Leita í fréttum mbl.is

"Sjálfstæðisflokkurinn, blessuð sé minning hans" (og Evrópu) [u]

Þetta er að minnsta kosti rétt hjá Sigmundi Davíð, þegar atburðir síðustu daga eru skoðaðir, plús nær allt núverandi kjörtímabil xD, plús öll árin frá því að núverandi Bjarni Benediktsson varð formaður þess flokks

Og jafnvel enn dapurlegra er að hugsa til þess að fráfarandi Þorgerður varaformaður xD hefur sennilega alltaf verið eins konar fjölbreytileikkona þar, ásamt Benedikt úr sömu ESB-skúffu, og sem bæði og samstíga virðast komin inn í forstofu líberalismans inn í marxisma; sjá "vinstri velferð" hirt upp úr vösum hægrimanna, sem var slagandi orð hennar og hans upp að altari marxismans fyrir síðustu kosningar

Hvenær skyldi Bjarni hoppa af og yfir til þeirra? Hann þyrfti meira að segja varla að hoppa, því hann hefur séð til þess að xD liggi lágt og rísi ekki. Gæti jafnvel bara labbað yfir. Enginn tæki að minnsta kosti eftir neinu þegar hann opnar munninn næst

Hvað er þá eftir af xD? Ekki mikið, eða eins lítið og við sáum á humarveislunni í fyrradag í því sem áður var dómsmálaráðuneytið. Hvílík hneisa, stjórnleysi, lögleysi og aumingjaháttur. Svona er þetta því miður búið að vera hjá Sjálfstæðisflokknum frá því að Bjarni Benediktsson og lið hans tók við

Bless Evrópa og dead-cat-bouncing Kína, er eiginlega það sem hægt er að lesa út úr þessu öllu. Sérstaklega þegar lesnar eru nýjustu viðbæturnar við þjóðaröryggisstefnu Bandaríkjanna; Western Hemisphere Strategic Framework. En þar segir að frá og með nú sé það fyrst og fremst Vesturhvel jarðar sem móti rammann um þjóðaröryggisstefnu þeirra í efnahagslegu tilliti, þar sem allt verður flutt þangað undir einkunnarorðunum "heimahýsing" og "nærhýsing"

Inter-Amerkíu-þróunarbankinn, en ekki AIIB-útþenslubanki Kínverska kommúnistaflokksins þar sem formaður Sjálfstæðisflokksins situr í bankaráði, er það sem notað verður á Vesturhveli jarðar, plús fimm fjárfestingarstólpar fyrir ríkin á því hveli veraldar; þ.e. í nýja heiminum. Og til marks um nýtt mikilvægi Vesturhvels (Ísland er á Vesturhveli jarðar) hefur Bandaríkjamaður nú tekið við IADB-bankastjórninni í fyrsta sinn í sögu bankans. Lesa má í nýtt mikilvægi IADB út frá því. Norður-Ameríka, Mið-Ameríka og Suður-Ameríka er það sem sá fjárfestingarbanki snýst um, ásamt restinni af ríkjum Vesturhvels

Ísland er auðvitað ekki þar, frekar en dómsmálin eru í humarráðuneytinu. Nei nei, formaður Sjálfstæðisflokksins sá um að henda í Íslandi inn í imperíal-útþenslubanka hins kínverska kommúnistaflokks Kínagúlaga. Hugsið ykkur! Og svo henti hann Íslandi inn í Orkupyntingasamband Evrópusambandsins, þar sem "Þýskaland fyrst" stefna yfirtapara meginlandsins tröllríður hinni hrynjandi spilaborg Evrópusambandsins. Ekkert ríki Evrópu mælist nú eins fjandsamlegt Bandaríkjunum og Þýskaland. Junge Freiheit útskýrir ágætlega sumar ástæðurnar fyrir því í grein blaðsins hér: Sie trommeln weiter

Þýskaland er nú með lélegustu orkuinnviði og versta orkubúskap Evrópu plús lélegustu fjarskiptainnviði nokkurs ríkis Evrópusambandsins. Hið fyrra er í vösum Kremlar og hið síðara er í vösum Húkavéa Kínverska kommúnistaflokksins. Hvernig haldið þið að þetta endi. Jú, varla nema á einn veg

Já, blessuð sé minning Sjálfstæðisflokksins í orku-icesave-pökkum hins ósjálfstæða EES-skrifstofuformanns hans

Tek undir orð Sigmundar Davíðs um að afturkalla verði aðild Íslands að Orkupakkabandalagi taparanna í ESB, ásamt ýmsum öðrum hugmyndum Miðflokksins hér: Vilja lækka tekju­skatt í 24%

Uppfært-

Ég er þó efins um framtíð ferðaþjónustu sem atvinnugreinar á Íslandi. Nýtt og langtum minna normal mun myndast þar eftir faraldurinn. Það þarf þó ekki að vera slæmt til lengri tíma litið, því ef eitthvað eitt sérstakt er hægt að segja um ferðaþjónustu í hálaunalöndum eins og okkar, þá er hún ávallt brautin inn í og um leið afleiðing efnahagslegrar hnignunar. Við vorum með ferðaþjónustu vegna hnignunar, og sú hnignun mun festast í sessi verði ferðaþjónusta eitthvað annað og meira en aukabúgrein sem allir geta verið án, gerist þess þörf og þegar þess þarf, því þetta er ekki síðasta skyndilega stopp greinarinnar. En það þarf samt að takast á við skyndilegt stopp ferðaþjónustu núna og snúa því einhvernvegin Íslandi í hag með krosshagsmunanýtingu milli geira. Og þar er Sigmundur Davíð sérstaklega sterkur, eins og við sáum síðast

Tími sérleiðanna fyrir hina útvöldu er liðinn, enda gáfust þær illa. Sigmundur Davíð er greinilega með herðar og hugmyndir breiðar. Já, breiðar hugmyndir...

Fyrri færsla

Er Trump að hitta í mark? 


mbl.is „Sjálfstæðisflokkurinn, blessuð sé minning hans“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 27. september 2020

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband