Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2015

Lærdómurinn af Straumsvík

Staðsetjið aldrei neitt þjóðhagslega mikilvægt á höfuðborgarsvæðinu. Staðsetjið þar aldrei neitt sem þjóðarbúið þarf að reiða sig á til að geta þrifist og búið til velmegun sem elur af sér velferð

Öll fyrirtæki á Íslandi ættu að hugsa sinn gang vel og vandlega áður en þau velja starfsemi sinni starfsstöð. Skoðið framtíðarsýnina vel og vandlega

Að svo búnu krefst ég þess að þjóðþingsstaður Íslendinga verði tekinn af hinni þjóðhættulegu Reykjavíkurborg sem er á hausnum þrátt fyrir að njóta góðs af því að allar mikilvægustu stofnanir þjóðríkisins séu staðsettar þar og borga skatta sína ofan í svarthol hins veruleikafirrta afglapaveldis staðarins

Staðurinn á engan veginn skilið að hýsa mikilvægustu stofnun íslenska þjóðríkisins, sjálft Alþingi Íslendinga

Peningarnir flýja Kredithörpuslátt höfuðborgar í heljargreipum. Nokia móment Íslands færist nær. Fjarlægið vinsamlegast þingstað þjóðarinnar frá þessum stað áður en Kreditharpan slær sig til allsherjar gjaldþrots

Fyrri færsla

Frakkland á leik


Frakkland á leik

Það verður fróðlegt að fylgjast með því hvernig vegasaltarar á ESB-öxli Lotharinga munu vinna úr árás fjöldamorðingja á allsnaktar plantekrur Evrópusambandsins

Lengi hefur Evrópusamband þeirra beðið eftir þessu til að geta svo þaðan tekið enn eitt stökkið út á borgarana og kaffært þá í neyðarlausnum á þeim vandamálum sem sambandið bjó þarna til handa sér

Iðarar og juðarar á þessum einka-valdaöxli munu eins og ávallt áður reyna að mjaka sér á þann stað öxulsins sem færa mun þeim heim hve mest pólitískt vogarstangarafl

Markmikið er, eins og ávallt áður, að knýja fram þá útgáfu af hinum nýju Evrópusovétríkjum álfunnar sem passar hve best við þá tegund sósíalisma sem dýrkuð er af elítustjórnvöldum sambandsins. Þau vega nú og meta saltið sem stráð verður með auknu afli í augu borgaranna í nýlendum Evrópusambandsins

Ráða verður niðurlögum Pax Americana friðarins á meginlandinu hvað sem það kostar. Til þess var Evrópusamband Lotharinga stofnað

Frakkland á leik

Fyrri færsla

Furðulega léleg framkoma við Rússland


Furðulega léleg framkoma við Rússland

Drepinn í fallhlíf sinni.

Það er alls ekki sniðugt að snúa NATO-bökum saman gegn Rússlandi. Sérstaklega ekki þegar að NATO-bak Tyrklands er svartara en bak Rússlands, á þann mælikvarða sem notaður er við mælingar á Rússlandi

Þetta er ekki nógu gott. Og þetta boðar ekki gott. Og þetta er vanhugsað eins og refsiaðgerðirnar gegn Rússlandi. Fyrir mér er þetta óskiljanleg stefna. Skil þetta bara ekki

Fyrri færsla

ESB-framfarir: fjöldamorðingjar starfa í París en búa í Brussel


ESB-framfarir: fjöldamorðingjar starfa í París en búa í Brussel

Er "betur borgið" í Brussel en í París

Þetta hugtak "betur borgið" er eitt mesta aumingjahugtak sem ég hef kynnst á ævi minni. Þegar um einstakling er að ræða er ef til vill hægt að skilja þetta vesæla hugtak. En þegar um sjálfstætt ríki er að ræða þá lýsir hugtakið:

  • tilvistarlegu tómarúmi plebba
  • stefnuleysi plebba
  • tilgangsleysi plebba
  • aumingjaskap plebba

Frönsk yfirvöld segja að um algert skipbrot í öryggismálum frönsku þjóðarinnar sé að ræða. Forsetinn byrjaði því á að leysa niður um Schengen, henda því í ruslið og taka öryggismál landsins í réttkjörnar hendur þjóðarinnar

DDR-vitfirringarsafngripir Samfylkingarinnar og VG skríða því nú heimilislausir um vígvöllinn í leit að "betur borgandi" skattgreiðendum til að halda sér lifandi á - svo að þeim sjálfum sé "betur borgið"

Evrópusambandið er dautt. ESB-Schengen sem tryggir atvinnuöryggi fjöldamorðingja og herveldis glæpamanna, er annað hvort þegar dautt eða deyjandi

Evran er dauð. Hún hefur eins og fyrirsjáanlegt var, drepið ekki bara efnahag svo margra landa, heldur einnig eyðilagt framtíðina fyrir þremur kynslóðum ungs fólks. Hörmungartímabil evru hófst ekki 2001, heldur þegar árið 1993

Sjö evrulík fljóta nú um í grunni grafreitar evrunnar: Grikkland, Portúgal, Finnland, Ítalía, Írland, Kýpur, Frakkland. Eigur þessara látnu landa eru nú á kistubotninum heima í Þýskalandi

Þar á undan, eða frá 1977, hafði ERM-misfóstur sambandsins gert útaf við líf hins efnahagslega veruleika í sambandinu. Það tól þrívíddarlegs sýndarveruleika var notað við skurðaðgerðir á fórnarlömbum evrunnar er brottnám heilabús þeirra fór fram í aðdraganda hennar

Fyrri færsla

Ungar menntaðar sænskar konur yfirgefa Svíþjóð


Ungar menntaðar sænskar konur yfirgefa Svíþjóð

Aldrei í sögunni hafa svo margar ungar og menntaðar sænskar konur yfirgefið landið sitt eins og núna. Landflótti sænskra kvenna slær öll met. Hann er verri en undir menningarmarxísku kommúnistatímabili Olofs Palme, þegar hann keyrði um þverbak tímabilsins frá lokum seinni borgarastyrjaldar Evrópu, sem oft er nefnd seinni heimsstyrjöldin. Þar á undan flúðu sænskar konur landið sitt vegna elítustýrðrar fátæktar Evrópu

Svo hófst sænskur landflótti á ný í kjölfar bankahruns 1992 sem var vegna gengisbindingarklikkunar Svíþjóðar við ERM-meistaraherverk Helmuts Schmidt. Marxískur hlutur ríkisins varð þá 73 prósent af öllu hagkerfi Svíþjóðar og er það ekki að fullu komið út úr þeim bönkum enn

En í dag slá tölurnar öll met. Inn flæðir fátækt fólk og út flæðir framtíð sænsku þjóðarinnar eins og hún var og hét. Sænskar konur kjósa fyrst og fremst Engilsaxnesk lönd með fótunum. Landflótti Svía á síðustu fjórum árum er meiri en metárið 1887 er Svíar fluttu í hve stærstum stíl til Bandaríkjanna sökum fátæktar

Í dag eru það hins vegar fyrst og fremst menntaðar sænskar konur sem eru að flýja frjálst innflæði fátæklinga sem stjórnað er af stjórnmálamönnum á föstum launum hjá ríkinu og sem fyrstir fá flesta þá peninga sem deyjandi einkaframtakinu í landinu tekst að klóra saman handa þeim. Þessi stétt stjórnmálamanna er nýi aumingjaher landsins og hann eyðir meiru til innflæðis fátæktar inn í landið en hann mun eyða til heilbrigðismála til handa sænsku þjóðinni á næsta ári

Nú er sænskum kvenlæknum starfandi í Svíþjóð einfaldlega hótað lífláti af innkomandi fátæklingum, takist þeim ekki að fullnægja kröfum karlkyns eigenda sjúklinganna

Um það bil 24 þúsund sænskar konur yfirgáfu "helvítis" landið sitt í fyrra. Og Karl-Óskar og Kristína búa heldur ekki lengur þar. Það vita sumir enn. Í Svíþjóð er bannað að tala og því bara hægt að fara

Svíþjóð skreið eftir bankahrun inn í Evrópusambandið árið 1994 og hefur aðildin kostað landið framtíðina ofan í beina 30 miljarða evrur í nettógreiðslur til aumingjaherveldis ESB í Brussel, samtals

Fyrri færsla

Nýr ráðstjórarflokkur ESB-apa kominn til evrópskra kúgunarvalda?


Nýr ráðstjórarflokkur ESB-apa kominn til evrópskra kúgunarvalda?

ESB-kommúnistinn Federica Mogherini sem ég skrifaði um í gær, hætti við heimsókn sína til Tékklands í gærdag, vegna þess að þar, svipað og á dögum Sovétríkjanna, tengja menn stjórnmálatrúna Íslam við ofbeldi, kúgun, villimennsku og hryðjuverk. Þessu greinir Prague Monitor frá í dag. Örstutt er síðan að vitsmunaleg tenging Tékka við raunveruleikann var bönnuð af kommúnistum eins og er í Norður-Kóreu í dag

Á tímum Sovétríkjanna mátti heldur aldrei tengja kommúnismann -sem er sósíalismi eins og nasisminn eða nationalsozialismus einnig er- og sjálfa morðráðstjórn Sovétríkjanna við sjálfan hinn heimspekilega grundvöll þeirra; þ.e. sjálfan kommúnismann! Nei nei, það var allt saman alveg ótengt maður!

Alltaf var bara sagt að ef að aðeins meiri eða betri kommúnisma og jafnvel nýjum Perestroika árgangi af honum yrði bætt á hillurnar í vinkjallara kommúnismans, að þá yrði kúgunarölvunin meiri, betri og hættuminni - fyrir kúgarann, auðvitað

ESB-kommúnistinn Federica Mogherini er "æðsti talsmaður utanríkis- og öryggisstefnu Evrópusambandsins" - e. High Representative of the European Union for Foreign Affairs and Security Policy

Hún boðaði í júní-ræðu sinni síðasta sumar að hryðjuverkaskapandi stjórnmál íslamistatrúar yrði hluti af tilvistargrundvelli Evrópusambandsins

"For this reason I am not afraid to say that political Islam should be part of the picture" - sagði hún

Heimspekilegur tilvistargrunnur Evrópusambandsins byggir á einræðislegri uppskrift og er sambandið því e. "a totalitarian concept" - sem brátt verður of seint að banna

Fyrri færsla

Þetta batnar alltaf þarna í Brussel


Þetta batnar alltaf þarna í Brussel

Hin ítalska Federica Mogherini sem ólst upp í ungliðahreyfingu ítalska kommúnistaflokksins, sem svo seint sem árið 1996 dulbjó sig sem ítalski "sósíaldemókrataflokkurinn", svo að hún gæti meðal annars orðið utanríkisráðherra Ítalíu í fyrra og sem þess vegna núna er orðin sjálfur "æðsti talsmaður utanríkis- og öryggisstefnu Evrópusambandsins" - e. High Representative of the European Union for Foreign Affairs and Security Policy - já hún boðaði í júní-ræðu sinni síðasta sumar að hryðjuverkaskapandi stjórnmál íslamistatrúar yrði hluti af tilvistargrundvelli Evrópusambandsins

"For this reason I am not afraid to say that political Islam should be part of the picture" - sagði hún

Það á sem sagt að innleiða hina trúarlegu stjórnmálahreyfingu íslam sem framkvæmdavaldshluta hins heimspekilega tilvistargrundvallar Evrópusambandsins

Æðsti talsmaður utanríkis- og öryggisstefnu Evrópusambandsins boðar hér með hryðjuverkastjórnmál íslamista sem hluta af tilvistarlegum grundvelli Evrópusambandsins. Hún sagðist hafa þurft að leita alla leið til Frakklands til að finna akademískan prófessor sem gat aðstoðað hana við að ná fram til þessarar opinberunar um lífið og tilveruna sem Evrópusambandið er að hanna fyrir núverandi og komandi kynslóðir "Evrópumenna" í Evrópusambandinu

Tillögu Silvio Berlusconi og Tony Blair um að tryggt yrði í grunnsáttmálum að tilvistarrætur, siðferði og hefðargrundvöll Evrópusambandsins mætti ávallt rekja til kristinnar siðmenningar og arfleiðar, var á sínum tíma algerlega hafnað af elítum Evrópusambandsins

Yfirríkisstjórnarskrá Evrópusambandsins, Lissabonsáttmálinn, fyrirskipar ákveðið "samfélags- og efnahagslegt lífsmódel" eða "líferni" í öllum ríkjum sambandsins fyrir alla þegna ESB, alveg eins og stjórnarskrá gömlu Sovétríkjanna gerði; en hún fyrirskipaði að kommúnismi væri hið eina leyfilega og löglega samfélags- og efnahaglega lífsform fyrir alla borgara og fyrirtæki innan landamæra Sovétríkjanna

Með aðstoð Rússlands er það eingöngu og algerlega 1945-sigri Engilsaxneskra Bandamanna yfir meginlandinu að þakka að viss partur af Evrópu getur í dag að sumu leyti flokkast sem hluti af hugtakinu "Vesturlönd"

Fyrri færsla

Já, við erum "heppin" að búa á Íslandi. En heppni er ekki stefna


Já, við erum "heppin" að búa á Íslandi. En heppni er ekki stefna

Heppni er fín

En það er ekki hægt að byggja þjóðaröryggi á heppni. Skortur á landamæraeftirliti hefur alvarlegar afleiðingar. Alltaf. Landamæri eru sett til að mynda varnarlínur. Lagalegar og tilvistarlegar. Og varnarlínur eru settar til að verjast með þeim. Lagalega og tilvistarlega. Með kjafti og klóm. Sé það ekki gert er voðinn vís. Aðeins tíminn skilur á milli heppni og hamfara

Íslendingar eiga að stofna varnarlið. Þetta gengur ekki lengur. Okkur vantar fyrir það fyrsta okkar eigið varnarlið í lofti. Til að skjóta vont niður með. Til eftirlits í lofti. Til varna. Við höfum nú þegar of stórt, rándýrt og gagnslaust akademískt varnarlið. Svo ég er ekki að tala um það. Ég er að tala um alvöru varnarlið

Og svo þarf að ýta á EJECT-hnappinn og henda EES út. Út með það. Út með EES áður en það veldur meiri skaða

Svo þarf að herða samböndin vestur. Herða þau og hlúa að þeim

Konan sem eyðilagði Evrópu, eins og ávallt áður, er best geymd sem tröllkona alls þess þar. Ykkur grunar ekki hversu mikill hryllingur Evrópa á eftir að verða. Stigmagnandi trylltur hryllingur

Skyldu óvitlausir hættir að hlægja og farnir að hlusta?

Að hlægja er fínt. En tilefnið til gleðjandi og endurnærandi hláturs þarf að vera ekta. Ekki falskt. Ekki þvaður og ekki blaður. Ein skilvirkasta ríkisstjórn í sögu Bandaríkjanna var ríkisstjórn George W. Bush. Það er mörgum, sem ættu þó að vita það, ekki ljóst enn - og verður aldrei, því að langlífi Stalíns, sérstaklega heima hér, er slíkt að evrudeildar miðilsfundir með steyttum hnefum standa yfir enn

 

George W. Bush Bandaríkjaforseti, 2007

(bein krækja)

Fyrri færsla

"Hefndaraðgerð" RÚV í París


"Hefndaraðgerð" RÚV í París

pravda

Það vakti furðu mína að DDRÚV frá austurberlín Reykjavíkurborgar skírði í gær fjöldamorðin í París sem "hefndaraðgerð". Í því útkíkki DDRÚV til veraldarinnar felst stefnumótandi veraldaráróður í stað fréttamennsku. Ákveðin boðskapsstefna á þessari fréttastofu vinstri manna, en ekki fréttir eins og þær gerast, virðist sem ávallt ráða þeim vellingi sem stofnunin matreiðir ofan í saklaust fólkið sem borgar fyrir fréttaslef hennar út um vinstrið ár eftir ár

Má með sanni segja að þetta sé "öfgafréttamennska"? Líklega má einfaldlega útskýra þetta sem "hefndarfréttamennsku". Lesendur geta svo spáð í á hverju og hverjum DDRÚV er að hefna sín í þetta skiptið

Gyðingafjölskyldan sem átti Bataclan leikhúsið í París þar til fyrir nokkrum mánuðum síðan, á samkvæmt "hefndaraðgerðar" boðskap DDRÚV, líklega ekki von á neinu góðu. En þar inni var 89 manns slátrað. Veit ég fyrir víst að registratúr Parísarborgar vinnur það hægt að hér heima yrði vinnuhraða hans varla fagnað

Voru fasteignaeiganda-upplýsingarnar einfaldlega óuppfærðar? Það er ekki vitað. En DDRÚV segir að þetta sé hefnd. Þá hlýtur það að vera sannleikurinn sjálfur. Áhorfendur geta ekki hefnt sín. En það getur DDRÚV

/pravda

Ég vara því Íslendinga við ættbálkastríði DDRÚV gegn þeim. Ekki treysta því um of

En þið eigið heldur ekki að treysta mér, nema að ykkur sýnist svo. Og það vitið þið. Ég rek ekki fréttastofu á ríkisfjárlögum á kostnað skattgreiðenda. Ég rek hér skoðanir mínar og þær eru mínar skoðanir. Og þær eru engan veginn hlutlausar. Þær eru mín pólitíska skoðun. Og pólitík er pólitík en ekki fréttamennska, nema að hluta til. Inni á milli geta þó verið sæmilega fréttalegir góðmolar. Og þið þurfið ekki að borga neitt. Og hér þarf heldur enginn að skrá sig inn á neitt innra-net útlensks auglýsingafyrirtækis. Þetta er bara hið frjálsa og opna Internet. Hvorki meira né minna. Ekki aflokað innra-net of margra hallærislegra stjórnmálamanna á opinberum launum og sem alfarið er í eigu útlendinga. Just the Internet

- The Hypertext Transfer Protocol (HTTP)

Fyrri færsla

Frakkland í borgarastyrjöld: á annað hundrað drepnir í gær


Frakkland í borgarastyrjöld: á annað hundrað drepnir í gær

Ég votta hér með frönsku þjóðinni mína dýpstu samúð vegna þeirra borgara-styrjaldarárása sem gerðar voru á íbúa landsins í gærkveldi

Barist var á sex eða sjö stöðum í höfuðborg landsins. Mikið af opinberri þjónustu verður lokað frá og með í dag. Fundarfrelsi hefur verið takmarkað og borgarbúum Parísar hefur verið sagt að halda sig heima

Búið er að loka öllum landamærum Frakklands, landherinn hefur verið kallaður út á götur og stræti og neyðarástandi hefur verið lýst yfir. Hætt er við að tala látinna borgara nálgist hátt í 200 manns og særðir eru þeir að minnsta kosti 200. Ekki er vitað um mannfall innan lögreglu né herliðs. Borgararnir berjast einsamir fyrir lífi sínu á götum og samkomustöðum

Ekki er enn vitað til hvers landamærum landsins var lokað, því að áratugum saman hafa þarlend sem önnur ESB yfirvöld er berjast gegn borgurum landsins sagt þeim að slíkt sé algerlega tilgangslaust. Og svo sagt þeim að halda kjafti og kjósa aftur þar til að rétt niðurstaða fengist um ESB-stjórnarskránna, sem dregin var síðan yfir höfuð borgarana algerlega að þeim óspurðum og sem hér sést í verki í allri sinni dýrð úti á götum og strætum landsins

Ef til vill hefur Merkel-keisarinn yfir Evrópu krafist þess að Frakkar lokuðu landamærunum svo að landið myndi ekki eitra út frá sér yfir í grafarþögn hennar um allt sem máli skiptir. Hún og Frakklandsforseti eru eins og nýlátinn Helmut Schmidt, algerlega ólæs á öll pólitísk gildi og hugsjónir og hafa því fyllt Evrópu upp af brjálæði á bæði hinu mannlega andlega og efnahagslega sviði ásamt dísil Kola- og Stáleinokunarkerfis ESB

Þetta er sigmögnun. Og hún hefur fætt af sér nýtt "normal". Svo stigmagnast það nýja normal og enn nýrra normal sem verður hertur horror og nýtt ófrjálst sovét, mun festa sig í sessi og þá er sovétríki ESB Evrópu orðið staðreynd

Vildarvinir borgríkis Pírata, Samfylkingar, Vinstri grænna og Bjartrar "framtíðar" í borgarstjórn Reykjavíkur létu hér til sín taka í París í gær

Öruggasti staðurinn fer að verða í Ísrael. Einungis þar sinnir kjörin ríkisstjórn sínum frumskyldum; að vernda líf, limi og eignir borgaranna

Mikil er samúð mín með frönsku þjóðinni og fórnarlömbum ESB-ismans

Fyrri færsla

Stýrivöxtur ESB er sá að búa stanslaust til nýjar hörmungar


Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband