Leita í fréttum mbl.is

Tvenn lagakerfi glóbalista keppa um völdin

SAMEINUÐU- OG SJARÍALÖGIN

Þessi árin fer fram barátta tveggja kerfa glóbalista um völdin

Fyrra kerfið samanstendur af allskyns vinstribúllum vestrænna úníversalista, með helstu bækistöðvar í kálgörðum Brussels, byggingum Sameinuðu þjóðanna og í Valhöll. Þar á búllum kyngja menn til dæmis erlendum lögum um raforkumál af ótta við refsingar að utan (heyrðu raddir að ofan). Og þar á bæ hyggjast menn jafnvel aðskilja ríkið frá þjóðinni, bara sí svona, eins og þeim datt á sínum tíma í hug að skilja frámálaeftirlitið að frá Seðlabankanum. Sú hugmynd var firrt tískuhugmynd firrtra tíma. Ekkert hafa menn þó lært í þeirri höll. Þess vegna segi ég að Valhöll sé orðin raðbilað eða raðfirrt fyrirbæri og komin í varanlega kryppu (sem er annað og betra nafn á kreppu)

Enginn stjórnmálaflokkur er með eins stóra kryppu og Sjálfstæðisflokkurinn því hann er orðinn samheitalyfjaflokkur fyrir KRATISMA. Og allir þeir flokkar eru ein stór kryppa á næstum öllum vesturlöndum vegna glóbalisma þeirra. Þeir eru umboðsmenn engra og fyrirlíta þá sem þeir sækjast eftir að láta kjósa sig. Kratar á öllum Vesturlöndum hata verkalýðinn sem þess vegna er hættur að kjósa þá

Hið síðara kerfi samanstendur hins vegar af íslamistum sem vilja að sjaríalög gildi alls staðar fyrir allt mannkyn. Hvar sem þeir setjast að í nægilega miklum mæli, innleiða þeir sjaríalög og reyna að afnema ríkið sem þeir komu til (e. deterritorialize)

Þessi tvö kerfi keppa um yfirráð yfir vígvellinum sem að mestu samanstendur af vesturlöndum í samviskubitskryppu með Karl Marxhor úníversalismans lekandi niður um sig næstum öll. Og ef fer sem horfir, þá munu íslamistar taka þessar vinstribúllu-kryppur í nefið og snýta þeim síðan úr sér, sem því sem þær eru

Þeir sem fyrirlíta bæði þessi kerfi –eins og til dæmis ég– vilja að leið Íhaldsmanna verði farin og að það sé Alþingi sem setji lögin sem gilda eiga fyrir alla á Íslandi og í ALLRI lögsögu þjóðarinnar. Þetta er leið Íhaldsmanna og þar með leið Jóns Sigurðssonar. Annars er úti um lýðræðið, og þrælaríki nýs Egyptalands bíður; imperíal-glóbal-heimsveldið, sem Bretland er að að brjótast úr núna, áður en það er of seint

Íslenska Þjóðkirkjan er ekki glóbalisti. Hún er þjóðkirkja. Hendum frekar stjórnmálaflokkum af fjárlögum þjóðarinnar en henni. Flestir þeirra kunna hvort sem er ekki þjóðlega samvinnu lengur, heldur bara alþjóðlega, þ.e. eru  of mikið glóbalistar. Vér, hins vegar, erum Mótmælendur og vér mótmælum því enn imperíal-glóbal-heimsveldinu sem þessir flokkar allir (þó ekki Miðflokkurinn) starfa of mikið fyrir. Þeir hlusta á raddir sem þeir halda að komi að ofan. Jafnvel eitt hvísl frá Brussel er nóg til að berja þá í kútinn, því þeir halda að það komi að ofan. Aðskilnaður íslensks ríkis og Brussels er því það sem menn eiga að berjast fyrir

Fyrri færsla

"Millistétt" Guðlaugs Þórs í Kína reyndist gangstétt


Bloggfærslur 20. nóvember 2019

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband