Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júní 2011

Grikkir minnast orða Margaret Thatcher um Evrópusambandið

 
Margaret Thatcher
 
Fréttir frá Evrópuúrsambandi - úr gríska blaðinu Kathimerini    

"Þetta er allt saman óskhyggja", hefði Margaret Thatcher sagt þegar að "sameiningu Evrópu" kemur í gegnum glansmyndaútgáfufélagið í Brussel, sem virðist hafa lært markaðsfærslu hugmynda sinna í bestu skólum Moskvu Sovétríkjanna. Þegar Þýskulöndin voru sameinuð í eitt varaði Thatcher Evrópumennin í Brussel við:

"Þið hafið ekki bundið Þýskaland kjölfast við bryggju Evrópu. Þið hafið bundið og kjölfest Evrópu við nýtt ráðandi sameinað Þýskaland. Vinir mínir, á endanum munuð þið komast að því að þetta mun ekki virka."
 
You have not anchored Germany to Europe. You have anchored Europe to a newly dominant, unified Germany. In the end, my friends, you will find it will not work. 

Grikkir eru komnir í Pakkann. Alla grein Petros Papaconstantinou er að finna hér: The end of Europe as we know it
 
Með sameiginlegri mynt, peninga og vaxtavopnum, hafa glæframennn Brussels fært Evrópu aftur á Schteinöld.
 
Í Brussel situr ekki neinn Árni Johnsen við völd. Sem var dæmdur. Sem afplánaði og sem var kosinn inn úr kuldanum aftur af meðborgurum sínum. Nei, þar sitja menn sem enginn kaus, sem ekki er hægt að dæma, ekki er hægt að reka, og sem aldrei munu þurfa að svara neinum neitt um hvorki glæpi né sekt. Ég kýs Árna_Johnsen_samfélagið fram yfir allt annað og þar með er talið þetta ESB-bæli í Brussel. Árnafélagið er bæði betra og fegurra.   
 
Þetta er ekki frétt frá DDRÚV.
 
Fyrri færsla
 
 

Ofbeldi eykst eftir atkvæða- og peningaafgreiðslu í Grikklandi

Særðir þjóðfélagsþegnar í Evruríkinu Grikklandi; Mynd; Kathimerini
10 árum eftir evruupptöku. Mynd; frétt Kathimerini: Evruríkið Grikkland 29. júní 2011 
 
Gríska blaðið Kathimerini birti frétt klukkan 19:00 að staðartíma um að ofbeldi á götum úti hafi aukist eftir að gríska þingið samþykkti afarkosti fyrir ríkisfjármál grískra þjóðfélagsþegna, að kröfu Brussel. Læknar Rauða Krossins sem gerðu að sárum slasaðra mótmælenda voru hraktir á brott af lögreglu.

Seðlabanki landsins sagði í gær að Grikkland myndi fremja sjálfmorð með því að neita að uppfylla pöntun Brussels. Fyrir rúmlega tveimur árum gat ég þess á heimsíðu minni að fyrrverandi seðlabankastjóri belgíska seðlabankans, Alfons Verplaetse, hefði sagt að það væri engin leið út úr evru aftur án þjóðfélags- og efnahagslegs sjálfsmorðs. Um svipað leyti gat Charles Gave þess að evra myntbandalags Evrópusambandsins væri Frankenstein fjármála.

Nú hefur þetta verið staðfest. Allir hugsandi menn vissu þetta þó fyrir löngu síðan.
 
Krækjur
 
 
Fyrri færsla
 

Evrulandið Kýpur að lokast frá alþjóðlegum fjármálamörkuðum vegna evruupptöku

Ríkissjóður Kýpur þorir ekki út á alþjóðlega fjármálamarkaði lengur. Vaxtakjör ríkissjóðs Kýpur undir evru eru að sögn blaðsins Cyprus Mail þau verstu í sögu landsins. Ríkissjóðurinn var lækkaður í áliti af Moody's í janúar og aftur settur á athugunarbekkinn í maí af ótta við að landið þoli ekki Grikklandsálagið og bankatilveruna í myntbandalagi Evrópusambandsins.
 
Roughly one third of the banking system’s assets are booked as Greek exposure, including that of Greek subsidiaries based in Cyprus. This exposure includes almost EUR14bn of Greek sovereign bonds and an estimated EUR5bn of Greek bank bonds | FT 31/5 2011 

Alþjóðlegir fjárfestar krefjast nú tvöfalt hærri vaxta á tveggja ára skammtímalánum til Kýpur, eða um 4,5 prósenta miðað við 2 prósent fyrir ári síðan. Vaxtakjörin á 10 ára lánum eru nú um það bil 7,5 prósent.
 
Munið vinsamlegast að íslenski krónu-ríkissjóðurinn nýtur nú um það bil tvöflat betri og lægri vaxtakjara á alþjóðamarkaði en ríkissjóður evrulandsins Kýpur. Þetta er sjálfstæðri mynt okkar að mestu um að þakka. Ísland þarf ekki að berjast við ESB-nýlenduálagið svo lengi sem við erum fullvalda þjóð í sjálfstæðu ríki með okkar eigin mynt.

Atvinnuleysi á Kýpur er það versta síðan 1980 og nálgast átta prósent og er yfir tuttugu prósent hjá ungu fólki. Landið sem telur undir eina miljón íbúa gekk í ESB árið 2004 og tók upp evru svo seint sem árið 2008, eftir fyrst að hafa verið í ERM-pyntingarklefa Evrópusambandsins frá því í apríl 2005.

Greinilegt er að evruupptaka landsins hótar nú að taka landið niður, henda því í púðurtunnu Evrópusambandsins og ganga frá því þar. Kýpur er komið í pakkann; Evru-Víetnamið.
 
Þessi frétt er ekki frá DDRUV.

Ég myndi ekki vilja eiga neina peninga í banka á Kýpur, né í neinu öðru evrulandi.

Krækjur
 
 
Fyrri færsla
 

Kína kaupir inn í Evrópu

Ferðalag kínverska forsætisráðherrans til ESB landa hélt áfram í dag. Á morgun hittir hann sjálfa kínverja Evrópu, Þjóðverja, þar sem Angela Merkel mun taka á móti honum á dráttarvél. Hún hefur farið á námskeið.
 
Koma Asíuútgáfu kínverska kanslarans til Þýskalands er til vottunar um það að Asíukínverjar munu halda áfram innkaupum sínum á uppgjafarríkisskuldabréfum evrulanda í merkelskum barmi upplausnar í skiptum fyrir þögn kínverja Evrópusambandsins þegar að siðferði, frelsi og mannréttindamálum kemur. En til kínverja Evrópusambandsins í Brussel hafa öll ESB-ríkin afsalað sér næstum öllu fullveldi sínu í innflytjenda- flóttamanna og mannréttindamálum og alveg öllu fullveldi þeirra í utanríkismálum. Draumurinn um hold kæft, trit og retning á því sviði er þegar uppfylltur í öllu Evrópusambandinu. Friðartollabandalagi Weimardúllara.

Össur Skarphéðinssson
Íbúar í Evrópusambandinu óttast nú að þeir verði seldir til hæstbjóðenda og að restarnar af fullveldi ríkja þeirra fari sömu leið og vörurnar frá Þýskalandi fara. Þetta er sannarlega merkur dagur í sögu Íslands, að mati Össurar Skarphéðinssonar alþýðumanns og komma. En hann er um þessar mundir staddur í púðurdós frú Merkel. Þar er hann að skoða aðstæðurnar fyrir afhendingu fullveldis íslenska lýðveldisins yfir á lyklakippu stórhertogadæmis Evrópu, sem einnig hvílir í þessari sömu handtösku frú Merkel á dráttarvélinni.
  
 
Krækja. ABC OPINIÓN; El dictador solvente
 
Fyrri færsla
 

Það góða við Keynes er að hann minnkar ríkisafskiptin og styrkir fullveldi þjóða.

Þeir sem aðhyllast myntbandalag Evrópusambandsins eru allir þar með mjög hlynntir miklum ríkisafskiptum. Þeir verða að vera það. Þegar samfélagshagkerfi missa sjálfstæða mynt og peningapólitík þá eru engin stjórntæki þar eftir nema ríkisafskiptin. Þar er aukið atvinnuleysi alltaf efst á listnaum. 

Þið sjáið þetta núna. Eins og hundar í bandi fjármálamarkaða sem pota stanslaust priki sínu í afturendann á ríkisstjórnum evrusvæðisins, eru ríkisafskiptin enn og aftur hið eina sem stendur þar til boða. Allar lausnir á öllum vandamálum evruríkja í gær, í dag eða á morgun - hvort sem um hrun eða þenslu er að ræða - eru allar útskrifaðar á sama lyfseðilinn; að ríkisvaldið skipti sér enn meira af lífi þegnana niður í minnstu smáatriði. Allt í þeim tilgangi að láta ríkisfjármálin stýra hagkerfinu. Hefta hitt eða þetta, berja niður og drepa. Þetta eru einu stjórntækin sem eru þarna eftir. Myntin er farin, vaxtavopnið er farið, peningastefnan læst inni í skáp í Frankfurt, og þingið þar með handjárnaður hundur í bandi fjármálamarkaða. Svona verður einræði til. Svona fæðast blá Sovétríki í Evrópu.

En allar eru þó macro_afleiðingar ríkisstjórna evrulandanna þær sömu og hefði Keynes staðið á lyfseðlinum frá byrjun og gefið þeim inn pillurnar. Afleiðingarnar (macro) eru allar Keynesian en kostirnir og jákvæðu áhrifin eru þeim alltaf alveg bönnuð. Svona klekjast "big government" út í Evrópu. Það var ekki Keynes. Það var mónutjaran.
 
DJ Newswires í gær; 71 pósent Þjóðverja hafa misst traustið á evrunni, eða treysta ekki evrunni sem gjaldmiðli. WSJ. En þeir hafa aldrei verið spurðir að neinu

Keynes er bara hægt að stunda ef maður er fullvalda ríki. Það er hin nýja og nokkuð merka uppgötvun sem við erum að gera í dag. En hitt vitum við líka; Keynes gagnast okkur aðeins ef og á meðan skattakerfið er látið í friði. Lyfin hans í dag eru "deficit spending" í hallæri. Nota fullveldið til að þenja út þá strengi sem þá þola álagið. En þetta krefst þó þess að ríkið sigli ekki á skallanum inn í hrunið.   

Einn af Evrópumeisturunum í ríkisafskiptum var herra Uffe Ellemann-Jensen í Danmörku. Lífið undir Úffa var ein samfelld hörmung og hún telur enn um 800.000 manns sem komið var fyrir kattarnef í nafni heilagra og endalausra ríkisafskipta hins opinbera. Danska leiðin; að henda vélinni fyrir borð til að koma sér af strandstað. 
 
Vöðvabúnt heilans er frelsi. Aðeins frjáls heili getur búið til velmegun.  

Þjóðrægjendur og Uffe Ellemann-stundum-Jensen

Skynglöggur Halldór Jónsson skrifar um hugtakið þjóðrægjendur. Einn slíkur skrifaði (næstum því í hel) grein á ritskoðað blogg sitt á Berlingske í Danmörku. Maðurinn heitir Uffe Ellemann-Jensen og er enn með vara skegg. 
 
Þar varpar hann fram þeirri skoðun, sumpart í háði en mest í bræði, að Danmörk ætti að segja sig úr Evrópusambandinu því það sé ekki hæft til að vera í þessu Evrópusambandi - þið vitið, danska þjóðin ónýt þar og íslenska krónan ónýt hér - og að úrsögn landsins gæti aukið líkurnar á að Evrópusambandið muni getað lifað af áfram. Að Danmörk fórni sér svo sambandið megi lifa. Voila!

Ehh, altså; fyrst hét það að Danmörk "yrði að fórna sér" til að komast þarna inn. En nú á hún að "fórna sér" til þess að þessir bloody foot-dragging Danes eyðileggi ekki sýninguna í Brussel, sem frá upphafi er víggirt einkaelliheimili elítunnar í Evrópusambandinu. Uffe er að segja að það gangi ekki upp lengur að Danir gangi ekki í takt (við þá sem setja þeim taktinn).

Í einni athugasemd við grein Uffe Ellemanns stendur skrifað að þetta sé orðið voðalegt með þessa "sirkussýningu elítunnar" sem nefnist Evrópusambandið. Þar hafi ekki verið gert ráð fyrir fólkinu. Það sé að eyðileggja sýninguna. Er ekki hægt að losna við það? Jú leysum upp fólkið!

Flestar athugasemdir lesenda eru fullar reiði og fyrirlitningar á ESB. Og öllu sem því tilheyrir. Flestir lesendur, að minnsta kosti ótrúlega margir, mælast til að Uffe sé tekinn á orðinu þ.e. að Danmörk segi sig úr þessu Evrópusambandi andskotans strax. 

Eins og þið vitið hafa Danir reynslu hér. Þeir eru í miðjum pakkanum og ekki bara gluggagæjarar á borð við fyrrverandi sendiherra sem búa enn hærra uppi og fjær þeirri upphækkuðu kíkja_í_pakkatilveru sem íslenskir námsmenn gera yfirleitt erlendis, og eru oftast allir sem einn persona_non_knowing þegar að lífi og kjörum hins almenna borgara kemur í Danmörku og öðrum lendum hinna nýju Sovétríkja Evrópusambandsins.

Íslenska þjóðin innsiglaði sjálfstæði og fullveldi Íslands á Þingvöllum árið 1944 með 98,5 prósenta meirihluta á móti 1,5 prósenta minnihluta. Alger þjóðarsátt var. En nú ætla nokkrar sósíaldemókratískar hrunkarlkerlingar og einn Joð-Júdas íslenskra tækifærisstjórnmála að rjúfa innsiglið og háma í sig allt innihaldið. Raka því til sín, en síðan að kasta því upp aftur yfir veisluborðin í Brussel. Þar er allt fljótandi í fullveldis átveislunni miklu. 

Reiðin kraumar í þjóðinni. Fyrirlitning hennar er næstum alger og þokast á ný upp í níutíu og átta komma fimm.
 
Krækjur
 
Berlingske; Hvad med at melde Danmark ud af EU? (margar athugasemdir)
JyllandsPosten; Ellemann: Skal vi ikke bare forlade EU? (margar athugasemdir)
 
Viðstaddur var ekki: Mogens Lykketoft, forsetasérfæðingur Íslands
 
Fyrri færsla
 

Þýskaland í gjaldþrot? "Skuldar Grikklandi 575 miljarða evra"

Franski hagfræðingurinn Jacques Delpla segir að Þýskaland skuldi Grikklandi 575 miljarða evrur frá því að hið fyrr nefnda ríki réðst inn í það síðar nefnda, rændi þar, ruplaði og eyddi þar lifandi sem dauðu, fyrir aðeins 72 árum síðan. Þessi skuldasöfnun Þýskalands á að hafa gerst undir hinni fyrri stóru evrópsku sameiningartilraun Evrópusinnans og þjóðkjörna stjórnmálamanns, og síðar kanslara Þýskalands, Adolf Hitler, og ríkisstjórnar hans; Les Echos

Bíddu. Hvað skyldi Þýskaland þá skulda Póllandi mikið? Það þori ég hreinlega ekki að hugsa út í. 

Franski stjórnmálamaðurinn og yfirmaður fjárlaga franska ríkisins, Francois Baroin, fer fram á að sett verið á fót FBI-lögregla í Frakklandi (og ESB?) til að vinna bug á svindli með bæði bótagreiðslur úr hinu opinbera kerfi og svindli hins "svartra hluta hagkerfisins" sem hann segir að sé rosastór; Le Monde (hint; regluverkið fræga og stjórnsýslan góða)

Næsta skref verður auðvitað að taka þetta upp á "ESB-level", eins og flest annað sem lagt er fyrir valdalaus þjóðþing ríkja Evrópusambandsins. "Því miður væni minn, tillagan krefst þess að við leggjum málið fyrir yfirríki ríkjanna í Brussel". Fyrsta forstöðukona E-FBI gæti orðið brynjaða dísin Schram. 

Fyrst var það utanríkisþjónustan (er komið), svo varnarmálin (er byrjað) og næst er það evrópsk FBI-alríkislögregla sem eltir fyrirhugað "svindlandi fólk" og þá á milli ESB-fylkja, auðvitað.

Þetta kemur. Framsalið á milli landa er að minnsta kosti komið. Fólk í einu ESB landi getur verið dæmt fyrir brot í öðru ESB landi og sem þarf ekki að vera ólöglegt í heimalandi borgarns. Og síðan saksótt frá einu ESB-landi yfir í annað og framselt til fangavistar í öðru ESB-landi en heimalandi viðkomandi. Þetta kemur, og er þegar komið að hluta til.

Summa summarum; 

Þegar ég flutti til ESB árið 1985 var ESB ekki til. Og okkur var sagt að það yrði aldrei til því Evrópusambandið væri steindautt sem hugmynd. Það sagði forsætisráðherrann okkur. En lítið vissi sá maður þá, þótt sjálfur forsætisráðherra í litlu landi hann væri. ESB varð til aðeins nokkrum árum síðar. Og nú eru Svíar og sænskur sósíalismi - nokkrum árum eftir ESB inngöngu þeirra - að verða bannvæn vara í sjálfu ESB. Það sem fékk Svíþjóð til að ganga í ESB er horfið. Gríska ríkið stöðvar allar greiðslur sínar í júlí næstkomandi. Þá eru allir sjóðir landsins uppurnir eftir 30 ára aðild þess að Evrópusambandinu, 10 ár í myntbandalagi þess og eftir móttöku 80 miljarða evra í ölmusuhjálp á 30 árum. Þannig fór með ESB-sjóferð Grikkja. 

Þetta ESB er sem sagt það ESB sem löndin gengu upphaflega í, er það ekki?!. Nýtt stórslys Evrópu einu sinni enn! Það eina sem vantar er vopnin! En þau koma eðlilega í kjölfarið á þessu elítumyrkraverki ESB. Löndin ganga í skrokk og taka vopn upp úr jörðu, en ekki evrur.

Hét hún ekki annars Bryndís Schram, þ.e. bréfritarinn sá? Og gekk hún ekki um í Alþýðuflokknum? Hvar er hann nú? Bannaður?

Fyrst hægt er að gera þýska skattgreiðendur ábyrga - oftast aðeins í orði kveðnu en á slæmum stundum einnig í praxís - nú árið 2011 eða 72 árum síðar, mætti spyrja þeirrar spurningar hvort þeir, þ.e. þýskir skattgreiðendur, hafi í raun og veru "gengið í þriðja ríkið" á sínum tíma? Eða kom það bara? Þróaðist þriðja ríkið þannig? Tóku Þjóðverjar virkilega upp Adolf Hitler? - og sem síðar breyttist í ESB? Eða voru þeir bara að kíkja í pakkann?

Fyrri færsla

Nú hefst kvöldsagan eftir Jóhönnu Sigurðardóttir 


Nú hefst kvöldsagan eftir Jóhönnu Sigurðardóttir

Skyldi maður lesa um þennan dagskrárlið í radíóprógrammi einhvers dagblaðs, myndi maður líklega hugsa sig tvisvar um. Ætti ég að þora að opna fyrir radíóið eða ekki. Er verið að gabba mig? Ef ég tek áhættuna og opna fyrir tækið, verð ég þá fyrir því áfalli að kvöldsagan er eftir Jóhönnu sjálfa, en ekki eftir hana, þ.e.a.s ekki eftir hennar tíma, og sem myndi þá fjalla um tímana eftir Jóhönnu . . . ó nei Tímarnir, eftir Jóhönnu, best að hætta hér . .  

Lesið upp  úr símaskránni . . 

Jón Jónsson, Vífilfelli 12
Jón Jónsson, Skjaldborg 1
Jón Jónsson, Faxafeni 1
. . 
Jón Samfellsson, Faxafeni 112
Jón Sigfússon, Faxafeni 113
Jón A. Sigmarsson, Faxafeni 114
Jón B. Si . . 

Þið hljótið að koma auga á spenninginn í þessari kvöldsögu. Engum í landinu kæmi dúr á auga á milli lestra. 

Hér er ágætis grein fyrir hrætt fólk. Bill Gross hjá PIMCO les bandarískum stjórnmálamönnum beggja átta pistilinn. Já, nú nálgast rétti tíminn til að vera alvöru hræddur um efnahagsmál heimsins. The Fed hefur hætt að prenta það sem hann prentaði aldrei. PIMCO og Bill er ekki hver sem er; PIMCO Founder To Deficit-Obsessed Congress: Get Back To Reality 

Krumgan er miður sín af reiði: Profiles in Fed Cowardice og meira um The Triumph of Bad Ideas

Og hættið að ganga í háskóla kæra fólk. Já ég veit, vel flest ykkar akið þangað. En þetta borgar sig ekki lengur. Samfylkingarmódelið hefur eyðilegt virði menntunar; segir Bill Gross einnig 

Þeir sem hræðast verðbólgu ættu að skoða þetta hér, svona eins og plús 15 árum eftir hrun í Japan og eftir 150 ára "sameiningarferli" Ítalíu. Hvað varð um alla verðbólguna sem menn hafa öskrað um í bráðum 20 ár í Japan? Hagkerfið að hverfa. Aðeins Evrópusambandið kemst þarna næst í ömurleika.  

Um daginn var mynd í Morgunblaðinu af 150 ára handbandalagi handabandaafmælis sameiningar Ítalíu. Þetta var misskilningur segja Norður-Ítalir. Það var ekki Ítalía sem var sameinuð, heldur vað það Norður-Afríku sem var sundrað. Rebecca Wilder er með réttu slóðina á þetta mál sem fjallað var um í The Economistplús meira um Ítalíu og engan, alls engan árangur Myntbandalags Evrópusambandsins í samfellt 12 ár
 
Ítalía er transfer-union sem aldrei gekk upp. FT/Alpaville segir sögu dagsins um hið hægfara gangandi járnbrautarstórslys hagkerfis Ítalíu.

Ertu ennþá hræddur?
 
Lestu þá fyrri færslu
 
 
 

"Glæpsamlegt ábyrgðarleysi" - Grikkja

Útför evrunnar á forsíðu Der Spiegel
 
Mynd; Útför evrunnar á forsíðu þýsku útgáfu Der Spiegel. Rýnilíkfundir hefjast vonum bráðar.

Fjármálaráðherra Svíþjóðar - sem er esbland í Norður-Evrópu - og sem heitir Anders Borg, segir það jaðra við "glæpsamlegt ábyrgðarleysi" ef stjórnarandstaðan í Grikklandi neiti að taka þátt í mögulegri þjóðstjórn. Ekki fylgir sögunni hvort Borg þessi sé óborganlegur borgunarmaður.

Ó Davíð. Hvað hefur þú gjört.
 
 
 
Fyrri færsla
 

Fyrirlestur Paul Krugmans í Cambridge kl. 19:30 í kvöld

Í tilefni 75 ára afmælis The General Theory heldur Paul Krugman fyrirlestur í Cambridge háskólanum í kvöld kl. 19:30 að Lundúna tíma, eftir að hafa fyrst snætt Fish & Chips (bráðum burtfloginn markaður Íslendinga til Noregs).

Hagfræðingurinn hefur verið svo elskulegur að birta fyrirlesturinn fyrst á bloggsíðu sinni, þannig að við komum fyrst, en þeir síðast. Allir vita hverjir þeir eru. Þeir eru alltaf út um allt að gera allt. Hérna er fyrirlesturinn; Keynes and the Moderns

Mér sýnist þarna vera um að ræða ævibirgðir af kinnroðalit fyrir næstum allt hagfræðingastóðið, plús núverandi forseta Bandaríkjanna, og til dæmis herra Rogoff og tefyllirafta hvar sem þeir finnast. Trichet frá Lyon fær stimpilinn dagdraumamaður (martraðir um hábjartan dag)
 
Kína_heldur_uppi_USA-menn eru rassskelltir. Meiri skuldir geta læknað of miklar skuldir er staðfest. En það er ekki sama hver á þær og hve mikið af þeim. 

Ef ég væri hagfræðingur í dag fengi ég mér hauspoka og herti að. Rektorar hagfræðiháskóla ættu að fá sér vinnu á hárgreiðslustofum, ef einhver skyldi vilja þá. Ef ekki, þá geta þeir reynt að sækja um aukavinnu á einkaleyfisskrifstofunni í Bern. Það hefur sýnt sig að borga sig áður því in the long run we are all dead.  

Krugman hreinsar rykið af Keynes, svo um munar. Nú þarf að endurmennta flest alla hagfræðinga sem hafa útskrifast eftir 1980. Skólamenntun þeirra hefur brugðist. Eða er það öfugt? 
 
Fæstir muna að Keynes var íhaldsmaður. Ég er íhaldsmaður.
 
Blaðamenn geta einnig vel gert sér mikinn mat úr þessum fyrirlestri, svo ekki sé minnst á undirsáta fjölmiðla; pakkamennin
 
Fyrri færsla
 


Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband