Leita í fréttum mbl.is

Hvað sögðu óákveðnir?

Myndband Frank Luntz blaðamanns á L.A. Times: Hvernig brást Los Angeles Times-fókus-hópur óákveðinna kjósenda við eftir síðustu kappræður vestanhafs? Sumir segja að hópur óákveðinna sé ekki stór. En það vita "sérfræðingar" hins vegar litið um í raun. Þannig virkar merkimiðapólitík fjölmiðla Demókrata. Hún er þvæla eða svipuð og spádómar sérfræðinga um Wuhan-veiruna hafa verið hina síðustu 10 mánuði eða svo

****

Undanfarna mánuði hef ég daglega fylgst með einkunnarbók Rasmussen um frammistöðu Trumps forseta og borið hana í töflureikni saman við einkunnarbók sama fyrirtækis um Obama, sem einhverra hluta og átta ára vegna virðist ekki hafa glatt bandaríska blökkumenn. Sést það á skrílslátum vinstrimanna víða í Bandaríkjunum í dag. Eru einkunnir Tumps mun betri en einkunnir Obama á sama tíma á fyrra kjörtímabili hans

Og lítið ber þessari einkunnarbók Trumps saman við svo kallaðar skoðanakannanir, sem flestar byggja á þeim reiknilíkönum sérfræðinga sem spáðu Sovétríkjunum langlífis þremur mánuðum fyrir hrun þeirra, ásamt yfirtöku Japana á hagkerfi Bandaríkjanna, þremur árum eftir að japanska hagkerfið var þegar hrunið

Um spálíkön: "Some businesses wont survive the second wave, let alone another year of roller-coaster restrictions. In times like this, predictions wont help. Instead, we have to rely on risk scenarios like in proper conflict zones. The pandemic makes us realise how much we took for granted." – Wolfgang Münchau, Eurointelligence 23. október 2020

Hér heima höfum við einnig tvo ágætis hitamæla: Björn Bjarna og Styrmir Gunnars. Ef þeir segja að Trump tapi, þá sigrar hann. Þeir bergmálssegja nefnilega það krata-sama og New York Times sem er ekki lengur í Bandaríkjunum sagði síðasta kjördag, en þá sagði "blaðið" að það væru eitt prósent líkur á að Trump hlyti kosningu síðar um kvöldið. Davíð ritstjóri er hins vegar með réttan mæli

Allar bláar örvar Demókrata vísa nú lóðrétt niður. Beint niður í helblátt djúpið. Sligast skúta þeirra dag fyrir dag í átt að bjargbrúninni, sem er þriðji nóvember, en ekki tólfti september

Þeir sem erfitt eiga með tískutunguna ensku á myndbandi dagblaðsins Los Angeles Times hér fyrir ofan, ættu bara að snúa sér að myndbandinu hér fyrir neðan, því það er nefnilega á íslensku. Útkoman er sú sama: tólfti september, en ekki sá ellefti

Erla og 12. september. Því meira sem stjórnmál Íslands geggjast, því betri verður Erla Þorsteins

****

- Gunnar þjóðaríhaldsmaður er ekki í "Samfélaginu". Hann er í  Þjóðfélaginu

Fyrri færsla

Æi láttu ekki svona


Bloggfærslur 24. október 2020

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband