Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2023

Skapanorn fræðimanna og sköp hennar

AF SMÁFÉLÖGUNUM

Nú tala þeir menn þannig, menn sem sagt hafa í næstum heilt ár að her Úkraínu sé að vinna stríð við rússneska herinn, að örfáir tugir skriðdreka að vestan "skipti sköpum" í Úkraínustríðinu, sem Rússar kalla enn sem komið er "hernaðaraðgerð"

Þá spyr ég: Nú fyrst að sköpin hafa verið þannig eins og þeir, handónýtir blaðasneplar og heiladautt fræðimannarusl þeirra hafa sagt frá upphafi deilunnar, af hverju tala þeir þá um að ný sköp séu þar með á leiðinni og að þau muni leysa hin ellefu mánaða gömlu sköp deilunnar af hólmi - og sem reyndust þeim svo vel að stórlygaþvaður þeirra hefur ekki stoppað í tæpt ár - og reyndar miklu lengur, þegar að málefnum Rússlands kemur

Að nokkrir skriðdrekar að vestan hafi þau áhrif að allt sem þetta fólk sagði dag hvern viðstöðulaust í ellefu mánuði sé þar með lagt að velli með nokkrum skriðdrekum að vestan: að þeir skipti sköpum í málinu

Af hverju þessi skyndilega þörf fyrir ný sköp? Er það nokkuð vegna þess að allt sem sagt hefur verið af ofangreindri ruslaveitu vesturlanda hefur verið marklaust smáfélagsrugl og helber smáfélagaþvættingur af þeirri sort að ómögulegt er að pissa skótau þeirra smáfélaga sem þar tísta fyllra en það allt saman er. Að um samhæfða vesturlenska hlandveitu stóriðnaðarlyga hafi bara verið að ræða? Að allur almenningur á vesturlöndum hafi verið hafður að fíflum af þessum oflaunuðu ofurfíflum. Að logið hafi verið að almenningi viðstöðulaust í ellefu mánuði

Það er því miður ekki undarlegt að hagvöxtur sé að verða sjaldgæf sjón á vesturlöndum, því hvernig getur hann orðið til þegar allir helstu ráðamenn, sérfræðingar, fræðimenn og embættismenn vesturlanda eru oflaunaðir og hagvaxtartortímandi fábjánar þegar að flestu grunnleggjandi og mikilvægu kemur. Öskuhaugar þessa fólks blasa alls staðar við. Og þeir eru svo stórir að þá ber við himinn hvar sem þetta fólk fer

Auðvitað útilokar valdalaus Olaf Scholz kanslari hins stjórnlausa Þýskalands að senda orrustuþotur. Hann á nefnilega engar. Þýskaland á engar bardagahæfar orrustuþotur. Nýlendur eiga ekki orrustuþotur, sérstaklega ekki þær stjórnlausu

Já, staðreyndir eru þrjósk fyrirbæri

Fyrri færsla

Taka þarf þessum fréttum með fyrirvara


mbl.is Útilokar að senda orrustuþotur til Úkraínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Taka þarf þessum fréttum með fyrirvara

Sjá krækju á frétt Mbl.is neðst

Taka ber öllum fréttum um spillingu í Úkraínu með þeim fyrirvörum að um pólitískar ofsóknir og úthreinsanir getur hæglega verið að ræða

Þarna voru fimm embættismenn, þar af þrír ráðherrar, fjarlægðir á einu bretti

Vissa fyrirvara verður að hafa í huga því utanlögsögu lagaapparatið NABU sem oft sér um þessi mál í Úkraínu var sett á laggirnar af bandaríska sendiráðinu í Kænugarði eftir valdarán Bandaríkjanna, ESB og NATO í Úkraínu 2014. Og NABU hefur notað völd sín til að fjarlægja fólk sem því líkar ekki úr embættum

NABU var þannig stofnað af og stjórnað úr bandaríska sendiráðinu. Þeir sem enn muna eftir Saigon muna vel eftir svona mafíustjórnarfarsstofnunum. Þarna er því alt eins líklegt að verið sé að ganga frá pólitískum andstæðingum leppstjórnarinnar

Úkraína er því miður orðin lepp-einræðisherraríki vesturveldanna, enda kannski um eðlilegt framhaldslíf fyrir landið að ræða, því fyrir stríð var Úkraína eitt gerspilltasta ríki veraldar og íbúarnir höfðu flúið það milljónum saman. Þar er engu að treysta og forseti landsins líkist sífellt meira einræðisherra í vösum annarra ríkja. Í þessu tilfelli í vösum NATO-ríkjanna. En innan þeirrar stofnunar er flest sem kennt var við lýðræði nú að anda síðustu gufum þeirrar loftegundar út og sem sennilega fyrir töluvert löngu er útdauð undir vissum hamförum

Stríðið sem stoppaði árið 1945 í Evrópu endaði ef til vill ekki. Jú það stoppaði, en heldur hugsanlega áfram núna á ný. Þessu atriði ættu menn í það minnsta að gefa vissan gaum. Engir friðarsamningar voru gerðir og ný stjórnarskrá Þýskalands fór aldrei í þjóðaratkvæði

Öllu tiltæku liði Evrópu –og nú Bandaríkjanna líka– skal á ný stefnt gegn Rússlandi og hinn þýski þráður Adolfs Hitlers tekinn upp á ný. Barbarossa virðist halda áfram. Kenna skal Rússum nýju lexíurnar. Er þetta kannski þannig? Óhugsandi?  En í dag?

Málið er komið á það stig að telja verður líklegt að MH17- og Skripalmálin hafi verið undirbúningsrógsherferð gegn Rússlandi fyrir það sem koma skyldi, frá og með febrúarmánuði 2014, þegar vopnunar-uppstöflun NATO gegn Rússlandi innanborðs í Úkraínu hófst, eins og Angela Merkel hefur greint frá

Telja verður mögulegt að Sergei Skripal hafi verið farinn að nálgast rússnesk stjórnvöld á ný, eða þá aldrei hætt í þjónustu þeirra og því vitað of mikið um viss vesturlensk mál. Og það boðar heldur ekkert gott í MH17-málinu að gervihnattarmyndirnar sem Bandaríkin sögðust hafa og lofuðu að koma með sem sönnunargögn í málinu, skiluðu sér aldrei í réttinn. Þær virðast einfaldlega aldrei hafa verið til

Enginn veit lengur hvar Skripal feðginin eru niðurkomin og bresku réttarhöldin í málinu eru farin að líkjast farsa. Rússneska sendiráðið í Lundúnum auglýsti nýlega opinberlega eftir feðginunum

Ég er að minnsta kosti farinn að stórefast um að fréttaflutningur vesturlenskra fjölmiðla af þeim tveimur málum hafi verið nokkurs virði, fyrst að ekkert, ég endurtek, ekkert er að marka fréttir þeirra af Úkraínudeilunni, og sem reknar og pískaðar eru áfram sem eins konar framhalds-McCarthyismi

Fyrri færsla

Sendið endilega þriðja herinn


mbl.is Háttsettir embættismenn hætta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sendið endilega þriðja herinn

Þykknar nú jafnvel dísillinn upp

****

FYRSTI HERINN

Nú hafa vesturveldin att 150-200 þúsund Úkraínumönnum í dauðann og 300-400 þúsund liggja særðir og mæta ekki aftur til mannfórnaaltaris klerkaveldis glóbalisma vesturveldanna: NATO-uber-alles

Rússneski herinn hefur gengið frá þeim upphaflega herafla af græjum og vopnum sem NATO, forsetar þess, forsætisráðherrar, kanslarar og félagar stöfluðu upp í Úkraínu frá og með valdaráni þeirra þar árið 2014 og fram til til ársins 2022. Allar þær græjur voru að velli lagðar á frekar stuttum tíma, af einmitt rússneska hernum

Samkvæmt fjölmiðlum vesturlanda er Rússneski herinn fyrir hádegi svo lélegur að hann ekkert getur, en eftir hádegi er hann hins vegar við það að hertaka alla Evrópu, þannig að tvíefla þarf NATO (uber-alles) og helst breiða það út yfir alla heimsbyggðina, því ógnarmáttur rússneska hersins er þá svo rosalegur. Sem sagt: útbreiddur geðklofi á háu stigi ríkir á ritstjórnum vesturlenskra fjölmiðla. Einn fyrir hádegi en annar eftir hádegi

En umfram allt og allan sólarhringinn hefur Úkraína verið að vinna stríð við Rússneska herinn síðustu tæpu 12 mánuðina. Það hafa verið skilaboðin úr geðklofi vestrænna fjölmiðla, allan sólarhringinn sjö daga vikunnar. En samt tapar og tapar Úkraína og NATO þannig að nú þarf að bjarga og redda málum í þriðja sinn. Já í þriðja sinn!

ANNAR HERINN

En frá og með sumrinu 2022 hafa sömu krónísku Rússahatarar vesturlanda hins vegar sent græjur sem svara til nýs hers til Úkraínu. Um er að ræða næstum öll fáanleg, og rúmlega það, skotfæri iðnaðar-úthýstra NATO-landa, 410 skriðdreka frá Sovétríkjunum sálugu, 300 brynvarin ökutæki fyrir fótgöngulið, 1100 brynvarin ökutæki fyrir liðsflutninga, 300 fallbyssur fyrir stórskotalið og 95 eldflaugavagna, annað hvort af Sovétgerð, eða af Undravopnagerð vesturveldanna sem nú búa svo vel eða illa að eiga enn eftir 60-70 tonna skriðdreka sem eru svo þungir að þeir komast hvergi yfir almennar brýr nema á sérhönnuðum NATO-vígvelli, því til stóð jú í byrjun að NATO væri varnarbandalag sem héldi sig á heimavelli. En auðvitað breyttist NATO í árásarbandalag og kemst því ekki lengra en að næstu rússnesku staðreynd í dag. Rússar sáu auðvitað fyrir hvað næst kæmi úr geðklofinu því. Það byrjuðu þeir að sjá árið 2007, þegar Rússahaturskvoðan sprautaðist upp um veggina í München og augu Johns heitsins McCain sprungu úr tóftunum af bókstaflega líkamlegri fyrirlitningu og hatri á forseta Rússlands

ÞRIÐJI HERINN

Beðið er nú ákaft í musteri þýska hersetuliðsins í Ramstein í Rínarlandi Þýskalands. Beðið er til hinna sömu forseta, forsætisráðherra, kanslara og félaga um að græjur fyrir þriðja herinn skuli sendar yfir landamæri lífs og dauða, þar sem enginn er lengur til til að valda þeim, nema afar og ungmenni sem enn hafa ekki náð skeggaldri. Sendið endilega þriðja herinn - og síðan þann fjórða. Endilega

Sem sagt. Rússneski herinn hefur nú þegar stútað stærð sem svarar til alls Landhers Bandaríkjanna

NAGLARNIR

Það var jú ekki fyrir neitt að Napóleon keisari var uppi. Hann sá nefnilega næstsíðastur manna um að stefna allri Evrópu inn í Rússland í sömu erindum, eftir að hafa barið hana saman með sömu nöglum glóbalismans og notaðir eru til hins sama í Ramstein, á beljuvöllum Brussels og í Lundúnaþokunni í Washingtonmýri í dag

KISTAN

Það ömurlega er að vestrænir fjölmiðlar eru farnir að trúa þvættingi sínum um það sem þeir kalla "stríðið" í Úkraínu - en sem Rússar kalla enn sem komið er "hernaðaraðgerð"

Aldrei áður í sögu sambandsríkis Þýskalands hefur annar eins samhæfður fjölmiðlaáróður sést, sagði Erich Vad hershöfðingi um fréttaflutninginn af þessu máli í Þýskalandi [og á vesturlöndum] - og þar átti hann við að það var aðeins á tímum Adolfs Hitlers og Jósefs Göbbels að samskonar massífar lygar og áróður voru notuð síðast til að ná fram sömu tilætluðu áhrifum á saklaust fólk. Ekkert hefur verið að marka fréttir fjölmiðla af neinu sem viðkemur átökunum í Úkraínu síðustu tæpa 12 mánuði. Meira að segja punktar þeirra og kommur hafa verið þvæla og er meðvirkni þeirra núna síst minni en hún var með bankastóðinu í síðustu hamförum vesturlanda, en þá reyndist hún banvæn. Svipað gildir um meðvirkni fjölmiðlanna með forheimsku fræðimanna- og háskólaliði vesturlanda og smæðar-fyrirlestrarherferð þeirra um rússneska hagkerfið undanfarin mörg ár

Að þessu sinni er það ekki ríkisvaldið beint, heldur fjölmiðlarnir sjálfir sem standa að þessu, sagði Erich Vad hershöfðingi. Það er hugsanlega rétt hjá honum, segi ég. En þeir sem fóðra fjölmiðlana að þessu sinni eru ofsatrúarmenn djúpríkja vesturlanda sem ráða þar bæði lögum og lofum, og sem skjóta hvaða þjóðkjörna fulltrúa fólksins sem er úr sæti sínu og út í geim, þegar þeim sýnist. Já, þeir virka eins og "sjálfstæðir seðlabankar", segi ég líka

Það er ekki út af engu að þið fjölmiðlar eruð á leið í gröfina

Fyrri færsla

Valery Gerasimov stígur inn


Valery Gerasimov stígur inn

Valery Gerasimov 250px

Mynd, skjáskot af síðu Wikipedia: Valery Gerasimov

****

ÚKRAÍNUDEILAN

Varnarmálaráðherra Rússlands, Sergei Shoigu, hefur víkkað skipuritið fyrir yfirstandandi hernaðaraðgerð Rússlands í Úkraínu þannig að ný staða sameiginlegs yfirmanns yfir sameinuðum herafla aðgerðarinnar, ásamt öðru*, er hér með sett í hendurnar á æðsta yfirmanni sameinaðs herafla Rússneska sambandsríkisins, Valery Gerasimov. Næsti maður yfir Gerasimov er varnarmálaráðherrann Shoigu, sem talar reiprennandi átta tungumál önnur en rússnesku, og yfir varnarmálaháðherranum er forsetinn, Vladímír Pútín

Næstu yfirmenn undir Gerasimov eru; a) Sergey Surovikin yfirmaður flug- og geimherafla Rússlands, og b) Oleg Salyukov yfirmaður landhers Rússlands, og c) Alexey Kim sem er næstur Gerasimov í æðstu herstjórn

Varnarher Rússlands samanstendur af; Landhernum; Flughernum; Geimhernum; Flotanum; Strategíska flugskeytahernum; Fallhlífahernum og Sérsveitahernum

Fram að hernaðaraðgerðinni í Úkraínu var allur þessi herafli Rússlands í varnarstöðu-aðeins, bæði að byggingu til, stærð og staðarstöðu. En nú hefur sjö ára útbygging NATO á Úkraínu sem innrásarfallbyssustæði til handa Bandaríkjunum inn í Rússland, ásamt öðrum sem áhuga hafa, neytt rússnesku herstjórnina til að endurskoða stöðu, stærð og stöðumáta alls heraflans. Hann var sem sagt takmarkaður að stærð og í varnarstöðu (e. defensive mode) en er núna sennilega að mörgu leyti á leið yfir í stækkun og sóknarstöðu - ásamt rússneska hagkerfinu

Öll lönd sem verða fyrir svona miklum refsiðagerðum og útilokunum eins og Rússland hefur orðið fyrir, vaxa alltaf að stærð og afli. Það mun einnig gilda um herstyrkleikann. Eins og er getur sameinað NATO ekki sigrað Rússneska herinn á vígvellinum í og í kringum Rússland því Bandaríkin eru hvergi landherveldi nema í Norður-Ameríku, og geta heldur aldrei orðið landherveldi annars staðar en einmitt þar. Að vissum tíma liðnum munu hernaðarlegir yfirburðir Rússlands verða fastur liður í heimsmálunum og Vesturveldin munu sanna sig sem hafandi skotið sig í báðar fætur í gegnum (tóman) hausinn

Þegar heimsveldi Nasista (nú eins konar útþenslu-fyrirrennari NATO, því miður) réðst inn í Rússland sumarið 1941, hitti það allan her Sovétríkjanna fyrir á miðju endurskipulagningarvaði. Allt var upp í loft og var verið að endurskipuleggja allar varnir og öll skipurit Rauða hersins. Að sumu leyti hefur þetta gerst á ný núna, því engum í Rússlandi hafði dottið sú firra í hug að gerspillt Úkraína væri nú þegar orðin jafngildi NATO-ríkis, en það sagði varnarmálaráðherra þess lands að Úkraína væri nú þegar orðin. Þetta sagði hann í sjónvarpi fyrir nokkrum dögum

* Valery Gerasimov verður nú látinn um aðgerðina í Úkraínu. Hann hefur ritað og sagt að á 21. öldinni sé búið að þokuleggja muninn á stríði og friði í heiminum og að ríki lýsi ekki lengur yfir stríði á hendur óvinum og að stríð gangi ekki lengur fyrir sig samkvæmt áætlunum. Óvopnaðar aðferðir eru í meira mæli notaðar til að ná pólitískum og strategískum markmiðum og gefast þær oft langtum betur en þær vopnuðu. Herstjórn í dag þarf því að samanstanda af víðtækri notkun á stjórnmálum, efnahagsmálum, upplýsinga- og mannúðarmálum, öðrum óvopnuðum hernaðaraðgerðum ásamt því að nota mótþróa og mótmælaáhrif þjóða í sama tilgangi

* Valery Gerasimov verður nú látinn staðfæra deiluna í Úkraínu. En það þýðir að áhrifaþáttum NATO á deiluna verður vísað til föðurhúsanna og það verður líklega ekki svo erfitt, segir Alexander Zimovsky við tímaritið aif.ru (Argumenty i Fakty), því Úkraínumenn hafa misst trúna á herstjórn landsins ásamt trúnni á herstjórn NATO, sem hugðist láta Úkraínu "berjast til síðasta Úkraínumanns" í þágu þess

* Valery Gerasimov mun því hefjast handa við að staðfæra og staðargera deiluna, snúa upp á og út úr NATO og ríða því niður, og snúa stærstum hluta Úkraínubúa til fyrri sameiginlegra hagsmuna með Rússlandi, en fyrst og fremst samkvæmt óskum fólksins. Meðan á því stendur mun hann láta rússneska herinn um að þrýsta með óbeinni öldufjarstýringu upp nýrri víglínu sem liggja mun um og halda utan um vestasta hluta Úkraínu og láta vesturveldin síðan um að bítast um hann sem eins konar nýjan hluta af Póllandi, Ungverjalandi og bandarísku ESB gerspillingarbæli sem á endanum mun tvístra því sem eftir er af landshlutanum enn frekar

Nýju "undravopnunum" að vestan mun verða staflað upp þar. Þau verða ekki send austur í landinu, þar sem þau yrðu strax skotin í tætlur á sama hátt og allt annað sem að vestan hefur komið. Þau munu byrja að mynda nýju víglínuna frá og með nú. Gamla dótið að vestan

* Valery Gerasimov veit einnig sem er, að fjölvídda stigmögnunarafl Rússlands í þessu máli er enn ónotað og að það er lárétt og nær til Vesturheims

Nikolai Patrushev æðsti yfirmaður rússneska öryggisráðsins og eins konar þjóðaröryggisráðgjafi forseta Rússlands, sagði í viðtali við aif.ru að hálfgerður og ókjörinn mafíumassi virðist hvenær sem er geta skotið forseta Bandaríkjanna út í geiminn þ.e. úr þjóðkjörnu sæti hans, eða þá hreinlega gengið frá honum á jörðu niðri, eins og sannarlega hefur verið gert, oftar en einu sinni. Bandaríska þjóðin ræður litlu um stjórnmálin í landi sínu og enn minna um varnarmálin. Þar er engu að treysta, eins og sannast hefur núna

Það grátbroslega við gagnrýni Rússa á Bandaríkin núna er það, að gagnrýnin er á svipuðum nótum og hún var á Sovéttímanum, en hvellsmellur hins vegar og passar hárrétt við veruleikann í dag eins og hann er orðinn bæði vestanhafs og í sovétríki Evrópusambandsins. Gagnrýnin hittir algjörlega í mark í dag, en það gerði hún ekki nema að hluta til á Sovéttímanum. Slík er hnignun og úrkynjun Vesturlanda. Múrinn féll vestur

Eftir NATO-bröltið austur og inn í Úkraínu, valdarán og fullkomna hunsun NATO á lögmætum grundvallar þjóðaröryggishagsmunum Rússlands, hef ég því miður misst of mikið af því mikla áliti sem ég hafði á Bandaríkjunum og á NATO, því þarna var gersamlega gengið fram af skynsemi minni og raunsæishyggju

Það fólk sem þarna situr við völd núna mun ekki hætta fyrr en NATO liggur í rúst, sundurskotið innan frá af örvita fáráðlingum í illa fengnum valdastólum.  Þannig enda reyndar allar fjölþjóða tilraunir til sameiginlegra varna. Úr því sem komið er segi ég því: farið hefur fé betra. Svona er að æða yfir Rubicone. Leiðin til baka er lokuð. Rústir einar blasa við

Fyrri færsla

Getur ekki passað


mbl.is Rússar skipta aftur um mann í brúnni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband