Leita í fréttum mbl.is

Enn einn neyðarfundurinn í ESB [u]

GJALDÞROTA FLOKKUR FÁBJÁNA
Nýr esb-neyðarfundur • Allt tapað aftur á meginlandi taparanna  NATO skrifstofuörmagna • Allar skotafærageymslur tæmdar • Úkraínustríðið tapað

****

Nú rífast 27 ESB-lönd innbyrðis um það hverjum var boðið til Parísar á neyðarfund í erfidrykkju Macronismans og hverjum var ekki boðið

En Emmanuel Macron forseti Frakklands komst til valda með því að fullvissa greinilega of stóran hluta Frakka um að í hans stjórnartíð yrðu öldurnar lægðar innvortis í Frakklandi, vegna þess að hann, já hann einn, myndi stunda hugmyndafræðilaus stjórnmál eins og sannur veraldarhyggju-bókhaldari eða tölva

Ómögulegt er því að skilja af hverju Macron færði ekki bara utanríkispólitíska færslu Donalds Trumps inn í bókhaldskladdann og hélt sér síðan áfram við kaffidrykkju aðeins. Nema þá að hugmyndafræðileg pólitísk-klessukeyrsla hans hafi komið í veg fyrir það

Aðeins 6 ESB-löndum af 27 fyrir utan fundarhaldarann var boðið ásamt Bretlandi til Parísar, til að kvarta þar yfir því að Bandaríkin láta sér frá og með nú dálítið annt um bandaríska hagsmuni

Tékklandi var til dæmis ekki boðið en það hýsir hlutfallslega stærstan fjölda flóttamanna frá Úkraínu og er með bestu vopnaaðfangakeðju álfunnar

Og Grikklandi með hlutfallslega stærsta her álfunnar var ekki boðið af því að það er í 100 ára ESB-skammarkrók og skuldafangelsi vegna fjárlagahalla eins og þann sem Frakkland er með núna

Ungverjalandi var auðvitað ekki boðið af því að það hefur einna mest sjálfstraust allra ríkja álfunnar, plús það að eiga þvingunarbúsettan minnihluta í Úkraínu eftir að Úkraína var sett upp sem gerviríki

Rúmeníu, kosningabana með velþóknun ESB, var heldur ekki boðið en hún á 600 km. af landamærum beint upp að Úkraínu, svo auðvitað kemur Úkraína Rúmeníu ekkert við, heldur aðeins Frakklandi og Bretlandi úti við Atlantshaf

Danmörku var hins vegar boðið af því að danska konungsfjölskyldan óttast um tilvist næstu póstkortaseríu með myndum af Grænlandi. Þess utan eru 18 danskir hermenn á Grænlandi, gegn Trump

Þetta lýsir Evrópusambandinu vel, en það var fyrst og fremst stofnað sem handjárnunarþjónusta stærri ríkja álfunnar á þau smærri, til að geta nauðgað þeim með minni áhættu og með tíð og tíma gert þau upptæk

Maður þarf annað hvort að vera pólitískt pelabarn eða steinaldarhyggjumaður til að aðhyllast fyrirbæri á borð við Evrópusambandið

-------

Uppfært þriðjudagur, 18. febrúar 2025 kl. 10:38:46

Fundur utanríkisráðherra Rússlands og Bandaríkjanna hófst í Ríad í Sádi-Arabíu áðan: Tass (mynd og fundarsætaskipan)

Fyrri færsla

Grautarhaus Starmer og co


mbl.is Scholz: Evrópa og Bandaríkin verða að vinna saman
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grautarhaus Starmer og co

Það er bara stofnun Sameinuðu þjóðanna sem stundað getur mark á takandi friðargæslu. Og það er aðeins með samþykki Öryggisráðsins að slík mark á takandi friðargæsla getur orðið og farið fram. Og þar er Rússland með neitunarvald

Þannig að þessir svo kölluðu hermenn sem 33,7 prósent Starmer í breska verkó, Anders Fogh í útdauðum flokki Venstre og Stenergard útfararríkisráðherra Svíþjóðar tala um, yrðu bara erlent herlið í Úkraínu og þar með réttdræpir þátttakendur í stríði við Rússland

Heldur þetta fólk í alvöru að Rússland samþykki slíka aukalega hernaðaruppbyggingu í túnfæri sínum?

Kann ekkert af þessu fólki neitt. Eða hefur það orðið fyrir áfalli?

Það eru bara ríki með alvöru her á borð við Bandaríkin og Rússland sem skipt geta sér með einhverjum árangri af deilum annarra ríkja, og þá helst deilum smáríkja. Ekkert ríki Evrópu er með alvöru her. Evrópa er liðið lík

Fyrri færsla

Súrrealísk viðbrögð við símtali


mbl.is Tilbúinn að senda hermenn til Úkraínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 17. febrúar 2025

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband