Leita í fréttum mbl.is

Natópóleon beinapartur

ÓFRIÐARVEITUR

Heilög vandlæting svo kallaðra fjölmiðla vesturlanda er því sem næst áþreifanleg þessi árin, en þó einkum frá og með í gær. Tilefnið akkúrat í dag er heimsókn Vladímírs Vladímírovich Pútíns forseta Rússlands til nágrannaríkisins Norður-Kóreu. En ríkin eru með sameiginleg landamæri við Japanshaf og hlýtur því "samgangur og samþætting" að vera af því algóða - samkvæmt hugsjónum Natópóleons beinaparts í því sem áður var Evrópa. Rússar eru meira að segja enn að grafa upp og skila til baka líkamsleifum þannig hugsjóna til Frakklands: beinapörtunum

Og nú þegar beinamáttur innréttinga Natópóleons í því sem áður var Evrópa notar frá og með árinu 2008 Úkraínu og Úkraínumenn til að pota í Rússland, þá er kannski ekki úr vegi að ég, og þar með við Rússar, komum okkur upp potprikum til að pota inn í beinaparta- og krossferðamiðstöðina Bandaríkin á vesturhveli jarðar. Við getum það, því við erum bæði á austur- og vesturhveli jarðar. Sitthvað á þeim nótum myndi ég að minnsta kosti hugsa væri ég Pútín í dag. Þess vegna er hann í Norður-Kóreu. Hissa er ég þó á því að hann skuli ekki hafa farið þangað löngu fyrr

Hefjast því sameignlegar heræfingar Rússa og Norðurkóreumanna örlítið seinna en annars, því flytja verður fyrst út viss vopn yfir til Norðurkóreumanna og sem Bandaríkin neyðast til að endurspegla á sömu slóðum og mun sú endurspeglun einnig taka tíma og umfram allt mikla orku, svo ekki sé talað um getu. Svona virka lárétt stigmögnunarprik og þeim á Rússland nóg af, enda varla byrjaðir potið enn. Bandaríkin hafa hins vegar verið að frá því að Berlínarmúrinn féll. Öllu þessu hefði auðveldlega verið hægt að komast hjá

Næsta stopp Pútíns er í Víetnam

Við höfðum nú upphaflega ekki hugsað okkur neitt sérstak í þessum efnum. En fyrst að krossferðir Natópóleons í Evrópu -og jafnvel víðar- eru fyrir löngu hafnar á ný í formi nýrra innréttinga, þá getum við svo sem alveg tekið hið lárétta stigmögnunarprik okkar í notkun því það nær til allra horna veraldar, og sem öll eru hætt að vera við pollinn Miðjarðarhaf. Við erum líka með lóðrétt prik, mörg. En þau eru hins vegar síðari tíma saga, vonandi

Norður-Kórea gæti reynst okkur gagnleg í bæði láréttum og lóðréttum potefnum því ekki vantar einlægan áhuga þar. Sá áhugi er enn til staðar vegna loftárása Bandaríkjanna á Norður-Kóreu frá 1950 til 1953

En þar drápu Bandaríkjamenn 10-20 prósentur íbúanna og "jusu napalm yfir alla óbreytta þjóðina" eins og Winston Churchill orðaði það. Þeir sem dóu ekki í bandaríska sprengjuregninu á Norður-Kóreu dóu síðar úr hungri og vosbúð, þannig að Curtis LeMay sagði að: "á þremur árum drápum við 20 prósentur þjóðarinnar". Eyðileggingin á landinu varð svo algjör að sprengjuflugvélar Bandaríkjanna neyddust til að varpa sprengjuförmum sínum í sjóinn því engin skotmörk á jörðu niðri var að finna lengur. Allt hafði þegar verið jafnað við jörðu

Þessu hefur Norður-Kóreu þjóðin ekki gleymt og mun ekki gleyma. Slíkar minningar gleymast ekki. Enginn í Bandaríkjunum myndi heldur gleyma því ef 60 milljónum Bandaríkjamanna væri slátrað með sprengjuregni, brenndar lifandi með napalm og síðan sveltar í hel

Og nú þegar krossferðir Natópóleons beinaparts í Evrópu eru hafnar á ný þá neyðumst við sennilega til að pota til baka. Og mörg lönd munu reynast okkur gagnleg í þeim efnum. Við höfum Norður-Kóreu, og síðan eru það viss (reyndar mörg) lönd í Mið- og Suðurameríku og einnig í Evrópu og Miðausturlöndum, - er líklega rökrétt ályktun Rússa

Mér sjálfum er alls ekki ljúft að álykta sem svo að hin innri fyrirlitning Bandaríkjamanna á sjálfum sér og ríki sínu gæti farið að rista svo djúpt að ekki verði til baka snúið. Við skulum vona að ég hafi algjörlega rangt fyrir mér. En von er því miður ekki stefna. Hún er bara von. En efinn er kominn - og það er ekki gott

Kæru lesendur. Fjölmiðlar ykkar hafa sagt ykkur að Úkraína hafi verið að vinna stríð við Rússland síðastliðin tvö ár. Ekkert hefur þó verið fjarri sannleikanum en einmitt slíkar fréttir þeirra

Og einmitt það áttu NATÓ-ríkin að vita strax árið 2008. Þau áttu að vita að slíkt kæmi aldrei til greina. En sökum yfirþrymandi innri valdamannheimsku og múgsefjunar stjórnvalda NATÓ-ríkjanna er staðan því eins og hún er í dag. Það var NATÓ sem með pot-stefnu sinni bað um stríð í Evrópu á ný. Þessi þróun er alfarið NATO að kenna. Engin ástæða var til útþenslu NATÓ í austur

Ekkert ríki getur aukið þjóðaröryggi sitt á kostnað þjóðaröryggis annars ríkis. Þetta á sérstaklega við um nágrannaríki. Þessi einfalda regla alþjóðlegra samskipta ríkja, og einfaldi sannleikur í daglegu lífi hvers manns, átti að liggja sem vel varið djásn inni í innstu stefnumarkandi hugsunum allra þeirra landa sem eru í NATÓ

Að öðrum kosti breytist fyrirbæri á borð við NATÓ í ófriðarveitu. Því miður er það einmitt slíkt sem hefur gerst

Fyrri færsla

Rússland nú fjórða stærsta hagkerfi veraldar. Lánshæfnismat Frakklands lækkað


mbl.is Pútín og Kim undirrita samkomulag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 19. júní 2024

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband