Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2016

ESB hefur ákveðið að endurskirfa skattalöggjöf Írlands

Steve Jobs heimsækir aðalstöðvar Apple í Cork á Írlandi - október 1980

Mynd: Steve Jobs heimsækir aðalstöðvar Apple á Írlandi 1980

Kjörinni ríkisstjórn svo kallaðra kjósenda, svo kölluðu löggjafarvaldi og svo kölluðum lögum á Írlandi, er nú stillt upp til aftöku við múr Evrópusambandsins, og gert skylt að rukka stærsta skattgreiðanda landsins, og heimsins, aukalega um 14,5 miljarða Bandaríkjadali aftur í tímann til jafnvel ársins 1980! Þetta skipar ESB svo kölluðum Írum að gera

Apple hefur skapað 1,5 milljón störf í Evrópu frá því að það setti upp starfsemi sína á Írlandi 1980. Fyrirtækið þráaðist lengst bandarískra tölvuframleiðenda við að flytja hluta af framleiðslu sinni frá Bandaríkjunum til ódýrari landa

Ríkisstjórnin og löggjafinn á Írlandi segir að Apple skuldi írska ríkinu ekki neitt og að fyrirtækið hafi ávallt greitt alla þá skatta sem því ber samkvæmt írskum lögum

Þarf nú svo kallað Írland að leggja sjó undur fót, framhjá Stóra-Bretlandi, til að berjast fyrir lögum landsins, innan kermalarmúra ESB í Brussel. Bænaferð það heitir

Opið bréf Apple til þeirra sem við á í Evrópu, birtist strax eftir niðurstöðu yfir-yfirvalds Írlands í Brussel, á heimasíðu fyrirtækisins: A Message to the Apple Community in Europe

Það er afar sjaldgæft að Bandaríska fjármálaráðuneytið blandi sér í mál af þessum toga. En fyrir nokkrum dögum varaði það íbúa Evrópu og Evrópusambandið við og sagði að ESB, án laga og heimilda, sé að setjast ofan á ríkin sem "yfirríkislegt skattayfirvald" [PDF]

Ó Sovét-ESB, hvar ert þú?

USSE

Nú! þú ert þá þegar komið

- til að drepa bílskúrskapítalismann

Fyrri færsla

Engin "Evrópa" lengur til að tala við


mbl.is Apple þarf að greiða 13 milljarða evra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Engin "Evrópa" lengur til að tala við

Pólverjinn Chopin matreiddur að hætti James Last, Polydor 1978. Vitjaði ég leiðis Frédérics Chopin í kirkjugarði í París 2007

Evrópusambandið er nú komið inn í lokaferli sitt: strandið sjálft, og síðan skipbrotið. Bandaríki Norður-Ameríku eru eina stórveldið í heiminum sem ekkert ríki getur snert. Það ræður sjálft hvað það gerir og gerir ekki, og hvað aðrir komast ekki upp með þegar hagsmunir rekast á. Og þannig verður það um aldir. Bandaríkin eiga engin samskipti við Evrópu. Þau eiga engin samskipti við neitt sem heitir Evrópa, því Evrópa er bara spuni og útjöskuð þvæla með enga viðloðun við raunheima

Bandaríkin hafa því eingöngu samskipti við einstök ríki í Evrópu. Og þau hafa lítil sem engin samskipti við mörg lönd í Evrópu. Svona er staðan í dag. Evrópusambandið er komið að leiðarlokum. Það er að verða ekkert. Það ekkert var óhjákvæmilegt, og að mestu spurning um tíma og aðstæður. En lifandi ekkert er slæmur félagsskapur og skaðvaldur. Gangandi dauð ekkert geta lifað lengi sem gerjunartankar fyrir hörmungar. Svo vonandi verður formlegur endir bundinn á skipbrotið og ruslið ESB sent á hauga sögunnar, áður en það er um seinan. Fundið sér heimilisfang í einu mannlausu húsi við eina götu einnar borgar sem enn ein "óvirka" og gagnslausa stofnun álfunnar, eins og Þjóðabandalagið, þar sem nokkrar gagnslausar afætur geta haldið áfram að mjólka það, þar til yfir lýkur

Mestu og stærstu hagsmunir Bandaríkjanna í álfunni liggja í Austur-Evrópu, þar sem skilin og landamærin á milli þriggja veralda liggja. Austur-Evrópa er búin að gefast upp á Evrópusambandinu og hún er búin að gefast upp á Þýskalandi, því að Þýskaland er svarthol sem flytur út helming landsframleiðslu sinnar. Ef Bandaríkin myndu gera slíkt hið sama, þá væri engin friðsöm veröld til neins staðar í dag. En Bandaríkin eru nettó-innflytjandi

Þýskaland er að endurreikna stöðu sína í Evrópu og í Veröldinni, einu sinni enn. Enginn veit hvað Þýskaland mun gera, né hvert það mun stefna. Þýskaland er hætt í NATO nema í orði. Það lítur á allt sem liggur á milli þess sjálfs og Rússlands, tólf ríki og meira en 160 milljón manns, sem algert rusl. Síðast þegar Þýskaland endurreiknaði stöðu sína í heiminum hvarf stór hluti Austur-Evrópu. Þýskaland er óáreiðanlegur bandamaður. Reikni það vitlaust, þá yrði fjandinn laus í Evrópu og landamærin á milli þriggja veralda, gætu allt eins flutt sig vestur að austurstöndum Atlantshafs. Þar með yrðu til dæmis Bretland og Ísland í allt annarri stöðu en verið hefur um langa hríð. Við yrðum þá jafnvel þriðja eða fjórða stærsta fasta flugmóðurskip Vesturlanda (e. the West)

Það er vel hugsandi að Þýskaland ákveði að stefna austur til síns gamla áfenga staðar: í hjónabandið með Rússlandi. Það er martröð sem Bandaríkin munu leggja ofur kapp á að geti aldrei orðið að veruleika, eins og þau gerðu meðal annars með stórþátttöku sinni á meginlandi Evrópu í síðari heimsstyrjöldinni. Því eru Bandaríkin um þessar mundir í gangi með að leggja drögin að nýrri "Suður-Kóreu" í Austur-Evrópu: þ.e. efnahagslega sterkum og traustum bandamönnum austan við hið misheppnaða og sökkvandi Evrópusamband Þýskalands og Frakklands. Og þetta gera Bandaríkin algerlega án aðkomu ESB. Þau gera þetta beint: frá ríki til ríkis. Ekkert ríki veraldar mun koma Austur-Evrópu til beinnar hernaðarlegrar aðstoðar, nema Bandaríki Norður-Ameríku. Evrópusambandið hefur þar ekkert um málið að segja. Ekkert!

En sem sagt: Evrópusambandið er búið að vera. Bretland er farið fyrir fullt og allt. Austur-Evrópa er að fara og suðrið er mergsogið og sökkvandi. Hvert mun afgangs Vestur-Evrópa meginlandsins kreistast út úr túbunni? Mun hún sökkva eða munu Bandaríkin aumkva sig einu sinni enn yfir þeim gamla æludalli Þýskalands?

ESB-gorkylfingar Íslands: áfram með vindhöggin og ESB-frussið ykkar. Fram á völlinn með gorkúlurnar. Það eina sem þið kunnið!

Fyrri færsla

Engir af 20 bestu háskólum veraldar eru í ESB


Engir af 20 bestu háskólum veraldar eru í ESB

Lee Marvin Poul Newman pocket money2

Hafa allan tíma heimsins

Tuttugu bestu háskólar veraldar eru næstum allir í Bandaríkjunum, eða fimmtán talsins, þrír eru í Bretlandi, einn er í Sviss og sá tuttugasti er í Japan. Enginn er í Evrópusambandinu (krækja)

Af hundrað bestu háskólum veraldar er helmingur þeirra Bandarískir, eða fimmtíu talsins, og átta eru í Bretlandi og tveir í Ísrael. Aðeins átján af hundrað bestu háskólum veraldar eru í ESB-löndum! Eins og kunnugt er hefur Bretland sagt sig úr Evrópusambandinu, til að bjarga lífi sínu

Evrópusambandið er svarthol nútíðar og framtíðar. Þar átti einu sinni að byggja nýtt sólkerfi. En það er ekki hægt að byggja sólkerfi umhverfis svarthol. Evrópusambandið og evra Þýskalands er svarthol. Sovétríkin voru líka svarthol. Kína er líka svarthol. Sósíalisminn er svarthol

Fyrri færsla

Af hverju fer Ögmundur VGkommi ekki til Frakklands?


Af hverju fer Ögmundur VGkommi ekki til Frakklands?

Ögmundur "reynir að hitta palestínskan fanga"

Furðulegt. Þetta er einn af svo kölluðum þing-mönnum vinstri vængsins sem haldið hefur æðstu stofnun Íslendinga, sjálfu Alþingi, í gíslingu án dóms og laga, með röfli, kjaftæði, þvaðri og algerri misnotkun á umboði kjósenda, nú árum saman! Vængur sem í heild hefur staðið þar og sprautað eitri yfir æðstu stjórnmálastofnun lands okkar. Og gert það beint eftir að hafa fyrst troðið massífu umboði kjósenda flokksins upp í afturenda þeirra, er flokkstíkin Vinstri grænir svín-sviku kjósendur sína og misnotuðu umboð þeirra til þess að sækja um inn í hin nýju sovétríki þeirra í ESB. Já, nú er farið til Ísraels til þess að röfla þar og kjaftæðast!

En af hverju fer Ögmundur ekki til ESB-kommaríkis Frakklands í stað þess að leggja á sig alla þessa löngu ferð til sjálfs hornsteins Vesturlanda, Ísraels? En Ísrael er eina Vesturlandið þar sem kjörnir fulltrúar fólksins sinna frumskyldum sínum, sem eru þessar afar fáu; að verja líf, limi og eigur borgaranna sem kusu þá

Í Frakklandi sitja hundruð manna undir fangelsun án dóms og laga, nema auðvitað neyðarlaga, sem franska ríkið neyddist til að taka í notkun eftir að vinir kommanna á Íslandi hafa myrt hundurðir af algerlega saklausum borgurum; konum, börnum og körlum

Af hverju fer Ögmundur ekki í heimsókn til ESB-kommanna í Frakklandi til að hitta vini sína þar? Er það kannski vegna þess að Ísrael er smáríki? Þú gætir varla kennt Frakklandi meira en það kann um umboðssvik, kosningasvik, fyrirlitningu og lágkúru flokks þíns; Vinstri melónu græna að utan, en blóðrauða að innan! Ennþá sami komma kjaftæðisflokkurinn og síðast

Fyrri færsla

Frá V8-krónu til hins verra og þaðan til helvítis


mbl.is Reynir að hitta palestínskan fanga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frá V8-krónu til hins verra og þaðan til helvítis

Nýjasti gagnagrunnur frá AGS er: IMF World Economic Outlook Database, April 2016

Þegar skoðaðar eru tölur gagnasafnsins, má til dæmis finna eftirfarandi grundvallar staðreyndir:

1) Hagvöxtur á Íslandi frá og með 2001 til og með 2015, var 41,6 prósent. Íslenska hagkerfið hefur vaxið um 41,6 prósent að raungildi á þessu tímabili, þrátt fyrir bankahrun. Velmegun Íslendinga á þessu tímabili hefur aukist gríðarlega, þrátt fyrir bankahrun. Hún hefur aukist um 41,6 prósent, eða um nær helming

2) Á sama tímabili hefur hagvöxtur í Danmörku -sem er með gjaldmiðil sinn fastbundinn við evru Þýskalands- aðeins verið 10,5 prósent. Hagvöxtur, velmegunaraukning, hefur þannig verið fjórfalt meiri og betri á Íslandi en í Danmörku á þessu tímabili. Þrátt fyrir bankahrun hér heima

3) Á sama tímabili hefur hagvöxtur á Ítalíu verið minni en enginn, eða -0,2 prósent. Viðreisnar-gjaldmiðill Ítalíu er sjálf evra Þýskalands. Hún hefur reist landið þannig við að það er nú á barmi þjóðargjaldþrots. Enginn hagvöxtur í 14 ár! - og því allt að veslast og rotna upp

41,6 prósent hagvöxtur á 14 árum

10,5 prósent hagvöxtur á 14 árum

-0,2 prósent hagvöxtur á 14 árum

Hvort skyldi nú vera betra. Allt, einn fjórði, eða ekkert?

Öll lönd sem binda gjaldmiðil sinn fastan, eru með því að reyna að hengja sig. Þau lönd sem tekið hafa upp evru, dingla nú þegar hálf dauð í hegningarólinni, bendir Lars Christensen réttilega á hér

 

Aldrei aftur

- undir erlent vald

Fyrri færsla

Evran og norska krónan að hverfa


Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband