Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2009

Spurning: a) Samfylking Vinstri grænna - eða b) Sovétríkin á ný?

Ef stjórnmálamenn geta ekki sagt það sem þeir hugsa, þá erum við stödd í:

a) í ríkisstjórn og þingmeirihluta Samfylkingar Vinstri Grænna?

b) í Sovétríkjunum á ný?

c) í þjóðfélagi með ónothæfum þingmönnum í handjárnum 

Hvort er rétt svar? a og c - eða b

Fyrri færsla


Þjóðin sagði þvert nei: en þá kom Samfylkingin Vinstri grænir og braut bök íslensku þjóðarinnar

Þjóðin sagði þvert nei

JHSSteingrímur J. Sigfússon EFTIR

En þá kom ríkisstjórn Samfylkingar Vinstri grænna og þingmenn hennar og brutu bök þjóðarinnar. Þau framkvæmdu í sameiningu eins og verstu fasistar og kommúnistar í Evrópu. Þetta er hrikalega ömurlegt og grátlegt. Smánarleg niðurlægjandi örlög fyrir þegna Íslands. Slæm örlög fyrir alla nema nokkra menn og konur sem fyrir vikið fá að halda valdastólum sínum eitthvað áfram - svo og fyrir þá fjárglæframenn sem komu okkur Íslendingum í þessa aðstöðu. Ríkisstjórn Samfylkingar Vinstri grænna er nú orðin verndari og fulltrúi fyrir þessa fjárglæframenn, gegn þjóðinni. Já, ríkisstjórnin gegn þjóðinni. Þvílíkt fordæmi sem hún sýnir!

Já kæru Íslendingar, Fjárglæfravernd Íslands er ennþá í höndum Samfylkingarinnar og vinnur nú enn betur en áður gegn þjóðinni. Þökk sé fjósameisturum Vinstri grænna sem lugu sig svo glæsilega til valda í nýafstöðnum kosningum til Alþingis Íslendinga. VG er nú stærsti pólitíski sjálfsali Íslands. Stingið túkalli þar inn og út kemur svört tungan til að éta hann sjálfan

Aumingjar

Þessi ríkisstjórn samanstendur af þjóðsvikaöflum og kosningasvikurum sem lugu sig til valda. Aumingjar og valdagráðug lítilmenni sem lugu sig til valda. Megi þau rotna og þúsund níðstangir verða reistar þeim til höfuðs

Mynd: Skjaldborg Evrópusambandsins gegn Íslandi og Sjálfsalinn hennar 


Ætla þingmenn að níðast á íslensku þjóðinni?

Nei er svarið  

Íslandi allt !

Alþingi Íslands var ekki stofnað til að bjarga launagreiðslum sjónvarpspólitíkusa, kosningasvikara og andlitum vina þeirra

 

Fellið Icesave ! 

 

Fáninn

 Vinnið landi ykkar gagn - en ekki ógagn

Vinsamlegast munið hver kaus ykkur til að gæta hagsmuna Íslands !

 


Hrun iðnaðarframleiðslu Evrusvæðis nú 25%. Ný sub-prime fjármálakreppa bíður evrusvæðis

Batinn í iðnaðarframleiðslu á milli maí og júní reyndist 3%

Hagstofa ESB kom með nýjar tölur yfir iðnaðarframleiðslu í ESB í gær. Þar var að finna tölfræðilegan eða sýndarbata eða raunverulegan 3% bata (veldu sjálf/ur) á milli mánaða á evrusvæðinu. Þökk sé ríkisstyrktri skrott premiu á gömlum bílum í Þýskalandi fyrr á árinu. Já, það eru nefnilega takmörk fyrir því hvað hlutir geta haldið áfram að hrynja djúpt og lengi

Sem betur fer hefur Ísland ekki þurft að fást við svona hrun því við höfum jú krónuna okkar til að auka samkeppnishæfni framleiðslu á Íslandi og framleiðslu útflutnings frá Íslandi. Svona tryllitæki hafa engin lönd á evrusvæðinu. Þau hafa ekki krónuna, svo auðvitað er afleiðingin sú að iðnaðarframleiðsla þeirra hefur hrunið meira á evrusvæðinu en í þeim löndum sem búa ekki í spennitreyju hins ósveigjanlega evru gjaldmiðils

Mynd: hrun iðnaðarframleiðslu Evrusvæðis og svo hinsvegar í 27 löndum ESB. Bleika línan er evrusvæðið. Það þarf að fara aftur til ca. 1994 til að komast niður á svipaðar tölur

Iðnaðarframleiðsla ESB og evrusvæðis júní 2009

Heimild: Eurostat 

Á milli ára (júní 2008 og júní 2009) er iðnaðarframleiðsla hrunin um 25,1% á evrusvæði og um 24% í ESB 27 löndunum. Fréttatilkynning hagstofu ESB: Industrial new orders up by 3.1% in euro area

Næsti kafli í hagsögu evrusvæðis hefst nú: holan í efnahagsreikningum Evrópu

Næsti kafli í Evrópskri hagsögu mun fjalla um evrópsku sub-prime bankakreppuna sem mun hefjast bráðum og koma í alla banka nálægt þér, þ.e. ef þú býrð í ESB. Þessi bóla á fjármálamarkaði evrusvæðis virðist hafa farið fram óáreitt beint undir þeflausa nefi seðlabanka evrusvæðis 

  • Í desember 2008 voru 613.000 nýbyggðar íbúðir óseldar á Spáni
  • Í desember 2008 voru þar að auki 630.000 og að mestu óseldar íbúðir í byggingu á Spáni
  • Spánn hefur því um 1-1,3 milljón íbúðir sem þarf að selja - núna!
  • Og þó hefur verð íbúðarhúsnæðis aðeins lækkað um 10% frá því að þau voru á toppinum í júní 2008
  • Þetta er meira en allar íbúðir sem eru til sölu í Bandaríkjunum núna. En þar hefur verð fasteigna lækkað hrikalega 
  • Ofan í þetta kemur svo Portúgal með um 500.000 nýbyggðar og óseldar íbúðir á vitlausum stöðum í landinu 

Takið vinsamlegast eftir

  • Útistandandi lán til byggingafyrirtækja á Spáni voru um 35 miljarðar evrur árið 2000
  • Útistandandi lán til byggingafyrirtækja á Spáni voru komin í  um 318 miljarða evrur um síðustu áramót. Þetta er 850% hækkun á 8 árum.
  • Ef allar skuldir byggingageirans á Spáni eru teknar saman þá eru þær hvorki meira né minna en 470 miljarðar evrur um síðustu áramót. Þetta er 50% af þjóðarframleiðslu Spánar. (Kranarnir á Spáni benda mest í átt að gjánni)

Hlutabréfavísitala fyrir byggingabransan á Spáni 

Mynd að ofan: Hlutabréfavísitalan fyrir byggingabransan á Spáni. 10 föld hækkun og svo 90% hrun; heimild: Variant Perception    

Raunvextir á húsnæðislánum á Spáni

Mynd að ofan: Raunvextir á húsnæðislánum á Spáni. Hækka þegar þeir ættu að lækka; heimild: Variant Perception

Raunstýrivextir á Spáni

Mynd að ofan: Raunstýrivextir á Spáni. Hækka þegar þeir ættu að lækka; heimild: Variant Perception

 

Stýrivextir seðlabanka evrusvæðis og raunvextir í verðhjöðnun á Írlandi 

Mynd að ofan: Stýrivextir seðlabanka evrusvæðis og raunvextir á Írlandi í verðhjöðnun; heimild: Variant Perception 

 

Spánn gerði sömu mistök í byggingariðnaði og Íslendingar gerðu í bankarekstri. Byggðu allt allt of stórt miðað við stærð hagkerfisins. Þökk sé innstreymi fjármagns frá evrusvæðinu

Það kemur að skuldadögum. Spánn stendur fyrir 10% af hagkerfi ESB. En þeir standa fyrir 30% af öllum nýbyggingum frá árinu 2000 til 2008 í öllu Evrópusambandinu. En það versta er þó að allt þetta húsnæði er byggt á röngum stöðum. Það var nefnilega byggt á ströndinni á Spáni og þar mun enginn yfirskuldsettur og atvinnulaus Vesturlendingur - sem nú er í óða önn að borga niður skuldir sínar - kaupa neitt á næstu árum. Og ekki munu Spánverjar sjálfir kaupa þessar eignir því það er 25-30% atvinnuleysi á Suður Spáni og mun sennilega fara upp í 35-40% áður en yfir um lýkur. SUB-PRIME kreppa evrusvæðis er því öll eftir. Einhver sem vill eiga hlutabréf í spænskum bönkum núna? 

Raungengi nokkurra hagkerfa á Evrusvæðinu 

Mynd að ofan: Raungengi nokkurra hagkerfa á evrusvæðinu; heimild: Variant Perception 

Raungengi hagkerfa í myntbandalaginu og í ESB

Þýskalandi tekst að halda raungengi þýska hagkerfisins lágu með því að hafa hindrað launahækkanir til launafólks í Þýskalandi hin síðustu 10 árin og svo einnig með ríkisstyrkjum til atvinnulífsins. Það eru engin raunveruleg lágmarkslaun í Þýskalandi og því geta tímalaun á sumum svæðum, til dæmis hins fyrrverandi Austur Þýskalands - þar sem er allt að 30% atvinnuleysi - farið niður í 4 evrur á tímann. Svona tekst Þýskalandi að stunda það sem ég vil kalla steikarpönnu-efnahagspólitík. Hún er svona: maður grillar hin löndin til ösku með því að gíra niður laun og kostnað hjá sjálfum sér miskunnarlaust. Ef hin löndin lækka sig þá lækkar Þýskaland sig ennþá meira. Þetta liggur nánast í eðli þýsku þjóðarsálarinnar. Þannig tekst Þýskalandi að halda öllu evrusvæðinu sem sínum einka útflutningsmarkaði í járngreipum. Í augum Þýskalands er bara til einn móralskt réttur ójöfnuður: hagnaður Þýskalands við útlönd (surplus).

Ef Ísland væri með evru þá kæmist raungengi hagkerfis Íslands varla fyrir á þessari mynd hérna fyrir ofan. Því þyrftu launþegasamtökin ASÍ að beita sér fyrir 50-60% raunlaunalækkun hjá meðlimum sínum núna, því þá væri nefnilega ekki hægt að lækka gengið eða láta það síga til að það mætti endurspegla raunverulega samkeppnishæfni landsins. Tískuorðið yfir svona launalækkanir er innvortis-gengisfelling. Svona "innvortis-gengisfelling" tekur alltaf óratíma, tekst yfirleitt mjög illa og eyðileggur samfélagið í lengdina, því vonir unga fólksins í svona atvinnuleysissamfélögum bresta og barnseignir hætta. En í raun heitir þetta fyrirbæri bara "gamaldag launa- og verðhjöðnun"

Vísitala húsnæðisverðs á Spáni 

Mynd að ofan: Vísitala húsnæðisverðs á Spáni. Næstum allar verðlækkanir eiga eftir að koma til framkvæmda; heimild: Variant Perception    

30% atvinnuleysi bíður og ráðstöfunartekjur hverfa vegna atvinnuleysis

Atvinnuleysi á Spáni er nú í heildina um 20% og verður komið í 25% um næstu páska og í 30% í enda ársins 2010. Það er hrikaleg verðhjöðnun í gangi á Írlandi núna og verðhjöðnunin er einnig að hefjast á Spáni. Þetta þýðir að raunvextir bara hækka og hækka í þessum löndum á meðan laun lækka og skulda- og greiðslubyrði hækkar.

Ég mæli með að þeir sem eiga evrur eða peninga í klemmu í ESB lesi skýrsluna frá Variant Perception: Spain: The Hole In Europe’s Balance Sheet   

Meira gott lesefni er að finna hér á vefsetrinu A Fistful of Euros
Fyrri færsla


Heimsviðskipti stöðvuð

The Illustrated Road to Serfdom Planners

World Market Alert - heimsmarkaðs aðvörun - 

Sökum mikilvægs annmarka á heiminum öllum þá eru heimsviðskipti hér með stöðvuð og löggð niður. Það kom nebbnilega í ljós að heimurinn er ekki eitt myntsvæði með eina mynt

 

one market, one money  

© 1991 Jacques Delors; President of the EUC

Því hafa heimsviðskipti verið lögð niður og verða ekki tekin upp aftur fyrr en heimurinn er orðinn eitt myntsvæði. Þessi mistök munu ekki koma fyrir aftur

Mikilvægt er að bregðast rétt við og leita skjóls strax 

Þeir sem eiga reiknivélar eru vinsamlegast beðnir um að gefa sig fram við yfirvöld í Brussel og muna að taka reiknivélina með sér. Þeir sem hafa notið ávaxta hagvaxtar heimsins hin síðustu 5.000 ár eru beðnir um að gefa sig fram í byggingu númer Z4-A2ZZ-EUD-eMu-B-WASH Brussel

euflag-fewstars

Virðingarfyllst

Fimmtudagurinn 20. ágúst 2009 e.Kf. (stimpill hér)

Myntbandalagið í ESB - 

World European Monetary Union Authority  (stimpill þar)

 

Fyrri færsla


Flugvél forsætisráðherra Íslands er loks tilbúin til millilandaflugs

Russian Flying Fortess K-7 

Mynd: unnið við hleðslu flugvélar forsætisráðherra Íslands á nýjum flugvelli Reykjavíkur sem lagður var fyrir nýju vél forsætisráðuneytisins. Flugvélin sem er tólf hreyfla er af gerðinni K-7 og kom til landsins í kyrrþey. Braggar almennings sjást óljóst í bakgrunni myndarinnar. Þeir eru af gerðinni IceSave

Millilandaflug forsætisráðherra   

Margir hafa velt því fyrir sér af hverju forsætisráðherra Íslands, frú Jóhanna Sigurðardóttir, hafi ekkert persónulegt samband við starfs- og vopnabræður sína í Evrópusambandinu. Sumir hafa haldið því fram að það sé vegna hættunar á að hún yrði handtekin af yfirvöldum allra 27 ríkja Evrópusambandsins samtímis. Það er nefnilega orðið æ algengara að fólk í Evrópusambandinu sé dæmt í einu landi án vitneskju um jafnvel málshöfðun og svo handtekið því að fyrirvaralausu í öðru Evrópusambandslandi. Fólk er nú dæmt án þess að vita af því og krafist er útvísunar til þess lands þar sem afbrotið á að hafa verið framið

Russian Flying Fortess K-7 

Mynd: ný flugvél forsætisráðherra Íslands undirbýr millilandaflug á nýjum flugvelli Reykjavíkur 

Evrópufræðingar sem eru hvað fremstir í Evrópuréttum á Íslandi hafa varað við því að forsætisráðherra yrði ef til vill haldið sem gísl erlendis þangað til annaðhvort; hún sjálf hafi borgað Icesave; eða að öðrum kosti hafi lent öllu Íslandi fyrri fullt og allt inn í Evrópusamsteypustöðina. Þessir Evrópufræðingar hafa ítrekað haldið því fram að þetta hafi komið í veg fyrir að ferðamál forsætisráðherra kæmust í farveg og skjól

Misskilningur byggður á fordómum og einangrunarhyggju 

En þetta er alger misskilningur, hvoru tveggja, segir í fréttatilkynningu frá forsætisráðuneytinu. Eina ástæðan fyrir staðfastri veru forsætisráðherra innandyra innanlands er einfaldlega sú að forsætisráðherra hefur verið að bíða eftir að fjármálaráðherra Íslands útvegi henni fjármögnun sem kostað geti hinn nýja glæsilega flugvélakost embættisins, og sem einnig gæti rúmað allar ráðgjafanefndir og 27 túlka ráðuneytisins samtímis. Aðstaða er einnig um borð fyrir útivist, skrifstofu- og ráðstefnuhald, svo og pönnukökubakstur. Flugþol vélarinnar er talið vera aðra leiðina til Brussel. Rjómaþeytari er í öllum vistarverum loftfarsins sem því er ekkert að vanbúnaði til millilandaflugs

Nýr framleiðandi og nýtt fjármagn 

Evrópusambandið hefur nú yfirtekið framleiðslu á þessari flugvélategund. Verkefnið hefur fengið nýja fjárveitingu og hlotið starfsheitið: Brussel's Flying Fortresses 


Samfylkingin: þjóðhættulegir öfgasinnaðir jafnaðarmenn og einangrunarsinnar?

Samfylkingin er tilbúin að selja landið okkar og veðsetja framtíð Íslands

Samfylkingin er meira að segja tilbúin að selja Ísland fyrir ekki neitt nema fyrir það eitt að fá að sitja áfram í þeim ráðherrastólum sem hún sat í þegar hún kom hruninu af stað með því að sofa dauðasvefni drykkjumannsins á verðinum í bankamálaráðuneyti Íslands. Hverjir aðrir en þjóðhættulegir öfgasinnaðir jafnaðarmenn gera svona lagað og það alveg án refsingar og sjálfsrannsóknar? Særa þeir svo í gegnum Alþingi Íslands svikaumboð til að fara með landið á uppboð erlendis. Einungis til að hefna fyrir stofnun lýðveldisins árið 1944. Þá öðlaðist Ísland það sjálfstæði sem Samfylkingin hefur aldrei þolað. Það eru aðeins 65 ár liðin 

Hvað gerir svo Samfylkingin?

Jú þeir velja dyramottu með rauðan varalit fyrir forsætisráðherra Íslands og sem getur ekki talað við neinn fyrir utan já já herbergið sitt. Ísland hefur aldrei verið eins vel og vandlega einangrað frá umheiminum eins og núna, bæði áhrifa- og stjórnmálalega séð. Einangarð á ögurstundu fyrir land og þjóð. Þetta er skandall! Alger skandall! Algerlega óhæf manneskja er sett í valdamesta opinbera embætti sem til er á Íslandi. Allt sökum heimsku nokkurra manna sem þjóðin kaus ekki. Fjósameistari, strengjabrúða og samverkamaður Samfylkingarinnar er svo einræðisherrann og kosningasvikarinn Vinstri höndin Græna á S. J. Sigfússyni. Hann heldur sér við völd með því að sýna kjósendum sínum bakendann á meðan hann nuddar framhlutanum framan í Samfylkinguna. Þvílík skömm. Þetta er frík show. Þetta getur ekki verið raunveruleikinn

Getur þetta orðið verra?

Nei! Þetta getur ekki versnað! Við erum með ríkisstjórn sem er að grafa lýðveldi Íslands stóra og varanlega gröf. Þessi gröf er grafin innanfrá á Íslandi! Hún er ekki grafin af óvinveittu erlendu afli. Nei! Hún er grafin af þeim sem áttu að vinna fyrir Ísland og vinna hart fyrir hagsmunum Íslands. Af fólki sem sór þess eið. 

Svik þessa fólks eru hrikaleg. Þetta fólk mun verða brennt á steðja sögunnar. Hamrað og brennt til ösku á steðja sögunnar. Þessu munum við ekki gleyma. Aldrei! 

71% þjóðarinnar kaus ekki Samfylkinguna. Munið það. Ég sendi þeim sem kusu Vinstri græna mínar samúðarkveðjur 

Fyrri færsla


Lánstraust Evrópusambandsríkisins Lettlands lækkað niður í rusl. Hörmungar Lettlands ætla engan endi að taka

Grátlegur er endir lettneska þjóðfélagsins í faðmi Evrópusambandsins

Mannfjöldi Lettland 1992-2008 

Í fyrradag tilkynnti hagstofa Lettlands að því sem næst einn fimmti hluti hagkerfis Lettlands væri nú horfinn miðað við efnahag landsins á öðrum ársfjórðungi á síðasta ári. Samdráttur í þjóðarframleiðslu Lettlands var hvorki meira né minna en heil 19,6% á öðrum ársfjórðungi þessa árs miðað við sama ársfjórðung á síðasta ári. Þetta er verra en á fyrsta fjórðungi ársins en þá var samdrátturinn 18% á meðan hann var aðeins 3,9% á Íslandi á sama tíma

  • Smásala í Lettlandi dróst saman um 28%
  • Hótel- og veitingarekstur dróst saman um 35%
  • Iðnaðarframleiðsla hrundi um 19%

Í tilefni þessarar tilkynningu hagstofu Lettlands í fyrradag notaði lánshæfnismatsfyrirtækið Standard & Poor’s tækifærið til að lækka lánshæfnismat ríkissjóðs Lettlands niður í rusl í gær (frá BB+ niður í BB)

Í leiðinni var lánshæfnismat ríkissjóðs Eistlands lækkað úr A niður í A- og sænska krónan sett á neikvæða listann yfir gjaldmiðla sem álitið er að muni falla á næstunni

Bandaríski bankinn Brown Brothers Harriman segir að það séu undur og stórmerki að opinbert lánshæfnismat Litháen skyldi ekki vera lækkað niður í rusl í leiðinni því það sé sú einkunn sem bankinn gefi landinu

Í tilefni þessara atburða sagði Win Thin greinandi hjá Brown Brothers Harriman þetta:

  • Somehow, Lithuania escaped this time but it should have been cut from the current BBB, as we rate it BB- vs. actual BBB/A3/BBB. The only surprise to us was that the downgrades weren’t deeper, as we see eventual junk status (below BBB-) for all three. As we noted in our most recent FX quarterly, the ratings agencies have been overly generous with Eastern Europe, particularly the Baltics. Our sovereign rating model puts Estonia at a BB/Ba2/BB rating, way below actual ratings of A-/A1/BBB+. For Latvia, we rate it B- vs. actual BB/Baa3/BB+. Others that are overrated in the region include Bulgaria (we rate it BB vs. actual BBB/Baa3/BBB-), Hungary (we rate it BB- vs. actual BBB-/Baa1/BBB, and Romania (we rate it BB vs. actual BB+/Baa3/BB+).
  • We fully expect Estonia, Lithuania, and Bulgaria to follow Latvia and Romania into IMF programs. Our negative view on the Baltics still underscores our bearish calls on SEK given the high levels of Swedish banking exposure to the region, and helps explain why SEK was the worst performer today vs. USD and EUR… Just look at Latvia. It just reported Q2 GDP as contracting 19.6% y/y vs. an 18% drop in Q1. The banking regulator has reported that all overdue loans rose to 23.5% of total loans in June... Those numbers will only get worse, as we see little relief in sight for the economy…   

Lúxus bankakerfis Evrópusambandsins sannar sig fyrir fjárfestum  

Sem sagt: vanskilahlutfall á öllum útlánum bankakerfis Lettlands hækkaði upp í 23,5% af öllum útlánum bankakerfis þessa lands. En þetta land er svo heppið að vera aðnjótandi hins fulkomna bankakerfis Evrópusambandsins, sem smá skítaríki á borð við Ísland geta ekki megnað að töfra fram samkæmt erlendum sérfræðingi peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands. Bankakerfi Evrópusambandsins hvíla sig nú í öndunarvélum skattgreiðenda stórríkja sambandsins, sökum örmögnunar fjármögnunar. Þetta útskýrir væntanlega af hverju það eru 15,4% útlánsvextir á smá yfirdráttarheimild smáfyrirtækis míns hér í 0% verðbólgunni og 1,5% stýrivöxtunum í Danmörku. Hinn fullkomni banki minn í stórríki ESB þarf kannski að þéna inn það sem hann tapar svona stórt í Lettlandi núna, eða hvað? Eða er þetta bara svona fullkomið að ég skil þetta ekki? Kannski er ég bara svona lélegur pappír af því ég skulda ekki nógu mikið 

Fæðingartíðni Lettland 1970-2006 

Er þetta endastöðin fyrir þjóðfélag Lettlands? 

Hvað gerist í Lettlandi þegar þorri kvenna á frjósemisaldri er horfinn úr samfélagi Lettlands, hvernig á þjóðin þá að halda áfram? Þjóðinni fækkar og fækkar, meðalaldur þýtur upp og barnseignir eru katastrófal fáar. Gamla fólkið mun þurfa að halda kyrru fyrir en hinir ungu fara til Norðurlandanna. Skattgreiðendur eru að stinga af. Kassinn verður tómur. Munu örlög Íslands og íslensku þjóðarinnar verða þessi í faðmi Evrópusambands Samfylkingarinnar og Vinstri grænna?

En þetta eru samt góðar fréttir segir vefsíða Evrópusamtakanna á Íslandi 

Sumir greinendur gerðu ráð fyrir enn meiri samdrætti í Lettlandi. En spár margra greinenda undanfarnar vikur og jafnvel mánuði hafa einnkennst af yfirdrifinni svartsýni því þeir vildu ekki verða uppvísir af fyrra háttarlagi sínu; sem var hömlulaus og yfirdrifin bjartsýni án mikils samhengis við raunveruleika hagkerfanna. Það er meðal annars vegna þessa sem við nú sjáum svona margar fréttir sem bera yfirskriftina "afkoma reyndist yfir væntingum". Þetta kaupa svo aðilar markaðarins í stórum stíl núna og því ríkir "bull market" stemming á mörgum mörkuðum eins og er. En svo mun náttúrlega allt hrynja aftur, því ekkert, ég endurtek, ekkert, ber þessar hækkanir á mörkuðum núna, annað en óskhyggjan ein. En jarðsambandið mun alltaf koma aftur. Bíðið bara róleg. Þetta kemur  
 
Þeir sem hafa það gott halda yfirleitt að allir aðrir hafi það gott svo lengi sem þeir hafa það gott sjálfir. Svona eins og flestir Íslendingar sem hafa það gott hvar sem þeir eru staddir í heiminum. Þeir Íslendingar sem eiga til dæmis sumarhús á Suður Spáni vita sennilega ekki mikið um að það er einmitt 30% atvinnuleysi á Suður-Spáni. Þar sem maður hefur það gott sjálfur þar hljóta jú allir aðrir að hafa það gott líka, ekki satt? Það eru engin lík fljótandi á götunum svo allt er í besta lagi. Ég sá það sjálfur þegar ég heimsótti Ísland í vor. Þar voru engin lík fljótandi á götunum í Reykjavík og það var ljós á sjúkrahúsunum, strætisvagnar gengu og fólk gékk um í fallegum fötum. Veitingahúsin voru þétt setin og bílar voru þar margir og nýjir. Svo ef 29 af 51 sjúkrahúsi Lettlands verður lokað á næstunni vegna fjárskorts, þá eru það væntanlega góð teikn samkvæmt Evrópusamtökunum á Íslandi: hver tekur eftir lokuðum sjúkrahúsum, ég bara spyr?
 
Tjörnin í Reykjavík
 
Upplýsandi efni um málefni Lettlands, togstreituna á milli IMF og Brussel og framtíðarhorfur Lettlands 
Eina uppspretta mannlífs Lettlands í framtíðinni munu verða fátækir innflytjendur frá Mið-Asíu og Norður Afríku. Öngvir aðrir munu vilja snerta á þessu landi með eldtöngum. Sagan er skrifuð. Evru-Víetnam-styrjöld Lettlands reyndist landinu um megn  
 
Fyrri færsla

Hagvísur úr Jóns Baldvinslandi

Opus 1 von Brussel ab infinito 

Fyrsta vers er svona;

Númer eitt: maður gengur í ESB

Númer tvö: svo bindur maður gengið sitt fast við staur ESB

Númer þrjú: svo fær maður erlenda banka til að sprengja verðlag í landinu út af landakortinu

 Annað vers er svona;

Númer eitt: þjóðarframleiðslan fær Eurosclerosis (1/4 af hagkerfinu hverfur eins og í Litháen) því útflutningur er fullkomlega ósamkeppnishæfur og enginn vill kaupa neitt af okkur

Númer tvö: vegna þess að maður verðlagði landið út af landakortinu og ræður engu um gengi þess lengur þá þorna tekjur þess upp en þá kemur Jón Baldvin í bragga og fer að gagga númer þrjú 

Númer þrjú: allir verða gjaldþrota, þeim þraut gjaldið en takið nú samt, vinir mínir, upp evru strax. En mennirnir neita og taka þess í stað upp vopnin sín gömlu og ganga í Sovétríkin á ný, lausir úr evru-Víetnam stríðinu mikla, voila! Berjumst því fyrir inngöngu í Sovét á ný

Kór: syngur á milli versa við undirleik Brussel orgels með einni nótu, E-dúr 

Óh vors ESB himnar Brussel opnast. Lækningin hans Jón Baldvins er þessi: við skrifum utaná vörurnar að þær séu framleiddar í Lettlandi eða Íslandi því þá kaupa allir þær af okkur sjálfkrafa og svo hefjum við okkar evru-Víetnam-stríð sem er ekki hægt að komast út úr aftur. Við deyjum í Sovét eða í Evrum, annaðhvort

. . . endurtakið . . . óh lækningin hans Jón Baldvins er þessi . . . við deyjum í Sovét eða í Evrum . . flytjum til Írlands . . óh nei . . jæja þá til Spánar í 21% atvinnuleysi . . óh nei . . hvað þá með Lettland? . . þögn . . Óh vors ESB himnar Brussel opnast . . . Lækningin hans Jón Baldvins er þessi . . endurtakið . . 

© 100% gengisfelling er skrásett ® vörumerki Jóns Baldvins Hannibalssonar og er eina 100% gengisfellingin í hinni þekktu veröld stærðfræðinnar sem endar ekki með núlli

Það er ekkert þriðja vers: því allt er dautt og hljótt 

Fyrri færsla


Enn er ruglað í besta Weimar stíl

Grein Kolbrúnar Bergþórsdóttur blaðamanns

Blaðamaður Morgunblaðsins, Kolbrún Bergþórsdóttir, skrifar í pistli sínum í Morgunblaðinu í dag að það sé óábyrgt að Sjálfstæðisflokkurinn taki ekki þátt í verknaði Samfylkingarinnar sem gengur út á að þvinga lýðveldið Ísland inn í hið komandi stórríki Evrópusambandsins, sama hvað það kostar Ísland. Hún segir þetta því Sjálfstæðisflokkurinn hafi á sínum tíma gengist fyrir því að Ísland gékk í Atlantshafsbandalagið NATO. Þetta bandalag er samvinna þjóða um varnarmál og varnir gegn hættum sem yfirleitt eru framleiddar í suðupottum andlýðræðislegra ríkja og ríkjasambanda

Þessa skoðun blaðamannsins ættu menn kannski að skoða í ljósi málshöfðunar viðskiptavinar á hendur skóla einum í Bandaríkjunum. Þar höfðar fyrrum nemandi mál á hendur skólans vegna þess að hann fékk ekki atvinnu með því að veifa prófskírteini frá skólanum framan í atvinnumarkað Bandaríkjanna. Ég hef alltaf sagt að menntun sé alls ekki ávísun á góða vinnu. Menntun er einungis aðgöngumiði að sumum inngöngudyrum vinnumarkaðarins. Að fá góða atvinnu krefst meira en prófskírteinis

Þegar blaðamenn eru farnir að líkja þátttöku í NATO við inngöngu í Evrópusambandið, þá er ekki von á góðu fyrir ennþá fleiri skóla en þennan eina þarna í Bandaríkjunum sem nú verst ásökunum frá atvinnulausum nemanda. Ásökunum um að hafa límt falska vörulýsingu utaná vörur skólans

Blaðamaðurinn veit að það hafa verið gengnar 1000 kröfugöngur fyrir úrsögn Íslands úr NATO. Þær eru gengnar vegna þess að menn vita vel að það er hægt að segja sig úr NATO. Enginn NATO dómstóll er til og engin NATO stjórnaskrá er í smíðum neinsstaðar. Engin NATO mynt ræður efnahag NATO landanna. Engin eru völd NATO yfir neinu á Íslandi. Heldur ekki auðlindum þess. NATO er samvinna. Samvinna krefst ekki dómstóla því vandamál samvinnu eru leyst í gegnum samvinnu og ekki fyrir dómstólum. Þau eru ekki leyst í EF-dómstólnum sem hefur lokaorðið yfir lagasetningu allra leppríkja í ESB. Evrópusambandið ræður nefnilega yfir Evrópusambandinu, svo einfalt er það

Það er þessvegna mjög óábyrgt að halda öðru fram. Það er í allra hæsta máta óábyrgt að ljúga Ísland inni í hið nýja sambandsríki Evrópu, United States of Europe. Við þurftum ekki að ganga í Bandaríkin til að vinna saman með NATO. Alls ekki. Engum datt það í hug og allra síst Sjálfstæðisflokknum, því þá værum við einfaldlega ekki með í neinu NATO í dag  

The Illustrated Road to Serfdom Planners

Ef ábyrgir blaðamenn gæta ekki að sér í dag þá er verulegt hætta á að Weimar lýðveldi þeirra hafni á endanum inni í fjórða ríkinu. Hafni maður þar kemst maður aldrei lifandi út þaðan aftur. Fyrsta tilraun Evrópusambandsins til lýðræðis hefur mistekist gersamlega, alveg eins og Weimar lýðveldið mistókst einmitt svo ömurlega. Það þýðir ekkert að skýla sér á bak við vörumerkingu skóla eða veifa prófskírteinum. Heimska er og verður hættuleg og allar áætlanir um annað breyta þar engu um. Við vitum það núna. Það er því engin afsökun til fyrir svona afglöpum blaðamanna. Blaðamenn verða að hætta í Weimar lýðveldinu sínu. Nóg er komið og alveg sérstaklega eftir hið fræga 100% gengisfall Jóns Baldvins Hannibalssonar í Mogganum í gær. Sýnið frekar ábyrgð, það væri nefnilega gott fyrir Ísland

Kæra Kolbrún, Sjálfstæðisflokkurinn er til fyrir Ísland, ekki fyrir Brussel. Þú ert örugglega velkomin þar inn eins og allir eru sem unna sjálfstæði lands okkar. Kannski ætti ég sjálfur að ganga þar inn líka og sýna þar með Kolbrúnu gott fordæmi

Ég vona að Morgunblaðið taki því ekki illa að ég birti grein Kolbrúnar blaðamanns hérna efst í þessum pistli   

Fyrri færsla


Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband