Leita í fréttum mbl.is

Rússland nú fjórða stærsta hagkerfi veraldar. Lánshæfnismat Frakklands lækkað

World Bank Rússland VLF PPP  maí 2024

 

Alþjóðabankinn

****

RÚSSLAND

Alþjóðabankinn segir að frá og með 2022 sé rússneska hagkerfið það fjórða stærsta í heiminum. Það er orðið stærra en hagkerfi Japans. Í fyrra varð það í bókum bankans stærra en hagkerfi Þýskalands. Aðeins hagkerfi þriggja landa mælast nú stærri en rússneska hagkerfið segir bankinn. Lítur út fyrir að þetta hafi gerst á undanförnum fjórum til fimm árum

Fimm miljarðar útgáfur af skoðanafréttum svo kallaðra vestrænna fjölmiðla höfðu þó á undanförnum tveimur árum frætt okkur um að aðalhandlangari NATO gegn Rússlandi, Úkraína, væri að vinna stríð við Rússland, meðal annars með aðstoð refsiaðgerða og vestrænna undravopna sem hinar vestrænu fréttaveitur fjálglega höfðu kynnt í svo kölluðum "fréttum" sínum í samfellt tvö ár. Minna en ekkert hefur þó verið að marka fréttir þeirra í meira en tvö ár. Þær hafa einungis verið stafrænt suð á borð við suð félagsmiðla

FRAKKLAND

Á föstudag eftir lokun markaða lækkaði Standard og Poors lánshæfnismat Frakklands vegna krónísks fjárlagahalla, þ.e. umframeyðslu ríkissjóðs Frakklands. Eru þá aðeins tvö A og einn mínus eftir af einkunn Frakklands hjá matsfyrirtækinu (AA-). Síðast var lánshæfnismat Frakklands lækkað evrukreppuárið 2013 | krækja

Segja og skrifa nú sumir greinendur að ný fjármálakreppa evrulanda sé á næsta leyti því hvergi gengur vel á myntsvæði Evrópusambandsins, vegna einmitt myntarinnar evru. Og að þessu sinni verður það sjálf samfélagsgerð evrulanda sem mun falla og leysast upp, skrifaði til dæmis Eurointelligence rétt fyrir páska

EISTLAND, LETTLAND OG LITHÁEN

En Standard og Poors lét sér ekki bara nægja að lækka lánshæfnismat Frakklands, því einnig Eistland, Lettland og Litháen fengu lánshæfniseinkunnir sínar lækkaðar. Hafa þessi þrjú evru-lönd þó síðastliðin 20 ár verið bæði í NATO og ESB

Fyrri færsla

Ég óska Bjarna Ben til hamingju og velfarnaðar


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Frábær pistill hér á ferðinni sem gefur lesendum vítt sjónarhorn, og rétt viðmið, en jafnvel Mogginn er orðinn hallur undir RÚV fréttamennsku og hallandi gráður í fréttaflutningi.

Það er einhver mikil skekkja í því að fallandi Natóveldi lofi milljónum árlega til stuðnings leppríkinu Úkraínu og gerspilltum stjórnmálamönnum þar, sem eiga milljónir fyrir.

Þegar utanríkisráðherrar opna munninn á Íslandi er eins og þeir tali út frá miðju veraldarinnar. Miðja veraldarinnar virðist hafa farið annað, til BRICS ríkjanna mögulega.

Undir Evrópusambandinu hafa öll lönd þess veikzt. Það er alþekkt að tapandi lönd rotta sig saman í tapinu.

Saga Gaulverja (og Kelta allra) og Rómverja er mjög fróðleg.

Rómverjar höfðu samstillta stríðsvél en Keltar ekki. Keltar voru fjölmennari og náðu yfir næstum alla núverandi Evrópu, til Þýzkalands nútímans, og Germanir voru Norðurlandamenn kallaðir.

Rómverjar sigruðu þá þrátt fyrir fjölmennið.

Keltar sameinuðu ættbálka sína til að reyna að sigra rómverska heimsveldið. Sesar brytjaði þá niður hvern eftir annan í fullkomnu miskunnarleysi og vann fullkominn sigur, fyrir utan á Bretlandi.

ESB var alltaf sömu mistökin og Keltar gerðu.

Hver Evrópuþjóð er sterkari ein og sér, með eigin gjaldmiðil, eigin þjóðerniskennd, tungumál, og menningu.

Vaxtarverkir gera vart við sig hjá Bretum og það er ekki auðvelt að rísa upp úr deyðandi áhrifum sameiningar, en það gerist nú samt.

Frakkland er eitt öflugasta ESB landið. Samt er svona komið hjá þeim. Það ætti að gefa vísbendingar um breytta heimsmynd. Þjóðverjar munu einnig eiga í vanda.

Reglugerðir Evrópusambandsins eru löngu komnar úr hófi. 

En eins og Sovétríkin sáu ekki sjálf að þau voru risi sem var að verða að steini, þannig sér Evrópusambandið það heldur ekki.

Í okkar þjóðfélagi, þar sem menn veigra sér við að segja sannleikann og tjá sig, er það jafnvel kjarkur að segja fréttir þar sem eitthvað jákvætt er sagt um Rússa.

Takk fyrir að vera einn af þessum eðalbloggurum.

Ingólfur Sigurðsson, 3.6.2024 kl. 11:55

2 identicon

100%

Asgeir Halldorsson (IP-tala skráð) 3.6.2024 kl. 15:35

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Ingólfur.

Á vesturlöndum trúa stjórnmálamenn menn flestu nema staðreyndum.

En það er staðreynd að Rússland er eina alvöru nýjungin sem uppi er á borðum veraldar í dag. Hlýnun af mannavöldum og gervigreind eru það hins vegar ekki.

Síðasta nýtt í heiminum er því enn iPhone - og Rússland.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 3.6.2024 kl. 18:42

4 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Gaman að fá þig aftur í gang Gunnar. Þessi pistill þinn skýrir hvers vegna undanfarna mánuði stríðsöskrin hafi helst borist frá Frökkum og Eystrasaltsríkjunum. Þetta er gamalt bragð, þ.e. að beina athyglinni frá aðsteðjandi vanda á heimaslóð. Þá er ekkert betur til vinsælda fallið en fara í stríð við óvin (raunverulegan eða ekki). Hvers vegna íslenski utanríkisráðherrann veifar sinni stríðsöxi af jafn miklu afli og raun ber vitni gæti Kannski bent til að efnahagsástandið hér heima sé kannski verra en við gerum okkur grein fyrir. Þú veist kannski eitthvað meira um það en við hin?

En kannski ráðherrann sé bara að koma sér fyrir í röðinni, á eftir Kaju Kalla, sem næsti Nato-stjóri nú þegar Orban hefur hafnað Rutte. 

Ragnhildur Kolka, 7.6.2024 kl. 19:14

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér kærlega fyrir innlitið og athugasemd Ragnhildur.

Í gær lækkaði ECB-aukaseðlabanki Þýskalands stýrivexti á evrusvæðinu um 0,25 prósentur. Það merkilega við þá lækkun er að ekkert bendir til þess að verðbólgan á evrusvæðinu sé á neinni sérstakri leið niður á verðbólgumarkmið seðlabankans. Hún haggast einmitt ekki í þá áttina, heldur í hina þ.e. burt frá markmiðinu.

En það eru hins vegar mikil og stór vandamál í gangi í bæði Þýskalandi og Frakklandi. Bæði efnahagsleg og pólitísk. Verðbólgan er enn himinhá fyrir hina sameiginlegu mynt, og næsta þjóðfélagslega fjármálakreppa á evrusvæðinu siglir fyrir fullum seglum heim til löndunar.

Hin lækkaða lánshæfniseinkunn og hinn króníski fjárlagahalli í Frakklandi mun hafa miklar og langvarandi verkanir, því það kostar sífellt meira og meira fyrir núverandi valdhafa í báðum þessum löndum að halda sér við völd og að kaupa þá út sem að þeim sækja.

Ríkissjóðir þessara landa þola ekki mikið meira af einmitt þessum stjórnmálamönnum sem siglt hafa Evrópusambandinu og þar með einnig evrunni í strand; nú sem héraðsmynt.

Allir vita að Frakkland er ekki með neinn her að ráði.

Og allir sem vilja, vita að þýski herinn er nánast ekki til og þeir sem í honum eru eru þar að mestu leyti til samfélagslegar refsivistar. Hæfu fólki er hafnað og hefur það verið svo áratugum saman.

Og ekki þýðir að koma á herskyldu í Þýskalandi því Schengen sér fyrir því; fólk á herskyldualdri fer einfaldlega úr landi.

Látum hið galtóma blað utanríkisráðherra okkar bara standa áfram. Enginn tekur mark á henni frekar en Guðlaugi Þór, hvorki hér heima, erlendis og allra síst flokksmenn hennar. Hún er flokksfæla.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 7.6.2024 kl. 21:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband