Þriðjudagur, 19. september 2017
Ekki-kommúnisti, er svoleiðis til ?
VG Prinsipp-Polo
Mynd: ekki-doktor Zhivago Vinstri grænna í Brussel
Flestir vita hvað kommúnisti er. En myndi einhver venjulegur maður vita hvað ekki-kommúnisti er? Nei, það hugsa ég ekki að neinn venjulegur maður geti vitað. Reyndar er ekki-kommúnisti ekki til
En hvað þá með liberalista (vinstrimenn). Eru þeir til? Já þeir eru til. En eru þá þeir til sem kalla má ekki-vinstrimenn? Og ef þeir eru til, myndu þeir þá heita illiberals?
Það er nú það. En það er þessi stimpill sem liberlas (vinstrimenn) eru að reyna að klína á alla þá sem eru ekki vinstrimenn. Í þeirra augum eru allir sem eru ekki liberal (ekki-vinstrimenn), einfaldalega illiberals
Þeir sem eru að reyna að nota þennan stimpil á þá sem eru ekki vinstrimenn, gleyma því að mörgum mörgum öldum áður en hreyfing þeirra sjálfra varð til (vinstrið), voru það Íhaldsmenn (Conservatives) sem byggðu upp það góða sem líf flestra hvílir á í dag; þingræði, þingræðislegt lýðræði og bestu stjórnarskrár veraldar frá fæðingu Krists
En burðarstólpinn undir þessu öllu var af Íhaldsmönnum samt sóttur langt aftur fyrir fæðingu Krists, þ.e alla leið til Ísraelsríkis hins forna, þ.e. til Gamla testamentisins, sem er stór hluti heilagrar Biblíu Vesturlanda. Nefna má hér sérstaklega skiptingu valds og til dæmis þjóðríkið, þjóðkirkjur og landamærin, sem ríki áttu að halda sér innan
En svo komu Vinstrimenn (þ.e. liberals undir fána sósíalistans John Locke) fram á sögusviðið og mynduðu ásamt Abolutistum (einræði án stjórnarandstöðu) þá andstæðu póla sem uxu til höfuðs Íhaldsmönnum, sem byggt höfðu upp þingræði og lýðræði í Englandi og voru að byggja það upp í Bandaríkjunum. Stór hluti stjórnarskrár Bandaríkjanna kemur frá íhaldsmönnum Englands
Við fyrsta góða múgsefjandi skrílsláta-tækifæðið sem bauðst, sprautuðu vinstrimenn (liberals) kenningum sínum beint inn í Frönsku byltinguna og árangur þeirrar innspýtingar varð hundrað ára blóðbað um stóran hluta Evrópu, og svo sjálfur uber keisaralegur imperíalistinn Napóleon, og svo það sem við höfum í dag: þ.e. heilt og marg-misheppnað Frakkland á sinni fimmtándu stjórnarskrá og sínu fimmta, en þó enn og aftur, misheppnaða lýðveldi, samkvæmt Frökkum sjálfum. Frakkar vilja því núna fá enn eina nýju stjórnarskrá sína, sem stýra á sjötta Franska lýðveldinu. Já þið heyrðuð rétt; því sjötta! Hvað er að í Frakklandi? Jú það sem er að, er ekki-íhaldsmenn, þ.e.a.s. vinstrimenn!
Í millitíðinni hafa Bandaríkin haft aðeins eina stjórnarskrá sem þolað hefur tuttugu þúsund áhlaup vinstrisins á hana, og Bandaríkin því orðið stórveldi á meðan Frakkland varð næstum ekki neitt, nema með aðstoð stofnunar ESB, sem er neyðarbjörgun þess frá núlli, miðað við það sem landið áður var
Og enn eru Bretar í betri holdum en franskur almenningur sem leið svo lengi undir absalútveldi konungs. Og þannig hefur sláandi munurinn á milli þessara tveggja ríkja verið frá því að Íhaldsmenn komu með pólitískar kenningar sínar fram á völlinn í Englandi, frá og með ca. 1300. Oftast verið feitari en Frakkar, og hafa því mun síður drepist úr hor og sjúkdómum sem grassera best í hor - öldum saman
Það er ekki til neitt sem heitir ekki-vinstrimaður (illiberal) og það er ekki til neitt sem heitir ekki-vinstrimennska (illiberalism). Rétta nafnið er: Íhaldsmaður. Ég er til dæmis Íhaldsmaður
Björt framtíð og Viðreisn og Vinstri grænir segjast ekki geta unnið með okkur Sjálfstæðismönnum. En hugsið út í þetta; Íhaldsmaðurinn Winston Churchill gat unnið með kommúnistum! Einnig Dranklin D. Roosevelt. Vaú
Íhaldsmaðurinn Donald Trump hefur aðeins setið í forsetaembættinu í átta mánuði núna. En á þeim tíma og í kosningabaráttu sinni hefur honum þó tekist að gerbreyta sýn margra á margt það sem á undan er gengið og sem gert var í veröldinni frá og með falli Sovétríkjanna. En þá hvarf samvinnugrundvöllur íhaldsmanna og líberalista með því að sameiginlegur óvinur þeirra hvarf úr veröldinni; Sovétríkin. Samvinna þessara tveggja grunnleggjandi andstæðu pólitísku afla, hófst í síðari heimstyrjöldinni, og gengu kommúnistar þá einnig í lið með þeim í baráttunni við alræðisstefnur meginlands Evrópu (alræðismennin). Og í kalda stríðinu börðust íhaldsmenn og líberalistar einnig saman, en þá gegn kommúnismanum (alræðismenni líka)
En nú skilja leiðir þeirra á ný, því pólitísk hugmyndfræði líberalista hefur reynst ónothæf og útópía við lausn á þeim málum sem leysa þarf úr í veröld manna í dag
Rekja má sem sagt íhaldsmannahefðina aftur til ca 1300, og kallast hún Anglo-American Conservatism Tradition
Vegna langrar og sögulegrar samvinnu þessara tveggja andstæðu pólitísku afla, íhaldsmanna og líberalista, voru margir farnir að halda að um eina og sömu skepnuna væri að ræða. En svo er auðvitað ekki. Slíkt hald manna var aðeins ávanamyndandi skynvilla og blindlestur
Og það sem við sjáum í dag er skilnaður þessara afla. Hann er svona. Og rykið frá skilnaðinum er mikið og þykkt. Þeir sem sjá í gegnum mökkinn þann, munu lifa af, en hinir deyja út eins og kommúnistar. Eða eru þeir kannski ekki alveg örugglega útdauðir í dag. Er það kannski ekki svo?
Tímabilið frá 1941 til 1991 var undantekningarástand og tímabilið frá 1991 til 2008 var útópía líberalista sem klesstu veröldinni það ár. Því tímabili er nú lokið. Íhaldsmenn eru mættir til leiks á ný og sagan líka
Ef þú skyldir mæta Vinstrimanni með stjórnarskrá á heilanum, þá skaltu forðast hann, því hann er oft afar hættulegur maður. Hættulegur lífi þínu, eins og þú þekkir það best. Og svo er það ESB, sem einnig þýðir hor. Endalaust vinstra hor, öldum saman
Lesið Yoram Hazony og Ofir Haivry:
What Is Conservatism? (American Affairs Journal)
Fyrri færsla
Píratar fagna meintum nauðgara og þjóf - meðmælendur Viðreisnar
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Evrópumál | Breytt s.d. kl. 14:14 | Facebook
Nýjustu færslur
- "Stórgögn" og "gervigreind" hafa lítið fært okkur
- Ísrael er búið að vinna stríðið í Líbanon
- Natópóleon beinapartur
- Rússland nú fjórða stærsta hagkerfi veraldar. Lánshæfnismat F...
- Ég óska Bjarna Ben til hamingju og velfarnaðar
- Víkingar unnu ekki. Þeir "þáðu ekki störf"
- Engir rafbílar segir Apple
- Grafa upp gamlar sprengjur og senda áleiðis til Úkraínu
- Geðsýki ræður NATÓ-för
- "Að sögn" háttsettra í loftbelg
- Skuldir Bandaríkjanna smámunir miðað við allt hitt
- Forsetinn og meiri-hluta-þvættingurinn
- Gervigreindar-fellibyl í vatnsglösum lokið
- Sjálfstæð "Palestína" sýnir morðgetu sína á tvo kanta
- Benjamín Netanyahu hringdi strax í Zelensky. Hvers vegna?
Bloggvinir
- Heimssýn
- Samtök Fullveldissinna
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Ragnhildur Kolka
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Haraldur Hansson
- Haraldur Baldursson
- Páll Vilhjálmsson
- Halldór Jónsson
- Valan
- Samstaða þjóðar
- Frjálshyggjufélagið
- Sigríður Laufey Einarsdóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Jón Valur Jensson
- Samtök um rannsóknir á ESB ...
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
- Jón Baldur Lorange
- Guðjón E. Hreinberg
- Jón Ríkharðsson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Valdimar Samúelsson
- Fannar frá Rifi
- Bjarni Jónsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Haraldur Haraldsson
- Örvar Már Marteinsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Gestur Guðjónsson
- Ingvar Valgeirsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Guðmundur Helgi Þorsteinsson
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Harðarson
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Sveinn Atli Gunnarsson
- gudni.is
- Gústaf Adolf Skúlason
- Tryggvi Hjaltason
- ESB
- Marinó G. Njálsson
- Baldvin Jónsson
- Elle_
- Sigurbjörn Svavarsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Johnny Bravo
- Jón Finnbogason
- Rýnir
- Þórarinn Baldursson
- P.Valdimar Guðjónsson
- Már Wolfgang Mixa
- Ívar Pálsson
- Júlíus Björnsson
- Guðjón Baldursson
- Baldur Fjölnisson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Einar Ólafsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Vilhjálmur Árnason
- gummih
- Sveinn Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jóhann Elíasson
- Baldur Hermannsson
- Kristinn D Gissurarson
- Magnús Jónsson
- Ketill Sigurjónsson
- Birgitta Jónsdóttir
- Axel Jóhann Axelsson
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Aðalsteinn Bjarnason
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Haraldur Pálsson
- Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
- Bjarni Benedikt Gunnarsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ægir Óskar Hallgrímsson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Óskar Sigurðsson
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Hörður Valdimarsson
- Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Ásta Hafberg S.
- Erla J. Steingrímsdóttir
- Helena Leifsdóttir
- Agný
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Árni Bragason
- Jón Lárusson
- Högni Snær Hauksson
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristinn Snævar Jónsson
- Sigurður Ingólfsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Sigurður Þórðarson
- S. Einar Sigurðsson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Vaktin
- Sigurjón Sveinsson
- Dóra litla
- Arnar Guðmundsson
- Jörundur Þórðarson
- Rafn Gíslason
- Hjalti Sigurðarson
- Kalikles
- Vésteinn Valgarðsson
- Bjarni Kristjánsson
- Egill Helgi Lárusson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jón Pétur Líndal
- Guðmundur Ásgeirsson
- Reputo
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Als
- Friðrik Már
- Gísli Sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Rauða Ljónið
- Sumarliði Einar Daðason
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Kári Harðarson
- Sigurður Antonsson
- Valdimar H Jóhannesson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Dagný
- Guðmundur Pálsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Birgir Viðar Halldórsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Tíkin
- Jón Þórhallsson
- Íslenska þjóðfylkingin
- Erla Magna Alexandersdóttir
- Óskar Kristinsson
- Dominus Sanctus.
- Ingólfur Sigurðsson
- Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 10
- Sl. sólarhring: 24
- Sl. viku: 106
- Frá upphafi: 1387425
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 72
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
Athugasemdir
Sæll Gunnar
Merkimiðarnir fljúgi fram og til baka, af miklum eldmóð.
Þetta er bráðskemmtilegt allt saman, sérstaklega fyrir mann sem hallar sér ekki til vinstri, hægri, upp, niður og allt hitt. Þannig get ég hnoðað skítabomburnar úr báðum áttum saman og fengið út alveg nýja tegund af drullumalli, minnir dálítil á sjónvarpsþættina Löður sem voru á Rúv um 1976.
Brandarinn í þessu öllu saman er náttúrulega sú staðreynd að hægri menn þurfa vinsti menn og vinstri menn hægri menn, annars hefðu þeir engan til að rífast við! :)
Sigþór Hrafnsson (IP-tala skráð) 19.9.2017 kl. 03:41
Þakka þér Sigþór.
Tja, samkvæmt vinstri-mönnum erum við hægri-menn ekki til. Við erum nefnilega ekki-vinstrimenn, þ.e. illiberals.
Vinstrið vill því að við eigum engan fulltrúa á þingi af því að við erum ekki-vinstrimenn. Þeir vilja taka stjórnarskrá okkar og breyta henni svo hægt verði að banna hægrimenn (ekki-vinstrimenn). Já, banna hægrimenn á þingi. Hvorki meira né minna, eins og til dæmis Píratar sögðu öllu Íslandi frá í gær.
Og þess vegna er ríkisstjórnin sprungin. Af því að vinstrimenn segja að meira en helmingur þjóðarinnar eigi ekki fá neina fulltrúa á þing.
Þetta er á vinstra máli kallaður "trúnaðarbrestur" og sem líklega er mest vegna misheppnaðrar nauðgunar-aðfarar vinstrimanna að bændum, sem Sjálfstæðimenn vilja ekki ganga með til.
Af þessu hlýtur þú Sigþór að sjá, að þó þú hallir þér ekki sjálfur, þá mun þér verða hallað, af þeim sem þér halla með þínu þegjandi samþykki. Þér verður hallað vegna þess að þú ert hallanlegur.
Þing, þingræði og stjórnarskrá er ekki neinn brandari. Þetta er mörg hundruð ára vinna. Sennilega fimm þúsund ára starf.
Kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 19.9.2017 kl. 06:28
Bíddu nú við Gunnar, er orðið "illiberal" til? Heitir það ekki að vera un-liberal :-)
Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 19.9.2017 kl. 06:33
Eða réttara sagt non-liberal.
Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 19.9.2017 kl. 06:33
Þakka þér Bjarne
Nei það er: There is No Such Thing as an "Illiberal" (WSJ)
Kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 19.9.2017 kl. 07:00
Þakka þér fyrir svarið Gunnar.
Jú ég hef að sjálfsögðu prufað að halla mér að pólitík. Tekið stöðu með og á móti og allt það. Eftir þá skoðum hef ég komist að því að allt kerfið er ónýtt. Að mæta á 4 ára frest og velja hugmyndafræði sem maður veit ekki hvort maður fær í bakið eða ekki finnst mér ekki spennandi.
Svo þegar maður hugsar þessa hluti grúndígt að þá fattar maður, já kjósa einu sinni á 4 ára frest. Kjósa bara rétta flokkin þá mun hann setja þau lög sem eru mér hagfeld og stuðli að atvinnuöryggi, það gerist fyrir þá sem eru rétt tengdir pólitískt. Þetta fyrirkomulag er líkara Lottóúrdrætti en lýðræði.
Þú þarft ekki að hafa neinar áhyggjur Gunnar að ég verði gabbaður til vinsti, hægri, upp eða niður. Ég hef verið þar, það er ekkert að gerast!
Sigþór Hrafnsson (IP-tala skráð) 19.9.2017 kl. 14:45
Þakka Sigþór
Já, "ekkert að gerast" væru mjög góðar fréttir.
Kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 19.9.2017 kl. 14:57
Sæll Gunnar. Þetta er mikið af gildishlöðnum settningum hjá þér, mis gáfulegar fynnst mér. Eitt af mörgu sem ég hnaut um er " Þeir vilja taka stjórnarskrá okkar og breyta henni svo hægt verði að banna hægrimenn (ekki-vinstrimenn). Já, banna hægrimenn á þingi. Hvorki meira né minna, "
Þetta sem þú skrifar þarna er óttalegt bull. Eigið þið hægri menn stjórnarskránna ???. Er eitthvað í þeirri nýju sem bannar hægri menn. Ert þú Gunnar farinn að herma eftir Trump, þar að segja að henda bara einhverju fram.
Hægri/vinstri þurfa á hvort öðru að halda. Ég meina yfir hverju ætti ég að smjatta ef engir væru hægri mennirnir og um hvað ættir þú að skrifa Gunnar ef engir væru til vinstri.
Þessir tveir pólar veita hvor öðrum aðhald og svo grillum við á kvöldin.
Brynjar (IP-tala skráð) 19.9.2017 kl. 16:50
Sæll Brynjar
Já við hægrimenn eigum stjórnaskrá okkar eins mikið og allir Íslendingar eiga hana. Það skaltu vita. Ertu nokkuð fimm ára?
Það sem fer svona fyrir brjóstið á þér er líklega þetta sem kom frá flokksmanni öfgaflokksins Pírata, sem kallar sig Birgittu:
Birgitta bendir jafnframt á að „þeir sem halda að Sjálfstæðisflokkurinn veikist mikið til langtíma verði fyrir allmiklum vonbrigðum. Mér finnst það reyndar absúrd hve stjórnmál hérlendis snúast mikið um að koma Sjálfstæðisflokknum frá völdum með sömu aðferðinni áratugum saman“. Eina leiðin til að koma þeim flokki frá sé að breyta stjórnskipan og regluverki. | Frétt
Þetta viðrini og gerpitrýni brjálæðisflokks þessa sem er með stjórnarskrá mína á heilanum, opinberar hér hvers vegna hún er einmitt með stjórnarskrá mína á heilanum.
Fjandinn hirði þetta pakk. Út af mínu þingi með þetta geggjunarlið! Ég vona svo sannarlega að kjósendur geri sér grein fyrir hvernig í þessum málum liggur.
Kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 19.9.2017 kl. 18:24
Kjósendur hafa um árabil beðið eftir þvílíkum framínumanni í musteri Íslands,sem bregst við eins og sá sem hér heldur á penna.
Helga Kristjánsdóttir, 19.9.2017 kl. 21:57
Hér er upprifjun frá febrúar 2009 fyrir Brynjar um upphaf stjórnarskrársirkusinn. Svona byrjaði þetta nú þótt vinstrilömbin hafi gleymt því eða ákveðið að halda í valkvætt minni sitt. Höfuðástæðan fyrir hysteríunni er kannski aðalega til að vera á móti Framsókn og Sjálfstðisflokknum af óskráðri skyldu. Vera á móti til að vera á móti.
Peistaðu urlinu í leitarvélina þína og Sesam mun opnast. Ekkert að borga bara þakka.
Vessgú:
http://www.visir.is/g/200938564492
Jón Steinar Ragnarsson, 19.9.2017 kl. 22:03
Þakka þér góðar kveðjur Helga
- og ég sendi þér mínar bestu.
Gunnar Rögnvaldsson, 19.9.2017 kl. 23:45
Þakka þér kærlega fyrir Jón Steinar.
Góðar kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 19.9.2017 kl. 23:46
Sæll Gunnar, ertu ekki enn búinn að átta þig á, að hægri/vinstri er dautt, fyrir þó nokkru síðan, útförin hefur farið fram. Þetta sníst allt um innrætti hvers og eins, síðan safnast saman fólk svipað innrættað. Eða, er það að vera "vinstri" að vilja t.d. að almenningur hafi "ókeypis" aðgang að læknisþjónustu frá A-Ö, reyndar gegn um skatta. Eða að það sé "hægri" að svo eigi ekki að vera, og öll læknisþjónusta eigi að vera einfaldlega einka einka(EN greidd af almenningi). Nú máttu ekki misskilja, það mega vera eins margar einkaklínikar og fólk vill, bara að fólk taki ábyrgð á því sjálfir sem það vilja reka, ekki ósvipað og með RUV vs aðra miðla. Og trúðu mér, það eru nánast óteljandi önnur dæmi sem hægt væri að taka. En þessi pæling hjá þér er vissulega áhugaverð.
Jónas Ómar Snorrason, 20.9.2017 kl. 07:52
Jón Steinar. Ég er engin sérstakur áhugamaður um nýja stjórnarskrá. Mér fannst bara " sérstakt" að Gunnar talaði um stjórnasdkrána líkt og hún væri sérstök stjórnarskrá hægri manna. Hann avaraði þessu svo ásamt smá skætingi um aldur minn.
Brynjar (IP-tala skráð) 20.9.2017 kl. 10:06
Brynjar, Gunnar er að skrifa grein um sjálfan sig, svokallaðan Ekki Kommúnisma, hver er sá aðili? Jú, það er sá aðili sem engar breytingar vill, vill ekki heyra á þær minnst. Telur að bestu tekjur séu í gegn un ríkissjóð, svona eiginlegur "Pilsfaldarkapitalisti" og virðist ekkert skammast sín fyrir, stendur bara keikur og rífur kjaft. Kominn í heilan hring, vill algera sérhagsmuni umfram almannahagsmuni að hætti N-Kóreu syndromið. Þetta er hann Gunnar sem ritar þessa grein, og örugglega bara hlær ha ha ha.
Jónas Ómar Snorrason, 20.9.2017 kl. 10:33
Þakka þér Jónas
Þar sem þjóðin er hornsteinn hins pólitíska veruleka, en ekki einstaklingurinn, þá gengur dæmi þitt ekki upp, nema undir stjórnleysi (Píratar?) eða það sem á fagmáli heitir villimennska.
Ríkið (þjóðin) bjó til kapítalisma með því að búa til lög um einkafyrirtæki. Þjóðþing semja og setja lögin sem gilda fyrir þjóðina.
Þeir sem vilja afskaffa þetta allt eru mismunandi mikið til vinstri. Þeir sem vilja varðveita þetta eru til hægri.
Það kostar ekkert að auglýsa jarðarför hvers sem vera mætti. Fólk getur jafnvel kosið að stimpla sig úr úr veruleikanum. En hægri er samt til hægri og vinstri er til vinstri. Og þannig verðu það svo lengi sem villimennska verður ekki stjórnarfar.
Kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 21.9.2017 kl. 00:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.