrir neinu af því sem sent hefur verið á vegum bandarískra skattgreiðenda til Úkraínu. Hann ákveður því að segja já takk við málma-ruglinu en bætir höfnum, flugvöllum og opinberum atvinnurekstri inn í skjalið, en vel að merkja án þess að gefa neinar þær öryggistyggingar sem Zelensky-Macron-Starmer-ESB vildu fá og engin loforð um neitt meira nýtt af neinu tagi. Trump vildi einfaldlega bara fá þetta sem veð fyrir því sem þá þegar hafði verið látið af hendi.

En Zelensky hafði ekki hugsað sér neitt slíkt og hleypti því fundinum upp með opinberum ruddaskap og svínslátum eins og Grétum-Tún-og-Zel einum er lagið, svo að hann þyrfti nú ekki að láta neitt af hendi fyrir komandi núll-nýtt úr vösum Bandaríkjamanna. Þetta var einfaldlega tilraun til að múta forseta Bandaríkjanna og þarna mistókst hún algjörlega.

Það verður fróðlegt að fylgjast með fíflunum um allar jarðir Vesturlanda þegar lokasannleikurinn um Volodymyr Zelensky rennur upp fyrir þeim. Af fréttum urðu þeir apar.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 2.3.2025 kl. 15:20

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Aðgerðir og undirróður Frakka, ESB-elítunnar og Breta í þessu máli miðuðust að miklu leyti að því að reyna með öllum ráðum að njörva Bandaríki Norður-Ameríku niður í Úkraínu í eins konar nýju Víetnam-stríði.

Við það myndu Bandaríkin minnka, en ESB og Bretland stækka, plús að það myndi halda Trump-stjórninni meira í skefjum en ella.

Gunnar Rögnvaldsson, 2.3.2025 kl. 18:16

Bæta við athugasemd

Hver er summan af fimm og níu?
Nota HTML-ham

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband