Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, mars 2013

Verðgildiskrísa undir evru

Á ensku er þannig fyrirbæri kallað "value-crisis". Hún kemur upp þegar vafi fer að leika á því hvort hlutur sé sá sem hann er sagður vera. Slík krísa hefur nokkuð lengi, hægt og rólega, en með miklu öryggi, verið að búa um sig á evrusvæðinu. Þar fara menn að efast meira og meira um að ein evra sé í raun ein evra, allt eftir því hver stendur að baki henni

Í stjórnmálum gerist hið öfugt sama ef einn formaður xD öðlast sama gildi og annar formaður VG. Þá skellur á gildiskrísa. Samsæri

Þýskir bankar taka helst ekki á móti greiðslum frá grískum bönkum og þannig hefur ástandið á milli banka á evrusvæðinu verið í meira en fjögur ár. Brátt mun þetta ástand flytja sig niður á gólfið á milli einstaklinga í beinum samskiptum þeirra á milli í seðlum

Svona verðgildiskrísa mun aldrei gerast né verða á myntsvæði íslensku krónunnar, því við erum eitt ríki. Það erum við svo lengi sem við stöndum upprétt og látum ekki falska stjórnmálamenn komast upp með að selja ofan af okkur lýðveldið, fyrir eitt Evrópusambands-pissuklapp í skó sinn

Íslenska krónan í eðli sínu hin fullkomna mynt. Og enginn allsgáður þarf að efast lengur um að myntvafningurinn evra, sem gefin er út af seðlabanka án ríkis, er í eðli sínu meingölluð mynt. Því að löndin sem nota hana, geta hvorki látið myntina endurspegla fullkomleika né ófullkomleika hagkerfa sinna

Löndin, sem nota evruna sem lögeyri, eru höfnuð í tilvistar- og myntáhættu í stað gengisáhættu. Myntáhættan er síðan að brjótast út sem samofin ríkisgjaldþrotsáhætta og fullveldisáhætta. Þessu gerðu aðeins fáir sér grein fyrir er þessi ónýta mynt af Evrópusambandi upp í loft var steypt

Fyrri færsla

Fullkominn ótti og öngþveiti evruyfirvalda 


Fullkominn ótti og öngþveiti evruyfirvalda

Yfirlýsing "forseta" evruhópsins:

Statement by the Eurogroup President on Cyprus

Cyprus is a specific case with exceptional challenges which required the bail-in measures we have agreed upon yesterday.

Macro-economic adjustment programmes are tailor-made to the situation of the country concerned and no models or templates are used.

_____________________

25 March 2013

Panic-PDF

 

Hvernig kemur maður einu landi á kaldan klaka? Og ofan í það; hvernig kemur maður svo mörgum sem 16-löndum á 16-sinnum kaldari klaka?

Jú, það gerir maður, fyrir það fyrsta, með því að koma embættismannatilbúnu myntbandalagi yfir höfuð allt að 16 ríkja, þar sem aðeins eitt land frá upphafi uppfyllti öll skilyrði hins risavaxna regluverks myntbandalagsins. Og sem ofan í sárt kaupleysi samvaxinnar embættismannaelítu Evrópusambandsins, stofnað var til á kulnuðum brunarústum Werneráætlunarinnar, sem kólnuð og kistulögð hafði legið í lygagöngum embættismannaelítunnar frá 1970. En það ár fóstureyddist gamla Werneráætlunin sem eins konar ótímabær þokusuddi ESB-þykkildisins yfir Evrópu. En hóf líkkistan þá afturgöngur miklar sem peningalegur Frankenstein eins Maastrichtsáttmála og sem að gjalli er orðinn á 21-árs afmæli sínu

Í öðru lagi, þá skrökvar og 10-ára-þvælir maður því að stjórnmálamönnum og ríkisstjórnum 16 landa, ásamt hinum stóra alþjóðlega fjármálaheimi veraldar, að með sjósetningu evrunnar sé varanlega skollin á allt önnur skipan mála í þessum 16-löndum undir einni mynt; e. the single currency. Og að þar með —hókus pókus— sé óumdeilanlega komið á annað skuldafyrirkomulag [e. debt-regime] undir hinu eina og sameiginlega peningafyrirkomulagi einnar myntar [e. monetary-regime]. Að evrusvæðið sé nú loksins! loksins! búið að ná Bandaríkjunum; hvað varðar peningafyrirkomulag [monetary-regime] sem sjálfkrafa og óhjákvæmilega elur af sér nýtt skuldafyrirkomulag [debt-regime]. Og að þetta gildi fyrir alla ríkissjóði viðkomandi 16 landa; allar fjármálastofnanir þeirra; og þar að auki einnig gagnvart hinum breiða- og stóra alþjóðlega fjármálamarkaði veraldar, sem heldur utanum hvorki meira né minna en sparifé þorra mannkyns

Löndunum undir þessu nýja monetary-regime er því þar með ýtt og att úr í nýtt debt-regime. Þeim er att út í nýtt skuldafyrirkomulag. Þeim er nú sagt að þau búi öll undir einni mynt sem felur í sér eitt og aðeins eitt skuldafyrirkomulag, fyrir öll ríkin; eins og í blessuðum Bandaríkjunum, sem tréhesturinn frá Lyon og arftakar hans hafa svo mikið yndi af að berja sig saman við í allt of mörgum ræðum og ritum sem frá þeim hafa komið. Fjall málflaums og fjöldi drita þeirra manna er engin smásmíði orðin nú

Ríkin stofna því til nýrra skulda —jafnvel ofboðslegra skammtímaskulda— í þeirri trú að þau búi öll undir þessu nýja skuldafyrirkomulagi, þar sem loforð embættismannaelítunnar eru þau, að hið nýja skuldafyrirkomulag undir hinu nýja peningafyrirkomulagi sé í heiminn fætt til að lækka vexti á lánsfé þeim til handa; þar sem þau búi nú öll við minni áhættu undir þessu nýja monetary- & debt-regime. Og að hinn alþjóðlegi fjármálaheimur veraldar sjái þetta allt saman strax og geti jafnframt lesið sér til um þetta í öllum sáttmálum og fræðidritum Evrópusambandsins. Að þetta þýði sjálfkrafa minni áhættutöku fyrir alla fjárfesta og þá velviljuðu aðila heimsins sem kaupa skuldir af ríkissjóðum evrulanda og sem þar með fjármagna yfirdrátt og lántökur stjórnmálamanna í nafni borgaranna. Þeir sem eiga peningana (lánveitendur) muni þar af leiðandi krefjast lægri áhættuþóknunar af ríkjunum [risk-premium] og af þeim fjármálastofnunum sem í þessum evruríkjum hafa starfsemi sína

En hvað gerist svo? Jú, loksins í þriðja lagi og undir kjarnaklofnum endalokum, þá kemur nú hinn rétt-áður en þó sami-gamli-sjúki maður Evrópu, sem er hið-eina-sanna sjálfa og því sem næst ráð-og-gjaldþrota Stór-Þýskaland upp úr kjallaraholu með kolsvartan kraga og fölnaðan fána. Kragi sá er í formi eins austur-þýsks kanslara; eins geðveils fjármálaráðherra sama ríkis; eins ljúgandi-Junckers frá Lúxemborg; og eins 30-daga túlípana úr dieseblómaræktarstöð krómtappastíflu hæsta fjalls yfir Hollandi; sem einn og sameiginlegur Monetary-Monty-Python og sem talar eftirfarandi tvö orð við þrútin þrettán lönd; FALLIN SPÝTA ! Þetta var bara allt í plati!

Þetta svo kallaða nýja monetary-regime og þetta glæsta nýja debt-regime var bara allt í plati. "Þið eruð asnar. Þið hafið stofnað til allra þessara skulda á fölskum forsendum." Við (Þýskalands-blokkin) nennum ekki að leika lengur. Við drögum því teppið undan ykkur og breytum leikreglunum í miðju vaði. Í miðjum leik. Nú er rautt orðið svart, gult er dautt og grænt er sovét. Við ætlum að vaða úr einu debt-regime yfir í annað debt-regime í miðjum leik. Við erum svo fullkomlega heimskir að við hugsum minna en ekkert; við vitum ekkert; við kunnum ekkert; og við getum ekkert. Þið eruð á fávitahæli. Þið eruð 16 lönd lokuð inni á geðveikrahæli. Fallin spýta! 

Það er ekki hægt að fara úr einu skuldafyrirkomulagi yfir í annað undir einu og sama frosna myntfyrirkomulaginu, sem þess utan sýnir sig sem verandi verra en ónýtt => pessimal. Og allra síst undir áföllum og aldrei undir sama peningafyrirkomulagi; án þess að rústa ríkjum í leiðinni. Þetta brjálsemisverk yfirvalda myntbandalags Evrópusambandsins sem þau kalla fram með aðgerðum sínum á Kýpur, jafngildir því að hella LSD út í kaffi flugumferðarstjóra á vakt yfir 16 ríkjum evrusvæðis

Næst síðasti einræðisherra í Evrópu sem reyndi að ræna bankainnistæðum, hét Nicolae Ceausescu. Hann var á jóladag árið 1989 leiddur fyrir aftökusveit og skotinn til dauða í heimalandi sínu, Rúmeníu. Frá þeim jólum í Evrópu eru aðeins liðin 24 ár

Um rétt og viðeigandi skuldafyrirkomulag undir réttu peningafyrirkomulagi fjallaði ég meðal annars um í grein minni í 4. hefti 7. tölublaðs Þjóðmála, veturinn 2011, undir titlinum; "Áhlaupið á íslensku krónuna". Þeir sem eru svo heppnir að eiga Þjóðmál, geta einnig þar og í sömu grein, lesið um svæsið og jafnframt lífshættulegt áhlaup stjórnmálamanna á fullveldispening okkar ástkæra íslenska lýðveldis

 

"A good plan, violently executed now, is better than a perfect plan next week."

- George S. Patton

 

Fyrri færsla

Bjarni Benediktsson að verða pólitískur síbrotamaður  


Bjarni Benediktsson að verða pólitískur síbrotamaður

Kæri Bjarni Benediksson, formaður Sjálfstæðisflokksins
 
Samþykkt 41. landsfundar fjöldahreyfingar Sjálfstæðisflokksins í stjórnmálum
 
Áréttað er að aðildarviðræðum við ESB verði hætt og þær ekki teknar upp aftur nema að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu
 
 
Það er þín einkaskoðun á ömurlega tilkominni svika-ESB-umsókn, að það eigi að leyfa fólki að kjósa um hvort að þjóðkjörnir ökumenn lýðveldisins fái áfram að keyra ölvaðir, svikulir og próflausir með Lýðveldi Íslendinga til helvítis í þágu fámenns hóps ESB-krata og ESB-sósíalista

Þingmenn sækja umboð sitt til kjósenda. En ekki öfugt. Þeir höfðu ekkert umboð frá kjósendum til að senda þessa ESB-umsókn af stað í upphafi. Ekki frekar en þröng klíka þingmanna hafði undir handjárnaglamri, pólitískum hótunum og valdasmiti neitt umboð fyrir hönd Lýðveldis Íslendinga til að sækja um inngöngu í Bandaríkin

Umsókn þessa hefur grasrót Sjálfstæðisflokksins krafist að umsvifalaust sé dregin til baka. Að óhæfan og svikin gagnvart þjóðinni séu afmáð og að þau hætti. Umsóknina á umsvifalaust að draga til baka. Að því á forysta Sjálfstæðisflokksins að vinna að í stjórnarandstöðu sem og í ríkisstjórn
 
Landsfundurinn mótmælir [einnig] íhlutun sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi í stjórnmálaumræðu þjóðarinnar og telur óhæfu að stækkunardeild ESB haldi úti starfsemi hér þar sem lagst er á sveif með einu stjórnmálaafli gegn öðrum. Evrópusambandinu verði gert að loka kynningarskrifstofu þess hér
 
 
Og umsókn inn í Evrópusambandið má aldrei aftur koma á dagskrá Alþingis Íslendinga fyrr en að einlægur 75 prósenta meirihluti íslensku þjóðarinnar hafi í samfellt 10 ár sýnt að hún af fullri einlægni og heiðarleika vilji sækja um að Lýðveldið Ísland verði innlimað inn í Evrópusambandið. Þetta mál er þess eðlis
 
Sterk rök og hreinar tilfinningar íslenskrar þjóðar ættu hins vegar að krefjast allt að 800 ára umhugsunartíma, eins og síðast. Í faðmi þeirra sterku raka og hreinu tilfinninga fæddist stofnun Sjálfstæðisflokksins. Hér mega engin þjóðsvik slá rótum og festa sig í sessi, svo lengi sem við drögum andann

Bjarni Benediksson formaður Sjálfstæðisflokksins; þú ert hér algerlega próflaus. Flokkurinn þarf strax að taka þig úr pólitískri umferð, því þú ert að verða pólitískur síbrotamaður. Þér er ekki treystandi í gegnum neinar dyr. Þú stendur í vegi fyrir nauðsynlegum heiðarleika í stjórnmálum. Undir þér mun fátt dafna
 
Nú er jafnvel mér orðið ljóst að ég mun aldrei kjósa Sjálfstæðisflokkinn á meðan þú ert þar próflaus við stýrið. Aldrei. Ég ætla ekki að sigla með þér til þjóðsvikahafnar Gunguztan. Ég stíg aldrei um borð í skip þitt, því þú ert dómgreindarlaus, hættulegur sérhverri áhöfn, svo ekki sé talað um dýrmætan farm og barða farþega
 
Virðingarfyllst
Gunnar Rögnvaldsson 

Fyrri færsla
 
 

Lífinu lifað út í ystu æsar á evrusvæðinu

 
Germany 1866-1945 - The Institutional Structure of the Empire - G. A. Craig síða 38-39
 
Bankakerfi evrusvæðisins á Kýpur er enn lokað, sjötta daginn í röð árið 2013 e.Kr. Haft er eftir fjármálaráðherra Þýskalands, Wolfgang Schaeuble, að ekkert sé víst að bankakerfi Kýpur muni nokkru sinni opna aftur. Um það bil milljón manna bíða þar á milli vonar og ótta um hvað verði um það undir evrunni. Sumir kalla fjármálaráðherra Þýskalands nú fyrir hættulegasta mann Evrópu. En hann er starfsmaður á tilraunastofu frú Angelu Merkel frá Austur-Þýskalandi.

Reyna margir vísir menn að giska hér á hvað ríkisstjórn Kýpur taki nú til bragðs eftir að ECB-aukaseðlabanki Þýskalands yfir öllum evrulöndum, hefur sagt að hann muni loka á lýðveldið Kýpur, neiti ríkisstjórnin þar í landi að ræna bankainnistæðum borgaranna og afhenda þær til þeirra sem ráku bankakerfið í þrot; eigendur og peningayfirvöld þar með talin. Giskað er á, til að byrja með og á meðan Buchheit er til staðar, að ríkisstjórnin muni undir þýskum skammbyssu-pólitískum þrýstingi, leggja hald á lífeyrissparnað borgaranna ásamt steingrímskri útsölu á ríkiseignum og bankarúllhettum til útvaldra hæstbjóðenda. Og síðan, eftir þjáningarfullan dauðadans, senda lýðveldið Kýpur í fullblásið þjóðargjaldþrot.

Á Írlandi hafa hin þýsku peningapólitísku skammbyssuyfirvöld evrusvæðis í turni ECB-seðlabankans, krafist þess að viss ríkisstjórn þar í landi skipi Írum svo fyrir, að allur aragrúi fallinna írskra heimila undir húsnæðisskuldafjalli hinnar þýskt-sköpuðu og made in Germany fjármálabólu evrusvæðis; losi sig fyrst við heilbrigðis- og sjúkrasamlagstryggingar fjölskyldunnar; selji svo alla bíla heimilisins utan eins, áður en nokkuð sé aðhafst þar í landi til aðstoðar ofurskuldsettum húsnæðiskaupendum evrubóluáranna - og áður en fjármálastofnanir á einn eða annan hátt komi til móts við bráðagreiðsluvanda evruheimila Írlands, þar sem húsnæðisverð er fallið um 50 til 60 prósent og enginn fær lán nema að hann sé í ríkisstjórn, vinni í seðlabankanum eða hjá öðrum erlendum fyrirtækjum þar í landi. Einnig verður þess krafist að fólk taki börn sín úr einkaskólum; aflýsi og stöðvi allar utanlandsferðir þeirra sem búa undir skuldaþaki heimilisins; og stöðvi þar næst fjárútlát allra heimabúandi til íþróttaiðkana.
 
Til að vita til hvers Írar tóku upp evru, þá þarf fyrst að skoða eiginhandaráritaða samúðarkveðju de Valera forseta Írlands í sendiráði þúsund ára ríkis Þýskalands í Dyflinni, vegna dauða sósíalistans herr Adolfs Hitler í aprílmánuði árið 1945. Handritið útskýrir sig sjálft
 
Fyrri færsla
 

Með ESB-aðild yrðu gjaldeyrishöft líklega hert og fest varanlegar í sessur zars kommissars

DIRECTORATE-GENERAL FOR ECONOMIC AND FINANCIAL AFFAIRS

 

 eu economy 2003 review forsíða

Rauðar stjörnur nú?

 

Að Kýpurkveldi

Það lítur út fyrir að þeir sem kvöld eftir kvöld hafa neðangreind ESB-sálmavers fyrir börnum sínum, séu einatt og akkúrat þeir sem hlaupa svo framandi hratt á haglahlaupum undan öfugum hlaupenda sjálfskaparbyssu sinnar. Þarna þegar þeir kvöld eftir kvöld þrýsta tungum sínum svo ljúft á orðagikkinn gegn sjálfum sér og börnunum. ESB-rímur rúlla ákaflega hratt af slefandi tungum —og svo fossandi geta liprar tungur slefað— að þekkja tungnamenn bálkanna umsvifalaust sjálfa sig sem sérfræðinga í eiðsvörnum peninga- og bankamálum þjóðar; Evrópumunnvatnavöxtum Össurar undir eiðsstaf. Hlaup um höfuð þá hafið er.

Því hin stóra sannleiksbók eins leshrings umhverfis þvaðrið um ESB-aðild og evruupptaka myndi þýða brotthvarf gjaldeyrishafta á Íslandi, er meira en líklega algerlega öfugsnúinn þvættingur. Í besta falli hvítir lygar og stór summa ESB-þvælu. Eða þá þvaður-blaður og geðbilun á hinu hrottalega lokastigi europhile-sjúkdómsins. En þegar sá sjúkdómur hefur náð því vaxtastigi Evrópuvaxta Össurar, þá romsa menn. Sjúkdómur romsunar er þá kominn upp á ólæknandi dómsstig.

Í ESB og undir evru eru gjaldeyrishöft lögleg. Fullkomlega lögleg samkvæmt lagabálki sambandsins. Og þegar maður heitir örríki, eða bara a-tómið Ísland í ESB samhengi, þá myndu þau af ESB-veldinu í Brussel þykja mjög ákjósanleg og frekar festast í sessi heldur en hitt, þar til sérhvert sjálfstætt lífsmark hefur verið murkað úr íslenska lýðveldinu, fyrir fullt og allt. Fyrir algerlega full og allt á allri 800-þúsund ferkílómetra lögsögu þeirri er forfeðurnir sköffuðu okkur íslensku þjóðinni. Aðeins heimska Jóhönnu Sigurðardóttur, Steingríms J. Sigfússonar og Össurar Skarphéðinssonar er stærri að flatarmáli. En flatarmál er native tungumál þeirra aftur frá 1968 og alla leið áfram til 1918 og alls sovésks þar á milli.

ESB-sálmavers gjaldeyrishafta (esb-uppfært: 24.01.2013)

  1. Exceptions stipulated in the Treaty
  2. Exceptions established by the case law of "the Court of Justice"
  • Third-country restrictions (grandfathered provisions)
  • Tax differentiation
  • "Prudential measures"
  • Public security
  • Third country restrictions (economic and monetary union)
  • Financial sanctions
  • Balance of payment
  • Restrictions on property ownership
  • National security and Defence
  • Secondary residences  

Um "Kýpur-vandamálið"

Lesið hér um fyrstu reglu gjaldeyrishafta ("the first rule of capital controls is: you don’t talk about capital controls") og svo áfram um "lögin" sjálf: Exceptions to the free movement of capital

NÁNAR UM (sovét)STJÓRNARSKRÁ OG (sovét)DÓMSTÓL ESB

Stjórnarskrá Evrópusambandsins fyrirskipar ákveðið "samfélags- og efnahagslegt lífsmódel" eða líferni í öllum ríkjum sambandsins fyrir alla þegna sovétsambands ESB, alveg eins og stjórnarskrá gömlu Sovétríkjanna gerði; en hún fyrirskipaði að kommúnismi væri hið eina leyfilega og löglega samfélags- og efnahaglega lífsform fyrir alla borgara og fyrirtæki innan landamæra Sovétríkjanna. Út frá stjórnarskránni þeirri ættu allir að skoða æðstu dómstóla gömlu Sovétríkjanna og því næst allan æðsta dómstól Evrópusambandsins, lög hans, dóma og túlkanir; þ.e.a.s. Evrópudómstóllinn (ECJ) e. "European Court of Justice".

ECJ-dómstóll Evrópusambandsins styður aðeins þau "réttindi" borgara og fyrirtækja innan sambandsins sem stuðla, hvetja og vinna að ákveðnum málstað sem njörvaður er niður í undirstöðu allra sáttmála Evrópusambandsins; "Une certaine idée de l'Europe" eða "hinni sérstöku hugmynd um Evrópu(sambandið)". Þessi hugmyndagloría um Evrópu ER dómstólinn sjálfur, lög hans og túlkanir. Hún er Dottin niður til Jarðar sem framandi geimvera og illfygli mikið. "Réttindi" boragranna eru af ECJ-dómstólnum aðeins leyfð ef þau stuðla að "meiri sameiningu" (integration). 

Og það þýðir í praxís að dómstóllinn mun alltaf dæma þessari "samruna hugmynd um Evrópu" í hag og vaða yfir öll stjórnarskrárbundin réttindi þegnana í öllum aðildarríkjum. Réttindi borgarana á lagasvæði dómstólsins — og sem hann skammtar — eru bara til í raunveruleikanum ef þau gagnast, stuðla að og styðja við þessa "hugmynd um sameinaða Evrópu". Ef þau stangast hins vegar á við "hugmyndina um sameinaða Evrópu" þá eru réttindi borgarana ekki til (non existing) í augum dómstólsins.

Lengra nær hinn heimspekilegi grundvöllur og lagarammi dómstólsins ekki. Þetta er í eðli sínu einræðisleg uppskrift (e. totalitarian concept) að nýju helvíti á okkar Jörð. Þetta er kjarninn í ESB. Og þetta er nýtt sovét, eins og við mátti búast af meginlandi Evrópu. 

Við eigum að segja okkur úr EES og lifa undir þeim lögum sem aðeins við sjálf setjum fyrir okkur sjálf og bara fyrir okkur sjálf. Magna Carta frá 1215 verðum við ávalt að muna. Fátt verður mikilvægara í þeirri afar slæmu framtíð sem herja mun á okkur frá hinum nýju Evrópusovétríkjum ESB

Fyrri færsla

EvruKýpur undirbýr fjármálalega herkví og lokun landamæra


EvruKýpur undirbýr fjármálalega herkví og lokun landamæra

Enn er evrubankakerfi Kýpur haldið lokuðu. Það er lokað vegna þess að Kýpur hefur misst allt fullveldi sitt í peningamálum. Grunur leikur á að ríkisstjórn landsins, fjöldi manna henni nátengdir, europhiles og hin stóra sjálfþjónandi embættismannaklíka ESB-regluverksins í landinu, hafi á undanförnum vikum flutt miljarða evrur úr landi í skjóli vitneskju um hvað yfir vofði.

Eftir margra vikna brotaleit hefur stjórnarfars- og peningapólitísku gangstereyki Evrópusambandsyfirvalda ekki enn tekist að finna einn einasta óhreinan rússneskan peningaþvott í fjármálakerfi Kýpur.

Landið býr sig nú undir neyðarástand, bankaáhlaup og því sem næst lokun landamæra á bæði fólk og fé.

Lögeyrir Kýpur er evra. Sú staðreynd er njörvuð niður í yfirstjórnarskrá landsins er nefnist Lissabonsáttmálinn. Það tók sjö ár að sauma hana fasta á landið. Evran er eini löglegi gjaldmiðill Kýpur. Skipt hefur verið um heilabú í lýðveldinu. Það spriklar því fjarstýrt frá Brussel, aðalstöðvum ECB-aukaseðlabanka Þýskalands í Frankensteinfürt og frá París.

Hætt er við að aðild landsins að Evrópusambandinu og skylduupptaka evru árið 2008 sem eina löglega lögeyris í landinu, muni kosta lýðveldið Kýpur lífið. Hrikalegar hörmungar bíða landsins og borgara þess. Á meðan munu hin sjálfþjónandi embættismannaklíka ESB-regluverksins í landinu og erlendis hlægja á stuttri leið sinni í bankann.

Leitin að vistmunalegu lífi í Evrópusambandinu heldur áfram

Fyrri færsla

Evran klósettpappír


Evran klósettpappír

 

Evran er Skjaldborg gegn kreppunni, Barroso í ræðu febrúar 2009

 

Holger Stelzner skrifar í þýska dagblaðið Frankfurter Allgemeine Zeitung að innistæðutryggingar banka á evrusvæði myntbandalags Evrópusambandsins, séu ekki þess pappírs virði sem þær eru skrifaðar á. Hluthafar og eigendur gjaldþrota banka séu verndaðir með því að leggja hald á sparifé almennings í evrubankakerfi Kýpur. Sem er nýa undradæmið á dúkkulísugandi ESB í dag. Hvað verður á morgun veit enginn borgari í nýja sovéti ESB.

Fyrst var það Grikkland, eftir að ESB hafði "byggt" það land "upp" í samfellt 30 ár. Svo kom sjálfur plakatdrengur ECB-seðlabanka Evrópusambandsins, Írland. Svo kom Portúgal, þaðan sem framkvæmdastjóri Evrópusambandsins hér að ofan, kemur frá. Síðan kom Spánn og svo kom Ítalía. En fyrst var Lettland því sem næst þurrkað út í ERM-II. Það er því að verða tilbúið í evru-leikinn. Og Frakklandi versnar stöðugt.

Hvað skyldu Maltverjar nú hugsa um þessar 77 sardínur sínar. Þeir hringja náttúrlega inn jólum DDRÚV. Óðinsvé Óðinsvé, dinga linga ling;

 

|_________________EURO KLANG______________|. í físmoll

| ___________así___ruv______sam_fylkz____._a,__|  Und einen evra

| _______a_._______a_______aj#0s_____aWY!400._ | EU faðmi við öll

| __ad#7!!*P____a.d#0a____#!-_#0i___.#!__W#0#___ | und Heidi Boroso

| _j#'_.00#,___4#dP_"#,__j#,__0#Wi___*00P!_"#L,___ | in Euro himmel

| _"#ga#9!01___"#01__40,_"4Lj#!_4#g_________"01_ | Brussel wunderland

| ________"#,___*@`__-N#____`___-!^___________ | kommen sie morgen

 91356 | _________#1____sviða kjammar?__nein____| und bifröst voila

tralla tralla la la: 

Viðlagið er úr Wiðlagazjóð ESB. Textahöfundur er þekktur fræðimaður 

 

Þetta er sem sagt "fjármálalegur stöðugleiki"; svo hægt sé að halda eigendum og lánadrottnum gjaldþrota banka á floti í fullkomlega misheppnuðum bankarekstri undir sogröri ECB-aukaseðlabanka Þýskalands. Þetta er jú þeirra stóri stimulus hér að verki. One og sögulega off.

Kýpur tók upp evru þann 1. janúar 2008, eftir að tvö þúsund starfsmenn ECB-seðlabanka alls evrusvæðis, allir reglugerða- banka- og fjármálaeftirlitsaðilar sama svæðis ásamt margskonar önnur allra handa yfirvöld Evrópusambandsins höfðu blástimplað bankakerfi Kýpur í bak og fyrir, sem "evru-verðugt" ríki inn í bankiztangúlag sambandsins. Alla leið inn í eins konar Landesbankakerfi Þýskalands, sem gjaldþrota varð fyrir 10 árum í umsjá stjórnmálamanna og Europhiles.

Þetta er evrubankakerfi myntbandalags Evrópusambandsins sem hér sést örla aðeins í broddinn á. Það læsist fyrirvaralaust beint í andlitið á borgurunum. Á einu geðþótta augnabliki vissra mikilvægra og lýræðislega umboðslausra manna, lokar bankakerfið á borgarana. Þeir eru frystir úti og geta ekki nálgast eigur sínar. Hér er stjórnarfarsleg gangsterklíka ESB að verki.

Gerðist þetta, frá sumum séð, skyndilega og algerlega tilviljanakennt undir svallveislu í reykfylltum næturklúbbi í sovéskum kremlarstíl, þar sem ókjörnir yfirhöfðingjar myntbandalags Evrópusambandsins lokuðu bankakerfi borgara heils evrulands. Og mölbrjóta þeir þar í leiðinni margar greinar margra sáttmála Evrópusambandsins, sem rætur innan evrópskra staða má rekja til Rómarborgar. Sem er höfuðborg í landi ítalskrar mafíu.

Svo héldu sumir hér á landi að evran væri eitthvað annað en þessi klósettpappír sem hún er og hefur alltaf verið. Og að myntbandalag Evrópusambandsins væri eitthvað annað en nýtt sovét tungulipurra og hámenntaðra vitfirringa á skattfrjálsum ofurlaunum; "Evrópufræðingarnir" sjálfir.

BBC

The Rotten Heart of Europe- Bernard Connolly and Anatole Kaletsky discuss

The first practical step, the European Coal and Steel Community (ECSC), was in fact very close to a resurrection and extension of the wartime cooperation between the coal and steel industries of Vichy France and Nazi Germany

Smellið vinsamlegast hér til að hlusta á breska BBC-ríkisútvarpið ræða við Bernard Connolly og Anatole Kaletsky um bók Bernards; "The Rotten Heart of Europe". Hún kom út árið 1996 og hefur lengi verið uppseld. Bernard hefur nú látið prenta nýtt upplag af bókinni og ritað nýjan formála að henni, sem spyr; why? Bókin sjálf lýsir hins vegar how, eða hvernig myrkraverkið Evrópusambandið var skapað frá upphafi. Einnig langar mig að benda lesendum á grein Bernards í tímaritinu The International Economy (hér) og að taka þar vel eftir hugtakinu e. coordination

Fyrri færsla

Sigð og evruhamar Kýpur vex upp úr naglagarði utanríkisráðherra 


Sigð og evruhamar Kýpur vex upp úr naglagarði utanríkisráðherra

"Hér hefði ekkert hrun orðið ef við hefðum haft evru"
- eftir Össur Skarphéðinsson
 
Kýpur og 800-þúsund landsmenn þess ríkis tóku upp evru þann 1. janúar 2008. Varanlega krypplað eftir ERM-II ferlið og blástimplað af evruyfirvöldum Brussels og ECB í bak og fyrir sem vottaður vesalingur. Yfirvöld þess gerræðis þar í landi þurfa því nú stærsta björgunarhring sem um getur í sögu ríkisfjármála mannkyns. Hann þarf að nema 25 prósentustigum meira en öll landsframleiðsla landsins var á ári á meðan var . . 

nema . .
 
. . að sparifé fólksins í landinu verði gert upptækt, gjaldþrota evrubankakerfi landsins til björgunar. Svo það hrynji ekki ofan á kremlið í Brussel. Og það var gert í gær. Sú athöfn hófst í gær. Sparifé fólksins í bankakerfi landsins er einmitt verið að gera upptækt. Takið vinsamlegast eftir; í evrum!
 
Fyrst kom evra Evrópusambandselítunnar eftir samfellda 10 ára lýðræðislega nauðgun, áróður, lygar og ERM-II-örkumlun ríkjanna inni í hinum eyðileggjandi pyntingarklefa konvergens kríteríunnar. Aðeins kakkalakkar í peningamálum láta blekkja sig þar inn. 
 
Síðan, eða frá og með 2002 og 2004, þverbrutu Þýskaland og Frakkland stöðugleika-hluta Maastrichtsáttmálans —sem sjálft Þýskaland hafði krafist settan þar inn— og sem samkvæmt þeirra eigin undirförulu falschfahrer-rökum, átti að koma veg fyrir að áhættutöku einkageirans yrði smyglað yfir á herðar ríkissjóða landanna. Því með upptöku evru voru öll ríkin þar með fótbrotin orðin og lifðu lífinu afar hættulega án raunverulegrar myntar. Þau máttu því aldrei koma sér í þá aðstöðu sem krefðist peningaprentunar og flöggun fullveldis. Út á það gekk stöðugleika-hluti Maastrichtsáttmálans. Hann átti að virka sem eins konar sóttvarnargirðing á meðan myntbandalaginu yrði smám saman á bak við tjöldin og gegn fullri vitund fólksins, breytt yfir í eitt stórríki. Yfir í einn sannan ekta skattgreiðanda eins ríkis með einn —og aðeins einn— EKTA seðlabanka.

Því þegar enginn einn ber ábyrgð á seðlaprentaranum undir sameiginlegri mynt, þá er ekki hægt að prenta neitt. Þá er ekki lengur hægt að nota mynt sem mynt. Menn verða því í þannig aðstöðu að ganga um peningagólf heimsins með hækjur og á snjóþrúgum. Læðast örkumlaðir og fatlaðir um. Og það gerðu þeir í kippum. Þeir sögðu; "mamma mamma, allir í næstu götu ganga um með hækjur. Ég vil líka fá hækjur". Og hækjur fékk Kýpur, hækjur fékk Malta og hækjur fengu þeir sem báru nafnið Allir, því þeir eru asnar, eins og Össur. Hann er asni, eins og Jóhanna, eins og Steingrímur og þar á undan Ingibjörg Sólrún. Munið þið eftir Icesave I, Icesave II og Icesave III. Og stjórnarskrármálinu, einungis til að geta afsalað Íslandi fullveldinu í hendur Evrópusambandsins.

Kom því evrubóla myntbandalagsins, sem er stærsta með vilja skapaða fjármálabóla mannkynssögunnar. Og munið hér vinsamlegast og eitt andartk að Deutscher var 40-80 sinnum gíraður upp undir non-existing cross-border resolution mekanisma, fyrir þannig geislabaugs-monster (52,5 x gírun ultimo 2007). Munið hvað Simon sagði í Kredithörpunni. Hvað sagði Simon Johnson þar. Þið hljótið að muna það. Síðan sprakk evrubólan ofan á fólkið. Og enn á fjórða ári er hún að springa. Hún mun springa stanslaust, linnulaust, án afláts, vægðarlaust og sem fullkomin viðvarandi gereyðandi stórskotahríð yfir fólkinu, þangað til ríki þess breytist í algert nýtt sovétríki. Algerlega nýtt sovétríki. Tönn fyrir tönn. Auga fyrir auga. Lagabálk fyrir lagabálk. Með eða án forherts vilja. Þannig virkar vansköpun í þessum efnum. Hún gerist

Svo kom fjármálaleg kúgun; e. finacial repression. Í gær var síðan hafist handa við að gera sparifé fólksins upptækt; e. financial confiscation. Réttindum fólksins verður fórnað. Frelsið er farið. Enginn kemst lifandi út. Síðan kemur heildarsovétríki Evrópusambandsins. Loksins kemur framhaldið! Loksins! Nema að því tilskyldu að ECB-seðlabanki Evrópusambandsins verði settur í þrot. Hlakkar þig til þess? væni minn. Settur í þrot. Hvað segja Þjóðverjar þá? Haldið þið að þeir segi bara þegjandi amen við þeim ragnarökum? Þetta allt mun ekki geta gerst nógu hægt til að enginn taki eftir því. Þó mikið sé reynt. Það er ekki mögulegt. Atburðarásin verður þannig. Óstjórnleg á einum eða öðrum tímapunkti í farvegi ferlisins til heljar. Enginn veit hvenær.

En þá kemur Össur sínum Skarphéðinssyni til bjargar; hirðfífl norðursins á framfærslu skattgreiðenda mun þá tala. Maðurinn eini sem fær er um að spónleggja nýtt evruheimili sitt með spónahrúgum Maastrichtsáttmálans, sem gjall er orðinn á 20 ára afmæli sínu í meðferð vitfirringahælis Evrópusambandsins
 
Vitfirringar komu. Aftur og aftur á meginlandi Evrópu. Allaf aftur upp frá rotnum rótum þess. Þetta verður ekki skemmtilegt.

Fyrri færsla
 
 

mbl.is Í áfalli yfir harkalegum skilmálum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Heimilin í landinu" ekki lengur í landinu?

Þau eru orðin flest á svo kölluðu "höfuðborgarsvæði". Þar þynntu all margir steypuna heldur betur út og steyptu því miður í of mörgum tilfellum tilgangslitla ógæfu, sem sumir urðu jafnvel undir.

Frekar fáum datt á árum áður í hug —ei heldur um langa sögu landsins— að heimilin á Siglufirði, Ísafirði, Seyðisfirði, Raufarhöfn og víðar á hinu stóra víðfeðma Íslandi, væru "í landinu", fyrr en þrír bankar höfuðborgarsvæðisins hrundu akkúrat niðurkomnir þar og bara þar. Það er, að því er virðist, ekki sama hvar ógæfuna ber niður. Ekki sama hvar hlutirnir hrynja, svo tekið sé eftir.

Massahystería undir eins konar og Hörpustíganda strigamannastjórnmála grípur um sig, þarna sem 64 prósent þjóðarinnar hafa hreiðrað um sig. Frekar einangruð og mikið of mörg prósent frá hinu stóra Íslandi - og of mikið slitin úr hinu stóra samhengi þess.

Hér má Sjálfstæðisflokkurinn ekki bogna. Skipan þarf að standa; upplausn verður að víkja. Kjósendur flokksins stóla á það.

Við erum þó með sömu vexti í Grímsey, Vestmannaeyjum og reyndar alls staðar á myntsvæði krónunnar stóru; sem er 18. stærsta eyja heimsins. Hér ríkir ekki til-eins-dags peningastefna eins og í lendum Evrópusambandsins, þar sem vextir lúta eins konar skammtafæðiklikkunar Ping við Pongs.

Merkilegt finnst mér að Falklandseyjabúar geti haft 500 þúsundir fjár á sínum 12 þúsund ferkílómetrum. Við ættum þá að geta haft að minnsta kosti tíu sinnum meira, þ.e.a.s utan "höfuðborgarsvæðis" Fimm milljónir fjár!
 
Gætið að hvers óskað er
 
Fyrri færsla
 
 

Weimarrettur rúllaðar og boðnar fram

The Rise of State Capitalism - Nýr Lenín - The Economist-Jan-2012 

Ég hef velt því fyrir mér af hverju Bjarni frá Vogi vindlar fást ei lengur, undir fánanum okkar. Hafa menn kannski drepið í þeim um leið og þeir drápu í sjálfum sér. Er það svo.

Nú eru Weimarrettur að verða hve vinsælastar. Í hverjum pakka af rúlluðum Weimarrettum eru 62 naglar í kistu lýðræðisins. Furðulegt má það kallast að fólk skuli byggja hér eyju enn, eftir 304 til 1364; sem ekki eru ártöl, heldur lánskjaravísitalan frá 1982 til 1986. Fjögra ára því sem næst gleymt tímabil - og still standing.

Í dag hefur karlinum Marx —úr tómu tímarúmi þekkingar sinnar— loks tekist að jafna sitt Kína út. Jafna það út. En á tímabilinu frá 1945 til 2013, sem rúmar 68 ár, hefur Kyrrahafsflota Bandaríkjamanna tekist að halda siglingarleiðum Asíubúa til umheimsins opnum. Án hans væru heimsviðskiptin útilokuð, óhugsandi og enginn fastur fótur fyrir svo mörgu ömurlegu í Asíu. Þessi USPACFLT-hluti flotans er lífsspursmál fyrir hinn siðmenntaða heim, sem og hann allur er.

Við sem bökkum upp Sjálfstæðisflokkinn, bíðum spennt eftir því að staðföst forysta flokksins taki alls ekki þátt í útrúlluðum yfirboðum. Heldur bíði forystan, standi fast og spyrji svo kjósendur á ný að leikslokum Weimarrettu-tímabilsins, sem mun brenna hratt. Tímabilið stóra, frá 1991 til 2004, vitjar þá líklega síns nýja tíma. Stundum er hægt að vera stoltur af því sem maður aldrei gerði. Vel er mögulegt að læra af mistökum.

Tausend kronen monetray union exit note - stimplaður 

Í bók sinni "The Economic Consequences of the Peace" sem birt var árið 1919, flokkar John Maynard Keynes "Heimsstyrjöldina fyrri" sem "borgarastyrjöld". Auðvitað gat hann ekki vitað að síðar myndi hefjast alger-styrjöld á milli engilsaxneskrar siðmenningar og hreins barbarisma meginlands Evrópu - og sem hlaut nafnið "Hin síðari heimsstyrjöld". Það er erfitt að spá, sérstaklega um framtíðina. Hina fyrri er ekki hægt að skilgreina fyrr en sú síðari hefur fæðst og endað með PaxAmericana friði yfir Evrópu. Ófriðarverðlaunahafar Nóbelssambands ESB töluðu því illilega af sér inni í kú sambandsins í gær. Þessir þeir sem hafa spennt sér sjálfum svo kyrfilega þvers fyrir vöggu lýðræðisins og þekkja ekki nafnið á sjálfum sér - sem er; Stríðið mikla (The Great War)

Að leikslokum

Þetta hér fyrir neðan er virkilega einstakt fyrirbæri í mannkynssögunni. Þetta eigum við að styðja. Halla okkur upp að. Hefði hér hins vegar verið um tvö ríki að ræða frá upphafi, þá væri þetta kannski ekki svona algerlega einstaklega einstakt og standandi afrek í sögu mannkyns. Skrítið að Baugsveldi útþambara skyldi vera þarna eins gelt naut á svelli. Skyldi skýringuna kannski vera að finna í góðum ó-evrópskum lögum og stofnunum. Þarna gátu þeir því ekki neitt.

Fyrri færsla

Forsendubrestur peningamáltíðar 


Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband