Þriðjudagur, 22. maí 2018
Verður þetta næsta brúðkaup Evrópu?
Mynd PA/Sputnik: Vladímír Pútín færir Angelu Merkel blóm við komu hennar til Sochi í Rússlandi, þann 18. maí 2018 e.Kr.
****
Á kortinu stóð kannski þetta: "Við, sem drápum 70 prósent af öllum þeim þýskum hermönnum sem féllu í Síðari heimsstyrjöldinni, og sem gerðum samkomulag og sáttmála við alla og svikum þá flesta á sama tíma, óskum þér og fyrrum? bandamönnum þínum og okkar, sem drápuð 70 prósent af öllum þeim 70 milljón manns sem féllu í sömu styrjöld, til hamingju með að vera nú verr við Bandaríkin, sem byggðu ykkur upp, en ykkur er illa við okkur. Við lesum nefnilega það í þýskum fjölmiðlum síðustu 28 ár, að ykkur fellur orðið betur við okkur en Bandaríkjamenn og að samviskubit ykkar yfir því að hafa myrt sjö milljón varnarlausa Gyðinga, er orðið minna en samviskubit ykkar er yfir því að hafa tapað báðum þeim heimsstyrjöldum sem þið hófuð
Og við Rússar, sem þið í febrúar og mars 1918 tókuð tvær milljónir ferkílómetra af landi frá, ásamt 40 prósent af allri rússneskri iðnaðargetu og 50 milljónir rússneskutalandi borgara, bjóðum þig velkomna á nýja valdataflsmótið sem er að hefast í Evrópu. Við stöndum nú sameinuð gegn Bandaríkjunum. Þú veifar nýjum Versalasamningi sem þið greidduð ekkert af og sem var gúmmípappír miðað við þá "samninga" sem þið ætluðuð að draga yfir höfuð Frakka, Belga og Lúxemborg í september 1914. Þessi nýi Versalasamningur sem þið veifið í dag, til að kreista fram ný fölsk tár, inniheldur eldsneytið sem knýr hatur ykkar á Ísrael, Bandaríkjunum og Bretlandi, sem voru svo vond að hafa snúist til varnar, bombað ykkur sundur og saman, og sest ofan á ykkur í 70 ár. Við Rússar veifum í takt við ykkur sama plaggi og sem kom mér til valda"
Lesendur ættu í 5 mínútur að reyna að ímynda sér hvernig heimurinn væri í dag ef Bandaríkin væru eins og Þýskaland og Rússland. Þegar þeim vangaveltum er lokið væri ekki úr vegi að reyna að ímynda sér hvernig hinn sami heimur væri ef Bandaríkin væru bara alls ekki til. Slíkt ástand hefur reyndar verið prófað. Síðustu 70 eru þannig að í stað þess að vera evrópskt asíulegt helvíti, urðu þau besta tímabil mannkynsögunnar; þökk sé Bandaríkjunum og Bretlandi, en algerlega í óþökk Evrópusambandsins, sem ekkert hefur gert annað en að reyna enda þetta 70 ára tímabil
Mynd: Finnst gaman að aka sjálfur - með frúna
Og vona ég að sá meistari sem nú situr í Hvítu húsi, og sem samkvæmt ónýtum fjölmiðlum Vesturlanda ekkert á að geta né kunna, þrátt fyrir að hann hafi vaðið oftar en einu sinni og tvisvar í gegnum tröllvaxnar óendanlegar flækjur spilltra embættismanna borgarinnar til að byggja skýjakljúfa á dýrasta byggingarreit mannkynssögunnar á Manhattan, og verandi sá maður sem járna-, múr-, og steypuliðið klappar fyrir þegar hann mætir á staðinn í Rolls til að tala við þá, já ég vona að sá maður sýni þessu liði stóra skaftið og vísi því til þess sætis sem það er vaxið til að sitja í og engu öðru
Og ég vona að þið sem aldrei hafið byggt neitt og sem enginn klappar fyrir þegar þið mætið í vinnuna, já ég vona að þið gerið ykkur grein fyrir því að líf ykkar í dag er gott vegna einmitt Bandaríkjanna. Stærsta vandamál ykkar er þó að hafa aldrei prófað að búa í heimi án Bandaríkja Norður-Ameríku. Sú þjóð sem þar býr, er ekki sama gamla súpan sem gamla isma-liðið elskar í Evrópu, og sem gerði Síðari heimsstyrjöldina mannskæðari fyrir álfuna en Svarti dauði
Ég hef séð og hitt svona mann, því ég var einu sinni í múr- og steypuliðinu sjálfur. En það tók samt smá tíma fyrir mig að kveikja á perunni. Þeir sem enga peru hafa, kveikja að sjálfsögðu ekki á neinu, nema DDRVÚ. Þannig er það. Og þannig mun það alltaf verða
Fyrri færsla
Ítalski stjórnarsáttmálinn boðar ekki bara evrudauða [u]
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Evrópumál | Breytt s.d. kl. 16:59 | Facebook
Nýjustu færslur
- Lánshæfnismat Frakklands lækkað. Heil 25-35 ár af hergagnafra...
- Frakkland gæti gengið í Evrópusambandið og tekið upp evru
- Samfylkingin fékk 3,4 prósentum meira en Vinstri grænir
- "Stórgögn" og "gervigreind" hafa lítið fært okkur
- Ísrael er búið að vinna stríðið í Líbanon
- Natópóleon beinapartur
- Rússland nú fjórða stærsta hagkerfi veraldar. Lánshæfnismat F...
- Ég óska Bjarna Ben til hamingju og velfarnaðar
- Víkingar unnu ekki. Þeir "þáðu ekki störf"
- Engir rafbílar segir Apple
- Grafa upp gamlar sprengjur og senda áleiðis til Úkraínu
- Geðsýki ræður NATÓ-för
- "Að sögn" háttsettra í loftbelg
- Skuldir Bandaríkjanna smámunir miðað við allt hitt
- Forsetinn og meiri-hluta-þvættingurinn
Bloggvinir
- Heimssýn
- Samtök Fullveldissinna
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Ragnhildur Kolka
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Haraldur Hansson
- Haraldur Baldursson
- Páll Vilhjálmsson
- Halldór Jónsson
- Valan
- Samstaða þjóðar
- Frjálshyggjufélagið
- Sigríður Laufey Einarsdóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Jón Valur Jensson
- Samtök um rannsóknir á ESB ...
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
- Jón Baldur Lorange
- Guðjón E. Hreinberg
- Jón Ríkharðsson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Valdimar Samúelsson
- Fannar frá Rifi
- Bjarni Jónsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Haraldur Haraldsson
- Örvar Már Marteinsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Gestur Guðjónsson
- Ingvar Valgeirsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Guðmundur Helgi Þorsteinsson
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Harðarson
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Sveinn Atli Gunnarsson
- gudni.is
- Gústaf Adolf Skúlason
- Tryggvi Hjaltason
- ESB
- Marinó G. Njálsson
- Baldvin Jónsson
- Elle_
- Sigurbjörn Svavarsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Johnny Bravo
- Jón Finnbogason
- Rýnir
- Þórarinn Baldursson
- P.Valdimar Guðjónsson
- Már Wolfgang Mixa
- Ívar Pálsson
- Júlíus Björnsson
- Guðjón Baldursson
- Baldur Fjölnisson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Einar Ólafsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Vilhjálmur Árnason
- gummih
- Sveinn Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jóhann Elíasson
- Baldur Hermannsson
- Kristinn D Gissurarson
- Magnús Jónsson
- Ketill Sigurjónsson
- Birgitta Jónsdóttir
- Axel Jóhann Axelsson
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Aðalsteinn Bjarnason
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Haraldur Pálsson
- Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
- Bjarni Benedikt Gunnarsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ægir Óskar Hallgrímsson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Óskar Sigurðsson
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Hörður Valdimarsson
- Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Ásta Hafberg S.
- Erla J. Steingrímsdóttir
- Helena Leifsdóttir
- Agný
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Árni Bragason
- Jón Lárusson
- Högni Snær Hauksson
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristinn Snævar Jónsson
- Sigurður Ingólfsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Sigurður Þórðarson
- S. Einar Sigurðsson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Vaktin
- Sigurjón Sveinsson
- Dóra litla
- Arnar Guðmundsson
- Jörundur Þórðarson
- Rafn Gíslason
- Hjalti Sigurðarson
- Kalikles
- Vésteinn Valgarðsson
- Bjarni Kristjánsson
- Egill Helgi Lárusson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jón Pétur Líndal
- Guðmundur Ásgeirsson
- Reputo
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Als
- Friðrik Már
- Gísli Sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Rauða Ljónið
- Sumarliði Einar Daðason
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Kári Harðarson
- Sigurður Antonsson
- Valdimar H Jóhannesson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Dagný
- Guðmundur Pálsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Birgir Viðar Halldórsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Tíkin
- Jón Þórhallsson
- Íslenska þjóðfylkingin
- Erla Magna Alexandersdóttir
- Óskar Kristinsson
- Dominus Sanctus.
- Ingólfur Sigurðsson
- Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.12.): 32
- Sl. sólarhring: 62
- Sl. viku: 448
- Frá upphafi: 1389068
Annað
- Innlit í dag: 16
- Innlit sl. viku: 254
- Gestir í dag: 14
- IP-tölur í dag: 11
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
Athugasemdir
Það verður fróðlegt að fylgjast með þessu tilhugalífi og enn fróðlegar að fylgjast með þegar Þýskaland hefur enga markaði til að selja vörur sínar nema Rússland og fylgihnetti.
Ragnhildur Kolka, 22.5.2018 kl. 13:10
Þakka þér Ragnhildur.
Ekki hafa áhyggjur af markaði fyrir Þýskaland. Þeir munu bara stela því sem þeim vantar eins og venjulega.
Hefurðu séð nýjasta flugmóðurskip japanska flotans? Það var sjósett í ágúst 2015 og tekið í notkun í mars í fyrra.
Gettu hvaða nafn Japanir gáfu því. Jú, JS Kaga. Það var nafnið á flugmóðurskipinu sem notað var til að gera árásina á Pearl Harbor.
Segðu svo að heimurinn læri ekki ekki neitt. Þetta kemur.
Kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 22.5.2018 kl. 14:49
Djöfull hefurđu vaknađ illa mađur.
Èg held ađ þù þurfir ekki ađ òttast þetta brùđkaup.
Mèr finnst òliklegt ađ brùđurin þori ađ rìfa sig frà þvì ofbeldissambandi se hùn er ì.
Borgþór Jónsson, 22.5.2018 kl. 15:35
Þú mættir vera aðeins nákvæmari Gunnar í svartnættis skrifum þínum gegn Þjóðverjum, í sögulegu tilliti, að mínu mati. Hér nokkur dæmi:
Þú heldur því fram að þjóðverjar hafi myrt 7 milljónir Gyðinga (lætur reyndar Pútin segja það). Síðan hvenær urðu þetta 7 milljónir en ekki 6 sem hingað til hefur verið haldið á lofti?
Þú heldur því fram að Þjóðverjar hafi ekki greitt neitt af himinháum kröfum hinna illræmdu Versalasamninga. Hið rétta er að Þjóðverjar hafa greitt upphæð sem svarar til um tveimur fullhlöðnum flutningaskipum af gulli . Aðeins varð hlé á greiðslu um tíma á valdatíma Hitlers.
Þú talar um að Þjóðverjar hafi hafið báðar heimstyrjaldirnar. Það er ekki rétt a.m.k. ekki hvað fyrri heimsstyrjöldina varðar.
Það voru Rússar sem hófu fyrri heimsstyrjöldina en ekki Þjóðverjar. Rússar réðust með herdeild inn í Austur Prússland 1. ágúst 1914 og voru þar með fyrstir stórveldanna til að grípa til vopna.
þann 28. júlí 1914 hafði Austurríska-Ungaverska keisaradæmið lýst yfir stríði við Serbíu sem afleiðingu morðsins á Franz Ferdinant krónprins keisaradæmisins. Ráðamenn Þjóðverja voru því mjög mótdrægir á þeim tíma að láta draga sig inn í styrjöld.
Öll stórveldin þrjú, Rússland, Frakkland og England vour fyrri til en Þýskaland að lýsa yfir herkvaningu (mobilmachung) sem a.m.k. á þeim tíma var allt að því igildi stríðsyfirlýsingar.
Daníel Sigurðsson, 22.5.2018 kl. 17:10
Þakka þér kærlega Daníel.
Vegna þess að tala myrtra og drepinna hækkar og hækkar hraðar í takt við rannsóknir en hægt er að uppfæra bækur mannkynssögunnar.
En síðan hvenær skiptir líf milljón Gyðinga rússa- og þjóðverjavini máli, ég spyr?
Það startar enginn heimsstyrjöld nema með því að lýsa stríði á hendur þeim sem ráða ríkjum í heiminum og gera samsærissamninga þvers og kruss á allt og alla og svíkja þá síðan. Landamæraskylmingar milli Rússa og Prússa er ekki heimsstyrjöld.
"Allt að því" er ekki staðreynd.
Þjóðverjar greiddu aðeins smáhluta þess sem þeir áttu að greiða og gerðu lítið af því sem þeir höfðu samþykkt að gera. Þeir komu af stað verðbólgu til að brenna það burt sem átti að greiða í seðlum, fóru ekki eftir neinu sem þeir höfðu skrifað undir og komu svo þeirri fiskisögu af stað að Versalasamningurinn væri óréttlátur. En hann var samt mjög svo vægur miðað við þá samninga sem Þjóðverjar sjálfir drógu yfir höfuð annarra þjóða á þessum tíma.
Það vissu valdamenn í Þýskalandi mjög vel, en það var hins vegar pólitískt banvænt að segja það opinberlega. Vinna átti samúð góða fólksins, sem oftast eru fífl, eins og sést í dag.
Bandaríkin, Frakkland og Bretland hefðu átt að fara alla leið til Berlínar og setja byssuhlaupið upp að höfði Þýskalands, og ekki fjarlægja það fyrr en þjóðin og valdastéttin hefði fest Weimarlýðveldið í sessi eftir 100 ár.
Það voru stór mistök að handefja ekki öll ákvæði Versalasamningsins út í ystu æsar. En friðþægingarlið Vesturlanda þá, fékk byr undir báða vængi með fræðimannaliði á borð við Keynes, sem var jafn mikið gáfumenni og það friðþægingarlið nútímans sem er að kveikja í heiminum í dag.
Eina leiðin til að koma í veg fyrir svona isma-stríð sem er rauði-dauði veraldarhyggjudellunnar, er að halda fælnimættinum á lífi, sama hvað akademíudellumenn segja í gegnum sína fjölmiðlasnápa.
Þetta er Dondal J. Trump að gera. Ekki missa af því Daníel.
Kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 22.5.2018 kl. 18:44
Þú segir m.a.:
“Það startar enginn heimsstyrjöld nema með því að lýsa stríði á hendur þeim sem ráða ríkjum í heiminum og ...........“.
Skv. þessari skilgreiningu voru það Bretar og Frakkar sem störtuðu heimsstyrjöldinni síðari með því að lýsa yfir striði á hendur Þjóðverjum að fyrra bragði.
það er kolrangt hjá þér að Þjóðverjar hafi aðeins greitt smáhluta af því sem þeir höfðu átt að greiða, hins vegar voru endurskoðunar skilmálar í samningunum sem gripið var til síðar en eigi að síður er um gigantiskar upphæðir að ræða sem Þjóðverjar hafa greitt í þessa hít í næstum heila öld.
Greiðslurnar voru inntar af hendi í dollurum þannig að verðbólga og fall þýska marksins hjálpaði ekki Þjóðverjum nema síður sé. Þannig að þetta er bara rugl í þér að verðbólgan hjá þeim hafi gert það að verkum að “brenna það burt sem átti að greiða í seðlum“, eins og þú skrifar. Þjóðverjar voru aldrei kallaðir til skrafs og ráðagerða með þennan gjörnung heldur voru þeir aðeins fengnir í lokin til málamynda til að skrifa undir, punktur og basta.
Ráðamenn Bandaríkjanna sáu fljótlega óréttlætið og skaðann sem Versalasamningarnir ollu og sáu eftir afskiptum sínum af stríðinu í Evrópu, þar sem þeir réðu úrslitum. Það fór því svo að Bandaríkjamenn settu það í bandarísku stjórnarskrána að hafa ekki afskipti framar af striðum í Evrópu. Sem sagt, það þýddi að 3/4 hluta þingsins þufti til að aflétta stjórnarskrárbyndingunni síðar.
Daníel Sigurðsson, 22.5.2018 kl. 21:19
Þetta eru rennilegir pólitískir ljóðabálkar sem koma frá þér Gunnar :)
Sigþór Hrafnsson (IP-tala skráð) 22.5.2018 kl. 21:48
Þetta er ekki rétt hjá þér Daníel.
Þú verður að athuga að Versalasamningurinn snérist ekki bara um peninga og að sá hluti samningsins er mjög fólkinn vegna endalausra framlenginga og aðstoðar annarra við greiðslur. Mikilvægustu hlutar samnings snérust um að leggja bönd á hernaðarbrjálæði Þýskalands og hreinlega að kveða hugtakið Prússland niður sem alþjóðlegt böl.
Eins og ég hef sagt Daníel var Versalasamningurinn mjög vægur miðað við aðra samninga þessa tíma og hann var nánast hlægilegur miðað við það sem Þýskaland með septemberprógramminu hugðist skella á Frakkland, þ.e. gera Belgíu upptæka (þurrka hana út af landakortinu ásamt Lúxemborg), því Þjóðverjar þóttust vissir um sigur, taka allar hafnir Frakklands og allt að helmingi landsins. Þannig má nefna að Frakkland greiddi Þýskalandi 15-21 prósent af sinni landsframleiðslu í enda Napóleonsstríðsins. Við enda fransk-prússneksa stríðsins greiddi Frakkland 25 prósent af landsframleiðslu. Þar fékk Þýskaland það gull sem gerði því kleift að fara af silfurfæti yfir á gullfót og þeir flæddu með því silfurmarkaðinn sem svo leiddi til upplausnar myntbandalags Skandinavíu-krónu sem var gjaldmiðill hér á landi og sem leiddi til þess að Íslendingar gengu ekki í það myntbandalag eins og ákveðið hafði verið og við fengum sem betur fer okkar eigin íslensku krónu.
Og nokkra sikilmála Brest-Litovsk 1918 hef ég nefnt. Það var því aumlegt að Þýskaland skyldi kveinka sér undan Versalasamningi því Þýskaland sjálft hafði ekki orðið fyrir skaða, heldur hafði það valdið öðrum löndum stórkostlegum skaða.
Það sem þú heldur að sé gull er ekki gull. Í samningum var um að ræða ígildi GullMarks. En Þýskaland rauf bindingu marks við gull árið 1914 til að hefja peningaprentun fyrir stríðsrekstri. Markið sem þeir sendu síðar sem greiðslur gufaði bókstaflega upp á leiðinni í óðaverðbólgu, svo ofsafengin var hún að verða að dalurinn sem kostaði 4,2 mörk árið 1914 kostaði um 200 mörk árið 1921 þegar fyrsta greiðsla átti að fara fram. Þýskaland greiddi þá greiðslu ekki.
Þó var 1921 greiðslan skilyrt og Þýskalandi var veitt svigrúm sem tóku mið af efnahagslegum aðstæðum. Og það var sem sagt ekki Þýskaland sem lá í rúst, heldur fórnarlömb þeirra. En samt byrjaði Þýskaland strax frá fyrsta degi að reyna að snúa sér út úr samningum og árið 1933 neitaði seðlabankinn að greiða í erlendri mynt. Síðan fór Þýskaland í þjóðargjaldþrot, það fjórða í röð slíkra, og borgaði ekki nema brot af samningum.
Í heildina er álitið að Þýskaland hafi greitt sem svarar til 2,5 prósent af landsframleiðslu í nokkur ár og svo ekki meir, fyrr en London ráðstefnan árið 1953 reyndi að gera þetta upp. Í henni var ákveðið að við ef til sameiningar Þýskalands kæmi, þá þýddi það að Þýskaland væri á ný orðið ríkt land og ætti að greiða nokkra summu fjár. En því hafnaði Þýskaland líka, þegar til kastanna kom, og neitaði líka að greiða þá summu, en féllst samt á nokkrar greiðslur.
Kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 22.5.2018 kl. 23:10
Bandamenn þurrku svo loks hugtakið Prússland út úr orðabókinni 1945 og neituðu að viðurkenna það. Þar þóttust menn hafa lagt lok á brjálæði Þýskalands.
NATO var svo stofnað til að halda Rússlandi úti, Þýskalandi niðri á jörðinni og Bandaríkjunum inni.
En nú eru Bandaríkin komin út, Þýskaland er komið upp og Rússland er á leið inn.
Þarna er allt að fara til fjandans á ný. Það þarf að endurnýja sleggjuna yfir þessu vonlausa landi. Svo mikið er víst.
Gunnar Rögnvaldsson, 22.5.2018 kl. 23:28
Árið 1921 kröfðust sigurveldin skaðabótagreiðslna af hendi Þjóðverja sem svaraði til um eitthundraðþúsund tonna af gulli sem greiða skyldi á 42 árum. Að auki urðu Þóðverjar að afhenda sigurveldunum nær allan skipaflota sinn sem gerði þeim mjög erfitt með útflutning sem þeir voru mjög háðir og auk þess var krafist frekari bóta í kolum. Á næstu árum urðu Þjóðverjar að afhenda mörg nýjustu loftskipin sem lagði á endanum það glæsilega tímabil í flugsögunni í rúst.
Til að fylgja kröfum sínum eftir voru franskir og belgískir herir látnir taka nokkrar þýskar borgir og á endanum allt Ruhr-héraðið sem þeir hersátu í langan tíma.
Vitaskuld var ógerlegt fyrir Þjóðveja að standa undir þessum svívirðilegu kröfum. Úttekt á öllum þeim greiðslum sem inntar voru af hendi þjóðveja allt til þeirrar síðustu árið 2010 eru af stærðargráðunni tveir skipsfarmar af gulli eins og ég hér að framan sagði.
þar sem þú minnist á fransk-prússneska stríðið þá er rétt að halda því til haga að það var Napoleon III sem sagði Þýskalandi stríð á hendur og réðist inní Bayern (í júlí 1870) en varð flótlega að leggjast í vörn og gjörtapaði svo á endanum stríðinu og var tekinn til fanga af hinum sigursæla þýska her þegar París féll.
Þú talar um að mikilvægustu hlutar Versalasamningsins hafi snúist um að leggja bönd á hernaðarbrjálæði Þýskalands og hreinlega að kveða hugtakið Prússland niður sem alþjóðlegt böl.
Af hverju tekuðu svona til orða “hernaðarbrjálæði“ Þýskalands? Hvað með hin stórveldin? voru þau ekki líka í sama brjálæðinu? Og hvers áttu Prússar að gjalda sem komu aðframkomum her hins breska Wellingtons til bjargar í orustunni við Waterloo í Belgíu í júní 1815.
Ég held að þú hefðir gott af því að það sé aðeins rifjað upp.
Fyrst áttust við herir Naðóleons og Breta undir stjórn Wellingtons hertoga. Er leið á bardagana í ausandi rigningu hallaði á Wellington og þótti Wllington sýnt að hann myndi tapa orustinni nema herir Prússa undir stjórn Blüchner marskálks sem voru á leiðinni myndu ná til átakasvæðisins í tíma. Á elleftu stundu birtist Blüchner með her Prússa sem var stærstur þessara þriggja herja.
Snerist nú taflið við og flótti brast á lið Frakka. Herir Prússa fylgdu flóttanum eftir alla leið til Parísar og Frakkland var nú varnarlaust. Napóleon ætlaði að reyna að komast sjóleiðina til Ameríku en bresk herskip komu í veg fyrir það. Þann 15. júlí gaf hann sig fram við breskt herskip, fremur en að falla í hendur Prússa.
Nei það var ekki Wellington sem átti aðalheiðurinn á endanlegum sigri á Napoleon I. eins ranglega er kennt í skólum heldur hinn eitursnalli prússneski hershöðingi Blüchner.
Daníel Sigurðsson, 23.5.2018 kl. 00:46
Og til viðbótar þessu telja þeir sem ofbýður framferði Þýskalands á evrusvæðinu í samfellt 16 ár, að landið skuldi Frakklandi og Bretlandi 4,6 til 9 prósent af landsframleiðslu Þýskalands, fyrir afnot þess af kjarnorkuvopnaregnhlíf beggja landa. Og rök þeirra eru þau að það sama eigi að gilda um kostnað varnarstefnu og gildir um peningapólitíska stefnu evrusvæðis, sem Þýskaland mergsýgur önnur lönd með. Hér er eitt nýlegt dæmi um slík rök frá 15. maí 2018.
Gunnar Rögnvaldsson, 23.5.2018 kl. 00:50
Ekkert af þessu sem þú nefnir hér síðast skiptir verulegu máli Daníel. Það eina sem menn gátu horft til var þetta.
1. Hvernig samninga af þessu tagi var verið að gera í heiminum á þessum tíma. Sérstaklega í Evrópu.
2. Þeir samningar sem Þýskaland sjálft hafði og ætlaði að leggja á önnur lönd voru mörgum sinnum þyngri en Versalasamningurinn. Af hverju átti Þýskaland þá að fá mjúkan samning á meðan aðrir áttu að glata svona miklu í þeim samningum sem Þýskaland sjálft samdi. Það skil ég ekki.
Miðað við þetta tvennt var Versalasamningurinn vægur. Þú ert að skoða hann með augum þess sem alinn hefur verið upp við þann áróður sem friðþægingarstefnumenn notuðu til að sannfæra þá sem ekki voru á þeirra línu. Rök þín eru afleiður þess áróðurs sem leiddi til friðþægingar sem síðan leiddi af sér Síðari heimsstyrjöldina.
Versalasamningarnir voru ekki nægilega þungir í praxís og þeir voru því miður ekki framkvæmdir í praxís, því búið var að taka heri Bandamanna niður þegar friðarráðstefnunni lauk og Frakkland skilið eitt eftir til að framkvæma hann.
Þýskaland átti líka þann valkost að berjast áfram. Þeim var boðið það. En þeir vissu að sá bardagi myndi enda í Berlín og með hernámi.
Að nefna heimskuleg loftför við hliðina Frakkalandi í rúst, jaðrar við móðgun við heilbrigðra skynsemi Daníel. Þjóðverjum var nær.
Það versta við þetta allt er að gengið skyldi til friðarsamninga. Bandamenn hefðu átt að krefjast skilyrðislausrar uppgjafar og hernema Þýskaland í 100 ár eða þar til Weimar var fast í sessi. Fara leið Ulysses (unconditional) Grant.
Mætti ég svo spyrja hvers vegna þú skrifar allt feitletrað. Það lítur svo frekjulega út, miðað við allt annað.
Gunnar Rögnvaldsson, 23.5.2018 kl. 01:13
Það er tilbúningur hjá þér að Þjóðverjar hafi ætlað að leggja miklu þyngri byrðar á Frakka heldur en Versalasamningarnir kváðu á um Þýskaland. Og það stóð aldrei til af hálfu Þjóðverja að sölsa undir sig hálft Frakkland til frambúðar.
Það er beinlínis hlægilegt að þú skulir nefna kjarnorkuvígbúnað Breta og Frakka kjarnorkuvopnaregnhlíf fyrir Þýskaland. A.m.k. Bretum hefur verið það fullljóst lengi að þeirra kjarnorkubúnaður hefur mjög takmarkaðan fælingarmátt og ítrekaðar tillögur hafa komið fram á þinginu um að þeir leggi hreilega niður kjarnorkuvígbúnað sinn. Sú eina regnhlíf sem standa mun undir nafninu kjarnorkuvopnaregnhlíf fyrir Vestur Evrópu er kjarnorkubúnaður Bandaríkjanna. Þannig að Þjóðverjar skulda hvorki Bretum né Frökkum neitt hvað þetta varðar.
Ég nefndi nú bara Hindenburg loftförin til að benda á að sigurlöndin eirðu engu sem gat talist tll einhverra verðmæta í taumlausri ákefð sinni að fá allt bætt sem þau áttu sjálf jafn mikla sök á að tortímdist í þessu heimskulega stríði sem fyrri heimsstyjöldin var.
Að lokum langar mig til að nefna eitt atriði í s.b.v. tölu þína um 7 milljónir myrtra Gyðinga (en ekki 6 eins og venja er) en það er staðhæfing þín að tala myrtra og drepinna hækkar og hækkar hraðar í takt við rannsóknir en hægt er að uppfæra bækur mannkynssögunnar. Þessi staðhæging þín er í besta falli hugarburður enda er langt í það að rannsóknir hafi náð uppí töluna 6 milljónnir og mun sennilgar aldrei takast. Málið er líka það að þessi tala 6 milljónir var hreinlega smellt á pappír án nokkurra eiginlegra rannsókna af hálfu Adenauers, fyrsta kanslara (vestur-) Þjóðverja eftir stríð og Bandamanna. Tilhneigingin var sú að hafa töluna í hærri kantinum til að auka líkurnar á því að þýskur almenningur ætti þar með auðveldara með að fjarlægjast hugmyndafræði nasismans þegar honum væri ljóst hversu glæpsamleg stefnan hafi verið í reynd.
Bið þig að síðustu forláts Gunnar að hafa fyrir mistök byrjað að haf texta minn feitletraðan í þessum korrespondens en leyfi mér að hafa hann þannig til enda að þesssu sinni upp á samkvæmið.
Daníel Sigurðsson, 23.5.2018 kl. 11:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.