Leita í fréttum mbl.is

Kristrún að kafna undir Ingu. Kvika blasir við

Kristrún og Inga jóla

Mynd: Inga og Kristrún glíma... við hvað?

****

Maður sér líkhvíta litinn færast yfir Kristrúnu á meðan það hlakkar í Ingu sem heldur þéttingsfast um pólitíska slagæð ríkisstjórnarinnar. Og situr reyndar á henni, því hún er utanáliggjandi

Togað er af öllum krata-kröftum, því þetta er "upphafsskref okkar stelpnanna í því hvernig við ætlum að vinna saman"

Saman með Samfylkingu og saman við köfnum. Samköfnun fjölbreytileikans

Dagurinn í gær var því "tilfinningaríkur og líka kærleiksríkur"

Já já og svo verðum við gjaldþrota, saman. ESB-gjaldþrota

Þetta þurfti ekki að fara svona, en löngunin í ESB-spillinguna varð og verður áfram ríkisstjórninni að falli

En gervigreindin lifir. Engin ný tækni þar. Bara nýr kóði

Hvað skyldi kóðaorð ríkisstjórnarinnar vera? Er það nokkuð INGA. Eða er það kannski ESB...

Screen Shot 2025-01-28 at 10.27.34

Lengi lifi gervigreindin. Gervi gervi og gervi...

Fyrri færsla

Kanslaraefni CDU segist ætla að loka landamærum Þýskalands og Schengen á fyrsta degi sínum í embætti; varanlega


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Mér sýnist Inga hafa traust tak þarna á Kristrúnu.

Ragnhildur Kolka, 30.1.2025 kl. 13:32

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Já það er þannig Ragnhildur. Og það eru víst fleiri sem hafa tak, jafnvel ítök.

Það var fróðlegt að sjá hvernig CSU snéri upp á arma CDU í þýska þinginu, alla leið frá Bæjaralandi. Nú er bara að bíða og sjá hvort að þýskir kjósi ekki bara frumflokkinn í stað eftirhermunnar í næsta mánuði. Pyrrhosarsigur dettur manni helst í hug. Gæti dugað Merz skammt. Rauður varalitur fer honum ekki það vel.

Og einn eitt ríkisstjórnarhrunið tengt glapstigum ESB-hrúgunnar varð í dag, nú í Noregi.

Get varla ímyndað mér annað en að norski forsætisráðherrann hafi flissað ofan í graut Mette F yfir Grænlandsvandræðum nýlenduhaldarans. Danska hirðin gæti jafnvel þurft að finna nýtt mótíf fyrir næstu póstkortaseríu Amalíuborgar.

Hvar var annars Kristrún Frostadóttir stödd þá??

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 30.1.2025 kl. 15:48

3 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Ég var svolitla stund að fatta þetta með Ingu Sæland og hvernig hún er kannski frekar að þjóna sjálfri sér en fátækum. 

Mér finnst enginn skrifa betur um útlend málefni en þú Gunnar, alvarleg mál og rétt en með smá íróníu líka.

Ég held að það hefði góð áhrif ef þú myndir skrifa um þetta fleiri pistla. Stíll þinn er mjög góður og sannfærir marga held ég. 

Að vísu ríkir þöggun núna, en þínir pistlar eru mjög góðir.

Til dæmis ef þú myndir skrifa langan pistil og spá fyrir um þróunina í Evrópu. Svo þetta Grænlandsmál, eða Orkupakkinn norski og sprungna stjórnin.

Eru fleiri þjóðir að fara útúr ESB og breytingar í vændum? Mér finnst það mögulegt.

Beztu kveðjur.

Ingólfur Sigurðsson, 31.1.2025 kl. 12:09

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Takk fyrir pöntunina Ingólfur minn kæri.

Eins og er langar mig mest í hangikjöt, súran lundabagga og súran hval.

Ég hefði ekki viljað vera í grautnum hjá stakkels Mette. Hvílíkt hobby-snobb vol og væl um það sem aldrei var danskt.

En nú er norski forsætisráðherrann skyndilega kominn skíðlogandi í hálogaland heima hjá sér, eftir að hafa flissandi skilið við Mette sem er föst í skidegodthåb.

Þetta verður skemmtilegt. Tralla la la la. Nú má veðrið koma.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 31.1.2025 kl. 15:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband