Leita í fréttum mbl.is

Skortur á fjárfestingum hamlar samkeppnishæfni Frakklands

Elie Cohen vísindalegur forstöðumaður miðstöðvar vísindalegra rannsókna í Frakklandi (CNRS ríkisrekið) segir að samkeppnishæfni Frakklands sé svona slæm vegna skorts á fjárfestingum, en ekki vegna hárra launa. 

Hér áður fyrr birtist Frakkland umheiminum sem formaður í klúbbi PIIGS-landa sem ennþá er nefndur Club Med. Átt er við Miðjarðarhafslönd. Af þýskum var og er þessi klúbbur ennþá álitinn krónískur eigandi efnahagsstefnu sem samræmist ekki þýskri peninga- og efnahagspólitík. En þýsk peningastefna einkenndist af algeru sjálfstæði þýska seðlabankans sem ávalt myndaði Þórshamarslegan þrumuhiminn yfir lífi þings og ríkisstjórnar. 

Stefna þýska seðlabankans var alltaf gerilsneydd af diplómatíu, fullkomlega gagnsæ, heiðarleg og örugg. Stjórnmálamenn vissu alltaf að þeir áttu minna en ekkert í seðlabankanum. Þeir vissu ávalt að Þórshamrar seðlabankans yrði reiddur til höggs ef þeir stigu út af í fjárlagagerð og efnahagsstefnu. Þýski seðlabankinn átti almenningsálitið. Stjórnmálamenn áttu yfirleitt ekkert í hvoru tveggja ef ágreiningur kom upp. 

Frá því evran kom, að frumkvæði Frakklands, hefur landið dulbúist sem ekki-PIIGS land með því að breiða þýska peningapólitík yfir öskuna á palli Club-Med bifreiðarinnar. Ekkert hefur samt breyst í Frakklandi sem er heimsveldi í vísindalegum rekstri málalengingastofnana ríkisins. Landið er ennþá sér-kommúnistískt á franska mátann, og ríkið er því miður varanlega komið í stað kirkjunnar sem sjálfkjörinn móralskur drottnari í gegnum skattheimtu sem er engu lík. Fjárfestar vita þetta. Þeir vilja ekki fjárfesta í kommúnisma frekar en fyrri daginn. Sama hvað myntin heitir.  

En nú er leikurinn búinn. Dulargerfi Frakklands er fallið því evran er komin þangað sem þýskir óttuðust alltaf; á öskuhaugana. Það er þess vegna sem upplærður heiðarleiki í góðri seðlabankamennsku fékk Axel Weber til að gera hið eina rétta; labba út í gegnum gler- og stálhurðir álitsgjafa Evrópu, því alveg sama hvað, þá er ekki lengur hægt að bjarga málunum. Hann vill ekkert hafa með þetta myntbandalag að gera. Fagmennskunni er svo ofboðið.  

Eftir sitja ökumenn evrópska seðlabankans fastir í vösum stjórnmálamanna sem vita minna en ekki neitt. Það barnalega við stöðuna er það að svo fáir skuli leggja réttan skilning í skyndilega brottför Axels Weber úr þýska seðlabankanum, og um leið sem kandídat til embættis seðlabankastjóra evrunnar. Þýskur almenningur skilur hins vegar Axel Weber. Hann veit að evran er orðin pólitísk peningaleg öskubifreið. Hún hefur reyndar verið það frá upphafi. Nú verður ekki aftur snúið. Mynt Þýskalands er ónýt. Koss dauðans er sestur að í Frankfurt.
 
Fyrri færsla
 

Bloggfærslur 14. febrúar 2011

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband