Leita í fréttum mbl.is

Gervigreindar-fellibyl í vatnsglösum lokið

Snilld: Sprett úr spori með Gretti Björnssyni - eftir Grettir Björnsson

****

BYL SLOTAR

Eftir að 12-mánaða fellibylur af bjánum í vatnsglösum lagði sig í síðustu viku, þá stendur það eitt eftir að gervigreind snýst um betri kóða en ekki greind, því tölvur geta aldrei orðið greindar né öðlast neitt í líkingu við gáfnafar, né heldur framleitt neitt slíkt. Tölvur eru og verða dauðir hlutir og munu því aldrei aldrei geta það sem lifandi fruma getur: fjöldaframleitt samtíma- og eftirmenn sína sjálf

Gervigreinda spjallmennið sem í 12-mánuði hefur leikið svo marga grátt, hefur nú sem undarverk lagt sig til hinstu hvílu fyrir tilstilli jafnvel aðeins þriggja blautra handklæða á snúrustaur. Spurningunni um hve lengi tólf handklæði á snúrustaur úti í garði væru að þorna, fyrst að þrjú handklæði á sama staur væru þrjár klukkustundir að þorna, var af spjallmenninu svarað af slíkri "greind" að ekki er hægt að hafa það eftir. Slíkt er einfaldlega ekki á borð berandi fyrir lifandi verur

Og viti menn. Eftir 60-mánaða storm í vatnsglösum greiningardeilda stórbanka á borð við Morgan Stanley, er niðursuðan á gervigreind orðin að eftirfarandi horslettu á þerripappír frá þeim: Jú gervigreind eða vélgreind er orðin að betri kóða og náttúrlega engu öðru. Ekkert merkilegt er á ferðinni, fyrir utan blautu handklæðin, og lítið merkilegt mun koma annað en það sem til dæmis nýr iPhone er nú þegar með og verður sífellt meira með; þ.e. betri kóða til handa betri örgjörvum sem geta meira og sem engar ofurtölvur þarf lengur til að keyra. Það er bara nóg að hafa til dæmis A17 Pro SoC örgjörva-kerfi Apple á örflögu, því hún getur framkvæmt 35 billjón aðgerðir á sekúndu og er sú flaga nú þegar um borð í iPhone 15 Pro- og Max útgáfunum, og sem enga gervigreind þarf til að kaupa og nota. Sérhæfðar rannsóknarstofur sem fást við til dæmis merkja-greiningar sem hjálpað geta að sumu leyti til við rannsóknir á til dæmis þróun sjúkdóma þurfa náttúrlega öflugri græjur, en við öðru var hvort sem er ekki að búast á því þrönga sviði, sem alls ósýnilegt með öllu er almenningi veraldar - og þannig hefur þróunin í þeim geirum alltaf verið

Samt treystir Morgan Stanely stórbankinn sér ekki til að spá fyrir um verðþróun hlutabréfa í Apple lengra en kannski tvo mánuði fram í tímann. Bankinn er þannig með 210 USD í 12-mánaðaspá sem er 14,8 prósentu hækkun miðað við lokun markaða í gær og sem litla greind og enga greiningardeild þarf til að sjá og spá fyrir um að náist í hús á næstu örfáu mánuðum, þekki maður Apple-fyrirtækið jafnvel og bankinn ætti að gera. En auðvitað vita stórbankamennin hjá Morgan Stanley að þeir vita ekkert annað en það sem mögulegt er að vita: þ.e. að um betri kóða er einungis að ræða og að þvaðrið um gervigreind undanfarin ár var að sjálfsögðu ekkert annað en múgsefjun á borð við "deilihagkerfið", "fjártækni-fyrirtæki", "græna hagkerfið", "rafmyntir", "sjálfkeyrandi bíla", "örbrugghús", "ping-pong-borð" og "rafmagnsbíla" ásamt þeirri staðreynd að allar þessar þvælu-bólur eiga heimkynni sín innan í risabólu-þvættingnum um "hlýnun jarðar af mannavöldum", þ.e. í risabólu af völdum rómantískrar náttúrudýrkunar albjána, sem áður, í töluvert langri sögu mannkyns, neyddust til að láta sér nægja að faðma tré og drekka hina nýju kaffiplöntu hins nýja Vesturheims úr trjábarkarbollum og dansa hinn nýja Indíánadans eins vel og þeir gátu, til að fá nú að vera með og predika nýju vísindin yfir lýðnum við heimkomuna

Dansið því endilega, það er alltaf betri kóði í aðsigi, nema náttúrlega í Evrópusambandinu sem orðið er fastlæst í óstöðvandi hringiðu hnignunar (hvað sagði ég)

Google rafmagns-strætisvagn nóvember 2023

Mynd: Alrafmagnsknúinn strætisvagn frá Google missti aflið á leið upp Castrostræti í San Francisco í þessari viku, með þeim afleiðingum að hann rann afturábak niður brekkuna og varð þar með sjálfkeyrandi og klessti 7-9 bíla í leiðinni og sendi fólk á sjúkrahús. Eru níðþungar og sílekandi rafhlöður vagnsins að öllum líkindum hlaðnar með dísilknúnum rafstöðvum. Gerist Græni-geðsjúkdómurinn varla sýnilegri en þetta. Krækja

EFTIRMÁLI

Það fyrsta sem gerist þegar bólur springa og falla saman, er það að sérfræðingarnir sem skapa þær koma þá skyndilega og illa leiknir út úr loftköstulum sínum og beita "tímaskalanum" fyrir sig: "þetta tekur greinilega miklu lengri tíma en ég hélt", segja þeir, eins og Francois Chollet "gervigreindarsérfræðingur" hjá Google sagði í síðustu viku: "Fyrir sex árum héldu allir, og þar á meðal ég sjálfur, að bílar gætu ekið sér sjálfir árið 2023"

Þessi Google-maður er auðvitað bara venjulegur bjáni og grasasni í níðþröngu og lokuðu 101-bóluglasi, þó svo að hann geti ýmislegt annað en að vera bara venjuelgur bjáni. Bílar munu nefnilega aldrei geta ekið sér sjálfir, nema ef væri á lokuðu og mannlausu vernduðu svæði og varla það, eins og best sést á járnbrautarlestum í 5000 tonna blóðklessuformi þar sem mannslíkin bara hrannast upp

Síðan tekur við tímabil aðgerða- og vonleysis þar sem sérfræðingarnir bakka sjálfum sér inn í skúrinn á ný. En síðan koma þeir út aftur og blása og búa til súrefnið sem menn anda að sér í ráðuneytum hinna helgrænu grasasna, og svo koll af kolli

Það hefur alltaf verið miklu auðveldara að blekkja fólk, en að segja því að það hafi verið blekkt, því að viðurkenna slíkt krefst sjálfsgagnrýni

Fyrri færsla

Sjálfstæð "Palestína" sýnir morðgetu sína á tvo kanta


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rúnar Már Bragason

Takk fyrir að segja frá þessum bólum á mannamáli og hversu innihaldslitlar þær eru. Má bæta við að þær voru líka kallaðar "sjálfvirknivæðing" og "fjórða byltingin".

Síðasta línan er góð og mætti líka útleggja á pólitíkusa: Það er auðvelt að blekkja sjálfan sig en ansi erfitt að viðurkenna mistökin því sjálfsgagnrýni fær pólitíkusinn til að líta illa út.

Rúnar Már Bragason, 9.11.2023 kl. 10:26

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér kærlega fyrir Rúnar.

Já það er alveg satt sem þú segir með sjálfsblekkinguna og sjálfsgagnrýnina, og þess vegna er til dæmis utanríkispólitík Vesturlanda orðin sjálfstortímandi þvættingur af samanlímdum pappakössum, sjálfsauglýsingum á blaðurmiðlum, baðmullarhnoðrum, auglýsingalygaherferðum í formi frétta þar sem Vonarfen er nýtt ofskynjunarlyf stjórnmálamanna vesturlanda. Taktu eina töflu á fimm til sex lygafrétta fresti og þá smellur strategía svo kallaðra Vesturlanda um að hægt sé til dæmis að sigra Rússland og leggja það ofan í kaupið að velli með samsettum lygum, blaða- og sjónvarpsauglýsingum, þáttum af þvættingi í nógu mörgum handónýtum vestrænum fjölmiðlum og sem endurteknar eru nógu oft af skrifandi og talandi heimskingjum með og án háskólaprófa.

Dugi Vonarfenið ekki, má reyna Pentagóntöflur, eins og þær sem yfirmenn Bandaríkjahers og ríkisstjórnarlíkisins þar taka, svarta nótt sem handónýtan dag, árin út og inn.

Bregðist bæði Vonarfenið og Pentagónið, já þá er bara að góna enn meira og fastar á fylgiseðilinn, því þetta SKAL virka! Meiri auglýsingar, meira af nafnlausum heimildum, meira "að sögn háttsettra" vofugengla, meiri fréttaniðurgangur og fleiri uppköst í formi fræðimanna með svo tómar augnatóftir að heiladordinglarnir inni í hauskúpunni sjást með berum augum berjast innbyrðis í skjálfandi vefnum í allsherjar tóminu.

Best væri þó að lifa allsgáðu lífi og halda sig við þekktar stærðir, eins og til dæmis þær að tveir plús tveir eru fjórir, hætta á Vonarfeninu og muna að forstig Pentagóns er ofsaskynjunarlyfið LSD, sem einnig er upphaflega frá NATÓ, sem er pappírsklúbbur er aldrei hefur getað neitt og aldrei mun geta neitt, og ekkert gott hefur gert nema ef væri  kvöldverði í Brussuseli á kostnað úrbræddra skattgreiðenda verðandi verstulanda.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 9.11.2023 kl. 12:21

3 Smámynd: Birgir Loftsson

Sæll Gunnar, ertu búinn að kynna þér málið í hörgar? Mér krossbrá hvað gervigreindin getur gert nú í vöggu þegar ég byrjaði að kynna mér málið. Mér lýst ekki á blikuna. A.I. mun gera marga góða hluti (læknavísindi) en hún mun gera marga vonda hluti, sérstaklega í stríði. Hún er þegar byrjuð að murka lífi úr andstæðingum án manngreinaálits í stríðum (byrjaði í Falklandseyjastríðinu). Hún tekur ekki til fanga! En fín grein.

Birgir Loftsson, 9.11.2023 kl. 18:36

4 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakka þér kærlega Birgir fyrir innlitið og athugasemd.

Mér líst ekki á blikuna frekar en þér í sambandi við þá neikvæðu möguleika sem felast í tölvunar- og nettækni. Ég hef unnið við og með þessa tækni í 35 ár og þekki barnslega einfeldni margra manna þegar að þessum geira kemur. En það er ekki hægt að troða þessu inn í pokann aftur, frekar en kjarnorkuvopna- og eldflaugatækninni.

Þegar Veraldarvefurinn var sjósettur voru uppfinningarmenn tækninnar sem liggur að baki algjörlega ósammála um hvaða áhrif netið myndi hafa. Annar þeirra sá fyrir sér mikið af hinu góða en hinn var sannfærður um að netið myndi eyðileggja lífið fyrir fólki og gera heiminn mun verri og gera lífið óbærilegt fyrir marga, eins og við sjáum raungerast meðal margra í dag. En þannig hefur það verið með flestar svo kallaðar mega-framfarir, þ.e þá tækni sem hefur stórbreytingarmöguleika falda í sér. Þar með talin er sjálf Iðnbyltingin.

En hvorki kenningarleg né svo kölluð "generative" gervigreind hefur þá byltingarmöguleika innbyggða í sér sem básúnaðir hafa verið út úr turnspírum fræðinganna. Tæknin getur hermt eftir en hún getur ekki skapað og rykmökkurinn í kringum hana er að mörgu leyti eins og mökkurinn var/er í kringum erfðatæknina, þar sem margir eiga eftir að verða fyrir verulegum vonbirgðum. Mér finnst ör- og frumulíffræðin taka báðum þessum dellum fram að öllu leyti.

Löggjafinn má því ekki vera sofandi safn af húrrandi hallelúja-bjánum.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 10.11.2023 kl. 00:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband