Leita í fréttum mbl.is

Hlýtur að vera Rússum að kenna [u]

ALLT RÚSSUM AÐ KENNA

Þarna sést að Rússland stendur auðvitað fyrir þessu stríði á hendur Ísraelsríki því það flutti jú sendiráð sitt til Jerúsalem og það sendi ekki þá sex milljarða dala sem Biden-stjórnin lofaði írönskum eigendum Hamas fyrir að láta fimm Bandaríkjamenn lausa úr haldi þann 19. september síðastliðinn

Einnig er það náttúrlega og að sjálfsögðu Rússum að kenna hversu Biden-stjórnin í Washington hefur verið fjandsamleg í garð Ísraela, einkum Benjamíns Netanyahu, en vinveitt eigendum Hamas í Íran. Bandaríkin fjármagna því ef til vill óbeint eins konar stríð á hendur Ísraelsríki og það er að sjálfsögðu Rússum að kenna - eins og allt annað sem gerist og gerist ekki í þessum heimi

Hvað skyldi Hillary Clikkton hin fremsta klikk-stjarna Bandaríkjanna á sviði atvinnu-Rússahaturs segja núna. Jú hún mun segja: Hvað sagði ég? Allt Rússum að kenna!

At all costs, America believes that it must do whatever is necessary to prevent the Israeli state from exercising its sovereign right under Bibi’s restored leadership to balance between the US-led West’s Golden Billion and the Sino-Russo Entente in the New Cold War instead of decisively take the former’s side against the latter. ]

Það kæmi mér alls ekki á óvart ef að hin Ísraelsfóbíska og Rússahatandi vinstristjórn í Washington stæði að baki þeim innri óróa og ólgu sem plagað hefur Ísrael undanfarin tvö ár - með það fyrir augum að koma þar á innri óstöðugleika sem leitt gæti til innri upplausnar, eins og Bandaríkjastjórn reyndi í Hvítarússlandi í fyrra undir stjórn Jósefs Bidens og tókst í Úkraínu 2014 undir Barack Obama

Orðrómur um að vopnin sem Hamas notaði til árása á Ísraelsríki komi frá Úkraínu, geisar nú þegar á netinu

Uppfært

Síðastliðinn júní greindi tímaritið Newsweek frá þungum áhyggjum Ísraelskra hersins vegna þess risavaxna vopnabúrs sem Bandaríkin skildu eftir sig í Afganistan er þau gáfust upp og flúðu þaðan. Liðsforingjar í Ísraelsher voru þá farnir að sjá þau vopn í höndum Palestínumanna á Gazasvæðinu. Og í október í fyrra sagði finnska lögreglan að vestræn vopn frá Úkraínu væru þegar farin að sjást í höndum glæpalýðs í Finnlandi, Svíþjóð og Hollandi. Lítið sem ekkert eftirlit hefur verið haft með því hvað hin gerspillta Kænugarðsstjórn gerir við þau vopn og fjármuni sem til hennar fossa frá NATO-löndum og víðar að

Og nú hljóta nasistarnir í Kanada að fagna og standa viðstöðulaust upp á þjóðþinginu þar í boði þingforseta ("fábjána sem fór greinilega ekki í skóla", skv. Vladímír Putín) og forsætisráðherra landsins

Hvað ætla skotfæralaus og stríðsörend Bandaríkin að gera núna? Bomba Færeyjar? - eða prenta fleiri dali til að senda á pöllum? En slíkt gæti verið varasamt því Rússar gætu í staðinn sent kosningaeftirlitsmenn til að biðja bandaríska kjósendur um persónuskilríki skyldu þeir álpast þar á kjörstað á næsta ári til að láta hafa sig að fíflum, einu sinni enn

ESB hvað? - jú að kjósa aftur og aftur þar til rétt niðurstaða fæst!

Fyrri færsla

Þjóðverji með ónýta mynt á Zetros


mbl.is Segja stríð hafið í Ísrael
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 7. október 2023

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband