Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2021

Hvað segir bimbósettið í Valhöll núna?

Aftur 200 smit í dag!

Aðeins nokkrar vikur eru nú liðnar frá því að mínusfylgis bimbósett Bjarna í Valhöll sagði Íslendingum frá því að við ættum að opna hér allt eins og nýkommasystir þeirra í Danmörku gerði þar úti. Látið var líta svo út að hér heima væru afturhaldsseggir við sóttvarnarstjórn og að varnir hér heima væru þvæla. Að þær vissu allt miklu bimbó-betur en Þórólfur og Kári

En eins og allir með bara smá vit í kollinum vissu, þá sturtast þannig manngerð veðurför skjótt niður úr apaháloftum nýkommans og brotlenda gamalsovésku Metoo-bákni sínu í skallann á útpíndum skattgreiðendum, er nú kikna í hrönnum undan kvart-milljarða frelsishernaðar-ofgjöldum gratís PRC-bjánaveldis ríkisstjórnarinnar á viku

Nú eru nýkomma-frelsissmit í Danmörku svo yfirþyrmandi Metoo-mörg að þau jafnast á við 700 smit á sólarhring hér heima. Neyðist því Mette Danakommi til að drepa öll svín í landinu. Ekki getur hún drepið minkinn því samkvæmt hennar skipun er hann þegar dauður og undir urð kominn. Verður nú öllum svínum lógað og Danir látnir borða teiknaðan ESB-geirfisk í nýsovéskri Metoo-CO2sósu

Nýsjálenska módelið lítur betur og betur út með hverjum bimbó-deginum sem líður: Lok lok og læs á útlönd, til þess að við sem eigum þetta land getum lifað þar í friði, grætt og lifað eðlilegu kapítalistísku lífi og jafnvel grillað þegar venjulegt veður leyfir

Merkilegur andskoti að það virðist mega setja öll Vesturlönd á annan endann og pína alla borgara þeirra út í hið óendanlega og krefjast næstum alls af þeim - á sama tíma og það eina sem má alls ekki gera er að krefjast þess að fá að rannsaka vettvang gangster-elementa (veiru) stjórnmála í Kína; sem reyndu að leyna öllu og töfðu allt og sendu veiruna vísvitandi með beinu flugi frá Wuhan til Evrópu og Bandaríkjanna, á sama tíma og öll flug innanlands voru bönnuð í Kína. Vesalingar og hræðslupúkar! Þarna þarf að ryðjast inn og taka til hendinni! Gulli, þetta er jú millistéttin þín; hvað dvelur?

Þjóðfrelsið er frumforsenda einstaklingsfrelsis og hins takmarkaða ríkisvalds. Annars er það ofríki glóbalismans (og þar undir er ESB+EES) sem særir fram hið ótakmarkaða ríkisvald, sem bíður

- Gunnar er þjóðaríhaldsmaður í Sjálfstæðisflokknum 

Fyrri færsla

Sænska kornuppskeran er 20-28 prósent minni vegna kulda


mbl.is 200 smit innanlands – nálægt smitmeti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sænska kornuppskeran er 20-28 prósent minni vegna kulda

fmi_swe_tracker

Mynd, Alþjóðasamtök veðurstofa (GCW): Snjómassinn á láglendi á norðurhveli jarðar er langt yfir meðallagi áranna 1982-2012

****

SVÍÞJÓÐ

Sænska landbúnaðarráðið tilkynnti í fyrradag um grænmetis- og kornuppskerubrest í Svíþjóð vegna kulda á þessu ári. Vor,- sumar,- og haustuppskeran er 20-28 prósent minni en á síðasta ári, allt eftir því hvort miðað er við uppskeruna á hvern hektara eða í heild, eða þegar borðið er saman við síðustu fimm árin. Falla þá allt að 1,4 milljón tonn af akur- og kornuppskeru burt af borðum þess sem eftir er af sænsku þjóðinni, í hvellsprungnu landi sökum ESB-hræðsluaðildar

ÞÝSKALAND

Nú er svo komið með Þýskaland að öll helstu viðskiptalönd þess eru einræðisherraríki. Þýsk þjóð og efnahagur hennar er svo bágborinn að flytja verður út næstum helming landsframleiðslunnar. Þetta þýðir að helstu viðskiptalöndin hafa Þýskaland í vösum sínum. Um er einkum að ræða Kína, Rússland og Tyrkland. Þýskaland hefur aldrei getað keppt á alþjóðlegum mörkuðum, nema með þróunaraðstoð Marshallhjálpar og síðan gengisfölsunar evru, þar sem riðið er um heiminn á evrubrotnum bökum landa Suður-Evrópu. Væri Þýskaland með sinn eigin gjaldmiðil myndi gengi hans vera 70 prósent hærra en gengi evru er í dag. Það sem af er ársins 2021 hefur evran fallið um 7,6 prósent gagnvart Bandaríkjadal. Frá því á fjármálabóluárum ECB-seðlabanka Evrópusambandsins hefur evran fallið um tæplega 30 prósent gagnvart Bandaríkjadal

BERLÍN ÚTIBÚ

Ný ríkisstjórn er tekin við völdum í Þýskalandi. Kanslari er Rússafetistinn og sósíalistinn Ólafur Scholz. Sem borgríkisstjóri Hamborgar (sósíalistabæli) lét hann Warburg Bank ríða ríki sínu í afturendann án þess að aðhafast neitt. Og í þýska Wirecard-fjársvikamálinu, þar sem fjárfestar um allan heim voru, með þýskri glæpastarfsemi studdri af þýska fjármálaeftirlitinu, rúnir inn að skinni og þar sem milljarðar dala voru sviknir út, var Olaf Scholz sjálfur fjármálaráðherra Þýskalands í samsteypustjórn Merkels. Þar aðhafðist hann einnig ekkert, þrátt fyrir öll blikkandi rauð ljós, fyrr en að allt var um seinan og tapið hámarkað. Þessi Scholz-kanslari er einnig stórvirkur Nordstream2-lagsmaður, en sú leiðsla er ein hinna stóru geópólitísku katastrófa er nú ríða að hruni komnum húsum meginlands taparanna í Evrópu, einu sinni enn. Komminn Willy Brandt var austpólitíksus (ostpolitik) já, en vel að merkja sem krónískur einfeldningur. En hinn nýi kanslari Scholz er þó mun verri því hann er sjálft útibú Kremlverja á NATO-svæðinu, og mun því hvorki hreyfa legg né lið þegar Rússland smokrar sér upp að landamærum Póllands, með óbeinni aðstoð Ólafs Scholz. Þýskaland hefur sagt að það þiggi vanróunaraðstoð í varnarmálum, ofan í vanþróunaraðstoðina í gengis- og gjaldmiðilsmálum

Ég vinn fyrir fólkið 450

Mynd, Góða fólkið: "Ég vinn fyrir fólkið" stendur á þessu áróðursskilti gömlu Sovétríkjanna. Þar lét Stalín byggja ("upp") risavaxin gróðurhús norður við Hvítahaf, af því að hann gat það. Á meðan lét hann ávaxta- og grænmetisuppskeruna rotna í hinni frjósömu Úkraínu. Fólkið stráfell því úr hungri. Stalín lét einnig byggja ("upp") einkajárnbraut fyrir sig einan og var hún ekki tengd við neitt. Líktist hún því rafbíla- og umhverfismálaþvælu nýkomma á Vesturlöndum núna, sem á sama máta er ekki tengd við neitt, nema við túllann á samskonar fábjánum. Vel má ímynda sér að fyrrverandi-persónan á sovéska áróðursskiltinu sé annaðhvort úr Vinstri grænum eða af nýkommasafninu í Valhöll

MATVÆLASKORTUR Í ESB?

Vegna orkukreppunnar í Evrópu hafa eftirfarandi áburðarframleiðendur skorið niður eða hætt framleiðslu: 1) Rúmenski Azomures tilkynnti í síðustu viku um framleiðslufall vegna hækkana á raforkuverði. 2) Í september tilkynnti hið bandaríska CF Industries í Bretlandi um framleiðslufall í Evrópu. 3) Í sama mánuði tilkynnti hið norska Yara sem framleiðir fjórar af fimm milljónum tonna ammoníak-þarfar Evrópu um hið sama. 4) Hið sama gerði einnig áburðarframleiðandinn Achema í Litháen. Þar næst er það 5) hollenski OCI Nitrogen framleiðandinn ásamt 6) austurríska Borealis AG. Og 7) á Spáni kom Fertiberia út með sömu meldingu. Í Þýskalandi, þar sem raforkuverð hefur meira en fimmtánfaldast frá því í sumar, tilkynnti 8) BASF um skerta framleiðslugetu áburðar vegna orkuverðsins. Á meginlandi Evrópu eru ekki nema þrír mánuðir þar til byrjað er að bera á. Hvað verður veit enginn. Þetta er jú ESB-öryggið þar sem ófarir, hrun, einræði, fjárkúgun, svik og stríð eru nánast gulltryggð um alla framtíð

Upptaka: Ekið 4500 kílómetra leið með 70-tonna farm, knúnum áfram af 18-lítra V8-Caterpillar dísilvél í Kenworth-trukki í Ástralíu. Sjáið 150 km. langa þráðbeina "vegarspottann" í lokin. Eigandi trukksins starfaði áður neðanjarðar

FT REYNIR AÐ ÞVO AF SÉR ESB-SKÍTINN

Engan skal því undra að esbbanka- og fjármálabólublaðið Financial Times skuli nú hafa skírt forsíðu sína upp á nýtt. Hún hét "hin evrópska heimaforsíða Financial Times", en heitir nú "hin breska og alþjóðlega heimaforsíða Financial Times". Það eru sennilega fimm ár síðan að ég sagði FT upp og ég mun aldrei gerast áskrifandi þar á ný. Blaðið er fársjúkt af ESB-gloríutrú, ESB-alræðishyggju og fyrirlitningu á öllu bresku. Þeir sem keyptu ESB-bóluna frá 1992-2008 hráa, gleyptu einnig fjármála og bankabóluna hráa, ásamt "nýja hagkerfinu" á dot.com bóluárunum frá 1996-2000 (e. "the New Economy"). Aldrei aftur átti samdráttur né hrun að geta orðið, hinn endalausi vöxtur væri tekinn við. Hið sama ofsatrúarfólk er trúði á þessar bólur er nú svo úttroðið af loftsslags- og umhverfisþvælu að það er við það að fá loftsslag úr rafbíla-bólugeggjun og hatri á öllu því sem gagnast hefur mannkyninu í að minnsta kosti 500 þúsund ár

Miðað við forsendur, hafði það fólk sem stundaði galdrabrennur á Miðöldum meira vit í kollinum en elítur stjórnmála og embætta í Heiðnikirkjuveldissöfnuði háskólanna hafa í dag. Þúkýdídes hafi því rétt fyrir sér

Fyrri færsla

V8-strokka Mack dregur 175 tonn


V8-strokka Mack dregur 175 tonn

HIN DÁSAMLEGU JARÐEFNAELDSNEYTI

Áströlsk V8-tónlist - hækka hljóðið

****

Mack-trukkurinn er knúinn hinum dásamlegu jarðefnaeldsneytum sem gert hafa okkur svo rík að sumir nýbjánar hoppa svo gott sem sjálfkrafa fram úr sér og í undirkælda ánna, á meðan aðrir gæla við þá hugsun að það sé jafnvel raunhæf hugmynd að þeir geti –já geti– gengið á vatni. Hin dásamlegu jarðefnaeldsneyti plánetunnar hafa staðið fyrir svo miklum framförum og bættu lífi fyrir alla sem tileinka sér ósovéska hugsun, að nú er hægt að reka sjúkrahús og heilbrigðisþjónustu fyrir þorra mannkyns í nær öllum löndum sem enn eru ósovésk - og jafnvel bjarga hoppandi fæðingarbjánum frá sjálfum sér

Í síðasta vagninum hjá Andrew Ogilvy eru 30 tonn af möl og önnur 30 tonn af möl í þeim næsta. Síðan kemur vagninn með veghefilinn sem vegur 18 tonn og þar næst er það vagninn með valtarann sem einnig vegur 18 tonn. Fyrir framan valtarann eru 10 tonn af sementi. Og fyrir framan veghefilinn eru einnig tvö tonn af steypueiningum. Sjálf lestin sem ber þetta uppi er 67,5 tonn. Og sjálfur V-átta strokka Mack-dísiltrukkurinn, með sína 18 gíra, vegur 11,5 tonn. Hann dregur allt þetta hlass og fer létt með það, meira að segja á mjúkum malarvegi. Þökk sé hinum dásamlegu jarðefnaeldsneytum jarðar og snilligáfu vesturlandabúa, einkum og sér í lagi hvítum karlmönnum

Vel er hægt að ímynda sér að í síðasta vagninum séu ekki 30-tonn af möl, heldur 30-tonn af loftslagsþvælu og að í þeim næsta séu 30-tonn af algjörlega gangslausum stjórnmálamönnum (svo gagnslausum að geta ekki einu sinni orðið að olíu), með eldgamlan hálm í heilastað. Króknaðir úr algjöru kjaftæði, allt frá Kyoto, Montrassi, París, til Glasaskógar. Og að Ástralinn Andrew Ogilvy, sem á trukkinn, sé á leið með þetta algjöra kjaftæði á haugana, og muni síðan valta og steypa yfir óþverrann. Mikið ofboðslega væri það nú gott. Mikil frelsun væri það fyrir alla á þessari jörð

V8 tónlist - hækka hljóðið

Sjáið (og heyrið) hversu létt V8-Mack trukkurinn fer með þrjá tveggja hæða nautgripavagna í togi (það fer mun betur með nautgripina að aka þeim heldur en að reka þá, eins og Fljótamenn muna sem neyddust til að reka fé sitt til slátrunar yfir Siglufjarðarskarð). Snúningshraðinn á V8-dísilvélinni knúnu hinu dásamlega jarðefnaeldsneyti fer niður í þúsund snúninga á mínútu, án þess að tapa drætti. Á meðan er glóbal rafbílabólan að springa í loft upp, þrátt fyrir stórfelldar og krónískar mútur stjórnmálamanna áratugum saman. Já rafbílaþvælan er svo mikil og hroðaleg þvæla, að það þarf að múta fólki til að kaupa það drasl - og sem fólk í Evrópu neyðist nú til að yfirgefa á vegunum í Svíþjóð, svo það krókni nú ekki í hel úr allsherjar-kjaftæði stjórnmálamanna, með eldgamlan hálm í heilstað –hoppandi fyrir björg– fyrir alla helvítis peningana. Verði þessum fíflum að góðu. Ég hef séð og heyrt svona fífl áður

Þá sagði hún: "I remind you that a vaccine is the injection of an active biological substance into a healthy body. We are talking about mass vaccination here, it is a gigantic responsibility" - en nú eru skyndilega komnar allt aðrar bollur í ESB-súpuna, þ.e. gamlar alræðisbollur. Fyrst sáði hún ótta og hræðslu við bólusetningar í hjörtu manna í nýja alræðissambandinu, en nú koma hótanirnar

Heyrst hefur að 4-nafna forsetaína framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins sem vildi ekki breska V12-strokka Spitfire bóluefnið frá Astra, og sem sagði opinberlega að það ógnaði lífi og heilsu manna í því vonlausa sambandi, hafi nú skyndilega skipt um skoðun, eftir að einn stór; genetískur; og ósjálfráður einræðiskrampi fór um allt stóðelítustellið hennar í stjórnlausri Brussel. Nú hyggist hún nefnilega leggja það til að óbólusett fólk í löndum Evrópusambandsins verði merkt með gulum borða með mynd af kolsvarti CCP-Kínaveiru á efri handlegg. Meginland Evrópu í höndum Evrópusambandsins er því loksins að komast heim; sem sú algjöra stjórnarfarslega viðurstyggð sem hún er, og alltaf verður svo lengi sem fyrirbæri á borð við Evrópusambandið er við stýrið. Menn geta síðan getið sér til um næstu skref hins evrópska ESB-ömurleika

Verst að hafa misst af 10-földun á bréfum Alcoa Inc., undanfarna 18 mánuði. En nýir möguleikar eru sem betur fer að opnast. Jú, það eru kolin. Óelskuð en óhagganleg staðreynd. Staðreyndir eru þrjóskasta fyrirbæri alheimsins. Þvæla er hins vegar bara þvæla

Að lokum. Hér fer enn einn V8-Mack, en að þessu sinni frá fyrirtæki Eddy Hollands heitins. Sem ungur athafnamaður hannaði hann sínar eigin áströlsku V-8 útgáfur af bandaríska Mack-Superliner trukkunum og stofnaði síðan flutningafyrirtæki með sama nafni. Sjáið hve stoltur ökumaðurinn er af fleyi sínu. Það er hrein unun að horfa sá svona nytsama gersemi. Hrein snilld og ein helsta hryggsúlan í flestum ósovéskum hagkerfum

Þess má geta að það var hinn danskættaði Ástrali Kurt Johannsen sem fann upp og hannaði trukkalestina. Hann var það sem kallað er "bush mechanic" eða galdramaður á vélar og verkfæri í erfiðum og fátæklegum aðstæðum. Eins og margir íslenskir bændur voru, og eru enn. Geta allt og meira til. Skólaganga Kurts Johannsen endaði þegar hann var fimmtán ára.

Ástralía og Ísland eiga það sameiginlegt að vera ein strjálbýlustu lönd veraldar; með aðeins 3,4 íbúa á hvern ferkílómetra - og stærstu vegakerfi veraldar á hvern skattgreiðanda

Fyrri færsla

Þrír kellingaflokkar með næstum ekkert á landsbyggðinni. Nýtt kuldamet


Höfundur

Gunnar Rögnvaldsson
Gunnar Rögnvaldsson

Búseta: Ísland.
Reynsla: 25 ára búseta í ESB og fyrirtækja-rekstur í DK/ESB frá 1985 til 2010. Samband:
tilveraniesb hjá mac.com

Ég er hvorki skráður á Facebook, Twitter, Linkedin né á neinum öðrum "félags-vefjum". Aðsetur skrifa minna er einungis að finna hér á þessari síðu og á tilveraniesb.net og í blöðum og tímaritum

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband