Mánudagur, 3. júní 2024
Rússland nú fjórða stærsta hagkerfi veraldar. Lánshæfnismat Frakklands lækkað
****
RÚSSLAND
Alþjóðabankinn segir að frá og með 2022 sé rússneska hagkerfið það fjórða stærsta í heiminum. Það er orðið stærra en hagkerfi Japans. Í fyrra varð það í bókum bankans stærra en hagkerfi Þýskalands. Aðeins hagkerfi þriggja landa mælast nú stærri en rússneska hagkerfið segir bankinn. Lítur út fyrir að þetta hafi gerst á undanförnum fjórum til fimm árum
Fimm miljarðar útgáfur af skoðanafréttum svo kallaðra vestrænna fjölmiðla höfðu þó á undanförnum tveimur árum frætt okkur um að aðalhandlangari NATO gegn Rússlandi, Úkraína, væri að vinna stríð við Rússland, meðal annars með aðstoð refsiaðgerða og vestrænna undravopna sem hinar vestrænu fréttaveitur fjálglega höfðu kynnt í svo kölluðum "fréttum" sínum í samfellt tvö ár. Minna en ekkert hefur þó verið að marka fréttir þeirra í meira en tvö ár. Þær hafa einungis verið stafrænt suð á borð við suð félagsmiðla
FRAKKLAND
Á föstudag eftir lokun markaða lækkaði Standard og Poors lánshæfnismat Frakklands vegna krónísks fjárlagahalla, þ.e. umframeyðslu ríkissjóðs Frakklands. Eru þá aðeins tvö A og einn mínus eftir af einkunn Frakklands hjá matsfyrirtækinu (AA-). Síðast var lánshæfnismat Frakklands lækkað evrukreppuárið 2013 | krækja
Segja og skrifa nú sumir greinendur að ný fjármálakreppa evrulanda sé á næsta leyti því hvergi gengur vel á myntsvæði Evrópusambandsins, vegna einmitt myntarinnar evru. Og að þessu sinni verður það sjálf samfélagsgerð evrulanda sem mun falla og leysast upp, skrifaði til dæmis Eurointelligence rétt fyrir páska
EISTLAND, LETTLAND OG LITHÁEN
En Standard og Poors lét sér ekki bara nægja að lækka lánshæfnismat Frakklands, því einnig Eistland, Lettland og Litháen fengu lánshæfniseinkunnir sínar lækkaðar. Hafa þessi þrjú evru-lönd þó síðastliðin 20 ár verið bæði í NATO og ESB
Fyrri færsla
Ég óska Bjarna Ben til hamingju og velfarnaðar
Stjórnmál og samfélag | Breytt 5.6.2024 kl. 22:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Fimmtudagur, 11. apríl 2024
Ég óska Bjarna Ben til hamingju og velfarnaðar
Það er mikið gott að fá loksins Bjarna á stól forsætisráðherra
Sjálfstæðisflokkurinn er stærsti flokkur landsins og því undir flestum kringumstæðum eðlilegt að hann leiði þá ríkisstjórn sem hann er í
Ég vona að það sem eftir er kjörtímabilsins komi vel út fyrir þjóðríki okkar Íslendinga og auki þar með á þá festu í stjórnmálum sem landið okkar þarf svo á að halda
Það er allt of snemmt að spá í næstu kosningar og næstu ríkisstjórn. Og vert er að benda fast og kröftuglega á það að landinu er og verður aldrei stjórnað samkvæmt skoðanakönnunum
Ég óska ríkisstjórninni undir handleiðslu Bjarna Benediktssonar velfarnaðar
Fyrri færsla
Víkingar unnu ekki. Þeir "þáðu ekki störf"
Ósáttur við undirskriftalistann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 5. apríl 2024
Víkingar unnu ekki. Þeir "þáðu ekki störf"
Mynd: Bandarískur M1 Abrams skriðdreki ristaður í sléttugrasarúst af Rússum í Úkraínu. Jafnmikið "tækniundur" og hin bandaríska Harpoon skotflaug danska sjóhersins sem "óvart" rústaði nokkrum dönskum sumarhúsum árið 1982 og sem enn á ný veldur sama draugagangi á Stórabelti og þá. Tvö dæmi um steinaldartækni vesturlanda
****
Þegar síldin kom í magni sem um munaði, þá gekk strax illa að manna síðutogarana. Síldin gaf einfaldlega meira af sér en sjómennska á síðutogurum, þó svo að vinnan væri síst skárri eða léttari á síldarbátunum. Og engum datt í hug að vinna við síldasöltun ef ekki fékkst vel borgað fyrir hana, miðað við annað sem ekki var í boði
Frá því rétt um og yfir 1970 gekk illa að fá verkamenn og handlangara í vinnu fyrir múrarastéttina í byggingariðnaði. Þá var verkamannastéttin að hverfa og daglaunamenn heyrðu þá þegar sögunni til. Hafnaverkamenn sömuleiðis
Þeir sem enn reka dekkjaverkstæði verða að breyta rekstrinum hjá sér yfir á breiðari grundvöll þannig að sá mannskapur sem er í vinnu á verkstæðunum snúi sér eingöngu að dekkjaskiptum á meðan ríkisstjórnin er svo innheimsk, illa gerð- og að sér að heimta að allir skipti um dekk á sama tíma og að menn megi ekki aka um á nöglum eins og þeim sýnist, þ.e. allt árið eða svo lengi sem naglarnir halda og munstrið er nógu djúpt
Í gamla daga, eða fram til ca. 1970, skiptu árstíðabundin dekkjaskipti minna máli því þá voru allir með sandpoka og snjókeðjur í skottinu og fóru helst ekki neitt
Hér heima þyrfti að margfalda sektir fyrir að aka á sumar- og heilsársdekkjum í snjó og hálku, en slíkt stendur einmitt fyrir dyrum í Svíþjóð eftir algjört helvíti umferðarhörmunga vetrarins þar í landi. Það er nefnilega ekki að hlýna á norðurhveli jarðar
Þeir sem þjást af inngrónum 101-naglaþyrnum í heilabúum sínum verða að læra að lifa með náttúrunni í stað þess að lifa náttúrulausir og á móti henni
Naglar og meiri naglar er nefnilega málið. Nokian Hakkapeliitta LT3 nagladekkin framleidd í Rússlandi eru bestu vetrardekkin, einkum í hliðarhálku og því einnig í flughálku eins og í vetur. Án þeirra kæmist ég ekki heim til mín og lítið þýðir að bíða eftir sandlausri Vegagerðinni í vesturumdæmi
Ég ætla bara rétt að vona að Íslendingar verði aldrei þannig að þeir sækist eftir að vinna vinnunnar vegna. Víkingar unnu ekki. Þeir "þáðu" ekki störfin
Við verðum aldrei próletaríat
Fyrri færsla
Íslendingar vilja ekki þiggja störfin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 6.4.2024 kl. 06:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 28. febrúar 2024
Engir rafbílar segir Apple
LÍKAR ÞETTA
Jarðsamband: Arftaki Steve Jobs hjá Apple, Tim Cook forstjóri Apple - í samræðum við Ginni Rometty nýlega fráfarandi forstjóra IBM
****
TÍMINN STILLTUR RÉTT
"Oft er hægt að vera stoltur af því sem maður aldrei gerði", sagði Steve Jobs
Þess vegna tilkynnti Apple í gærkvöldi að fyrirtækið muni ekki fara út í framleiðslu á rafbílum. En Apple Inc. hefur í meira en 10 ár lagt stund á rannsóknir á fyrirbærinu. Í gær tilkynnti Apple svo að niðurstaðan af þeim rannsóknum sé sú að framtíðin spili ekki með þeim sem framleiða og selja rafbíla
Apple cancels secretive electric car project in shift to focus on AI
FT UK homepage, 27 Feb 2024 21:16
Company ends decade-long research effort as electric vehicle industry loses momentum | krækja
Satt að segja held ég að Apple hafi aldrei á neinu tímabili álitið að rafbílar væru annað en veruleikafirrt leikrit sem fyrirtækið neyddist til að þykjast taka þátt í vegna þrýstings frá bæði stjórn og svo kölluðum "aðilum markaðarins" og æpandi sértrúarsöfnuði stjórnmálamanna, fjölmiðla, sérfræðinga og tæknitæknum á borð við keppinauta
Og nú þegar allur rafbílabransinn er kominn í hinar verstu ógöngur með sína fyrirfram vonlausu tækni, þá hefur Apple álitið að nú væri rétti tíminn til að melda hreint út með það að þeir ætli sér áfram að vera stoltir af því sem þeir létu aldrei tilleiðast að taka þátt í, þrátt fyrir gífurlegan utan að komandi þrýsting
Ef það er eitthvert fyrirtæki sem þekkir takmarkanir rafhlöðutækninnar, þá er það Apple
Það er aðdáunarvert að hafa svona getu til að humma þvælur fram af sér og komast vel frá því. Bréfin í Apple eru að minnsta kosti ekki niður-á-við eftir tilkynninguna. Þau eru upp-á-við
Það skemmtilega er síðan það að Apple sagði við sama tækifæri að þeir myndu flytja hluta af þeim mannskap sem fengist hefur við "rafbílana" yfir í "gervigreindarrannsóknir". Að segja slíkt er sterkur leikur því þannig verst fyrirtækið rétttrúnaðarkirkju þeirrar "tækni" og getur hummað þá þvælu fram af sér eins og þeir hummuðu rafbílaþvæluna burt. Þ.e. á meðan verið er að sturta henni niður. Og það mun taka tíma, því fúlgurnar í gervigreindarbólunni eru orðnar stærri en þær voru í dot.com bólunni þegar fjárfestar gengu á vatni
["þvaðrið um gervigreind undanfarin ár var að sjálfsögðu ekkert annað en múgsefjun á borð við "deilihagkerfið", "fjártækni-fyrirtæki", "græna hagkerfið", "rafmyntir", "sjálfkeyrandi bíla", "örbrugghús", "ping-pong-borð" og "rafmagnsbíla" ásamt þeirri staðreynd að allar þessar þvælu-bólur eiga heimkynni sín innan í risabólu-þvættingnum um "hlýnun jarðar af mannavöldum"] | hér
Innilega til hamingju með góða og rétta ákvörðun Apple. Tímasetningin er stjórnviskulegt afrek
Fyrri færsla
Grafa upp gamlar sprengjur og senda áleiðis til Úkraínu
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 24. febrúar 2024
Grafa upp gamlar sprengjur og senda áleiðis til Úkraínu
Mynd: Wall Street Journal 26. apríl á síðasta ári: Púðurframleiðsla í hvellhettur alls herafla Bandaríkjanna 2023
****
SKOTFÆRASTAÐA NATO-RÍKJANNA EKKI LENGUR ÞURRAUSIN
Sérfræðingar Hugveitu atvinnulausra viðskiptafræðinga í vestrænum varnarmálum (Havvv) telja að NATO-ríkin --sem í 30 ár hafa neitað að fjármagna varnarmátt bandalagsins undir viðstöðulausri útþenslu þess í austur-- hafi heldur betur dottið í lukkupottinn með því að finna í jörðu niðri í Bretlandi gamlar ósprungnar sprengjur úr Síðari heimsstyrjöldinni. Rússar sem unnu þá heimsstyrjöld í Evrópu, segja að þessar sprengjur séu að öllum líkindum þýskar. En þeir segja einnig að það vanti kústskaftið á þær, þannig að óvíst sé hvort í þeim heyrist ef þær springa. Framan á þessum sprengjum er þó sjálfbært höfuð af notuðum strákústum og telja sérfræðingar Havvv að það muni öllu máli skipta, því þar með verða sprengjurnar vistvænar og sjálfbærar á skaftinu. Unnið er nú að því að senda þessar sprengjur til Úkraínu með óseljanlegum nýjum og notuðum Tesla-rafbílum, því öruggt þykir að þeir komist aldrei á áfangastað - og verði örugglega ekki stolið
Mynd: Wall Street Journal 26. apríl á síðasta ári: Púðurframleiðsluskúr alls herafla Bandaríkjanna 2023 að utan
****
Síðasta púðurframleiðsla stóru NATO-landanna sprakk í loft upp í Bandaríkjunum fyrir nokkrum árum og er verið að endurbyggja hana með innfluttu vinnuafli og með aðstoð raforku framleiddri úr rússnesku úrani, sem knýr 60 prósentur af framleiðslugetu bandarískra kjarnorkuvera. En Bandaríkin hættu sjálf framleiðslu á úrani á síðasta áratug síðustu aldar. Úranið í orkuver Bandaríkjanna kemur því að mestu frá Rússlandi og fyrirtækjum Rosatom í Kasakstan. Bandaríkin hafa fram að þessu látið sér mjög annt um að ríki Evrópu noti ekki innflutta orku frá Rússlandi, því þau sjálf þurfa á henni að halda. Svipað gildir um örgjörva þar vestra og er því gripið til þeirra hvar sem til sjálfvirka þvottavéla næst
Fyrri færsla
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 22. febrúar 2024
Geðsýki ræður NATÓ-för
STUNDARFJÓRÐUNGI Í GRÁTUR
****
HVORT SKYLDI ÞAÐ NÚ VERA?
Í 15 ár vöruðu Rússar NATO-ríkin við útþenslu bandalagsins í austur. Og þegar Berlínarmúrinn féll var Rússum lofað að NATO myndi ekki þenja sig eina tommu lengra út í austur. Ekki eina tommu! Prinsippið um að ríki geti ekki aukið þjóðaröryggi sitt á kostnað þjóðaröryggis annars ríkis á sérstaklega við um nágrannaríki. Gæti menn ekki að sér þá getur komið til stríðs
Í dag er sagt að Rússar séu að munda sig við að ráðast inn í hin og þessi ríki Evrópu. Í gær var hins vegar sagt að þeir gætu ekkert og væru ekkert, nema þá helst núll og nix. Og að engin ástæða væri til að hlusta á neitt sem frá þeim kæmi, enda var það ekki gert, heldur bara í þá potað og potað í heil 15 ár
Í eftirrétt hjá vitfirringaveldi NATO í Brussel er svo boðaður fastur úrgangur af hlaðborðum hugsýkisveitna hinna nú innvortis rotnandi NATO-ríkja, sem viðstöðulaust boða að rússneska hagkerfið sé á stærð við baunina inni í hausnum á tvíburatrúðnum Johnson-Biden, eða jafnvel melónu á Ítalíu. Allar, næstum undantekningarlaust, eru þessar hugveitur vesturlanda mannaðar fábjánum af verstu sort; háskólamenntuðum menntasnobbs-sérfræðingum í apafræðum og sem nú þegar hafa rústað vesturlöndum, eins og bæði finnst og sést
Maður gapir af undrun yfir heimsku þeirra sem láta sig hafa það að boða að gangi ríki-X ekki í NATO að þá ráðist Rússar á það - og ef það gengur í NATO þá ráðist Rússar líka á þá af því að það gekk ekki í NATO fyrr en klukkan kallaði núll fimm eftir miðnætti. Sem sagt: gangir þú ekki í NATO þá ráðast Rússar á þig, því það er svo mikil vörn í NATO. En ef þú gengur ekki í NATO þá er einnig sagt að þá muni Rússar ráðast á NATO af því að þú ert ekki í því. Allir vita að þetta er grjónaþvæla af verstu stríðsmangara-sort
En það sem er hins vegar mun verra, er að þetta afhjúpar einnig lygaþvættinginn sem viðhafður var að miklu leyti í Kalda stríðinu á vesturlöndum. Nú trúir fólk næstum engu af því sem þá var sagt hér heima og víðar um það. Nú sér óbilað fólk nefnilega hvernig NATO-skápurinn sá er innréttaður
Dagskrá Adolfs Hitlers gagnvart Rússlandi frá því í júní 1941 ræður því enn för innan NATO. Það var nefnilega eftir allt saman ekki kommúnisminn sem NATO snérist um - og í nýlegu viðtali við ítalska dagblaðið Corriere della Sera staðfestir Angela Merkel einmitt það, því hún segir þar "að Kalda stríðinu hafi aldrei lokið vegna þess að þar tókst ekki að gera útaf við Rússland". Þá vitið þið það
Og aldrei á ævinni hefur maður séð annað eins samansafn af framleiðnitortímandi fáráðlingum sem eru svo miklir heimsmála-sérfræðingar að þeir eru með öllu óhæfir til að vera hluti af raunhagkerfum vesturlanda, sökum yfirnáttúrlegrar sérfræðiþekkingar sem aðeins getur átt við um atburði í teiknimyndasögum á öðrum plánetum. Fari þetta framleiðnitortímandi fíflaveldi sérfræðinga til fjandans, því það á alls ekki heima á vesturlöndum. Svona fífl geta varla lengur átt heima hér, því tilvist þeirra er að kála vesturlöndum og hagkerfum okkar öllum
Og auðvitað er hrun í aflátsbréfalegri guðfræðisölu rafbíla út um öll þessi nú vesælu vesturlönd co2-klerkaveldisins. Geymsluþol algjörs trúarbragðaþvættings er ekki lengra en þetta. Það sama á við um rafbíla og NATÓ-PLATÓ. Þvættingurinn um þessi fyrirbæri lifir ekki veruleikann af. Lifir ekki sérfræði-gangster-element vestrænna stjórnmála af. Þarna þarf greinilega ekki að gróðursetja fullt af sænskum trjám --á þeim stendur ekkert-- því við erum nú þegar með heilan frumskóg af þeim, hér og nú!
Kannski lagast þetta þegar Mexíkó gengur í kínverskt varnarbandalag og herstöðvar þess opna við suðurlandamæri Bandaríkjanna. Það styttist óðum í þá stöðu sýnist mér. Áætlunin óhugsandi gæti jafnvel sannað það nú þegar. Skjalaskáparnir fyrir hinar og þessar "áætlanirnar" voru ekki bara í Moskvu. Rússar fylgdust því að sjálfsögðu vel með og gera enn. Þeir vita að geðsýkin og vitfirringin kom úr vestri, öldum saman
Fyrri færsla
"Að sögn" háttsettra í loftbelg
Líklegt að ráðist yrði á Keflavíkurstöð í stríði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 15. febrúar 2024
"Að sögn" háttsettra í loftbelg
Mynd: Aumkunarverður Joe Biden forseti Bandaríkjanna skríður upp tröppurnar í forsetaflugvél Bandaríkjanna í Póllandi í fyrra. Athugið að skriðhallinn á Biden þarna í stiganum er nákvæmlega sá sami og sést á myndinni af sovésku S-75 loftvörnunum sem skutu B-52 sprengjuþotur Bandaríkjanna niður yfir Víetnam. En þar háðu Bandaríkin stríð við svo gott sem varnalaust fólk og sem þau töpuðu, eins og öllum þeim stríðum sem Bandaríkin hafa stofnað til í kjölfarið
****
"Að sögn" (í fréttalygahætti) háttsettra Pentagónara hyggjast Rússar með þessu sprengja Bandaríkin úr hlátri innan skamms. Og það getur verið hættulegt fyrir úrkynjunarmiðstöðina Hollywood, sem þá yrði af tekjum til að múra sig inni og stunda varasprengingar
Óttast er nú, "að sögn" háttsettra, að loftbelgurinn Pentagon breytist í alvöru loftbelg sem tengist internetinu á jörðu niðri í Bandaríkjunum, eins og sá kínverski gerði og sem skotinn var niður yfir Bandaríkjunum í fyrra. Því miður er enn ekki vitað hvort að kínverski loftbelgurinn sá hafi greitt fyrir beintenginguna við gagnsleysismiðstöðvar Pentagons. En þar er aðalbrandari Bandaríkjanna varðveittur með aðstoð 128-skyndibítandi heilabilana
Klepptæka Pentagonliðið þarf að finna upp eitthvað fréttnæmt á hverjum degi, því annars standa gagnsleysismiðstöðvar þess naktar - og með öllu óverjanlegar
Fyrri færsla
Skuldir Bandaríkjanna smámunir miðað við allt hitt
Rússar taldir vilja kjarnavopn á sporbaug | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Miðvikudagur, 7. febrúar 2024
Skuldir Bandaríkjanna smámunir miðað við allt hitt
Upptaka: Frækileg för Rússa, en vestrænar bifreiðar á jörðu niðri glíma í dag við sama skynjarahelvíti og Rússar glímdu við þarna úti í geimnum árið 1985
****
SKULDIR, VERÐBÓLGA OG STÖÐNUN HNIGNUN
Skuldastaða hins opinbera í Bandaríkjunum er smámunir miðað við flest önnur verst-rænd lönd vesturlanda vegna þess hversu lágir skattar í Bandaríkjunum eru sem hlutfall af landsframleiðslu. Greiðslugeta Bandaríkjanna er því óendanlega stór miðað við til dæmis næstum öll ríki ESB-Evrópu
Skattar sem hlutfall af landsframleiðslu Bandaríkjanna eru í kringum 27 prósentur. En í löndum Evrópusambandsins þar sem kúlakar (sjálfseignarbændur) valda pólitískum usla í dag með því að standa í vegi fyrir nýja rauðkommagræna evrópumenninu eru skattar komnir upp í og yfir 40 prósentur af landsframleiðslu. Greiðslugetan í erfiðu árferði er því ekki lengur til staðar í ESB-löndunum, nema þá með því að dauðrota þá sem enn hafa fyrir því að standa fyrir landsframleiðslunni - og þá um leið einnig þá sem neyta hennar og nota. Þannig er það ekki í Bandaríkjunum, enn sem komið er
Ef það er eitthvað sem Bandaríkin þurfa ekki að hafa áhyggjur af núna, þá er það skuldastaðan. Margt annað er hins vegar orðið þannig að Bandaríkjamenn ættu frekar að hafa þungar áhyggjur af því. Til dæmis hafa Bandaríkin fyrir langa löngu tapað vopnakapphlaupinu við Rússland og eru á leið með að tapa því gagnvart fleiri ríkjum. Þau hafa einnig tapað tækni-, menningar- og menntakapphlaupi. Bandaríkin eru að því leytinu í innvortis hrunferli
Álykta því ég; að seðla-Powell sé hér frekar að undirbúa komandi 20-ára verðbólgutímabil þar sem skuldir verða brenndar niður, því hann veit ofurvel að ekkert þýðir að eiga við stjórnmálamennina. Þannig losuðu því sem næst þjóðargjaldþrota Bretar sig við skuldirnar vegna Síðari heimsstyrjaldarinnar. Með verðbólgubruna. Jerome Powell stendur því við vaskinn núna og þvær hendur, fyrirfram; "seðlabankinn varaði ykkur við, en þið stjórnmálamenn sinntuð málinu ekki"
Verðbólgan er ekkert á förum á hratt innvortis rotnandi Vesturlöndum, þó svo að pásur myndist inn á milli. Bíðið þið bara...
BEINTENGT ?
Victor Davis Hanson - um fall Rómarveldis - í vestri
Fyrri færsla
Forsetinn og meiri-hluta-þvættingurinn
Skuldastaða Bandaríkjanna ósjálfbær | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Þriðjudagur, 9. janúar 2024
Forsetinn og meiri-hluta-þvættingurinn
Grettir Björnsson leikur hina mögnuðu og ódauðlegu Austfjarðarþoku eftir Inga T. Lárusson
****
UM FREKAR STUNDVÍSAN ÞVÆTTING Í AÐDRAGANDA FORSETAKOSNINGA
Ef kjósa á um hvar höfuðborg lands á að vera, þá er nóg að úr því sé skorið með því að sá bær eða sú borg sem fær flest atkvæði hljóti kosningu sem höfuðborg. Óþarfi er krefjast þess að sú borg sem fái meiri hluta atkvæða kjósenda sé valin, því sú staða næst yfirleitt aldrei, nema þá með því að beita gervilýðræði sem felst í því að fækka valkostum þannig að enginn kjósandi fengi þá niðurstöðu sem hann óskar sér, eða jafnvel niðurstöðu sem fengi minni raunverulegan stuðning en fyrsti bær á listanum fengi þegar menn láta sér nægja að sá bær sem fái flest atkvæði verði fyrir valinu
Til dæmis er hálf einræðisherralegur forseti Frakklands, samkvæmt endalaust útópískum stjórnarskrám í óteljandi útgáfum, yfirleitt kosinn í tveimur umferðum þar sem niðurstaðan í síðari umferðinni er allt önnur en niðurstaðan úr þeirri fyrri. Þarna eru kjósendur yfirleitt ekki að fá það sem þeir vilja heldur er verið að etja þeim gegn hvor öðrum til að koma í veg fyrir að niðurstaðan úr fyrstu umferðinni ráði úrslitum. Þarna ganga þá kosningarnar út á að koma í veg fyrir X eða Y, í stað þess að stuðla að því að þjóðarviljinn eins og hann best getur orðið nái fram að ganga. Þetta er hræðslukerfi. Ekki er verið að láta þjóðarviljann eins og hann í raun er koma til að minnsta kosti framkvæmda eins og best getur orðið. Þarna mun alltaf ríkja ófriður og fátt ganga upp nema þá helst það að koma í veg fyrir eitthvað, í stað þess að stuðla að einhverju. Þetta kerfi jafngildir því að brenna niður þá bæi eða borgir sem hlutu kjör sem höfuðborg þar til aðeins einn bær eða borg stendur eftir á listanum og sem þá er sjálfkjörin. Slíkt er ekki lýðræði heldur hræðsluræði
Aþena hin forna var slæmt dæmi um meirihluta-hræðsluræði fyrir hádegi, og annað eftir hádegi
Forseti Íslands er höfðingi þjóðarinnar eins og hún best getur komið sér saman um. Hann er höfuðborgin í mannsmynd og hann gæti haft aðsetur hvar sem er í landinu, ákveði Alþingi það
Reykjavík ætti til dæmis, að mínu mati, ekki að vera höfuðborg Íslands lengur, því hún er að breyta sér í gettó og sveitarstjórnarfarslegt misfóstur á borð við Heiðnikirkjuveldi háskólans, þar sem turn-truntur predika ýtrasta þvætting úr turnspírum. Reykjavík á titilinn sem höfuðborg landsins ekki skilið lengur. Reykjavík er búin að vera. Hún er mannfjölda hræðsluræði aðeins. Forseti Íslands býr því ekki þar, skiljanlega, því þar myndi hann farast
Forsetinn er fyrstur meðal jafningja, oftast nær. Og þannig á það að vera. Innfluttur konunglegur plebbi, annar af tveimur, frá Danmörku, er það ekki
Allir forsetar Íslands hafa verið miklu betri en lögsambærilegir forsetar erlendis
Gleðilegt nýtt ár
Fyrri færsla
Gervigreindar-fellibyl í vatnsglösum lokið
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 04:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 9. nóvember 2023
Gervigreindar-fellibyl í vatnsglösum lokið
Snilld: Sprett úr spori með Gretti Björnssyni - eftir Grettir Björnsson
****
BYL SLOTAR
Eftir að 12-mánaða fellibylur af bjánum í vatnsglösum lagði sig í síðustu viku, þá stendur það eitt eftir að gervigreind snýst um betri kóða en ekki greind, því tölvur geta aldrei orðið greindar né öðlast neitt í líkingu við gáfnafar, né heldur framleitt neitt slíkt. Tölvur eru og verða dauðir hlutir og munu því aldrei aldrei geta það sem lifandi fruma getur: fjöldaframleitt samtíma- og eftirmenn sína sjálf
Gervigreinda spjallmennið sem í 12-mánuði hefur leikið svo marga grátt, hefur nú sem undarverk lagt sig til hinstu hvílu fyrir tilstilli jafnvel aðeins þriggja blautra handklæða á snúrustaur. Spurningunni um hve lengi tólf handklæði á snúrustaur úti í garði væru að þorna, fyrst að þrjú handklæði á sama staur væru þrjár klukkustundir að þorna, var af spjallmenninu svarað af slíkri "greind" að ekki er hægt að hafa það eftir. Slíkt er einfaldlega ekki á borð berandi fyrir lifandi verur
Og viti menn. Eftir 60-mánaða storm í vatnsglösum greiningardeilda stórbanka á borð við Morgan Stanley, er niðursuðan á gervigreind orðin að eftirfarandi horslettu á þerripappír frá þeim: Jú gervigreind eða vélgreind er orðin að betri kóða og náttúrlega engu öðru. Ekkert merkilegt er á ferðinni, fyrir utan blautu handklæðin, og lítið merkilegt mun koma annað en það sem til dæmis nýr iPhone er nú þegar með og verður sífellt meira með; þ.e. betri kóða til handa betri örgjörvum sem geta meira og sem engar ofurtölvur þarf lengur til að keyra. Það er bara nóg að hafa til dæmis A17 Pro SoC örgjörva-kerfi Apple á örflögu, því hún getur framkvæmt 35 billjón aðgerðir á sekúndu og er sú flaga nú þegar um borð í iPhone 15 Pro- og Max útgáfunum, og sem enga gervigreind þarf til að kaupa og nota. Sérhæfðar rannsóknarstofur sem fást við til dæmis merkja-greiningar sem hjálpað geta að sumu leyti til við rannsóknir á til dæmis þróun sjúkdóma þurfa náttúrlega öflugri græjur, en við öðru var hvort sem er ekki að búast á því þrönga sviði, sem alls ósýnilegt með öllu er almenningi veraldar - og þannig hefur þróunin í þeim geirum alltaf verið
Samt treystir Morgan Stanely stórbankinn sér ekki til að spá fyrir um verðþróun hlutabréfa í Apple lengra en kannski tvo mánuði fram í tímann. Bankinn er þannig með 210 USD í 12-mánaðaspá sem er 14,8 prósentu hækkun miðað við lokun markaða í gær og sem litla greind og enga greiningardeild þarf til að sjá og spá fyrir um að náist í hús á næstu örfáu mánuðum, þekki maður Apple-fyrirtækið jafnvel og bankinn ætti að gera. En auðvitað vita stórbankamennin hjá Morgan Stanley að þeir vita ekkert annað en það sem mögulegt er að vita: þ.e. að um betri kóða er einungis að ræða og að þvaðrið um gervigreind undanfarin ár var að sjálfsögðu ekkert annað en múgsefjun á borð við "deilihagkerfið", "fjártækni-fyrirtæki", "græna hagkerfið", "rafmyntir", "sjálfkeyrandi bíla", "örbrugghús", "ping-pong-borð" og "rafmagnsbíla" ásamt þeirri staðreynd að allar þessar þvælu-bólur eiga heimkynni sín innan í risabólu-þvættingnum um "hlýnun jarðar af mannavöldum", þ.e. í risabólu af völdum rómantískrar náttúrudýrkunar albjána, sem áður, í töluvert langri sögu mannkyns, neyddust til að láta sér nægja að faðma tré og drekka hina nýju kaffiplöntu hins nýja Vesturheims úr trjábarkarbollum og dansa hinn nýja Indíánadans eins vel og þeir gátu, til að fá nú að vera með og predika nýju vísindin yfir lýðnum við heimkomuna
Dansið því endilega, það er alltaf betri kóði í aðsigi, nema náttúrlega í Evrópusambandinu sem orðið er fastlæst í óstöðvandi hringiðu hnignunar (hvað sagði ég)
Mynd: Alrafmagnsknúinn strætisvagn frá Google missti aflið á leið upp Castrostræti í San Francisco í þessari viku, með þeim afleiðingum að hann rann afturábak niður brekkuna og varð þar með sjálfkeyrandi og klessti 7-9 bíla í leiðinni og sendi fólk á sjúkrahús. Eru níðþungar og sílekandi rafhlöður vagnsins að öllum líkindum hlaðnar með dísilknúnum rafstöðvum. Gerist Græni-geðsjúkdómurinn varla sýnilegri en þetta. Krækja
EFTIRMÁLI
Það fyrsta sem gerist þegar bólur springa og falla saman, er það að sérfræðingarnir sem skapa þær koma þá skyndilega og illa leiknir út úr loftköstulum sínum og beita "tímaskalanum" fyrir sig: "þetta tekur greinilega miklu lengri tíma en ég hélt", segja þeir, eins og Francois Chollet "gervigreindarsérfræðingur" hjá Google sagði í síðustu viku: "Fyrir sex árum héldu allir, og þar á meðal ég sjálfur, að bílar gætu ekið sér sjálfir árið 2023"
Þessi Google-maður er auðvitað bara venjulegur bjáni og grasasni í níðþröngu og lokuðu 101-bóluglasi, þó svo að hann geti ýmislegt annað en að vera bara venjuelgur bjáni. Bílar munu nefnilega aldrei geta ekið sér sjálfir, nema ef væri á lokuðu og mannlausu vernduðu svæði og varla það, eins og best sést á járnbrautarlestum í 5000 tonna blóðklessuformi þar sem mannslíkin bara hrannast upp
Síðan tekur við tímabil aðgerða- og vonleysis þar sem sérfræðingarnir bakka sjálfum sér inn í skúrinn á ný. En síðan koma þeir út aftur og blása og búa til súrefnið sem menn anda að sér í ráðuneytum hinna helgrænu grasasna, og svo koll af kolli
Það hefur alltaf verið miklu auðveldara að blekkja fólk, en að segja því að það hafi verið blekkt, því að viðurkenna slíkt krefst sjálfsgagnrýni
Fyrri færsla
Sjálfstæð "Palestína" sýnir morðgetu sína á tvo kanta
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 06:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Nýjustu færslur
- Mætti í vinnuna strax í gærkvöldi og hóf störf
- Ísland og Grænlandsmálið
- "Alþjóðsamskipti" - ha ha ha ha ha ha ha
- Bjarni Ben sá þetta auðvitað strax, enda mestur og bestur
- Lánshæfnismat Frakklands lækkað. Heil 25-35 ár af hergagnafra...
- Frakkland gæti gengið í Evrópusambandið og tekið upp evru
- Samfylkingin fékk 3,4 prósentum meira en Vinstri grænir
- "Stórgögn" og "gervigreind" hafa lítið fært okkur
- Ísrael er búið að vinna stríðið í Líbanon
- Natópóleon beinapartur
- Rússland nú fjórða stærsta hagkerfi veraldar. Lánshæfnismat F...
- Ég óska Bjarna Ben til hamingju og velfarnaðar
- Víkingar unnu ekki. Þeir "þáðu ekki störf"
- Engir rafbílar segir Apple
- Grafa upp gamlar sprengjur og senda áleiðis til Úkraínu
Bloggvinir
- Heimssýn
- Samtök Fullveldissinna
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Ragnhildur Kolka
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Haraldur Hansson
- Haraldur Baldursson
- Páll Vilhjálmsson
- Halldór Jónsson
- Valan
- Samstaða þjóðar
- Frjálshyggjufélagið
- Sigríður Laufey Einarsdóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Jón Valur Jensson
- Samtök um rannsóknir á ESB ...
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
- Jón Baldur Lorange
- Guðjón E. Hreinberg
- Jón Ríkharðsson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Valdimar Samúelsson
- Fannar frá Rifi
- Bjarni Jónsson
- Sigurður Þorsteinsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Haraldur Haraldsson
- Örvar Már Marteinsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Gestur Guðjónsson
- Ingvar Valgeirsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Guðmundur Helgi Þorsteinsson
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Harðarson
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Sveinn Atli Gunnarsson
- gudni.is
- Gústaf Adolf Skúlason
- Tryggvi Hjaltason
- ESB
- Marinó G. Njálsson
- Baldvin Jónsson
- Elle_
- Sigurbjörn Svavarsson
- Emil Örn Kristjánsson
- Johnny Bravo
- Jón Finnbogason
- Rýnir
- Þórarinn Baldursson
- P.Valdimar Guðjónsson
- Már Wolfgang Mixa
- Ívar Pálsson
- Júlíus Björnsson
- Guðjón Baldursson
- Baldur Fjölnisson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Einar Ólafsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Vilhjálmur Árnason
- gummih
- Sveinn Tryggvason
- Helga Kristjánsdóttir
- Jóhann Elíasson
- Baldur Hermannsson
- Kristinn D Gissurarson
- Magnús Jónsson
- Ketill Sigurjónsson
- Birgitta Jónsdóttir
- Axel Jóhann Axelsson
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Aðalsteinn Bjarnason
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Þorsteinn H. Gunnarsson
- Haraldur Pálsson
- Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
- Bjarni Benedikt Gunnarsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Ægir Óskar Hallgrímsson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Óskar Sigurðsson
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Hörður Valdimarsson
- Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Ásta Hafberg S.
- Erla J. Steingrímsdóttir
- Helena Leifsdóttir
- Agný
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Árni Bragason
- Jón Lárusson
- Högni Snær Hauksson
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristinn Snævar Jónsson
- Sigurður Ingólfsson
- Rakel Sigurgeirsdóttir
- Sigurður Þórðarson
- S. Einar Sigurðsson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Vaktin
- Sigurjón Sveinsson
- Dóra litla
- Arnar Guðmundsson
- Jörundur Þórðarson
- Rafn Gíslason
- Hjalti Sigurðarson
- Kalikles
- Vésteinn Valgarðsson
- Bjarni Kristjánsson
- Egill Helgi Lárusson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Halldóra Hjaltadóttir
- Jón Pétur Líndal
- Guðmundur Ásgeirsson
- Reputo
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Als
- Friðrik Már
- Gísli Sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Rauða Ljónið
- Sumarliði Einar Daðason
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Kári Harðarson
- Sigurður Antonsson
- Valdimar H Jóhannesson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Dagný
- Guðmundur Pálsson
- Jakob Þór Haraldsson
- Birgir Viðar Halldórsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Tíkin
- Jón Þórhallsson
- Íslenska þjóðfylkingin
- Erla Magna Alexandersdóttir
- Óskar Kristinsson
- Dominus Sanctus.
- Ingólfur Sigurðsson
- Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 12
- Sl. sólarhring: 100
- Sl. viku: 231
- Frá upphafi: 1390861
Annað
- Innlit í dag: 11
- Innlit sl. viku: 137
- Gestir í dag: 11
- IP-tölur í dag: 11
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008