Leita í fréttum mbl.is

Um hvað snérist Bakhmut?

HVAÐ VAR BAKHMUT?

Þegar Rússar, eftir 12 ára aðvaranir, ákváðu að sýna NATO-löndunum og Kænugarðsstjórninni fram á hve alvarlegum augum þeir litu fyrirhugaða innlimun Úkraínu í NATO, þá stilltu þeir upp vissum en takmörkuðum herafla við landamæri Úkraínu. Tilgangurinn var að sýna svo kölluðum "vesturveldum" fram á alvöru NATO-málsins. Að Rússar myndu ekki líða innlimun Úkraínu í þann félagsskap, dulbúinn sem "varnarbandalag" en sem nú hefur rústað friði í Evrópu. Rússar bjuggust þá við því að á þá sem málsaðila yrði að minnsta kosti hlustað. En það reyndust falskar væntingar. Enginn í vestri hlustaði

Þáverandi virkur og standandi landher Rússlands var þá tæplega helmingi minni en landher Kænugarðsstjórnarinnar. Allt þvaður vesturveldanna um að Rússar hygðust gleypa Eystarasaltslöndin var því fullkominn þvættingur og fjölmiðlauppspuni. Eystarasaltslöndunum stóð í raun meiri hætta af Kænugarðsstjórninni og afleiðum hennar, en af Moskvu með helmingi minni standandi herafla. Þess utan kæra Rússar sig hvorki um að stíga fæti né snerta á fársjúkri, úrkynjaðri og deyjandi Evrópu, þungt haldinni af banvænum þjóðberklum og geðbiluðu stjórnarfari er minnir Rússa mest á Marx-Lenín nalla-ofstækið forðum, en sem nú er orðið græn sextán kynja tortímingarvél alls og allra

Þegar þessi helmingi minni her Rússa fór síðan yfir landamærin og inn í þáverandi Úkraínu í febrúar í fyrra, þá var hann af nákvæmlega sömu stærð og sá sem stuttu áður hafði tekið sér stöðu við landamærin. Ætlun Rússa með hinni takmörkuðu innrás hernaðaraðgerðarinnar var að þvinga NATO-stjórnvöld vesturlanda og hið eins-flokks, en komandi fasistaríki Kænugarðs að samningaborðinu

Ég er ekki einn um að koma auga á að Úkraína er í dag orðin eins flokks fasistaríki. Hið sama segir Douglas Macgregor fyrrum ofursti Bandaríkjahers og þriðji æðsti maður bandaríska varnarmálaráðuneytisins í stjórnartíð Donalds J. Trumps. Og einhverra hluta vegna hafa bandarískir þingmenn, nú hengdir í gömlum geislabaugum, engan áhuga á að heimsækja "stjórnarandstöðuna" í því gerspillta Úkraínulandi sem þeir fjármagna og halda á floti núna, án nokkurs samráðs við bandaríska kjósendur. En það hefur verið föst leiksýning bandarískra þingamanna með geislabaug er þeir heimsækja fjarlæg lönd sem hafa ekki ríkisstjórnir sem þeim er að skapi. Í dag yrðu þeir teknir af pólitísku lífi í Bandaríkjunum, eins og í draumalandi Jósefs Stalíns í gamla daga, ef þeir myndu voga sér slíkt. Jósef Biden og gengi hans í rauða Hvíta húsinu með aðstoð sorpmiðlaveldis Bandaríkjanna myndi sjá fyrir því

En einnig þær væntingar Rússa reyndust falskar, því í vestri var enginn sem hlustaði og málfrelsið í þessum efnum í vestri hafði verið afmunið. Enginn vildi tala um neitt við Rússa af ótta við vestræna útskúfun vestrænna þjóðberklasjúklinga, og þar undir heyra nær allir fjölmiðlar vesturlanda

Greip Rússlandsstjórnin þá loksins til þeirra ráða að knýja fram lausn er alfarið yrði á skilmálum Rússa. Sergey Vladimirovich Surovikin hershöfðingi rússneska flughersins var skipaður yfir hinni sérstöku hernaðaraðgerð Rússa í Úkraínu og yfir honum var Valery Vasilyevich Gerasimov æðsti yfirmaður alls herafls Rússlands

STÓR-STRATEGÍA SMÍÐUÐ Á STAÐNUM

Surovikin ákvað síðan í september 2022 að reisa "varnarmúr" um þann árangur er þá þegar hafði náðst, og sem Úkraínuher yrði síðan boðið að ráðast á á meðan annar herafli Rússlands yrði byggður upp að baki varnarmúrsins, því hinn standandi landherafli Rússlands var, eins áður er getið, helmingi minni en sá sem NATO hafði fóðrað og byggt upp í Úkraínu á undanförnum 7-10 árum

Væntingar Surovikins –sem kann að lesa herstjórn NATO-landa– voru þær að Úkraínuher í vösum ábyrgðarlauss NATO myndi ekki standast freistinguna að kasta sér í massavís á varnamúrinn sökum þeirra alröngu ályktana sem allsráðandi ríkja um Rússland innan NATO ásamt þeim kolröngu ályktunum NATO-landanna sem dregnar voru af fyrstu mánuðunum fyrir og eftir að hin sérstaka hernaðaraðgerð Rússlands hóst í febrúar 2022. En sjálf deilan hófst hins vegar 2014. Sjálft Úkraínustríðið hófst 2014 og jafnvel svo snemma sem sumarið 1941, sé kafað nógu djúpt í þetta mál, þ.e. hina síendurteknu aðför trylltra vesturlanda að Rússlandi

Frá því að Surovikin fékk samþykkta hina stór-strategísku hernaðaráætlun sína hefur Kænugarðsstjórnin kastað hermönnum sínum svo hundruð þúsundum skiptir á þennan varnarmúr Surovikins. En Surovikin gætti þess þó alveg sérstaklega að hafa allar færar leiðir og þurra vegi fyrir Úkraínuher opna beint inn í Bakhmut, svo að sem mestum mannaafla Úkraínuhers væri gert mögulegt að kasta sér á múrinn þar, í boði NATO-landa, og kála sér - óháð árstíma, veðurfari og færð annars staðar í landinu

Mánuðum saman hefur því sama sagan endurtekið sig í Bakhmut:

1) Rússar sækja lítið eitt fram og nýrri bylgju af úkraínskum hermönnum undir stjórn fjarverandi NATO-pólitíkusa í Rauðu-Washington, trúðaborg Lundúna, stjórnlausri París og úrkynjaðri Berlín er kastað á múrinn og líkin hrannast upp

2) Þá kemur smá hlé

3) Rússar gefa örlítið eftir og sýna passandi veikleikamerki, og enn fleiri úkraínskum hermönnum er þá skipað inn í þá vasa sem Rússar viljandi opna

4) Vasarnir lokast um Úkraínuherinn á þrjá kanta, og þeim og vopnum þeirra er tortímt

5) Síðan hefst nýtt ferli með passandi en örlitlum síbreytileika eins til dæmis skyndilegri bjölluhringingu einhverstaðar í norðri, með annarskonar tóntegund í vestri og leiktilburðum í suðri, en síðan er boltinn látinn skoppa á ný til Bakhmut og rúlla þar við múrinn áfram

Svona hefur laxinn verið þreyttur á önglinum og látinn hendast fram og til baka í landinu, eyða sem mestri orku og kasta sér til einskis á múrinn, frá því að Surovikin var falin herstjórnin

Sjálf borgin Bakhmut eða staðurinn sjálfur skiptir Rússa engu máli, fyrir utan þá Rússa er þar búa og er oft af Kænugarðsstjórninni haldið sem gíslum eða skjöldum í kjöllurum bygginga sem Wagner-sjálfboðaliðasveitir Rússlands eru síðan látnar frelsa og hreinsa. Það sem skiptir hins vegar öllu máli er að stríð fara fram (þau eiga sér stað) og þau eru háð þar sem heröflin mætast. Þau öfl geta til dæmis mæst úti á miðjum og lítilsnýtum mykjuakri eins og Gettysburg eða í Fyrri heimsstyrjöldinni eða í kringum minniháttar borg sem litlu hernaðar-strategísku máli skiptir. Það eina sem skiptir máli er að fá andstæðinginn til að ausa mannafla sínum á bálið, því stríð vinnast með því að tortíma her andstæðingsins, en ekki með því að hertaka land hans. Þegar herinn er fallinn og landið þar með afvopnað þá geta menn síðan gert það sem hentar best við þann landmassa sem hinn fallni her átti að verja. Slíkt er því seinnitíma viðfangsefni. Númer eitt er að afvopna andstæðinginn. Og í þessu tilfelli valdi Surovikin að byggja múr sem andstæðingunum var boðið að kasta sér á. Og það er einmitt það sem Kænugarðsstjórnin í vösum NATO hefur gert

En að baki þessa múrs Surovikins sendur nú stórefldur herafli alls Rússlands og sem ekki hefur verið öflugri í allháa herrans tíð, sem líklega er 40-45 ár. Nú er því komið að þeirri spurningu; hvaða og hvernig lausn málsins fellur best að hagsmunum Rússlands? Aðeins 20 prósentum af landherafla Rússa hefur hingað til verið beitt í þessari deilu

Á þessu tímabili frá því í febrúar 2022 hafa Rússar;

1) Náð hinum rússneskumælandi hlutum Úkraínu í austri á sitt vald og vernda þeir nú eftir bestu getu íbúana þar. Kænugarðsstjórnin er þó enn að skjóta á rússnesku borgarna á óvörðum stöðum þar, því henni hafa áskotnast langdrægari skotflaugar úr vestri til þess. Sú skothríð hefur staðið yfir í meira en 7 ár

2) Tæmt skotafærageymslur allra 30 NATO-landanna og þrýst vesturlöndum í keng í þeim efnum

3) Tortímt öllum þeim vestrænu vopnategundum sem Kænugarðsstjórninni voru látnar í té

4) Tortímt öllum þeim vopnum sem vesturlönd þóttust ein ráða yfir

5) Tætt Patriot loftvarnarkerfi Bandaríkjamanna í spón og látið Kænugarðsstjórnina brenna 32 flaugum þess af á tveimur mínútum fyrir um það bil 170 milljón Bandaríkjadali, en ársframleiða Bandaríkjanna af Patriot-flaugum er ekki nema 300-400 stykki. Patriot-mínútan í Úkraínu kostaði því um það bil 85 milljónir dala

6) Náð niður verðbólgu og sem nú er minni en á vesturlöndum

7) Komið hagvexti í gang þrátt fyrir að sitja undir mestu refsiaðgerðum sem eitt ríki hefur nokkru sinni verið beitt

8) Látið vesturlönd koma sjálfum sér á kné sem óbeinum fórnarlömbum eigin refsiaðgerða. Nýjasta dæmið eru fyrirhugaðar refsiaðgerðir Marx-Lenínveldis Evrópusambandsins og Bandaríkjanna á hrádemanta, en Rússar sjá heimsbyggðinni fyrir 70 prósentum af þeim. Sú framleiðsla Marx-Lenínveldis Evrópusambandsins mun því verða flutt til Dúbaí og Mumbai (áður Bombay) og Belgía ein og sér missir þar með 15 prósentur af útflutningi sínum

Talið er að meira en tvær milljónir Þjóðverja hafi nú flutt til Rússlands á undanförnum árum og ætli sér ekki til baka til afiðnvædds Þýskalands Marx-Lenínistanna, sem þar eru önnum kafnir við að frelsa Þjóðverja og helst heiminn allan undan oki iðnaðar og kapítalisma og að kenna þeim kynskipt kynjafræði grænheima og að bíta gras

Hvað næst? Já það er góð spurning. Satt að segja treysti ég mér ekki til að koma nánar inn á framtíðarmöguleika Rússlands núna, því það yrði allt of langt mál. En horfurnar eru slæmar fyrir restina af Úkraínu

Allt þetta er að gerast á meðan íslenskir stjórnmála- og embættismenn megna ekki einu sinni að stöðva innrás óvopnaðs erlends flökkulýðs með flugvélum sem allir vita hvar hefja sig til flugs og lenda og virkar eins og erlend haugsuga beint ofan í ríkissjóð okkar Íslendinga, og sem lúsafaraldur á þjóðríki okkar, og sem gæti reynst okkur sem þjóð banvænn

UM RÚSSLAND

Í nýlegri hagspá AGS, það er hins svo kallaða Alþjóðagjaldeyrissjóðs (ekki veit ég þó hver þessi "alþjóð" sjóðsins er), segir að raunhagvöxtur í Rússlandi hafi verið mun betri á síðasta ári en sjóðurinn spáði fyrir um. Það er að segja; samdráttur varð miklu minni en spáð hafi verið, þrátt fyrir refsi-, þvingunar,- og þjófnaðaraðgerðir vesturlanda til höfuðs Rússlandi, sem eru sennilega þær mestu í sögu mannkyns. Á þessu ári (2023) segir AGS að hagvöxtur í Rússlandi verði jákvæður og að á næsta ári verði hann meira en tvöfalt meiri en í Bandaríkjunum, nærri þrisvar sinnum meiri en í Bretlandi, Ítalíu og Japan, og nærri tvöfalt meiri en í Þýskalandi og Frakklandi

Vesturlönd, sem fóru að viðstöðulausum 40-ára ráðum AGS, geta sjálf ekki framleitt neitt að ráði lengur og verður verðbólga á vesturlöndum á næstu árum því mun meiri en AGS þorir að láta uppi í spá sinni. Allt sem heitir vestræn makróhagfræði liggur nú í tætlum um öll vesturlönd, ofan í fjöldagröf hins úthýsta framleiðsluhagkerfis þar, og eru dýrðardagar makróhagfræðinnar ásamt þvælunni um að sjálfstæði seðlabanka myndi redda öllu, nú algjörlega liðnir. Framundan á vesturlöndum er pólitískur barningur þar sem stjórnmálin snúast um að steindrepa allt það sem kom vesturlöndum upphaflega á fætur. Það verður gert með grænum kommúnisma úr heiðnikirkjuveldi vestrænna háskóla ásamt öðru menntarugli frumfábjána menntabólunnar, sem sennilega er lengsta og stærsta fjármálabóla mannkynssögunnar

AGS talar einnig um geopólitísk uppbrot í heiminum og þar á sjóðurinn við –en þorir ekki að segja það hreint út– að stórskotalið vestrænna menntamanna hefur skotið sig í gegnum höfuðið niður í báðar bætur þegar að Úkraínudeilunni kemur og eru afleiðingarnar þessar;

1) Flekum fjölgar og fleki vesturlanda breytist í bráðnandi ísjaka.

2) Einn innsti og barmafyllsti koppur í því búri var Angela Merkel er dáð var ákaft af flokksforystu Sjálfstæðisflokks vinstri græningja hér heima, ásamt merkantílistísku gervihnattaliði hennar, þar sem streymisveitur þjónustuhluta hagkerfanna áttu að sjá um að fóðra fallbyssur þeirra - og sem síðan sáu um að skjóta það lið í báðar fætur

Iðnaðarhluti rússneska hagkerfisins er nú orðinn miklu stærri og öflugari en samsvarandi hluti þýska hagkerfisins (VLF:PPP) og er þá litið burt frá hergagnaframleiðslu. Sum fallandi vestræn ríki hafa þó reynt að punta upp á landsframleiðslutölur sínar með því að meta vændi og sölu eiturlyfja inn í þær. Í tilfelli Þýskalands, úrbræddu vélarinnar í evrunni, er þjónustuhluti hagkerfis þess 69 prósentur af landsframleiðslunni en samsvarandi tala í Rússlandi er aðeins 63 prósentur. Í Bandaríkjunum er þetta hlutfall heilar 79 prósentur. Og eins og flestir vita nú, þá gengur illa að nota það sem vellur af stafrænu suði úr streymisveitum vesturlanda í sjálfstæðis,- fullveldis,- landvarna,- og hernaðarskyni. Slík þjónusta hefur ekkert þjóðhagslegt gildi þegar salernisseta vesturlanda brennur eða þegar um tilvistarmikilvæg mál er að ræða

RÚSSLAND ER;

1) Stærsti útflytjandi heims af hveiti

2) Stærsti framleiðandi veraldar af byggi, bókhveiti, rúgi og höfrum og næst stærsti framleiðandi heims af sólblómafræjum

3) Rússland er næst stærsti framleiðandi heimsins af platínu, kóbalti og vanadíum

4) Rússland er þriðji stærsti framleiðandi veraldar af gulli og nikkeli og fjórði stærsti framleiðandinn af silfri og fosfati

5) Rússland er fimmti stærsti framleiðandi heims af járngrýti og sjötti stærsti framleiðandi veraldar af úrani og blýi

6) Stálframleiðsla Rússland er á pari við eða meiri en öll stálframleiðsla Bandaríkjanna

7) Rússland er einnig stærsti útflytjandi heims af jarðgasi og á heimsins stærstu óunnu birgðir af því

8) Og Rússland er næst stærsti útflytjandi heimsins af olíu

9) Við skulum ekki minnast á sjaldgæfa málma eins og títan, en lendingarbúnaður flugvéla ásamt dyraopum og berandi bitum í flugvélum Boeing og Airbus er að mestu leyti úr títani frá Rússlandi. Til dæmis var öll Lockheed SR-71 Svartþrastarflugvél Bandaríkjanna byggð úr títani frá Rússlandi. Það er ekki tilviljun að Boeing var með miklar rannsóknar- og þróunarmiðstöðvar í Rússlandi

10) En nú eru nýjar rússneskar farþegaþotur, sem afleiðing af heiladauða vesturlanda, á leið í samkeppni við Boeing og Airbus á þeim mörkuðum sem hata Bandaríkin og NATO meira en þeir hata Rússland og er þar um meira en helming heimsbyggðarinnar að ræða

11) Rússland útskrifar mun fleiri verkfræðinga og raunvísindamenn en Bandaríkin gera árlega, þrátt fyrir tvöfalt stærri mannfjölda Bandaríkjanna

12) Rússland var og er leiðandi í geimferðatækni og getu. Fyrsti maðurinn út í geim var Rússi

Rússland er sem sagt fullvalda stórveldi. Rússland er stærsta land veraldar og Moskva er stærsta borg Evrópu og Rússland er fjölmennasta ríki Evrópu. Þannig ríki sem framleiðir gnótt matar, hita, orku, innviði og vopn til verndar fyrir þjóð sína, verður ekki lagt að velli sama hvernig mönnum líkar stjórnvöld þess eða ekki, einkum í lygapressum vestrænna fjölmiðla. Ég efast orðið um að dagblöð verði enn þá til á vesturlöndum eftir 10 ár

Rússland er ekki eins flokks fasistaríki eins og Úkraína er orðin í höndum Vesturlanda. Rússar geta hvenær sem er og auðveldlega losað sig við þjóðarleiðtoga sína, sé það vilji þjóðarinnar. En fordæmin um pólitíska allsherjarupplausn, úrkynjun og geðklof vesturlanda blikka nú sem risavaxin aðvörunarskilti hvern einasta dag á himninum yfir öllu hinu víðfeðma ríki Rússlands. "Við viljum ekki verða eins og vesturlönd". "Allt sem kommúnistar sögðu okkur um kommúnismann reyndist lygi, en flest það sem þeir sögðu okkur um vesturlönd reyndist því miður rétt", segja Rússar. "Við viljum ekki stíga fæti okkar inn í Evrópu á ný. Aldrei aftur"

Fyrri færsla

Komst ekki upp í MiG-25 flughæð


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Hefurðu fengið tilskilin leyfi hjá Ríkisstjórninni til að benda á þessar rekjanlegu staðreyndir?

Bestu kveðjur

Guðjón E. Hreinberg, 23.5.2023 kl. 12:50

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir Guðjón

Það er enginn ríkisstjórn í landi okkar. Landið okkar er stjórnlaust, eins og sést.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 23.5.2023 kl. 12:55

3 Smámynd: Einar Sveinn Hálfdánarson

Biblían segir að við verðum öll dæmd af verkum okkar. Verkin innifela orð. Þú þarft að íhuga verk (orð) þín vel  fyrir dómsins efsta dag.

Einar Sveinn Hálfdánarson, 23.5.2023 kl. 21:23

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Takk fyrir innlitið og lesturinn Einar.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 23.5.2023 kl. 21:42

5 Smámynd: Guðmundur Jónsson

Nato þjóðirnar ráða sumar yfir kjarnavopnum og þær eru komnar út í horn með þetta strið og við þeim blasir ósigur í hefðbundnu stríði. Það eru því margir með lykla að kjarnavopnum að leita að útgönguleið núna.

Góð samantekkt á þessu Gunnar. 

Guðmundur Jónsson, 24.5.2023 kl. 14:36

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir innlitið, athugasemd og væn orð Guðmundur.

Mig grunar að Rússar líti svo á að það sé bara eitt kjarnorkuvopnaveldi innan NATO og að það sé allt NATO og þar undir séu Bandaríkin, Bretland og Frakkaland undir einum og sama hattinum og sem ekki er mögulegt að skilja á milli við notkun slíkra vopna.

Hvorki Bretar né Frakkar myndu þora að nota kjarnorkuvopn sín nema að álita sig einnig verandi undir kjarnorkuvopnaregnhlíf Bandaríkjanna, nema að um minniháttar og kjarnorku-óvopnaðan andstæðing sé að ræða.

Já vestrið er búið að mála sig út í horn með málningarfötunni sem opnaðist og ausið var úr um leið og ríkisstjórn Jósefs Bidens tók við völdum.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 24.5.2023 kl. 16:20

7 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Þetta er mjög vandað eftir þig Gunnar og gefur fólki upplýsingar og sjónarhorn sem þarf að leita að með stækkunargleri í erlendum fjölmiðlum til að fá. Ekki tel ég mig dómbæran á öll þessi smáatriði sem þú nefnir, en að minnsta kosti finnst mér ég skilja betur hversvegna Rússlandi gengur mun betur en RÚV fólkið telur og DV og fjölmiðlafólki þar.

Almennar fréttir eru þýðingar á erlendum áróðri einatt hjá Rúv og co. 

Ég var að lesa á tímarit.is í dag, frétt frá tíma Jeltsíns, þar sem hann biðlar til Vesturlanda um lán og hjálp, efnahagurinn í rúst, fyrir um 26 árum.

Miðað við að nú eru öll Vesturlönd á móti Pútín og Rússlandi og efnahagurinn mun betri en búist var við, verður að segja að Vesturlönd þurfa að læra af því, skilja að þau eru kommúnísk, múrinn féll í vestur, eins og þú hefur skrifað um áður.

Takk fyrir vandaða pistla.

Ingólfur Sigurðsson, 26.5.2023 kl. 02:03

8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Ég þakka þér fyrir vandaða athugasemd Ingólfur og væn orð.

Já fréttir af málinu hér á Íslandi hafa að 95-prósent leyti verið innfluttur áróður af verstu tegund úr ranni algjörlega sturlaðs liðs í Hvíta húsinu og þar með Pentagons líka.

Og sú staðreynd vekur síðan upp þá spurningu hversu miklu lugu íslenskir fjölmiðlar að okkur í Kalda stríðinu. En það stríð var frá upphafi fyrst og fremst keyrt áfram á lygum fjölmiðla, ofstæki og afbökun og skilningsleysi á því sem fram fór í Síðari heimsstyrjöldinni.

Ég býst við að þeir íslensku hafi þar logið að minnsta kosti jafnmikið og þeir í Bandaríkjunum lugu.

Við sáum til dæmis bandaríska fjölmiðla ljúga Richard Nixon úr embætti þjóðkjörnasta forseta landsins nokkru sinni, þannig að tortímingarmáttur þeirra er mikill.

Svona illkynja Rússafóbía eins og vesturlendingar hafa verið haldnir þrífst ekki án kerfisbundins lygasamtakamáttar vestrænna fjölmiðla, og sem nú eru því á síðasta snúningi og hafa grafið sér sína eigin gröf með miklum glans og háheimsku.

Sem betur fer rennur áskrift mín að Wall Street Journal og tígulgossandi barblaði breska Telegraph út á þessu ári og verður ekki endurnýjuð, þannig að þá verð ég ekki lengur að borga fyrir rusl, nema í formi nauðungar-sovétáskriftar minni að skaðræðinu DDRÚV.

Bestu kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 26.5.2023 kl. 11:19

9 Smámynd: Kristinn Bjarnason

Gunnar ég er sammála að það er engin við stjórnvölinn á Íslandi. Það sem meira er að það virðist ganga laus hópur fólks sem kemst upp með að draga þjóðina í svaðið. Hver hefur gefið þessu fólki leyfi til að fara í stríð við Rússa? Hefur þetta fólk leyfi til að nota skattfé almennings sem hvatningu til manndrápa? Hver hefur gefið þessu fólki leyfi til að færa eignir almennings til bankanna í formi verðbólgu og vaxta. Einhverjir sprenglærðir einfeldningar hafa komist að því  að eina leiðin til að lækka heimatilbúna verðbólgu sé með því að ráðast á fátækasta fólkið. Stærsta ástæða verðbólgunnar er innflutningur á fólki í gífurlegu magni sem allt þarf mat og húsnæði. Það svarar því enginn hvernig sauðsvartur almúginn á að standa undir þessu. Mér skilst að meira en helmingur vinnandi fólks nái ekki endum saman. Þessir svokölluðu stjórnendur á Íslandi vinna mjög ötullega gegn almenningi.

Núna er veisla hjá bönkunum og alltaf hjá hinu opinbera sem mun éta okkur upp til agna.

Kristinn Bjarnason, 26.5.2023 kl. 19:08

10 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir innlit og góða athugasemd Kristinn.

Við vitum að Bandaríkin búa við de-facto forsetaeinræði núna sem og oft áður í sögunni, og við vitum einnig að Bandaríkin virðast vera að breytast í bananalýðveldi sem varla er fært um að halda kosningar á heiðarlegan hátt og sem varla myndu líða neinu öðru landi að standa eins ömurlega að kosningum og þau gera sjálf heima hjá sér.

En hvorugum okkar, greinilega, grunaði hins vegar að hér stæði fyrir dyrum að rústa okkar eigin landi á svipaðan hátt með innfluttu ESB-alræði frá umboðslausasta fyrirbæri jarðar. Við vissum greinilega ekki heldur að allt í einu væri það talið til fyrirmyndar að flytja eigur Íslendinga yfir til einsflokks fasistaríkis og að drekkja íslenskri þjóð með innfluttum flökkulýð með bananaskrílveldi í farteskinu ásamt tilheyrandi verðbólgubáli.

Ég vona bara að vaxtamúrinn sem Áseir seðla er að reisa verði nægilega hár og stór til þess að það fólk sem hér heppar sem mest á þennan ömurleika geti hent sér á múrinn og kálað sér svo kyrfilega pólitískt séð á honum að við fáum betra stjórnarfar í landi okkar en það sem viðhaft er núna. Að múrinn hans Ásgeirs nái að hreinsa út þá sem tortíma vilja bæði íslenskri þjóð og landi hennar, því ekki gerir ríkisstjórnin það.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 26.5.2023 kl. 20:01

11 Smámynd: Kristinn Bjarnason

Svo halda allir áfram eins og ekkert hafi gerst. Ég sé ekki neina leið útúr þessu aðra en stóran skell. Almenningur því miður nýtir ekki tækifærin þegar þau bjóðast eins og t.d. að kjósa Sigmund Davíð sem nánast einn síns liðs bjargaði þjóðinni frá skuldafeni. Það er umhugsunarefni hversu slæmt það er fyrir þjóðina þegar það gengur vel(mikill hagvöxtur). Það er búið að ganga svo vel síðustu ár að meira en annar hver vinnandi maður er opinber sem flestir ættu að sjá að getur ekki annað en endað illa. Stóra vandamálið sem opinberir þurfa að fást við þessa dagana er að almenningur er með allt of mikið á milli handanna líka þeir sem ná ekki endum saman. Þrátt fyrir gífurlega háar þjóðartekjur erum við eins og lauf í vindi. það virðist ekki mikið þurfa utaf að bregða til að allt hrynji. Getur verið að Ísland sé orðið mesta kommúnista þjóðfélag í vesturheimi?

Það sést greinilega að kommúnisminn er við völd sem mun naga okkur inn að beini.

Kristinn Bjarnason, 27.5.2023 kl. 07:35

12 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Mikið er eg sammála þér Gunnar og flestum sem taka hér til máls. Rússland er að standa af sér árás Stór-Vestursins (ÁSTRALÍA, JAPAN, S-KÓREA)sem fylgja nú NATO eins og hlýðnir rakkar. Og smámsaman er fólk að vakna til vitundar um lygavefinn sem það er matað á af stjórnvöldum og fjölmiðlum.

Mig langar að bæta aðeins við það sem þú sagðir um þjóðverjana sem hafa flúid til Rússlands. Rússar hafa nefnilega sett í lög að bandarískir ríkisborgarar fái framlengda vísa-uppáskrift sem leyfir þeim að taka ákvørðun hvort þeir vilja setjast þarna að. Að auki eru Rússar að byggja þorp í úthverfi Moskvu fyrir þessa tilvonandi flóttamenn. Má ætla að Rússar séu að hluta að øgra Kananum, en fleiri og fleiri eru að átta sig á blekkingarvefnum sem spuninn er hér á Vesturlöndum og vilja út. 

Ragnhildur Kolka, 27.5.2023 kl. 10:35

13 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir innlitið og athugasemd Ragnhildur

Sei sei Ragnhildur. Rússar skutu allstórt gat á skýin hér yfir Vesturlandi í morgun þannig að sú kringlótta hefur skinið um stund og það hætti að rigna. Ég hafði nefnilega beðið rússneska sendiherrann um þennan smágreiða og greinilegt er að þeir urðu við bón minni.

Hvað skyldi Njósnaveiðifélagið mikla segja við þessu... - þ.e. njósnaveiðifélagið sem lætur hjá liða að geta þess að Alþjóðaflugmálastofnunin segir að FR4978 hafi ekki verið þvinguð niður og að Roman Protasevich sé nú frjáls maður. Meira um málið hér á MoA.

Ég held ekki lengur að sameinað NATO, sem aldrei er sameinað nema í kvöldverðarboðum í Brussel, sé fært um að hagga neinu þó svo að til beinnar viðureignar kæmi milli þess og Rússlands. NATO og þar með Bandaríkin töpuðu hefðbundna vopnakapphlaupinu við Rússland fyrir mörgum árum síðan og í loftvarnarmálum töpuðu Bandaríkin því kapphlaupi þegar í kringum 1950. Og Bandaríkin eru hvergi landherveldi nema heima hjá sér í Norður-Ameríku.

Rússland á eftir að verða aðdráttarafl fyrir marga í mörgum löndum í framtíðinni og þau munu soga til sín margt af því sem áður átti aðeins heima á vesturlöndum. Það held ég að sé að verða óhjákvæmileg afleiðing innvortis sjálfsmorðs okkar.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 27.5.2023 kl. 13:19

14 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þú sérð vígvölinn Kristinn. Grænkommar ráða orðið flestu og lítið gott er á stefnuskrám neinna flokka nema Miðflokksins. Hann mun auðveldlega þrefalda fylgi sitt fyrir næstu kosningar. Því spái ég - og tek undir orð þín um afrek Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, heillastjörnu Íslands, hvorki meira né minna.

Gunnar Rögnvaldsson, 27.5.2023 kl. 13:21

15 Smámynd: Kristinn Bjarnason

Gunnar, það eina sem truflar mig er að eftir þessa frábæru frammistöðu Sigmundar og hvernig hann var svikinn á alla kanta af þessum tindátum sem eru við völd núna þá var ég mjög bjartsýnn á að hann yrði metinn að verðleikum og fannst einhvern veginn að nú væru breytingar í aðsigi. Ég í einfeldni minni hélt að hann fengi hreinan meirhluta. En upp úr kössunum komu aðeins 10 eða 12%. Það er gamalt máltæki sem segir þangað leitar klárinn þar sem hann er kvaldastur. Einhver annar sagði ef kosningar skiptu máli þá fengjum við ekki að kjósa. Það má segja að ég sé hóflega bjarsýnn á að almenningur gefi fólki tækifæri sem á það skilið.

Það sem okkur Íslendiga skortir mest er sjálfstæð hugsun.

Kristinn Bjarnason, 27.5.2023 kl. 17:36

16 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Að minnsta kosti hefur það verið þannig, Kristinn, að þeir tveir Davíðar, Davíð Oddsson og Sigmundur Davíð hafa ekki fengið rétt útborgað fyrir hetjuskap sinn, eingöngu vegna skoðana sinna.

Glórulausa vinstra-grænkratapakkið og vinstra-grænkommaliðið sá fyrir því með persónulegum ofsóknum á hendur þeim báðum. En allt það lið er versta sort hvers einasta þjóðríkis, en dafnar hins vegar í vændisfélögum á borð alþjóða-hitt- og alþjóða-þetta. Við lifum því á sovéskum tímum á vesturlöndum núna: það versta er hafið til skýjanna á meðan það besta er troðið undir.

Gunnar Rögnvaldsson, 28.5.2023 kl. 11:34

17 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

´Sæll Gunnar! Mikill léttir að sjá þig hér þungvopnaðann eins og áður og hve margir fagna. 

Helga Kristjánsdóttir, 28.5.2023 kl. 15:01

18 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér fyrir innlitið og væn orð Helga.

Bestu kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 28.5.2023 kl. 17:47

19 Smámynd: Kristinn Bjarnason

Mér finnst stundum eins og ég sé staddur á geðveikrahæli og vistmenn ráði ferðinn.

Kristinn Bjarnason, 29.5.2023 kl. 13:24

20 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Það er einmitt sú ályktun sem Rússar hafa dregið af því sem fram fer á vesturlöndum, Kristinn. Og það hræðir þá.

Til dæmis þetta:

Fyrir valdarán NATO og vesturlanda í Kænugarði 2014 sögðu vesturlönd einróma að engum í Evrópu stafaði ógn af Rússlandi. Meira að segja fóru leiðarar Morgunblaðsins lofsamlegum orðum um þjóðarleiðtoga Rússa og um Rússland sjálft og þann árangur sem náðst hafði eftir upplausn Sovétríkjanna.

En eftir valdarán vesturlanda í Kænugarði 2014 sögðu vesturlönd hins vegar einróma að öllum í Evrópu stafaði allt í einu ógn af Rússlandi. Það var auðvitað eingöngu sagt til að breiða yfir það sem allir vissu: að það voru NATO-löndin sem stóðu að valdaráninu og sem í kjölfarið voru orðin smeyk um að almenningur á vesturlöndum myndi kenna NATO um að Rússland stökk þá til til að vernda Krím, og að NATO hafði þar með næstum með öryggi startað stríði við Rússa.

Allt sem er að gerast með og í kringum Úkraínu er NATO að kenna. Allt.

Já vesturlönd eru orðin galeanstalt.

Gunnar Rögnvaldsson, 29.5.2023 kl. 13:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband