Leita í fréttum mbl.is

Bandaríkin samþykkja refsiaðgerðir á Nord-Stream2 gasleiðsluna

Repúblikaninn Mike Conaway frá Texas lýkur umræðunni um Nord-Stream-2 í fulltrúadeild bandaríska þingsins

****

Fulltrúadeild Bandaríkjaþings hefur með 377 atkvæðum gegn 48 sett refsiaðgerðir á þá og þau fyrirtæki sem vinna- og aðstoða við byggingu Nord Stream 2 gasleiðslunnar frá Rússlandi til Þýskalands. Hún er byggð til þess að einangra Úkraínu betur áður en hún verður gleypt. Víst þykir að öldungadeildin samþykki líka. Og í hvítu húsi bíður viss maður sem talinn er hafa jafnvel sérstaka ánægju af að staðfesta aðgerðirnar. Þarna vinna báðar deildir þingsins saman þvers á flokka, og svo vill til að forsetanum er ljúft að staðfesta og framkvæma vilja þingsins

Bandaríkin hafa skrifað undir að verja 27 lönd Evrópu með aðstoð landanna sjálfra, sem varla draga andann vegna ESB, og að koma þeim til bjargar, sé á þau ráðist. En Bandaríkin geta ekki staðið við þessar skuldbindingar nema að allir standi saman og að sum ríkin vinni ekki viðstöðulaust að því að sundra hernaðarbandalaginu innan frá. NATO er hernaðarbandalag og slík bandalög krefjast hers. Þann her hafa aðeins Bandaríkin, vegna þess að Evrópa er önnum kafin við að fremja sameiginlegt sjálfsmorð undir fána Evrópusambandsins, sem Bandaríkin geta ekki varið álfuna gegn. En hér gerir bandaríska þingið að minnsta kosti það lágmark sem allir ættu að geta snúið bökum saman um... eða hvað haldið þið...

Enginn á kaffihúsi á Ítalíu hefur hugsað sér að deyja fyrir Eistland, ráðist Rússland þar inn. Ekki frekar en að rétta Grikklandi hjálparhönd þegar það er að deyja undan þýskum Evrópusambands-evrum. Evrópusambandið er nefnilega eins og tískuhugtakið transgender. Ekkert slíkt fyrirbæri er til. Aðeins transvestítar eru til. ESB er klæðaskiptingur, og þar með er það ekki nema eitt prósent af þjóðunum; það er elítan

Kynskiptingar eru heldur ekki til. Aðeins einstaklingur sem skipt hefur um kyn og heldur svo kjafti, er til. Eða réttara sagt; ætti að vera til

Sem sagt; veruleikinn passar ekki við tískuþvaður dagsins í dag, og hefur reyndar aldrei í sögu manna gert það. Af þessu leiðir að Evrópusambandið er einungis pappírsbunki sem kveikja má í og þá er það horfið, án þess að neinn, nema eitt prósent, sakni neins. En hvað með NATO? Er það kannski orðið transgender líka? Eða er það ennþá hin ekta harða vara í hörðum pökkum

Nú er bara að bíða eftir væluliðinu; íklæddu þvaðri

Fyrri færsla

Stórsigur breskra þjóðaríhaldsmanna


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Örn Einar Hansen

Ekii ätla ég ad andmäla málefni thessa mans. En ég vil andmaela á thann hátt ad segja ad thetta sýnir hvar bandaríkin eru í stjórnmálum og hversu "fasistisk" thau eru.

Hvada áaetlun rússar hafa, skiptir engu máli ... thetta eru innanríkismál Evrópu, sem bandaríkin hafa afskipti af svo ad ekki er haegt at láta thetta lyggja. Thetta er hreinn nasismi. hreinn stalinismi af hálfu bandaríkjanna ... innaríkismál Évrópu, er ekki málefni fyrir bandaríkin ad skipta sér af ... punktur og pasta.

Örn Einar Hansen, 14.12.2019 kl. 22:08

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér Bjarne

Öll ríki nema ófullvalda ríki Evrópusambandsins hafa leyfi til að neita að eiga viðskipti við hvern þann þjóðhættulega vafasama sem þeim sýnist.

Að gera NATO að gildru fyrir bandaríska hermenn til að ganga í, og týna lífinu í, eru ekki þjóðarhagsmunir Bandaríkjanna, né neinna annarra þeirra ríkja sem þar hafa skrifað undir sáttmála NATO. Þetta varðar því þjóðaröryggismál Bandaríkjanna, og þess vegna er samþykkt 232 (Section 232) viðhöfð.

Séu þeir sem vinna við NordStream2 ekki ánægðir með þetta, þá stendur restin af veröldinni þeim opin. Þeir geta bara ekki átt viðskipti við fullvalda þjóðríkið Bandaríkin.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 14.12.2019 kl. 22:58

3 Smámynd: Borgþór Jónsson

Það gildir einu hvað Bandaríkjaþing samþykkir.
Þegar kemur að Nordstream 2 og Turkstream hefur þingið ekki meiri áhrif en Kvenfélag Vallahrepps.
Putin segir að það verði kveikt á leiðslunni um áramótin,og það þýðir einfaldlega að það verður kveikt á leiðslunni um áramótin.
End og story.

Putin lætur ekki einhvern trítil stoppa sig í því frekar hann lét sömu trítla stoppa Yamal gasstöðina.
Til að snúa hnífnum í sárinu lestaði hann fyrsta skipið með eigin hendi  og sendi það til Bandaríkjanna.

Sumir kunna að halda að þetta hafi verið tilvilun en það er enginn vafi að þarna var á ferðinni rómuð kaldhæni Putins.
hann var að gefa Bandaríska þinginu langt nef með þessu.

.

Það er tvennt sem er að renna upp fyrir Evrópubúum þótt tregir séu.
.
Í fyrsta lagi eru þeir farnir að átta sig á að líf þeirra liggur við að fá ódýrt gas fá Rússlandi. Það er engin leið að þeir komist af ef þeir kaupa rándýrt gas frá Bandaríkjunum.
Jafnvel þó þetta séu "freedom molicules" eins og orkumálaráðherra Bandaríkjanna orðaði það.
Það er svolítið spaugilegt að Bandaríkjamenn skuli vera að kúga aðrar þjóðir til að kaupa "freedom molicules.

Ekki mikið freedom í því.
.
Í annan stað eru Evrópubúar ,þó þeir hafi engann frambærilegann leiðtoga, farnir að átta sig á að Bandaríkin eru ekki áreiðanlegur birgir öfugt við Rússland sem stendur alltaf við skuldbindingar sínar sama hvað á gengur.

.

Bandaríkjamenn hafa enga möguleika á að keppa í verði,hvorki í Evrópu eða  Asíu.

Putin mun hinsvegar ekki útrýma þeim af markaðnum þóo hann gæti það, heldur nota þá til að halda uppi verðinu í Asíu og mökka þannig inn pening.

Putin er klókur náungi.

.

Bandaríkjamenn eru ekki lengur samkeppnisfærir en halda úti utanríkisviðskiftum sínum með hervaldi. Nú eru fleiri og fleiri ríki að komast í þá stöðu að þau þurfa ekkert sérstaklega að óttast Bandarískt hervald lengur.Bandaríkjamenn sem eru skræfur að eðlisfari ráðast ekki á ríki sem geta varið sig að einhverju marki.

Borgþór Jónsson, 14.12.2019 kl. 23:03

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þá er þetta náttúrlega ekkert mál Borgþór minn. Fyrst að Bandaríkin skipta engu máli.

Þetta er því þinn gleðidagur í dag. Njóttu meðan á nefi þínu stendur.

Þið gætuð jafnvel safnað saman í rússnesk-nýsovéska gleðigöngu á götum Austur-Berlínar Reykjavíkurborgar. Nóg ef af gömlu göngugörpunum þar.

Safnið endilega liði og fagnið þessum merka degi Borgþór. Deginum sem Bandaríkin hættu loksins að skipta máli. Tralla la la la.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 14.12.2019 kl. 23:12

5 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

PS:

Og nú þegar margt bendir til þess að Boris Johnson rífi samningsuppkastið frá Brussel í tætlur, og láti Stóra-Bretland bara stíga hreint og allsgáð upp úr ESB-svaðinu, sem frjálst og fullvalda ríki, með heimsins stærstu alþjóðlegu gjaldmiðla,- afleiðu,- og tryggingamiðstöð sína um borð, þá gæti hann jafnvel fundið upp á því að stilla hér með strengi sína saman með þeim í Washingtonborg í þessum efnum. Þarna væru þá samankomin heil tvö núllríki sem skipta bara alls engu máli í heiminum lengur.

Hér eru því gífurleg tækifæri að opnast fyrir Rússland. Það gæti nefnilega boðið fyrirtækjum veraldar upp á að þjónusta þau með rússnesku réttarfari á hinu alþjóðlega milliríkjasviði, og fært þeim alþjóðlega rússneska fjármálaþjónustu undir vernd rússneskra viðskiptadómstóla. Allir hljóta að sjá að þarna eru ofboðsleg tækifæri að opnast fyrir Vladímír Pútín og ríkisstjórn hans, með rússneskt réttarfar sem helstu útflutningsvöru landsins. Kúnnarnir myndu bókstaflega sturtast að. Jafnvel Evrópusambandið gæti orðið kúnni með aðstoð hins nýja Stór-Þýskalands. Hver veit.

Gunnar Rögnvaldsson, 14.12.2019 kl. 23:51

6 Smámynd: Borgþór Jónsson

Gleðigöngur eru nú eiginlega sérgrein Bandaríkjamanna.

.
Þó Bandaríkin hafi einu sinni verið boðberar frelsis ,eru þeir það ekki lengur.
Þeir hafa breyst í skrímsli sem liggur eins og mara á heimsbyggðinni.
Bandaríkin verða alltaf stórveldi sem kemur til með að hafa áhrif,en það er mikið gleðiefni ef einhverjum tekst að stöðva það skefjalausa ofbeldi sem hefur einkennt þetta ríki síðustu 25 árin.

.

Trump er vel meinandi en veikur leiðtogi og að baki honum er þjóð sem er á barmi borgarastyrjaldar.Meðan sú staða er uppi komast þeir hvorki lönd né strönd. Menntakerfið þeirra er með öllu ónýtt og þeir sem fara þar inn koma vitlausari út en þegar þeir fóru inn.Þeir sem fara þarna inn koma aftur út sem sérfræðingar í tölvuleikjum,kynskiftingum,femínisma og öfga vinstri stefnu en hafa á hinn bóginn enga nothæfa menntun. Þetta á eftir að reynast þjóðinni dýrkeyft. Kveður svo rammt að þessu að þeir fáu háskólakennarar sem eru enn með öllum mjalla eru farnir að yfirgefa háskólana og setja upp menntastofnanir á internetinu til að reyna að bjarga einhverju. Þeir sem halda uppi heiðri háskólanna þar eru allt útlendingar,sem í vaxandi mæli yfirgefa landið að námi loknu.Sumir eftirsóttustu prófessorarnir eru eingöngu með útlenda lærlinga.


Trump reynir í sífellu að komast áfram í alþjóðastjórnmálum á hnefunumm frekar en á vitinu,sem hann hefur sennilega ekki of mikið af. Árangurinn er aðeins blóðugir hnúar.
Hann hélt augljóslega í byrjun að hann væri að taka við miklu áhrifameira ríki en raunin er.

Sennilega er hann búinn að átta sig á stöðunni í dag,en hann og hans ríki hefur misst allt traust.Engin ríkisstjórn í víðri veröld lítur lengur á Bandaríkin sem traustann samstarfsaðila,og það réttilega.

.

Rússland er land tækifæranna svipað og Bandaríkin voru fyrir 60 árum.
Ef ég væri tvítugur í dag er engin spurning að ég mundi reyna að flytjast þangað.
´Þeir hafa undirbyggt sínar framfarir gríðarlega vel á öllumm sviðum þannig að allskonar efnahagsþvinganir og hamlanir sem þeir eru beittir hafa lítil sem engin áhrif.Það tekst ekki einu sinni að berja niður hagvöxtinn hjá þeim sem er meiri en í ESB og líka meiri en í Bandaríkjnum.
Ég hef lengi haldið því fram að hagvöxturinn þar er verulega vanmetinn og nú nýlega sá ég að Bloomberg er á sama máli og ég orðið. Þeir voru bara lengur að fatta það.
Rússneska ríkið er skuldlaust netto,það er rekið með afgangi og viðskiftajöfnuður þeirra er alltaf jákvæður um 12 til 15 milljarða dollara í hverjum mánuði.Ríkisframkvæmdir sem eru miklar eru fjármagnaðar af aflafé en ekki með lántökum.
Gjaldeyrisvarasjóður þeirra er 70 milljörðum dollara stærri en allar erlendar skuldir ríkis ,fyrirtækja og einstaklinga samanlagt.Þar á ofan er gjaldeyriseign einstaklinga mjög mikil.
Þetta er afar sterkur grunnur til að standa á og gerir það að verkum að þjóðin hefur fullkomið sjálfstæði.
Þetta gengur svo langt að meira að segja Kudrin fyrrvrendi fjármálaráðherra hefur sagt að það sé í lagi að eyða smá í almannaheill og innviði.
Eins og við munum sagði hann af sér á sínum tíma af því honum fannst Putin of eyðslusamur.
.
Svo má nefna herinn sem er sá tæknivæddasti í heiminum í dag,bæði í vörn og sókn. Í Rússnesku hergagnafyrirtækjunum er gríðarlega mikill mannauður og kunnátta sem hefur verið lokuð þar inni allan sovéttímann og Rússneska nútímann.
Árið 2015 var ákveðið að opna glugga frá þessum fyrirtækjum út í hið almenna atvinnulíf.
Þetta er þegar farið að skila nokkrum árangri og hann á eftir að margfaldast á komandi árum.

.

Það sem er þó dýrmætast er mórallinn hjá þjóðinni og menntakerfið sem er orðið mjög gott í borgunum.
Ef þú horfir á viðtal við Rússneskann grunnskólanema í efri bekkjum þá veit hann ekkert um femínisma, tilfinningar kynskiftinga eða 100 kynferði.
Hann veit hinsvegar hvert hann er að fara og honum þykir augljósega vænt um þjóð sína og stoltur af henni. Hann á sér þá ósk að það sem hann tekur sér fyrir hendur komi henni að gagni. Þetta er afar dýrmætt,en er því miður algerlega horfið úr vestrænum samfélögum. Hér er þessi hugsunargangur kenndur við Nasisma og ekki nokkur maður þorir í dag að viðra slíkar kenndir ,hafi hann þær á annað borð.
Sumir kratar halda því jafnvel fram að ungmennafélögin í gamla daga hafi verið fasískar í eðli sínu.Svona er fyrringin ,metnaðarleysið og menntunarskorturinn alger.
Og þetta er ekki bara á Íslandi,heldur um allan hinn vestræna heim með örfáum undantekningum.
Ef þú hlýðir á dæmigerðann vestrænann háskólanema sérðu fljótlega að hans eina hugsun er að ná lágmarkseinkunn í einhverri háskólagráðu þannig að hann geti einhvernveginn lónað í gegnum lífið.
Femínismi er vinsæll í dag meðal stúlkan ,sem er engin menntun og það eina sem þú þarft að gera er að gera eins og kennarinn segir og læra einhverjar möntrur um feðraveldi sem þú getur svo spunnið allskonar þvælu útfrá.
Þeir sem lenda í þeirri hakkavél koma ekki bara út menntunarlausir ,heldur stórskemmdir og samfélagslega eyðileggjandi.

Þetta er merki um og ávísun á hrörnun.

Fyrir tveimur mánuðum síðan eða svo, sáum við táknræna athöfn þegar Mededev henti 20.000 blaðsíðum af reglugerðum í ruslafötuna.
Á örygismyndavélum má sjá vestræna leiðtoga tína þessar reglugerðir upp úr fötunni til innleiðingar.

Borgþór Jónsson, 15.12.2019 kl. 01:57

7 Smámynd: Borgþór Jónsson

PS.

Vandamál Breta er ekki ESB heldur inngróin spilling og þjóð sem er orðin andlega geld.
Úrsögn úr ESB gefur hinsvega tækifæri fyrir Breta að taka eigin ákvarðanir og breyta þessu og komast aftur til manns,en enn eru ekki uppi nein merki um að þeir hyggist gera það.
Ekkert bendir till annars en að þeir ætli sér að lufsat áfram óheiðarlegir ,lygnir og þjófóttir

.

Þú ert svolítið fastur í fortíðinni Gunnar,fylgist ekki almennilega með.
Það merkilega er að gerast að bisnismenn eru að átta sig á að peningar þeirra eru öruggari í Rússlandi en í Bretlandi eða Bandaríkjunum.
Það stafar kannski ekki af því að réttarkerfið sé betra heldur af því að það eru betri stjórnvöld þar.
Fjármunir útllendinga eru aldrei notaðir sem pólitísk vogarstöng í Rússlandi. Þess vegna treysta bisnismenn Rússneskum stjórnvöldum fullkomlega.
Yeltsin tímabilinu er lokið.
Það sem heldur aftur af þeim eru ekki Rússnesk stjórnvöld eða réttarkerfi heldur óttin við að Bandarísk eða Bresk stjórnvöld ráðist á hagsmuni þeirra á vesturlöndum í pólitískum tilgangi.
.
Á sama tíma rýrnar stöðugt traust Bandarísku og Bresku fjármálakerfanna.
Breska kerfinu er meira og minna haldið uppi af þjófum,fólki sem hefur stoið fjármunum í heimalöndum sínum og njóta verndar Bresku krúnunnar. Þessi vernd er hinsvegar ótrygg af því að stjórnvöld þar eru hverflynd og geta hvenær sem er snúist gegn þeim ef vindar blása þannig.
Á síðustu árum hafa ríkisstjórnr verið að leita með logandi ljósi að aðferð til að tryggja sig gegn pólitískri misnotkun Breta og Bandaríkjamanna á alþjóða fjármálakerfinu.
Hver veit nema að lausnin sé í Rússlandi þar sem þessum brögðum er aldrei beitt.

.
Það er alveg makalaust hvað stjórnendur vesturanda eru lánlausir og heimskir.
Hvað eftir annað gera þeir atlögu að Rússlandi sem er langfjölmennasta,lang víðfeðmasta og ríkasta ríki Evrópu.
Og alltaf standa þeir uppi í lokin með blóðnasir og eru búnir að stórskaða eigin samfélög.
Þetta er búið að ganga svona alveg frá því á tímum Ivans Grimma sem kallaður var og alltaf eru endalokin hin sömu.
Einkum hefur þetta komið illa niður á Evrópu.

.
Meira að segja Gulli utanríkisráðhera stendur og gjammar eins og kjölturakki að risanum,okkur Íslendingum til gríðarlegs tjóns.
Nýlega fór Gulli utanríkisráðherra til Rússlands og tilkynnti Lavrov að Íslendingar ætluðu að valda Rússum því litla tjóni sem við getum,en hvort hann væri ekki tilbúinn að horfa fram hjá því og kaupa af okur fisk.
Þvílíkur botnlaus ræfildómur.
Lavrov af sinni annáluðu kurteisi hlustaði á kveinstafi hans og leiddi hann út með gjöfum en engann samning.
Sjaldan hefur Íslenskur utanríkisráðherra lotið lægra.
Það er ekkert siðferði eða reysn eftir. 

Borgþór Jónsson, 15.12.2019 kl. 09:53

8 Smámynd: Borgþór Jónsson

Mjög nýlega var haldinn fundur í "Normandy Format" sem er hópur sem hefur tekið sér fyrir hendur að ráða fram úr vandamálum Úkrainu.
Eins og búast mátti við gerðist ekkert á fundinum sem horfa mátti til bóta.
Zelensky er bundinn í báða skó af Úkrainskum NýNasistum sem hafa gefið það út að þeir muni drepa hann ef hann geri einhverja tilraun til að leysa málið öðruvísi en með manndrápum.
Nánar tiltekið ,að hengja hann í næsta ljósastaur.
Nsistar hafa alltaf verið mikið fyrir að hengja fólk í ljósastaurum.
Þeir eru býsna staffírugir enda bakkaðir upp af Bandaríkjunum.


Merkel hélt innantóma ræðu,enda hefur hún engin áhrif lengur á gang mála í Úkrainu.
Mikið óskaplega held ég að hún sjái eftir því þegar hún fór til Kiev og stóð þar ásamat fleiri lítilmennum í Evrópu og hvatti skrílinn til dáða.
Eftir samanbitnum svipnum á henni að dæma gerir hún sér grein fyrir að Þjóðverjar eru að tapa enn einu stríðinu gegn Rússum.
Það vantar bara að Rússneski fáninn blakti aftur á Þýska þinghúsinu eins og forðum.

Það sem var kannski merkilegast var þegar Georgíski hryðjuverkamaðurinn sem hefur notið verndar Þjóðverja kom til umræðu vegna spurningar fréttamanns.
Þessi hryðjuverkamaður sem hafði staðið að morðum á 70 manns í Rússlandi var nýlega drepinn í Þýskalandi.
Putin benti Merekell á að þetta hefði ekki þurft að fara svona.
Þjóðverjar hefðu getað framselt hann og hann hefði fengið sinn lífstíðar dóm í Rússlandi.
Merekel sat þögul og saman bitin undir ávítum Putins.
Þetta var endurtekning á orustunni við Phrokorovka.(Kursk)
Merkel er nú ljóst þó seint sé ,að henni helst ekki uppi að halda hlífiskyldi yfir mönnum sem fremja hryðjuverk í Rússlandi.
Putin sagði á sínum tíma að ef það væri ekki hægt að koma lögum yfir slíka menn yrðu þeir eltir uppi hvert sem er og lógað ,jafnvel þó þeir sætu á kamrinum.
Og Putin er enginn blaðrari.
.
Macron sat svo eins og lítill stákur við hliðina á Putin og reyndi að stilla til friðar.
Hann er fyrsti meiriháttar þjóðarleiðtoginn í Evrópu sem gerir sér grein fyrir að Evrópa kemst ekki af nema í góðu samstarfi við Rússland og að tíminn er að renna út.
Ég held að hann sé líka búinn að gera sér grein fyrir að þetta samstarf þarf að byggja á jafnréttisgrunni í þetta skifti. Annars verður ekki af því.

Borgþór Jónsson, 15.12.2019 kl. 11:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband