Laugardagur, 8. júlí 2017
ESB-einangrað Pólland heimsótt
Mynd AP: Undir pólska Hamrinum. Andrzej Duda forseti Póllands og Donald J. Trump í Varsjá 6. júlí 2017
Donald J. Trump heimsótti Pólland fimmtudaginn 6. júlí 2017. Þar ávarpaði hann pólsku þjóðina sem fyrir stuttu síðan í sovéskt hönnuðu alræðisríki safnaðist saman í milljón manna messu sem einróma hrópaði: "við viljum Guð". Rétt vestan megin við, voru vinstrimennin sem misst höfðu af Stalín þá þegar byrjaðir að hrópa "við hötum Guð og heimtum Stalín"
Pólverjar kusu, er þeir loksins fengu að kjósa, ríkisstjórn sem fellur Evrópusambandselítum ekki í geð. Sambandið þolir helst ekki að reglur lýðræðis séu virtar því það er að byggja upp ný sovétríki. Evrópusambandið ofsækir því Pólland af því að það með lýðræðislega kjörinni ríkisstjórn er að vinna að málum pólsku þjóðarinnar, sem er sterk, en ekki fársjúk. Ef fólk ætlar að vera þjóð þá verður það að viðhafa passlega þjóðarstefnu/þjóðernisstefnu og ekki vera undirlægju-hrætt við það
Þjóð án þjóðernisstefnu er ekki til og getur ekki verið til. Hún er annað hvort við það að gufa upp, eða þegar gufuð upp, eða þegar að að velli lögð. Þjóðarstefna þjóðríkisins úr Gamla testamentinu er lífsnauðsynleg og hún er besta manngæskuberandi stofnun mannkynssögunnar. Og hana er hvergi annarsstaðar að finna en í hinum Heilögu ritningum Vesturlanda. Hvergi annarsstaðar
Tæplega sextíu prósent Pólverja segjast frekar vilja segja sig úr Evrópusambandinu en að gangast undir íslömsk upplausnarplön Brusselveldisins. Þessi könnun var nýlega gerð af IBRiS. Og ekki nóg með það, þá segja þeir sem þekkja innsog sögunnar í Póllandi hve best, að Brusselveldið sé bara enn eitt nýja veldið í anda bolsévismans, sem hanna ætlar nýja tegund "samfélags" í stað þjóðfélags. Pólverjar segjast ekki ætla ekki að taka þátt í sjálfmorði Evrópusambandsríkja
Þessi tvö félagsform geta ekki þrifist samhliða. Ekki frekar en kommúnismi og þjóðríkið. Ég er því sjálfur í íslenska þjóðfélaginu, en ekki í "einhverju samfélagi". Samfélög geta ekki gefið út vegabréf né haldið lýðræðislegar kosningar og þau hafa ekkert heimilisfag, bera enga ábyrgð og níðast á þjóðfélaginu. Þau geta ekki átt fulltrúa og þau geta ekki varist, því að "sam-félag" er ekki þjóð með sameiginleg örlög. Þau standa því fyrir ekkert. Ekkert sameiginlegt er þar að verja. Samfélög eru ekki til nema sem þar af leitt samstarf fullvalda og sjálfstæðra þjóða, enda stendur það skýrt í fyrstu málsgrein stofnsáttmála sameinuðu ÞJÓÐANNA. Þær þjóðir sameinast um að eiga þar ákveðinn vettvang, en sem samt er að gufa upp, því vettvangurinn sá hefur gleymt tilgangi sínum. Þannig fer um allt sem er "sam". Það verður saminu að bráð
Hefur þessi visnun og ófrjósemi hins alþjóðlega visna vinstris þegar náð fótefstu í Reykjavíkurborg. Frjósemi íslenskra kvenna fer brátt að heyra sögunni til og volæðið hefur hafið innreið sína í ostaklukkuspil Reykjavíkurborgar. Fnykurinn þaðan fer vaxandi og hávaðinn í vinstra alræðistómi hennar er eftir því
Það er líklega engin tilviljun að Donald J. Trump var komið fyrir í sæti undir málverkinu af Sobieski þriðja, sem sturtaði síðasta heimsveldi íslams burt af meginlandi Evrópu. Eftir þessu var tekið þegar Trump hitti Duda forseta Póllands í fyrradag. Honum var vísað til sætis undir Hamrinum. Sobieski er oft nefndur íslam-hamarinn frá Póllandi. Og eins og Winston var, þá er Trump illa liðinn af óteljandi leiðum og veikburða sálum Vesturlanda, sem henda fullveldi þjóðríkjanna fyrir krókódílana, í þeirri von að þeir sjálfir verði étnir síðast. Winston var afar illa liðinn maður af mjög mörgum og til dæmis talinn skelfilegur maður í Danmörku, áður en hún var hertekin af þeim sem síðast reyndu að hamra Evrópu saman með ofbeldi og ofstæki, í stað menningarlegs og lagalegs ofbeldis og ofstækis, eins og fram fer í ESB í dag
Þýskaland með ESB-klíkuna í rassvasanum ofsækir þjóðríkið Pólland af því að Þýskaland verður að ráða yfir hinum svo kallaða innra-markaði til að geta flutt út helming landsframleiðslunnar, sem er út í hött þegar um fjórða stærsta en samtímis veikasta hagkerfi veraldar er að ræða. Þýskaland níðst þannig á öðrum þjóðum með "beggar-thy-neighbour" stefnunni. Það hefur svo fáa neytendur og kaupendur að neinu sjálft. Það er því orðið veikasti og þar með hættulegasti hlekkurinn á meginlandi Evrópu. Þýskaland verður líka að ráða peningastefnunni á þessum svo kallaða innri-markaði (í reynd fangabúðir) og það verður einnig að ráða því hvernig gjaldmiðill hans er verðlagður með tilliti til útflutnings út fyrir fangabúðirnar. Og það verður einnig að ráða verðbólgustiginu, þannig að það sé Þýskalandi ávallt í hag og verðleggi útflutning því sjálfu í hag en öðrum í óhag, til þess að þessir aðrir séu áfram laskaðir og veikir og geti ekki keppt við Þýskaland á eðlilegum forsendum, nema nurli og níðst á öðrum stefnunni
Þýskaland verður einnig að ráða því hvort að viðskipti verði látin hafa forgang fram yfir lýðræði og frelsi manna í Evrópu. Þýskaland heimtar því stjórna veikingu NATO til þess að varnabandalagið eyðileggi ekki komandi viðskipti Þýskalands við Rússland. Ekkert má standa í vegi fyrir því að Þýskaland geti flutt út helming landsframleiðslunnar núna og í framtíðinni. Það heimtar því að NATO sé fyrst og fremst pólitískur kjaftaklúbbur en ekki hernaðarbandalag, því þannig bandalög ógna viðskiptum Þýskalands, sem er að deyja sínum gelda öldrunardauða
Þýskaland er því í NATO á allt öðrum forsendum en flest önnur ríki. Það krefst þess að NATO sé haldið veiku svo það ógni ekki framtíðarmarkaði Þýskalands í Rússlandi eftir að gaddavírinn umhverfis fangabúðir hins innri markaðar fellur. Og þegar lönd ESB fá þá fullveldi sitt á ný með því að sambandið lognast útaf sem sjálfdautt og misheppnað geopólitískt trix hinna fyrrverandi Þýskalands og Frakklands. En þessi tvö ríki eru og verða áfram aðeins fyrrverandi veldi. Ekkert make-up getur meikað yfir þá staðreynd, sama hversu þykkt því er smurt á sviðin andlit þeirra
Video: Bandarísku og pólsku forsetahjónin takast í hendur
Pólland hefur hellt grús í úrverk Þýskalands, sem er með ESB í rassvasanum. Pólland skalt því ofsótt frá Brussel fyrir að vilja áfram vera fullvalda ríki með sín dýrmætu landamæri sem nágrannar þess viðstöðulaust og öldum saman hafa reynt að þurrka út. Það var aldrei meiningin með Evrópusambandinu að lönd þess gætu haft sjálfsákvörðunarrétt. Þau áttu að sýna undirgefni, kyngja kúgun og hlýða og vera til fyrir sviðnu löndin tvö
Bandaríkin hafa lítilla sem engra sameiginlegra hagsmuna að gæta með Þýskalandi lengur, því Þýskaland, eins og áður, er frekar gagnslaust ríkislíki og óútreiknanlegt. Þýskaland er ekki mikilvægt land fyrir neinn í Evrópu nema fyrir Þýskaland sjálft. Landið er einungis efnahagsleg hugmynd prinsins Bismarcks að þjóð. Og þannig hugmynd um þjóð getur aldrei gengið upp. Evrópusambandið byrjaði því að liðast í sundur við fyrstu ágjöf því Þýskaland er veikasti hlekkur þess. Það mun aldrei þola sjálfsákvörðunarrétt þjóða né þjóðfrelsi þeirra. Þess vegna er Þýskaland að deyja. Það er nú þegar því sem næst lifandi dautt. En útför þess mun hins vegar ekki fara fram í kyrrþey. Hafa ber það í huga, þegar hugað er að "framtíðinni" á meginlandi Evrópu. Jarðarfararstemmingin þar verður engin smásmíði
Þess vegna fór Trump til Póllands. Við engan er að tala í Þýskalandi. Þar er ekkert og verður aldrei neitt. Hið nýja en gamla Intermarium Pilsudski er hins vegar orðið að staðreynd í smíðum. Hún er í smíðum og þar mun allt það mikilvæga í Evrópu fram fara á komandi mörgum tugum ára. Verið er að reka Intermarium fleyginn á sinn stað. Ungverjaland hefur ákveðið að taka þátt í heræfingum með Rúmeníu sem tekur þátt í heræfingum með Póllandi. Svo munu Eystrasaltsríkin stíga um borð ásamt Búlgaríu. Þá eru þetta sem sagt ríkin Pólland, sem er ekki platríki, Rúmenía og Ungverjaland - og svo Bandaríki Norður Ameríku, sem orðið hafa það sem þau eru með því að vera aldrei sammála um neitt. Þau eru nefnilega ekki samsæri því stjórnarskrá þeirra sá fyrir því að bandaríska þjóðin mætti, ætti og skyldi samkvæmt mannlegu eðli, aldrei vera sammála um neitt. Þess vegna er Donald J. Trump forseti Bandaríkjanna í dag, en ekki sam-særi einhvers sam-félags
Video: Ræða Donalds J. Trump í Póllandi í heild
Fyrri færsla
"Í Bandaríkjunum tilbiðjum við ekki ríkisstjórnir, við tilbiðjum Guð"
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Evrópumál | Breytt s.d. kl. 17:33 | Facebook
Nýjustu færslur
- "Stórgögn" og "gervigreind" hafa lítið fært okkur
- Ísrael er búið að vinna stríðið í Líbanon
- Natópóleon beinapartur
- Rússland nú fjórða stærsta hagkerfi veraldar. Lánshæfnismat F...
- Ég óska Bjarna Ben til hamingju og velfarnaðar
- Víkingar unnu ekki. Þeir "þáðu ekki störf"
- Engir rafbílar segir Apple
- Grafa upp gamlar sprengjur og senda áleiðis til Úkraínu
- Geðsýki ræður NATÓ-för
- "Að sögn" háttsettra í loftbelg
- Skuldir Bandaríkjanna smámunir miðað við allt hitt
- Forsetinn og meiri-hluta-þvættingurinn
- Gervigreindar-fellibyl í vatnsglösum lokið
- Sjálfstæð "Palestína" sýnir morðgetu sína á tvo kanta
- Benjamín Netanyahu hringdi strax í Zelensky. Hvers vegna?
Bloggvinir
- Heimssýn
- Samtök Fullveldissinna
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Ragnhildur Kolka
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Haraldur Hansson
- Haraldur Baldursson
- Páll Vilhjálmsson
- Halldór Jónsson
- Valan
- Samstaða þjóðar
- Frjálshyggjufélagið
- Sigríður Laufey Einarsdóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Jón Valur Jensson
- Samtök um rannsóknir á ESB ...
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
- Jón Baldur Lorange
- Guðjón E. Hreinberg
- Jón Ríkharðsson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Valdimar Samúelsson
- Fannar frá Rifi
- Bjarni Jónsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Haraldur Haraldsson
- Örvar Már Marteinsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Gestur Guðjónsson
- Ingvar Valgeirsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Guðmundur Helgi Þorsteinsson
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Harðarson
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Sveinn Atli Gunnarsson
- gudni.is
- Gústaf Adolf Skúlason
- Tryggvi Hjaltason
- ESB
- Marinó G. Njálsson
- Baldvin Jónsson
- Elle_
- Sigurbjörn Svavarsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Johnny Bravo
- Jón Finnbogason
- Rýnir
- Þórarinn Baldursson
- P.Valdimar Guðjónsson
- Már Wolfgang Mixa
- Ívar Pálsson
- Júlíus Björnsson
- Guðjón Baldursson
- Baldur Fjölnisson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Einar Ólafsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Vilhjálmur Árnason
- gummih
- Sveinn Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jóhann Elíasson
- Baldur Hermannsson
- Kristinn D Gissurarson
- Magnús Jónsson
- Ketill Sigurjónsson
- Birgitta Jónsdóttir
- Axel Jóhann Axelsson
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Aðalsteinn Bjarnason
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Haraldur Pálsson
- Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
- Bjarni Benedikt Gunnarsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ægir Óskar Hallgrímsson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Óskar Sigurðsson
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Hörður Valdimarsson
- Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Ásta Hafberg S.
- Erla J. Steingrímsdóttir
- Helena Leifsdóttir
- Agný
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Árni Bragason
- Jón Lárusson
- Högni Snær Hauksson
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristinn Snævar Jónsson
- Sigurður Ingólfsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Sigurður Þórðarson
- S. Einar Sigurðsson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Vaktin
- Sigurjón Sveinsson
- Dóra litla
- Arnar Guðmundsson
- Jörundur Þórðarson
- Rafn Gíslason
- Hjalti Sigurðarson
- Kalikles
- Vésteinn Valgarðsson
- Bjarni Kristjánsson
- Egill Helgi Lárusson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jón Pétur Líndal
- Guðmundur Ásgeirsson
- Reputo
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Als
- Friðrik Már
- Gísli Sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Rauða Ljónið
- Sumarliði Einar Daðason
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Kári Harðarson
- Sigurður Antonsson
- Valdimar H Jóhannesson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Dagný
- Guðmundur Pálsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Birgir Viðar Halldórsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Tíkin
- Jón Þórhallsson
- Íslenska þjóðfylkingin
- Erla Magna Alexandersdóttir
- Óskar Kristinsson
- Dominus Sanctus.
- Ingólfur Sigurðsson
- Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 5
- Sl. sólarhring: 18
- Sl. viku: 99
- Frá upphafi: 1387443
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 68
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
Athugasemdir
Ofan í þetta má svo bæta því að ágallar Evrópusambandsins sem stofnunar sem engin vandamál er fært um að leysa, heldur framleiðir það vandamálin sjálft á færibandi handa heiminum til að leysa, eru orðnir svo krónískir að sambandinu er sjálfhætt.
ESB hangir sem steypuklossi um háls hagvaxtar og velmegunar í heiminum öllum, og það lætur aðra hluta heimsins um að leysa vandamál þess. Current-account staða ESB sem heild er eins og staða sníkjudýrs á heimshagkerfinu.
Bandaríkin hafa sérstaklega haldið þessu vesæla efnahagssvæði ofan sjávar. Án þeirra væri það hreinlega skokkið og hengt í sinni eigin hengingaról.
Samskiptum ESB og Bandaríkjanna hefur því stanslaust hrakað síðustu 17 árin og líklegt er að brátt muni sjóða uppúr.
Gunnar Rögnvaldsson, 8.7.2017 kl. 16:55
Athyglisverð grein, mjög íhugunarverð a.m.k. í mörgu.
Þegar Gunnar ritar: "Þess vegna er Þýskaland að deyja. Það er nú þegar því sem næst lifandi dautt," þá staðfestist það af öðrum þungvægum ástæðum af þessu: Nú fæðast aðeins 1,44 börn á hverja konu á barneignaaldri í Þýzkalandi. Það merkir, að næsta barneignakynslóð verður aðeins 72% af stærð núverandi barneignakynslóðar, og sú þarnæsta verður aðeins um 52,8% af stærð þeirrar núverandi, en sú þriðja (eftir um 90-100 ár) verður aðeins tæp 42% af stærð núverandi barneignakynslóðar, og sú fjórða verður aðeins um 30% af stærð þeirrar núverandi. Þannig skreppur þjóðin saman. Tölurnar eiga raunar við um íbúa landsins, ekki endilega Þjóðverja sem slíka. Meiri tímgun múslima mun m.a. tryggja það, að 30%-talan fram í tímann (einbert meðaltal landsmanna) er jafnvel of hátt reiknuð fyrir barneignakynslóð Þjóðverja þegar þar að kemur. En með þessu er líka ljóst, að með sömu öfugþróun, á sama hraða, verða Þjóðverjar ekki 80,7 milljónir eins og nú, heldur einhvers staðar nánælt 24,3 milljónum við 4. kynslóð frá því nú.
Þjóðverjar hafa þegar náð því sem þjóð, að þar er að meðaltali elzta fólkið meðal eiginlegra Evrópuþjóða: 46,8 ár, þriðja elzta þjóð í heimi, á eftir Mónakó (52,4) og Japan (46,9).*
Já, þýzka þjóðin er á fallandi fæti með sinni "samfélags"-stefnu, sem hefur breytt glæp fóstureyðinga í réttindi kvenna, eins og Carlos Caraffa kardínáli bendir réttilega á í nýlegri ræðu. Þessi aðferð til sjálfsútrýmingar þjóðar tekur sinn tíma, en hefur sín áhrif með vaxandi og óumflýjanlegum skriðþunga, meðan "samfélagið" þverskallast við að siðbæta sig.
* Allar töluheimildir hér eru byggðar á tölum á vefsíðunni https://www.cia.gov/library/publications/the-world-factbook/geos/gm.html
Jón Valur Jensson, 8.7.2017 kl. 19:53
Hér átti vitaskuld að standa: "einhvers staðar nálægt 24,3 milljónum ..."
Jón Valur Jensson, 8.7.2017 kl. 19:56
Kardínálinn fordæmdi það að verið sé að “breyta glæp í réttindi” í tilfelli fósturvíga. “Þetta merkir, að farið sé að kalla það, sem er gott, illt, og það, sem er ljós, er kallað myrkur,” sagði hann. Caffarra lýsti því yfir, að fóstureyðing feli í sér “djúptæka afneitun á sannleikanum um manninn.”
Jón Valur Jensson, 8.7.2017 kl. 22:55
Þakka þér Jón Valur.
G-20 fundurinn í Hamborg í Þýskalandi sýndi svo ekki er um að villast hvernig sjálfsmorð Þýskalands gengur fyrir sig. Þar gengu draumabörn Angelu Merkels slíkan berserksgang að annað eins hefur varla sést síðan að litli maðurinn með skeggstubb á efrivör komst til valda.
Falli nýlendur Þýskalands á hinum svo kallaða "innri markaði" þess, þá er Þýskaland búið að vera.
Að fjórða stærsta hagkerfi veraldar þurfi að flytja út helming landsframleiðslu sinnar til að lifa af, nálgast slíkt gerræði að meira öfugsnúið getur eitt meiriháttar ríki varla orðið.
Ef að Bandaríkin, sem eru nettó-innflytjandi, myndu gera slíkt hið sama þá væri þriðja, fjórða og fimmta heimstyrjöldin þegar orðnar að veruleika.
Þýsk dagblöð skrifa í dag að ástandið sé orðið þannig að vilji skríllinn ráða landinu, að já, þá ræður hann landinu.
Myndir Wall Street Journal frá Hamborg eru sláandi. Úrkynjunin er að verða svo yfirþyrmandi í Þýskalandi.
Ég deili mjög áhyggjum manna af lágri frjósemi á Vesturlöndum og staðan í Þýskalandi mun sennilega aldrei lagast, er þar er hún einna verst. Þeir horfa í svart sólarlagið og útför Þýskalands verður algerlega skelfileg og langdregin, í öllum skilningi.
Kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 9.7.2017 kl. 01:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.