Leita í fréttum mbl.is

Þorgerður Katrín styður Pútín

Tekið er eftir því á alþjóðavísu að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, núverandi utanríkisráðherra Íslands, notaði bókstafinn P á lyklaborðinu er hún vatt sér að því að fremja þjóðarhagsmuni Íslands með tísti á félagsmiðlum á föstudaginn

Mikil hætta er því á, samkvæmt sérfræðingum Vestrænna ríkja í varnarmálum, að með þessu hafi hún gengið erinda forseta Rússlands. En eftirnafn hans hefst á bókstafnum P

Einnig er ljóst að Þorgerður Katrín notaði líka bókstafinn V en hann kemur fyrir í fornafni Rússlandsforseta

Vestrænir sérfræðingar í varnarmálum telja nokkuð öruggt að þarna sannist hversu hliðhollur íslenski utanríkisráðherrann er málstað Rússlands. Vísbendingar þessar liggja svo gott sem ljósar fyrir, einkum eftir að sannleiksfræðingar vestrænna fréttastofa kembdu málið til mergjar síðastliðin þrjú ár

Ljóst er því að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hefur veitt Íslandi fyrirsát. Mun nýr forsætisráðherra, sem er sérfræðingur úr bréfaskóla Kviku, því hafa frumkvæði að því að láta Varnarmálastofnun fjarlægja umrædda lykla úr lyklaborði utanríkisráðherrans, forseta Rússlands til óbærilegs skaða

Margt bendir nú þegar til þess að stuðningur þessi við fyrrum landsvæði Rússlands í Úkraínu geti ráðið úrslitum um fastaathvarf kvenna í stjórnmálum á Facebook og X. En bæði eru bandarísk einkahlutafélög

Evrópu hefur á síðustu 30 árum ekki tekist að skapa neitt slíkt stafrænt stjórnmálaathvarf fyrir konur í 27 löndum Evrópusambandsins. Ráða því Bandaríkin alfarið yfir stafrænum samskiptum evrópskra kvenna í lyklaborðsstjórnmálum

Víðtækari áhrif varnaraðgerða Varnarmálastofnunar verða um leið einnig þau að utanríkisráðherranum er ekki lengur heimilt að leggja ökutæki í stæði sem merkt eru með bókstafnum P

Þeir sem hyggjast eiga viðskipti við utanríkisráðherrann þurfa að sama skapi að lúta þessu nýja regluverki á sviði varnarmála. Bæjarins bestu mega, svo dæmi sé tekið, ekki selja utanríkisráðherranum pylsu, því viðskipti með þær falla undir sömu skilgreiningar Varnarmálastofnunar á innri ógnum og óbeinum stuðningi við fjandsamleg ríki. Utanríkisráðherranum sjálfum er einnig alls óheimilt að neyta pylsa frá Bæjarins bestu

Landganga í Vestmannaeyjum er ráðherranum einnig óheimil. Takið vinsamlegast eftir fyrsta bókstafnum nafni eyjaklasans

Gert 3. mars 2025
Allsherjarvernd

 

Fyrri færsla

Á landmassa Gamla heimsins gilda ekki úthafslögmál


Á landmassa Gamla heimsins gilda ekki úthafslögmál

Kanínu-önd Kuhn-stökkbreytinga í hugsun manna

Því miður virðist gilda það sama um skoðanir manna í geopólitískum efnum og gildir oft í heimi vísinda. Andstaðan við nýjar staðreyndir minnkar aðeins í takt við líkamlegan dauða (jafnvel útdauða) þeirra sem neita að horfast í augu við þær

Að mæta Rússneska hernum á landmassa Gamla heimsins var og er enn eins og að vera á skellinöðru þegar þú mætir jarðgangaborvél í jarðgöngum, þ.e.a.s. ef þú ert flotaveldi. Slíkar staðreyndir eru afar þrjóskar. Allt önnur lögmál gilda á úthöfum veraldar. En jafnvel þar er forskot Bandaríkjanna að gufa upp fyrir nýrri kafbáta- og eldflaugatækni Rússa

Vladímír Pútín og Valery Gerasimov stilltu borvélina á þann hraða og það afl að hin Sérstaka hernaðaraðgerð Rússlands í Úkraínu virkaði eins og suðupottur sem sýður frosk við svo lágan hita að hann tekur ekki eftir því fyrr en um seinan - og þá er hann orðinn lamaður: vöðvaaflið er farið

Um tvo froska var að ræða; einn í Kænugarði og svo Joe Biden-gengið í Washington. Þessi í Washington var þess utan geðbilaður og urðu Rússar því að umgangast hann eins og barn sem er að leika sér með kjarnorkusprengjur foreldranna. Hann urðu Rússar að umgangast með sérstökum suðupotti og með því að þykjast ekki kunna á hann og með því að þykjast ekki geta neitt - nema í smásjá

Bakgrunns-súgþurrkun Gerasimov á NATO-ríkjunum er einnig aðdáunarverð strategía sem jaðrar við snilld. Þrýstiaflið (intensitetið) var alltaf haft þannig og það lágt að það kæmi aldrei til greina að kalla neitt þjóðþing Natóríkjanna saman til að forgangsraða þjóðarframleiðslunni á ný með nýrri stríðsfótarlöggjöf, eða hálf-stríðsfótarlöggjöf

Pútín og Gerasimov pössuðu sig á að hafa intensitet hinnar Sérstöku hernaðaraðgerðar aldrei meira en sem svaraði til fyrirfram tryggðu aðgerðaleysi á öllum þjóðþingum hinna ofdekruðu vesalinga NATO-ríkjanna. Aldrei mátti aflið vera það mikið að til greina kæmi að hinn vestræni þingheimur þyrfti að gangast í það ofurmannlega pólitíska stórvirki að lækka til dæmis örorkubætur flokksformanna - til að geta framleitt meira af vopnum og skotfærum

Nú er allt svo tómt í vopnabúrum Vestursins að það glymur í NATO eins og í tómri tunnu. Það mun taka sum ríkjanna minnst 30 ár að byrgja sig upp á ný

NATO er búið að vera: það er komið á örorkubætur

En Rússar munu ekki linna fyrr en nýr þjóðaröryggis-arkitektúr hefur verið saminn fyrir meginland Evrópu. Rússar munu diktera þá samninga og jafnvel tyggja þá ofan í hin nú fyrrverandi og druslugangandi Vesturveldi

Svona fer þegar óvitar pota prikum nógu lengi í sofandi björn

Fyrri færsla

Trump kom til dyra þegar sjálfstæður og fullvalda Starmer kom í heimsókn. Þokulúðrasveitin


mbl.is Bretar og Frakkar munu vinna að friði með Úkraínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband