Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2014

25 sinnum sterkari hagvöxtur en á evrusvæðinu

23 desember 2014

Horft vestur: 23. desember 2014 á Vesturlandi

Hagvöxtur í Bandaríkjum Norður-Ameríku var 5 prósent á þriðja fjórðungi þessa árs miðað við annan fjórðung ársins. Þetta er 25 sinnum sterkari vöxtur velmegunar en á evrusvæðinu, sem einungis reyndist 0,2 prósent á sama tímabili

Á milli ára er velmegun Bandaríkjanna vaxin um 2,7 prósent á þriðja fjórðungi miðað við sama tímabil síðasta árs. Á evrusvæðinu reyndist þessi vöxtur á milli ára aðeins 0,8 prósent og framtíðarhorfurnar eru þar enn ömurlegri

Evrusvæði Evrópusambandsins er orðið að versta hagvaxtarsvæði veraldar og því bera elítustéttir sambandsins algerlega ábyrgð á. Þær hafa rænt framtíðinni frá núverandi og komandi kynslóðum meginlandsins. Þetta samband hefði ekki þurft að verða svona Guðleysislega sovéskt 

Ég óska öllum gleðilegrar jólahátíðar

Fyrri færsla

Seðlabanki Írlands setur þak á húsnæðislán undir evrunni  


Seðlabanki Írlands setur þak á húsnæðislán undir evrunni

Vísitala nafnverðs fasteigna á Írlandi

Mynd; Vísitala nafnverðs fasteigna á Írlandi

Vegna þess að Írland tók upp evru liggur húsnæðismarkaður írsku þjóðarinnar í rúst. Frá 2007 til 2013 er húsnæðisverð fallið um meira en helming og eru húsnæðiseigendur hafnaðir í lokaðri og læstri peningapólitískri gildru myntar sem þeir hafa minna en ekkert um að segja. Fjármálabóla ECB-aukaseðlabanka Þýskalands sprengdi hagkerfi Írlands í tætlur og brauðfótagerði fjármálakerfi Íra

Nýjar reglur um húnsæislán munu taka gildi á Írlandi í janúar næstkomandi. Undir þeim munu Írar ekki geta tekið samanlagt stærri húsnæðislán í neinum fjármálastofnunum en sem nemur meira en 3,5 sinnum árstekjum lántaka og hæst 80 prósenta af kaupverði

Sem sagt; á meðan íslenskir húsnæðiseigendur hafa komið betur en flestar þjóðir út úr fjármálakreppu —og sem nú er yfirstaðin á Íslandi— þá rignir teppasprengjum evrulands ennþá yfir Írland og svo mun verða þar í landi um mörg ókomin ár og áratugi

Atvinnuleysi á Írlandi undir evru er nú 11 prósent. Írland er dæmt evruland. Atvinnuleysi á Íslandi undir krónu er hins vegar 5 prósent og lýðræðis- og hagvaxtarhorfur lands okkar eru góðar, svo lengi sem við göngum aldrei í Evrópusambandið

Krækja

Irish central bank urged to ease mortgage restrictions (FT)

Fyrri færsla

Rússnesk kvöldmáltíð


Rússnesk kvöldmáltíð

French President Francois Hollande floated the prospect of scaling back sanctions on Russia, becoming the first major European Union leader to offer to ease the Kremlin’s economic pain | Bloomberg

Sporðrenndi í gærkveldi rússneskum kvöldmat í tilefni af deeper thinking Mr. Hollande Frakklandsforseta gagnvart Rússlandi. Fullt af marineraðri íslenskri jólasíld (sögulega helsti próteingjafi Rússa), miklar og soðnar kartöflur úr garðinum og heimabakað Mom-brauð með íslenskri spægipylsu, sem er svona ca. 100 sinnum betri en sú danska, heh. Amerískar hentur úr Kosti urðu svo eftirmaturinn á undan rjómarúsínusúkkulaðinu, frá þið vitið hverjum. Svo drakk ég kaffið hans Simma æskuvinar sem lyft hefur Grettistaki á íslenska kaffimarkaðnum, namm, gott gott, hreinn lúxus

Hvað er veðrið nú að æsa sig, einu sinni enn . .

OECD HEALTH WORKING PAPERS NO.41 - THE REMUNERATION OF GENERAL PRACTITIONERS AND SPECIALISTS IN 14 OECD COUNTRIES

Svo virðist sem Fjármálaráðuneytið hafi komist yfir 2008-desember rannsókn OECD á kjörum meðal annarra íslenskra lækna, þar sem fram kemur að þeir séu best launuðu læknar hins ríka hluta veraldar í hlutfalli við meðallaun í landinu. Eru með 3,5 sinnum meðallaun á Íslandi. Hærra launaðir en bandarískir kollegar þeirra —sem eru með 3,4 sinnum meðallaun í Bandaríkjunum— og sem ofan í kaupið standa fyrir eigin atvinnurekstri, þ.e. taka sem sagt sjálfir áhættu og ábyrgð á eigin kjörum með því að vera ráðnir hjá sjálfum sér

Og ég sem hélt að svona sovéskt heilbrigðiskerfi eins og á Íslandi gengi út á "jöfnuðinn" fræga, sem kálaði svo vandlega borgurunum í Sovétríkjunum, én masse

Fyrri færsla

Norska krónan í frjálsu falli í dag


Norska krónan í frjálsu falli í dag

NOKUSD og RUBUSD þann 16 des 2014 - Yahoo

Mynd Yahoo; norsk króna og rússnesk rúbla gagnvart Bandaríkjadal í dag

Um tíma féll norska krónan (NOK) um 5,2% prósent gagnvart Bandaríkjadal í dag. Svona innan-dags gengisfall hefur íslenska krónan sennilega sjaldan eða aldrei orðið fyrir. Kraftarnir hér að verki eru miklir. Tel ég líklegt að norski seðlabankinn hafi gripið til örþrifauppkauparáða til varnar krónunni í dag, því áhyggjufullur norskur almenningur myndi ekki þola það að krónan félli um meira en fimm prósent á einum degi, án þess að tryllast úr hysteríu og áhyggjum yfir því að fullþroskuð húsnæðisbóla Noregs á bjargbrún setji sig í púðurtunnustellingar yfir hausamótum skulda- og fasteignaeigenda þar í landi. Lagði svo norska krónan sig á pari við þá sænsku í dag

 

NOKUSD - RUBUSD maí til 16 des 2014 - Yahoo

Mynd Yahoo; norsk króna og rússnesk rúbla gagnvart Bandaríkjadal frá því í maí 2014

Norska krónan er nú fallin um meira en 20 prósent gagnvart Bandaríkjadal síðan í maí. Það lægsta sem hún hefur farið síðan 2002. Enginn veit hvað verður um Noreg í þessum áföllum, því kolrangstæðar fjárfestingar umsjónarmanna olíusjóðs norskra landsmanna í Rússlandi eru að fuðra upp, ásamt öðru peningadriti sjóðsins í furður. Og fjármála- og atvinnustarfsemi tengd olíuiðnaði Noregs mun verða illilega fyrir barðinu á þeirri Kínaheimskingja-bólu sem ríkt hefur á hrávörumarkaði veraldar hin síðastliðnu mörg árin. Hollt er að muna hér "álit" svo kallaðra "sérfræðinga" árið 1960, sem þá sögðu: "Sovétríkin brátt stærsta hagkerfi heimsins". Noregur mun taka stakkaskiptum á næstu árum

Evran heldur áfram falli sínu gagnvart Bandaríkjadal og er myntin sú viðvarandi að leysa lönd og atvinnulausar þjóðir myntbandalagsins upp í 1930-kjarnakljúf elítustétta sambandsins. Þetta kemur . . þetta kemur

Fyrri færsla

Fitch snjóþrúgaðist út á eggjaskurn myntbandalags ESB


Fitch snjóþrúgaðist út á eggjaskurn myntbandalags ESB

Evran er Skjaldborg gegn kreppunni, Barroso í ræðu febrúar 2009

WSJ: "Fitch Downgrades France Credit Rating to AA From AA+". Já: Frakkland, Ítalía, Grikkland, Spánn, Portúgal, Kýpur, Írland, Belgía, Finnland og hálfþjóðnýtt bankakerfi Austurríkis

Á slaginu eftir lokun markaða —samkvæmt kröfu Brussels um að ekki sé gengið á peningagólfi evrunnar á opnunartíma— hætti matsfyrirtækið Fitch Ratings sér í snjóþrúgurnar og stökk út á eggjaskurn myntbandalags Evrópusambandsins og lækkaði lánshæfnismat ríkissjóðs Frakklands gagnvart umheiminum. Og einnig innanlands, því Frakkland á enga innlenska mynt nema þá sem Þjóðverjar eiga nú Móralskan Rannsóknaréttarfarslega diktat-peningastefnulegan einkarétt á

"Government debt is entirely euro-denominated rather than in foreign currency"

Miðaldir sjálfspyntinga eru gengnar í garð í Evrópu á ný. Peningalegt fullveldi evrulanda er horfið. Krónískt Eurosclerosis atvinnuleysi í Frakklandi er nú 10,5 prósent og fjárlög landsins þarf að bera undir geggjað veruleikafirrt elítuveldi Brussels

En hvað nú ef þeir eru ekki geðbilaðir? (Flash)

Nú er lánshæfnismat Frakklands í bókum Fitch á pari við Belgíu og Abu Dhabi; það er nú AA en ekki AA+ né AAA. Slík eru áhrif evrunnar. Undir henni þurfa öll lönd að líða. Það er eðli myntbandalagsins og Evrópusambandsins. Í heiminn var hún sett til að sprengja Evrópu í loft upp. Árangurinn er fullkominn og vaxandi horror, samkvæmt áætlun

Standard & Poor's lækkaði hins vegar ríkissjóð ESB-Búlgaríu niður í ruslfokk við þetta sama tækifæri, föstudaginn 12. desember 2014 

Fyrri færsla

Norskir stýrivextir áfalla-lækkaðir og gengisfall NOK heldur áfram

Tengt

Aðflug evru-Ítalíu á ruslahauga evrusvæðis


Norskir stýrivextir áfalla-lækkaðir og gengisfall NOK heldur áfram

NOK-ISK-USD-11-des-2014-Comparative Daily Exchange Rates-Relative to US Dollar

Mynd: Vísitala gengisþróunar NOK og ISK gagnvart USD

Norski seðlabankinn neyðar-lækkaði óvænt í morgun stýrivexti niður í það sögulega lægsta sem aðeins áður gerðist þar í landi árið 2009, eða niður 1,25 prósentur. Seðlabankinn skar um leið hagvaxtarspá sína fyrir norska hagkerfið niður í 1 prósent only hagvöxt, sem er núllvöxtur. Þetta örþrifaráð norska seðlabankans er gagnstætt öllum væntingum

Norska krónan féll instant um meira en 1 prósent og er hún nú að nálgast 20 prósent fall sitt gagnvart Bandaríkjadal og íslensku krónunni, frá því að olíuverð byrjaði að brotna saman undan hinum efnahagslega raunveruleika heimsmála og innvortis evru-víetnamstyrjaldar Evrópusambandsins

Í Rússlandi er svipað að gerast. Rússneski seðlabankinn gerir nú ráð fyrir tíu prósent verðbólgu þar í landi vegna gengisfalls rúblunnar. Svipað gæti orðið uppi á teningnum í Noregi á næstu árum haldi norska krónan áfram að falla eins og steinn

Olíuverð er nú hrunið um 43 prósent síðan í júní. Margt bendir til þess að það munu falla niður fyrir 40 dali tunnan. Árið 1999 féll það niður í 20 dali tunnan. Forsætisráðherra Noregs var þá lagður inn með taugaáfall

Fjöldi lækna á hverja 100 þúsund íbúa:

Davíð

Ár 2005 - Ísland 368 - Noregur 369 - Svíþjóð 334 - Danmörk 321

Jóhanna & Steingrímur

Ár 2012 - Ísland 350 - Noregur 425 - Svíþjóð 375 - Danmörk 350

Norskir læknar munu nú þurfa að taka til hendinni, þar sem umskipaðir erlendir landlegulæknar í norska hagerfinu munu hætta að leggja þar að bryggju. En þar hafa t.d. danskir læknar kastað trollum sínum áratugum saman vegna bágra kjara og skattpíningar heimafyrir í landi þeirra þar sem norskir læknanemar hafa áratugum saman yfirfyllt læknaskóla Danmerkur

Fyrri færsla

Aðflug evru-Ítalíu á ruslahauga evrusvæðis

Tengt

Northland files for bankruptcy – who’s next? (járngrýti)


Aðflug evru-Ítalíu á ruslahauga evrusvæðis

S&P lækkaði lánshæfnismat Ítalíu á föstudagskvöldið eftir lokun markaða. Þeir urðu, samkvæmt kröfu ESB-Brussels um að ekki sé gengið um á peningagólfi evrunnar nema á snjóþrúgum, að bíða með fréttatilkynninguna um þessa jólagjöf til Ítalíu, þar til markaðir lokuðu

Ítalía er því höfnuð í þeirri stöðu að vera aðeins einu þrepinu fyrir ofan ruslflokk ríkisskuldabréfa. Enginn hagvöxtur hefur verið í súper-öldrunarhagkerfi Ítalíu samfellt hin síðustu 13 árin. Eftir samfelldan 13 ára barning, stendur Ítalía steinrunnin í sömu sporum og hún var árið 2000 - alveg eins og var ævilangt í öllum Sovétríkjunum

Fari Ítalía í ruslflokk þá mun Frakkland fylgja henni þangað, því útrás franskra stórbanka til Ítalíu hefur komið Frakklandi í þá aðstöðu sem fimm þúsund galematis útibú franskra banka á Ítalíu þýða fyrir alþjóðlega lánshæfni Frakklands. Sem þá mun zappast eins og rústuð rauðspretta til hins óþekkjanlega og taka björgunarsjóði evrusvæðis með sér í fallinu

Þá mun kvikna í Þýskalandi og DDR-Merkel giftast Putin og þau hefja búskap í nýju DDR Evrópusambandsins. Mun DDRÚV þá ekki segja neinum frá neinu í ESB frekar en fyrri daginn á gjaldþrútinni ekki-fréttastofu-vakt þess ríkis í ríkinu

2014-árbók yfir Hagtölur Norðurlanda er nú komin út. Hægt er að nálagst útgáfuna á vefsetri norsku hagstofunnar hér

Menningar-Sovétríki Íslands koma þar við sögu, því þau nema 3,3 prósent af landsframleiðslunni. Þetta Sovétríki Íslands er meira og stærra en nokkurt Norðurlandanna eyðir í hin lífsnauðsynlegu varnarmál sín. Þetta hobby snobb glingur á kostnað íslenskra skattgreiðenda virkar eins og blaut tuska framan í andlitið á bandamönnum okkar, sem látnir eru um að bera hitann og þungann af þjóðaröryggi Íslendinga. Þetta er svo skammarlegt að ekki er hægt að segja nokkrum manni frá þessu. En nú stendur þetta þarna öllum til sýnis

Fyrri færsla

Myntbandalag ESB: vissu ekki hvað þeir voru að gera


Myntbandalag ESB: vissu ekki hvað þeir voru að gera

Forza Italia flokkur Silvio Berlusconi virðist ætla að reyna að vinna að því að ítölsk mynt verði tekin upp á Ítalíu samhliða evru. Bíddu aðeins. Já, þú heyrðir rétt; samhliða evru, segja þeir

Reyndar eru allir stjórnmálaflokkar Ítalíu nema einn, nú andsnúnir aðild Ítalíu að myntbandalagi Evrópusambandsins. Allir andsnúnir evruaðild nema einn. Forza Italia vill reyna að endurheimta fullveldi landsins í peningamálum

Ítalía er að deyja evrudauða. Landið er að kafna, það er komið með krónískt Eurosclerosis (ESB-eyðni). Jarðarför Ítalíu nálgast. Og elítupólitískir kirkjugarðar Evrópusambandsins geta varla beðið eftir kistunni ofan í fjöldagröf sína

Mikið langar mig að kalla þetta myntbandalag fyrir myntbrandaragúlag Evrópusambandsins. Það langar mig því hugdetta Forza Italia sýnir að stjórnmálamenn á Ítalíu höfðu enga hugmynd um hvað þeir voru að skrifa undir er þeir árituðu Maastrichtsáttmálann fyrir hönd ítölsku þjóðarinnar í desember 1991. Þar sem fullveldi landsins í peningamálum var óafturkræft varpað fyrir róða

Þeir höfðu ekki minnstu hugmynd um hvað þeir voru að gera í misnotuðu nafni þjóðarinnar. Sem og var gert í næstum öllum þeim löndum sem undirrituðu sáttmálann. Kjósendur komu næstum hvergi nærri þessu stórslysi stjórnmálastéttarinnar. Því þetta myntbandalag er eitt allsherjar elítuverk

Eitt land neitaði þó með þjóðaratkvæðagreiðslu að skrifa undir. Það var Danmörk. Þar með hefði Maastrichtlestin átt að stöðvast og falla dauð og ómerk, því sáttmálar kröfðust samhljóða samþykkis allra landa

En auðvitað neituðu Brusselelítur Evrópusambandsins að fara eftir því sem í sáttmálum Evrópusambandsins stendur og Danmörk var þvinguð til að kjósa aftur undir hótunum um útlegð og brottvísun frá því sem einu sinni hét Efnahagsbandalagið EB. Það var það sem danskir kjósendur ákváðu að ganga í á sínum tíma. Nú eru þeir hins vegar hafnaðir í orðnum klesstum elítu-hlut

Þýskaland mun ekki sleppa tökunum, nú þegar Aladdín rúgbrauðsandi þess er loksins sloppinn út úr lampanum og hefur lagt sig fast sem endurkoma móðunnar miklu yfir meginlandi Evrópu -- og stakkels Frakklandi sem loksins hefur af nýsameinuðu Þýskalandi verið troðið ofan í flöskuna sína, tappinn hamraður í og líkið innsiglað

En þessu er ekki hægt að hlægja að, því hörmunar menginlands Evrópu eru orðnar svo hroðalegar að úti er um velmegun og frið þann sem Bandaríkin plöntuðu þar. Evrópa er ónýt. Evrópusambandið hefur eyðilagt hana

Fyrri færsla

Mun norska krónan falla um 40 prósent?

*** Tengt ***

TARGET2: Luftwaffe sem innheimtustofnun?


Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband