Leita í fréttum mbl.is

Sjálfstæð "Palestína" sýnir morðgetu sína á tvo kanta

Gaza-svæðið er í reynd eins konar sjálfstætt ríki með eigin ríkisstjórn. Ísrael hersetur það ekki frá og með 2005 og er ekki með hermenn þar. Og það eru engin búsetusvæði Gyðinga á Gaza. Reyndar hafa Gazamenn séð til þess að engir Gyðingar búi á Gaza, því samkvæmt þeirra höfðum á Gaza-svæðið að vera, og er, "judenfrei" eða júðahreint eins og Adolf Hitler kanslari Þýskalands orðaði og vildi hafa það - alls staðar í heiminum

Þetta eins konar sjálfstæða Gaza-ríki hefur nú sýnt hvað í því býr og hverslags stjórnarfar þar ríkir. Þeir sem endalaust hafa talað fyrir að "tveggja-ríkja-lausn" "leysi málin" fyrir botni Miðjarðarhafs, hafa hér með fengið það sem þeir vildu: heilsteypt og sjálfstætt hryðjuverkaríki er nefnist Gaza, þar sem enginn Gyðingur býr

Tvær milljónir Araba búa hins vegar í Ísraelsríki og eru með ísraelskan ríkisborgararétt og vilja að sjálfsögðu ekki búa í helvíti hryðjuverkaríkis, heldur í Ísraelsríki

Lesendur athugi að það eru engir sérstakir "Palestínuarabar" til. Palestína er grískt nafn sem klínt var á konungsríkið Ísrael í fjarveru þjóðar sem þá hafði verið gerð útlæg úr landi sínu af heimsveldi sem í dag líkist Evrópusambandinu. Það var 700 árum fyrir Krist

Í dag herjar hið sjálfstæða ríki Gaza bara á ríki Gyðinga. Takið eftir að Gaza-ríkið herjar ekki á landamærin í vestri sem snúa að Egyptalandi, því þar eru engir Gyðingar, heldur arabar sem ekkert vilja með Gazamenn hafa

Ísraelar skaffa hins vegar Gazabúum rafmagn og hleypta inn til þeirra vörum og olíu og öllum hinum mikla "stuðningi" til áframhaldandi hryðjuverka sem streymir til Gaza frá Vesturlöndum, sökum þess að Vesturlönd hvíla á siðferðilegum sökkli Gamla testamentisins - eða hvíldu að minnsta kosti á þeim sökkli, þar til þau, eða visst fólk innan þeirra, hófu stuðning við til dæmis hryðjuverk en sem í raun er illkynja blanda af friðþægingarstefnu, dyggðflöggun og illkynja vinstrimennsku

Öll þau ríki sem neitað hafa að hvíla á hinum djúpa og bjargfasta siðferðilega sökkli Gamla testamentisins og sem Vesturlönd sköpuðust upp af, og hvíla á, og sem veist hafa að Gyðingum af því að þeir eru Gyðingar, liggja hins vegar í rúst í ruslatunnum sögunnar. En einmitt þeim ríkjum fylgja Gazamenn nú til heljar. Og á hinni löngu leið til heljar, sem Gazamenn fylgja, liggja Faraóar, Amalekítar, Rómverjar og Nasistar sem gjall á veginum út um allt, því þessir neituðu að hvíla á hinum siðferðilega sökkli Gamla testamentisins og töldu sig frjálsa til að útrýma smáþjóðum á borð við Gyðinga

Sem betur fór réðu Rússar niðurlögum hins yfirþýska imperíal-morðgengis nasista, því hvorki Frakkar, Bretar né Bandaríkjamenn höfðu kjark né getu til þess, því illkynja smit heimsvaldasinnans Hitlers náðu vítt og breitt út til heimsbyggðarinnar og átti það gengi mikla stuðningsmenn í valdastöðum á Vesturlöndum, og eiga enn, eins og sést á aðförinni að Rússlandi sem hófst 1941 og stendur yfir enn. Þannig fögnuðu þingmenn Kanada stormsveitar-nasista Hitlers um daginn með tvöföldu standandi lófaklappi í þinghúsi þeirrar þjóðar í Norður-Ameríku, sem virðist vera að breytast í heimsálfu sem fest hefur sig í sessi á afglapaskarði

Bandarísk herskip undan ströndum Ísraels liggja því ekki þar til verndar Ísraelsríki, heldur til stuðnings klerkaveldi Írans. Með öðrum orðum; til að koma í veg fyrir að Ísrael raski heimskuveldi Hvíta hússins á afglapaskarði

USCENTCOM eða "U.S Central Command" með aðalstöðvar sínar í Katar sér um aðgerðir þessara herskipa og eru þær slóðir lítið annað en Hamas-sjoppa er skaffað hefur Hamas búðarglugga til að selja sig í á þeim peningaflæðis-slóðum

Íranaðdáandinn Robert Malley úr friðþægingarteymi Baracks Obama leiðir nú samningateymi Bidens stjórnarinnar á afglapaskarði við Íran - eða réttara sagt hann leiðir peninga-á-pöllum-til-Klerkaveldis-stefnu Bidens í nafni "samþættingar"- og fjölhelvítisbreytileikanna. Eru Bandaríkin og Norður-Ameríka öll því orðin svo langt leidd á afglapaskarðinu sem þau grófu sér, að þau eru hvorki fær um að reka innanríkis- né hvað þá utanríkispólitík í löndum sínum

En nú vita hirðfífl Vesturlanda í hvað stuðningurinn frá þeim til "Palestínu" hefur farið. Hann fór í að grafa jarðgöng undir Ísrael, kaup á þúsundum eldflauga og vopnum, og til skipulagningar á því hvernig þurrka skuli Ísraelsríki út af yfirborði jarðar

Fyrri færsla

Benjamín Netanyahu hringdi strax í Zelensky. Hvers vegna?


Bloggfærslur 14. október 2023

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband