Leita í fréttum mbl.is

Ađ vera klaufhamar Evrópusambandsins

Ávöxtunarkrafa á 10 ára ítölsk ríkisskuldabréf 30. nóv. 2010
Mynd: Bloomberg. Ávöxtunarkrafa á 10 ára ítölsk ríkisbréf: GBTPGR10 
 
 
Paul Krugman segir ađ ţegar mađur er hamar, ţá líta öll vandamál út fyrir ađ vera naglar.

Úr nöglum er hćgt ađ sjóđa naglasúpu. Ţađ vita allir. En vissuđ ţiđ ađ naglasúpu hefur veriđ hellt yfir evrusvćđiđ. Hamarinn er í Ţýskalandi og engu hefur veriđ bćtt út í súpuna, hún er alveg tćr. Samanstendur bara af nöglum. Ţađ eina sem Ţýskaland og yfirmenn myntsvćđisins kunna, eru refsingar og niđurskurđur. Ef vantraust kemur upp á eitthvert land á evrusvćđinu, ţá fyrirskipar Ţýskaland niđurskurđ ríkisútgjalda. Ef ţađ dugar ekki, ţá fyrirskipar Ţýskaland enn meiri niđurskurđ ríkisútgjalda. Dugi ţađ ekki, ţá fyrirskipar Ţýskaland enn meiri niđurskurđ ríkisútgjalda. Ef ţađ dugar ekki heldur, ţá fyrirskipar Ţýskaland enn meiri niđurskurđ ríkisútgjalda og ađ landiđ taki enn meiri lán á enn verri vaxtakjörum en ţau sem buđust áđur en hamarinn fór af stađ, og sem getur ađeins leitt til ríkisgjaldţrots. Ţetta sjáum viđ í tilfelli Grikklands og Írlands.
 
Allt er ţetta gert til ađ reyna ađ bjarga myntinni frćgu, svo Össur og Jóhanna komi nú ekki ađ tómum kofa seđlabanka Evrópusambandsins í Frankensteinfurt

Vaxtamismunur ríkissjóđs Ítalíu gegn ríkissjóđi Ţýskalands er nú sá mesti síđan 1997, eđa áđur en myntbandalagiđ fór á fćtur. Ţađ er sem sagt verra ađ vera ítölsk ríkisskuld núna en undir gömlu lírunni.

Vaxtamismunur ríkissjóđs Spánar hefur fariđ upp í gengum ţakiđ á síđasta sólarhring. Ţetta eru hin járnkvćđu áhrif frá óbjörgun Írlands um helgina (sjá; Aftansöngur: Önnur sunnudags hugga myntbandalags Evrópusambandsins og AGS). Alţjóđlegir fjárfestar hafa loksins séđ í gegnum Ponzi myntina evru. 

Skuldatryggingaálag á afleiđur ríkisskulda Ítalíu (í ţýskum evrum, EUR) er ađ nálgast ţađ íslenska, eđa 247 punktar á móti 273 á ríkissjóđ Íslands, vel ađ merkja undir okkar eigin krónu (ISK). Skuldatryggingaálag á Spán er sprungiđ út í himnaríki evruskjóls Samfylkingarinnar, 350 punktar ţar, og ennţá í evrum. Portúgal er međ 537 punkta og Írland er í skjaldborgarhćđum Össurar og Jóhönnu forsćtisráđherraínu, međ 602 punkta.
 
We are now fast approach default time. Yields have been rising in Spain and even Italy yesterday afternoon, and the situation continued to deteriorate overnight. We at Eurointelligence consider a default of Greece, Ireland, and Portugal a done deal. The question is only now whether Spain can scrape through. 

Sjálfur er Wolfgang Münchau á Financial Times og Eurointelligence ađ springa í loft upp af vonbrigđum og skrifar í dag undir fyrirsögninni "endalok": (ađvörun) Endgame

Og evran fellur. Ţađ, vćni minn, til marks um ađ allt gangi svo rosalega vel međ evruna. Hún fellur nú rúmliggjandi um yfir eitt prósent á sólarhring í járnrúmi ESB og Alţjóđa Gjaldţrotasjóđsins. Hún er mynt í útrýmingarhćttu. Geri ađrir betur. En nćstum ekki eitt orđ um allt ţetta í ţýskum blöđum í gćr, sem virđast koma út hinumegin á hnettinum. Sćlir eru fávísir. Halda mćtti ađ ESB-RÚV réđi ţar ríki.
 
Fimm yfirskriftir dagsins
 
 
 
Fyrri fćrsla
 

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband