Sunnudagur, 30. mars 2025
Landsölupakkhús Þorgerðar fúlt út í JD Vance
Þorgerður ESB-kommi er fúl út í JD Vance varaforseta Bendaríkjanna fyrir að sýna heiminum fram á hversu glatað fyrirbæri Evrópusambandið er. En það gerði varaforsetinn á öryggisráðstefnu sem haldin var suður af Þusluþorpi við Munkaþverá syðri. Hér má lesa ræðuna - og hér má horfa á JD Vance flytja hana
Þorgerður veit sem er að þorri Íslendinga samsamar sér um það bil þúsund sinnum meira með Bandaríkjunum en sovétríki Evrópusambandsins í smíðum. Við þekkjum kanann og vitum að hann mun aldrei verða eins og ESB, sem betur fer, enda hefur hann reynst okkur bjargvættur og gerir enn
Tíðarandanum í Þorgerði finnst "óviðeigandi" að JD Vance sé hvorki upptekinn við að sleikja skósólana á Grétu2 Úkraínuforseta né hangandi um fótlegginn á einfóta hopp-hananum Emmanuel Macron forseta Frakklands. Á morgun finnst henni jafnvel eitthvað annað. Þannig virkar innihald tíðarandaglasa oft á menn
En bæði Donald J. Trump og J.D. Vance eru andbyltingarsinnar eins og nú heyrist og sést á gargandi ískrinu og neistafluginu er þeir flytja Bandaríkin aftur að miðjunni, burt úr hinu gargandi villta vinstri Klikkton-Obamaklíkunnar
Fyrir Donald J. Trump forseta og JD Vance varaforseta Bandaríkjanna er Evrópusambandið nýtt sovétlíki í smíðum. Og þeir, eins og ég, vita vel hvað kemur næst úr Evrópufabrikkunni, sem Bandaríkjamenn flúðu burt frá á sínum tíma. Ekkert gott er í vændum þaðan, - eins og Vance benti svo réttilega á í ræðu sinni í München
"I was struck that a former European commissioner went on television recently and sounded delighted that the Romanian government had just annulled an entire election. He warned that if things dont go to plan, the very same thing could happen in Germany too." JD Vance varaforseti Bandaríkjanna
Nú þegar er byrjað kjósa aftur, komi ekki "rétt" út úr kosningum í ESB. Ógilding kosninga er einnig hafin í ESB. Og byrjað er að banna vissa frambjóðendur með "rangar" skoðanir í ESB. Og til umræðu á þýsku þingi núna er að banna næst stærsta stjórnmálaflokk landsins í ESB
Hvað nú Þorgerður mín vonsvikna
Fyrri færsla
Kannski hægt að byrja á farsímavef Veðurstofunnar - strax í dag? [u]
![]() |
Allt við þessa heimsókn var óviðeigandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 27. mars 2025
Kannski hægt að byrja á farsímavef Veðurstofunnar - strax í dag? [u]
Skjáskot: Óvirkur farsímavefur Veðurstofu Íslands, fimmtudagur, 27. mars 2025 kl. 21:39:35. Vefurinn er búinn að vera í þessu ásigkomulagi í rúman sólarhring. Hann er oft það eina sem hægt er að notast við þegar merkjasamband til gagnasendinga er lélegt eða þegar rafmagnið fer og einungis 2G eða EDGE hanga uppi
****
Já. Farsímavefur Veðurstofu Íslands hefur verið niðri, óaðgengilegur og óvirkur í rúman sólarhring. Og enga tilkynningu um eitt né neitt er að finna á aðalvef Veðurstofunnar - þar sem slóðina inn á farsímavefinn er að finna efst á forsíðu vefsetursins. Ég og mínir nota farsímavefinn mög mikið, bæði fyrir landsveðurspár, staðarspár, veðurathuganir og jarðskjálfta, því hann er einfaldur, léttur og handhægur: þ.e. góður vefur, skilvirkur og laus við glingur og þvætting
Skjáskot: Og skilríkin að renna út. Ég ákvað að treysta þeim samt (þess vegna "custom")
Og engar tilkynningar til notenda eru birtar um hvenær Veðurstofunni þóknist nú að koma sér út úr stofuveðrinu sem greinilega ríkir þar um allan aldur og stafræna eilífð
Það er mjög slæmt þegar farsímavefur Veðurstofunnar er óvikur. Og það er mjög slæmt að stofnunin skuli ekki fylgjast betur með þeim lágmarks grunnöryggiskerfum landsins sem á hennar ábyrgð eru
Hvernig væri nú að kippa þessu í lag?
=====
Uppfært föstudagur, 28. mars 2025 kl. 22:07:16
Veðurstofan hefur um miðjan dag í dag fjarlægt krækjuna inn á farsímavefinn, sem höfð var efst á forsíðu hennar, vedur.is. Enga skýringu eða tilkynningu til notenda er finna neins staðar um þetta mál. Stofuæði ræður ríkjum. Þetta mál mun sennilega seinka verulega mánaðaruppgjöri Veðurstofunnar yfir áhuga- og getuleysi hennar í stafrænum efnum
RIDDARAR VEGANNA
Hjá Vegagerð ríkisins horfa veftæknimál hins opinbera hins vegar öðruvísi við, því þar minnka menn bara allar myndir af vegakerfinu úr vefmyndavélum Vegagerðarinnar um helming, svo að holurnar í vegakerfinu, færðin og ástand veganna sjáist helst ekki á hinum nýja vef fyrirtækisins, þ.e. ef "fyrirtæki" skyldi kalla. Þar á bæ kallast slíkt framfarir. Grautarhausar á opinberri framfærslu ráða för
Fyrri færsla
Hamast við moksturinn í Reykjavík
![]() |
Almannavarnir bregðist við hernaðarástandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 28.3.2025 kl. 22:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Laugardagur, 22. mars 2025
Hamast við moksturinn í Reykjavík
Flott. Ný forysta Sjálfstæðisflokksins með Guðrúnu Hafsteinsdóttur í fararbroddi fer hringferð um landið og hefur það huggulegt, - á meðan ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur skóflar eigin skít fram og til baka í Reykjavík
Eins og Napóleon sagði: aldrei að trufla andstæðinginn á meðan hann er að gera í buxurnar
Til hamingju Guðrún, Jens Garðar og Vilhjálmur
Fyrri færsla
Grunnvextir hækka á evrusvæðinu - varanlega
![]() |
Ásthildur á fund forseta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Mánudagur, 17. mars 2025
Grunnvextir hækka á evrusvæðinu - varanlega
Mynd: Grunnvextir eru að snarhækka í Þýskalandi og þar með á öllu evrusvæðinu
****
Skuldaþakið eða "skuldabremsan" sem innleidd var í Þýskalandi sem vörn gegn því að Þýskaland er eitt stærsta óðaöldrunarhagkerfi veraldar, því svo fá fæðast þar börnin sökum geldingar þýsku þjóðarinnar og sem því er reyna að spara sig í hel, já það er hún sem haldið hefur niðri ávöxtunarkröfum þeirra sem hafa keypt skuldir af þýska ríkinu og öðrum evrulöndum. En nú á að slaka á þessari skuldabremsu svo hægt sé að verja elliheimilið, ekki gegn sjálfu sér, heldur gegn Rússunum sem Þýskaland reyndi að þurrka út en varð hins vegar sjálft þurrkað út eins og bæði sést og heyrist núna
Þessi svo kallaða skuldabremsa er að gefa sig vegna álags og þýska elliheimilið mun því verða skuldum vafið við andlátið, og þar með gera út af við þau fáu börn sem þrátt fyrir allt fæðast þar enn, þó svo að einu varnir Þjóðverja gegn öllu og öllum sé sparnaður. Þýski herinn notast því við kústsköft við æfingar
Bíddu aðeins: var ég búinn að nefna það að Úkraína skilaði víst til baka skriðdrekunum sem Danir "gáfu" henni sökum úreldingar
Jæja, en hvað um það. Vextir eru því að hækka á öllu evrusvæðinu til frambúðar því skuldabréfakaupendur segja að ríkisfjármálaakkeri evrusvæðisins sé þar með farið. Ríkisskuldasúpa verður því framtíð evrulanda, sem nær öll eru skuldsett upp fyrir skorsteinana nú þegar, eða sem svarar til um og yfir 90 prósentum af landsframleiðslu þeirra yfir alla línuna
Nú ber hins vegar svo við að á sama tíma og Bandaríki Norður-Ameríku hyggjast hætta vanþróunaraðstoðinni við svokölluð "varnarmál ESB-landa", að þá eru ríkisskuldir evrulanda í hæstu hæðum vegna einmitt evrunnar og þar af leiddri innvortis geldingu alls hagvaxtar; sem aftur bitnar á heilbrigðskerfunum sem eru að kafna vegna óðaöldurnar íbúanna; og afleiddra hárra skatta; og svo vegna svokallaðra "velferðarkerfa" sem eru að kikna undan óðaöldrun skattgreiðenda; og massífum innflutningi á ósjálfbjarga og þurftafrekum geimverum frá öðrum sólkerfum
Það er allt þetta sem er svo eftirsóknarvert fyrir það setulið sem nú mannar ríkisstjórn Íslands: að komast alla leið til helvítis á sem skemmstum tíma
Sem sagt: Akkerisfestingarnar á skuldabréfamörkuðum evrulanda hafa slitnað, því Þýskaland er byrjað að reka. Vextir hækka yfir alla línuna því áhættan fer hratt vaxandi, en ekki minnkandi. Horfunar fyrir lánshæfnismat evrulanda versna og lánshæfnismatið mun lækka - og svo koll af kolli, aftur og aftur
ESB og Evran
Hefur drepið hagvöxt evrulanda
Ríkisskuldasúpa evrulanda sýður því og kraumar
Afleiðingin er hækkandi vextir evrulanda
Útdauði skattgreiðenda evrulanda
Komandi innri borgarastyrjöld evrulanda
Rigor mortis þ.e. dauðastirðnun evrulanda
Allt þetta kallar á enn hærri vexti því áhættan bara vex og vex
Fyrri færsla
Fallbyssur Trumps í tollamálum
![]() |
Ræðir við Pútín á morgun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Föstudagur, 14. mars 2025
Fallbyssur Trumps í tollamálum
Frakkland verður í þetta skiptið verst úti, en Þýskaland mun samt fara verst út úr Tolla-Trump því þar er um allan þýska bílaiðnaðinn að ræða, plús meira
Skyldi maður þó ei gleyma Rín og Mósel á 35 milljón manna landsvæði til dæmis þriggja ríkja Vestur-Þýskalands, nú þegar Rúrið er að verða hálf rafmagnslaust. Og gott er að muna að Trier býður því áfram upp á fundaraðstöðu fyrir suma bændaflokka, en aðra ekki
Evrópusambandið, sem leikur sama viðskiptahagnaðar-leikinn gagnvart Bandaríkjunum og Kína leikur, getur ekki svarað í sömu mynt með neitt. Og Bretland er farið burt úr Evrópusambandinu og það var Ameríka Evrópu í innflutningsefnum og í viðtöku á landflótta umframsparnaði evrulanda. Og gagnvart Kína getur Evrópusambandið ekkert aðhafst því það sjálft er Kína Evrópu, en þó alveg sérstaklega Þýskaland
Nú er úr algjörlega óvinnandi innvortis bikkjubunka Evrópusambandsins að ráða. Trump er tvær sekúndur að ákveða mótleiki sína á meðan ESB er með ellihruman heilann splattaðann út í 27 pörtum og öndunarfærin utanáliggjandi - og á þeim stendur Trump þegar honum sýnist, horfandi á blámann færast yfir austrið. Um er að ræða bæði bláma og blámann í fleirtölu eins og Maxím Gorkí sagði frá á sínum tíma
Það mun taka Evrópusambandið nokkur ár að skilja að Bandaríkin nota frá og með nú tolla til að umbylta bandaríska hagkerfinu til að passa við nýja stöðu Bandaríkjanna á veraldarsviðinu: þ.e. að fara úr alheimslögguhlutverkinu í einpóla heimi og yfir í öflugasta heimshlutaveldið í margpóla veröld. Og slíkt krefst gagngerra breytinga á hagkerfi Bandaríkjanna
Í tilfelli Bandaríkjanna snúast tollamál því ekki um innflutning á vörum og verðlagi þeirra í Bandaríkjunum miðað við aðrar vörur, heldur um að auka hagnað innlenskrar framleiðslu sem síðan mun minnka hlutfallslegan þátt einkaneyslu heimilanna í hagkerfinu, en samt ekki í krónum talið því aukinn hagnaður innlenskrar framleiðslu mun stækka landsframleiðsluna svo mikið að heildarvirði einkaneyslu heimilanna mun jafnvel aukast. Strúktúr hagkerfisins mun því breytast - mikið
Nú er gaman
****
PS: Frakkland má líklega þakka fyrir að Trump krefst enn sem komið er ekki ljósmynda af skorpulifur, grenjandi smábörnum, krossum á leiðum og klesstum ökutækjum á vínflöskum frá ESB-löndum, eins og ESB gerði þegar um tóbaksvörur frá Bandaríkjunum var að ræða. Þjóðverjar, Frakkar og Sívar gætu líka skoðað 180 prósent óbeina tolla Danmerkur á innfluttum bifreiðum í DDR-light
Tralla la la. Þetta kemur... þetta kemur...
Fyrri færsla
Bandaríkin eru tilbúin að fjárfesta milljörðum dala í Grænlandi. F35A-samningur í hættu
![]() |
Trump: 200% tollur á áfengi frá ríkjum ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 10. mars 2025
Bandaríkin eru tilbúin að fjárfesta milljörðum dala í Grænlandi. F35A-samningur í hættu
Mynd: Frétt Tass í dag
****
GRÆNLAND
Forseti Bandaríkjanna segir í málgagni sínu í dag að Bandaríkin hafi áhuga á að fjárfesta milljörðum dala í Grænlandi, bæði sem sjálfstæðu ríki og ef Grænlendingar vilja það sem hluta af Bandaríkjunum
Við styðjum rétt Grænlendinga til fullveldis og sjálfstæðis og rétt þeirra til að ákveða framtíð sína sjálfir. En ef þeir skyldu kjósa að sameinast Bandaríkjunum þá myndum við bjóða þá velkomna sagði forsetinn
Við munu halda áfram að gæta þjóðaröryggis Grænlands eins og við höfum gert frá lokum Síðari heimsstyrjaldar. Og við erum tilbúin að fjárfesta milljörðum dala í Grænlandi og gera ykkur rík sagði Bandaríkjaforseti ennfremur
Danir fóru að mestu frá Grænlandi þegar Danmörk ákvað árið 1979 að gera ekki eins og Bandaríkin gerðu 1959 þegar þau heimiluðu Havaíeyjum að gerast fullgilt fimmtugasta ríki Bandaríkjanna, skrifar Asger Aamund fyrrum forstjóri Rockwool og formaður danska Alzheimer rannsóknarsjóðsins. Bandaríkin ákváðu þá að fylgja ekki síðar komandi eftirdæmi Danmerkur sem gerði Grænland ekki að hluta af Danmörku, af ótta við að þurfa að halda Grænlendingum uppi um alla framtíð. Sá ótti varð einnig til þess að Danir eru að mestu farnir frá Grænlandi. Búa nú ef til vill fleiri Filippseyingar á Grænlandi en Danir. En í Danmörku búa hins vegar um 18 til 20 þúsund Grænlendingar sem fæddir eru á Grænlandi en eru búsettir í Danmörku
"Trumps mareridt er Grønland som et arktisk Cuba"
Í dag er því spurning hvort að fleiri Filippseyingar en Danir búa á Grænlandi. En tæplega þúsund Filippseyingar búa á Grænlandi í dag. Eða hvort að Grænland verði Kúba norðursins eins og Ásgeir Aamund orðar það. Slíkt yrði auðvitað martröð fyrir Bandaríkin eins og hann bendir réttilega á. Hér þurfa bjálfar Íslands að hlusta vel og hætta andartepptu krataþvaðri
Mynd: Myntvafningur Austurrísk-Ungverska keisaradæmisins raknaði upp 1918
****
KOMANDI TOLLAR Á EVRÓPUSAMBANDIÐ
Mig grunar Bandaríkin muni setja mikla og harða tolla á vörur frá ESB-löndum á næstunni. Viðskiptahagnaður ESB er þess eðlis að hann kerefst harðra aðgerða af hálfu Bandaríkjanna. Plús það að Evrópusambandslöndin eru algjörlega háð Bandaríkjunum þegar kemur að ávöxtun á sparnaði og umframsparnaði bæði íbúa og fyrirtækja í ESB-löndum. Evrópusambandslöndin flytja því ekki bara út vörur til Bandaríkjanna heldur flytja þau líka út nær allan umframsparnað álfunnar til ávöxtunar á kapítalmörkuðum Bandaríkjanna
Ýmislegt kemur til, en ástæðan er fyrst og fremst sú að íbúar flestra Evrópusambandslanda og smáfyrirtæki þeirra eru ekki metin sem verandi lánshæf vegna láglaunaþróunar í flestum evrulöndum sambandsins, þannig að bankakerfin á evrusvæðinu geta hvorki ávaxtað sparnað almennings innanlands né heldur hagnað fyrirtækja. Allur umframsparnaður er því fluttur úr landi til ávöxtunar á fjármálamörkuðum Bandaríkjanna - og fjárfestingarfé því sömuleiðis. En Bandaríkin eru eina land heimsins sem er með algjörlega frjálsa fjármálamarkaði
Þess utan er gengisáhættan svo mikil í evrulöndum ESB vegna þess að evran er myntvafningur eða prjónuð mynt sem raknað getur upp. Evran er líka næstum eingöngu héraðsmynt því hlutur hennar í gjaldeyrisforðum seðlabanka veraldar hefur ekki orðið neinn að ráði, eða kannski um 20 prósentur á móti 65 prósentum Bandaríkjadals
En það er einnig nýtt atriði sem fær mig til að álykta sem svo að komandi tollar Bandaríkjanna á vörur frá Evrópusambandslöndum verði harðir. Í fyrradag greindi Tass frá því að Þýskaland hyggist ef til vill hætta við kaup á F-35A orrustuþotum frá Bandaríkjunum af ótta við að Bandaríkin muni geta "slökkt á þeim" með fjarstýringu (e. kill-switch) þegar þeim þykir þess þurfa. Um er að ræða margra milljarða dala samninga. Tass og enginn annar var auðvitað með þessa frétt í gær
Fyrri færsla
Já, Pólverjar verða að vakta landamærin upp að Þýskalandi. Það er gefið
![]() |
Bandaríkin munu fjárfesta fyrir milljarða dollara á Grænlandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Laugardagur, 8. mars 2025
Já, Pólverjar verða að vakta landamærin upp að Þýskalandi. Það er gefið
Ég skil vel hugrenningar pólsku ríkisstjórnarinnar. Það er nefnilega aldrei of seint í rassinn gripið með að koma á fót alvarlegum fælingarmætti á landamærum Póllands upp að Þýskalandi. Og til að vakta þau þarf mikinn herafla, einkum þegar enn er ekki vitað hvaða lönd Evrópusambandsins Þýskaland ætlar að ræna að innan til handa hinum nýja og "ótakmarkaða" vopnaiðnaði sem landið ætlar að koma á fót samkvæmt fjárfestingarmanninum Friedrich Merz, - nú þegar honum hefur tekist að endurlífga það sambandsríkisþing Þýskalands sem kosið var burt í kosningunum um daginn, til að afnema einmitt "skuldabremsuna". Þá andaglasalist hefur Merz örugglega lært þegar hann sat í stjórn fjárfestingarfyrirtækisins BlackRock í Þýskalandi
En Pólverjar verða samt að athuga eitt áður en þeir hefjast handa: loka verður Schengen fyrst, þ.e. áður en allir sem enn eru eftir í landinu taka til fóta frá Póllandi
Skyldi það nokkuð vera Pólland sem Friedrich Merz ætlar að hráefna-ræna náttúruauðlindunum frá? Því varla getur Þýskaland rænt Grikkland tvisvar að innan, að minnsta kosti varla enn sem komið er. Hvaða önnur ESB-lönd koma til greina sem hráefnafóðurstöð Þýskalans núna? Handjárnuð við Þýskaland í gegnum evruna
Svona er að gera sig að samlokufyllingu með aðstoð vestursins einu sinni enn. Intermarium er miklu betri hugmynd fyrir Pólland og þar að auki vel framkvæmanleg hvað úr hverju.
En þetta er kannski eins og Mette Frederiksen sagði um daginn þegar hún var spurð að því hvort að allt þetta græna og lofslagsmálin væri þá bara komið út á öskuhaugana núna; já já, það er þannig sagði hún, "vi må gvie afkald på vælfærd fordi nu er det kampkraften men ikke købekraften der gælder"
Maður hlær sig máttlausan, því svo stutt er síðan að til greina kom að reka Danmörku úr NATO fyrir að heimila ekki bandarískum herskipum að koma þar í höfn, nema að því tilskyldu að Bandaríkin gæfu upp hvort að þau væru vopnuð kjarnorkuvopnum eða ekki. Og það gerðist einmitt á ríkisstjórnarvakt danska sósíaldemókrataflokksins, sem Mette Frederiksen stendur fyrir í dag. Sturlun flokksforystunnar hefur því greinilega ekki minnkað neitt að ráði síðan þá
Tralla la la, hefst nú fjörið... því þýsku rassaköstin koma á 80-100 ára fresti... tralla la la
Fyrri færsla
Á Ísraelsríki þá líka að leggja kosningar af?
![]() |
Undirbúa herþjálfun allra pólskra karlmanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Föstudagur, 7. mars 2025
Á Ísraelsríki þá líka að leggja kosningar af?
Fyrst að þetta er svona þarna í Evrópu, já þá hlýtur Ísraelsríki að geta lagt kosningar alfarið af, bannað alla stjórnarandstöðu, lokað öllum þeim fjölmiðlum sem malda í móinn, eða gert þá útlæga. Og fengið lófaklapp frá vinstrimönnum ESB-Evrópu fyrir
Síðan mega náttúrlega allir forsætisráðherrar Ísraelsríkis arka inn í hið Hvíta hús hins bandaríska forsetaembættis í hvaða drullugalla sem er, eða jafnvel í stríðsbúningi, og heimta hvað sem er og þrætt við forsetann og varaforsetann og heimtað og heimtað næstum hvað sem er, hvenær sem er
Sem betur fer hafa vinstrimenn misst völdin vestanhafs þannig að æmt þeirra og skræmt í Evrópu hlustar enginn á
ESB-vinstrimenn Evrópu eru reiðir Rússum fyrir að hafa varpað af sér oki alræðisins sem nú er að setjast yfir meginland ESB-Evrópu. Engar kosningar takk. Enga fjölmiðla. Enga stjórnarandstöðu, það er sko bara það sem við viljum í ESB - plús það að ógilda kosningar
Það er eins gott að forseti Frakklands geti hvorki breytt notkunartilgangi né notkunarsviði kjarnorkuvopna Frakkalands á meðan landið er enn í eins konar silly-billy ég-borga-ekki "varnarbanalagi" með Bandaríkjunum, því allar breytingar þar að lútandi krefjast einmitt samþykkis Bandaríkjanna. Frakkland ræður því ekki sjálft yfir kjarnorkuvopnum sínum svo lengi sem það er í varnarbandalagi með Bandaríkjunum
En samkvæmt þjóðarávarpi Frakklandsforseta í gær eiga þau vopnin ef til vill frá og með bráðum að notast í þágu alls ESB - og sussum sei jafnvel kannski Úkraínu líka? Þessi ummæli Macrons forseta vekja því upp spurningar um hvort að Frakkland sé á leið út úr varnarbandalagi með Bandaríkjunum
Rússar bara stara á í vantrú, en þekkja samt þarna vissa gamla takta meginlands Evrópu frá fyrri tíð
Þetta er bilað fólk
PS: Hvað eru íslensk tollayfirvöld að hugsa. Ef einar nærbuxur framleiddar í Ísrael eru í sendingunni þá stoppar allt. Af hverju flæðir þá allt inn frá Úkraínu fyrst að þetta er svona eins og það er þar
Fyrri færsla
Njótið: Evrópa loksins home alone
![]() |
Hafna baktjaldamakki Trumps og kosningum á stríðstíma |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 5. mars 2025
Njótið: Evrópa loksins home alone
Mynd: Hnignun
****
Þessi mynd frá mánudeginum 17. febrúar 2025, mun líklega fara inn í sögubækurnar sem fimmfalt Súez Evrópu. Frekari skýringar fáum við á næstu árum. Óttinn í andlitunum leynir sér ekki
Mynd: Vestan Atlantsála er hins vegar þetta hér helst að gerast
Fyrri færsla
Á landmassa Gamla heimsins gilda ekki úthafslögmál
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 3. mars 2025
Þorgerður Katrín styður Pútín
Tekið er eftir því á alþjóðavísu að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, núverandi utanríkisráðherra Íslands, notaði bókstafinn P á lyklaborðinu er hún vatt sér að því að fremja þjóðarhagsmuni Íslands með tísti á félagsmiðlum á föstudaginn
Mikil hætta er því á, samkvæmt sérfræðingum Vestrænna ríkja í varnarmálum, að með þessu hafi hún gengið erinda forseta Rússlands. En eftirnafn hans hefst á bókstafnum P
Einnig er ljóst að Þorgerður Katrín notaði líka bókstafinn V en hann kemur fyrir í fornafni Rússlandsforseta
Vestrænir sérfræðingar í varnarmálum telja nokkuð öruggt að þarna sannist hversu hliðhollur íslenski utanríkisráðherrann er málstað Rússlands. Vísbendingar þessar liggja svo gott sem ljósar fyrir, einkum eftir að sannleiksfræðingar vestrænna fréttastofa kembdu málið til mergjar síðastliðin þrjú ár
Ljóst er því að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hefur veitt Íslandi fyrirsát. Mun nýr forsætisráðherra, sem er sérfræðingur úr bréfaskóla Kviku, því hafa frumkvæði að því að láta Varnarmálastofnun fjarlægja umrædda lykla úr lyklaborði utanríkisráðherrans, forseta Rússlands til óbærilegs skaða
Margt bendir nú þegar til þess að stuðningur þessi við fyrrum landsvæði Rússlands í Úkraínu geti ráðið úrslitum um fastaathvarf kvenna í stjórnmálum á Facebook og X. En bæði eru bandarísk einkahlutafélög
Evrópu hefur á síðustu 30 árum ekki tekist að skapa neitt slíkt stafrænt stjórnmálaathvarf fyrir konur í 27 löndum Evrópusambandsins. Ráða því Bandaríkin alfarið yfir stafrænum samskiptum evrópskra kvenna í lyklaborðsstjórnmálum
Víðtækari áhrif varnaraðgerða Varnarmálastofnunar verða um leið einnig þau að utanríkisráðherranum er ekki lengur heimilt að leggja ökutæki í stæði sem merkt eru með bókstafnum P
Þeir sem hyggjast eiga viðskipti við utanríkisráðherrann þurfa að sama skapi að lúta þessu nýja regluverki á sviði varnarmála. Bæjarins bestu mega, svo dæmi sé tekið, ekki selja utanríkisráðherranum pylsu, því viðskipti með þær falla undir sömu skilgreiningar Varnarmálastofnunar á innri ógnum og óbeinum stuðningi við fjandsamleg ríki. Utanríkisráðherranum sjálfum er einnig alls óheimilt að neyta pylsa frá Bæjarins bestu
Landganga í Vestmannaeyjum er ráðherranum einnig óheimil. Takið vinsamlegast eftir fyrsta bókstafnum nafni eyjaklasans
Gert 3. mars 2025
Allsherjarvernd
Fyrri færsla
Á landmassa Gamla heimsins gilda ekki úthafslögmál
Stjórnmál og samfélag | Breytt 4.3.2025 kl. 11:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Nýjustu færslur
- Landsölupakkhús Þorgerðar fúlt út í JD Vance
- Kannski hægt að byrja á farsímavef Veðurstofunnar - strax í d...
- Hamast við moksturinn í Reykjavík
- Grunnvextir hækka á evrusvæðinu - varanlega
- Fallbyssur Trumps í tollamálum
- Bandaríkin eru tilbúin að fjárfesta milljörðum dala í Grænlan...
- Já, Pólverjar verða að vakta landamærin upp að Þýskalandi. Þa...
- Á Ísraelsríki þá líka að leggja kosningar af?
- Njótið: Evrópa loksins home alone
- Þorgerður Katrín styður Pútín
- Á landmassa Gamla heimsins gilda ekki úthafslögmál
- Trump kom til dyra þegar sjálfstæður og fullvalda Starmer kom...
- .... og Marco Rubio vill ekki hitta Kæju Kallas úr miðstjórn ESB
- Trump kom ekki til dyra
- Er Frakkland ekki með síma?
Bloggvinir
-
Heimssýn
-
Samtök Fullveldissinna
-
ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
-
Guðmundur Jónas Kristjánsson
-
Ragnhildur Kolka
-
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
-
Haraldur Hansson
-
Haraldur Baldursson
-
Páll Vilhjálmsson
-
Halldór Jónsson
-
Valan
-
Samstaða þjóðar
-
Frjálshyggjufélagið
-
Sigríður Laufey Einarsdóttir
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Jón Valur Jensson
-
Samtök um rannsóknir á ESB ...
-
Kolbrún Stefánsdóttir
-
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
-
Jón Baldur Lorange
-
Guðjón E. Hreinberg
-
Jón Ríkharðsson
-
Anna Björg Hjartardóttir
-
Loftur Altice Þorsteinsson
-
Valdimar Samúelsson
-
Fannar frá Rifi
-
Bjarni Jónsson
-
Sigurður Þorsteinsson
-
Gunnar Ásgeir Gunnarsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Örvar Már Marteinsson
-
Kristin stjórnmálasamtök
-
Gestur Guðjónsson
-
Ingvar Valgeirsson
-
Predikarinn - Cacoethes scribendi
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Guðmundur Helgi Þorsteinsson
-
Lísa Björk Ingólfsdóttir
-
Bjarni Kjartansson
-
Bjarni Harðarson
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
gudni.is
-
Gústaf Adolf Skúlason
-
Tryggvi Hjaltason
-
ESB
-
Marinó G. Njálsson
-
Baldvin Jónsson
-
Elle_
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Emil Örn Kristjánsson
-
Johnny Bravo
-
Jón Finnbogason
-
Rýnir
-
Þórarinn Baldursson
-
P.Valdimar Guðjónsson
-
Már Wolfgang Mixa
-
Ívar Pálsson
-
Júlíus Björnsson
-
Guðjón Baldursson
-
Baldur Fjölnisson
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Einar Ólafsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Vilhjálmur Árnason
-
gummih
-
Sveinn Tryggvason
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Jóhann Elíasson
-
Baldur Hermannsson
-
Kristinn D Gissurarson
-
Magnús Jónsson
-
Ketill Sigurjónsson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Axel Jóhann Axelsson
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Aðalsteinn Bjarnason
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Erla Margrét Gunnarsdóttir
-
Sigurður Sigurðsson
-
Þorsteinn H. Gunnarsson
-
Haraldur Pálsson
-
Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
-
Bjarni Benedikt Gunnarsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Ægir Óskar Hallgrímsson
-
Helgi Kr. Sigmundsson
-
Óskar Sigurðsson
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Axel Þór Kolbeinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Hörður Valdimarsson
-
Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Margrét Elín Arnarsdóttir
-
Ásta Hafberg S.
-
Erla J. Steingrímsdóttir
-
Helena Leifsdóttir
-
Agný
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Árni Bragason
-
Jón Lárusson
-
Högni Snær Hauksson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Kristinn Snævar Jónsson
-
Sigurður Ingólfsson
-
Rakel Sigurgeirsdóttir
-
Sigurður Þórðarson
-
S. Einar Sigurðsson
-
Pétur Steinn Sigurðsson
-
Vaktin
-
Sigurjón Sveinsson
-
Dóra litla
-
Arnar Guðmundsson
-
Jörundur Þórðarson
-
Rafn Gíslason
-
Hjalti Sigurðarson
-
Kalikles
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Egill Helgi Lárusson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Halldóra Hjaltadóttir
-
Jón Pétur Líndal
-
Guðmundur Ásgeirsson
-
Reputo
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Ólafur Als
-
Friðrik Már
-
Gísli Sigurðsson
-
Sigurður Einarsson
-
Rauða Ljónið
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Gísli Kristbjörn Björnsson
-
Kári Harðarson
-
Sigurður Antonsson
-
Valdimar H Jóhannesson
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Dagný
-
Guðmundur Pálsson
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Birgir Viðar Halldórsson
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
-
Tíkin
-
Jón Þórhallsson
-
Íslenska þjóðfylkingin
-
Erla Magna Alexandersdóttir
-
Óskar Kristinsson
-
Dominus Sanctus.
-
Ingólfur Sigurðsson
-
Jón Þórhallsson
Tenglar
Hraðleiðir
- www.tilveraniesb.net www.tilveraniesb.net Vefsetur Gunnars Rögnvaldssonar
- www.mbl.is
- Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir Donald J. Trump: Blogg - tilkynningar og fréttir
- Bréf frá Jerúsalem - Yoram Hazony Yoram Hazony er einn fremsti stjórnmálaheimspekingur Vesturlanda í dag
- NatCon Þjóðaríhaldsstefnan
- Victor Davis Hanson bóndi og sagnfræðingur Victor Davis Hanson er einn fremsti sagnfræðingur Vesturlanda í klassískri sögu og hernaði
- Bruce Thornton sagnfræðingur Bruce Thornton er sagnfræðingur - klassísk fræði
- Geopolitical Futures - geopólitík Vefsetur George Friedmans sem áður hafi stofnað og stjórnað Stratfor
- Strategika Geopólitík
- TASS
- Atlanta Fed EUR credit & CDS spreads
- N.Y. Fed EUR charts
- St. Louis Fed USD Index Federal Reserve Bank of St. Louis - Trade Weighted U.S. Dollar Index: Major Currencies
- Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983 Atvinnuleysi í Evrópusambandinu núna: og frá 1983
Þekkir þú ESB?
Greinar
Lestu mig
Lestu mig
• 99,8% af öllum fyrirtækjum í ESB eru lítil, minni og millistór fyrirtæki (SME)
• Þau standa fyrir 81,6% af allri atvinnusköpun í ESB
• Aðeins 8% af þessum fyrirtækjum hafa viðskipti á milli innri landamæra ESB
• Aðeins 12% af aðföngum þeirra eru innflutt og aðeins 5% af þessum fyrirtækjum hafa viðskiptasambönd í öðru ESB-landi
• Heimildir »» EuroChambers og University of LublianaSciCenter - Benchmarking EU
Bækur
Á náttborðunum
-
: EU - Europas fjende (ISBN: 9788788606416)
Evrópusambandið ESB er ein versta ógn sem að Evrópu hefur steðjað. -
: World Order (ISBN: 978-1594206146)
There has never been a true world order, Kissinger observes. For most of history, civilizations defined their own concepts of order. -
: Íslenskir kommúnistar (ISBN: ISBN 978-9935-426-19-2)
Almenna bókafélagið gefur út. -
Velstandens kilder:
Um uppsprettu velmegunar Evrópu
: - Paris 1919 :
- Reagan :
- Stalin - Diktaturets anatomi :
-
Penge
Ungverjinn segir frá 70 ára kauphallarreynslu sinni
: -
: Gulag og glemsel
Um sorgleik Rússlands og minnistap vesturlanda - Benjamín H. J. Eiríksson :
- : Opal
- : Blár
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.3.): 23
- Sl. sólarhring: 217
- Sl. viku: 604
- Frá upphafi: 1400246
Annað
- Innlit í dag: 22
- Innlit sl. viku: 354
- Gestir í dag: 21
- IP-tölur í dag: 21
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- September 2024
- Júní 2024
- Apríl 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Júlí 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008