Leita í fréttum mbl.is

Rúllað yfir ESB-hrúguna

TRUMP HRINGDI Í PÚTÍN

Donald J. Trump forseti Bandaríkjanna hringdi í Vladímír Vladímírovich Pútin forseta Rússlands og þeir komust að samkomulagi um að tími sé kominn til að reyna nú að binda enda á stríðið í Úkraínu. Eftir rúmlega 90 mínútna samtal forsetanna tveggja sló Trump svo stund síðar á þráðinn til Kænugarðs til að tilkynna Zelensky forseta Úkraínu um samtalið

Þann 30. janúar sagði Marco Rubio nýr Trump-utanríkisráðherra Bandaríkjanna í viðtali við Megyn Kelly, að sú staða í heimsmálum sem komst á eftir lyktir Kalda stríðsins hafi verið undantekningarástand og að sá eins-póls heimur sem þá varð, sé nú liðinn undir lok. Fleiri valdapólar eru nú aftur virkir á veraldarsviðinu, þar á meðal Rússland, Kína og Indland

"So it is not normal for the world to simply have a unipolar power. That was not – that was an anomaly. It was a product of the end of the Cold War, but eventually you were going to reach back to a point where you had a multipolar world, multi-great powers in different parts of the planet." - (feitletrun mín)

Rubio sagði einnig að það hefði verið óheiðarleiki að reyna telja mönnum trú um að Úkraína gæti unnið stríð við Rússland og jafnvel lagt Rússland að velli. En þá sögu hafa t.d. stórfjölmiðlar vesturlanda apað upp eftir Biden-stjórninni, Pentagon og NATO og reynt að troða henni ofan í lesendur sína í bráðum þrjú ár. Fjölmiðlar þeir eru sannarlega verri en rusl og klárir í tunnurnar. Engir björgunarbátar geta bjargað þeim

"But what – the dishonesty that has existed is that we somehow led people to believe that Ukraine would be able not just to defeat Russia but destroy them, push them all the way back to what the world looked like in 2012 or 2014, before the Russians took Crimea and the like.” - (feitletrun mín)

En nú er Trump sem sagt búinn að tala við Pútín og ef ESB-hrúgunni líkar ekki það sem þessir tveir semja um sín á milli, þá hendir Trump öllu Úkraínumálinu í hausinn á ESB-Evrópu eins og það leggur sig, og lætur hrúguna þá alfarið um það mál

Dansinn við Rússa verður þungur fyrir Trump og hann mun ekki hafa mikla þolinmæði í margþjóðakjaftæði. Úkraína mun aldrei ganga í NATO (enda hafa íbúar Úkraínu aldrei viljað það) og Rússar munu lögga restina af landinu og sjá til að svona geggjun eins komst á laggirnar þar 2014 endurtaki sig aldrei aftur

Svona mun þetta verða, eða í þessum stíl - og svo mun til dæmis John Bolton Rússahatari ásamt ýmsum öðrum heimsþekktum Rússahöturum sennilega kafna í eigin frekju

Bíður nú símanúmeralaus ESB-hrúgan eftir nánari málavöxtum úti í horni - því vaxa munu málin þau. Vaxa munu þau... og vaxa

Svo er það Grænland.... tralla la la

Fyrri færsla

Guðrún Hafsteinsdóttir næsti formaður Sjálfstæðisflokksins


mbl.is Trump hringdi í Pútín: Hefja viðræður án tafar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Ég hrósa þér fyrir það Gunnar að hafa staðið við sannfæringu þína frá byrjun og haft kjark til að tjá þig þótt almenningur væri að trúa fréttaskólpinu frá RÚV. Ég var líka einn af þeim sem áttuðu sig frekar snemma.

Það eina sem leiðtogarnir í Evrópu gera er að hugsa um sjálfa sig. Ekkert er hugsað um framtíð landanna, þegnanna.

Bandaríkjamenn eru miklu kristnari en Evrópuþjóðirnar og það bjargar þeim. 

Maður vonar að eitthvað bjargi Evrópu, en ekki virðist það í sjónmáli.

En ég yrði ekki hissa á því að við séum að lifa "áhugaverða tíma", og að það eigi við um framtíð Evrópu líka.

Ég les ekki erlendu blöðin, en las grein eftir Björn Jón Bragason á DV, sem lýsti því að málsmetandi menn í Þýzkalandi séu farnir að tjá sig frjálslega, Shitbürgertum er nýútgefin bók eftir Ulf Poschardt aðalritstjóra Welt, þar sem hann vandar ráðandi öflum í Þýzkalandi ekki kveðjurnar og sú bók hefur vakið mikla athygli.

Kyrrstaðan er því rofin í Þýzkalandi, stöðnunin. Hvort það leiðir í sömu átt og 1933 eða í átt að hörðum kommúnisma, erfitt að segja. Eða leiðir það allt annað? Leiðir það í átt að kristilegu íhaldi eins og í Bandaríkjunum?

Við upplifum áhugaverða tíma, og þú hefur sýnt að þú ert góður útskýrandi. 

Ingólfur Sigurðsson, 14.2.2025 kl. 02:36

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir áhugaverða athugasemd Ingólfur.

Þar til ég veit meira læt ég nægja að pósta hér nokkur orð Dmitry Medvedev formanns Rússneska öryggisráðsins í gær:

"Tími Evrópu er liðinn" - "Hún er máttlaus, ljót, gagnslaus" - og "frigid".

Að ætla að reyna að fylgjast með þessum málum með því að lesa dagblöð eða hlusta á DDRÚV-kommúnistavarpið í Austur-Berlín Reykjavíkur, er eins sitja undir fjölmiðlun Freds Flintstone h/f.

Hér má lesa ræðu Pete Hegseth varnarmálaráðherra Bandaríkjanna sem hann hélt yfir Fred Flintstone samkundu NATO í Brussel: "Eins og hún var haldin".

Þarna segir Hegseth næstum berum orðum að Rússland sé búið að vinna stríðið og að ekkert sé við því að gera annað en að taka sig saman og hætta að reyna mjólka Bandaríkin  - og ykkur var nær að fylgja Biden-genginu til helvítis hugsaði hann sennilega á leiðinni út. 

Meira um þetta síðar.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 14.2.2025 kl. 07:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband