Mánudagur, 5. febrúar 2018
Pólitískt tómarúm í heiminum? Á Vesturlönudum?
Mynd, Reuters: Heiðursvörður tók á móti James Mattis varnarmálaráðherra Bandaríkjanna í Hanoi í Víetnam 25. janúar 2018. Fyrsta bandaríska flugmóðurskipið frá stríðslokum árið 1975, mun leggja að í Víetnam í mars 2018. Ástæða: Víetnam þolir ekki Kína
****
Styrmi Gunnarssyni finnst það: Hann skrifar: Heimspólitíkin: Pólitískt tómarúm á Vesturlöndum - Kína bíður
En er það virkilega þannig? Reynum að gera dæmið upp:
Þýskaland er enn nokkuð stjórnlaust land, hálfu ári eftir kosningar. Beðið er eftir landinu. En á yfirborðinu er sagt að þessi bið-staða skipti ekki máli, því síðasta stjórn sé enn við völd. En þessi nýopnaða biðstofa -Grossdeutschland - í Evrópsku samhengi, er samt það sem allir kvarta yfir. Texas er ekki í þessari stöðu. Það er ekki í biðstöðu. Það þarf ekki að bíða eftir neinum því Bandaríkin virka og eru á fullu við leiðtog, hvern einasta dag ársins. Pólitískar erjur innanlands í því landi eru heilbrigðismerki. Verið er að lækna sárin eftir misheppnaða alþjóðavæðingu Líberalista og hreinsa þá út úr íhaldsflokki Repúblikana. Heimspressa Líberalista er því að breytast í salernissandpappír vegna sjálfvígsstefnu Líberalista*, sem sitja á nær öllum hobbí-snobb fjölmiðlum veraldar. (*Bleyjumerki)
Flokkur Angelu Merkel beið afhroð í kosningunum. Hið sama gerðist hjá stjórnaandstöðunni, sem sængaði hjá pólitískum andstæðingum sínum í 13 ár. Þessir tveir flokkar gerðu með sér eins konar bandalag um að kjósendur gætu hvergi umflúið þá. En kjósendur eru hins vegar flúnir núna, vegna meðal annars nýs Valkosts fyrir Þýskaland, og þeir eru áfram að flýja þá hvern einasta dag. Þess vegna er pólitíska tómarúmið svona mikið í Þýskalandi, að varla er hægt að koma saman nýrri ríkisstjórn. Fylgi þýskra sósíaldemókrata er nú komið niður í 17,5 prósent í könnunum. Það var 32 prósent árið 2012 og 41 prósent í kosningunum 1998
Bretland hefur yfirgefið hið sökkvandi skip Evrópusambands Líberalista og snýr til baka til róta sinna; þ.e. Anglosphere
Nýkjörinn forseti hins fimmta misheppnaða lýðveldis Frakkalands; já hann situr nú einmitt þar, "bara-heima", einn og einsamall á stórri og fallegri biðstofu og bíður eftir húsbónda sínum, Þýskalandi, og hrapar svo í vinsældum meðal þjóðar sinnar að þær eru nú jafnlitlar eða lítið-miklar og þær voru hjá Hollande á sama tíma liðnum frá kosningum. Sá forseti, Hollande, fór frá völdum með fjögur prósent vinsældir og tók sósíaldemókrata-flokk sinn með sér í gröfina
Þriðja stærsta kjördæmi ókjörins Þýskalands, Ítalía, er að detta af pólitískum hengslum og tengslum við rætur sínar, vegna hins bágborna efnahags landsins, sem evran hefur lagt að velli. Peningar Ítalíu eru á kistubotnunum uppi í Þýskalandi. Sú efnahagslega niðurlagningar-fabrikka sem evran er, hefur þar með náð djúpt inn til ítalskra stjórnmála, sem því eru í pólitískum krampaköstum. Svört framtíð blasir við Ítölum. Algerlega kolsvört
Spánn, fjórða stærsta hagkerfi ESB, er þessa stundina að rífa í tætlur stjórnaskrá sína, með hörmulegum afleiðingum. Katalónía vill yfirgefa landið sem er ekki lengur það land sem það hélt að Spánn væri. Lömun færist yfir og var hún þó næg fyrir vegna þess hve evran hefur rústað efnahagnum. Beðið er eftir skipunum frá Berlín
Finnland er að þrotum komið í Evrópusambandinu og það er skuggalegt hversu algjört efnahagslega frostið hefur verið í Finnlandi, samfellt síðustu 10 árin. Þetta var "fyrirmyndarríki" ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur, en staða þess er svipuð og Jóhönnu sjálfrar; engin. Grikkland þarf enginn að minnst á því allir vita hver staða þess er; hún er vonlaus, vegna evru og esb
Kína er að falla saman eins og uppblásnar lofbólur alltaf gera. Og þeir sem hafa trúað blint á landið munu bláir missa anda sinn, þegar í ljós kemur að stærð kínverska hagkerfisins er aðeins rúmlega einn þriðji hluti af uppgefinni stærð. Það sama og gerðist þegar Japan féll saman frá því að vera 17 prósent af hagkerfi veraldar niður í sex prósentin sem það er í dag. Og um þessar mundir eru japanskar framleiðsluaðferðir -töfraorð á sínum tíma- að hrynja saman sem fyrirmynd annarra. Og það sama gildir um þýskar framleiðsluaðferðir. Hver japanski forstjórinn fer rauður í andliti frá stjórn eftir annan. Það sama er líka að gerast í Þýskalandi. Gæðastjórnun bandarískra framleiðsluaðferða er orðin betri en beggja þessara landa. Mismunurinn á 17 og 6 prósentum, var froða sem búin var til með pólitískum og fjárhagslegum brellum
"Einn-vegur og eitt-belti" útþenslustefna Kína eru pólitískar sjónhverfingar ætalaðar til heimabrúks í því harðræði sem þar ríkir núna. Svipað og skemmtiferð Pútís til Sýrlands, vegna komandi kosninga. Nýr kínverskur alræðisherra er mættur til valda yfir Kína, sem annars dytti í sundur. Þetta "veg-og-beltis" fyrirbæri undirstrikar hins vegar aðeins vanda Kína. Í reynd er aðeins um að ræða "Enn einn stoppklossann eftir annan" á götum Kína til umheimsins. Landið er læst inni í sjálfu sér og getur sig hvergi hreyft nema með samþykki annarra. Það er og verður staðsett í miðju landfræðilegs tómarúms sem skilgreinir og ákveður stjórnmálin innvortis í Kína. Kína er eins og eyja með stjórnarfar sem heldur því ávallt sem lokaðri eyju, sem að öðrum kosti brotnar upp í eyjaklasa og sundrast. Að baki eyjunnar er landfræðilegur fangelsismúr Mongólíu og í vestur er einnig lokað. Suður-um-höf Kína, er verndar- og valdasvæði stærsta flotaveldi mannkynssögunnar; bandaríska sjóhersins, sem er eini flotinn í mannkynssögunni sem ræður og skilgreinir leikreglurnar á öllum höfum veraldar samtímis
Bandaríska þjóðríkið ræður með öðrum orðum því hver fær leyfi til að gera innrás og útrás hvert, og hvenær. Þegar Bandaríkin aðhafast lítið þá er það vegna þess að þau vilja láta lönd um kála sér með eigin hendi, eða hins vegar, vaxa og dafna. Eða þá vegna þess að þau eru að safna kröftum fyrir næsta gamlárskvöld, eins og í aðdraganda Síðari heimsstyrjaldar. Bandaríkin eru og verða aldrei einangrunarsinnar, einfaldlega vegna þess að þau geta það ekki. Þau eru einn þriðji af hagkerfi heimsins. Þau geta ekki hreyft litlu tá án þess að sú hreyfing hafi áhrif um víða veröld, algerlega óháð því hver forsetinn í Hvítu húsi og á þingi er
Það felst ákveðin strategía í því að láta aðra um að kála sér sjálfir og mæta svo til leiks og handjárna stöðuna með uppsöfnuðu ofurefli. En slíkt tekur tíma, því ekkert mikilvægt fær leyfi til að gerast í sjálfum bakgarði Bandaríkjanna, heima fyrir, heldur fer það allt fram á Austurhveli jarðar. Og það er einmitt sú stefna sem er þjóðaröryggisstefna Bandaríkjanna. Að láta "þá" um að kála sér sjálfir áður en "þeir" komast í aðstöðu til að sameina sínu vondu krafta gegn Bandaríkjunum. Já þeir eru vondir þeir kraftar og hafa alltaf verið. Þess vegna fjármagnaði Reagan til dæmis Íran og Írak samtímis, svo þau yrðu duglegri við að kála hvort öðru, því á meðan þau gera það, þá kála þau ekki Bandaríkjamönnum, þ.e. Amerykanski eins og Pólverjar segja. It just plain works
Tómarúm? Nei því fer fjarri. En mannkynssagan er þannig að á öllum tímum eru til lönd sem annað hvort eru að sökkva eða rísa. Í Evrópu er það Intermarium sem er að rísa vegna þess að Bandaríkin vilja það. Þau lönd sem eru að falla? Tja, þau útskýra sig sjálf, þegar grannt er skoðað - og menn hætta að trúa því sem stendur og sést í svo kölluðum fjölmiðlum. Það er svona sem breytingar ganga fyrir sig
Fyrri færsla
Framsóknarmenn hugi að mörkum sínum
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Evrópumál | Breytt s.d. kl. 17:17 | Facebook
Nýjustu færslur
- "Stórgögn" og "gervigreind" hafa lítið fært okkur
- Ísrael er búið að vinna stríðið í Líbanon
- Natópóleon beinapartur
- Rússland nú fjórða stærsta hagkerfi veraldar. Lánshæfnismat F...
- Ég óska Bjarna Ben til hamingju og velfarnaðar
- Víkingar unnu ekki. Þeir "þáðu ekki störf"
- Engir rafbílar segir Apple
- Grafa upp gamlar sprengjur og senda áleiðis til Úkraínu
- Geðsýki ræður NATÓ-för
- "Að sögn" háttsettra í loftbelg
- Skuldir Bandaríkjanna smámunir miðað við allt hitt
- Forsetinn og meiri-hluta-þvættingurinn
- Gervigreindar-fellibyl í vatnsglösum lokið
- Sjálfstæð "Palestína" sýnir morðgetu sína á tvo kanta
- Benjamín Netanyahu hringdi strax í Zelensky. Hvers vegna?
Bloggvinir
- Heimssýn
- Samtök Fullveldissinna
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Ragnhildur Kolka
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Haraldur Hansson
- Haraldur Baldursson
- Páll Vilhjálmsson
- Halldór Jónsson
- Valan
- Samstaða þjóðar
- Frjálshyggjufélagið
- Sigríður Laufey Einarsdóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Jón Valur Jensson
- Samtök um rannsóknir á ESB ...
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
- Jón Baldur Lorange
- Guðjón E. Hreinberg
- Jón Ríkharðsson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Valdimar Samúelsson
- Fannar frá Rifi
- Bjarni Jónsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Haraldur Haraldsson
- Örvar Már Marteinsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Gestur Guðjónsson
- Ingvar Valgeirsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Guðmundur Helgi Þorsteinsson
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Harðarson
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Sveinn Atli Gunnarsson
- gudni.is
- Gústaf Adolf Skúlason
- Tryggvi Hjaltason
- ESB
- Marinó G. Njálsson
- Baldvin Jónsson
- Elle_
- Sigurbjörn Svavarsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Johnny Bravo
- Jón Finnbogason
- Rýnir
- Þórarinn Baldursson
- P.Valdimar Guðjónsson
- Már Wolfgang Mixa
- Ívar Pálsson
- Júlíus Björnsson
- Guðjón Baldursson
- Baldur Fjölnisson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Einar Ólafsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Vilhjálmur Árnason
- gummih
- Sveinn Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jóhann Elíasson
- Baldur Hermannsson
- Kristinn D Gissurarson
- Magnús Jónsson
- Ketill Sigurjónsson
- Birgitta Jónsdóttir
- Axel Jóhann Axelsson
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Aðalsteinn Bjarnason
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Haraldur Pálsson
- Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
- Bjarni Benedikt Gunnarsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ægir Óskar Hallgrímsson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Óskar Sigurðsson
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Hörður Valdimarsson
- Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Ásta Hafberg S.
- Erla J. Steingrímsdóttir
- Helena Leifsdóttir
- Agný
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Árni Bragason
- Jón Lárusson
- Högni Snær Hauksson
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristinn Snævar Jónsson
- Sigurður Ingólfsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Sigurður Þórðarson
- S. Einar Sigurðsson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Vaktin
- Sigurjón Sveinsson
- Dóra litla
- Arnar Guðmundsson
- Jörundur Þórðarson
- Rafn Gíslason
- Hjalti Sigurðarson
- Kalikles
- Vésteinn Valgarðsson
- Bjarni Kristjánsson
- Egill Helgi Lárusson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jón Pétur Líndal
- Guðmundur Ásgeirsson
- Reputo
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Als
- Friðrik Már
- Gísli Sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Rauða Ljónið
- Sumarliði Einar Daðason
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Kári Harðarson
- Sigurður Antonsson
- Valdimar H Jóhannesson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Dagný
- Guðmundur Pálsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Birgir Viðar Halldórsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Tíkin
- Jón Þórhallsson
- Íslenska þjóðfylkingin
- Erla Magna Alexandersdóttir
- Óskar Kristinsson
- Dominus Sanctus.
- Ingólfur Sigurðsson
- Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 2
- Sl. sólarhring: 24
- Sl. viku: 96
- Frá upphafi: 1387440
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 66
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
Athugasemdir
Þeim tveimur andstæðu flokkum sem standa að stjórnarmyndunarviðræðum í Þýskalandi núna (CDU/CSU og SPD), tókst ekki að standa við þann lokafrest sem þeir höfðu sett sér um að ná saman í síðasta lagi um síðustu helgi.
Ný skoðanakönnun í Þýskalandi sem birtist í dag, sker enn frekar af fylgi CDU/CSU-flokksbandalags Angelu Merkel. Það mælist nú með aðeins 30,5 prósent fylgi, en flokkurinn fékk 32,9 prósent í kosningunum þann 24. september í fyrra.
Flokkur sósíaldemókrata (SPD) mælist með tapandi 17 prósent stöðu í dag og þokast fylgið neðar og neðar með hverri vikunni sem líður. Þeir fegnu 20,5 prósent í kosningunum.
Fylgi AfD, Valkostur fyrir Þýskaland, mælist nú 15 prósent, en þeir fengu 12,6 prósent í kosningunum. Bilið á milli þeirra og SPD er að verða ekkert. AfD er að verða næst stærsti flokkurinn í þýskum stjórnmálum.
Gunnar Rögnvaldsson, 5.2.2018 kl. 21:01
Þú þarf greinilega að fara að endurnýja landqakortið þitt Gunni minn ef þú heldur að Kína sé eyja.
Kína er staðsett á eina meginlandi jarðarinnae sem talandi er um ,og seilist sífellt til meiri áhrifa á þessu meginlandi,til góðs eða ills.
Bandaríkin hafa haft mikil ítök á jöðrum þessa meginlands,en þau áhrif fara sífellt minnkandi.
Langstæsta áfallið var þegar þeir glötuðu Rússlandi um aldamótin. Síðan þá hefur leiðin legið niður á við.
Ef við tökum fyrst Evrópu. Það er af sem áður var,því í dag eru einu löndin sem Bandaríkjamenn hafa almennilega stjórn á. Pólland ,Úkraina,Rúmenía og Bretland.
Þetta er ekki sérlega fríður hópur. Svo eru náttúrlega nokkur smáríki sem engu máli skifta.
Pólland er alltaf í tapliðinu eins og við vitum og enn einu sinni hafa þeir stillt sér upp röngu megin.
Þeir eru haldnir þeim misskilningi að þeir séu ennþá Pólsk Litháenska stórveldið. Það lagðist af um 1790 ef ég man rétt og það er tímabært að þeir fari að læra að þeir eru bara "shithole" í Evrópu sem framfleytir sér á styrkjum frá Vestur Evrópu. Það virðist vera að pólverjar séu svolítið seinir að fatta.
.
Úkraina er svo eina ríkið í Miðevrópu sem stendur undir nafni sem þróunarríki. Bæði er stjórnkerfið hjá þeim svipað og í verstu ríkjum Afríku og efnhagsástandið eftir því. Þessu fylgir svo borgarastyrjöld og rasismi sem á engann sinn líka í Evrópu,og þó víðar væri leitað.
Úkraina stendur glæsilega undir nafni sem "shithole"
Ef það brýst út styrjöld í Evrópu ,eru þessir tveir nánustu bandamenn Bandaríkjanna líklegastir til að fara saman.
Heitingarnar ganga á milli
.
Svo höfum við Rúmeníu sem hefur svo til engar gjaldeyristekjur nema af vasaþjófnaði og innbrotum ásamt mútum frá Bandaríkjunum. Einnig hafa þeir einhverja innkomu frá sölu matvæla í Austur Evrópu,sem fer minnkandi.
.
Eini bandamaður Bandaríkjanna í Evrópu sem eitthvað kveður að ,er Bretland,sem framfleytir sér á skuldasöfnun þessi árin.
4,8 trilljónir króna á ári. Breski herinn er svo að deyja út,kominn niður í 82.000 manns og hergögnin flest í þurrkví.
Nýlega sendi Breski flotinn herskip úr trefjaplasti til að verja strendur landsins fyrir tveimur Rússneskum herskipumm sem áttu leið um. Það hefur væntanlega farið um Rússana.
.
Þarna aftanvið er svo í lagi að hengja Eystrasaltsríkin sem eru á fátækraframfæri og þjóðirnar eru hratt og örugglega a deyja út.
.
Afríka er algerlega glötuð fyrir Bandaríkjamenn,eins og hún leggur sig.Núlega komu 38 Afríkuríki saman og notuðu tækifærið og lýstu einróma yfir stuðningi við Kínverja í deilunni um Suður Kínahaf. Að lokinni atkvæðagreiðslu stóðu fundarmenn upp og klöppuðu fyrir Xi Ping.
Eina sem Bandaríkjamenn geta gert er að senda 6000 manna herlið til Afríku til að reyna að koma á borgarastyrjöldum. Þetta gengur sífellt erfiðar,af því Afríkumenn vilja í vaxandi mæli Kínversk holræsi og vegi frekar en Bandarískar borgarastyrjaladir.
Lítið hefur breyst í Suður Ameríku,en róðurinn er frrekar að þyngjast. Alltaf annað slagið eru einhverjar þjóðir sem eru með sjálfstæðistilburði,en eiga erfitt uppdráttar svona nálægt villidýrinu.
.
Í Asíu er hinsvegar töluverð tilhneiging til sjálfstæðis.
Á síðustu mánuðum hafa tvö ríki tekið sér sjálfstæði frá Bandaríkjunum,en það eru Kambódía og Pakistan.
Kínversk áhrif hafa undanfarin ár verið að vaxa í Pakistan ,enda er þetta lykilríki á þessu svæði í One belt one raoad Kínverja.
Bandaríkjamenn reyndu að hafa í hótunum við Pakistan eins og venjulega,en í þetta skifti voru viðbrögðin óvænt.
Pakistanar sögðu Trump að troða aurunum upp í r... á sér,sögðu upp dollaranum ,gerðu samninga við Kína, og héldu heræfingar með Rússum.
Að því loknu sendu þeir stóra sendinefnd til Irans til að gera viðskiftasamninga og setja niður ágreining sem hafði verið á milli ríkjanna.
Þetta var sannarlega ekki niðurastða sem var Trump að skapi,en hann getur ekkert gert,Pakistanar eru nú undir verndarvæng Kínverja.
.
Tyrkland sem var öflugasti og best staðsetta leppríki Bandaríkjanna ,hótar nú að skjóta á bandaríska hermenn í Sýrlandi ef þeir færa sig ekki frá.
Tyrkland hneygist sífellt meira í austurveg,enda komust þeir nýlega að því að Rússland og Kína geta auðveldlega lagt efnahag þeirra í rúst ef þeir haga sér ekki skikkanlega. Það verður fróðlegt að sjá hvernig það þróast.
.
Að lokum er það bandaríski flotinn ,sem er smá saman að breytast í Nátttröll.
Atburðirnir á Suður Kínahafi sýna glögglega að flotinn er einskis nýtur á átökum stórþjóða.Það vantaði ekki að hann sprangaði um og hafði í hótunum,en þeir gátu ekkert gert. Kínverjar fóru sínu fram eins og við þekkjum.
Nú sigla þeir um .móðgaðir eins og smástrákar ,eins nálægt eyjunum og þeir þora. En það breytir engu. Kínverjar hafa tekið sér bólfestu þarna,og geta nú auðveldlega eytt þessum flota ef þeir þurfa á að halda.
Mörg önnur dæmi eru um hnignun Bandaríska heimsveldisins sem of langt væri upp að telja. Þó má nefna Sýrlandsstríðið ,stríðið í Georgíu sem fór í vaskinn,og Úkrainustríðið sem er ekki að færa þeim þann ávæning sem þeir höfðu vænst.
Mislukkaðar refsiaðgerðir gegn Rússum.
.
Það er sannarlega vor í lofti..
Borgþór Jónsson, 5.2.2018 kl. 22:05
Þó svo að Kína sé ekki umlykið sjó Borgþór, þá er landið umlykið og innlyksa í óyfirstíganlegum landfræðilegum staðreyndum sem gera það að eyju - á alla kanta nema einn: Suður-Kínahaf. Og það gerir veðurfarið og úrkomusvæði Kína einnig. Landsvæðið norðan og vestan regnsvæðisins -helmingur alls landsvæðis Kína- ber hvorki mannfjölda né ræktun og er mannafjöldi landsins því búsettur sunnan og austan þeirrar línu, sem kallast 15-tommu regnlínan.
"One belt one road" loftkastalaálætlun Kína er ætlað að vera lausn á því. Kína veit sem er að bandaríski flotinn og bandamenn hans gætu lokað landið inni í þurrkví með því að loka fyrir aðgang þess að úthöfunum, ef svo ber undir. Það haf er kyrkingarbletturinn á Kína. Og það er ekki einu sinni úthaf.
Kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 5.2.2018 kl. 22:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.