Leita í fréttum mbl.is

Þriðjungur spænskra sveitafélaga á leið í gjaldþrot. Greiðslustöðvanir hafnar.

Neikvæðir raunstýrivextir á Spáni
Hamingja myntbandalags Evrópusambandsins dynur nú á 46 milljón Spánverjum. Sökum þess hversu ofur fullvalda Spánn er í Evrópusambandinu má landið ekki gefa út peninga. Það má hvorki prenta peninga né stunda myntsláttu. Enginn vill lána spænskum bönkum peninga. Spánn er nefnilega í myntbandalagi Evrópusambandsins. Þar rignir nú eldi og brennisteinum niður úr pakkanum. Spánverjar sitja í miðju kaffiboði á öskuhaugum Evrópusambandsins í 21 prósent atvinnuleysi og með kjarnorkusprengdan efnahag. Hagkerfi þeirra var sprengt í loft upp með hörmulega rangri peningastefnu seðlabanka Evrópusambandsins í Þýskalandi. Svona virka neikvæðir raunstýrivextir (mynd: Edward Hugh hagfræðingur á Spáni) 
 
“takk fyrir framtíð mína” 
Myndir; E24 Noregi 

Staðreynd: ef Spánn væri fullvalda ríki þá myndi það fella gengið eins og skot. Það er 60-80% of hátt fyrir efnahag landsins. Tekjur sveitafélaga eru að þorna upp vegna atvinnuleysis, óstjórnar og öngþveitis. En í stað gengisfellingar sem myndi koma hjólum atvinnulífsins af stað á ný, mun Spánn fá ríkisfjárlagafallhlífahersveitir Brussels í heimsókn. Herdeildin verður steinsteypt niður við öll skrifborðin í fjármálaráðuneyti þessa ofur fullvalda ríkis. Spánn hefur ekkert gengi og enga peninga.  

Velkomin í Evrópusamband Össurar Joly og einnota Steingríms. J. Sigfússonar kosningasvikara - og í 41 prósent atvinnuleysi ungs fólks á Spáni. Þetta er bara allt að gera sig. Þessir tveir menn munu verða ráðnir til að bjarga málunum þegar seðlabanki Evrópusambandsins verður gjaldþrota, áhrif þeirra verða þá svo rosaleg. Ritari verður Eva Joly.
 
Síðasti einræðisherra Spánar hét Francisco Franco. Hann fór frá völdum rúmlega ári áður en þáverandi sjálfstæðir Íslendingar færðu landhelgi íslenska lýðveldisins út í 200 sjómílur. Þá voru gungur og druslur ekki komnar í boðtísku meðal flugfreyja og örverpa Íslandssögunnar eins og nú. 
 
Krækja: FT/A 
 
Fyrri færsla
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Antonsson

Sammála þér um að Bandaríkin virðast eiga betur með selja sína vörur í kreppu. Evran hefur hækkað álíka og dollar ef miðað er við fyrir hrun eða um 80%. Því skyldu Spánverjar ekki getað örvað sinn útflutning með því að lækka útflutningsvörur sínar í evrum? Er ekki of einfalt að skella allri skuldinni á evruna?

Því skyldu ekki Danir vera í sömu vandræðum með dönsku krónuna tengda evru.

Sigurður Antonsson, 20.10.2010 kl. 21:10

2 Smámynd: Jón Ásgeir Bjarnason

Það er nú ekki mikill munur á Dönum og Spánverjum þannig efnahagslega séð.

Þeir eru á leiðinni á hausin eins og fleiri sem elska ríkisbákn, miðstýringu, skrifinna lærða í Marxískri skipulagningu og gerfipeninga.

Nice try but no cigar sagði víst einhver í þessu samhengi...

Skondin náungi;

http://www.martinarmstrong.org/files/Nice%20Try%20but%20No%20Cigar%2010-9-2010.pdf

Jón Ásgeir Bjarnason, 20.10.2010 kl. 21:55

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka ykkur fyrir innlitið

Afsakaðu Sigurður, en ég fæ ekki botn í innlegg þitt. 

Sammála þér um að veðrið sé gott í dag. Auðveldara væri þó ef evran hækkaði um 100 prósent í viðbót. Þá yrðu Spánverjar svo ríkir að þeir þyrftu ekki að vinna neitt. Þeir búa jú í þessari galdramynt. Gengið yrði þá svo yfir gott. Danir gætu lært mikið af þessu og loksins tekið upp kartöflur.
 
 

Gunnar Rögnvaldsson, 21.10.2010 kl. 12:00

4 identicon

Á íslandi er enginn Evra

Samt er engann veginn hægt að koma sér í skjól

Kerfið er ónýtt

Truin er enginn

Blindir menn við völd

Ekki er hægt að laga það sem ekki sést

Má ég þá biðja um að vera í sömu súpu og allir hinir

Evrópa

Kveðja

Æsir (IP-tala skráð) 21.10.2010 kl. 21:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband